Vísir - 22.08.1941, Blaðsíða 2

Vísir - 22.08.1941, Blaðsíða 2
VlSIR VÍSIF? DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. RJtstJóri: Kristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla: Hverfisgötu J.2 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) Símar 1 6 6 0 (5 línur). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. ALÞtÐUBLAÐIÐ virðist sælt í Jjeirri einföldu trú, að rikisstjórnin okkar viti allt betur en allir aðrir og geti alll betur en nokkur annar mann- legur máttur. Vítir blaðið liarð- lega það tiltæki sumra blaða og þá sér í lagi Visis, að leyfa sér að gagnrýna gerðir stjómarinnar og þá einkum utanríkismálaráð- berráns. Hingað til hefir því veriö haldið fram í lýðræðisrikjum að lieilbrigð gagnrýni væri heilsu- samleg liverri stjórn hversu yf- irmannlegum mætti sem hún væri gædd. I Bretlandi nýtur stjórnarandstaðan sérstakra friðinda og foringi þeirrar and- stöðu hefir launað embætti. Gagnrýni er þannig yfirleitt vel séð lijá þeim sem lýðræði og lýðfrelsi unna, og sumir ein- ræðisherrar hafa sjálfir styrkt heilbrigða gagni'ýni, og má þar skirskota til Mustafa Kemal, sem mátti heita einvaídur í Tyrklandi meðan hans naut við. Vísir hefir aldrei feögið þá flugu í höfuðið að ríkisstjórnin okkár væri svo yfirmannleg, að ekki mætti’ skýgnást í gegnum gloríúna sem Alþýðublaðið sveipar um höfuð Utanríkis- málaráðherrans niður í sjálfan hársvörðinn, og veila honum höfuðböð og kembingar eftir því sem ástæða gæfist til. Þrifn- aður er góður á hverju heimili, ekki sízt þar, sem misjafn sauð-' ur er í mörgu fé, og ætti ríkis- stjórnin sízt að hafa á móti því að heilbrigðu almenningsáliti væri að henni haldið. Ella liggur sú hætta í loftinu að hún ein- angrist og fari sínu fram hvort sem landslýðnum likar betur eða ver, og er þá með öllu horfið frá braut lýðræðis og lýðfrelsis, sem hvorttveggja hefir þótt gott og viðunandi til þessa. Danskur Grundtvigssinni og prestur var eitt sinn að því spurður hvar hann skipaði sér í flokk í stjórnmálunum." Ekki vildi prestur láta álit uppi um það, en svaraði J>ó (þýtt á slæma íslenzku þannig að orðaleikur- inn haldist): „Eg heyri til hægri en horfi til vinstri“. Til þessa svars lágu þær ástæður að presturinn var lieyrnarlaus á vinstra eyra og sjónskalckur þannig, að hann leit útundan sér til vinstri, og var svarið þannig nákvæmlega rétt, þótt ekkert væri látið uppi um stjórnmála- skoðanimar. Slíkur hdskinningur getur verið góður fyrir guðsmenn, sem ekki vilja láta blgnda sér í deilur um veraldlega hluti, en fyrir blaðamenn, sem verða að láta hin veraldlegu málefni sig miklu skipta, gildir sú megin- regla, að taka afstöðu til hvers máls og vera óhræddir við að túlka málsviðhorf sitt alveg án tillits til liver’laun þeir hreppa frá hendi hinna ráðandi manna. Úr þvi að Alþýðublaðið ræðir sérstaldega um utanríkismála- ráðherrann, þarf ekki ]>ví að leyna að Vísir telur hann óþarft fimmta lijól undir vagni, sem ríkisstjórninni sé enginn sér- stakur stuðningur að, jafnvel * J>ótt hann teldist sem varalijól. Hvar er* flokkurinn að baki lians? Hver er stuðningurinn við rikisstjórnina, ef flokkinn vantar og livaða ástæða liggur lil þess að fylgis- og flokkslaus- um manni er falið að gegna störfum utanríkismálai’iáðherra, jafnvel þótt aðrir ráðherrar annist J>au að ekki óverulegu leyti? Þessum spurningum hefði AI- ]>ýðublaðið gott af að velta fyrir sér, þótt það láti nú eklci uppi svona opinberlega að livaða nið- urstöðu það kemst. Þess er ekki liægt að krefjast og því er bezt fyrir blaðið að tala áfram um liinn yfirmannlega utanríkis- málaráðlierra, alveg gagnrýnis- laust og út í bláinn eins og það liefir gert hingað til. Heilbriðrar gagnrýni er ekki að vænta úr þeirri átt, en það skal heldur ekki ætla sér þá dul að það geti þaggað niðri raddir gagnrýninn- ar þrátt fyrir það. Það þarf að laga göturn- ar í bænum. Lítið hefir borið á þvi undan- farið, að umbætur hafi farið fram á götum bæjarins. Má vera, að það sé mannaleysi um að kenna, því svo mikið er nú að gera í bænum, að dæmi er ekki til slíks. En þó það sé, verður að Iiafa einhver fáð með að laga samgönguæðar bæjarins. Göturnar eru víða holóttar og þar af leiðandi mjög illfærar, bæði farartækjum og fótgang- andi mönnum. T. d. er gangstígur Laugaveg- arins einh/ver sg alversti, því Iiann hefir einhverju sinni verið malbikaður, en nú er liann vart annað en laus möl og harðar,' skarpar brúnir, sent menn eiga bágt með að ganga, öðru vísi en að hrasa eða misstiga sig. Væri ekki úr vegi að fara fram á að einhverjar lagfæringar yrðu gerðar þótt ekki væru þær nema lil bráðabirgða. Eg efa ekki, að bæjarbúar myndu vera mjög þakklátir, ef bafist væri banda um þessi efni liið bráðasta. G. Vísitalalan bækkar iiin lO stigr. J gær hélt kauplagsnefnd fund og ákvað vístöluna fyrir næsta mánuð. Er hún 167, tíu stigum hærri en í þessum mán- uði. Þessi mikla hækkun stafar að- allega af verðhækkun á kartöfl- um, svo og nýju dilkakjöti, en auk þess hafa kol, tóbak og vindlingar og strætisvagnagjöld Itækkað nokkuð. Hækkun á kartöflum nemur 5.8 af hundraði, en á kjöti 1.9 af liundraði og á kolum 0.5 af hundraði. Þessi visitala gildir um kaup- greiðslur frá næstu mánaða- mótum. GAMLA BÍÓ; Suðræn ást. Um þessar mundir sýnir Gamla Bíó mynd, sem nefnist „Suðræn ást“. Er mynd þessi mjög eftirtektarverð, því hún sýnir hvernig siðum og háttum, þessara okkár ókunnu þjóða er farið. — Mynd þessi er prýði- lega leikin af tveimur vin- sælustu leikurum, sem nú eru uppi, þeim Robert Taylor og Hedy Lamarr. Ætti enginn, sem virðir góðar myndir, að láta undir höfuð Ieggjast með að sjá þessa ágætu mynd. Fura, gróðursett við Rauðavatn fyrir 36 árum. Fura við Rauðavatn, 33 ára gömul. $kdgræktai*stöðiu ¥ið Haiiðawaiiie v. ____ Miisning: í^riia skóg:ræktarfélag:§ á Islaiidi. Guðmundur Davíðsson ritar hér athyglisverða grein um fyrsta skógræktarfélagið liér á landi og Rauðavatnsstöðina. Eru 40 ár liðin frá stofnun félagsins 25: þ. m. og er greinin rituð í því tilefni. Yirðist, sem nokkur vanliirða hafi verið á gróður- reit þessum og vel mætti bæta þar úr, án verulegs kostnaðar eða fyrirhafnar. Um mánaðamótin júní og júlí s. 1. skoðaði eg skóg- ræktarstöðina við Rauðavatn. Yoru þá liðin rétt 30 ár frá því er eg var þar siðast. Hafði eg áð- ur starfað þar í 8 ár samfleytt. Árangurinn af skógræktinni þarna er að visu ekki mikill, en þó vonum framar eftir öllum ástæðum að dæma. Það verður ekki minnzt á ékógræktina við Rauðavatn án j>ess að gera sér grein fyrir, hvernig liún er til orðin og þeirra manna getið, se;n koma við sögu liennar. Fyrsta skógræklarfélag á Is- landi var stofnáð í Reykjavík 25. ágúst árið 1901 og eru nú rétt 40 ár siðan. Forgöngumenn að stofnun félagsins voru þeir Þórhallur Bjarnason lektor og C. E. Flensbörg skógfræðingur. í stjórn voru kosnir Steingrím- ur Thorsteinsson skáld, Flens- borg, M. Lund lyfsali, Bjarni Sæmundsson kennari og Har- aldur Nielsson cand. tlieol. Fyrstu árin var Flensborg aðal- ráðunautur félagsins og i fjar- veru lians Einar Helgason garð- fi’æðingur. Sama árið valdi Flensborg spilduna milli Rauðavatns og þjóðvegarins austur, handa félaginu sem skógræklarland. Skák þessi er um 40 dagsláttur að stærð. Ár- ið eftir, að félagið var stofnað, var landið girt með sérstaldega vandaðri girðingu. Hún var um 950 faðmar á lengd. Hver faðm- ur kosta'ði 1.67 kr. Vorið 1903 voru gróðursettar þarna í fyrsta sinn 8600 trjáplöntur. Megnið af þeim var reyniviður, en aðeins 600 barrtré, einkum fjallafura. Samkvæmt margra ára reynslu þreifst reyniviðurinn vel í trjá- görðum liér á landi og viða á bersvæði. Menn treystu honum því betur að liafa sig áfram heldur en barrtrjánum, sem hér voru alveg ókunnn og óreynd. Voru menn því mjög hikandi, fyrst í stað að bjóða ]>eim upp á íslenzkan jarðveg. En það fór á annan veg en búizt var við. Reyniviðurinn féll í valinn en barrtrén héldu velli, og hafa gert það síðan, enda var eftir þetta aðaláherzla lögð á að rækta þau, einkum furuna. Að vísu dó mikið af henni fyrstu árin, en allt af var plantað i staðinn fyrir það, sem dó út. Plönturnar voru oft dasaðar eftir ferðavolkið frá Noregi og Danmörku, en þaðan voru þær fengnar. Gætt var allrar varúðar um meðfei’ð þeirra og þeim vandlega plantað. ’Ef þær lifðu af fyrstu 3 árin var þeim venju- lega borgið, enda þó að vöxtur- inn færi hægt, eða stæði í stað árum saman. Q áðreitur var gerður inn á skógræktarsvæðinu. Þar var sáð ýmsum tegundum af trjáfræi. Flestar eða allar teg- undirnar komu upp, þó nokkuð misjafnt, en sumar þeirra áttu sér skamman aldur. Leirborinn og ófrjór jarðvegur var því til fyrirstöðu að uppeldið tækist sem skyldi. Nokkuð af furu- plöntum, sem þarna voru aldar upp, voru gróðursettar innan girðingar og töluvert sent út um land til ræktunar. Þátttaka manna í skógræktar- félaginu var takmöí’kuð við löluna 100. Forráðamenn fé- lagsins munu hafa litið svo á, að belra væri að liafa fáa góða liðs- menn en marga lélega. Hver fé- lagsmaður átti að borga 25.00 kr. hlut í félagið, í eitt skipti fyrir ÖII, og skyldi greiðast á tveimur árum. Steingrimur Tliorsteinsson skáld var endur- kosinn formaður félagsins ár eftir ár. Meðal annara áhuga- manna i félaginu, á skógrækt- inni, má nefna Pál Melsted sagnfræðing, Tryggva Gunnars- son bankastjóra, Einar Ilelga- son garðvrkjufræðing, Þórhall Bjarnason lektor og Þorstein Erlingsson skáld. Páll Mel- sled og Steingrímur Thorsteins- son skáld voru með elztu mönnum landsins, en þeir voru samt ungir i anda og áttu liug- sjónir æskunnar. Steingrimur skáld lét oft ánægu sína í ljós yfir vænlanlegum framförum og þroska trjáplantnanna, sem gróðursettar yrðu þarna innan girðingar. Hann lét sig ekki vanta þarna efra um það leyti sem lilýnaði í veðri, og „vor- gyðjan sveif úr suðrænum geim“, til að líta yfir skógrækt- arland félagsins. Hann liafði yndi af að athuga trjáplönturn- ar. Við hvern nýjan sprota, sem skaut út úr stofni þeirra óx hjá skáldinu ný von og trú á vöxt og þroska skógargróðursins. Hann óskaði þess mörgum sinn- um, að yngri kynslóðinni mætti takast að færa út þann grund- völl, að skógrækt landsins, sem þarna var markaður. Má hér vel minna á hvatningarorð Stein- gríms, sem hann lætur skógar- nýgræðinginn tala til æskunn- ar: „Hlífi gömlu, hlynni nýju, hagspaklega gætinn lýður; græði út, en engu spilli, óráð niðja móður svíður“. Flestir af þeim mönnum, sem stofnuðu fyrsta skógræktarfélag á íslandi, fyrir 40 árum, eru nú bornir til liinztu hvildar, er verk þeirra munu lengi lifa. Gætu þeir nú litið yfir skógræktar- ; stöðina við Rauðavatn og skoð- að óskabörn sín þar, mundu þeir komast að raun um að fólk- inu er tamara að læra, og hafa yfir, kvæði íslenzku góðskáld- anna en að framkvæma hug- sjónir þeirra. Oft er minnst liirt um ung- viði jurta og dýra, sem eiga við andstæð lífsskilyrði að búa. Þykir venjulega ekki ómaksins vert að leggja fé og fyrirhöfn í sölurnar til að bjarga þeim frá eymdaræfi hvort sem er. Menn afsaka sig með því, að þau verði afstyrmi. Þessi skoðun rikir einnig í þjóðfélögum. Þau skapa oft auðnulausa lands- hornamenn, sem með góðu uppeldi gátu orðið þjóðkunnir sæmdarmenn. Trjáplönturnar við Rauðavatn sfanda í frjó- efnasnauðri leirjörð, á skjól- lausu bersvæði, móti sveljandi norðannæðingi. Yegna þessara ömurlegu lifskjara, frá náttúr- unnar hendi, dróg úr vextinum og nienn misstu trúna á framtíð þeirra. Þær hafa því orðið nokk- urskonai’ olnbogabörn. En ein- mitt vegna þessara erfiðu lífs- skilyrða þurftu þær aðhlynn- ingar með, sem ekki hefði komið til greina ef náttúruskilyrðin væru þeim hagstæðari. Sökum þess hve jarðvegur innan Rauðavatnsgirðingarinnar er leirborinn, vilja koma í liann sprungur, í þurviðrum á sumr- um og vetrarfrostum. /Vatn seitlar eftir þeim ofan að rótum trjáplantnanna og getur valdið íua. Til þess að koma í veg fyrir þetta voru sprungurnar stígnar saman, í moldinni kringum plönturnar, bæði haust og vor. En líklega hefir þessu verið hætt of snemma og þá dregið eitthvað úr vexti trjánna. Nú er allstaðar grasigróinn jarðvegur kringum trjástofnana. Furu- trjánum á Þingvöllum var ár- um saman veitt þannig löguð aðíilynning, enda fóru þær að vaxa eftir það og una betur hag sínum. Hæstu furutrén í Rauðavatns- skógræktinni eru 2 m. 1 fvrra sumar höfðu nokkur tré vaxið 30—40 'sm. Er ]>a.ð meiri vöxt- ur en nokkuru sinni áður. Ein- stöku greniplanta er álika liá, en af sumum þeirra var toppsprot- inn kalinn. Síðar í sumar er eg athugaði skógræktina liafði um 45 sm. toppsproti á gallalausu og fegursta grenitrénu verið ný tálgaður og síðan brotinn af. Fleiri skemmdir mátti sjá á sumum furutrjánunl, og ekki síður á þeim, sem höfðu falleg- an vöxt og voru þroskavænleg- ar. Hlið á girðingunni var ólæst. Skemmdarvargarnir gátu því fyrirhafnarlaust vaðið inn á skógræktarsvæðið og þjónað þar lund sinni eftirlitslaust. Hafi mikil brögð verið að þannig löguðum skemmdum undanfar- in ár, þarf engan að furða þó að ekki blasi þama við mönnurn íturvaxin tré, sem bera af f jöld- anum, ef skemmdarverkin eru gerð á fegurstu trjánum. Það skyldi maður ætla, að vöxtur furunnar í ár yrði ekki minni en í fyrra sumar, ef dæma skal eftir gróðursæld þeirri, sem nú ríkir, en svo er ekki. I sumar hefir furan aðeins vaxið um 5—10 sm. og það einmitt þau tré, sem í fyrra bættu við sig 30—40 sm, Eftir þessu að dæma virðist furan (að minnsta kosti við Rauðavatn) ekki að öllu leyti hlíta sömu vaxtarskilyrð- um og grasgróðurinn. En þrátt fyrir þetta virðist eitthvað af furunni, ætla að bera þroskað fræ, eins og systur þeirra á Þingvöllum eru þegar búnar að gera. Minnsta kosti sýndu nokkurar þeirra all myndarlega fræköngla. Mætti þá rætast óslc skáldsins að Rauðavatnsskóg- ræktin færi út grundvöll sinn og skapi nýlendu af sama furu- stofni einbversstaðar fyrir utan skógargirðinguna. Þess má geta að girðingunni kringum skógræktarsvæðið hef- ir verið haldið sæmilega við, að minnsta kosti þeim megin, sem snýr að þjóðveginum, en þar var ólokað hlið. Að norðanverðu var hún bágborin, enda mættu mér 10 sauðkindur inni á svæðinu, er virtust hafa þar bækistöðvar sínar. Nokkurar birkiplöntur, sem uxu þarna hér og hvar, báru þess merki, að þær höfðu, af fátækt sinni, borgað þessum aðkomugestum ■ all riflegan skatt. egar eg skildi við Rauða- vatnsskógræktina fyrir 30 árum voru þar margir tugir þúsunda af ungbirki, sem ný- lega liafði verið sáð til. Nú eru trjábeðin orðin grasi gróin fyrir löngu. Eina birkiplöntu fann eg, sem þarna var vaxin upp af fræi og vel gat verið frá þeim tíina. Hér og livar hefir nýlega vérið plantað dálitíu af birki og blágreni milli furutrjánna. Litu plöntur þessar furðulega vel út, einkum grenið. Vafalaust má takast að rækta þarna grenið í skjóli furunnar. En það þarf betri hirðingu m furan liefir notið síðustu 30 árin. Nú sest varla votta fyrir gamla trjásáðreitnum við Rauðavatn, en samt hjara þar ennþá nokkurar smávaxnar reyniviðarplöntur. Eiga þær nú illa og lélega æfi. Væri gustuk, ef einhver vildi taka að sér að flytja þær i góðan jarðveg, i skjól við hús eða faæ og veita þeim hjúkrun, sem þær hingað til hafa farið á mis við. Vissulega er ekki of seint að hlynna að furuplöntunum við Rauðavatn, þó að þær séu komn- ar af léttasta skeiði. Umfram allt verður að halda girðingunni við og tryggja skógræktina svo vel sem auðið er fyrir skemmd- um af mönnum og skepnum. Þá er og nauðsynlegt að gera gangskör að' því, að hreinsa úr furunni allan kalvið, sníða af skemmdar greinar, grisja þétt- ustu runnana og taka i burtu trjástofna, sem eru margklofn- ir og rifnir undan snjóþyngsl- um. Yfir höfuð þarf að gera allt sem unnt er til að hjálpa fur- unni í lífsbaráttunni og reyna að bæta upp óhentug náttúru- skilyrði skógræktarlandsins, sem upphaflega var valið lianda henni. Eilt hið merkilegasta við skógræktina lijá Raliðavahii má telja það, að til hennar var stofnað af félagsbundnum sam- tökum þjóðkunnra öldunga og helztu menningarfrömuða í Reykjavík, í því skyni að gera hér barr-trjáræktartilraunir og skapa- vetrargrænan framtíðar- búning handa landinu, sem áður var hér óþekktur með öllu. Margur skyldi ætla að æskan, en ekld ellin, hefði átt hér hlut

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.