Vísir - 27.06.1941, Page 1
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
31* ár. Reykjavík, föstudaginn 27. júní 1941. 144. tbl.
Þjóðverjar nálgast
Minsk í Rússlandi.
Vélahersveitir þeirra komnar yfir gömlu landamærin
Á Rúmeníuvígstödvun-
um heflr Þjóðverjum
og Rúmenum ekki ord-
id neitt ágengt enn.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Rússar viÖurkenna í fréttum sínum í morgun, að
vélahersveitir Þjóðverja séu komnar yfir
gömlu landamærin og stefni í áttina til Minsk.
Eardagar eru harðir og leggja Rússar áherzlu á að rjúfa
sambandið milli vélahersveita og fótgönguliðs, og mun
hafa orðið talsvert ágengt, og er það óbeint viðurkennt
í þýzkum fregnum, þar sem sagt var í gær, að menn yrði
að gera sér ljóst, að fótgönguliðið þýzka hefði ekkert
smáræðis hlutverk að vinna. Á Vilnasvæðinu er enn bar-
ist af kappi, en sunnar, á Galizíuvígstöðvunum hefir
Þjóðverjum orðið minna ágengt (þar hafa Rússar bætt
aðstöðu sína í gagnáhlaupum) og minnst á Rúmeníu-
vígstöðvunum, þar sem Rússar hafa hrundið öllum til-
raunum Rúmena og Þjóðverja til þess að komast yfir
ána Prut og ná fótfestu þar.
Minsk er á leiðinni iil Moskva og er skammt frá gömlu landa-
mærunum. Aðrar helztu stöðvar sem Þjóðverjar sækja fram á,
eru kunnar af fyrri skeylum þ. e. um Vilna og Kovno í áttina til
Leningrad, frá Suður-Póllandi og Rúmeníu. Ýmsar varúðarráð-
stafanir hafa verið gerðar í Moskva. Myrkvun fyrirsldpuð ‘Og uuh
ferð bönnuð að næturlagi. Þetta sýnir, að loftárásahættan hefir
færst miklu nær. Hitt er enn vafamál, iivort það eru nema
stöku vélahersveitir, sem komnar eru yfir gömlu rússnesku
landamærin, og ekki er víst, að fótgönguliðið hafi getað fylgt
þeim eftir ög haldið samhandinu við þær, en þar sem Rússar
eiga mikið af vélahersveitum má enn búast við hörðum skrið-
drekaorustum, áður en til átakp. kemur milli meginherjanna.
AUt bendir og til, að þess
verði tiltölulega skammt að
híða, að til átaka komi milli að-
alherjanna. Þjóðverjar segjast
hafa teflt frpm milljón manna
þegar og önnur milljón varaliðs
sé til taks, og Þjóðverjar segj-
ast vera undir það búnir, að
nota allan liernaðarstyrk sinn til
þess að knýjá fram skjót úrslit í
viðureigninni við Rússa. Einliver
mesta hættan, sem yfir Rússum
vofir, er að rofið verði sam-
bandið milli rússnesku herj-
anna, sem verjast suður frá og
þeirra, sem eru norðar.
Rússar hafa mildnn her i
Ukraine og eins í Ressarabíu og
suður þar. Sagt er, að kornupp-
skeran sé byrjuð í Ukraine og
hafi bændur þar mikinn áhuga
fyrir, að hún gangi sem, greið-
ast, og er tilgangurinn, að koma
sem mestu af kominu undan, ef
Þjóðverjar kynnu að hertaka
Ukraine. Ilvort þetta tekst er
vitanlega undir því komið, að
Rússum takist að verja Ukraine
a. m. k. 3—4 vilcur enn.
í
Finnland og Svíþjóð.
Þátttaka Finnlands í slyrjöld-
inni með Þjóðverjum hefir vák-
ið vonbrigði í Rretlandi, því að
Bretar liafa mikla samúð með
Finnum. Finnar eiga Rússum
grátt að gjalda vegna árásarinn-
ar, sem leiddi til finnsk-rúss-
nesku styrjaldarinnar, og gera
sér nú vonir um, að geta rétt
hlut sinn. Ekki er enn kunnugt,
hvaða afstöðu brezka stjórnin
tekur gagnvart Finnlandi, en sú
afstaða hlýtur að miðast að ein-
liverju leyti við það, að Finnar
hafa leyft Þjóðverjum að gera
landið að Jhernaðarhækislöð í
stríði gegn Rússum, sem nú eiga
í stríði við óvin Bretlands, þ. e.
Þýzkaland. Rússar hafa sýnilega
tekið sömu stefnu gagnvart
Þjóðverjum og Brefar, þ. e. að
ráðast á óvininn hvar sem til
lians næst. I Bretlandi kemur
fram nokkur ótti um að Svíar
kunni að vera neyddir til þátt-
töku í styrjöldinni gegn vilja
sínum.
Finnlandsforseti flutti ræðu í
gær og ræddi aðstöðumun Finna
i finnsk-rússnesku styrjöldinni
seinustu og nú, er þeir áttu við
ofurefli liðs að etja ,nú væri
leikurinn jafnari, þar sem
Rússar ætti óvinum að mæta á
allri víglínunni frá Norður-ís-
liafi til Svartahafs.
i
Rússar einhuga.
Þeir Verjast af mikilli hreysti.
Það her öllum fregnum sam,-
an um, að Rússar verjist frá-
bærlega vel, og það er viður-
kennt í tilkynningum Þjóðverja.
Rússneskir leiðtogar nota það
óspart í livatningar skyni, að
ráðist liafi verið á landið. Og
sagt er, að eining og kyrrð sé
í landinu, og þjóðin trúuð á,
að Rauða liernum muni auðn-
ast að verja landið.
Sjóhemaðurinn.
Loftárásir.
Af sjóhernaðinum á Eystra-
salti er það helzt að frétta, að
Rússar segjast hafa sökkt 3 kaf-
bátum fyrir Þjóðverjum. Þjóð-
verjar segjast einnig hafa sökkt
kafháturn fyrir Rússum.
í loftárás á Abæ í Finnlandi
í gær varð gífurlegt tjón. Rúss-
ar halda uppi loftárásum á
borgir i Rúmeníu, svo sem
Bukarest, Ivonstanza og Jassy,
Galatz pg fleiri. í Konstanza
eru stórbrunar, sem breiddust
út, eftir að sprengjur hittu olíu-
geyma.
I*|ódver|ar segrjj-
a§t liafsi liertek-
ið Vilna.
Londorr í morguir.
Þjóðverjar halda því nú fram,
að þeir hafi hertekið Vilna í
Lithauen, en Rússar hafa ekk-
ert um þetta sagt, heldur aðeins.
að skriðdrekaorustur hafi verið
og séu enn háðar á Vilnasvæð-
inu.
Skriðdrekaorustur eru og
liáðar sunnar eða um 100 kíló-
metra norðaustur af Llow
(Lemberg), en ekki er kunnugt,
að sú borg sé fallin. Rússar segj-
ast hafa hrundið öllum áhlaup-
um við ána Prut, eins og sagt
var í fyrri fregnum, og jafnvel
hafa farið suður yfir ána á
nokkrum stöðum sjálfir.
Rúmenskir fangar, sem Rúss-
ar hafa tekið, segja, að þýzkir
yfirforingjar séu með öllum
rúmenskum liersveitum, og
bendi það til, að Þjóðverjar
treysti samherjunum lítt.
1J n^verjaland
í §tríði vlð
Ril§§Ianil.
London í morgun.
Ungverska stjórnin hefir lýst
yfir því, að Ungverjaland telji
sig i styrjöld við Sovét-Rúss-
land.
Er þvi borið við, að Rússar
hafi gert margar loftárásir í
gær á ungverskar borgir, og eru
þær taldar upp, en Rússar
segja, að borgir þessar séu ekki
i Ungverjalandi hinu nýja, og
hafi Ungverjar lýst sig í stríði
við Rússa til þess að þóknast
Þjóðverjum.
I seinustu fregnum segir, að
Þjóðverjar hafi gert loftárásir
á Svartahafshafnir Rússa, en
rússneskar flugvélar frá Hangö
í Finnlandi liafa gert nýjar á-
rásir á Ábæog fleiri bæi í Finn-
landi.
RÚSSNESKAR KONUR
FLYKKJAST í
VERKSMIÐJURNAR.
Rússneskar konur gefa sig
fram í stórhópum til þess að
taka við störfum verkamanna,
sem fara til vígvallanna. Rúss-
ar segjast hafa nóg af vönu
verksmiðjufólki, þótt þeir taki
milljónir verkamanna í herinn.
ENGIN YFIRLÝSING
FRÁ JAPAN.
Talsmaður japönsku stjórn-
arinnar lýsti yfir þvi í morg-
un, að japanska stjórnin mundi
ekki birta neina yfirlýsingu
varðandi afstöðu Japan i styrj-
öldinni, eins og sakir standa.
Loftsóknin —
16. nóttin.
London í morgun.
Brezkar sprengj uflugvélar
gerðu árásir í nótt á horgir í
Vestur- og Norður-Þýzkalandi.
Þjóðverjar segja í tilkynningum
sínum í morgun, að árásir hafi
verið gerðar á borgir í Sehles-
wig-Holstein, Rulir og Rínar-
bygðum.
1 ga?r var loftsókninni og
haldið áfram. í þá 11 daga, sem
árásir hafa verið gerðar 'hvern
daginn á fætur öðrum, hafa ver-
ið skotnar niður 143 þýzkar
flugvélar og 40 hrezkar, og eru
flestar flugvélarnar orustuflug-
vélar.
I seinustu fregnum segir, ,að
Köln, Diisseldorff og Kiel hafi
orðið harðast úti í árásum Breta
í nótt.
Loftárásir á Bretland voru
með minnsta móti. 1 London
voru gefin hættumerki, en eftir
eina klukkustund voru gefin
merki um, að hættan væri liðin
hjá. Engum sprengjum var
varpað á borgina.
Hið gullna tæklfærl
Bandaríkjanna.
London í morgun.
Ickes landbúnaðarráðlierra
Bandaríkjanna, sem hefir hald-
ið nokkrar ræður að undan-
förnu, og fengið þau orð, að
vera hvassorðastur allra Banda-
rikjaráðherra, sagði í ræðu í
gær, að nú væri hentugasta
tækifærið fýrir Bandaríkin að
segja Þýzkalandi stríð á hend-
ur — nú hefði Bandaríkjunum
borizt upp í hendurnar hið
„gullna tækifæri“ og væri sjálf-
sagt að nota það
Ickes lagði mikla áherzlu á
það, að framtíð Bandaríkjanna
og lýðveldisþjóðanna i Vestur-
álfu yfirleitt værl eklci siður
undir úrslitunum í styrjöldinni
um, Atlantsliafið komið en
framtið Bretlands og Breta-
veldis.
FRÉTTIR
í STUTTU MÁLI
í stuttu máli.
Ivafbátur hefir sökkt tyrk-
neska skipinu Riffa, og fórst
margt manna, sennilega á ann-
að liundrað. Skipið hafði tyrk-
nesk flögg á stefni og báðum
hliðum og voru þau uppljómuö
á næturna með rafmagnsljos-
uia Bretar segja, að engir kaf-
bátar bandamanna liafi verið
nálægt þar, sem skipinu var
sökkt. Mikil gremja er í Tyrk-
landi yfir árásinni.
Stríðsstjórn hefir verið
mynduð í Ástralíu og er Mensies
forseti hennar. Meðal nýrra em-
bætta er öryggismála (liome
security), flugvélaframleiðslu
Ræða ríkisstjóra
í ríkisráði á fyrsta
i'muli þess í morffnn
FYRSTI ríkisráðsfundur, er hinn nýkjörni ríkisstjóri, Sveinn
Björnsson, stjórnaði, hófst í morgun kl. 10, og voru þá lög
frá síðasta Alþingi undirrituð, náðanir(o. fl. I ríkisráði eiga sæti
allir ráðherrarnir auk ríkisstjóra, en ríkisráðsritari er Vigfús
Einarsson skrifstofustjóri.
í uppliafi fundarins ávarpaði
ríkisstjóri ríkisráð á þessa leið:
„Eg lýsi liér með þennan rík-
isráðsfund settan.
Eg vil mega ávarpa yður sér-
staklega nokkrum orðum í
byrjun þessa fyrsta ríkisráðs-
fundar, sem eg stýri.
Störf vor í ríkisráði eru, svo
sem, stjórnarskráin mælir fyrir,
að borin séu þar upp lög og
mikilvægar stjórnafráðstafanir.
Hér ber að staðfesta og gefa
gildi þvi, sem löggjafarþingið,
Alþingi, og ráðuneýtið eða ráð-
herrafnir, sem hafa fram-
kvæmdir, hafa undirbúið og á-
kveðið. Þetta verða þar með
reglur og ráðstafanir, sem verða
bindandi fyrir borgarana í sam-
lífi þeirra í þjóðfélaginu, fyrir
borgarana gagnvart ríkisvald-
inu og fyrir ríkisvaldið gagn-
vart borgurunum.
Störf vor eru því bæði mik
ilvæg og ábyrgðarmikil.
Eins og lcunnugt er, hefir það
samkvæmt ákvæðum 12. og
14. g'r. stjórnarskrárinnar oft
verið svo þar til 10. apríl 1940,
að lög og mikilvægar stjórnar-
ráðstafanir liafa ekki verið hor-
og hergangamálaráðuney ti.
Landvarnaráðherrarnir eiga
sæti i stríðsstjórninni, en liún er
skipuð sex mönnum. Hinir ráð -
herrarnir taka ekki þátt í fund-
um hennar.
Sumner Welles hefir rætt
við sendiherra Rússa í Wash-
ington og heitið honum allri að-
stoð, sem, Bandaríkin geta
Rússum í té látið i styrjöldinni.
í nánd við hæ einn um mið-
bilc Hollands varð fyrir
skemmstu ægileg sprenging í
skotfærabirgðum. Á sex
klukkutímum urðu yfir 100
ógurlegar sprengingar. Talið
er, að um skemmdarverk hafi
verið að ræða, eða þá að Bret-
um liafi tekizt að varpa
sprengjum á skotfærastöðina.
Þjóðverjar krefjast þess nú,
að Frakkar greiði þeim setuliðs-
kostnaðinn í gulli og erlendum
gjaldeyri. Hefir slegið óliug á
Frakka vegna þessara krafa,
ekki sízt samvinnumennina,
þá, er undir forystu Darlans
vilja samvinnu við Þjóðverja.
in upp í rikisráði fyrst, heldur
staðfest þar siðar, stundum
löngu síðar.
Eg vænti þess, að hér eftir
verði öll lög og allar mikilvæg-
ar s l j órnarráðs tafanir ávalt
borin upp fyrst í ríkisráði —
nema ef alveg óvenjulegar á-
stæður eru fyrir hendi, og þá
sem alger undantekning. Því
lialda ber í lieiðri þetta ákvæði
stjórnarskrárínnar.
Mér er ljúft að minnast þess
nú, hve einhuga allir ráðherr-
arnir voru um að samþykkja
fyrirfram það, sem eg sagði i
ávarpi mínu til þings og þjóð-
ar, er eg tók við ríkisstjóra-
starfinu 17. júni — bæði um
afstöðn vora út á við og inn á
við. Enda hygg eg, að við allir
séum sammála um, að það var
i samræmi við og eðlilegt fram-
hald af stefnu og skoðuyum
þeim, er ráðuneytið liafði fylgt
meðan það fór með konungs-
vald. Býst eg ekki við því, að
á því muni verða nein breyting,
nema mjög verulegar breyting-
ar verði á viðhorfinu, sem nú
er. Skeyti og bréf, sem mér
hafa borizt og munnleg um-
mæli ýmsra mætra íslendinga
við mig siðan, hafa sannfært
mig um að samræmi sé í þessu
efni milli vilja ríkisstjórnarinn-
ar og vilja þjóðarinnar.
Þessi sannfæripg mín mun
gera mér starfið léttara. Ein-
liugur og þjónustuvilji ríkis-
stjórnarinnar, samstillt einhug
og þjónustuvilja einstakra borg-
ara þjóðfélagsins, er vænlegt
um farsæld fyrir land og þjóð.
Að síðustu vil eg óska þess,
að einlægni og drengskapur
innbyrðis megi jafnan stjórna
störfum vorum.
Eg lieiti því sjálfur, að leggja
mig fram til þess að sýna ráðu-
neytinu og hverjum, einstökum
ráðlierranna einlægni og dreng-
skap í livívetna.
Með þessum orðum býð eg
yður velkomna til starfa."
Forsætisráðherra þakkaði
ræðu rikisstjóra og tjáði sig
henni sainþykkan og ríkis-
stjórnina honum sammála um
mikilvægi og alvöru starfa rík-
isráðsins.
4