Vísir - 08.04.1941, Qupperneq 2
VISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 6 6 0 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Sambúðinvið setuliðið
j£OMIÐ hefir það fyrir ekki
alls fyrir löngu að óhróð-
ursgreinar liafa birzt í víðlesnu
amerísku tímariti um íslend-
inga og samhúð þeirra við hið
brezka setuiið. Var Islendingum
þar m. a. borið á brýn, að þeir
sætu stöðugt á svikráðum við
setuliðið, og yrðu hermenn að
vera tveir eða fleiri saman, til
þess að tryggja það, að þeir
fengju ekki rýting í bakið.
Margt var þar fleira sagt og ó-
þarft, sem ekki er ástæða til að
rekja liér.
Greinar þessar liafa vakið ó-
skifta gremju meðal íslendinga,
bæði erlendis og liérlendis, og
erum við þó ýmsu vanir frá
liendi óhlutvandra manna, sem
hér hafa dvalið, eða hingað hafa
aðeins komið. Hefir þar ekki á-
vallt verið glöggt gestsaugað, og
hafa greinar þessar frekar bor-
ið vitni um menningarstig höf-
undarins, en íslenzku þjóðinni.
Við Islendingar vitum það vel,
að við erum svo smáir, að við
megum ekki við miklu, og allt
það, sem okkur er á brýn borið
á erlendum vettvangi, getur
skaðað okkur öðrum þjóðum
frekar, en það er aðeins unnt
með einu móti að afsanna rang-
an áburð, eða með því að sýna
með breytninni, að hann liefir
ekki við rök að styðjast.
Frá þvi er hið erlenda setulið
steig hér fæti á land, liafa fáir
atburðir gerzt, sem okkur Is-
lendingum eru til vansæmdar,
enda hefir lítið verið gert á
hluta okkar frá hinu erlenda
liði. Margir Islendingar óttuðust
í upphafi að til árekstra kynni
að koma, einkum af þvi að ekki
þarf nema einn gikk í hverri
veiðistöð til þess að lileypa öllu
í bál og brand. Það hefir hins-
vegar sannast, að þessi ótti var
ástæðulítill, og er það vel farið.
Ber að þakka það herstjórn
Bretanna fyrst og fremst og
hverjum einstökum liðsmanni,
— en það er viðurkennt af öll-
um almenningi, að yfirleitt
koma þessir menn mjög prúð-
mannlega fram. íslenzkur al-
menningur á þó engu minni
þakkir skildar fyrir hegðan sína,
og má segja að hann liafi fylli-
lega skilið það, að eins og hög-
um er háttað getur hvert það
verk beinst gegn íslenzkum
hagsmunum, sem unnið er til
óþurftar setuliðinu.
Einn flokkur manna hér á
landi hefir með orðum og jafn-
.jæl athöfnum reynt að torvelda
þessa stundarsambúð. Hann
hefir Iegið á því Iúalagi að halda
fram rétti, sem allir eru sam-
mála um, til þess eins að læða
inn ósannindum og rógi, sem
valdið gæti hættulegum árekstr-
um, ef alvarlega væri tekið af
íslendingum annarsvegar og
brezka setuliðinu hinsvegar.
Sem betur fer hefir þessi starf-
semi lítt eða ekki haft þýðingu.
Islenzkra hagsmuna hefir verið
gætt af stjómarvöldunum og
þjóðhollum blöðum, og svo (
mun enn fram haldið, meðan
þörf gerist. Hver áreitni, sem
að óþörfu er í frammi höfð, j
getur skaðað hagsmuni okkar
sjálfra, valdið misskilningi og
óvild, sem spillir sambúðinni og
samvinnu þeirri, sem óhjá-
kvæmileg er liér á landi eins og
sakir standá. Yerður þvi hver
einstaklingur að hafa það liug-
fast, að haga breytni sinni svo,
að í samræmi sé við þjóðar-
sæmd og þjóðarhagsmuni. Sé
þessa gætt, þurfum við íslend-
ingar ekki að óttast að við glöt-
um rétti okkar, heldur getum
við og átt það víst, að við höf-
um verndað hvern þann rétt, et'
við áttum i upphafi styrjaldar-
innar.
Ȓslenzk ull<(.
Þegar lilast er um í hinum
vistlegu herbergjum skrifstof-
unnar „íslenzk ull“ í Suðurgötu
22, þar sem nú er sýning, þá
sést það glöggl, að starfsemi
skrifstofunnar er á iniklum
framfaravegi.
Þes&i starfsemi þeirra frú
Önnur Ásmundsdóttur og frú
Laufeyjar Vilhjálmsdóttur hófst
með sýningum þeirra í Mark-
aðsskálanum í des. 1938 og í
Iðnskólanum sumarið ’39. Sjálf
skrifstofan var stofnuð með
ríkisstyrk haustið ’39 og liefir
starfsemi hennar aukist ár frá
ári til þessa thna.
Skráðir viðskiptavinir eru nú
á 6. hundrað, og eru þeir bæði
utan af landi, sem selja skrif-
stófunni ull, eða senda þangað
prjónavorur og vefnað í um-
boðssölu, þó einkum stúlkur
og konur béðan úr Rvík, sem.
vinna að þessu í frístundum
sínum og afla sér þannig auka-
tekna.
Sýningunni verður lokið ann-
að kvöld og þvi síðustu forvöð
að sjá liana'.
Aðalfundur
Reykvíkingafélagsins
Reykvíkingafélagið hélt aðal-
fund sinn í Oddfelloiyhöllinni í
gærkveldi.
Formaður félagsins, síra
Bjarni Jónsson, minntist látinna
félagsmanna, þeirra Péturs
Halldórssonar, borgarstjóra, og
Jóns Hjartarsonar kaupmanns.
Þá minntist bann og hinna sorg-
legu atburða á liðnum vikum,
er snerta Reykjavíkurbæ og
landið allt. Bað liann bænum og
þjóðinni |allra framtíðarlieilla,
með-þeirri von, að frekara tjóni
yrði afstýrt.
Stjórnin var endurkosin, að
undanskildum gjaldkera, Júlí-
usi Árnasyni, er baðst undan
endurkosningu. I hans stað var
kosin frú Guðrún Indriðadóttir.
Verkefnanefnd var og endur-
kosin, en i stað frú Guðrúnar
Indriðadóttur, er sæti átti í
henni, var kosinn ,Tón Þorvarð-
arson, kaupmaður.
Brynjólfur Jóhannesson las
sögur og kvæði, en Pétur Á.
Jónsson, óperusöngvari, söng
nokkur lög. Frú Áslaug Ágústs-
dóttir lék undir.
Fundurinn fór hið bezta
fram. Félagsmenn eru nú um
290.
Sand- og grjótnám
bæjarins.
Vélarnar í sand- og grjótnámi
bæjarins eru nú orðnar um 20
ára gamlar og er því bærinn að
hugsa um að endurnýja þær.
Á síðasta fundi bæjarráðs var
samþykkt að fela bæjarverk-
fræðingi að leita tilboða í Eng-
landi um kaup á nýjum vélum.
'Jafnframt var bæjarverkfræð-
ingi falið að gera tillögur um
nýtt fyrirkomulag á þessari
starfsemi.
Framleið§ln land§in§
§tafar liætta af
rerkafolk§ ekln.
Hin sivaxandi eftirspurn setulidsins um
vinnukpaft er að stödva nauðsynlega fram-
leidslu til sjávai* og sveita.
Einhver mesta hættan sem landinu stafar af hernáminu er
nu að koma í Ijós. Setuliðið hefir með höndum ýmsar
framkvæmdir, svo sem flugvallagerð, vegalagningu og fleira,
sem á. okkar mælikvarða notar óhemju mikinn vinnukraft.
Mest mun þetta vera hér sunnan lands. Þúsundir verkamanna
vinna nú við þessar framkvæmdir. Menn strejrma úr þorpum
og sveitum til að komast í þessa atvinnu sem er svo vel borguð
að sveitirnar að minnsta kosti geta ekki keppt um vinnukraft-
inn.
I svipinn virðist þörf setuliðs-
ins fyrir verkamenn vera í mjög
ríkum mæli, og mun eftir-
spurnin meiri en framboðið,
þrátt fyrir það að menn streyma
nú frá mörgum atvinnugrein-
um í setuliðs-vinnuna.
Flestum er nú að verða Ijósí,
að hér er stórhætta á ferðum.
Úr sveitum landsins þurrkast
burt vinnukrafturinn einmitt
nú, á þeim tíma árs sem bænd-
ur fara að búa sig undir vor-
verkin. Jafnframt verða þeir að
horfa fram á það, að geta enga
aðstoð fengið við heyskapinn og
er því bústofn landsins í yfir-
vofandi hættu, ef svo fer sem
á horfist. Hér í Reykjavík er
svp mikill hörgull á fólki til að
vinna að uppskipun og verkun
fiskjar, að nærri siappar vinnu-
stöðvun. Sama er að segja um
uppskipun á vörum og annað
í því sambandi, verkafólksekl-
an er að verða óþolandi. Ýmsar
greinar atvinnureksturs í bæn-
um Iiafa sömu sögu að segja.
Menn fara unnvörpum úr
þeirri atvinnu, sem þeir hafa
stundað, vegna þess að þeim
býðst nú liærra kaup hjá setu-
liðinu. Á sendisveinum liefir t.
d. aldrei verið slíkur hörgull
sem nú er.
Það er dýrmætt, að menn
hafi atvinnu, en þjóðin verður
að gera sér Ijóst, að það eru
takmörk fyrir því, liversu mik-
inn vinnukraft hún getur látið
í té til starfa, sem ekki eru
framleiðslustörf. Þjóðin verður
að halda áfram að lifa i þéssu
landi á bverju sem gengur, en
hún getur því aðeins lifað, að
framleiðsla hennar til lands og
sjávar geti lialdið áfram að
fæða landsmenn. Eins og nú
standa sakir, er framleiðsla
landsins mesta öryggið, sem
þjóðin hefir til þess að geta fætf
sig sjálf. Því meiri sem liættan
verður á siglingaleiðunum, því
dýrmætari eru þær fæðuteg-
undir, sem hér eru framleidd-
ar. Hversu miklum fjármunum
sem þjóðin safnar í Englandi
fyrir vinnu lijá setuliðinu hér,
þá getur það ekki haldið bung-
urvofunni frá landinu, ef fram-
Ieiðslan og, ræktun landsins
fellur í rústir.
Vafalaust má telja, að brezk
hernaðaryfirvöld liér hafi ekki
athugað, hversu hér er um al-
varlega þróun að ræða í at-
vinnulifi og afkomu lands-
manna. Og verður að óreyndu
að telja það fullvíst, að þau
muni sýna fullan skilning á
þessu einstæða vandamáli og
vera fús til samvinnu við ís-
lenzk stjómarvöld um að leysa
það öngþveiti, sem nú er að
myndast í þjóðlífi voru. Bretar
hafa í sínu eigin landi tekið sér-
stakt lillit til landbúnaðarins og
þarfa bænda um vinnukraft við
ræktun landsins í sambandi við
kvaðningu til herþjónustu. Hér
stendur eins á með hina fá-
breyttu framleiðslu vora. Henni
verðnr að sjá fyrir vinnukrafti
svo þjóðin geti lifað.
Þetta mál þolir enga bið. Rílc-
isstjórnin verður að leita sam-
komulags við herstjórnina um
lausn á því. Ef ekki verður eitt-
hvað að gert þegar í stað, er
ekki annað sjáanlegt, en að úr
þessum vanda skapist fullkom-
ið öngþveiti. Málið þarf að leysa
á þann hátt, að herstjórnin fái
þann vinnukraft, sem venjulega
vinnur ekki að landþúnaði eða
beinum framleiðslustörfum. En
það eru aðallega verkamenn i
kaupstöðum. Þeir eiga að geta
stundað þessa vinnu meðan hún
fæst, en liún má ekki verða til
þess að soga til sín vinnuaflið
úr fjöldamörgum starfsgrein-
um, sem þjóðinni er lífsnauð-
syn að haldist í liorfinu.
r
Bátnr §kip§tjáran§
af Beaverdale kom-
Inn fram.
Um kl. 9 í gærmorgun varð trillubátur frá Sandi á Snæfells-
nesi var við björgunarbát, sem í voru 26 menn. Fylgdi trillu-
báturinn — og annar bátur, sem bar að rétt á eftir — skipbrots-
mönnunum til lands á Öndverðarnesi, þar sem þeim var þegar
hjúkrað eftir mætti.
Héraðslæknirinn í Ólafsvík
fór þegar vestur á Öndverðar-
nes, er fréttist um skipbrots-
mennina og kom liann þangað
um Id. IV2 í gær.
Vísir átti tal við lækninn —
Sæbjörn Magnússon -— í
morgun. Kvað hann symum
mönnunum Iiafa verið farið að
líða mjög illa, því að þeir voru
búnir að vera í bátnum um
fimm og hálfan sólarhring —
130 klukkustundir — því þetta
var bátur skipstjórans af brtezka
skipinu Beaverdale, sem sökkt
var að kveldi þ. 1. apríl. B.v.
Gulltoppur bjargaði 33 mönn-
um af þessu skipi, eins og sagt
var frá hér í blaðinu í gær.
Héraðslæknirinn batt þegar
um fætur þeirra manna, sem
verst voru á sig komnir og gaf
þeim morfínsprautur, til þess
að draga úr þrautunum, sein
þeir liafa í fótunum.
Hér voru strax í gær gerðar
ráðstafanir til þess að sækja
mennina, og var skip sent vest-
ur. Bjuggust menn við að það
myndi fara beint til Öndverðar-
ness, því að veður var svo gojt,
að lending var ekki vandkvæð-
um bundin.
Beið héraðslæknir hjá skip-
brotsmönnunum til lcvelds, en
þá var skipið ókomið. Fór hann
]iá inn á Sand, til að grenslast
eftir því, og var það komið
]iangað. Höfðn skipverjar á því
talið, að ekki myndi vera hægt
að lenda við Öndverðarnes og
því farið framhjá.
Var þá álcveðið að bíða þang-
að til í morgun, en í nótt hvessti
svo að ekki var Viðlit að lenda.
Verður því að flytja mennina
á hestum til Sands, en leiðin er
erfið, því að hún liggur um
brunahraun.
Héraðslæknir rómaði mjög
hversu vel skipbrotsmönnunum
hefði verið tekið á Öndverðar-
nesi. Sagði liann, að raunveru-
lega hefði heimafólk gert meira
fyrir þá, en hægt hefði verið
með góðu móti, því að húsa-
kynni eru mjög lítil fyrir svo
marga menn, sem hér um ræð-
ir. —
Um þriðja bátinn vissi skip-
stjórimi á Beaverdale ekkert.
BcBÍar
fréttír
Á förnum vegi
heitir nýútkominn sögubók eftir
Stefán Jónsson kennara. Stefán er
fyndinn og skemmtilegur höfundur
og vinsæll meðal lesenda sinna. ísa-
foldarprentsmiðja hf. gaf bókina út.
Danssýningu
og lokadansleik heldur ungfrú
Bára Sigurjónsdóttir í Iðnó annað
kvöld kl. 8Nemendur frá skóla
hennar í vetur sýna þarna m. a,
stepp, ballett og akrobatik. — Sjá
augl. á öðrum stað i blaðinu.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sina ungfrú Kristjána Kristins,
Bræðraborgarstíg 49, og Anton Sig-
urðsson, bílstjóri, sama stað.
Næturlæknir.
Axel Blöndal, Eiriksgötu 31, sími
3951. Næturverðir í Ingólfs apóteki
og Laugavegs apóteki.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30
Dönskukennsla, 1. fl. 19.00 Ensku-
kennsla, 2. fl. 19.25 Þingfréttir. —
20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Innan
luktra dyra (GuÖm.‘ Davíðsson).
20.50 Tónleikar Tónlistarskólans:
Tríó eftir Smetana. 21.25 Hljóm-
plötur: „Matthias málari“, sym-
fónía eftir Hindemith.
OG NÁLAR FYRIR
PÁSKAFRÍIÐ.
Hljóðfærahúsið
Three ílowers
CREM og PUÐUR
nýkomið.
Hárgreiðslustofan
PERLA
Bergstaðastræti 1. Sími 3895.
Kólfmottnr
KOLAAUSUR
UPPÞVOTTAFÖT
SÚPUAUSUR
BORÐHNlFAR
TEKATLAR
BOLLAR
ÞURRKUR (Viskustykki)
GÓLFKLÚTAR
HITABRÚSAR.
RAFTÆKJAYERZLUN OC
VINNUSTOFA
LAUCAVEG 46
SÍMI 5858
RAFLAGNIR
VIÐCERÐIR
SÆKJUM
» • • • *
SENDUM
Danske
€iiidst|ene§ter
Skærtorsdag og Langfredag
kl. 5 (ikke Paaskedag). —
Velkommen.
Sailors Institut, Tr-yggvagata.
R. Biering Prip.
Laxfoss
fer til Vestmannaeyja á
morgun kl. 8 síðdegis.
/
Flutningi veitt móttaka til
klukkan 4.
ÍHEllOSOLUBIReénr--?VRNI JON5SON,
! MAFNAR&TR.5, REVKJA VI K .
Stúlka
Ung, ábyggileg stúlka með
einhverja verzlunarjiekkingu
getur fengið góða atvinnu um
miðjan þennan mánuð. Uppl.
i síma 2200.
tún í góðri rækt til leigu, 11
kílómetra fná Reykjavík. Til-
boð sendist blaðinu fyrir 22.
b. m., merkt: „Tún“.