Vísir - 10.05.1941, Side 2

Vísir - 10.05.1941, Side 2
VI S I R DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) Símar 1 6 6 0 (5 línur). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Kosninga frestunin. ÞAÐ væri illa farið, ef kjós- endur reyndu að telja sér trú um, að verið væri að svikj- ast að þeirn með því að fresta þingkosningum, eins og nú liorfir. Ýmsir þeir, sem fyrir skemmstu voru þeirrar skoðun- ar, að liægt væri að hafa „við- skipti eins og venjulega“, hafa nú sannfærst um liið gagn- stæða. Þegar mál þetta hefir verið fullskýrt, mun almenn- ingur láta sér skiljast, að hér er ekki um neinn yfirgang að ræða, né ofbeldishneigð, held- ur aðeins það, að horfast í augu við staðreyndir, og draga af þeim óhjákvæmilegar ályktanir. Þegar málið liggur þannig fyr- ir, mun það koma í Ijós, að þeir, sem frestuninni fylgja, hafa engu síður vakandi skilning á gildi lýðræðisins en hinir, sem enn þá virðast telja að kosning- ar geti farið fram með venju- legum liætti. Kosningar eru lýðræðisleg at- höfn. Á þingmannafundi, sem lialdinn var í gærkvöldi, benti Jakob Möller á, hversu hjáleitt það væri, að slílc lýðræðisleg at- liöfn færi fram undir ólýðræð- islegu ástandi. Eins og þegar hagar til hér á landi, er öllum Ijóst, að kosningum hlýtur að verða rneira eða minna áfátt, sagði Jakob Möller. En — bætti hann við — ef þeir atburðir gerast, sém vel má húast við, verður ekki einungis um það að ræða, að kosningum verði mjög áfátt, heldur gæti þær beinlín- is orðið hrein tilviljun. Þegar svo er komið, er ekki um lýð- ræði að tala heldur markleysu. Jakob Möller taldi hiklaust, að kosningarnar 1937 væri miklu lýðræðislegri grundvöllur undir skipun' Alþingis en þær kosningar, sem nú gætu farið fram. Ályktarorð hans vóru þessi: Ef við viljum halda lýð- ræðið í heiðri eiga kosningar ekki að fara fram. * Það dettur engum í hug, að væna Jakob Möller um það, að hann sé einræðissinni. Það dett- ur heldur engum i hug, að hann hafi neinar persónulegar ástæð- ur til að hliðra sér hjá kosning- um. Þess vegna er fróðlegt að heyra, hvernig slíkur maður tekur skarið af í þessu máli. Þingfrestunin hefir nú veriö rædd innan stuðningsflokka stjómarinnar. Ekki er talið heimilt, að skýra frá þeim um- ræðum. En svo mikið er víst, , að margir þeir þingmenn, sem ekki hafa getgð hugsað til þess að kosningum yrði undir nokkr- um kringumstæðum frestað, eru alveg hiklaust þeirrar skoð- unar, að þær verði óframkvæm- anlegar nú. Hér í blaðinu hafa áður verið færðar fram ýmsar almennar ástæður fyrir þvi, hversu tor- velt sé að ganga til kosninga eins og nú hagar til og^eins og nú horfir. Ekki er ætlunin að endurtaka þær ástæður að þessu sinni. Það skal aðeins sagt, að margar og veigamiklar ástæður fyrir frestuninni eru enn ótaldar og bíða síns tíma. ★ Kosningafrestunin verður vafalaust samþykkt með yfir- gnæfandi meirihluta og verða þá framfærðar gildar ástæður fvrir þeirri ráðstöfun. En með- an þetta er ekki komið í kring, skal kjósendum á það hent, að ekki sæmir að fara með órök- studda dóma í jafn mikilvægu máli. Það er hægt að liafa kosn- ingar að nafni til, ná- lega hvað sem á geng- ur. En það er alveg undir hæl- inn lagt — eins og nú horfir — livort þær kosningar yrðu ann- að og meira en skrípamynd af vilja kjósenda. Sá er þetta ritar, getur full- yrt, að viljinn til að liafa kosn- ingar er áreiðanlega eins rikur í hópi þingmanna og hópi kjós- enda. Hitt er það, að þingmenn liafa átt þess kost, að kynnast málum nánar en kjósendur al- mennt. Þetta hefir leitt til þess, að þingmenn munu flestir greiða frestuninni atkvæði, með fullkomlega hreinni samvizku. Það kann að vera sagt, að hér sé um lögbrot að ræða. En það „lögbrot“ er þá þess eðlis, að það er hvorki ríkisstjórn né A1 þingi, sem veldur þvi. Það eru utanaðkomandi ástæður, okkur öllum óviðráðanlegar, — nauð- syn svo rík, að hún brýtur lög. Margir kjósendur hafa þegar gert sér grein fyrir þeim örð- ugleikum, sem eru á fram- kvæmd kosninga. Að svo miklu leyti sem svo er ekki, mun mál- ið verða skýrt fyrir mönnufn. Kosningafrestunin er ein af þeim afleiðingum ófriðarins, sem ekki verða umflúnar. BcbIop tí frétfjr Messur á morgun. í dómkirkjunni kl. ii, síra Bjarni Jónsson (ferming). Hallgrímsprestakall: Engin messa á morgun. Laugarnessókn: Messáð í dóm- kirkjunni kl. 2, sr. GarÖar Svav- arsson (ferming). Nesprcstakall: Messað í Mýrar- húsaskóla kl. 2)4, sr. Jón Thorar- ensen. Fríkirkjan. Messa fellur niður vegna safnaðarfundarins. í kaþólsku kirkjunni í Laivdakoti: Lágmessa kl. 6)4 árd. Hámessa kl. io árd. Bænahald og prédikun kl. 6 síðd. Fríkirkjan í Háfnarfirði. Messað kl. 5 (altarisganga), síra Jón Auð- uns'. Messað að Kálfatjörn kl. 2, síra Garðar Þorsteinsson. Dánarfregrn. 1 morgun andaðist í Landakots- spítala frú Júlíana Árnason, fædd Bjarnasen, móðir Péturs óperu- söngvara og Þorsteins bókara, Jóns- sona. Revyan „Hver maður sinn skammt“ var sýnd í fyrrakvöld fyrir troðfullu húsi, og urðu margir frá að hverfa. Næsta sýning verður kl. 3 á morg- un. Sjóklæðag-erð íslands h.f. hefir opnað skrifstofur til bráða- hirgða í Tjarnargötu 3C. 50 ára á morgun er húsfrú Maíendína Kristjáns- dóttir, Laugaveg 42. Leikfélag Reykjavíkur sýnir „Á útleið“ annað kvöld i síðasta sinn og hefst sala aðgöngu- miða kl. 4 í dag. Hjúskapur. í dag verða gefin saman í hjóna- band af sr. Friðrik Hallgrímssyni ungfrú Steinunn Guðmundsdóttir, Þjórsárgötu 1 og Kristmundur Jónsson, Eyvík, Grímsstaðaholti. Heimili þeirra verður á Þjórsár- götu 1. í dag verða gefin saman í hjóna- band af próf. Ásmundi Guðmunds- syni ungfrú Rannveig Eiríksdóttir og Guðmundur Löve, kennari. — Heimili þeirra verður fyrst um sinn Réttarholti, Sogamýri. Stúdentafélag Reykjavíkur heldur aðalfund sinn á mánudag- inn kemur í 1. kennslustofu Há- skólans kl. 8)4 stundvíslega. Auk venjulegra aðalfundarstarfa, flytur Sigurður Einarsson dócent erindi, er hann nefnir: Hvað er framund- an. Frjálsar umræður verða á eftir. Fiaá 1930 Iiefeir Valnr unnid 380 kappleiki af !IíO. A saiua fíma liefur Valur seft IOI5Í mörk. en tapað aðeins 498. íslands- méistar- ar 1940. \I9»TAI. VIÐ SVIÍIA ZOÍ'G l. ÞRÖUN VALS I 30 ÁR. Knattspyrnufélagið „Valur“, sem um síðastliðinn tug ára hefir verið eitt sigursælasta knattspyrnufélag þessa lands, verður 30 ára á morgun. Minnast félagar afmælisins með veglegri veizlu í Oddfellowhöllinni í kvöld. Vísir hitti Svein Zoega, for- mann Vals, að máli og Jiað.hann að segja blaðinu eiltlivað um fé- lagið og sögu þess í tilefni af afmælinu. „Árið 1911 gekk mikil íþrótta- alda og íþróltavakning yfir þenna hæ. Þá var Valur stofn- aður. Raunverulegir stofnendur voru 6 drengir innan K.F.U.M.- hreyfingarinnar, en á bak við þessa félagsstofnun stóð séra Friðrik Friðriksson, sem frá fyrstu tíð og til hins síðasta hefir rétt okkur örvandi hönd.“ „Hverjir voru fyrstu stofn- endur Vals'?“ „Þeir voru Guðhjörn Guð- mundsson prentari, Páll Sigurðsson prentari, Filipus Guðmundsson múrarameistari, Ilallur Þorleifsson kaupmaður, Jóhannes Sigurðsson framkv.- stj. og Stefán heitinn Ólafsson, en á sjálfum stofnfundinum, hættust fleiri í liópinn. Valur var stofnaður 11. maí 1911. — Fyrsti formaður félagsins var jLoftur Guðmundsson, nú ljós- myndari.“ „Hver voru fyrstu afrek ykk- ar ?“ „Við byrjuðum á því að ryðja okkar eigin æfingavöll á Melun- um, þar sem loftskeytastöðin er nú. Þegar hún var reist, urðum, við að hverfa þaðan á brott. í ágústmánuði 1911 var æfinga- völlurinn tilbúinn og þar æfð- um við af kappi.“ „Hvenær kepptuð þið í fyrsta sinn?“ „Fyrsti kappleikurinn, sem við háðum við annað félag, var við Fram, haustið 1914. Fram var þá bezta félagið hér, en við töpuðum leiknum með aðeins eins marlcs mun.“ „En hvenær unnuð þið fyrsta kappleikinn ykkar?“ „Árið 1919. Þá vann II. flokk- ur fyrsta kappleikinn fyrir okk- ur. Úr því fer II. fl. Vals að láta allmikið til sín taka, og hann færir okkur fyrsta verðlauna- gripinn til eignar sumarið 1922. Nú á Valur, eða er handhafi, 14 —15 verðlaunagripa.“ „Hvenær byrjar I. fl. Vals að keppa?“ „Það var árið 1923. Þá tók Valur þátt í fyrsta flokks mót- inu, en þó með undanþágu fyr- ir fimm II. fl. menn. Valur lenti i úrslitunum, en tapaði fyrir K. R. En frá því 1927 höfum við lent í öllum úrslitum I. flokks móta i Rvík, að tveimur undan- teknum.“ „Og svo takið þið til að sigra keppinauta ykkar í I. fIokki?“ „Já, það var árið 1930, að Valur vinnur Islandsmótið í fyrsta sinn. Með þeim sigri hefst hin raunverulega sigursaga fé- lagsins. Alls hefir Valur unnið tslandsmótið 7 sinnum, og Reykjavíkurmótið 5 sinnum. Frá því 1937 hefir Valur tekið þátt í 40 leikjum í meistara- flokki og aðeins tapað einum þeirra.“ „Hvernig hefir það gengið i yngri flokkunum?“ „Ágætlega. Bæði II. og líl. fl. Vals hafa ávallt staðið sig vel, og undanfarin ár ýmist verið í 1. eða 2. sæli á kappleikjum. Sem dæmi skal eg taka það fram, að sl. haust vann III. fl. Vals verð- launabikar til eignar, sem liann hafði keppt um 12 leiki á þrem- ur árum. Þessi flokkur skoraði 40 mörk í öllum leikjunum gegn engu.“ „Það er vel af sér vikið. En meðal annara orða, hafið þið ekki siglt, einu sinni eða oftar?“ „Tvisvar; annað skiftið 1931, en hitt 1935, hæði skiptin til Norðurlanda: Noregs, Dan- merkur og Svíþjóðar. Valur er fyrsta félagið íslenzka, sem hef- ir farið utan til knattspyrnu- keppni. Svo hefir félagið auk þessa tekið þátt í ferðum allra úrvalsliða, sem send hafa verið héðan til annara landa.“ „Hver hefir árangurinn orð- ið?“ „Hann hefir orðið mikill, og mjög brátt orðið sýnilegur í leik okkar hér heima. Eg vil segja, að með utanferðum, knatlspyrnuflokkanna hafi knattspvrna á íslandi fengið á sig allt annan hlæ, og að hún hafi breytzt og batnað til muna. Valur er einnig fyrsta lcnatt- spyrnufélag landsins, sem fær til sin erlendan þjálfara.“ „Hafið þið lagt fyrir ykkur aðrar íþróttir en knattspyrnu.“ „Það er ekki mikið. Valur tók að vísu þátt í drengjahlaupi Ár- ínanns nokkuru eftir að til þess ldaups var stofnað, en hætti því svo von bráðar aftur. Hinsvegar Iiefir Valur æft handknattleik af kappi nú siðustu árin og með þeim árangri, að Valur hefir unnið landsmótin i I. floklci, hæði í vetur og fyrravetur, og í II. fl. i fyrra, en i vetur urðum, við númer tvö í röðinni.“ „En vetraríþróttir?“ „Þar erum við líka farnir á stúfana, þó i litlum stíl sé. Valur hefir tekið á leigu skála hjá Ivolviðarhóli./ Hefir félagið lagt lagt mikið fé og mikla vinnu i að endurbæta hann, • enda er hann nú liinn vistlegasti, og hafa félagar dvalið þar um helgai’, þegar sldðafæri hefir verið. Annars er það ætlun okk- ar, að nota skálann einnig að sumri til, dvelja í honum um helgar og fara þaðan í göngu- ferðir.“ „Svo hefir heyrst, að Valur væri nýlega húinn að kaupa mikla landeign hér við bæinn. Hvað er að frétta af því?‘ ‘ „Það er satt, að Valur er orð- inn jarðeigandi. Við festum kaup á Hlíðarenda, það eru 5 ha. lands, með íbúðarhúsi, fjósi og lilöðu. Þetta á að verða fram- tíðarheimili okkar. Þarna ætl- um við að koma upp allskonar íþróttavöllum, bæði malar- og grasvöllum, fyrir knattspyrnu, tennis, frjálsar íþróttir, hand- knattleik o. fl. Á Hlíðarenda á einnig að rísa vandað og veg- legt félagshús með fimleikasal, húningsherbergjum, haði og samkomusölum.“ „Hafið þið fleiri framkvæmd-i ir á samvizkunni?“ „Já, það höfum við. M. a. Valsblaðið. Það hefir komið út endrum og eins frá því 1938. Það er vandað til þess að efni og frágangi og hið ágætasta. Meðal annars kom út mjög vandað afmælisblað í dag. Félagar eru nú nær 1000 i Val. Stjórn 1 þess skipa auk Sveins Zoéga, sem er formaður, Sigurður Ólafsson, varaform., Ragnar Hjörleifsson, ritari, Þor- kell Ingvarsson, hréfritari, Egill Kristbjörnsson, unglingaleið- logi, Agnar Breiðfjörð, féhirðir, og Baldur Steingrímsson, gjald- keri. Vísir óskar Val allra heilla.á 30 ára afmælinu og um ólcomna framtíð. GEYSIR BEZTU BÍLAR BÆJARINS. ----- Nýtísku upphitun. Símar 1216 og 1633. DUGLEGUR drengnr 13—15 ára, getur fengið at- vinnu sumarlangt í sveit. — Uppl. afgr. ÁLAFOSS. Húsnæði fyrir TRÉVINNUSTOFU óskast strax. Sími 5258, eftir kl. 8 síðdegis. rvr SMIPAUTC! :ne Það var Sólvallavagn, en ekki Skerjafjarðar, sem rann í moldareðjunni í Túngötu í gær. Var hann neyddur til að fara þessa leið vegna þess, að jarðarför var í Garðastræti á milli öldugötu og Vesturgötu, sem er hin venjulega leið Sólvallavagnsins. En þar sem þetta er áætlunarvagn og bundinn ákveðnum tíma, varð hann að fara þessa leið niður Túngötu, sem var eina leiðin, sem um var að ræða. Næturlæknir. í nótt: Ólafur Jóhannsson, Laugavegi 3, sírni 5979. Nætur- verðir í Ingólfs apóteki og Lauga- vegs apóteki. Aðra nótt: Halldór Stefánsson, Ránargötu 12, sími 2234. Nætur- verðir í Reykjavíkur apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni. Helgidagslæknir. Karl S. Jónasson, Laufásvegi 55, sími 3925. Útvarpið í kvöld. Kl. 15.30 Miðdegisútvarp. 19.25 Þingfréttir. 20.00 Fréttir. 20.30 Upplestur: Fallega Þrúða, frásaga (sr. Jón Thorarensen). 21.00 Út- varpshljómsvútin: Gömul danslög. 21.30 Jasslög á píanó (Aage Lor- ange). 22.00 Danslög til kl. 24. Útvarpið á morgun. Kl. 10.00 Morguntónleikar. 11.00 Messa í Dómkirkjunni (síra Bjarni Jónsson. Sálrnar: 512, 303 — 573, 154, 574. Kl. 12.10 Iiádegisútvarp. 15.30 Miðdegistónleikar : Lög úr ó- perum. 19.00 Barnatími (Loftur í Nýja Bíó). 20.00 Fréttir. 20.20 Knattspyrnufélagið Valur 30 ára: a) Ávarp (sr. Bjarni Jónsson). b) Ræða (Guðm. Ásbjörnsson). c. Söngur (tvöfaldur kvartett). d) Er- indi: Knattspyrnufélagið Valur 30 ára (Sveinn Zoéga, form. Vals). e) Söngur (tvöfaldur kvartett). f) Kyeðja til Vals (form. K.R.R., Pét- ur Sigurðsson háskólaritari). 21.20 Hljómplötur: Valsar. 21.35 Hljóm- plötur: Sönglög eftir Schubert. — Síðan danslög til kl. 23. rrr.i^i.uA M.s. Helgi hleSur til Vestmannaeyja á mánudag. Vörumóttaka fyrir hádegi sama dag. Góða Stúlku vantar á HÓTEL SKJALDBREIÐ. Ibnð Vantar 3—4 herbergja góða ibúð nú þegar eða 14. maí. Sími 4832. Eitt mjög stórt herbergi óskast til leigu til 1. okt. — Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Tilboð, merkt: „T“, send- ist Vísi. RAFTÆKJAVERZLUN OC VINNUST0FA ^ LAUCAVEC 46 SÍMI 5858 RAFLACNIR VIÐCERÐIR SÆKJUM SENDUM

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.