Vísir - 21.03.1942, Qupperneq 3
VtSIR
SETUSTOFA RÍKISSTJ0RAFRÚAR
meistari stóð fyrir smíði og við-
gerð innanhúss í aðalliúsi.
óskar Smith pipulagninga-
meisari sá um pípulagningar í
háðum húsunum.
Eirikur Hjartarson rafvirkja-
meistari framkvæmdi raflagn-
ir í báðum húsunum.
Carl Jörgensen trésmiður
lagði eikarhútagólfið (parket)
i aðalhúsinu.
Ágúst Markússon veggfóðr-
arameistari lagði dúka og teppi
á gólf og veggfóðraði í báðum
liúsunum.
Ósvaldur Knudsen málara-
meisari sá um málningu Jteggja
liúsanna.
Magnús G. Guðnason stein-
smiður gerði liellur úr grásteini
á forstofugólf og aðaltröppur.
Guðmundur Breiðdal hús-
gagnasmíðameistari sá um lag-
færingu liúsgagna og uppsetn-
ingu gluggatjalda.
Áður en ríkið tók við Bessa-
stöðum hafði Einar Jóhannsson
múrarameistari, í samráði við
lir. Sigurð Jónasson forstjóra og
Gunnlaug Halldórsson húsa-
meistara stjórnað breytingum á
húsinu á Bessastöðum.
BORÐSTOFAN
»Ad (j(iiadratniii«
í Noregi reis eitt sinn deila
mikil varðandi endurbyggingu
kirkjubyggingar einnar. Hélt
verkfræðingur einn þvi fram,
að byggingin byggðist á fer-
hv'Miíngakerfi, og samkvæmt
þvi ætti að endurbyggja hapa.
Þót skoðun hans væri véfengd
viðurkenna menn hana nú sem
rétlu.
tákt er þessu farið með íbúð-
arh’ás ríkisstjóra að Bessastöð-
ura. Anddyrið framan við liús-
ið eru tveir rétthyrningar. Hús-
gruanurinn sjálfur eru á sama
liátt tveir rétthyrningar, og er
8 sinnum stærri en grunnur
anddyrisins.
Þetta sýnir m. a. hvert sam-
ræmi er rnilli anddyrisins og
byggingarinnar, en það var allt
annað en auðvellt að byggja
svo slíkt anddyri að ekki lýtti
það bygginguna til stórra muna.
Listamannsauga byggingameist-
arans sá þetta liinsvegar, og
með mælingum síðar gekk hann
úr skugga um samræmi grunn-
flatar anddyrisins og grunn-
flatar hússins.
Umsögrn bygrgr-
ingrameistaranis.
Fréttaritari Vísis náði sem
snöggvast tali af Gunlaugi Hall-
dórssyni byggingameistara, sem
var með í förinni og sýndi
mönnum staðinn ásamt rikis-
stjóra.
Gat Gunnlaugur þess að sér
hefði reynst óblandin ánægja
að vinna verk þetta, einkum
vegna þess, hve ríkisstjóri hefði
næman skilning, jjekkingu og
smekkvisi varðandi allt það er
húsagerðarlist snerti, og hve
hann hefði látið sér umhugað
um að allt færi sem bezt úr
hendi er breytingarnar varðaði.
Að öðru leyti skýrði Gunn-
laugur svo frá að fyrir sér vekti
að skapa samræmi í allri húsa-
skipan ó staðnum, og væri hið
nýja liús byggt i þeim stil. —
Margt væri ógert ennþá, svo
sem breytingar á útliýsum við
ríkisstjórabústaðinn, en þar yrði
væntanlega komið fyrir gesta-
herbergjum, geymslum og öðru
því er stórlega vanliagaði um.
Einnig taldi hann nauðsyn ú
endurbótum á kirkjunni, og
munu allir blaðamennimir, er
hana skoðuðu hafa verið á sama
Gunnlaugur Halldórsson
máli í því efni. Bessastaða-
kirltja er virðulegt guðshús, en
vanliirða má ekki spilla bygg-
ingunni svo, sem raun liefir á
orðið. Mun þetta vera einhver
elzta og tígulegasta kirkja sunn-
anlands, en sunnlendingum ætti
að vera það metnaðarmál að
viðlialda kirkjunni á sama hátt
og Norðlendingum er það metn-
aður að Ilólakirkja verði sem
bezt úr garði ger.
(Myndirnar frá Bessastöðum
eru teknar af Vigfúsi Sigurgeirs-
syni ljósmyndara).
LÖGTÖK
/
Eftir kröfu útvarpsstjóra í Reyk javík og samkvæmt
úrskurði, uppkveðnum í dag, verða lögtök látin fara
fram fyrir ógreiddum afnotagjöldum af útvarpi fyrir
árið 1941, að 8 dögurn liðnum frá birtingu þessarar aug-
lýsingar.
Lögmaðurinn i Reykjavik, 20. marz 1942.
BJÖRN ÞÓRÐARSON.
RE6LUSAMDR
MABUR
um fertugt óskar eftir að kynnast stúlku með hjónaband fyrir
augum. Má liafa barn með sér. Upplýsingar um nafn, aldur og
lieimilisfang, ásamt mynd, sendist afgr. Visis fyrir þriðjudags-
kveld, merkt: „40“. — Þagmælsku heitið.
\
VERZLUNIN -x
EDINBORG
I
Skínandi fallegar
Keramik-
r
nýkomnar.
niMumi
AÐRAR
FREGNIR
Roosevelt forseti sagði í gær,
að búast mætti við að ekki yrði
nægilegt vinnuafl fyrir hendi í
Bandaríkjunum á hausti kom-
anda. Hann var spurður hvort
þær 13 milljónir karla á aldrin-
um 45—60 ára, sem skrásettir
verða i april, verði teknir til
verksmiðjuvinnu, og kvaðst
Roosevelt ekki geta sagt neitt
um það. Hann kvaðst mundu
láta skrásetja nafn sitt, enda þótt
hann væri að lögum undanskil-
inn, þar sem hann er yfirstjórn-
andi landhers, flughers og flota
Bandaríkjanna.
Herskipavika byrjði í London
í gær og flutti Alexander flota-
málaráðlierra ræðu og sagði, að
mest væri undir því komið, að
öllum siglingaleiðum væri hald-
ið opnum, og væri þetta hlut-
verk enn erfiðara nú en 1914—
1918, vegna loftárásahættunnar,
sem skipum er búin. Til þess að
sinna þessu lilutverki þarf fleiri
herskip, sagði hann.
Japanir játa, að Hollendingar
verjist enn í fjöllunum á Timor.
Japanskar hersveitir hafa
tekið Siangslian fyrir sunnan
Shanghai.
Tilkynnt var í London í gær,
að undanfarna mánuði hefðu
2500 kr. sekt
Fyrir nokkuru reyndi sjómað-
ur, sem er í Englandsferðum, að
smygla 48 flöskum af whigky á
land hér.
í gær var maður þessi dæmd-
ur í 2500 króna sekt fyrir ó-
löglegan innflutnings áfengis.
Whiskyið var jafnframt gert
upptækt.
Handknattleiksmótið.
1 gærkveldi kepptu eftirfar-
andi félög í Handknattleiks-
mótinu og með úrslitum sem
hér segir:
í II. fl. vann Víkingur Ármann
með 17:15. 1 I. fl. sigraði Í.R.
K.R. með 36:22 og Vikingur
vann Hauka í meistarafl. með
23:13.
í kvöld lieldur mótið áfram
og hefst að þessu sinni kl. 9 (en
eklci ld. 10, eins og venjulega).
Þessi félög keppa: 11. fl. Valur—
I Ármann. 1 I. fl. F.H.—Fram. I
II. fl. K.R.—Haukar.
j Á morgun kl. 1% vei'ður líka
keppt: 1 meistaraflokki K. R. og
Valur, i 2. flokki F. H. og í. R.
og Ármann og Valur.
verið þjálfaðar margar fall-
hlífaliersveitir í löndum þeim,
sem Bretar ráða yfir við aust-
anvert Miðjarðarhaf.
Skóriiir segja til
um hvort þér gangii vel
illa klæddur.
KIWI, hinn fræ^i, Mski
skóáburður tryggk' yðwr sí-
glansandi skó.
Notið eingöngu KWI-
skóáburð.
Ég Jxikka öllum þeim, er sýndu mér vinarhug og
lieiður á 75 ára afmæli mínu. .
Sigurður Björns-son~
SIGI.IM.AIt
milli Bretlands og Islands halda áfram,
eins og að undanfömu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöra-
sendingar sendist
Culliford «& Clark íao.
BRADLEYS CHAMRERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
Hverfisteinar
Verzlun O. Ellingsen hi
Maðurinn minn, faðir og tengdafaðir okkar,
Árni Þórdarson,
andaðist að heimili sinu, Fjölnisvegi 20, að morgni þess
21. marz.
Anna Þórðardóttir.
Guðrlðyr og Einar Guðmundsson.
Guðný og Kristján Guðmundsson.
Maðurinn minn og faðir okkar,
Gudmundur X. Hallgrímsson
/ andaðist í gær.
Camilla Hallgrímsson og börn.
Alúðar þakkir færum við söngflokki og hljómsveit
„Gullna liliðsins“ fyrir ágætan söng og hljómleik við jarð-
arför
Bjarna sál. Björnssonar leikara
og sérstaklega þökkum við Leikfélagi Reykjavikur, leikur-
um og öðru starfsfólki „Gullna liliðsins“ fyrir höfðinglega
framkomu, samúð og vinarþel við jarðarförina.
Torfhildur Dalhoff og aðrir vandámenn.