Vísir - 28.11.1941, Page 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
31. ár.
Reykjavík, föstudaginn 28. nóvember 1941.
Ritstjóri 1 1
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjafdkeri Afgreiðsla J 5 línur
272 tbl.
Bretar treysta
sína við Tobruk
Stóporustan á Rezeghsvæð-
inu ekki byrjuö enn
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Mírkustu tíðindin frá Libyu í gær voru talin þau,
að hersveitirnar frá Tobruk og hersveitir Ný-
sjálendinga hafa sameinazt. Tobrukhersveit-
irnar, sém útrásina gerðu, haf a sameinazt f remstu sveit-
um meginhers bandamanna á Rezeghsvæðinu, og þar
með væntanlega skotið loku fyrir, að Þjóðverjar geti
komizt þarna undan vestur á bóginn. En sameiningin
er ekki alger. Bretar leggja mikið kapp á, að alger sam-
eining hersveita þeirra takist sem fyrst, svo að unnt
verði að klekkja á öllum herflokkum Þjóðverja, sem
enn eru hingað og þangað á þessu svæði. Þjóðverjar
reyna hinsvegar að koma í veg fyrir þau áform Breta,
að gera Tobruk að aðal-birgða- og bækistöð hersins, en
að því væri Bretum hinn mesti styrkur, því að þeir gæti
þá flutt allar birgðir til meginhersins sjóleiðis, en nú
verður að flytja birgðir landleiðina — yfir 300 kíló
metra frá endastöð járnbrautarinnar í Mersa Matruk.
Þýzkar hersveitir uporæta smáskæruflokk. .
24.445
Indverskar hersveitir í Sidi
Omar og þar í grend hafa treyst
vel aðstöðu sína og hafa þær
tekið marga fanga.
Litlar likur eru nú til, að
rskriðdrekarnir, sem tóku þátt i
iandamæraárásinni, komist aft-
ur til meginhersins þýzka. Það
•er nu kunnugt orðið, að þýzku
skriðdrekarnir ruddu sér braut
gegnum gaddavísgirðingarnar á
landamærunum, en þegar
brezku skriðdrekarnir komu,
iögðu þýzku skriðdrekarnir á
flótta og dreifðust beggja meg-
ín landamæranna. í Kairo er ját-
að, að það kynni að hafa liaft
alvarlegar afleiðingar, ef þessi
árás hefði verið gerð áður en
Bretar hófu sólcnina.
Brezki flugherinn hefir alger
yfirráð í lofti.
Sikorski, forsætisráðherra
Póllands, — yfirhershöfðingi
pólska hersins, sagði í viðtali i
Telieran í gær, að liann væri
sannfærður um, að Bretar
myndu sigra i viðureigninni í
sandauðninni.
Sikorski var fyrir skeminstu
í Tobruk, til þess að heimsækja
pólsku liersveitirnar þar.
Sikorski er nú á leið til Rúss-
lands.
aðstöðu
Óeirðir í Kaup-
mannahöfn.
Ðanir mótmæla undir-
skrift andkommúnist-
iska sáttmálans.
Fregn frá New York herm-
ir, að félagsskapurinn „Vinir
frelsis Danmerkur“ hafi feng-
'ð áreiðanlegar upplýsingar
um það, að það hafi vakið
megna óánægju í Danmörku,
er það varð kunnugt, að
danska stjórnin hefði sent
fulltrúa til Berlín til þess að
undirskrifa hinn framlengda
ndkommúnistiska sáttmála.
Frá áreiðanlegustu einka-
heimildum fékk félagið þær
upplýsingar, að ólgan hefði
yerið svo mikil í Kaupmanna-
höfn, að þar hefði verið um
stöðug uppþot að ræða allan
daginn. '*
Gondar
fallin.
Setuliðið gafst
upp í gfser.
Rómaborgarútvarpið til-
kynnti í morgun, að setu-
liðið í Gondar í Abessiníu
hefði gefizt upp.
Er þar með fallið sein-
asta virki ítala í Abessiníu.
Undanfarna daga hafa verið
að berast fregnir, sem Ieiddu í
Ijós, að hringurinn um Gondar
var stöðugt að þrengjast, og í
gær síðdegis bárust fregnir um,
að hersveitir ítala við Gondar
hefði neitað að framkvæma
fyrirskipanir.
Mótspyrna ítala í Abessiníu
er jnú brotin á bak aftur.
Italir hafa ekki getið sér mik-
ið orð í þessari styrjöld, en
varnar setuliðsins í Gondar
mun lengi minnzt. Hefir það
varizt vasklega við hin erfiðustu
skilyrði.
Frakkar stofoa íil Ibb
ieröar lil iiess að ónvta
iiaínbannsáforni Breia.
Franska stjórnin hefir til-
kynnt, að því er liermt er í
skeyli frá fréttaritara United
Press í Vichy, að hún hafi á-
kveðið að stofna til flugferða í
stórum stíl milli Dakar og
Frönsku Guineu á suðvestur-
strönd Afríku. Áformað er að
flugvélarnar verði i reglubundn-
um flugferðum fiá Dakar til
Frönsku Guineu, þaðan til Fíla-
beinsstrandarinnar og Daliom-
eynýlendunnar og svo um Nig-
erdalinn, Niamey og Gao aftur
til Dakar.
Áformað.er að nota Silcorski-
flugvélar (Sikorski S 43). Flug-
vélar þessar eru tvíhreyfla og
geta lent hæði á sjó og landi.
Eins og skemmst er að minn-
ast, hafa Bretar hert eftirlitið
með vöru- og hráefnaflutningi
Frakka frá nýlendunum, þar
sem sannað er, að mikið af hrá-
efnunum fer til Þjóðverja og
ítala. Voru nokkur frönsk skip
á leið frá Madagaskar nýlega
tekin og flutt til hafnar, og sann-
aðist, að í lestum þeirra var leð-
ur o. m. fl., sem Þjóðverja van-
hagar mjög um, en franska
stjórnin liafði lialdið þvi fram
i mótmælaorðsendingu, sem
hún sendi brezku stjórninni, að
þau flytti aðeins matvæli handa
Frökkum.
Áformið með flugferðunum.
er að flytja sem mest af hráefn-
um frá nýlendunum í Afríku
loflleiðis og vega þannig eftir
föngum upp á inóti hafnbanns-
ráðstöfunum Breta.
á kjörskrá í Rvík.
Þ. 25. janúar næstkomandi
fara fram bæjarstjórnarkosn-
ingar hér í Reykjavík.
Aj kjörskrá, senj liggur
frammi á skrifstofu bæjarins til
27. desember næstkomandi, eru
samtals 24.445 manns. Kæru-
frestur yfir kjörskránni er til
5. janúar næstkomandi.
Það fólk, sem ekki hefir verið
á kjörskrá áður hér í bænum,
ætti að gera sér ferð til að at-
huga hvort það er á kjör-
skránni. Skrifstofur bæjarins
eru opnar kl. 10—12 og 1—4
alla daga, nema laugardaga, þá
ld. 10—12.
Tveir Frakkar teknir
aí lífi.
Smáskæruflokkar halda
stöðugt uppi árásum á Þjóð-
verja flutningaleiðir þeirra,
svo að þeir verða við og við
að gera út flokka til að reyna
að uppræta þá. Hér sjást
þýzkir hermenn og skrið-
dreki, sem eiga — ásamt fleir-
um — að hreinsa til i skógi
einum, þar sem rússneskur
smáskæruflokkur hefir hafzt
við.
Áttræður.
Sturla Jónsson
kaupmaður.
í dag er hann 80 ára gamall.
Margir eldri Reykvíkingar
kannast við Sturla Jónsson; þeir
muna eftir „Sturlabúð“, þeir
viðurkenna hinn slynga kaup-
sýslumann. Þeir bera mikla
virðingu fyrir hinum reglusama
dugnaðarmanni. Leitun er á
öðrum eins „Gentlemanni“,
sem Sturlu.
Beztu hamingjuóskir á 80
ára afmælinu.
Þ.
SEGJA BRETAR FINN-
LANDI STRÍÐ Á HENDUR?
Þeir, sem bezt skilyrði hafa
til þess að fylgjast með á
hærri stöðum í London, telja
líklegt, að afleiðing þess, að
Finnar gerðust aðilar að and-
kommúnistiska sáttmálanum
verði sú, að Bretar Verði við
kröfu Rússa og segi Fin'num
stríð á hendur, svo og Ung-
verjum og Rúmenum.
Ákvörðunum brezku stjórn-
arinnar í þessum málum hef-
ir verið frestað, meðan beðið
er eftir árangri af tilraunum
Bandarík jastjórnar til þess að
fá Finna til þess að hætta að
vera samherjar Þjóðverja í
styrjöld gegn' Rússum, en svo
virðist sem vonlaust sé orðið,
að Bandaríkjastjórn ætli að
verða nokkuð ágengt með að
fá finnsku stjórnina til að
breyta um stefnu.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.30 Islenzkukennsla, 1. fl.
19.00 Þýzkukennsla, 2. fl. 19.25
Hljómplötur: Harmóníkulög. 20.00
Fréttir. 20.30 Útvarpssagan: „Glas
læknir", eftir Hjalmar Söderberg,
X (Þórarinn Guðnason keknirj.
21.00 Strokkvartett útvarpsins:
Lævirkjakvartettinn eftir Haydn.
21.15 Erindi Búnaðarfélagsins:
Breyttir búskaparhættir (Stein-
grímur Steinþórsson, búnaðarmála-
stjóri). 21.35 Hljómplötur: Har-
móníkulög.
Roo§evelt ræcldi við
Knrnsn og Momnra í
^ærkveldi.
Horfurnar í Austur-Asíu ískyggilegri en
nokkuru sinni. — Stendur innrás í Thai-
land fyrir dyrum?
EINKASKEYTI frá United Press. New York í morgun.
Kurusu, sendiráðgjafi Japana, sem að undanförnu ■
hefir dvalizt í Washinífton, fór, ásamt Nomura, sendi-jJ
herra, á fund Roosevelts forseta í gærkveldi. Var við-r.
ræðufundurinn haldinn í Hvita húsinu og var Cordell'
Hull, utanríkisráðherra, viðstaddur. :
?k
Þegar þeir Kurusu og Nomura komu af fundinum heið þeirra
fjöldi blaðamanna, sem leituðu fregna lijá þeim um það, sem .
horið hafði á góma, en blaðmennirnir höfðu lílið upp úr jKÖiTp ■
annað en það, að viðræðurnar hefði farið mjög vinsamlega fram.
— Cordell Hull dvaldist stundarfjórðung hjá forsetanum, eftir
að Kurusu og Nomura voru farnir.
í fregnum, sem bárust frá
Austur-Asíu í gær kemur greini-
lega fram, að horfurnar liafa
aldrei verið ískyggilegri.
Stöðugir fundir eru haldnir
miíli hershöfðingja A-B-C-D-
veldanna þar eystra og margs-
konar viðbúnaður fer fram. —
í Japan er allt búið undir alls-
herjar hervæðingu, og Japanir
auka stöðugt herafla sinn í
Franska Indóldna, bæði í norð-
ur- og suðurhluta landsins. Inn-
rás i Thailand er talin standa
fyrir dyrum.
Siglingar frá Indókína til
Frakklands og franslcra ný-
lendna hafa stöðvast.
Aðvörunum * hefir verið út-
varpað til Thailendinga, þeim
sagt, að vera við öllu húnir.
I Washington ætla menn, að
Bandaríkin liafi tilbúna áætlun,
sem framkvæmd verður ef Jap-
anir gera innrás í Thailand, m.
a. um að senda skipalestir með
hergögn og nauðsynjar til
Burma, lianda Kínverjum og
Thailendingum. Þessi áætlun
fjallar um ráðstafanir yfirleitt
vegna hins hreytta viðhorfs, sem
skapast mundi vegna innrásar í
Tliailand. — Bandaríkjn teru
staðráðin í að iiafa samvinnu á-
fram við ríkin sem berjast gegn
ofheldinu.
Horfurnar enn al-
varlegrl, segir Pravda. i
Blaðið Pravda segir í morg-
un, að horfurnar sé enn mjög
alvarlegar — og alvarlegri en
nokkuru sinni áður, þar sem
mikilvæg virki, samgönguleiðir
o. s. frv. eru í yfirvofandi
hættu.
Þjóðvei-jar sækja fram við
Klin, norðvestur af Moskva, en
þar hafa þeir 11 herfylki og eru
6 þeirra vélaherfylki, en á milli
Tula og Stalinogorsk, þar sem
þjóðverjar einnig þokast á-
fram, hafa þeir 3 skriðdreka-
herfylki og 3 fótgönguliðsher-
fylki.
. .Seinustu fregnir herma, að j
sókn Þjóðverja hafi verið stöðv- |
uð fyrir vestan Stalinogorsk j
(sem er ný iðnaðarborg).
Rússneskir kafbátar hafa
sökkt olíuflutningaskipi fyrir
Þjóðverjum og 5 flutningaskip-
um, sem fluttu hergögn og her-
lið. Allir kafbátarnir komust
undan, er verndarskip flutn-
ingaskipanna reyndi að granda
þeim.
Tímarit iðnaðarmanna.
Af því er nýútkomið 5. hefti.
Þar er skýrt ítarlega frá iðnþing-
inu síðasta o. m., m. fl.
Næturlæknir.
Gísli Pálsson, Laugavegi 15, simi
2714. Næturvörður í Reykjavíkur
apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni.
'Aftökur ei'U byrjaðar á nýjan
leik í Frakldandi.
Fregn frá Vichy hermir, að
þýzk yfirvöld liafi látið taka af
lífi tvo Frakka í Nancy, af þvi
að skotvopn fundust í fórum
þeirra.
Þrír grímuklæddir Frakkar
gerðu tilraun þtliesasð
gerðu tilraun til þess að sprengja
í loft upp með dynamiti púður-
verksmiðju nálægt Arras. Til-
raunin mislieppnaðist.
Utvarpsstöðin sendir
með fullum krafti.
í dag byrjaði hádegisútvarp
15 mínútum síðar, eða kl. 12,15,
samkvæmt tilmælum frá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur.
Er þetta gert vegna þess, live
rafmagnsnotkun er mikil um
aðalsuðutímann, s‘em er fyrir og
um tólf, svo að takmarka verð-
ur eftir mætti aðra rafmagns-
notkun á sama tíma. Enda þótt
útvarpið byrji 15 min. seinna en
áður, mun fréttalestur hefjast
á sama tima, eða kl. 12,25.
Þá mun útvarpsstöðin byrja
næstu daga að senda með 100
kílówöttum, eða fullum krafti.
Hefir verið sent með miklu
minni orku frá því að landið
var hertekið, en nú verður þessi
hreyting gerð, þvi að hún varð
ólijákvæmileg þegar bylgju-
lengdin var minnkuð í 1111 m.
og loftnetið stytt. Gerði útvarp-
ið það eingöngu með þvi skil-
yrði, að það mætti auka orkuna,
því að stöðin heyrðist mjög illa
1 fjarlægum sveitum.