Vísir - 19.02.1941, Blaðsíða 3

Vísir - 19.02.1941, Blaðsíða 3
VlSIR arnir á flótta. Það er í rauninni mjög áíak- anlegi, að Háskólinn skuli liafa orðið fyrir þvi óláni, að próf. N. D. skyldi fara að sletta sér fram í umræður um hið vænt- anlega skólabíó, því að fylgi slíkra manna reynist jafnan hverju málefni til tjóns og ó- farnaðar. En ekki þarf eg að kvarta. Um kurteisi próf. N. D. í blaðaskrifum er óþarfi að fjölyrða, þvi að iiann stingur varla svo niður penna, að liann verði sér ekki til minnkunar. í deilu sinni við mig býr hann til nýja bandamenn handa mér í hverri grein og kennir loks föð- ur mínum um skrifið i fyrra- dag, til þess að geta skýrt flótta sinn. Hefi eg nú — að sögn Dungals — svo marga banda- menn, að ekki er að furða þótt hann sé orðinn klökkur og beri sig illa. Próf. Alexander Jóliannesson, háskólarektor, ritar grein í Vísi í fyrradag, vitanlega til þess að reyna að bæta fyrir það, sem prófessor Níels Dungal lief- ir misgert og unnið stofn- uninni til vansa. Eg þarf þar litlu að svara. Próf, A. J, játar að liann viti eklcert um verð byggingarinnar og er' það að vonum, Hann minnist heldur ekki á skattana. En í því efni kemur próf. N. D. mér til hjálpar og hefir víst ekki ætlað að gera það. Hann játar nefnilega að ekki sé ætl- unin að borga útsvar eða tekju- og eignarskatt, en það hafi þó verið gert ráð fyrir stólaskatti og skemmtanaskatti. Stólaskatt- urinn er fyrst og fremst til bráðabirgða — vegna „ástands- ins“ — og á ekkert skylt við útsvarið. En hver lofar því, að ekki verði beðið um undanþágu frá honum, til að þakka enn betur góðvild bæjarstjómar? Sumum mun víst finnast tekjustofnar bæjarins nógu rýrir, þótt ekki verði enn gengið á þá, frekara en orðið er. Þá er rétt að geta þess, að á bæjarstjórnarfundinum, sem veitti bíóleyfið (þ. 19. des. s.l.), var það tekið fram, að arður kvikmyndahússins ætti að renna í Sáttmálasjóð — ekki beinlínis til reksturs Háslcólanum. Eitt atriði virðist próf. N. D. ekki skilja, þótt eg liafi tekið það fram tvívegis. Eg tel ekkert á móti því, að bíói verði bætt við þau tvö, sem fyrir eru í bænum, en eg álit sjálfsagt, að Þjóðleik- húiið verði lálið sitja fyrir i þessu efni. Þjóðleikhúsbygging- in er þegar orðin svo dýr, að það er nauðsynlegl, að hún sé fullgerð og tekin í notkun hið fyrsta, svo að hún eyðileggist ekki. En við því má búast, ef ekki er undinn bráður bugur að því, að fullgera bygginguna. Að lokum er rétt að fara um happdræltið nokkurum orðum. Ef Háskólinn fengi að hafa það áfram, yrði það auðvitað að vera með miklum takmörkunum og stöðugu eftirliti þings og stjórn- ar. En á þetta atriði minnist hvorugur prófessoranna. Þögn- in er svo einkennileg, að hún vekur ýmsar grunsemdir í huga þeirra manna, sem fylgst liafa með brölti sumra liáskólakenn- aranna að undanförnu. Eg hefi nú innt af hendi þá borgaralegu skyldu að vara við þeim ráðstöfunum, sem liér á að gera á kostnað skattgreið- enda íReykjavík,og lýk svo um- ræðunum um þetta mál, nema sérstakt tilefni gefist. Nú eiga þeir við að talca, sem liafa að- stöðu til að lcoma i veg fyrir á- gengni og einræðisbrölt i Há- skólakennaranna. H. P. Rikislánið; Hætt að taka við áskrift- um. Vísir átti tal Við við fjár- málaráðuneytið í morgun og' var blaðinu skýrt svo frá, að búið væri að fullu að skrifa sig fyrir láninu og væri hætt að taka við frekari áskriftum. Skuldabréfin hafa verið í prentun að undanförnu og er gert ráð fyrir, að þau verði til- búin á morgun. Hér i Reykjavík og Hafnar- firði skrifuðu menn sig fyrir ca. kr. 4.300.000, en úti á landi fyrir þeim sjö liundruð þúsund- um, sem þá eru eftir. Samkomttbannínu létt af. í gær ákvað heilbrigðisstjórn- in að létta af samkomubanninu frá og með deginum í dag og er það vegna þess, að læknar hafa orðið þess varir að undanförnu, að inflúenzan er mjög í rénun. Aðfaranótt mánudags varð næturlæknir aðeins var 7 til- fella og næstu nótt fjögurra, og á mánudag leituðu svo fáir sjúklingar læknis -— aðeins þriðjungur móts við mánudag- inn 10. þ. m. — að þá þótti að fullu reynt, að veikin væri í rénun. Samkomuhannið stóð í 12 daga, eða frá 7. þ. m. Norskur fall- byssubátur strandar. Milli kl. 7 og 8 í gær strand- aði norskur fallbyssubátur und- an Eyrarbakka. En veður var gott og sjór að falla að, svo að skipið losnaði af skerinu eftir svo sem klukkustund. Hafnsögumaður Eyrbekkinga lagði skipinu þar sem þvi var óhætt, er það losnaði af sker- inu. Var það þarna i nótt og kom enginn leki að því, enda var skerið, sein skipið lenti á, slétt og gat ekki rifið botninn. Atvinna er nóg á Eyrarbakka og starfa margir i þjónustu Breta. Veðurfar hefir verið á- gætt, eins og annarsstaðar á Suðurlandi. Bæjar fréttír Fermingarbörn síra Árna SigurÖssonar konii til spurninga fimmtudag kl. 5 (dreng- ir) og föstudag kl. 5 (stúlkur). Fermingarbörn síra Sigurbjörns Einarssonar 6g síra Jakobs Jónssonar eru beSin a'S korna í Austurbæjarskólann á morg- un (finnntudag) kl. 5. „Nitouclie“. Frumsýning verSur á óperettunni annaS kvöld, en næsta sýning verð- ur á föstudag. 4Þ Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Þórunn Ólafía Sigur- jónsdóttir, Hverfisgötu 82 og Jó- hann G. Björnsson, járnsmiður. Happdrætti. Þann 15. þ. m. var dregið hjá lögmanni í Happdrætti Félags Ár- neshreppsbúa, og hlutú þessi núm- er vinninga: 1. vinningur nr. 1764, 2. vinn. nr. 1619, 3. vinn nr. 388, 4. vinn. nr. 257, og 5. vinn. nr. 2647. Vinninganna sé vitjað til Jóns Guð- laugssonar, Viðimel 60. Næturlæknir. Pétur Jakobsson, Vifilsgötu 6, sími 2735. Næturvörður í Lyfja- búðinni Iðunni og Reykjavikur apó- teki. Útvarpið í kveld. Kl. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30 íslenzkukennsla, 2. fl. 19.00 Þýzku- kennsla, 1.. f 1. 19.25 Þingfréttir. — 20.00 Fréttir. 20.30 Kvöldvaka: a) Knútur Arngrímsson kennari: Ro- bert Bruce, þjóðhetja Skota. Erindi. b) 21.00 Skozk þjóðlög (plötur). 21.10 Vigfús Guðmundsson gest- gjafi: Frá Yellowstone-garði. Er- indi. d) 21.30 Ragnar Ásgeirsson ráðunautur: Strokið úr vistinni í Danmörku. Frásaga. jSTýkomiö I Enskir vasaklútar, karl- manna og kvenna, í mörgum litum, einnig barnaklútar með myndum. ^CRZLC? VörnbíU til sölu. Uppl. á verkstæðinu hjá Jóli. Ólafsson & Co. Nýkomið: falleg ensk HERRAFATAEFNI og DÖMUDRAGTAEFNI. Einnig gott CHEVIOT 1 FERMINGARFÖT. Laugavegi 23. Ensk bjón óska eftir 1—2 herbergjum með húsgögnum og aðgangi að baði; lielzt sem næst Mið- bænum. Uppl. i sima 2462, en eftir kl. 7 i síma 3262. — VÍSIS KAFFIÐ gerir alla glaða. 2-3 stúlkor og matsvein vantar etrax á veitingahús. Uppl. í Oddfellowhúsinu k. 5—8 í dag. LANGFLEYGAR FLUGVÉLAR Frh. af 2. síðu. með slíkar langferðir fyrir aug- uin. Það er fyrir löngu búið að sýna fram á, liversu auðvelt það er, að bæta vara-bensíngeym- um í flugvélar um stundarsakir. Það minnsta, sem þeir menn gera, er eiga að hafa umsjón með vígbúnaði Bandaríkjanna, er að sjá um að tækni fluglist- arinnar sé að fullu hagnýtt. Þeir verða að horfa fram í timann og framkvæma allar hugmynd- ir, liversu fífldjarfar seni þær virðast, ef þær gefa vonir Um framfarir og þar með kosti um- fram fjandmennina. En til þess að þetta geti orðið, þarf að stofna óliáðan flugher, sem get- ur fært sér í nyt allt liugvit og þor brautryðjenda flugtækn- innar. óskar Gíslason, afgreiðslumaður hjá Eimskipafél. íslands er fimmtugur í dag. Er hann maður vinsæll og vel látinn af ðllum. ODDFELLOWS HALL, TOMORROW EVENING AT 8.30 p. m. Lieut. Duncan Wylson, R. N. V. R., will give a talk: „THE ARCHITECT AND YOUR HOUSE". Dancing until 1 a. m. Only Members and Guests ad- mitted. LIMOLEVH nýkomið i f jölbreyttu úrvali, svo sem: Jaspe Moire. Munstrað. Einlitt brúnt. Borðlinoleum í 60 og 63 cm. breidd. Hálflinoleum. Linoleumdreglar 68 og 90 cm. breiðir. J. Þopláksson & Norðmann Bankastræti 11. Sími: 1280. Flutiaiiigrur til *> Islands. \ Reglulegar hálfsmánaðar • ferðir frá vesturströnd ■Bretlands til Reykjavíkur. 3—4 skip í förum. Sérstak- lega hagkvæm flutningsgjöld ef um stærri vörusend- ingar er að ræða. Tilkynningar um vörur sendist Gullifopd & Clark £,td. Bradleys Chambers, r London Street, Fleetwood, eða Geir H, Zoéga Símar 1964 og 4017, er gefur frekari upplýsingar. Yfirlýsing. Vegna orðróms er gengur um bæinn þess efnis, að hin opinberu loftvamabyrgi hafi verið lokuð sunnudagsmorguninn þann 9. þ. m. er merki um loftárásarhættu var gefið, skal þetta tekið fram: Öll loftvarnabyrgi (44 að tölu) að tveim undanteknum, voru oi^nuð eins fljótt og ástæður leyfðu þennan umrædda dag. Hins- vegar má ekki gera ráð fyrir þvi, að byrgis- verðir komi allstaðar fyrstir á staðinn þar eð þeir fá hættumerkið samtímis öðrnm bæjarbú- um. 1 ' ' - ' Loftvarnanefndin bafði ekki lyklavörzlu að þeim byrgjum er ekki voru opnuð í tæka tíð. Lokvanianefndiu. JarSarför Guðmundar Guðmundssonap, bókhaldara, sem lézt aS aS Elliheimilinu Grund þriðjudaginn 11. þ. m., fer fram frá dómkirkjunni fimmtudaginn 20. febrúar og hefst meS bæn á Elliheimilinu J<I. 10 árdegis.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.