Vísir - 15.11.1941, Side 2
I
V ! S I R
i__________________
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 6 60 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Byggingar.
SVO ER AÐ SJÁ, sem all-
mikill hugur sé í mönnum
varðandi húsbyggingar til íbúð-
ar og ennfremur til almennings
þarfa, i. d. kirkjubyggingar,
In essingarhæli og önnur ágæt
fyrirtæki. Er sízt við þessu að
amast, en þó eru hættur þessu
samfara sem verður að varast,
og er þar yfirstandandi vand-
ræðatímum um að kenna.
Á styrjaldarárunum 1914—
1918 var allmikið um húsabygg-
ingar hér í bænum, en sá bógur
fylgdi skammrifi, að flestar
hafa byggingar þessar verið
gerðar mjög af vanefnum, og
allur frágangur þeirra þannig,
að ekki veitir af að rífa heil
hverfi bæjarins og byggja upp
að nýju. Orsakaðist þetta af
tvennu, annarsvegar skorti á
byggingarefni, en liinsvegar á
verðlagi, sem mjög var hátt og
almenningi um megn að stand-
ast, þótt menn neyddust hins-
vegar til vegna húspæðisvand-
ræðanna, að byggja til þess að
fá þak yfir höfuð sér.
Enn á ný eiga Reykvíkingar
við gífurleg húsnæðisvandræði
að stríða, en reynt er af fremsta
megni að ráða bót á þessu af
liálfu bæjarfélagsins, sumpart
með sambyggingum, sem bær-
inn liyggst að reisa, og hefir efnt
til samkeppni um meðal bygg-
ingameistara. Hefir bæjar-
sljórnin unnið hér þarft verk,
með því að í sambyggingum
þessum verða vafalaust ágætar
ibúðir og heilsusamlegar, en
auk þess má vænta, að þær verði
bænum til prýði í framtíðinni,
og þurfi þar engu við að hrófla
fyrst um sinn.
Höfuðstáðurinn er orðinn það
stór, og lóðir hinsvegar svo
verðmætar, að nauðsyn ber til
að þær verði notaðar svo sem
bezt má verða, jafnvel þótt slíkt
kunni að hafa í för með sér ein-
hvern aukinn kostnað fyrir
bæjarfélagið, einkum með til-
liti til hins, að það kostar einn-
ig mikið fé að leggja götur í nýj-
um bæjarhverfum með öllu,
sem því fylgir. Þetta ber þó ekki
svo að skilja, að allar kröfurn-
ar eigi að gera til bæjarfélags-
ins, en ekki til einstaklinganna.
Yeltur fyrst og fremst á því, að
þeir vandi til bygginga sinna og
og hafi þær til frambúðar en
ekki aðeins miðaðar við brýn-
ustu þarfir augnabliksins.
Á undanförnum árum hafa
hér verið reistar ýmsar opinber-
ar byggingar án þess að efnt
hafi verið til samkeppni um
uppdrætti af þeim. Reykjavík-
urbær liefir horfið frá þessu
ráði, svo sem vera ber og von-
andi verður éngin opinber bygg-
ing reist í framtíðjnni, nema
þvi aðeins að samkeppni bygg-
ingameistara hafi verið látin
fram fara áður og beztu hug-
myndirnar teknar til greina. Á
þetta ekki sízt við um kirkju-
byggingar þær, sem nú verða
reistar hér.
Reykvíkingar vita það mæta
vel, að margt þai'f að laga hér í
höfuðstaðnum, og leggja fram
fé til allra umbóta, ef tryggt
er að þvi fé verði varið í sam- j
ræmi við óskir þeirra. Sætta þeir
sig ekki við það eitt, að bygg-
ingum verði hróflað upp til al-
mennings þarfa, en krefjast þess
einnig, að þær verði i fullu sam-
ræmi við fegurðarþrá þeirra og
fegurð umhverfisins.
í kirkjubyggingum á öll
æðsta og fegursta list þjóðar-
innar að vera, og má því ekkert
til spara, að þær verði svo úr
garði gerðar, að þær sýni raun-
verulega getu þjóðarinnar, lista-
þroska, hugsjónir og fegurðar-
þrá. Húsbyggingameistarar,
myndhöggvarar og málarar
eiga að taka liöndum saman í
þessu efni, og verða að fá að
njóta sín, án íhlutunar hins op-
inbera, ef viðunandi árangur á
að nást. Samkeppnin á að lifa í
þessum efnum og það að sigra,
sem bezt er, hagkvæmast og feg-
urst.
B œjop
fréffír
Messur á morgun.
1 fríkirkjunni kl. 5, síra Árni Sig-
urðsson.
Hallgrímssókn: Kl. 11, barna-f
guðsþjónusta í bíósal Austurbæjar-
skólans, sr. Sigurbjörn Einarsson.
Kl. 2, bámessa i fríkirkjunjri, síra
Jakob Jónsson.
Ncssókn: Kk 2í Mýrarhúsa-
skóla.
Laugarncssókn: Kl. 2, sira Garð-
ar Svavarsson. Eftir guðsþjónust-
una fundur í kvenfélaginu. Félags-
konur fjölmenni. Barnaguðsþjón-
usta kl. 10.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: Engin
messa, en samkoma kl. 5.
Kaþólska kirkjan: Hámessa kl.
10 f. h., bændahald og prédikun kl.
6 síðd.
Kaþólska kirkjan í Hafnarf.:
Hámessa kl. 9 f. h., bænáhald og
.prédikun kl. 5 síðd.
I dómkirkjunni: Kl. 11, síra
Bjarni Jónsson, altarisganga; kl.
1liarnaguðsþjónusta (síra Fr.
H.) ; kl. 5 síra Friðrik Hallgríms-
son.
Hjúskapur.
I dag verða gefin saman í hjóna-
band af síra Árna Sigurðssyni,
ungfrú Ásta Bjarnadóttir, Baróns-
stíg 3, og Hannes Guðjónsson, Dis-
arstöðum, Flóa.
25 ára starfsafmæli
á í dag Sigurjón Stefánsson,
gjaldkeri hjá Helga Magnússyni &
Co.
Næturlæknar.
I nótt: Halldór Stefánsson, Rán-
argötu 12, sími 2234. Næturvörður
í Reykjavíkur apóteki og Lyfjabúð-
inni Iðunni.
Aðra nótt: Þórarinn Sveinsson,
Ásvailag. 5, sími 2714. Næturvörð-
ur í Ingólfs apóteki og Laugavegs
apóteki.
HeLgidagslæknir.
Gisli Pálsson, Laugaveg 15, simi
2474.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík heldur fund í Kaup-
þingssalnum á morgun, sunnud. 16.
]). m. Fundurinn hefst kl. 2. e. h.
Dr. Björn Björnsson flytur erindi
á fundinum um yerðlag og skatta-
mál. Að erindinu loknu verður rætt
um þessi mál og önnur. — Lyftan
verður í gangi.
Hí • 1’1 '' ‘ • ‘SaLJÍ
Listsýningu
opna þau hjónin frú Barbara
Moray Williams og Magnús Á.
Árnason í Þjóðminjasafninu á
morgun. Verður hún opin daglega
kl. 1—7 og stendur til 30. þ. m.
Hallbjörg Bjarnadóttir
hélt næturhljómleika í gær i
Gamla Bió, fyrir fullu húsi áheyr-
enda. Gerði frúin viðfangsefnun-
um góð skil og vakti söngur henn-
ar mikla hrifni áheyrenda. Var hún
kölluð fram margsinnis og færðir
blómvendir. Söngkonan hefir náð
rneiri þroska en er hún fyrst kom
hér fram, og er engum blöðum um
það að fletta, að hún hefir aflað
sér hér traustra vinsælda, sem hún
er vel að komin. — Undirleik ann-
aðist frú Kamilla Kristjánsdóttir
og hljómsveit Aage Lorange. x.
Hafnfirðingar
telja, að nú sé þar allur annar
bæjarbragur en áður var, og þakka
það því, ag kaffihúsum og skemmti-
stöðum er þar nú lokað eftir kl. 8
á kvöldin. Æákir almenningur þess
eindregið, að ekki verði horfið frá
þessu ráði, þannig, að ekki skapist
á ný það ófremdarástand, spm þar
ríkti áður. Voru uppþot þar tíð og
róstur, þótt ekki drægi til alvarlegra
atburða fyr en raun varð á.
Húsbriiiii
á Ilofsoisi
Fréttaritari Vísis á Sauðár-
króki skýrir blaðinu svo frá, að
í morgun snemma hafi komið
upp eldur í húsi á Hofsósi og það
brunnið til kaldra.kola.
Hús þetta nefnist Nöf, en í því
var ihúð uppi, er tvær mæðgur
bjuggu í, geymsla á miðhæð, en
beitingakrár í kjallara. Þarna
var geymt mikið af veiðarfær-
um, síldarmjöli o. fl., en litlu
varð bjargað af þvi, sem. í hús-
inu var.
Halda menn að eldurinn hafi
komið upp í kjallara, náð til
olíuborinna klæða og því breiðst
út með meiri hraða en svo, að
björg yrði við komið. Hafa þeir,
sem umráð liússins höfðu, orð-
ið fyrir tilfinnanlegu tjóni. —
Hreppurinn átti húsið, en seldi
það á leigu.
Frystihús reist á
Sauðárkróki.
Allstórt hraðfrystihús tók ný-
lega til starfa á Sauðárkróki, en
Fiskifélag Sauðárkróks starf-
rækir það.
Er unnt að taka þarna á móti
16 tonnum. af óhausuðum fiski
á degi hverjum, og skapar þetta
þó nokkra aukna atvinnu í pláss-
inu. Sláturfélagið átti hús þau,
sem nú hafa verið tekin til þess-
arar notkunar.
Gæftir hafa verið góðar að
undanförnu og afli sæmilegur.
Hefir hann selzt jafnóðum í
skip, að mestu, en annars verið
frystur. Tíðarfar er með af-
brigðum gott norðan lands og
enginn snjór á láglendi.
Háskólafyrirlestur.
Sigurður Einarsson, dósent,
flytur fyrirlestur í hátíðasal Há-
skólans á morgun kl. 2 um efn-
ið: „Kristileg messa, þróun
hennar í höfuðdeildum kirkj-
unnar.“
Sigurður liefir haldið sjö fyr-
irlestra um þetta efni í guðfræði-
deild Háskólans, en það hafði
vakið atliygli lians fyrir löngu,
að tíðaflutningur íslenzku kirkj-
unnar er að verulegu leyti frá-
brugðinn tíðaflutningi annara
evangeliskra kirkna.
Rannsakaði hann þetta, af
hverju það stafaði, og mun Sig-
urður skýra frá þessum rann-
sóknum í erindi sínu.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl. 19.25
Þingfréttir. 20.00 Fréttir. 20.30
Leikrit: „Bóndinn á Hrauni“, eftir
Jóhann Sigurjónsson (Haraldur
Björnsson, Soffía Gu'Slaugsdóttir,
Edda Kvaran, Þorst. Ö. Stephen-
sen, Brynjólfur Jóhannesson, Frið-
finnur Guðjónsson, Gunnþórunn
Halldórsdóttir, Emilía Borg, Anna
Guðmundsdóttir. — Leikstj.: Har-
aldur Björnsson). 22.00 Fréttir.
22.10 Danslög til 24.00.
Útvarpið á morgun.
Kl. 10.00 Morguntónleikar (plöt-
ur). 12.00—13.00 Hádegisútvarp.
14.00 Barnaguðsþjónusta í dóm-
kirkjunni (síra Friðrik Hallgríms-
son). 15.30—16.35 Miðdegistón-t
leikar (plötur). 18.30 Barnatími:
Um Jónas Hallgrímsson (Ragnar
Jóhannesson). 19.25 Hljómplötur.
20.00 Fréttir. 20.20 Vestur- Islend-
ingakvöld: a) Kórsöngur : Land-
nemar (plata). b) „Þótt þú lang-
förull legðir —“ (Sigfús Halldórs
frá Höfnum). c) Ávarp (Árni G.
Eylands). d) Ræða: Björn Björns-
son blaðamaður frá Grand Forks.
e) Einsöngur (Hermann Guð-
mundsson). f) Sögukafli eftir
Guðrúnu Finnsdóttur (Valtýr Ste-
fánsson ritstj.). g) Kórsöngur
(plata). h) Ur ræðu eftir síra
Rögnvald Pétursson (Jakob Jóns-
son prestur). i) Einsöngur (Her-
mann Guðmundsson). j) „Góða
nótt“, kvæði Guttorins Guttorms-
sonar (....). 22.00 Fréttir. 22.10
Danslög til 23.00.
Verðui: hjónaband
yðar hamingjusamt ?
Svarið fáið þér með því að
kaupa bókina „Stjörnu-
spána“, eða hverju spá stjörn-
urnar um framtíð yðar?“ —
Fæst hjá bóksölum.
Frauiiðuslkur
Tvær liprar stúlkur óskast
við frammistöðu. Einnig 2
ungir menn, sem vildu læra
til. þjónsstarfa Upplýsingar
HÓTEL HEKLA H.F.
Ung stúlka
óskast til heimilsverka liálf-
an daginn og við handiðnað
liinn helminginn. Uppl. á
Laugarnesvegi 58, niðri, í
dag kl. 5—8 og á morgun kl.
T0—2.
1 iMiir
fær sá, sem getur útvegað 2
reglusömum sjómönnum
lierbergi, Iielzt með húsgögn-
um. Tilboð leggist inn á afgr.
blaðsins, merkt: „Sjómenn“.
t
Bílstjórinn
sem fann varahjólið af R.
187, er vinsamlegast beðinn
að tala við H.f. Hamar, sem
fyrst .-
NÝJAR
Sítróniir
Lranknr
vmn
Laugavegi 1.
Útbú, Fjölnisvegi 2.
Rrlstján Gnðlaugsson
Hæstaréttarmálaflutningsmaður.
Skrifstofutími 10-12 og 1-6.
Hverfisgata 12. — Sími 3400.
Eggert Claessen
hfestaréttarmálaflutningsmaðnr.
Skrifstofa: Oddfellowhúsinn.
Vonarstræti 10, austnrdyr.
Sími: 1171.
ViCtalstími: 10—1J ird.
Til sölu
LESTARBORÐ
ca. 40x9 tommur.
Magnús Andrésson.
Hótel ísland.
Sirni: 5707.
Gúmmískógerðin
Laugavegi 68. Sími 5113.
Innliskór
Silki- ogr kóm-
nllarsokkar
ísgarns- og
Bómullarsokkar
2.05 4.55
2.60 5.25
2.85 5.35
5.60
Laugavegi 46.
Ingolfsbúð li.f.
Sími: 2662. Hafnarstræti 21. Sími: 2662.
Opnum í dag nýtízku vefnaðarvöruverzlun. Fjölbreytt úrval
af álnavörum, blúndum, dömu- og herraundirfötum, sokkum,
skyrtum og fleiru
Allskonar kjólaskraut, leggingar, skábönd, rósir, nælur o. fl.
Smávörur: teygjur, nálar fingurbjargir, saumagarn, auróra-
garn, stoppigarn, hnappar og tölur.
Snyrtivörur í fjölbreyttu úrvali.
VIRÐIN GARF YLLST
IN«ÓLFSBtÐ li. f.
B.s.
Hekla
Sími 1515
Góðir bílar
Ábyggileg aígreiðsla
Dyravörður
Góður ákveðinn dyravörður
óskast strax.
HÓTEL HEKLA H.F.
verður settur í kvöld kl. 8J4
i Stýrimaimaskólanum.
Nokkrir nemendur geta
ennþá fengið inntöku. Teldð
á móti umsóknum kl. 8—
81/2 í Stýrimannaskólanum.
, SKÓLASTJÓRI.
Tómir
píanókassar
|til sölu. — Tilboð óskast.
Hljóðfærahúsið.
Vanillestangir
Sagó
Klapparstíg 30.
Liétsýningu
opnum við á morgun (16.—
30. nóv.) í Þjóðminjasafn-
inu. — Opin daglega 1—7.
Barbara Moray Williams
A. R. E.
Magnús Árnason.
Þorskaneta-
slöngur
Blásteinn
ísl. Flögg Signalflögg Flaggdúkur •
Tjöruverk Stálbik
Gúmmíslöngur Strigaslöngur Vélareimar Reimalásar Prímusnálar
Tin, 50—100% Lóðfeiti Lóðvatn
é Verzlnn
0. [Ilisi LL
Innanhússæfingar verða fyrst
um sinn sem hér segir:
1 Austurbæjarskólanum:
Meistarafl. I. fl. og II. fl.
Fimmtudaga kl 7.30—8.30.
Eldri félagar (old boys).
Mánudaga ld. 7.30—8.30.
í Iþróttahúsinu:
Handknattleiksæfingar.
Laugardaga kl O—10.