Vísir - 12.03.1941, Síða 3
VISIR
salem Stefánsson fyrverandi
búnaðarmálastjóri Búnaðar-
þinginu skýrslu um, livernig
gengið hefði fjársöfnun í minn-
ingarsjóð I'ryggva heitins Þór-
hallssonar forsætisráðheri'a.
Samíþykktar voru þingsálykt-
unartillögur um þátttöku rikis-
ins í kostnaði við flutning á til-
húnum áburði á komandi vori,
og um að láta gera tilraunir
með hraðfrystingu á kjöti til út-
flutnings.
Á þessum fundi voru greidd
atkvæði um, breyting á jarð-
ræktarlögum, sem mikið hefir
verið rætt um á þessu Búnað-
arþingi og í milliþinganefnd
þess, er skipuð var fyrir tveim
áum. Af samkomulagi varð
ekki. Frá Þorst. Þorsteinssyni
kom fram tillaga um að fella
17. grein jarðræktarlaganna
niður. Var sú tillaga felld með
14 atkv. gegn 11, og stendur því
greinin áfram.
Síðast fór fram kosning í út-
varpsfræðsíunefnd Búnaðarfé-
lagsins. Endurkosnir voru þeir
Steingr. Steinþórsson húnaðar-
málastjóri og ráðnnautarnir Ás-
geir L. .Tónsson og Dr. Halldór
Pálsson.
Kosinn var einn niaður i
verkfæranefnd. — Endurkosinn
var Magnús Þorláksson bóndi á
Blikastöðum.
Þingslit fóru fram í dag fyrir
hádegi.
Miklar loftárásir
á Köln og innrás-
arhafnirnar í
fyrrinótl
London í morgun.
í fyrrinótt gerðu hrezkar
sprengjuflugvélar harðar loft-
árásir á Köln og komu þar upp
miklir eldar í iðnaðarhverfun-
um. M. a. var varpað sprengj-
um i námunda við hina frægu
Holienzollernbrú. Þetta var 61.
loftárásin á Köln.
Árásir voru einnig gerðar í
fyrrakvöld á Cherliourg, Brest,
Le Havre og Boulogne.
Tvær brezkar flugvélar voru
skotnar niður í þessum árásum.
Súez-skurðurinn
lokaður.
Þýzka útvarpið skýrir frá því,
að áhafnir tveggja rúmenskra
tankskipa séu nýkomnar heim
til Rúmeníu. Höfðu Bretar lagt
hald á annað skipið í höfn en
tekið hitt á' liafi úti, en leyft á-
liöfnuln þeirra að fara heim.
Segja sjómennirnir, sem komU
3'fii- Súez, að umferð um skurð-
ínn sé teppt vega skipa þeirra,
sem sökkt hefir verið í honum
og verði því allir flutningar að
fara fram á járnhrautum á
þessu svæði.
Flugvél varpar
sprengjum á Gíbraltar.
Þýzka útvarpið skýrði frá því
i gærkvöldi, að óþekkt flugvél
liefði um fniðjan dag í gær flog-
ið yfir Gibraltar og varpað nið-
ur sprengjujn.
För Matzuoka til
Evrópu.
Fyrsta för japansks utan-
ríkismálaráðherra í em-
bættiserindum til Evrópu.
Frásagnir og umræður jap-
anskra blaða um samningana
milli franslca Indókina og Thai-
lands þokast nú af fremstu síðu
blaðanna fyrir þeim athyglis-
verðu tíðindum, að utanríkis-
Herlið flutt frá
Bretlandi til Mið-
jarðarhafslanda.
London, í morgun.
Það var tilkynnt í London
í morgun, að herlið hefði ný-
lega verið flutt frá Bretlandi j
til landanna við austanvert
Miðjarðarhaf. Herlið þetta
var frá Ástralíu og Nýja-Sjá-
landi og er komið heilu og
höldnu á ákvörðunarstað.
Ekki var tekið neitt fram
um til hvaða lands herliðið
var sent, en um talsvert mik-
inn herafla mun hafa verið
að ræða.
málaráðherrann Matzuoka sé á
förum frá Tokio. Er för hans
Iieitið til Evrópu, um Siheriu og
Rússland til Berlínar og mun
hann leggja af stað í dag.
í för með Matzuoka verða níu
háttsettir embættismenn úr jap-
anslca utanríkisráðuriéytinu og
auk þeirra sérfræðingar úr
landher og flota.
Domei-fréttastofan bendir á,
að þetta sé í fjvsta skipti sem
japanskur utanríkismálaráð-
herra fari í embættiserindum til
Evrópu. Sé för lians gerð til þess
að kynnast betur horfum og
málefnum í Evrópu. Þá er og á
það minnst, að um það leyti sem
Þvíveldasáttmálinn var undir-
ritaður af Þjóðverjum, ítölum
og Japönum hafi Matzuoka
verið boðið að koma til Berlínar
og Róm, en þessu hafi ekki orðið
viðkomið fyrr en nú vegna ann-
rílds í’áðherrans.*
Að aflokinni dvöl sinni í Ber-
lín fer ráðherrann til Róma-
borgar, líklega í byrjun april, en
siðan er sagt að hann muni
koma við i Moskva i bakaleið-
inní og herrnir fréttastofan, að
æskilegt væri að þá tækist, að
skapa betri skilning með Rúss-
um og Japönum.
Matzuoka verður að vera
kominn aftur til Tokio fyrir 20.
apríl.
í Berlínarfregnum segir, að
japanski sendilierrann í Belgrad
hafi haft boð inni fyrir hinn ný-
skipaða sendiherra Rúmena,
sem sé á förum til Japana og
hafi þeir skipst á vinmælum.
Sir Stafford-Cripps
ræðir við Vishinsky.
London í morgun.
Sir Stafford Cripps ræddi i
gær við Vishinsky, varaforsæt-
isráðherra Sovét-Rússlands.
Sir Stafford Cripps er ný-
kominn til Moskva, en eins og
kunnugt er fór liann nýlega til
Ankara, og ræddi þar við Eden
utanrikisráðherra.
ÍTALIR GERA GAGNÁHLAUP.
GRIKKIR TÓKU 2000 FANGA
Á 2 DÖGUM.
London í morgun.
Grikkir tilkynna, að þeir hafi
tekið 2000 fanga undangengna
2 sólarhringa. Sókninni er hald-
ið áfram og ný fjallavirki tekin.
í seinustu lotu tóku Grikkir 150
fanga og mikið herfang. ítalir
hafa gert gagnálilaup, en þeim
var öllum hrundið.
Flugherinn hefir veitt land-
hernum mikinn stuðning.
Grikkir gera nú harða hríð
að ítölum á Tepelinivígstöðvun-
um, þar sem ítalir gera sein-
ustu örvæntingarlegu tilraun til
þess að veita viðnám.
„SEINASTA TÆKIFÆRI.“
Frá áreiðanlegum heim-
ildum í Aþenuborg er þvi
algerlega neitað, að Þjóð-
verjar liafi gefið Grikkjum
„seinasta tækifæri“ til að
semja við ítali.
Nokkra vana sjómenn
vantar strax. Góð kjör. Uppl. á
Ráðningarstofu Reykjavíkurbæjar,
Bankastræti 7.
4000 pokar af kart-
öflum komnir.
I dag verður kartöflunum
skipað uþp, sem nýlega komu
með skipi frá útlöndum. Er hér
um að ræða 200 tonn, sem
dreift mun verða til verzlana
hér í bænum, Hafnarfirði og
verstöðvanna suður með sjó.
Þetta er ekki nema örlitið af
því kartöflumagni, sem við
þurfum, en um næstu mánaða-
mót er von á auknum birgðum,
svo ekki er ástæða til að
„hamstra“, enda eru verzlanir
beðnar að selja kartöflurnar
ekki í heilum sekkjum.
Þessar kartöflur, sem nú eru
komnar, eru enskar. Verð á
þeim er liið sama og áður, eða
lcr. 26.00 pokinn. Um mánaða-
mótin kemur allmikið af kana-
diskum kartöflum, og þær hafa
reynzt betri en þær ensku.
Miklar loftárásir
á Bretland í gær-
kveldi og nótt.
London í morgun.
í gærkveldi voru þýzkar flug-
vélar viða yfir Bretlandi. Hörð
og löng loftárás var gerð á borg
i norðvesturhluta landsins, á
borg á suðvesturströndinni og
víðar, i nánd við Liverpool o.
s. frv. — í fyrrinótt voru 8
þýzkar flugvélar skotnar niður
yifir Bretland'i og hafa aldrei
verið skotnar niður jafnmarg-
ar flugvélar yfir Bretlandi á
einni nóttu.
Bretar hafa tekið ítalskar
hækistöðvar við Cabredarre, en
þær eru á þjóðleiðinni frá Moga-
dishu til HaiTar og eru 200 km.
innan landamæra Abessiniu.
Bretum bárust 419 flugvélar
frá Bandaríkjunum í janúar.
Fóru 102 til Englands, 120 til
Vestur-Afríku, 135 til Kanada,
43 til Mqjajalanda og 19 til Suð-
ur-Afríku.
í febrúar fórust 789 óbreyttir
borgarar í loftárásum á Eng-
land, en 1068 særðust. I janúar
fórust 1502 en 2012 særðust.
Eru þetta mun lægri tölur en í
nokkrum einum mánuði, síðan
hinar hörðu loftárásir Þjóðverja
hófust.
RADDIR
ALMENNINGS.
Vísi hefir horizt fjöldi greina
að undanförnu, sem engin tök
hafa reynst á að hirta, vegna
þrengsla í blaðinu. Margar þess-
ar greinar eiga þó fullan rétt á
sér og aðrar noldcum, og hefir
því sá kosturinn verið valinn,
að birta útdrátt úr ýmsum að-
sendum greinum, sem útundan
verða, hér i þessum dálki.
•
Hlustandi ritar blaðinu eftir-
farandi:
Þjóðsöngurinn í útvarpinu.
Eg vildi beina þeirri ósk til
útvarpsráðs, og eg veit að eg
tala um leið fyrir itiunn margra
annara, að liorfið verði frá
þeirri venju að ljúlca dagskrá
útvarpsins með því að spila
þjóðsönginn. Að mínu áliti er
þjóðsöngurinn aðeins ætlaður
til þess að leika hann við liá-
tíðleg tækifæri. Mér eru minnis-
stæð mörg fögur sumarkvöld,
þegar Lúðrasveitin hefir leikið
þjóðsönginn á Austurvelli,
hvernig maður, snortinn af feg-
urð lagsins og virðingu fyrir
sínuim eigin þjóðsöng hefir tck-
ið niður höfuðfatið og hlustað
með lotningu. Hafi það hent sig,
að einhver liafi sýnt slíka ó-
lcurteisi, að Jalca ekki ofan, hefir
maður horft með megnri van-
þóknun á viðkomanda. En út-
varpið er á góðri leið með að
gera þjóðsönginn hversdags-
legri en góðu liófi gegnir, með
því að spila hann á hverju ein-
asta kvöldi. Að leika þjóðsöng-
inn með hæfilegu millibili er til
þess fallið, að mánna alla góða
íslendinga á, hvað fallegan
þjóðsöng þeir eiga. Að leika
þjóðsönginn á hverju einasta
kvöldi er til þess fallið, að gera
jafnvel þjóðræknustu íslend-
inga leiða á sínum eigin þjóð-
söng, og þá er illa farið. Dag-
skrárlok i útvarpinu er það
hversdagslegt fyrirbrigði, að
ekki er ástæða til að leika þjóð-
sönginn yfir þeirii lokurn, held-
ur mætti finna eitthvert annað
lag, sem ekki hvílir eins mildll
helgiblær yfir. Eg hefi heyrt að
það sé venja við rnargar erlend-
ar útvarpsstöðvar, að leika
þjóðsöng viðkomandi lands við
dagskrárlok, en engin ástæða er
til að fylgja þvi fordæmi hér,
ef meiri hluti ihlustenda reynist
því mótfallinn.
ITSALA
Kventöskur,
Silfurrefir,
Barnatöskur,
Lúffur,
Buddur og veski,
Sldðalegghlíf ar,
Ullarleistar,
‘ Peysur,
Kerrupokar,
Kuldavettlingar,
Húfur,
Yinnuföt,
Belti,
Gúmmiskór,
Inniskór,
Skóhlífai', ýmsar gerðir
o. m. fl.
Notið þetta einstaka tækifæri
að fá dýrar vörur ódýrt. —
Góður afsláttur, allt á að selj-
ast úr búðinni.
Gúmmískógeröin,
Laugavegi 68.
Fasteignii: s.f.
Önnumst kaup og sölu fast-
— eigna og verðbréfa. —
Hverfisgötu 12. Sími: 3400.
Gólfklútai*
RINSO
RADION
VIM
LUX
Ekta PALMOLIVESÁPA.
KolaausuF
Vaskaföt
Borðhnífar
Teltönnur
Vekjaraklukkur
óskast strax.
K. F. U. M.
•Fundur annað kvöld kl.
8 V2. Síra Sigurður Pálsson
talar. Allir karlmenn vel-
komnir.
Unglingur,
óskast til sendiferða frá kl.
1—3 daglega. Tilboð, ásamt
kaupkröfu, merkt: „2 tímar“
sendist afgi'. Yísis.
5 VANIR og DUGLEGIR
sjómenn
óskast strax. — Uppl. gefur
Gunnar Ólafsson, Freyjugötu
38. —
10 ha.
rafmagnsmótor
fyrir Reykjavikurstraum ósk-
ast keyptur eða í sldptum fyr-
ir annan minni.
Uppl. í síma 2287.
Fötur og Föt,
emaileraÖ og' tinað.
U ppþvottabalar
Skálar og diskar email.
Náttpottar 3 stærðir
Skaftpottar
Mjólkurfötur
Könnur
Matskeiðar
Teskeiðar
Borðhnífar (silfur-
húðaðir á kr. 4.75)
Sigti o. m. fi.
«
Laugaveg 44. Sími 2527.
Faðir okkár
Jón Gíslason,
andaðist í Landspítalanum i gærmorgun.
Olga D. Sveinsson. Óskar Th. Jónsson. Viggó H« V. Jónsson.
Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnúm að ástkær
faðir okkar,
Sunólfur Einarsson steinhöggvavi,
andaðist að heimili sínu, Baldtirsgötu 28, í nótt.
Runólfur Runólfsson og systkini.
Nikulás Egilsson,
frá Húsavik,
er andaðist 2. þ. m. verður jarðsunginn á morgun kl. 11 f.
h, frá dómkirkjunni.
Skrifstofa ríkisspítalanna.