Vísir - 24.03.1942, Blaðsíða 4
V I S I R
Gamla JBíó
(TYPHOON)
Amerisk kvikmynd, tek-
in í Suðurhöfum, í eðli-
legum litum.
Aðalhlutverkin leika:
Dorothy Lamour oí>'
Robert Preston.
Sýnd kl. 7 og 9.
Börn yngri eh 12 árá fá
ekki aðgang.
Framhaidssýn i iií>
kl. 31/2—6V2:
Óskriftið lög
Cowboymynd með
GEORGE Ö’BRIEN.
Börn innan 12 ára fá
ekki aðgang.
Ung og siðprúð
stúlka
óskar eftir lierbergi 1. apríl,
gegn hjálp við hússtörf. For-
miðdagsvist getur komið til
mála. Tilboð sendist afgr.
blaðsins fyrir fimmtudags-
kvöld n. k., merkt: „Hús-
störf“. —
Appelsínur
Sítrónur
Ví5in
Laugavegi 1. Otbú: Fjölnisv. 2.
Bezt að auglýsa í VÍSI
Xjífið í Reykjavík
.Eftirfarandi bréf barst rit-
stjóra Vísis nýlega frá ónafn-
greindum, lesanda:
„Fyrir nokkuru var tilkynnt i
útvarpinu, að framvegis yrðu
beygð ýms erlend orð eftir ís-
ilenzkum beygingarreglum, svo
sem nokkur nöfn á borgum og
eyjum (dærni: Maita, Súmatra,
Java o. s. frv.). Þetta fær all
anisjafnar undirtektir. Sumir
ikunna þessu vel, aðrir illa, eink-
anlega í byrjun, eu venjast þessu
furðu fljótt. Aðalvandinn er sá,
að fara hóflega í þessar breyt-
ingar og beygja aðeins þau orð,
sem vel eru til þess fallin, að þau
séu beygð eftir íslenzkum beyg-
ingarreglum. Væntanlega verð-
ur ekki farið út í neinar öfgar
í þessu efni og væri hvggilegt
að leitað væri álits rnargra góðra
islenzkumanna, áður fullnaðar-
ákvarðanir eru teknar mn val
slíkra orða. Má og segja, að mál-
hreinsunarmenn hafi nægileg
verkefni, þótt ekki sé lögð nein
anegináberzla á breytingar á
þessu sviði. Albugandi væri, að
skipuð væri nefnd góðra ís-
lenzkumanna, sem settist á rök-
•stóla, til þcss að semja skrá yfir
;j)au erlend staðanöfn, sem vel
æru til þess fallin, að beygja eftir
Islenzkum réglum, og þessum
reglum ætti jafnt útvarp sem
blöð að fara eftir, því að ella nær
þessi umbótastarfsemi ekld til-
gangi sinum. Biöðin hafa t. d.
ekki tekið upp þessa nýbreytni
útvarpsins, og beygja ekki t. d.
Java, Malta, Súmatra o. s. frv.
Skapast af þessu glundroði, og
■er þá ver farið en heima setið.
<Og — meðal amiarra orða —
•verði sömu stefnu fylgt, er elcki
(einasta nauðsynlegt, að blöðin
geri slíkt hið sama og útvarpið,
heldur verður lika að fylgja
sömu reglu í skólum landsins.
Þá vildi eg mega skjóta þvi inn
i, að blöðin rita ýms staðanöfn
hvert með sínum liætti (War-
zava—Varsjá o. s. frv.). Eitt
blaðanna birtir ýms nöfn sam-
lcvæmt framburði o. s. frv., önn-
nr samkvæmt þeim landabréf-
mm; sem fyrir hendi eru (ýmist
Jedabia eða Agedabia t. d.) og
mætti svo lengi telja. Þetta veld-
air einnig glundroða og sýnir,
að lígss er full þörf, að samin sé
nafnaskrá, eins og að framan
var að vikið, sem samkomulag
aiæðist úm, að jafnt yrði notuð
íif útvarpi og blöðum.“
*
JMálvöndunarmaður skrifar:
.„Leiðinlegt er að sjá það livað
eftir annað í víðlesnum blöðum,
ær algeng sagnorð eru l)eygð
akakkt dag eftir dag, svo sem t.
■d. að hrinda, t. d. lurinti, þar sem
rita skal hratt; dæmi: rússnesk
liersveit hratt áhlaupi Þjóðverja,
árásinni var hrundið, ekki hrint.
Einum kunnasta kennimanni
landsins varð hið sama á i grein,
sem birtist fyrir skemmstu í víð-
lesnu blaði.
Eitt vikublaðanna liefir tekið
sér fyrir hendur a'ð svara ýms-
um fyrirspurnum lesenda sinna.
Ein spurningin er á þessa leið:
„Hvort er réttara — málfærði-
lega séð — að segja „liún kom
með Goðafoss“ eða „hún kom
með Goðafossi“?
Svar: „Hvorttveggja er mál-
fræðilega rétt, en merkingin er
ekki hin sama. „Hún kom með
Goðafossi“ þýðir, að hún hafi
ferðast á einhverju farartæki
með því nafni, en „hún kom
með Goðafoss" þýðir, að hún
hafi komið með Goðafoss með
sér, t. d. í fgnginu eða á bakinu.“
Svo mörg eru þau orð. Það
virðist augljóst, að fyrirspyrj-
andinn hefir haft skipið Goða-
foss í huga, og hefði sá, sem fvr-
irspurninni svaraði, átt að leiða
athygli að því, að það er rapgt,
að komast þannig að orði, að
menn ferðist með skipum, lcomi
með Goðafossi eða Laxfossi; Iiið
rétta er að segja að ferðast á
skipi.“ —r.
I Frá hæstarétti:
Ökuslys.
Þann 13. þ. m. var í hæsta-
rétti kveðinn upp dómur í mál-
inu Réttvísin og valdstjórnin
gegn Hálfdáni Steingrímssyni.
| Málavextir voru þeir, að þann
20. sept. 1941 varð drengur
nokkur fvrir hifreið ákærða á
Suðurlandsbraut og hlaut bana
| af. í tilefni af þessu var höfðað
1 mál gegn Hálfdáni fyrir brot á
hegningarlögunum, bifreiðalög-
unum og umferðarlögunum. I
héraði urðu úrslit málsins þau,
að ákærði var ekki talinn bera
refsiverða sök á dauða drengs-
ins og því sýknaður af kæru fyr-
ir brot á hegningarlögunum.
Hinsvegar var liann dæmdur í
200 króna sekt fyrir að aka bif-
reiðinni með óvirku horni, ó-
virkum hraðamæli og Iítt not-
bæfum hemlum.
I liæstarétti urðu úrslit máls-
ins þau, a?f liéraðsdómurinn var
staðfestur, að öðru leyti en því,
að sekt ákærða var liækkuð upp
í kr. 500.00.
Skipaður sækjandi málsins
var hrm. Gústav A. Sveinsson,
en skipaður verjandi hrm.
Gunnar Þorsteinsson.
Hljómleikum
frú Hallbjargar Bjarnadóttur, er
áttu að vera á miðvikudag, hefir
veriS frestaS.
Næturlæknir.
Úlfar ÞórSarson, Sólvallagötu 18,
sími 4411. NæturvrörSur í Ingólfs
apóteki.
Úivarpið í kvöld.
Kl. 15.30 MiSdegisútvarp. 18.30
Dönskukennsla, 2. fl. 19.00 Ensku-
kennsla, 1. fl. 19.25 Þingfréttir. —
20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: SiS-
skiptamenn og trúarstyrjaldir, X:
Elísabet Englandsdrottning (Sverr-
ir Kristjánsson sagnfr.). 21.00 Tón-
leikar Tónlistarskólans (Björn Ól-
afsson og dr. Urbantschitsch) : Són-
atina Op. 100 i G-dúr fyrir fiSlu
og píanó eftir Dvorak. 21.25 Hljóm-
plötur: Symfónía nr. 2 eftir Boro-
dine. 21.50 Fréttir.
Reykjavíkurannáll h.f.
Revýan
Halló! A
I I
erika
verður sýnd annað kvöld, miðvikudag, kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir í dag kl. 4 í Iðnó.
Bannað fyrir börn.
Saltkjöt
til sölu í lieilum og hálfum tunnum. Uppl. í síma 3324.
GASTON LERROUX:
LE YND ARDOMUR
GULA HERBERGISINS
Er Darzac liafði lokið máli
sínu, drap hann á dyr á úthýs-
inu. Eg skal ekki fjölyrða um
óþolinmæði mína eftir að kom-
ast inn á sjálfan morðstaðinn.
Eg skalf af eftirvæntingu, og
þótt mér þætti sagan um kindar-
legginn merkileg, þá fannst
mér samtalið dragast úr liófi
fram, og eg brann í skinninu
af óþreyju eftir að dyrnar opn-
uðust.
Og loks var liurðin opnuð.
Á þröskuldinum stóð maður,
sem eg vissi að mundi vera Jac-
ques gamli.
Hann virtist rúmlega sextug-
ur að aldri. Hann hafði sítt al-
skegg, og bæði skegg og hár var
livítt. Á höfði liafði hann húfu,
tréskó á fótum, Dg liann var
klæddur brúnum, slitnum flau-
elsfötum; liann var ólundarleg-
ur á svip og önugur, en það birti
yfir honum, þegar hann kom
auga á Robert Darzac.
„Það eru vinir,“ sagði fylgd-
armaður okkar hlátt áfram.
„Er enginn inni, Jacques
minn ?“
„Eg má ekki hleypa neinum
inn, herra Robert, en það bann
nær aúðvitað ekki til yðar. Og
til Iivers er það eiginlega? Eg
hélt að þeir hefðu séð allt sem
hér er að sjá, þessir þjónar rétt-
vísinnar. Það er ekki svo lítið
sem þeir hafa teiknað og skrif-
að.“
„Afsakið, herra Jacques. Má
eg byrja á því að spyrja yður að
einu?“ sagði Rouletabille.
„Já, spyrjið bara, ungi mað-
ur, og ef eg get sagt yður .... “
„Hafði húsmóðir yðar vafið
fléttunum utan um höfuðið um
kvöldið, þér skiljið, niður á enn-
ið?“
„Nei, nei, góðurinn minn.
Húsmóðir mín bjó aldrei þann-
ig um liárið á sér, hvorki þetta
kvöld né endranær. Hún greiddi
hárið alltaf upp, eins þetta
kvöld, svo maður sá alltaf fall-
ega ennið hennar, sem var hreint
eins og á nýfæddu barni.“
Það rumdi í Rouletabille, og
hann tók þegar í stað að athuga
hurðina. Hann sannfærði sig
um, að hún læstist sjálfkrafa,
að hún gat aldrei staðið opin
og að, ekki var hægt að opna
liana nema með lykli. .Síðan
gengum við inn í anddyrið, sem
var lítið en bjart og lagt rauð-
um flísum.
„Aha!“ sagði Rouletabille.
„Þarna er glugginn, sem morð-
inginn hefir komizt út um.“
,Já, látum þá bara segja það,
herra minn, látum þá bara
halda það! En ef hann hefði
farið þarna út, ætli við hefðum
þá ekki séð hann. Eins og við
séum öll hlind, lierra Stanger-
son, eg og dyravarðarhjónin,
sem þeir liafa kastað í fangelsi!
Mikið að þeir setja mig ekki inn
lika, út af skammbyssunni!“
Rouletabille var búinn að
opna gluggann og skoða hler-
ana.
„Yoru þeir aftur, þegar glæp-
urinn var framinn?“
„Þeir voru aftur og lokaðir
með járnloku að innan,“ sagði
Jacques gamli. „Og eg fyrir
mitt leyti er alveg sanfærður
um, að morðinginn hefir farið
í gegnum þá . . .. “
„Sjást þarna blóðblettir?“
„Já, lítið þér á, þarna á stein-
inum fyrir utan .... en úr
hverjum er það blóð.“
„ Aha!“, sagði Rouletabille.
„Þarna eru spor —.. þarna úti
á veginum .... jörðin var renn-
andi blaut .... við skulum at-
huga það rétt bráðum.“
„Vitleysa,“ greip Jacques
gamli fram i. „Morðinginn hef-
ir ekki farið þarna!“
„Nú, jæja, hvar þá?“
„Hvað ætli eg viti um það!“
Það fór ekkert fram hjá Rou-
letabille. Hann lagðist á hnén og
skoðaði fljótlega útataðar flís-
arnar í anddyrinu. Jacques
gamli hélt áfram:
Aðal páskaverzlunin
byr.jar síðari hluta
þessarar viku.
Gjörið svo vel að lijálpa
okkur til að flýta fyrir
afgreiðslu páskapant-
ana með hví að kaupa
út á skömmtunarmið-
ana, sem gilda til 14,
í dag eða á morgun. —
Kven-kápnr!
Kven-Frakkar
Karlm. Kápur
Karlm. Frakkar
VJBLff
zm
Grettisgötu 57.
nýkominn.
I
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
P E R L A,
Bergstaðastræti 1. Sími 3895.
Félagslíf
AFMÆLIS-SKEMMTI-
FUND heldur Iv. R.
föstudaginn 27. marz í
Oddfellowhúsinu kl. 9 e. h. —
Mörg ágæt skemmtiatriði og
dans til kl. 3. Aðgöngumiðar
seldir í dag og á morgun frá kl.
6—9 síðd. á afgreiðslu Samein-
aða, Trvggvagötu. Aðeins fyrir
Iv.R.-inga og gesti þeirra. Sam-
kvæmisklæðnaður. Tryggið yð-
ur aðgöngumiða í tíma, því að
rúm er takmarkað. Stjórn K.R.
tefllNDIt]
LINDARPENNI, merktur,
hefir tapazt í Austurbæjarskól-
anum, eða þar nálægt. Finnandi
er vinsamlega beðinn að hringja
i sima 4722. (388
VESKI með vegabréfi, öku-
skírteini og peningum tapaðist í
gærkveldi. Finnandi er vinsam-
lega beðinn að skila þvi á B.S.
Geysir. Fundarlaun. (385
PAKKI með myndum hefir
tapazt á Austurstræti. Skilist á
Njálsgötu 104. (380
KHUSNÆEUri
HÚSNÆÐI í bakhúsi við
Laugaveginn, hentugt til at-
vinnurekstrar eða geymslu,
stærð ca. 3x3 m., fæst til leigu
nú þegar. Tilboð merkt ..Lauga-
vegur“ sendist afgr. blaðsins. —
(384
Herbergi til leigu
SIÐPRÚÐ stúlka getur fengið
herbergi gegn húshjálp. Sími
3686. (386
Nýja Bm
(Going Places).
Amerísk gamanmynd með
fjörugri tízkutónlist, leikin
af hinum fræga
Louis Armstrong
og liljómsveit hans.
Aðalhlutverk leika:
Dick Powell,
Anita Louise
Sýnd kl. 7 og 9.
Sýning kl. 5. — Lægra verð:
LEYNIFÉLAGIÐ.
(TI4E SECRET SEVEN).
Spennaadi sakamálamynd
leikin af:
Florence Rice, Bruce Bennettl
Börn fá ekki aðgang.
fUNDjRsmrjLKymm
Stúkan EININGIN. Fundur
annað kvöld kl. 8j4 í stóra saln-
um. Venjuleg fundarstörf. Kvik-
myndasýning. Dans að loknum,
fundi. (377
KVlNNAA
VIL TAKA að mér vélritun
heima. A. v. á. (382
Hússtörf
UNGLINGSSTÚLKA óskast í
létta vist. Uppl. á Njálsgötu 87,
II. liæð. (378
GÓÐ og myndarleg stúlka
óskast um 10. apríl. Ágætt sér-
herbergi. Gott kaup. Til viðtals
í Garðastræti 39, uppi. (393
ummmi
Vörur allskonar
FERMIN GARK J ÓLL (stór)
til sölu í Miðstræti 5 (miðhæð).
(379
SMOKING til sölu á grannan
mann. Tækifærisverð. Til sýnis
Fjölnisvegi 3, niðri. (381
HEY. Góð taða til sölu á Skóg-
tjörn á Álftanesi. Verð 30 aurar
kg. Nánari uppl. Árnakoti, Álfta-
nesi og síma 2519. (348
Notaðir munir keyptir
BARNAVAGN í góðu standi
óskast. Einnig kommóða eða
skatthol. Sími 5376, eftir kl. 7
kvöld og fyrir hádegi á morgun.
(383
Notaðir munir til sölu
NOKKUR falleg herbergis-
borð til sölu, og ein litil kom-
móða. Uppl. á Bald. 24 (verk-
stæðið)._____________(391
PIANO-harmonika (ítölsk) til
sölu. Full stærð. Sem ný. A.vA.
____________________ (389
SVEFNHERBERGISHÚS-
GÖGN úr eik til sölu á Vestur-
vallagötu 6. Til sýnis milli kl. 6
—7. (387
Bifreiðar
VÖRUBÍLL til sölu við Mið-
bæjarskólann kl. 7 í kvöld. (392