Vísir - 08.12.1941, Side 1
AUKABLAÐ
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn
Auglýsingar
Gjaldkeri
Afgreiðsla
Sfmi:
1660
5 Ifnur
31. ár.
Reykjavík, mánudaginn 8. desemberr 1941.
279. tbl.
Styrjöld á Kyrraha.fi
Japan ræð§t á lloiioliiln. tlaiiilia. Wake,
truam, lloiigkoiig og: Tliailand.
I Tokio er bnizt við stríðsyfirlýs-
iu$»n Þjóðverija si hendur U.S.A.
innan 24 klst.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
íðdegis í gær var birt tilkynning frá Hvíta hús-
inu í Washington, sem vakti alheimsathygli
þegar í stað. Hvarvetna varð mönnum þegar
ljóst, að styrjöldin var nú orðin alheimsstyrjöld. Jap-
an hafði gert fyrirvaralausa árás á Hawaii og skömmu
síðar barst önnur tilkynning þess efnis, að fregn hefði
líka borist um árás á ManiIIa á Filipseyjum. Það er sagt,
að í fyrstu hafi menn vestra verið lostnir reiðarslagi,
ekki vegna þess að Japanir hefði tekið stærsta skrefið
á braut öfbeldisins til þessa og stærsta skrefið, sem þeir
gátu tekið, og heldur ekki vegna þess, að menn óttuð-
ust lokaúrslit þeirra átaka, sem hafin eru með hinni
fyrirvaralausu árás Japana, heldur vegna þess óheyri-
lega undirferlis og ódrengskapar, sem hér hefir átt sér
stað, þar sem Ijóst er, að þessi árás hefir verið fyrir-
fram ákveðin og undirbúin meðan Namura og Kurusu
sendiráðgjafi ræddu friðsamlega lausn deilumála Jap-
ana og Bandaríkjanna við stjórnina í Washington. Það
er jafnvel fullyrt, að fregnin um árásina hafi borizt
meðan hinir japönsku ráðherrar voru í utanríkisráðu-
neytinu að afhenda svar stjórnarinnar við greinargerð
Cordells Hull á dögunum, og meðan Roosevelt forseti
beið eftir svari við einkaboðskap, sem hann hafði sent
Japanskeisara, til þess að gera úrslitatilraun til þess að
miðla málum. í Washington kemur fram sú skoðun,
að þessi fyrirvaralausa árás hafi verið undirbúin í sam-
ráði eða jafnvel samkvæmt beinni fyrirskipan Hitlers,
og að ekki sé við öðru að búast, en að afleiðingin verði
þá og þegar, eftir að Bretar og Bandaríkin hafa sagt
Japan formlega stríð á hendur, styrjöld milli Bandaríkj-
anna og Þýzkalands. í gærkveldi var sagt í amerísku
útvarpi frá Washington, að afleiðingin yrði sennilega,
að Bandaríkin segði Þýzkalandi stríð á hendur, og í
morgun segir í brezkum fregnum, að búist sé við því,
að Þýzkaland segi Bandaríkjunum stríð á hendur innan
sólarhrings eða í síðasta lagi 48 klukkustunda.
Það er ávalt svo, þegar mikil tíðindi gerast slík sem þessi,
þegar ný styrjöld hefst, ný heljarátök, að ýmsar fregnir, sem
berast í byrjun, eru næsta óáreiðanlegar. Og um ýmsar fregnir,
sem borist hafa í kærkveldi, nótt og morgun er það að segja, að
tekið er fram, að þær eru óstaðfestar. Fara hér á eftir í stuttu
máli ýmsar fregnir, sem borizt hafa síðan í gærkveldi:
Því var formlega lýst yfir í Tokio, að styrjaldarástand væri
ríkjandi milli Japan annarsvegar og Bretlands og Bandaríkj-
anna. Mun þessi yfirlýsing hafa verið birt sem tilraun til þess
að réttlæta hinar fyrirvaralausu árásir, sem vekja hina megn-
ustu fyrirlitningu hvarvetna, eins og þær eru til komnar.
Japanir sendu flotadeild, sem
þeir höfðu við strendur Indó-
kína suður fyrir Cambodia-
höfða, syðsta höfða landsins, og
var hún á ferð norðvestur og
inn í Siamsflóa, eftir fregnum
að dæma, sem bárust í gær. Ef
fregnir þær reynast réttar, sem
bcrizt hafa, hefir þessi flota-
deild hafizt handa á Malakka-
skaga, um leið og árásin var
gerð á Pearl Harbour, og fregnir
bárust þegar seint í gærkveldi
um, að loftárás hefði verið gerð
á Singapore, og orðið mikið tjón
af. Tveimur beitiskipum hafði
‘verið sökkt. Fregn þessi var birt
af Columbia útvarpsfélaginu og
var tekið fram, að hún væri ó-
staðfest. Þá bárust fregnir um,
að Japönum hafi tekizt að setja
lið á land norðarlega á Malakka-
skaga, og væri nú háð hörð or-
usta við lið þetta, en ekki kunn-
ugt um úrslit. Hvort það voru
flugvélar herskipa eða flugvélar
Japana frá Indókína, sem árás-
ina gerðu, er ekki kunnugt. —
Þetta sýnir, ef rétt reynist, að
Japanir gerðu áætlun sína þann-
ig, að
gera samtímis árásir á tvær
helztu flotastöðvar Breta
og Bandaríkjamanna við
Kyrrahaf, til þess að valda
þeim þegar í stað því tjóni,
að þeir gæti ekki hindrað
áform Japana. Enn verður
ekki sagt með neinni
vissu, hversu Japönum
hefir orðið ágengt með
þetta, en vitanlega er ekki
við öðru að búast, en and-
stæðingar þeirra verði fyr-
Japanir
á Thailand.
ir meira tjóni í byrjun en
Japanir, Vegna þess, að á-
rásirnar voru gerðar þeim
að óvörum, þótt þeir að
vísu vissu, að Japanir
höfðu illt í huga
Það er þegar kunnugt, að hið
mesta tjón hefir orðið í loftárás-
unum á flotastöðvar U.S.A. Á
Oahueyju biðu 104 menn bana,
en yfir 300 særðust og miklir
eldar komu upp. Á flugvelli við
Honululu biðu 350 hermenn
bana, en fjölda margir særð-
ust, en um manntjón borgara
eru ekki skýrslur fyrir hendi.
Þegar var búizt til varnar og
bárust fregnir í gærkveldi um,
að margar af flugvélum Jap-
ana liefðu verið skotnar niður.
Þá barst og frétt um, að sjó-
orusta væri liáð undan Hono-
lulu.
1 einni fregninni var sagt frá
því, að 6 japanskar flugvélar
hefðu verið skotnar niður, 4
kafbátum sökkt — og flugvéla-
stöðvarskipi.
Þá var sagt frá því í japönsk-
um og amerískum útvarps-
fregnum, að sjóorusta væri
liáð í vesturhluta Kyrrahafs, og
ætlust þar við japönsk herskip
annars vegar og brezk og am-
erísk lierskip liins vegar. í gær-
kveldi var sagt í fregnum frá
Ameríku, að flugher og sjóher
Bandaríkjanna liefði yfirhönd-
ina.
Einnig bárust fregnir um, að
japanskur kafbátur liefði sökkt
amerísku herflutningaskipi.
Steplien Early, einkafulltrúi
Roosevelts, skýrði frá þessu í
gærkvöldi og bætti þvi við, að
lierlið liefði elcki verið á skipi
þessu, eins og komið hefði fram
í fregnum, lieldur mun það
bafa verið með timburfarm.
Skip þetta var 1300 sjómilur
eða vel það vestur af San Fran-
cisco, er því var sökkt. Þá varð '
annað skijj fyrir tundurskeyti
japansks kafbáts um 700 míl-
ur vestur af San Francisco. —
Early kvað þetta tvímælalaust
benda til þess, að japönskum
kafbátum hefði verið dreift á
þessar siglingaleiðir.
Loftárásir liafa verið gerðar
á eyjuna Guam og Japanir liafa
hertekið Wake-eyju, sem Banda-
ríkjamenn eiga og liafa flugstöð
á. Eyja þessi er lítil.
Hollenzka Austur-Asía og
Costa Rica bafa sagt Japan stríð
á hendur, segir í einni fregn, en
vafasamt er þó, að þetta sé rétt,
heldur mun líklegra, að stríðs-
yfirlýsingar þeirra komi sam-
timis með styrjaldaryfirlýsingu
Breta og Bandaríkjamanna.
{ La*hío^
/Mandalaa
sruíR mva.
iKunminó
I" -c\ H l
\toa'o%Mö
■'ha'noO
N A
cahton'
Nanning
íl/ rtuiM .** -jj
W tó"9 /I abin3'-, |/ính ' (mÚQN
\ \ R£N C H
7 >TH,AILANO. \vanndk;^ourane '
8ÁNGK0JÍ
w’akse-.J
h"\i
Tonle * U § •
í 8a“am§n9^°yW l|CHl NA
"W *«*»*«* ,
AlorStanc
v Soath China Sea
ÍM^LAY
AT H|Í|ipig!*Æ/
\) \ 5INGAPORS
’JM ■■ loa
(SfíRflWflK
(«r)
30RNEO
WeM)
Stríðsyfirjýs-
ing í dag.
Hervæðing í U. S.
I fregnum frá Bandaríkjunum í gærkveldi var ságt,
að Roosevelt forseti væri að undirbúa boðskap til þjóð-
þingsins, sem þegar var kvatt saman til aukafundar.
Ekki var talinn minnsti vafi á, að i boðskap þessunl
færi Roosevelt fram á, að þjóðþingið veitti honum
heimild til þess að segja Japan strið á hendur (til stríðs-
yfirlýsingar þarf iieimild þjóðþingsins). Og enginn
vafi er, að hún verður samþykkt með yfirgnæfandi
meiri Jiluta, ef ekki einróma. Jafnvel einangrunarpost-
ularnir, hinir svæsnustu, svo sem Wheeler, segja, að
nú verði Bandaríkin að segja Japan stríð á hendur
þegar og berja þá sundur og saman.
Roosevelt ræddi við yfirmenp hers og flota og alla helztu ráð-
nauta sína í gærkveldi. Hann fyrirskipaði allsherjar hervæð-
ingu og öllum sjóliðum, flugmönnum og öðrum var skipað til
starfa sinna og allar lilustunarstöðvar á Kyrrahafsströnd voru
mannaðar þegar í stað. Verkfallsmenn heimtuðu að fá að vinna
og um öll Bandarikin voru menn gripnir hrifningu og fögnuði,
segir í sumum fregnum, yfir að fá tækifæri til þess að berja á
Japönum fyrir hina óheyrilegu framkomu þeirra. Af öllum
fregnum er Ijóst, að með því að beita þessum aðferðum, liafa
Japanir sameinað Bandarikjaþjóðina, og Roosevelt liefir nú
einliug þjóð að baki sér.
Útvarpið í Bandaríkjunum birti í alla nótt aðvaranir til verka-
manna og annara, að vera vel á verði gegn hverskonar skemmd-
arverkatilraunum. í San Francisco og San Diego voru Japanir
handteknir og á Panamaskurðarsvæðinu . var fyrirskipað að
handtaka alla Japani.
Greinargerð
Churchills.
Brezka þingið kemur
saman í dag:
Winant, sendiherra Banda-
ríkjanna í London, ræddi við
Churchill i gærkveldi. í London
var það-opinbert leyndarmál í
gærkveldi, að Bretland mundi
segja Japan stríð á hendur þeg-
ar í dag.
Brezka þingið Icemur
saman í dag, báðar deild-
ir, til þess að heyra grein-
argerð Churcliills og taka
ákvörðun í þessu máli.
í sumum fregnum i gærkveldi
var búizt við, að Bandaríkin og
Bretland myndu sameiginlega
segja Japan stríð á hendur,
þegar eftir að fundi þjóðþings-
ins i Wasliington er lokið.
Berlínarfréttir*
I Berlínarfregnum segir svo
í morgun:
Samkvæmt tilkynningu frá
Tokyo hefir leiit í sjóorustu
milli japanskra herskipa ann-
ars vegar og brezkra og banda-
ríkskra herskipa liins vegar á
Vestur Kyrrahafi. Hefir jap-
anska flotadeildin sökkt amer-
íska orustuskiplnu West Virg-
inia og skotið orustuski/jiði
Oklahoma í bál.
I Kína hafa .Tapanir tekið öll
völd i alþjóðahverfinu í Shang-
hai í sinar liendur og er lierlið
þar á verði alls staðar. — Jap-
anskt herlið liefir liafið sökir
gegn Hong-kong.
Japanskt herlið hefir liafið
innrás i Tliailand.
Japanskar flugvélar hafa
gert loftáásir á Wake og Gu-
am, auk Hawaii og Manilla.
Brezkum fallbyssubáti liefir
J verið sökkt í Kína og einn am-
\ erískur tekinn i vörslu jap-
j anska hersins.
Nicaragua hefir sagt Japön-
um strið á hendur.
Þegar er Roosevelt hafði feng-
j ið fregnir af hinum fyrirvara-
Jausu árásum, gaf liann her og
J flota fyrirskipun um að fram-
j kvæma áður gefnar leyni-fyrir-
skipanir.
Forsetinn talaði við land-
stjórann á Filipseyjum í gær-
kveldi og eftir fregnum mjög
seint í gærkveldi að dæma, er
nokkur vafi á, að loftárás hafi
verið gerð á Manila, en ný loft-
árás var þá hafin á Honululu.
Brottflutningur fólks frá
Honululu er byrjaður, bönkum
lokað o. s. frv. Margir flýðu út
í hæðirnar við borgina og horfðu
á loftbardagana þaðan.