Vísir - 06.10.1941, Qupperneq 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri 1
Blaðamenn Slmi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S Ifnur
Afgreiðsla
31. ár.
Reykjavík, mánudaginn 6. október 1941.
226. tbl.
Gagnsókn Budjenny mar-
skálks heíir borið
mikinn árangur.
Hemveiíir hans hafa sótt fram aflt
ad 30 liiii. í Niiú 11 r-1 Iírsib n n og* íckiO
þorp í Éngatali.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Nokkuru nánari fregnir hafa nú borizt af gagn-
sókn þeirri, sem Budjenny marskálkur var
sagður hafa byrjað laust fyrir seinustu helgi
í Suður-Ukrainu. Fregnir í gærkveldi hermdu, að á ein-
um stað vígstöðvanna hefði hersveitir hans sótt fram
um 30 kílómetra, en annarstaðar hefði þær tekið
um 30 þorp á ný. Frásögninni um sókn þessa, er kom
frá Moskva, lyktaði með þessum orðum: Gagnsókn-
inni er haldið áfram og óvinirnir eru enn á undanhaldi.
Það er kunnugt, að hersveitir Budjennys komu að norð-
austanverðu frá, til þess að gera árás á hlið á hersveitir
Þjóðverja í Suður-Ukrainu, og var sagt í London, er
fréttist um sókn þessa, að ef hún gengi að óskum væri
her Þjóðverja á Perekop-vígstöðvunum teflt í hættu.
Bardagar standa yfir á Perekopeiði, en er síðast fréttist
voru Þjóðverjar ekki komnir á Krimskagann sjálfan.
Hinsvegar sögðust þeir hafa unnið sigur í nánd við
Perekop og tekið um 12.000 fanga.
í fregn frá Moskva var einnig sagt um sókn Budjenny, að her
hans hefði bætt aðstöðu sína stórkostlega. Sumar hersveitir
hans hafa sótt fram 20 enskar mílur (32 kílómetra) á 36 klst.
Það hefir verið frekar hljótt um her Budjenny’s að undanförnu
og mikill vafi leikið á um það, hve mikill hluti hers hans hafi
komizt undan, eftir bardagana við Kiev. Kunnugt var þó um
öfluga mótspyrnu við Poltava. En í fregnum frá London á laug-
ardag var sagt, að víglínan væri nú mikið til bein orðin frá
Eystrasalti til Svartahafs, og ekki er kunnugt um stóra inni-
króaða rússneska heri fyrir vestan þessa línu, og ef Þjóðverj-
um tækist ekki að reka nýja fleyga inn í víglínu Rússa, gæti að-
staðan talist miklum mun betri fyrir Rússa en áður. í kjölfar
tilkynningar um þetta efni komu svo fregnir um gagnsókn Bud-
jennys. En það er enn of snemt að segja neitt um hvort tilgang-
inum með þessari gagnsókn verður náð, þótt talsvert hafi, eftir
fyrstu fregnum að dæma, áunnist.
Sjóorusta á Suður-
Atlantshaíi
Hergagnaiðnaðurinn
í tJralhérðuðunum.
Frá Moskva berast fregnir
um, að hergagnaframleiðslan í
Ural hafi aukizt stórkostlega, og
sé unnð að því af kappi, að auka
hana sem mest. í stálfram-
leiðslustöðvunum þar hefir
framleiðslan aukizt um 200%.
Þýzkar sprengjuflugvélar hafa
ekki enn fengið bækistöðvar svo
nálægt Uralfjöllum, að hægt sé
að gera loftárásir á framleiðslu-
stöðvar Rússa þar.
I fregnum frá Moskvu segir
ennfremur, að öllum, tilraunum
Þjóðverja til þess að sækja fram
á Leningradvígstöðvunum hafi
verið hrundið. líafa Þjóðverjar
gert hverja tilraunina á fætur
anhari til þess að sækja þar
fram, og segjast Russar hafa
valdið hinum mesta usla í liði
þeirra með stórskotahrið, her-
flutningalestum var tvístrað og
skriðdrekar eyðilagðir, og svo
komu rússneskai sprengjuflug-
vélar og létu sprengjum, rigna
yfir hersveitir Þjóðverja. Að svo
búnu gerði rússneka fótgöngu-
liðið gagnáhlaup. Þetta, var sagt
í Moskvu, er stuttorð lýsing ú
því, sem gerðist á aðeins einum
kafla vígstöðvanna. Þjóðverjar
hafa gert hvert áhlaupíð á fætur
öðru í fjóra daga samfleytt. —
Rússar hafa tekíð marga fanga.
Það er haft effir þeím, að ekki
sé annað sjáanlegt, en að Þjóð-
verjar verði að hefja undanhald
frá Leníngrad.
í Leníngrad er nú gizkað á,
að manntjón Þjóðverja, fallnir.
særðir og teknir til fanga, sé yfir
3 milljónir manna.
Rússar hafa tilkynnt, að þeir
liafi skotið niður 41 flugvél fyrir
Þjóðverjum s.l. föstudag, en
sjálfir misstu þeir 18.
Á Odessavígstöðvunum segj-
ast Rússar hafa hrundið enn
einu áhlaupi Rúmena. Er þeir
höfðu gert það, hófu Rússar
gagnáhlaup og sóttu fram all-
marga kílómetra.
í gærkveldi var enn lialdið
áfram samkomulagsumleitun-
um milli Þjóðverja og Breta um
skipti á föngum, en 2 spítalaskip
híða enn i Newliaven til þess að
flytja þýzka fanga til Norður-
Frakklands. Ekki er vonlaust
um, að samkomulag náist fyrir
kvöldið.
Nefnd amerískra flotasér-
fræðinga er komin til Hong-
kong. Þrjár flotaflugvélar am-
erískar fluttu nefndarmenn
þangað. Þeir eru á leiðinni til
Chungking.
Fregnir berast um skemmd-
arverk frá Rúmeníu, og í Bess-
arabíu eru yfirvöldin farin að
handtaka fólk og hafa í haldi
sem gisla. Allir, sem staðnir eru
að skemmdarverkum verða
skotnir tafarlaust, en finnist
hinir seku ekki, verða gislarn-
ir skotnir.
Hjúskapur.
Þann 3. þ. m. voru gefin saman
i hjónaband af síra Bjarna Jónssyni
ungfrú Fanney Benediktsdóttir og
Halldór Halldórsson múrari. Heim-
fli þeirra verður á Framnesveg 1.
Herskipi sökkt.
Einkaskeyti til Vísis.
London í mohgun.
1 nótt hárust fregnir um það
frá Rio de Janeiro, að sjóorusta
Iiafi verið liáð í Suður-Atlants-
hafi. Áttust við tvö herskip og
er talið, að öðru hafi verið
sökkt. Ekki er kunnugt hverrar
þjóðar herskip þessi voru. —
Frekari fregna er vænst þá og
þegar.
StórliOsÉlegar
flreræfiugrar í
liicfllaudi.
Eins og iðulega hefir verið
getið í fregnum hafa Indverjar
nú á aðra milljón manna undir
vopnum og liergagnaiðnaðurinn
í Indlandi er nú orðinn í mjög
stórum stíl. Er haldið áfram að
efla vígbúnaðinn af mikju
kappi, enda hefir hættan óneit-
anlega færst nær Indlandi en
áður, vegna sólcnar Þjóðverja
i Súður-Rússlandi. Að minnsta
kosti verður að gera ráð fyrir,
að svo geti farið, að leikurinn
berist að „hliðum Indlands“,
eins og Churchill orðaði það í
einni ræðu sinni. — Nú hefir
verið tilkynnt, að mestu lieræf-
ingar í sögu Indlands séu að
byrja. Taka þátt í þeim véla-
hersveitir og flughersveitir og
m. a. verður gerð steypiárás á
Lahore, en þar í grennd fara
heræfingarnar fram.
r.
Fregnir eru nú nýkomnar um
vaxandi erfiðleika í sambúð
öxulríkjanna. — Volney Hurd
sagði í útvarpi frá Boston, að
Þjóðverjar væru alvarlega að
íhuga, að koma á strangara eft-
irliti með ítölum.
Þessi fregn staðfesti þær fyrri
fregnir um óánægju ítala, sem
undanfarnar vikur hafa borizt
frá Róm, en þær sögðu, að hlut-
skipti ítala mundi verða ná-
kvæmlega það sama og her-
teknu landanna.
I fregnum frá Bern segir, að
Þjóðverjar hafi ógnað ítölum að
taka Langbarðaland herskildi,
nema öll andúð á Þjóðverjum
verði barin niður með harðri
hendi. Annað, sem mjög hefir
valdið þessari óánægju er rót-
tækari skömmtun en hingað til
og var tilkynnt opinberlega í ít-
alíu, að klæða- og brauð-
skömmtun væri komið á. Um
sama leyti var kola- og eldsneyt-
isskammturinn minnkaður um
30% síðan í fyrra og hin opin-
bera fréttastofa í Ítalíu hefir til-
kypnt, að innan skamms verði
hyrjað á að skammta egg, kart-
öflur, mjólk og ýmiskonar
grænmeti.
Italir heima fyrir hafa enn
sem komið er sloppið mikið við
afleiðingar stríðsins, og því mun
allur almenningur taka þessum
nýju ráðstöfunum mjög illa.
I fæði Isjjá fjðEidniöiinnnum
Þessir Þjóðverjar hafa verið teknir til fanga af Rússum og þar sem Þjóðverjar þurfa að
horða eins og aðrir menn, er þeim gefin súpa og rúgbrauð að éta. Þeir virðast kunna vel við
matinn. Myndin var send þráðlaust frá Moskva vestur um haf.
Fiskverzlunin.
Nýi skatturinn er til að
greiða dreifingarkostnað
í Bretlandi.
flflonnm liefir þegrar verið mótmælt
Seint á laugardagskvöld barst ríkisstjórninni svar við fyrir-
spurnum um nýja fisktollinn, frá sendifulltrúa íslands í Lon-
don, Pétri Benediktssyni.
Segir þar svo, að þegar hámarksverðið hafi verið sett á fisk
í Englandi, hafi fjármálaráðuneytið brezka tekið að sér að
greiða dreifingarkostnaðinn, sem fiskkaupmenn höfðu greitt
áður. Nú vill fjármálaráðuneytið ekki greiða þennan kostnað
lengur og hefir því ákveðið, að seljendur skuli greiða 6 d. (sex
pence) fyrir hvert „stone“ (14 ensk pund) fiskjar, til að stand-
ast dreifingarkostnaðinn.
Þegar brezk skip fá hámarksverð fyrir afla sinn, er þeim gert
að skyldu, að greiða 8 d. pr. stone í premíu og til þess, að erlend-
ir útgerðarmenn standi ekki betur að vígi er þeim gert að greiða
hið sama, þegar skip þeirra selja fyrir hámarksverð. Þetta fé
fer til að greiða dreifingarkostnaðinn, en rennur ekki í ríkis-
sjóðinn.
Þetta eru útgjöld, sem eru íslenzkum útgerðarmönnum al-
gerlega óviðkomandi og hefir sendifulltrúinn fengið fyrirmæli
frá viðskiptanefndinni, að mótmæla þessu misrétti, og hefir
hann þegar komið þeim á framfæri við rétta hlutaðeigendur.
Söfnun S. í. B.
Tekjuhæsta söfnun, sem
fram hefir faríð hér í bæ
Tekjupnar liafa margfaldazt hép og
í Hafnarfirði.
*T*ekjur BerkJavarnadagsins hér í Reykjavík í gær
urðu samtals um 20.500 krónur. Er það prýðileg-
ur árangur þegar þess er gætt, að mannaferð var mjög
lítil úti fram eftir degi vegna þess hve veður var leiðin-
legt. He£ir aldrei saf nazt meira fé á einum degi í Reykja-
i vík en að þessu sinni.
Af þessum 20.500 lcrónum
sem hér komu inn, eru um 1000
krónur, sem eru beinar gjafir.
HöfSinglegasta gjöfin var frá
vínnuflokki i Kirkjubólstúni, og
nam hún 400 — fjögur hundruð
-— krónum. Starfsfólk Bursta-
og kústagerðarínnar gaf 110 kr.,
en auk þess gáfu allmargir ein-
staklingar 25—50 kr.
Feðgar tveir kom,u á skrif-
stofu Sambands íslenzkra
berklasjúklinga ii gær og færðu
því eins dags tekjur sínar og
jafnframt 10 krónur. Létu þeir
jafnframt svo um mælt, og þeir
mundu framvegis gefa 10 krón-
ur mánaðarlega til vinnuhælis
blindra, þangað til það væri
komið upp.
1 fyrra námn telijur Reykja-
víkursvæðisins um kr. 8800, en
þess er að gæta í því sambandi,
að þá voru taldar með tekjur
þær, sem inn komu í Hafnar-
firði og Vífilsstöðum einnig.
í Hafnarfirði gekk líka ágæl-
lega og námu tekjurnár þar 12
—1300 kr., voru þrefalt meiri en
í fyrra.
Á Akureyri seldust hlöð og
merki upp á skammri stundu.
Frá fleiri sölustöðum hafa
fregnir ekki horizt ennþá, en ó-
efað má telja það-vist, að sala
liafi ekki gengið ver þar en ann-
arsstaðar. Yar blaða- og merkja-
sala í öllum kauþstöðum og
þorpum landsins.
Hingað til hefir það verið svo,
að árangur hefir alltaf verið
hetri út um land og má vel ætla
að svo liafi einnig farið að þessu
sinni.
S.Í.B.S. átti i sjóði um 35.000
krónur fyrir helgina. Það er
ekki ósennilegt, að sú tala hafi
tvöfaldast nú, en þó svohafi far-
ið getur meira fé alltaf komið
að notum þessa þ^rfa málefnis.
Blöðin munu því framvegis sem
hingað til taka á móti gjöfum
til S.I.B.S.
Hvirftlbylur veld-
ur stórtjóni.
Einkaskeyti til Vísis.
London í morgun.
Hvirfilvindur hefir valdið
stórtjóni á Nassu á Bahamaeyj-
um og stefnir liann í áttina til
Floridaskagans í Ðandaríkjun-
um.
I frekari fregnum ségir svo:
Þegar hvirfílvindúrinn fór
yfír Nassau fór harin rneð 102
mílna hraða á klukkustund.
Sópaðí hann með sér öllu, sem
fyrir varð og reíf upp tré með
rótum, allar síma- óg rafleiðsl-
ur biluðu, og á andartaki var
öll borgin í kolamyrkri.
Fólk flýr unnvörpum úr
strandhæjum FÍóridaskagans
og eru notuð öll flutníngatæki,
sem unnt er að ná i, bílar vöru-
flutningavílar og flugvélar.
Valsveltan.
Dregi'S var í morgun hjá lög- ,
manni í Happdrætti hlutaveltu Vals,
sem haldin var í gærkvöldi, og komu
upp þessi númer: 1. MatarforÖi,
11553 ; 2. Málverk, 12888; 3. Dívan,
1048; 4. Tauvinda, 14637; 5. Raf-
suðuáhald, 207; 6. Málverk, 2045.
— Munanna sé vitjað til Sveins
Zoega, c/o. Sparisjóði Reykjavíkur
og nágrennis.