Vísir - 01.07.1941, Blaðsíða 1

Vísir - 01.07.1941, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). 31. ár. Ritstjóri Blaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri S línur Afgreiðsla Reykjavík, þriðjudaginn 1. júií 1941. 147. tbl. Þjóðverjar bruna áfram til Hoskva - - Rá§sar viðurkenna, að þeir hafi miit liiiiik. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun Samkvæmt seinustu fregnum frá Þýzkalandi sækja þýzku vélahersveitirnar, sem tóku Minsk, geysihratt í áttina til Moskva og fara þær þjóðveginn, sem liggur milli Minsk — höfuðborgar Hvíta-Rússlands — og Moskya. Rússar hafa ekki enn vikið að því í tilkynning- um sínum, hvort Minsk sé fallin, en þeir skýra frá snarpri mótspyrnu hvarvetna gegn ofurefli liðs. — — Þjóðverjar segja, að ekkert geti stöðvað vélahersveit- ir þeirra í sókninni til Moskva, sem sé einn þáttur stór- felldrar áætlunar um innikróun rússneskra herja á f jór- um stöðum. I herstjórnartilkynningu Rússa, sem útvarpað var í morgun segir m. a.: Rússar hafa hörfað til nýrra varnarstöðva fyrir aust- an Lwow (Lemberg). Öllum tilraunum Þjóðverja til þess að brjótast í gegn í áttina til Minsk og Baranovieze hefir verið hrundið og hefir óvinaherinn beðið mikið manntjón. (Sennilega er hér átt við tilraunir fótgöngu- liðs Þjóðverja til þess að sækja fram á þessum slóðum). í rússnesku tilkynningunni segir einnig, að allar tilraunir Þjóðverja og Rúmena til þess að brjótast í gegn á Bessarabíuvíg- stöðvunum hafi mistekizt. Hafi óvinaherinn gert nýja tilraun til þess að komast ýfir ána Prut, en þeirri árás var hrundið, sem öllum hinum fyiri. Loks segja Rússar, að miklir bardagar séu háðir á landamærum Rússlands og Finnlands, en áhlaupum ver- !ð hrundið einnig þar. Loks hafa borizt fregnir um árásir Þjóðverja og Finna á Hangö í Finnlandi, þar sem Rússar hafa flug- og flotastöð. Hangö ©r enn á valdi Rússa. jí fyrri fregnum segir svo: Þjóðverjar héldu því fram, í tilkynningum sínum í gær, að þeir hef ði hertekið Minsk, hina mikilvægu járnbrautarskiptistöð á leiðinni til Moskva. Og her- sveitir þeirra voru komnar helming leiðarinnar til Mosk- va, að því er sagt var í einni tilkynningu þeirra, en nokkur vafi er á við hvað var miðað, þ.e. hvort talið væri frá hinum gömlu landamærum Rússlands eða frá Minsk. Af rússneskum fregnum varð ekki annað séð, en að vélahersveitir Þjóðverja á Minsk-svæðinu væru enn í hættu. í London var talið í morgun, að horfurnar hefði versnað, einkum á Minsk-stöðvunum, en ekki ^iægt að gera sér fyllilega grein fyrir því, sem er að gerast. Það er víst, að miklir Rússneskir herir eru nú að baki Þjóð- verjum. Og það er feikna stórt atriði, hversu þessum herjum reiðir af. Takist Þjóðverjum að innikróa þá alveg, er það gíf- urlegt áfall fyrir Rússa, en takist þessum rússnesku herjum að hindra, að fótgönguliðssveitir Þjóðverja nái sambandi við vélahersveitirnar, sem fram hafa sótt, skapast mikil hættá fyr- ir þær. Það er þetta, sem ekki er ljóst enn — og eru þó líkurn- ar sennilega meiri fyrir því, að Þjóðverjum takist að króa inni lið Rússa, — að minnsta kosti einhvem hluta þess. Þannig virð- ist vonlítið, að rússneska liðið fyrir vestan Lemberg komizt undan úr þessu, en Lemberg, — sem er geysi þýðingarmikil jámbrautarskiptistöð, og allmiklu austar, — er á valdi Þjóðverja. Á Bessarabíu-vígstöðvunum hefir engin breyting orðið Rússum í óhag, að því er séð verður. — Svo virðist sem Þjóð- verjar hafi getað sótt fram til Minsk úr tveimur áttum, frá Brest Litovsk og að norðvestanverðu, þ. e. frá Austur-Prúss- landi og um Yilna. Að baki þessara herarma, sem sameinast hafa í Minsk, er feikna mikill rússneskur herafli, sem vafa- laust getur gert Þjóðverjum mikinn óskunda, þótt hann kunni að gefast upp að lokum. Auk þess, sem Þjóðverjar sækja fram til Moskva, halda [þeir uppi sókn um litlu Eystrasaltsríkin og hafa tekið Libau og Jakobsstadt. Þeirri sókn er stefnt til Leningrad. Sennilegt er talið, segir í sænskum blöðum, að sóknin *ái iKyrjálaeiði, sem er aðeins í byrjun, sé einn þáttur sóknar- innar til Leningrad. 1 gærkveldi var tilkynnt í Moskva, að stofnað hefði verið þrigg'ja manna varnarráð. Stal- in sjálfur er forseti ráðsins, en auk hans eiga þeir sæti í ráðinu Molotov og Voroshilov, fyrrver- andi yfirmaður Rauða hersins, en eins og kunnugt er, var taliö að Voroshilov hefði fallið í ó- náð hjá Stalin, vegna þess hversu tregiega Rússum geklt að berja á Finnúm í finsk-rúss- nesku styrjöldinni. — Bendir fregnin um skipun þessa varn- arráðs til, að meira sé farið að kreppa að Rússum en sjá má af herstjórnartilkynningum þeirra. Brezku hermálasérfræðing- arnir, sem eru í Moskva, byrj- uðu í gær viðræður við herfor- ingjaráðið rússnéska, og sitja fundi með þeim framvegis við og við. Rússar liafa viðurkennt, að her þeirra á Shaulivígstöðvun- uin í Lithauen liafi hörfað til fyrirfram ákveðinna varnar- stöðva. Eftir rússneskum fregn- um að dæma er aðstaða Þjóð- verja á þessum vígstöðvum einnig að sumu leyti erfið. I gær var útvarpað ávörpum, frá Moskva á rúmensku og ungversku til verkamanna i Rúmeníu og Ungverja- landi, að rísa upp og kasta af sér oki nazista. Hinir rússnesku fallhlifarhermenn, er settir hafa verið á land í Rú- meníu, hafa leitað samhands við kommúnista þar, til þess að vinna skemmdarverk að baki víglínunnar, og mun liafa orðið talsve'rt ágengt, þvi að ella liefði ekki verið gripið til jafn róttækra ráðstafana sem þeirra, að skjóta 500 kommúnista, eins og gert var í Jassy. Var tekið fram, að aðrir kommúnistar og Gyðingar, sem lijálpuðu Rúss- um, myndi sæta sömu hegn- ingu. Tilgátur hafa komið fram uin, að Þjóðverjar og Rúmenar liafi ekki enn byrjað eins öfl- uga sókn og ráð var fyrir gert, vegna þess liversu allt er ókyrt að haki þeirra. Árásir að degi til á Bremen og London i morgun. Brezkar sprengjuflugvélar gerðu miklar árásir i fyrrinótt á Bremen, Hamborg og fleiri borgir, og varð mest tjón i Hamhorg, en mikill fjöldi liúsa gereyðilagðist í báðum borgun- um. Snemma í gærmorgun gerðu brezkar sprengjuflugvél- ar einnig árásir á Bremen og Kiel og liafa ekld fyrr verið gerðar dagárásir á borgir Þýzkalands. Sýnir þetta, að Bretar eru enn að lierða lá loftsókninni, og má jafnvel bú- ast við, að hér eftir verði farið i árásir að degi til til Vestur- Þýzkalands, ekki síður en Frakklands, þótt til Þýzkalands sé lengri leið að fara. Það voru stórar s^rengjuflu'gvélar, llsem, gerðu árásina ' á Kiel og var varpað sprengjum á liafnar- mannvirki og skiþ. Þegar flugvélarnar voru að koma úr þessum leiðangri, voru gerðar árásir á skip við strend- ur Hollands og urðu tvö skip, annað 3000 en liitt 6000 smá- lesta fyrir sprengjum og kvikn- aði i þeim. Eftir þessari verksmiðju endilangri eru eingöngu Whitley-sprengjuflugvélar í smíðum. Þær voru um tíma stærstu sprengjuflugvélar, sem Bretar smíðuðu, en eru nú aðeins af meðalstærð. Þær geta borið um eina smálest af sprengjum, en þær flugvélar, sem nú er farið að nota, geta borið um 3 smálestir. Japan og Bandarikin að taka ákvðrðnn nm afstððn sína. Frá Japan og Bandarikjunum berast hinar eftirtektarverðustú fregnir, sem benda til, að þessi tvö ríki, sem ein stórveldanna standa enn utan við liildarleikinn, séu i þann veginn að taka loka- ákvörðun um afstöðu sína í styrjöldinni. í nýrri fregn um landvarna- ráðið rússneska segir, að auk Stalins, Molotovs og Voroshi- lovs eigi þeir sæti i ráðinu Mal- ankov og Berya. AFSTAÐAJAPANA. í fregn frá Tókió segir, að jap- anska stjórnin og herforingja- og flotaráðin, m'uni koma sam- an á sameiginlegan fund i dag. Á fundi þessum verður að lík- indum tekin lokaákvörðun um afstöðu Japan i þýzk-rússnesku styrjöldinni. Ákvörðunin verð- ur svo lögð fyrir Japanskeis- ara. Önnur athyglisverð fregn barst frá Tokió i mosgun. Boð- að var, að yfirlýsingar yrði birtar í dag um viðurkenning- ar á stjórn þeirri, sem Japanir komu á fót í Nanking i Kína. Eftir að þessi fregn var birt, barst önnur fregn, sem hermdi, að þýzka stjórnin og hin italska hefðu viðurkennt Nanking- stjórnina. Ef til vill eru þessar viðurkenningar Þjóðverja og Japana á Nankingstjórninni, eins konar forleikur að þvi, að Japanir láti kylfu ráða kasti og gangi ,út í bardaga með möndulveldunum. Þvi er neit- að í Tokió, að Þjóðverjar liafi krafizt þess, að Japan veldi níilli þríveldasáttmálans og vináttusáttmálans við Rússa. AFSTAÐA BANDA- RÍKJANNA. I Bandaríkjunum hafa fylk- isstjórar (State governors) all- í NÓTT. í nótt sem leið voru gerð- ar loftárásir á Ruhr og Rinar- héruð, og urðu borgirnar Dúss- eldorf, Köln og Duisburg harð- ast úti. ir komið saman á ráðstefnu. Frank Knox, flotamálaráð- herra, hefir ávarpað þessa ráð- stefnu. Hann sagði i þessari ræðu sinni, að nú væri örlaga- ríkasti mánuður styrjaldarinn- ar — og þannig hefði atvikast, að Þjóðverjar hefðu fengið ærnu að sinna þennan mánuð. Þetta tækifæri mætti Banda- ríkin ekki láta ónotað, og lagði Knox til, að Bandaríkjaflotinn væri þegar í stað tekinn til þess að hreinsa lil á Atlantshafi, svo að hættunni á siglingaleiðun- um yrði útrýmt að fullu, Knox upplýsti i ræðu sinni, að undanfarna 5 mánuði hefði verið sökkt skipum samtals 2 millj. smálesta, og liergögn og flugvélar hefði verið með þess- um skipum. Kvað hann ekki mega svo til ganga lengur. Framleiðsla Bandaríkjanna á hergögnum og flugvélum vex með risaskrefum, og nú verður að standa við öll þau loforð, sem Bretum og lýðræðisþjóð- unum voru gefin með sam- þykkt láns- ol leigulaganna. 280 flugvélar Rússa skotnar niður í gær. 280 rússneskar flugvélar voru skotnar niður í gær, segir i þýzku herstjórnartilkynning- unni kl. 1. Þar af 216 í loftbar- dögum. Skriðdrekasveitir Þjóðverja sækja hratt austur frá Minsk og telja Þjóðverjar að þessi öra framsókn muni á næstunni hafa veigamikla örðugleika fyrir Rússa í för með sér. Næturakstur. Aðalstöðin, Lækjartorgi, simi 1383, hefir opið í nótt. Þingvallaför Heimdallar. Þátttökukort seld i dag og á morgun á skrifstofu Varðar, Varð- arhúsinu kl. x—5. Sími 2339. Leiðrétting. í fimrntu línu þriðja erindis kvæð- isins' „Landið kallar“, sem birt var i Sunnudagsblaði Visis’í gær, hafði orðið dálítið línurugl. Stóð þar: Tengjumst bræðraböndum allir, en átti að vera: Tengjumst . glUr brœSraböndiini. Þingvallaför Heimdallar. Þátttokukort seld i dag og á morgun á skriffetofu Varðar, Varð- arhúsinu kl. 1—5. Sími 2339. Útvarpið í kvöld. Kl. 19.30 Hljómplötur: Lög úr óperettum og tónmyndum. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Ástand og horfur (ungfrú Rannveig Tómas- dóttir). 20.55 Hljómplötur: a) Symfónía nr. 5, eftir Tschaikow- sky. b) Andleg tónlist. 2 vanir remisiiðir geta fengið fasta atvinnu hjá oss. H.f. Hamar. <

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.