Vísir - 18.05.1942, Qupperneq 3
VISIR
Avarp
vegna fjársöfnunar til Norðmanna.
Daglega berast nú hörmuleg tíðindi af frændþjóð
vorri, Norðmönnum. Vér íslendingar erum fámennir
og íítilsmegandi, stöndum álengdar og getum lítt að
gert annað en sýnt saniúð vora á einn eða annan hátt.
Á sama tíma sem Norðmenn hafa beðið ómetanlegt
tjón höfum vér Islendingar auðgast af veraldlegum auð
meira en dæmi eru til á jafn skömmum tima. Oss væri
þvi ekki Vansalaust að sitja hér við digra f jársjóðu, sem
meðal annare hafa til orðið vegna þeirra hörmunga, sem
dynja nú yfir þjóðirnar, án þess að láta eyri af hendi
rakna til hjálpar nauðstaddri bræðraþjóð. Þess vegna
teljum vér, sem undir þetta ávarp ritum, að vér geturn
á engan hátt betur, svo sem högum vorum er háttað,
sýnt samiiug vorn með þessari frændþjóð en með því
að safna nú álitlegri f járhæð, sem varið verði henni til
hjálpar að stríðinu loknu, eða þegar hún hefir endur-
heimt land sitt og frelsi. — Með slíkri f jársöfnun styðj-
um vér ekki aðeins nauðstadda þjóð heldur björgum
vér einnig, á þessu sviði, heiðri vorum sem frjájsborin
þjóð.
Sameinumst því, allir íslendingar, um að sýna Norð-
mönnum óskipta samúð og veitum þá hjálp er vér meg-
um.
Sendið gjafir yðar til Norræna félagsins, Ásvallag. 58,
Rauða Kross Islands, Hafnarstr. 5, Norska félagsins
s. st. eða annarra stofnana í landinu, er auglýst verður
að taka á móti gjöfum til Noregssöfnunarinnar.
Stefán Jóh. Stefánsson, form. Norræna fél. GuðL Rósinkranz,
ritari Norræna fél. Árni Pálsson, próf. Harald Faaberg, form.
Nordmannslaget. .Sigurður Sigurðsson, form. Rauða Kross ís-
lands. Jónas Jónsson, alþingism., Sigurjón Á. Ólafsson, forseti
Alþýðusamb. Islands. Alexander Jóhannesson, rektor Háskóla
Islands. Sigurður Thorlacius, formaður Sambands íslenzkra
barnakennara. Hallgrímur Benediktsson, formaður Verzlunar-
ráðs íslands. Helgi Eiríksson, formaður Landssambands Iðn-
aðarmanna. Árni G. Eyland, formaður Fél. ísl. botnvörpuskipa-
eigenda. Guðmundur Ásbjörnsson, forseti Bæjarstjórnar.
Pálmi Hannessson, rektor Menntaskólans í Reykjavík. Ragn-
hildur Pétursdóttir, form. Kvenfélagsspmbands íslands. Sigurð-
ur Sigurðsson, biskup. Kristinn Stefánsson, stórtemplar. Ás-
mundur Guðmundsson, form. Prestafélags Islands. Valtýr Stef-
ánsson, ritstjóri. Daníel Ágústínusson, ritari Ungmennafélags
íslands. Jón Eyþórsson, form. Útvarpsráðs. Ben. G. Waage,
kaupm., forseti I. S. I. Stefán Pétursson, ritstj. Alþýðublaðsins.
Kristján Guðlaugsson, ritstj. Vísis. Jón H. Guðmundsson, ritstj.
Vikunnar. Skúli Skúlason, ritstj. Fálkans. Jón Magnússon,
fréttastjóri Útvarpsins.
drene
fyrirlíggjandi
5 Co. H.I.
Símar 1858, 2872
Esja strandar.
I gærkveldi, þegar Esja var að
koma til Homaf jarðar, lenti hún
á San deyrartanga rétt innan við
skipaleguna og sat þar föst.
Vísir hafði tal af Pálma Lofts-
syni, framkvætodarstjóra Skipa- ;
útgerðarinnar, í morgun og j
spurði hann hversu alvarleg
þessi tíðindi væru. Tjáði hann
blaðinu, að strand þetta mundi
vera með öllu meinlaust og all-
ar Kkur bentu til að skipið flyti
út á flóðinu í kvöld. — Það
væri með öllu óskemmt og önn-
ur óþægindi hlytist ekki af þessu
en tímatöfin ein.
Slys á Miðfirði.
Það slys vildi til s.I. föstudags-
kvöld á Miðfirði, skammt undan
Hvammstanga, að bát með 6
mönnum hvolfdi og drukknuðu
þrír mannanna. Þeir voru Jósef
Jakobsson bóndi að Bálkastöð-
um, Þorvaldur Kristmundsson
og ögmundur Árnason, bændur
að Utibleiksstöðum.
Þeir ■ þrir, sem komust af,
voru allt unglingar, einn þeirra
Hið margeftirspurða
fyrirliggjandi.
Lindargötu 61 B.
Upppoö
Opinbert uppboð verður
lxaldið við skrifstofu saka-
dómara, Fríkirkjuveg 11,
þriðjudaginn 19. þ. m. kl. 1%
e. hád. og verður þar seldir
ýmsii' óskilamimir þ. á. m.
reiðlijól; ennfremur járn-
smíðaverkfæri, hægindastóll
o. fl. Loks verður selt Halli
Crafters-ferðaviðtæki, sem er
til sýnis hjá Rannsóknarlög-
reglunni.
Lögmaðurinn í Reykjavík.
frá Útibleiksstöðum, Árni
Björnsson að nafni, en hinir
voru báðir úr Rvik, Haukur
Hjartarson og Pálmi Theodórs-
son að nafni. '
Gólfteppi
GRÍSK,
PERSNESK,
INDVERSK
o. fl.-
Gólfi
ottnr
í mjög miklu úrvali
nýkomið.
Helgi Magnússon & Co.
HAFNARSTRÆTI 19.
Úli&iA' -éx&Urut'.
skóóburð
Kjólar ogr kjólaefni
mikið úrval
Ver*l. SMÓT
Vesturgötu 17
í tilefni af 25 ára sfarfsafmæli
B.TARNA SNÆBJ ÖRNSSONAR LÆKNIS, miðvikudaginn 20.
þ. m. hafa Hafnfirðingar ókveðið að halda honum samsæti það
kvöld. Þeir bæjarbúar sem taka vilja þátt i samsætinu, riti nöfn
sín á lista sem liggur frammi í verzlun Einars Þorgilssonar,
Valdimars Long og Bergþóru Nyborg fyrir kl. 3 e. h. næstkom-
andi þriðjudag.-
Svefnpokar ogkerrupokar
úr gærum.
SÚTAÐAR GÆRUR fvrirliggjandi.
Sútvmarverksmiðjaii h. f.
Vatnsstíg 7. Sími 4753.
§láttnvélar
Stungiiskófliir
Á. lAuar^son Fnnk
Ungur maflur
óskast í kjötverzlun, þyrfti að vera vanur afgreiðslustörfum. —
Grunnkaup kr. 350.00. Tilboð, merkt: „Byrjunarlaun 350“
sendist afgr. Vísis fyrir 20. þ. m.-
Til leigru
er stór og bjartur, upphitaður kjallari með innkeyrslu fyrir
bíla. Gólfflötur rúmir 400 fermetrar. Húsnæði þetta er á góðum
stað i bænum og hentugt fyi'ir iðnað eða verkstæði, t. d. bifi’eiða-
verkstæði. Tilboð, merlct: „Kjallari“ sendist blaðinu fyrir 21.
þessa mánaðar. —
Aeftohak§nmbúðir
keyptar.
Kaupum fyrst um sinn umbúðir utan af skornu og óskornu
neftóbaki sem hér segir:
1/10 kg. glös með loki .....................!_____ kr. 0.33
1/5 kg. glös meðloki ............................. — 0.39
1/1 kg. blikkdósir með loki ...................... — 1.50
1/2 kg. blikkdósir með loki (undan óskoi’nu neftób.)' — 0.66
Dósirnar mega ekki vera ryðgaðar og glösin verða að vera ó-
brotin o ginnan i lokum þeirra samskonar pappa- og gljápappírs-
lag er var upphaflega.
Keypt verða minnst 5 stk. af hverri tegund.
Umbuðirnar verða keyptar í tóbaksgerð vorri í Tryggvagötu
8, fjórðu hæð (gengið inn fró Vesturgötu), ó þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 2—5 siðdegis.
TÓBAKSEINKASALA RÍKJSrNS.
Tilkynning-
frá garöyrkjuxádunaut bæfarms.
. Þrir, sem hafa leigugarÖa frá bænum og pantað hafa
aburð í garða sína, vitji hans sem fyrst.
Sveltið ekki jurtimar. — Notið nægan áburð. ÞaÖ
eru hyggindi, sem í hag koma.
Daglega afgreiddar á Vegamótastíg frá kl 9 f h til
10 e. h.-
Fólk er áminnt um að hafa með sér strigapoka undir
áburðinn. —
Verkamenn
Mig vantar nokkura verkamenn og múrara í byggingavinnu.
Löng vinna. Upplýsingar í síma 4381, eftir kl. 8 e. h.
KORNELÍUS SIGMUNDSSÖN.
Bárugötu 11.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að föðursystir mín,
Guðrún Guðmundsdóttip
andaðist á heimili sínu, Garðastræti 3, 16. þ. m._
Fyrir hönd mina og annara vandamanna.
Ólafur A. Hanncsson.