Vísir


Vísir - 21.04.1941, Qupperneq 1

Vísir - 21.04.1941, Qupperneq 1
Ritstjóri: Krtstján Guðlaugsson Skrifstofur: 'Félagsprentsmiðjan (3. hæð). / Ritstjóri Blaðamenn Slmi: Auglýsingar > 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 31. ár. Reykjavík, mánudaginn 21. apríl 1941. 89. tbl. Þjóðverjum hefir misheppnast að brjótast gegnum víglínu banda- manna, Þeip tialda áfraxn skipulegu undanlialdi til styttri víglínu. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Nýja áhlanpi Þjóðverja hrendið við Tobrnk - - Stöðugar loftárásir á flugstöðvar þeirra og vélahersveitir. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. í fregnum sem bárust til London í gær er sagt frá því, aS Þjóðverjar hafi gert enn eina tilraun til álilaups á Tobruk. Kom skriðdrekasveit eftir veginum frá Derna og réðist á ytri virkja- röðina og komust skriðdrekar inn í hana, en 4 voru þegar eyði- lagðir í skothríð og brátt lögðu hinir á flótta, sumir allmjög skemmdir. Það er litið svo á, að meðan Bretar og samherjar þeirra verj- ast í Tobruk sé vonlaust um, að Þjóðverjar geti haldið sókn- inni áfram með nægum krafti. í gær var tilkynnt, að indverskar vélahersveilir væri m. a. til varnar í Tobruk, en indversku her- sveitirnar hafa getið sér mikið orð i Afrikubardögunum, ekki siður en Ástralíumenn, og er mjög rómað liversu frækilega þeir börðust við Klieren í Eritreu og víðar. að var viðurkennt í fregnum frá Kairo í gær, að, Olympsfjall væri á valdi Þjóðverja, en það var tekið fram, að bandamenn hefði hörfað þaðan, áður en Þjóðverjar komu sér þar fyrir og drógu hakakrossfáninn á stöng á tindinum. I tilkynningu grísku stjórnarinnar í gærkveldi er sagt frá áframhald- andi, feikna hörðum áhlaupum Þjóðverja á allri víglín- unni við ógurlegt manntjón, en bandamenn hörfa skipulega undan til hinnar stuttu varnarlínu, óg valda feikna tjóni í liði Þjóðverja, er enn sem fyrrum hafa ó- takmarkað herlið og gnægð hergagna. Liðsmunurinn í fótgönguliði Þjóðverja annars vegar og Breta og Grikkja hinsvegar er talinn 3 gegn einum og Þjóðverj- ar eru sagðir hafa 4 flugvélar móti hverri brezkri, en flugher Grikkja er svo smár, að hans gætir lítið í þeim átökum, sem nú eiga sér stað, en Grikkir hafa sýnt, að þeir eiga vaska flugmenn. Af fregnum bandamanna verður ekki ráðið hversu langt Þjóðverjar hafa ótt suður á bóginn, en í tilkynningum Grikkja er talað um feikna harða bardaga á Kalabakvígstöðvunum og fyrir sunnan Olympsfjall. Tekið er fram, að, varnarlína banda- manna hafi hvergi verið rofin. En frá því var sagt í London, að Þjóðverjar héldi því fram, að þeir hefði sótt fram frá Larizza til Lamia, um það bil 50 enskum mílum sunnar (sjá meðf. upp- drátt). Nokkurar líkur eru til, að hin stutta varnar- lína sé milii Lamiaflóa og Artaflóa. En Bretar eða Grikkir hafa ekki enn tilkynnt opinberlega hvar hún sé. — Miklar loftárásir liafa verið gerðar að heita má á allar flug- stöðvar Þjóðverja og ítala í Li- býu, en einna harðastar á Benghazi og Gliazala, og einnig var gerð hörð árás á höfnina í Tripoli. HARÐNANDIBARDAGAR VIÐ DESSIE. Við Dessie eru bardagar harðnandi, og eru hersveitir Breta- stöðugt að kreppa meira að ítölum, sem þar verjast, og hið sama er að segja á öðrum vígstöðvum Abessiníu, en það virðist nú óðum draga að þvi, að leikurinn sé úti þar. HAILE SELASSIE FER TIL ADDIS ABBEBA innan skamms, að því er sagt var í fregnum, sem bárust til Englands í gærkveldi. Undir- búningnum undir komu hans til höfuðborgarinnar er hrað- að eins og frekast er unnt. • Kyrrlát nött í Englandi. London í morgun. Loftvarnamerki voru gefin i London í gærkveldi, en það voru gefin merki um, að hætt- an væri liðin hjá, eftir nokk- urar mínútur. — Annarstaðar í Bretlandi var ekki um nein- ar loftárásir að ræðá — að minnsta kosti ekki svo að kunnugt sé. Matsveina- og veitingaþjóna- félag Reykjavíkur heklur árshátíð sína í kvöld kl. ii í Oddfellowhúsinu. Aðgöngu- miðar fást þar til kl. 8 í kvöld. 28 þýzkir flugmenn flýja úr fangabúðum London í morgun. Fregn frá Winnipeg herm- ir, að 28 þýzkir flugmenn, sem voru í fangabúðum í Manitoba, hafi lagt á flótta. Flugmenn þessir voru sendir til Kanada til gæzlu ásamt mörgum öðrum. Engar upp- lýsingar voru gefnar um hvernig flugmönnunum tókst ð komast undan á flótta. — Þeirra var saknað s. I. laug- ardag og var þá hafin leit að þeim og tókst að hafa hendur í hári 18 þeirra. Tíu eru enn ófundnir, en vafasamt er talið, að þeir séu á lífi, því ógurlegt hríðarveð- ur fer nú yfir sléttufylkin. Tekið er fram, að það sé báðum styrjaldaraðilum í hag, að leikurinn hefir færst suður á bóginn. Bandamönnum af því, að þeir fá miklum mun stjftri víglínu að verja, en Þjóðverjum á hinn bóginn af því, að skilyrðin til þess að koma við vélaher- gögnum eru betri því sunnar sem dregur. En það verða áreið- anlega hörð átök á hinni stuttu víglínu og þar verða Þjóðverjar að brjótast í gegnum hið fornfræga Laugarskarð (Thermopyle á kortinu), ti'l þess að geta haldið áfram sókninni lengra suður á bóginn. .... Brezk samninganefnd kom á laugardaginn. laugardag kom • hingað nefnd fjögra Breta, sem á að semja um kaup á íslenzkum afurðum til Bretlands. Meðal nefndarmanna eru þeir Owen Hellyer og Geo Copeland, sem hér eru mörgum lcunnir. Þegar Vísir átti í morgun tal við u lan rí k ismálaráð u n ey tið hafði nefndin elcki gengið á fund ríkisstjórnarinnar, eða hún fengið opinbera tilkynningu um komu liennar. Liggja því ekki, að svo stöddu máli, fyrir frelcari upplýsingár uni hlutverk nefnd- arinnar. Grikkir eru að hörfa undan i Albaniu, i samræmi við und- anlialdið í Grikklandi, og hafa ítalir reynt að nota sér þetta, en haft lítið upp úr því. Gerðu þeir tilraun til álilaupa á tveimur stöðum, en hiðu mikið manntjón og voru hraktir til baka lengra aftur en þeir voru, er þeir byrjuðu áhlaup sín. Grikkir tóku nokkra fanga. Hvorki í Makedoniu eða Þessalíu hefir óvinunum tekizt að brjótast gegnum varnalínur vorar, segir í grískri tilkynn- in nálgast. Ávarp Geogs Grikkja- konungs til hers og þjóðar. Georg Grikkjakonungur á- varpaði herinn og þjóðina í gærkveldi, og beindi liann aðal livatningarorðum sínum til hersveitanna, er verja undan- haldið. Berjist án þess að hopa j um fet, sagði liann. Konungur : mælti titrandi röddu af mikl- ! um alvöruþunga, og blandaðist engum hugur um, er á hann hlýddu, að úrslitastundin fær- ist óðum nær. HERNAÐARLEG STJÓRN UNDIR FORYSTU GEORGS KONUNGS. Georg konungur tilkynnti þar næst, að hann hefði tekizt á hendur stjórnarfórystuna. Mynduð hefði verið hernaðar- leg stjórn til þess að fara með völdin á yfirstandandi styTjald- ar og hættutíma. Hann minnti á hversu einarðlega Metaxas og síðar Koryzis hefði fylgt fram þeirri stefnu, að verja landið til hins ítrasta, hvaðan sem árásin kæmi. Eins og Me- taxas hefði ákveðið að verjast ítölum, eins hefði Koryzis djarf- lega tekið samskonar stefnu, er innrás Þjóðverja var fyrir- sjáanleg. Minnumst þessara leiðtoga og gerum skyldu vora við land vort og þjóð, sagði konungurinn. Hann hvatti her- inn og þjóðina til þess að fylkja sér um hann. LOFTÁRÁSIR Á AÞENUBORG. Loftvarnamerki voru gefin nokkrum sinnum í Aþenuborg í gær. Um 30 þýzkar sprengju- flugvélar flugu inn yfir borg- VATKIÐ: Iðnaðurinii notar um sjötta hlnta vatn§ins Isíðustu viku var vatnsskorturinn hér í bænum alvarlegri með hverjum deginum sem leið og voru þó hvað eftir annað birtar áskoranir í blöðum og útvarpi um að fara sparlega með vatnið. T. d. var vatnsborðið í geymunum 4.80 m. á fimmtu- dagsmorgun, 4.30 m. á föstudagsmorgun og 3.90 á laugardag. Vísir hafði tal af Helga verk- fræðingi Sigurðssyni og spurði hann um ástandið i þessum málum. Kvað Helgi vatnsborö- ið hafa hækkað nokkuð í geym. unum í gærmorgun og í morg- un rann út úr þeim. „En“, sagði liann, „Þetta táknar ekki, að allt sé þar með í laffi, því að geymarnir hafa alltaf fyllzt um helgar, þótt vatnsskortur hafi verið vikuna á undan.“ í gærmorgun var mælt, hve vatnsrennslið til bæjarins væri minna, þegar verksmiðjur störfuðu ekki, og reyndist það 40 1. á sekúndu, eða sem svar- ar sjötta liluta þess vatnsmagns sem rennur til bæjarins. — Vatnseyðslan var einnig rann- sökuð um páskana og minnk- aði hún þá um fjórðung. Vísir hefir kynnt sér skýrslu þá, sem bæjarstjórn var send ekki alls fyrir löngu um vptns- þurrðina i bænum. Sést af hennij að höfnin not- ar mjög lítið vatn, i saman- burði við alla vatn§notkunina og slökkviliðið hefir ekkert vatn notað í langan tíma. Mestur hluti vatnsins fer tit bæjarbúa og setuliðsins. Hefir þeim tilmælum verið beint til setuliðsins, að það fari spar- lega með vatnið, en bæjarbóar verða líka að gera sitt *il að draga úr vatnsþurrðinni. Ef fólk gætir þess, að nota ekki meira vatn en það þarf alveg bráðnauðsynlega, mun á- standið batna í þessu efni, ‘ oo að engin hverfi bæjarins verða vatnslaus. Náist þetta hins veg- ar ekki með almennum sam- tökum, verður að fara aðrar leiðir. Innanfélagsmót Armanns, K. R. og I. R. í svigkeppni. Þátttaka góð, þrátt fyrir þungt færi. Þrátt fyrir blautan snjó og þungt færi í gær, héldu Ármann í. R. og K. R. innanfélagsmót í svigi við allgóða þátttöku. ina, eii er brezkar orustuflug- vélar lögðu til atlögu við þær, flugu þær lágt yfir eitt út- hverfi borgarinnar, þar sem eingöngu eru íbúðarhús, og i skutu flugmennirnir allt hvað af tók af vélbyssum sínum. IIIN NÝJA ST.TÓRN. Georg konungur er yfirmað- ur stjórnarinnar, sem fyrr seg- ir, en varaforsætisráðherra er Sakelariou flotaforingi, yfir- maður flotaráðsins. Hann er einnig flotamálaráðherra. Her- foringjar fara með embætti hermála, flugmála og sam- göngumálaráðherra. Seinustu fregnir í stuttu máli. Fregn hefir borizt um, að Cvetkovies, fyrrverandi forsæt- isráðherra Júgóslavíu, liafi særzt alvarlega í einni loftárás Þjóðverja á Belgrad. Brezkur kafbátur hefir sökkt ítölsku olíuflutningaskipi á leið til Tripoli. Flugsveitir frá Suður-Afríku eru komnar til vigstöðvanna í Libýu. Útvarpið i Búdapest segir, að borgarastyrjöld kunni að brjót- ast út í Rúmeníu þá og þegar. Liklegt þykir,' að markmið Ung- verja sé að spilla fyrir Rúmen- um, svo að þeir fái ekkert af Júgóslaviu, enda herma sumar fregnir, að Ungverjar og Búlg- arar eigi að fá sneiðar af land- inu, en Rúmenar ekkert. Brezkar sprengjuflugvélar gerðu ánásir í nótt sem leið á borgir í Vestur-Þýzkalandi og á innrásarbækistöðvamar í Frakldandi. | Ármenningar kepptu i Blá- | fjöllum. Þátttakendur vom 14. 5 Beztan tíma hafði Eyjólfur ! Einarsson á 50.8 sek. báðar í ferðir. Annar varð Karl Sveins- son á 58.8 sek. og þriðji Þór- arinn Björnsson á 60.6 sek. — Lengd brautarinnar var nálega | 170 m. Snjór var mikill, en I skiðafæri var ekki gott vegna bleytu í snjónum. 70 manns voru á skíðum, þar af 49 næt- urgestir. I svigkeppni K.R. tóku þátt 20 manns. Brautin Var 300 m. löng. Fyrstur varð Georg Lúð- víksson á 91.7 sek. Annar Bragi Brynjólfsson 98.0 sek. og þriðji Magnús Þorsteinsson 99.0 sek. Veður var ágætt og snjór mik- ill, en færi nokkuð þungt vegna frostleysu. 90 manns voru á skíðum. Í.R.-ingar kepptu i tveimur flokkum, meistaraflokki og I. flokki. í meistaraflokki varð Einar Eyfells hlutskarpastur á 49.5 sek. (25.7 og 23.8 sek.). Annar varð Haraldur Árnason á 55.1 sek (28.4 og 26.7) og þriðji Björn Þörbjörnsson á 61. 7 sek. (31.2 og 30.5). Meistari fyrra árs, Bolli Gunnarsson, gat ekki tekið þátt i keppninni að þessu sinni. í I. flokki varð Sigurjón Þórðarson fyrstur á 81.5 sek. og annar Guðmundur Sveins- son á 107.0 sek. Keppnin fór fram i Skarðs- mýrarfjalli. Nokkruru eftir há- degið tók að rigna og gerði krapasnjó, svo mikinn, að margir gengu úr leik í fyrsta flokki, af þeim sem ákveðið liöfðu að keppa. Brautin var a. | m. k. 250—260 m. löng, og efri hluti hennar í miklum ha la. Um 60 manns munu hafa ver- ið á skíðum.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.