Vísir - 18.05.1942, Side 1
Ritstjórl:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri 1
Blaðamenn S(mi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 linur
Afgreiðsla
32. ár.
Reykjavík, mánudaginn 18. maí 1942.
88. tbl.
Hvernig gullforða
Filipseyja var
bjargað.
Ævintýr kafbáts.
1 Washington hefir nú ver-
ið skýrt frá ævintýralegri
ferð amerísks kafbáts, sem
færði Corregidorvirki skot-
færabirgðir og flutti gull-
forða og verðbréfaeign Fil-
ipseyjastjórnar á brott þaðan.
Kafbáturinn var látinn
taka eins mikið af fallbyssu-
kúlum og hann gat borið og
kom með þenna farm dag
einn að kveldi til Corregidor.
Alla nóttina var unnið að
uppskipun, en þegar nálgað-
ist dögun var verkinu hætt,
kafbáturinn sigldi 3 milur út
á sjó og fór í kaf þar. Var leg-
ið á hafsbotni allan daginn
og engin vél hreyfð, fyrri en
dimmt var orðið, en þá var
aftur farið til eys irkisins og
gullið og verðbréfin flutt um
borð.
Nokkuru fyrir dögun var
kafbáturinn ferðbúinn. Hver
bátverji var á sínum stað og
kafbátsforinginn stóð einn í
turninum. Hann kallaði til
þeirra, sem höfðu unnið við
útskipunina: „Vill einhver fá
far?“ en enginn óskaði þess.
Þetta var „síðasta ferð“ frá
Filippseyjum.
12.000 Þjóðverjar felldir á
i
fimm dögum,
segja Rússar.
Gizkað á að Rússar
tefli fram 1.000.000
T
Enn barizt á Kerch.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
[imoshenko, marskálkur, sem stjórnar á syðri
hluta vígstöðvanna, og hefir þvi á hendi stjórn
sóknarinnar til Kharkov, hefir gefið út til-
kynningu um árangur Rússa fyrstu fimm dagana, þ. e.
til laugardags. Telja Rússar sig hafa náð miklum ár-
angri, m. a. fellt 12.Q00 Þjóðverja, en venjan er að hin-
ir særðu eru 3—4 sinnum fleiri en hinir föllnu. Auk
þess segjast Rússar hafa sótt fram 60 km. þar sem þeim
hefir orðið bezt ágengt.
Þ jóðver jar geta þess hvergi, að Rússar sé í sókn og
segja, að litlir bardagar sé i Rússlandi, nema á Kerch-
tanganum, þar sem það er nú orðið 1 jóst, að Rússar hafa
ekki beðið eins mikinn ósigur í fyrstu og Þ jóðver jar
vildu vera láta. Tilkynna Þ jóðverjar að Rússum hafi
tekizt að koma liði að baki þýzku víglínunni, en segja
ekki frekar frá því.
I tilkynningu Timoshenkos
segir, að eftir að her lians hafi
tekizt að rjúfa varnarstöðvar
Loftárá§ir Breta á
Þýzkaland árangnrs-
ríkari en þá grnnar
— scgir €hri§tma§ Höll^r.
Eldarnir 1 Eystrasaltsborgunum
sáust til Danmerkur
Christmas Möller, sem komizt liefir til Englands frá
Danmörku, hefir gefið blöðum Lundúnaborgar,
New York og fleiri borga bæði á Englandi og vestan hafs
ítarlegar lýsingar á hinu mikla t.jóni, sem orðið hefir í
Lubeck, Rostock og Kiel í loftárásum þeiin, sem Bretar
gerðu þar fyrir skemmstu. — Daily Express birtir í
morgun frásögn þá, sem hér fer á eftir.
„Við Danir megum heita ná-
grannar þeirra borga á Þýzka-
landi, sem verst hafa orðið úti,“
sagði Christmas Möller, „og því
held eg, að mér sé óhætt að full-
yrða, að við vitum meira um á-
standið þarna en aðrir, sem ekki
búa þar — aðeins íbúarnir s jálf-
ir sé þessu kunnugri.
Eg get fullyrt það, að árásir
brezka flughersins síðustu vik-
urnar hafa verið svo stórkost-
legar, að þýzka þjóðin er lostin
skelfingu. í Rostock einni urðu
30.000 manna húsnæðislausar
að sögn, en auk þess urðu afar-
miklar skemmdir á verksmiðj-
um og opinberum stofnunum í
öllum borgunum. Stundum gát-
um við jafnvel séð eldana leika
við himin. íbúar i norðvestur-
hluta Þýzkalands hafa a. m. k.
fengið að komast að því, að
brezki flugherinn er voldugt
vopn.
Það var mikil gleði i Dan-
mörku, þegar það fréttist, að
borgir þær, sem Göring hafði
lofað að engin leið væri að gera
árásir á, væri í ljósum loga.
í fyrir fáeinum vikum gerðu
Bretar fyrstu verulegu loftárás
sína í Danmörku. Þá var
sprengjum varpað á Kaup-
mannahöfn ög fólkið var liim-
inlifandi, eins og gullpeningum
liefði rignt yfir horgina. Ein
sprengjan féll milli tveggja
þýzkra skipa og þar með voru
þau húin að vera“.
Þá var Cliristmas Möller
spurður að þvi, hversu liðmargir
Þjóðverjar mundu vera í Dan-
mörku. Kvað hann það álitið, að
þeir liefði þar 20—40.000 menn.
I fyrstu höjFðu þeir þar allmikið
af loftvarnabyssum, en nú hafa
þær allar verið fluttar á brott.
Auk þess hafa þeir flutt á hrott
sex hraðbáta.
Þjóðverjar hafa látið ryðja 7
flugvelli víðsvegar um landið og
eru flugvélarnar þar aðeins til
varnar. Á hverju ári má kalla
3000 nýliða í lierinn. Þeir fá að
bera vopn, en — engin skot.
„Eg fullyrði það,“ sagði
Christmás Möller að lokum, „að
hin nýja loftsókn brezka flug-
liersins hefir mikil áhrif — ef
til vill meiri álirif, en almenn-
ingur í Bretlandi gerir sér í hug-
arlund. Eg er sannfærður um
það, að Þjóðverjar verða harð-
ara úti en Bretar í fyrra, þegar
loftárásir Þjóðverjar stóðu sem
liæst. Eg liugsa, að þýzka þjóð-
in mundi ekki þola þetta, ef
hún fengi að ráða sér sjálf“.
Þjóðverja, hafi liann tekið 300
þorp, sum mjög víggirt og áttu
þau að vera aðalvarnarstöðvar
Þjóðverja á þessari víglínu.
Auk þeirra, sem fallið hafa
og særzt, segjast Rússar hafa
tekið 2000 fanga, eyðilagt 400
skriðdreka og tekið 25, 210 fall-
byssur eyðilagðar og 360 teknar,
217 vélbyssur eyðilagðar og 379
teknar, 700 bílar eyðilagðir og
ÍK) teknir, 147 flugvélar eyðilagð-
ar og að auki segjsta Rússar
liafa náð milljónum riffilskota.
Segjast þeir hafa rekizt á
Iilaða af ýmiskonar birgðum,
sem Þjóðverjar Iiafi verið bún-
ir að draga að sér með sókn fyr-
ir augum og auki þetta á tjón
þeirra.
Riddaralið er nofað til að veita
Þjóðverjum eftirför, en þeir
senda fram 30—40 skriðdreka
i einu í því skyni að stemma
stigu við framsókn Rússa. Segja
Rússar, að hinir nýju skriðdrek-
ar þeirra af Voroshilov- og Val-
entinegerðum séu sterkari og
hetur vopnum búnir en skrið-
drekar Þjóðverja.
Af síðustu tilkynnifigum
Rússa þykir mega ráða, að þeim
hafi orðið mest ágehgt fyrir
sunnan Kharkov og sé þeir
komnir suðvestur fyrir þá borg.
Ætla Rússar sér líka að ná
Krasnograd, 80—90 km. suð-
vestur af Kharkov, þvi að sú
liorg er mikil járnbrautarmið-
stöð.
Bæði Þjóðverjum og Rússum
kemur saman um það, að enn
sc barizt af kappi á Kerchtanga.
Segjast Rúsar nú hafa hörfað
svo langt, að barizt sé í borginni
sjálfri, en Þjóðverjar segjast
hafa hana og höfnina iá sinu
valdi og sé barizt á noi'ðaustur-
odda tangans, þar sem Rússum
hafi verið þjappað saman.
Þjóðverjar skýra frá því, að
Rússum hafi tekizt að setja lið
á land vestar á tanganum, ]i. e.
fyrir aftan Þjóðverja. Rússar
geta ekki um þetta í sínum til-
kynningum.
Rússar nefna ýmsar liersveit-
jr í tilkynningum sínum fyrir
hreystilega framgöngu. Einni
deild „Sovétvarða“ er þökkuð
Hákon konungur úthlutar heiðursmerkjum.
Norskir sjómenn, sem sérstök afrek hafa unnið, eru sæmdir
nýstofnuðum heiðursmerkjum, — herkrossi og heiðurspeningi.
Meðal þeirra, sem krossana hafa hlotið er Ansgar Kredhjem
skipstjóri, sem hjargaði þúsundum hermanna frá Dunkirk í
maí 1940, við hin erfiðustu skilyrði. Fjórum öðrum krossum
hefir verið úthlutað til skipstjóra fyrir afhurða þrekvirki, er
]>eir sigldu dýrmætum skipum með dýrmætum farmi frá Sví-
þjóð til Bretlands. — Á myndinni ræðir Hákon konungur við
norska sjómenn. En þeirra á meðal er Einar Isaachsen skipstjóri.
Kinverjar sækja á altnr.
Orusta við Kalewa i Vestur-Burma
Kínverjum hefir nú borizt aukið lið til YUnnán-fylkis og
hafa þeir gert harða hríð að Japönum með þeim árangri. að
þeir eru allsstaðar á hröðu undanhaldi, að því er hermir í fregn-
um frá New York.
Mikil orusta stendur hjá Pao-
shan. I>ar eigast við stórar sveit-
ir frá báðum og liefir Kinverj-
um tekizt að stöðva Japani. Þá
er mikil stórskotahríð yfir Sal-
ween-fljótið'skammt frá Lung-
ling.
Rigningatíminn er genginn í
garð þarna og er landið því afar
erfitt yfirferðar, ekki sízt þar
sem vegir eru engan veginn góð-
ir á öðrum tímum árs. Þrátt fyr-
ir afskaplegar úrkomur gátu
Kínverjar gert árás á bæinn
Manglus, fyrir suðvestan Lung-
ling, þar sem Japanir voru að
draga saman lið og bifreiðar.
Amerísku sjálfboðaliðarnir,
sem hafa myndað flugsveit í
Asíu, hafa gert árásir á bæki-
stöðvar Japana í Burma.
Japanir minnast ekki á það,
að Kinverjar hafi færzt i aukana
þarna, en þeir segja frá mikilli
orustu hjá Kalewa vestur undir
landamærum Burma. Þar segja
þeir, að Alexander hershöfðingi
hafi fylkt 32.000 manna liði í
því skyni, að gera úrslita tilraun
til að stöðva framsókn Japana.
Segjast Japanir liafa sigrað,
fellt 6.000 brezka hermenn og
tekið 2000 til fanga.
Fréttaritari U. P. i Kalkutta
hefir haft tal af flóttafólki frá
Burma. Segir það að herflutn-
ingum sé hraðað austur á bóg-
inn til þess að taka við af hinum
þreyttu hersveitum Alexanders,
Japanir hafa gert nokkrar
loftárásir á Manipur, austast í
Assam.
taka 35 fallhyssna og eyðilegg-
ing 15 skriðdreka. Rússar segj-
ast hafa skotið niður 65 flugvél-
ar á laugardag og misst 20 sjálf-
ir.
í ítalska útvarpinu hefir nú
verið sagl frá því, að möndul-
veldin hafi beðið allmikið mann-
tjón í Júgoslaviu, að því er segir
í fregnum frá London í morgun.
Yar sagt að setuliðið i landinu
hefði átt við mikla örðug!eika
að etja í vetur, því að snjó-
þyngsli hafi gert allar samgöng-
ur erfiðar og ómögulegar sums-
staðar. Setuliðið í sumum smá-
borgum og þorpum hafði ekkert
samband við umheiminn nema
með Ioftskeytatækjum og það
notuðu menn Michailovicli sér.
Réðust þeir á þessar einangruðu
setuliðsstöðvar og tókst jafnvel
að uppræta þær með öllu.
30 ný skip a
einum degi.
Næstkomandi föstudagur
verður „skipasmíðadagur“ í
Bandaríkjunum og þann dag
verður 30 nýjum skipum hleypt
af stokkunum þar í landi.
Litvinoff hefir lialdið ræðu til
Rússa frá Washington og skýrði
m. a. frá þvi, hversu framleiðsan
ykist hröðum skrefum. Sagði
hann frá því, að í einni skrið-
drekaverksmiðju væri fram-
leiðslan 20 mánuði á undan á-
ætlun og að nú væri smiðaðar
um 1000 flugvélar á viku í land-
inu.
Þjóðverjar segjast hafa gert
loftárás á Plymouth í hjörtu á
laugardag og sökkt a. m. k. einu
herslcipi en laskað tvö.
Árás af sjó
á Malta.
ítalir hafa nú gert aðra árás
sína af sjó á Malta, en snéru frá,
áður en brezka liðinu tækist að
sökkva meira en einum hrað-
báti.
Tilraimin var gerð nokkuru
fyrir dögun í gærmorgun. Bret-
ar hófu strax skothríð úr fall-
lívssum, þegar þeir sáu hvað um
var að vera. Hæfðu þeir einu
iiraðbát, en litlu síðar kvað við
sprenging utan af sjónum, svo
að annar mun einnig hafa orðið
fyrir skoti.
Þegar bii ti sást italskur bátur
skammt undan landi og fór
hann afarhægt. Var honum sent
skot, sem sökkti honum.
Ekki er ósennilegt, að þessh-
bátar hafi átt að rannsaka,
hvernig horfur væri til að gera
innrás. Italir hafa áður sent báta
til Malta, en fengu þá slæma út-
reið.
Strandhöggs
nndirhnningfnr.
Brezka flotamálaráðuneytið
hefir hvatt alla, sem eiga mynd-
ir frá meginlandi Evrópu — að-
allega hafnarborgum, strand-
lengjum o. s. frv. — að senda
þær til ljósmyndadeildar ráðu-
ne.vtisins.
Myndirnar á að nota við und-
irbúning strandhöggs eða ann-
arra árása á meginlandið. I út-
yarpsávarpi, sem starfsmaður í
flotamálaráðuneýtinu hélt í
gær, var sagt frá því, að mynd,
er var tekin fyrir stríð á strönd-
inni lijá Bruneval á N.-Frakk-
landi, þar sem Bretar gerðu
strandhögg nýlega, hefði haft
úrslitaþýðingu um árangur
ferðarinnar.
Hergögn »gefins«
fyrir 677 millj. doll.
Þar var tilki/nnt í Washing-
ton í gær, að bandamenn hefði
fengið hernaðarnauðsynjar fyr-
ir 677 milj. dollara frá Banda-
ríkjunum í apríl, og er það
meira en nokkru sinni.
f lok þ. á. eiga allir menn á
aldrinum 20—65 ára að vera
annaðhvort í hernum eða starf-
andi í hergagnaiðnaðinum. í
janúar siðastl. voru 7 millj.
manna i hergagnaiðnaðinum,
en í desember eiga þeir að
verða 17.5 millj. að tölu.
Striðsframleiðsluráðíð (War
Production Board) liefir til-
kynnt, að framleiðsla á einni
tegund skriðdreka hafi verið
meiri síðastl. mánuð einan en
allt síðasta ár.
Bandarikjaher hefir tekið
undir stjórn sína öll flugfélög
landsins.
Ornsta á Köralhafi
f undlrbúnlngi.
Einkaskf.yti til Vfsis.
Londón 'í morgun.
Amerískir fréttaritarar í
Melboyrne síma, að banda-
menn búi sig í óða önn'undir
aðra oíustu á Kóralhafi, sem
verði enn stærri og afdrifa-
ríkari én hin fyrri.
Það er almenn skoðun, að
flotadeildir Japana hafi hægt
um sig, meðan þær bíða eftir
liðsauka, en þeir munu gera
tilraun til innrásar á Ástralíu
jafnskjótt og þeim hefir bor-
izt nægileg liðveizla.
\