Vísir - 25.07.1941, Blaðsíða 3

Vísir - 25.07.1941, Blaðsíða 3
VISIR Frá Færeyjum: manns bíða bana af litlum reksprengjum. Þrjú færeysk skip fórust í maí, Oíðan í maí liafa Færeyingar ekki misst neitt skip, en þýzkar flugvélar gera alltaf við og við árásir á eyjarnar eða skip við ])ær, enda þótt manntjón hafi ekki orðið af. — En um miðjan mánuðinn biðu þrír menn bana af að handleika egglaga sprengju, sem rekur nú á land á eyjunum. Hafa alls fimm menn beðið bana af morðtólum ]>essum. Vísi liefir lekizt að ná í nýj- ustu færeysk blöð — Dimma- lætting frá Þórshöfn og Norð- lýsið frá Klakksvík — og segja þau frá siðustu tveim loftárás- um, sem voru gerðar hvern dag- inn eftir annan, og slysinu, er mennirnir þrír fórust. Norðlýsið segir frá síðar- nefnda atriðinu á þenna liátt: „Mánudagskveldið — þ. e. 14. júlí — varð óttalegt slys i Dali á Sandey og biðu þrír menn hana af þvi. Niðri á Mölinni fannst „reki“, sem var í lögun eins og egg. Farið var með „rekann“ i skól- ann og var þar skrúfaður liluti af tækinu og líktist hann ein- liverskonar vél. Bóndinn i Dimon, Óli Jakup, sem er útlærður smiður, fór með þetta upp á skólaloftið, á- samt með tveim mönnum öðr- um og veit enginn meira um hvað þar gerðist. Klukkan sjö um kveldið lieyrðist ógurleg sprenging. •Þakið fauk af skólanum og um leið feykti sprengingiS^ höfuð- lausum húk Dímonarbóndans út af loftinu. Annar hinna, sem inni voru, var alveg í tætlum, en lik hins þriðja var ekki mjög skadidað. Laugardagskvöldið næsta á undan iiafði Dímonar- bóndinn komið til Dals. Þetta er apnað slysið, sem hendir, vegna þess að fólk lief- ir farið að handleika rekahluti þótt það hafi verið bannað. Þetta hefir nú kostað fimm mannslíf og er það dýr lærdóm- ur, en kemur vonandi áð gagni.“ Hina fregnina þirta bæði blöðin, samlcvæmt tilkynningu frá hrezku herstjórninni á eyj- unum: „Eftir liádegi 13. júli var gef- ið loftvarnamerki i Þórshöfn. Það var gert vegna heimsóknar þýzkrar flugvélar, sem flaug yfir nokkurn liluta eyjanna og gerði úr mikilli hæð árás á skip í „Sundelaget“ (milli Austur- eyjar og Straumeyjar). Engin sprengja liæfði þó skipið og' ekkert slys hlauzt af þessu. Næsta dag var aftur gefið hættumerki, en -enginn varð fvrir sprengjunum heldur að þessu sinni, þvi að sprengjurnar sem ætlaðar voru skipi í „Sun- delaget“, lentu á þurrú landi og ollu engu tjóni. Næstum því um sarna leyti réðist önnur þýzlc flugvél nærri Stóra Dímon á velþekkt skip úr Þórshöfn og varpaði á það sprengjum, en skipþhöfn og farþegar sluppu heilir á húfi, þólt sprengjurnar félli nærri skipinu.“ Skip það, sem hér um ræðir, er strandferðabáturinn Smyrill. Var varpað að honum átta sprengjum, en þótt engin hæfði skipið, skemmdist það þó svo, að það er nú ósjófært. Farþeg- arnir á því voru um 60 að tölu. Eitt blaðanna í Þórshöfn — Dagblaðið — gat nafns skipsins eftir árásina, og bönnuðu Bret- ar það í mánuð fyrir bragðið. í mai misstu Færeyingar þrjú sldp og fórust við það um 10 menn. Fyrsla skipið, sem fórst, var kútterinn „Guiding Star“. sem var á leið milli Færeyja og íslands. Fórst hann með allri áhöfn og spurðist ekki til lians eftir að hann fór úr höjfn á Færeyjum áleiðis hingað. Þá sökkti kafbátur skonnort- unni Emanúel, sem var nýtt og vandað skip. Þrír menn af átta fórust. Loks fórst kútterinn Harry. Varpaði flugvél sprengjum á hann undan Skotlandsströnd- um og laskaðist skipið svo, að þgð komst aðeins til lands og þótti ekki horga sig að gera við það. Engan mannanna sakaði. Síðan hefir ekkert færeyskt skip farizt, þótt þau sigli til Englands eftir sem áður. i um ver á QEFIN hafa verið út ný verð- lagsákvæði, samkvæmt til- lögum frá verðlagsnefnd, en henni hafði verið falið að end- urskoða verðlag þeirra vöru- flokka, sem verðlagsákvæði höfðu verið sett á. Bætt hefir verið við tveim verðlagsflokkum, kornvörum, og kaffi og svkri, en samkomu- íag stór- og smákaupmanna hafði verið um álagningu á þessum vörum um skeið. Álágning á hrísgrjón, sagó- grjón, semúlíugrjónog kartöflu- mjöl má vera 10% í heildsölu (var 15%), en á aðrar vörur í þessum nýj u Verðlagsflokkum má í heildsölu leggja 7.5% (var 10%). í smásölu má álagningin vera allt að 30%. Á fyrri ákvæðum varð nokk- ur breyting, Iielzt að því er snertir vefnaðarvöru, bygging- arvöru og búsáhöld. Vefnaðarvörur: I heildsölu er lieimil 13% álagning (var 15%) og i smásölu 42—53% álagning (var 47—64%), eftir þvi, livort keypt er af innlendum birgðum eða beint frá útlöndum. Sérstök ákvæði gilda þó um álagningu á efni í karlmanna- föt, frakka, dragtir og ryk- frakka. Smásali má leggja á þessar vörur 35—45%, eftir þvi, hvort keypt hefir verið af inn- lendum birgðum eða beint fra útlöndum. Á silkisokka má heildsali leggja 20% (var 25%), en smá- sali 50—65%. Byggingarefni: Álagning á steinlím 19% (var 22%), mið- stöðvarofna o. fl. 27% (var 30%) og baðker, vaska o. fl. 30% (var 40%). Búsáhöld: í heildsölu má leggja á borðbúnað 18% (var 16%), en í smásölu 38—50% (var 40—55 %). Á ýmsunr öðrum vörum hef- ir áiagning verið lækkuð, þótt fleiri sé eigi getið hér. Auglýs- ing um þetta er birt í Lögbirt- ingablaðinu i dag. »í]«' varð mnnaðai1- lan§ á §jönnda ári« — í heimsókn hjá 85 ára gömlu afmælisbarni. Inni á Hverfisgötu 89 hér í bæ býr gömul kona, Sigurbjörg Sigurðardóttir að nafni. Hún hefir búið í kjallara þessa liúss i 12 ár. Oft koma barnabörnin til þess að heimsækja liana, og er það hennar bezta skemmitun, en í gær brá svo við, að gjör- ókunnugur maður kom í heim- sókn til hennar og bað hana að segja sér eittlivað frá liðnum tímum. Gamla konan horfði fyrst rannsakandi á mig, en bauð mér síðan að setjast. Á ellilegu andliti hennar mátti sjá, að hún átti að baki sér langa og erfiða ævi. — En þrátt fyrir það bar liún ára- f jöldann með prýði. Hún sér og lieyrir ágætlega og hefir fóta- vist. Nú leit hún upp og spurði •hægt og stillilega: — Hvað er það, sem þér viljið fá að vita? — Æviatriðin í stórum drátt- um, svaraði eg. Og svo hóf hún frásögnina: — Eg er fædd 25. júlí árið 1856, i Stuðlakoti i Görðum. Faðir minn var sjómaður, og var oftast þröngt i búi hjá okk- ur. En svo missti eg báða for- eldra mína, þegar eg var á sjö- unda árinu. Voru þá fengnir tveir menn til þess að koma mér í fóstur, en þeir áttu að leita uppi ein- hvern stað, þvi' það var alveg ó- ákveðið, hvert eg færi. Svoleiðis var, að þessir menn voru hinir mestu fylliraftar, og flökkuðu þeir um sveitina, þeg- ar þeir voru „á því“. Nú liittist þannig á, að þeir áttu leið um, i sama mund og foreldrar mínir dóu og þótli þess vegna ráðlegt, að þeir tækju mig með sér og kæmu mér einhvers staðar fyrir, þar sem þeir kæmu að garði. Þeir drukku svo alla nóttina og flæktust víða, en fundu eng- an bæ. Endaði það með því, að eg lagði mig til svefns og svaf af úm nóttina, Um morguninn, þegar eg vaknaði, komst eg að raun um, að eg hafði sofið und- ir kálgarðsvegg lijá bæ einum. Var mér hrollkalt, og baðst þess að mega fara inn í bæinn. Fóru þá mennirnir heim og báðu fólkið um að lofa mér að vera inni í svo sem 1—2 klst. Var það sjálfsagt. Dvaldi eg svo á bænum fram eftir deginum, og var gert vel til mín. Var eg liáttuð ofan í rúm og gefin heit mjólk að drekka. Svo var ferðinni lialdið á- fram, og undir kvöld komum við að Nefsliolti í Holtum. — Þar var mér komið fyrir og var eg þar í 10 ár. Var farið illa með mig, látin vinna gríðpr- mikið, illa liirt og oft svöng og lcöld. Þegar eg var 17 ára gömul, fluttist eg alfarin burtu frá Nefsliolti og fór að vinna fyrir mér sjálf. Var eg á nokkrum Ávalt nýtt grænmeti Niðursuðuglös Vatnsglös Hitabrúsar Gler í hitabrúsa Bollar Hangikjöt NÝR LAX SALTKJÖT GRÆNMETI allskonar. NtMabnð Símar 9291 og 9119. _______________. Steindór Sérleyfisbifreiðadeihlin. Sími 1585. Á MORGUN. Til Stokksejæar: Kl. 10y2 f. h„ 2 og 7 síðd. Til Þingvalla: Kl. 10y2 f. h„ 1 y2 e. h„ 4 og 7y> síðd. . Til Grindavíkur: Kl. 8 síðdegis. Til Sandgerðis: KI. 1 e. h. og 7 síðd. bæjum í sveitinni, lengst af í Sauðholti, eða 18 ár. Þaðan fór eg austur í Selvog. Giftist eg þar Sigurði Frímanni Guðmundssyni, og fluttumst við þá til Reykjavikur. Vann hann að sjómennsku, en eg hafði vatnssókn á hendi og fatalitun. Oft var erfitt að sækja vatnið, þvi eg þurfti að bera það alveg frá Skálholts- lind, sem var nálægt Lands- höfðingjahúsinu, 'og alla leið inn undh’ Bjarnaborg. Það voru 7 hús, sem eg sótti vatn fyrir. Við bjuggum í Arnlaugsbæ til að byrja með, en svo varð að rífa húsið, vegna þess að kóng- urinn ætlaði að korna til lands- ins. Fyrir 15 árum missti eg manninn minn og hefi búið ein síðan. Þetta eru nú æviati’iði mín i aðalatriðum, — sagði gamla kouan og horfði i gaupnir sér. — Þér eigið einhver börn, er ekki svo? — Jú, eg á 4 börn á lífi. Þau eru Meyvant, bilstjóri hér í bæ, Rósa, Kristin og Halldóra, sagði Sigui-björg og um leið brá fyrir gleðibi-osi á vörum liennar. Svo kvaddi eg gömlu konuna og fór. G. Smlmln óskast til léttra sendiferða. — Þarf að hafa hjct. — A. v. á. Auglýsingar sem birtast eiga í blaðinu á morgun þurfa að koma fyrir kl. 10 fyrir hádegi sama dag í síðasta lagi. — Biii tiiiija. m kenir bai Blómkál, Nýjar kartöflur, Gulrófur, Næpur, Gul- rætur, Toppkál, Salad, Tómatar, Persille, Rabar- bari, Reyktur Lax, Reyktur Rauðmagi, Sardínur, Síld, Harðfiskur, Smjör, Ostar, Ræk jur, Rækju- mauk, Ansjosur, Caviar, Mayonnaise, Sandw. Spread, Gaffalbitar, Súpur í dósum, Sósur, Pipar- rot, Oliven, Capers. qUiaUaldl Frystihúsið Herðubreið tilkynnir: Allir, sem eiga hjá oss vörur i kæligeymslu, verða að vitja þeirra fyrir miðjan ágúst. Þá verður frost- laust í húsinu um skeið og vörurnar ónýtast, verði þær ekki teknar fyrir ofangreindan tima. Frystihusið Herðnhreið Fríkirkjuvegi 7. Hálfbaunir — Hýðisbaunir. AII Bran — Com Flakes. Semulugrjón — Mondamin. Maizena — laust og í pk. Hrísmjöl — Kax-töflumjöl. Theódór Siemsen Tillíynniitg^ Vegna efnisskorts rerða báðar verksiniðjiirisar lokaðar nm oákveðinn tima. Kexverksmiðjan Frðn h. f. Kexverksmiðjan Esja h. f. Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að Guðflnna Ingveldur Helgadóttlr Grettisgötu 77, aiulaðist að Landspítalanum að morgni þess 23. þ. m. — Börn,tengdaböm og systkini hinnar látnu. Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum að hjart kær sonur okkar og bróðir, Kristján Ólafsson frá Skuld lést á Vífilssfaðahæli þ. 24. þ. m. Jarðarföi’in ákveðin síðar. Foreldrar og systkini. fiítenjr §Ilnngur Sími: 3007. Auglýsið í VÍSI /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.