Vísir - 19.11.1941, Blaðsíða 3
V 1 S I R
Mörk eða króna.
ÞAÐ hafa nýlega verið sett
lög um nýja seðla, k r ó n u-
s e ð 1 a, og við undirbúning lag-
anna kom það upp, að ver-
ið er að búa til krónumynt
í Bretlandi, enda mun svo hafa
verið gert áður.
Finnst mönnum þetta viðeig-
andi? A myntinni er mótuð
kóróna Danakonungs yfir ís-
lenzka fánanum; öðrum megin
við fánann stendur „CX“, þ. e.
Christianus X (Kristján tiundi),
liinum megin „R“, þ. e. Rex
(konungur). Á seðlunum er jx')
nafn konungsins horfið, en í
staðinn er komið hið ósmekk-
lega skjaldarmerki Islands með
dönsku kórónunni ofan á. Og
heitið króna (krúna, kóróna)
með stórum stöfum hinum
megin.
Hafa menn ekki gert sér
grein fyrir því enn jiá, að svo er
forsjóninni fyrir að þakka, að
sambandi íslands og Danmerk-
ur er fyllilega og endanlega
slitið? Er jjörf að minna Islend-
inga oft á dag á ólán þjóðarinn-
ar og smán?
Þessi orð eru ekki mælt af
kala til þess manns, er var áður
konungur íslands, enda er hann
alls góðs maklegur af íslend-
ingum. En eg held, að oss sé
liollt að horfa til þeirra tíma, er
hjartast var yfir sögu íslands.
Vér eigum að muna bezt j>á tíma
og varðveita sambandið við þá.
Þar eigum vér þá fjársjóðu, er
sízt má glata. Tungan er j>að,
sem hefir veitt oss tilverurétt,
og samband j>að, er varðveitzt
hefir við bókmenntir fornaldar-
innar.
Vilhjálmur Þ. Gislason skóla-
stjóri hefir oftar en einu sinni
mælt fram með Jjeírri hugmynd,
að taka aftur upp forn heiti, þar
sem þau þykir bezt fara. Hefir
hann nefnt til dæmi. Þessari
hugmynd er eg mjög fylgjandi.
Mætti rita um jjetta langt mál,
en j>að myndi drepa máli mínu
á dreif, meir en eg vildi. Eg vil
aðeins geta þess, að j>að er ein-
mitt þetta, sem hefir verið gert
í Iögum og lögfræði. Lagamálið
var orðið mjög ljótt en hefir nú
breytzt mjög til batnaðar. Ber
j>að mest að þakka dr. jur. Ein-
ari Arnórssyni hæstaréttardóm-
ara, sem hefir ekki hikað við
að taka upp heiti úr fornu laga-
máli og haldið á af mikilli
smekkvísi, bæði í undirbúningi
laga og lögfræðiritum.
Mér virðist jafnmikil ástæða
til að losna við orðið „króna“
sem orðin „spezía“, „ríkisort“,
„ríkisbankadalur coviant“, „rik-
isdalur“ o. s. frv. Síðasta orðið
er notað í lögum, sem enn eru
talin gild, t. d. konungsbréf 5.
marz 1751. En í Jónsbók (1281)
er ákvæði i 32. kap. landsleigu-
bálks, sem er talið gilda ennj»á.
Það er svo: „En ef maðr ríðr
eða gengr yfir akr, töðuvöll eða
eng, ok vill eigi fara vegu rétta,
sá maðr er sekr mörk við þann,
er lóð á“.
Hér er hið fagra, gamla
myntarheiti, kvenkynsorðið
mörk (í fleirtölu merkur). Það
væri þjóðinni til sóma að taka
upp aftur þetta forna myntar-
heiti, öldungis eins og vér höf-
um forna heitið eyrir. Ástæða er
til að vara við orðskrípinu mark
hvorugkyns), sem virðist haft
um mynt Finna og Þjóðverja,
líklega fyi’ir dönsk eða þýzk
álirif. Mark merkir allt annað,
t. d. eyrnamark.
Magnús Thorlacius.
Háskólafyrirlestur.
Dr. Símon Jóh. Ágústsson held-
ur fyrirlestur á morgun kl. 6.15 í
1. kennslustofu Háskólans. Efni:
Um lestur bóka. Öllum heimill að-
gangur.
Operettan Nitonche
verður sýnd í kvöld kl. 8.
Veggalmanðk fyrir 1942
lllir faelgridagrar
Nóvember
19
Nóvember
Miðvikudagur
prentaðir ranðir
Vér framleiðum dagatöl eins
og undanfarin ár. — Spyrjist fyrir
um verð og annað í sambandi
við þau. — Hringið í síma 1640.
Félag^prent§miðjaii h.f.
milli Bretlands og íslands halda áfram,
eins og að undanförnu. Höfura 3—4
skip í förum. Tiikynningar um vöru-
sendingar sendist
Cnlliford ti Clark Ltd.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
Dreng:
vantar okkur til léttra sendiferða fyrri hluta dags.
Þarf að hafa hjól.
Dagbladið) ¥ísir.
Afgangar af
SÓLALEÐRI
VATNSLEÐRI
SPALTI
FATASKINNI
HANZKASKINNI
til sölu.-
SkóverksmiðjanÞór h.f.
Laugaveg 17.
Æfisaga
Jesú Krists
í myndum í eðlilegum litum.
BEZT AÐ AUGLÝSA í VÍSL
Húseignin
Norðurgata 31 á Akureyri er
til sölu. Semja ber við eig-
anda eignarinnar: Ól. Bene-
diktsson eða Pétur Jakobs-
son löggiltan fasteignasala,
Kárastíg 12. Sími 4492.
Aðitlfiindur
miðvikudaginn 19. þ. m. kl.
8V2 e. h. í húsi félagsins. —
Dagskrá:
Samkv. lögum félagsins.
Fjölmennið.
STJÓRNIN.
Nitro-cellulose lökk
fýrir húsgagnasmiði fáum við aftur að forfallalausu
um næstu mánaðamót.
jtpHniwr
Ungnr inaðnr
getur fengið atvinnu við afgreiðslustörf nú þegar. -
A. v., á. -
Stúlku
vantar á veitingastofu.
simi 4167.
MYNDIR
meJ texta út œjji&öffu ^ebii Ktibtb
1
Lesið að nýju æfisögu Jesú Krists og Iátið unglingana gera það.
\T ,
Oiimískihtnil
allar tegundir, útvegum við frá
THE NORTHERN RUBBER Co. Ltd.
Canada.
Greiðsla í sterlingspundum gegn farmskírteími í Reykjavík.
Sýnishorn fyrirliggjandi.
H. Ólafsson & Bernhöft.
Látið þessi þrjú hefti í alla jólapakka í ár.
ÚtvarpiS í kvöld.
Kl. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30
íslenzkukennsla, 1. fl. 19.00 Þýzku-
kennsla, 2. fl. 19.25 Þingfréttir. —
20.00 Fréttir. 20.30 Kvöldvaka: a)
Björn K. Þórólfsson dr.: Holds-
veikraspítalarnir gömlu á íslandi.
Erindi. b) 21.05 Taki'S undir! —
(Þjó'ðkórinn, Páll ísólfsson stjórn-
ar). 21.50 Fréttir.
- v
SIMI4878
8 á
Krlstján Guðlaugsson
Hæstaréttarmálaflutningsmaður.
Skrifstofutími 10-12 og 1-6.
Hverfisgata 12. — Sími 3400.
Innilegt J>akklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
útför föður okkar og tengdaföður,
Siguröar Jónssonar
frá Þórarinsstöðum við Seyðisf jörð.
Aðstandendur.