Vísir - 10.05.1941, Blaðsíða 1
!
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
31. ár.
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
Reykjavík, laugardaginn 10. maí 1941.
105. tbl.
Skipatjónið í apríl
að Bretar þurfa
við i styrj oldinm
um Atlanzhafið.
í heimsstyrjöldinnivar
mánaðartjón meira ad
eins 6 sinnum.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Fyrir nokkurum vikum var tilkynnt. í Bretlandi,
að framvegis yrði ekki birtar vikuskýrslur
um skipatjón, þar sem komið væri í ljós, að
Þ jóðver jar gæti komizt að ýmsu sem þeim mætti að
gagni verða, er vikulegar skýrslur væri birtar. Var þá
boðað, að mánaðarskýrslur yrði birtar, og í fyrsta sinni
(fyrir apríl) um miðbik maímánaðar. Var þvi haldið
fram, að ekki væri unnt, að birta áreiðanlegar skýrslur
vikulega? þvi að iðulega væri ekki öll kurl komin til
grafar, og þyrfti þá að leiðrétta og birta nýjar tölur. —
En að undanförnu hafa heyrst æ háværari raddir um, að
nauðsyn krefði að tölurnar fyrir april væri birtar sem fyrst, og
var það svo gert í gærkveldi, með þeim forsendum upplýsinga-
málaráðuneytisins, að einangrUnarstefnumenn i Bandaríkjun-
um hefði haldið því fram, að skipatjónið á Atlantshafi væri
mjög minnkandi, og þess vegna væri þess engin þörf, að Banda-
ríkin gripi til nýrri ráða (herskipaverndar) til þess að koma
hergögnum og öðru til Bretlands. Vitnuðu einangrunarpostul-
arnir óspart í ummæli Lands flotaforingja, formanns siglinga-
málaráðsins, sem sagði, að fyrstu 3 mánuði ársins hefðu að
eins 8 skipum af 205 sem fóru frá Bandaríkjahöfnum til Bret-
lands verið sökkt. Skýrslurnar fyrir apríl, sem nú hafa verið
birtar, eru taldar sanna, að ályktanir einangrunarstefnumanna
hafi ekki við rök að styðjast, því að þótt skýrslan sé heildar-
skýrsla, sem nær því einnig yfir Miðjarðarhaf, en þar urðu Bret-
ár og bandamenn þeirra fyrir miklu sldpatjóni i april, er tjónið
mjög milcið, svo mikið, að sýnt er, að Bretar þurfa fullrar að-
stoðar Bandarikjanna til þess að sigra í styrjöldinni um Atlants-
hafið, að áliti sérfróðra manna, því að næstu miánuðina má bú-
ast við mjög auknum árásum á skipalestirnar, ejnkanlega úr
lofti, suniarmánuðina.
Útkoman samkvæmt skýrsl-
unni er sú, að sökkt hefir verið
samtals 106 skipum, sem eru
upp undir hálfa milljón simá-
lesta, og var mánaðarskipatjón
í Heimsstyrjöldinni meira en
þetta aðeins 6 sinnum.
í apríl var sökkt 60 brezkum
skipum, samtals 293.080 smál.,
43 skipum bandamanna Breta,
samtals 189.433 smál., og 3 skip-
um hlutlausra þjóða, samtals
5.562 smál.
Liggur í augum uppi, að þrátt
fyrir það, að Bretum hafi verið
bætt skipatjónið upp með ýmsu
móti, að þeir hafi fengið og fái
mikið af skipum frá Bandríkj-
unum, sem ónotuð voru, ný
skip bætist vrð o. s. frv., þá er
þetta skipatjón svo mikið, að
það þarf að grípa til hinna rót-
tækustu ráðstafana til þess að
draga úr því, og fyrirbyggja
verður, hvað sem það kostar, að
framhald verði, ekki að eins
vegna vaxandi erfiðleika að
fylla í skörðin, heldur og vegna
hins mikla tjóns af að missa
verðmæta skipsfarma í hafsins
djúp.
I STUTTU MALI
Tyrkneska stjórnin ltom
saman á fund i gær, eftir að
forsætisráðherrann ræddi við
utanríkisráðherra Bashid Ali.
Uppreistarmenn i írak eru á
undanhaldi livarvetna og er tal-
ið líklegt, að ]æir hafi beðið
Tyrki að gera nýja tilraun til
þess að rniðla málum.
Fregnir hafa borizt um nýjar
loftvarnaráðstafanir í Tyrk-
landi og Sýrlandi. í Smyrna eiga
allir húseigendur að láta gera
loftvarnabyrgi við hús sín fyrir
1. júlí.
Áhöfn þýzks vopnaðs togara,
Miinchen, sökkti honum i norð-
urhöfum, til þess að Bretar næði
ekki skipinu. Áliöfn togarans
var tekin til fanga.
Áætlunarsiglingar frá Banda-
rikjunum byrja nú bráðlega til
Rauðahafshafna.
Portúgalsmenn hafa ákveðið
að verja Azoreyjar gegn árás
livaðan sem liún kemur. Um leið
var tilkynnt, að Bandarikin
hefði lofað að virða sjálfstæði
Portúgal og skerða það ekki né
nýlendna þess. Var þessuyfirlýsl
vegna þess, að Bandaríkjaþing-
maður, Pepper, öldungadeildar-
þingmaður, vildi að Bandarildn
setli her á land á Azoreyjum í
öryggis skyni.
Halifax lávarður sagði í ræðu
i Bandaríkjunum i gær, að naz-
istar hefði mýrt um 40.000 Óól-
verja undangengna mánuði.
Yfir 2000 þýzkir og ítalskir
sjómenn hafa verið handtelcnir
í Bandaríkjunum og settir í sér-
stakar bækistöðvar.
Mensies, forsætisráðherra
Ástralíu er korninn til
Washington. Því skjótari sem
hjálp Bandaríkjanna verður,
sagði hann, því fyrr verður
styrjö'ldin búin.
sannar,
aðstoðar
Brezkur hermaður
bjargar barni fra
drukknun.
Kl. 10.15 árd. 2. apríl síðast-
liðinn bjargaði brezkur hermað-
ur barni frá drukknun úr Poll-
inum á Akureyri.
Spítalaskip var þá statt þar,
en ís var allt i kringum það,
nema á einum stáð. Var vökin
þar um 10 m. í þvermál.
Private (óbr. hermaður)
John Brendon O’Connor var
staddur niðri í skipinu, er liann
heyrði neyðaróp fyrir utan það.
Stökk liann þá upp á þilfar og
leit út fyrir borðstokkinn. Hafði
þá lítið barn, Eduard Julius Sol-
nes, Holtagötu 11, Akureyri,
fallið í sjóinn.
O’Connor renndi sér niður
með skipshliðinni í kaðli ogsynti
eftir barninu. Sjór var kaldur,
tæplega 2°C. Var lítið lifsmark
með barninu, er þvi var bjarg-
að, en hjúkrunarkonur liófu
þegar líf gunartilraunir. F óru þær
að bera árangur eftir 10 mín. og
eftir klukkustiind gat faðir
barnsins farið með það heim til
sin.
Staiin og fiitler munu
liittast bráílega.
Löðurmannleg framkoma í
garð Jugoslava.
Brezk blöð ræða mikið á-
kvörðun Stalins, að viðurkenna
ekki sendiherra Noregs, Belgíu
og Júgóslavíu. Blöðin benda á,
að þetta sé fyrsta framkvæmd,
sem kunnugt er um, af hálfu
rússnesku stjórnarinnar, eftir
að Stalin varð forsætisráðherra.
Óvíst er hvað þetta boðar — ef
til vill ekki verra en það, að
þóknast Þjóðverjum á lítil-
mannlegan hátt, segir eitt blað-
ið, en í sumum blöðum er þetta
talið fyrirboði nýs samkomulags
milli Stalins og Hitlers.
Blöðunum finnst það löður-
mannlegt af Rússum að sparka
í Júgóslava, eftir ósigur þeirra,
þjóð, sem þeir hafa alltaf talið
vinaþjóð. Fyrst hvöttu Rússar
Júgóslava til þess að veita við-
nám — svo er sparkað, í þá sigr-
aða.
Rússar erlendis hafa miklar
I áhyggjur af því, hvað þetta
: kunni að boða.
| Stjórnmálafréttaritarar News
Chronicle og Daily Herald eru
þeirrar skoðunar, að viðurkenn-
ing Rússa á yfirráðum Þjóð-
verja í Júgóslavíu felist í fram-
annefndri ráðstöfun, og gera
þeir ráð fyrir, að Hitler og
Stalin muni hittast bráðlega.
Hilmar Stefánsson
bankastjóri
ev fimmtugur i dag. Hann réð-
ist i þjónustu Landsbankans ár-
ið 1917 að loknu námi, og aflaði
sér þar strax fyllsta trausts. Yar
hann um skeið útibússtjóri að
Selfossi, en þvi næst aðalféhirð-
ir Landsbankans unz liann var
skipaður bankastjóri við Búnað-
arbankann hinn 15. sept. 1935.
Hilmar bankastjóri er vin-
sæll maður og vel látinn af öll-
um, er liann þekkja, enda prúð-
menni og drengskaparmaður í
hvívetna. Munu honum' berast
hlýjar kveðjur víðsvegar að í
dag.
r oeiiflir
javíkur r
rá
rgufl.
Hikil loftárási
á Maiisilieliii í
nott.
Sprengjum einnig varpað á Berlin.
Minni loftárásir á Bretland en að
undanförnu.
Brezkar sprengjuflugvélar gerðu mikla árás á Mann-
heim, einhverja mestu iðnaðarborg Þýzkalands í nótt
sem leið. Ennfremur er frá því sagt í þýzku útvarpi í
morgun; að sprengjum hafi verið varpað á Berlín og
fleiri borgir, og hafi manntjón orðið mikið í árásum
þessum og eignatjón.
Loftárásir Þjóðverja á Bretland voru ekki í eins stór-
um stíl og verið hefir undangengnar nætur. Alls hafa
verið skotnar niður 90 þýzkar flugvélar fyrstu 9 næt-
ur mánaðarins eða jafnmargar og í apríl, sem var met-
mánuður að því er þetta snerti.
í fyrramálið kl. 6 hefst
loftvarnaæfing hér í bæn-
um og stendur hún í 2—3
klukkustundir. Verður æf-
ingu þessari hagað á annan
hátt, en æfingum þeim,
sem haldnar hafa verið að
undanförnu.
Þegar æfingar hafa verið
haldnar liingað til hafa lijálpar-
sveitir þær, sem Loftvarna-
nefnd hefir yfir að ráða, aðeins
verið látnar mæta á þeim stöð-
mn, þar sem, þeim er ætlað að
koma saman, ef loftárás yrði
, gerð hér.
Að þessu sinni verður aðeins
lögð álierzla á æfingu fvrir
Jjessar sveitir — brunaliðssveit-
ir, ruðningssveitir, sjúkrasveit-
ir o. þ. h.
Verður æfingunni liagað eins
og um raunverulega loftárás
væri að ræða, bjarga þyrfti
særðu fólki o. s. frv.
I loftárásunum á Hamborg
og Bremen í fyrrinótt tóku 300
—400 brezkar flugvélar þátt, og
liafa aldrei verið sendar jafn-
margar flugvélar frá Bretlandi
til árása á þýzkar borgir á einni j
nóttu. Og þetía er í rauninni j
eina árásin sem er sambærileg
við liinar miklu árásir Þjóð-
verja á London og fleiri brezk-
ar borgir, þvi að i mestu loft-
árásum Þjóðverja hafa tekið
þátt flugvélar í hundraðatali. I
árásinni í fyrrinótt misstu Bret-
ar 10 sprengjuflugvélar. Til
samanburðar má geta þess, að
brezkir hermálasérfræðingar
lialda þvi fram, að i árásunum
að undanförnu hafi verið skotn-
ar niður fyrir Þjóðverjum 5—
10 af hverjum 100 flugvélum,
sem þeir sendu yfir til Bret-
lands til árása.
í árásinni í fyrrinótt varð hið
ægilegasta tjón, einkanlega i
Hamborg og Bremen, en i þess-
um mikilvægu skipasmíða-
stöðvum og iðnaðarborgum var
lögð megináherzla á, að valda
sem mestu tjóni við liafnirnar,
einkanlega i skipasmiðastöðv-
unum. Kom,u þar upp miklir
eldar, og á báðum stöðunum
kviknaði í olíubirgðum, en í
verlcsmið j uliverfunum virtist
flugmönnunum, sem heilar
húsaraðir klofnuðu og var allt
í báli á stórum svæðum, eldsúl-
urnar stigu liátt i loft upp og
reykjarmökkur lagðist yfir
borgirnar. Tjón mun einnig
hafa orðið mikið i Emden, Ber-
lín og viðar.
Veður var hagstætt, er til
Þýzkalands kom. Skýjað var og
frost hátt í lofti, er af stað var
flogið, en bráðlega greiddust
skýin sundur og þegar til
Þýzkalands var komið var him-
ininn orðinn alheiður. Yar því
vandalaust fyrir flugmennina
að finna svæði þau, sem þeim
var ætlað að varpa sprengjum
á. —
Akureyri i morgun.
íhúðarhúsið 'á Mýrarlóni í
Kræklingahlíð brann síðdegis i
gær, ásamt þaki á viðbyggðu
fjósi, en áfastri heylilöðu varð
bjargað. Ein kona var heima, er
eldurinn kom upp, tókst henni
að bjarga nokkru af fatnaði og
búsmunum. Brezkir hermenn
komu brátt að og björguðu kúm
úr fjósi og liófu slökkvistarf,
einnig fór slökkviliðsstjóri Ak-
ureyrar með lióp manna þang-
að, og margir komu af næstu
bæjum til hjálpar. Eldsupptökin
eru ókunn, en húsið og nokkuð
af innbúi var vátryggt. Job.
Kosningum
frestað
af ástæðum sem
ekki er unnt að
greina.
Þingmannafundur var hald-
inn í gærkveldi og mættu þar
stuðningsflokkar stjómarinnar.
Stóð fundurinn lengi yfir og
var rætt um frestun kosninga
vegna hins óvenjulega ástands,
sem ríkjandi er í landinu.
1 leiðara blaðsins í dag skýrir
Árni alþm. Jónsson frá því, að
ýmsar þær upplýsingar hafi
komið fram á fundi þessum,
sem valdið hafi þvi, að margir
þeir þingmenn, sem ekki hafa
getað hugsað til þess að kosn-
ingum yrði undir nokkrum
kringumstæðum frestað, séu al-
veg hiklaust þeirrar skoðunar,
eftir fundinn, að kosningar
verði óframkvæmanlegar nú.
Hinsvegar sé ekki lieimilt að
skýra frá upplýsingum þessum
að svo komnu máli opinberlega.
Hér í blaðinu hefir mál þetta
verið rætt, með og i móti, eins
og það hefir legið fyrir, séð frá
almennu sjónarmiði. Virðast
umræður um málið tilgangs-
lausar úr þessu á svo breiðum
grundvelli, enda aðalatriðið, að
þess liafi verið gætt, að ganga
ekki feti framar i ákvörðunum
en samrýmanlegt er stjórnskip-
unaflögum vorum og fyrirliggj -
andi nauðsyn, enda hefir rit-
stjórn Visis lagt á þetta megin-
áherzlu frá upphafi. Það er
neyðarúrræði að fresta kosning-
um, en það neyðarúrræði getur
réttlætzt af nauðsyn, og þá er
ekkert við því að segja.
Myndarleg gjöf til Vinnu-
hælis berklasjúklinga.
1 gær var stjóm Sambands ís-
lenzkra berklasjúklinga afhent
500 kr. að gjöf af Gunnari
Gunnarssyni, forstjóra Nýju
efnalaugarinnar.
Á fé þetta að renna til Vinnu-
hælis berklasjúklinga, en S.l.B.
S. vinnur að þvi að koma þvi
upp og hefir borizt allmikið fé
til þess.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sina ungfrú Sigurlína Gísladóttir,
Vegamótum, og R. T. Cook.
Frá sumardvalarnefnd:
í næstu viku kemur röðin
að mæðraheimilunum.
1 næstu viku mun samning-
um um sumardvalarstaði fyrir
mæður með ungbörn lokið, og
verður þá vonandi hægt að aug-
lýsa mikið húsnæði og á mörg-
um stöðum.
Undanfarna daga hefir börn-
um verið raðað niður á sumar-
dvalarlieimili, auk sveitaheimil-
anna.
Aðsókn aðstandenda hefir
ckki verið eins mikil og búist
var við og befir nefndin því sent
eftirfarandi orðsendingu til
þeirra, sem ekki hafa komið á
fund hennar:
„Þar sem þér hafið farið
frarn á við sumardvalarnefnd,
að hún útvegaði dvalarstað
fyrir barnið ...............
en ekki komið til viðtals og á-
kveðið dvalarstað, verður lit-
ið svo á, að þér hafið fallið
frá beiðni' yðar, svo framar-
lega, sem þér hafið ekki ltom-
ið til viðtals í skrifstofu
nefndarinnar fyrir kl. 7 næst-
komandi fimmtudag, þann
15. maí.“
Ástæðurnar fyrir þessari lé-
legu aðsókn munu vera aðallega
þrjár:
1) Að fóllc hefir sjálft ltomið
börnum sínum fyrir og ekki til-
kynnt það. •
2) Að allverulegur hópur
mæðra hefir trygga staði á veg-
urn nefndarinnar með ungbörn
og hafa þá um leið leyfi til að
taka eldri börn (5-—8 óra) með
sér.
3) Að þegar rannsókn i þessu
efni fór fram, hafði þýzlc njósn-
arflugvél nýlega sveimað yfir
bænum, en nú hefir orðið hlé á
slíkum heimsóknum og fólk því
orðið rólegra.