Vísir - 25.06.1942, Side 2
VISÍR
VISiR
DAGBLAí)
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján GuSIaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Simar: 1 660 (fimm línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Postular
sundrungarinnar
pLUGUMENN £rá andstæð
ingum sjálfstæðismanna
ganga nú manna á milli í bæn
um og reyna að sá frækomi
sundrungarinnar meðal kjós-
enda Sjálfstæðisflokksins til
þess að veikja aðstöðu flokks
ins í kosningunum. Þeir reyna
að etja einni stétt móti annarri
þeir reyna að rægja suma og
lofa aðra, þeir reyna að telja
mönnum trú um ýmsar kvik-
sögur. Ef þeir einhversstaðar
finna óánægðan kjósanda, er
gengið á lagið og óánægjan not-
uð til að færa sönnur á að róg
ur andstæðinganna um Sjálf-
stæðisflokkinn sé á rökum
byggður.
Þessir rógberar skáka óspart
fram, að formaður flokksins
vinni aðeins fyrir sig og sitt fyr-
irtæki, að hann styðji þá til
framboðs, sem honum séu
fylgjandi, að nýjum mönnum
sé haldið til haka, að vissum
stéttum sé ætíð haldið niðri, að
sumir fái allt en aðrir ekkert,
og þar fram eftir götunum. Allt
þetta er prédikað nú hærra en
áður til þess að dreifa eitri
sundrungarinnar rétt fyrir
kosningar og til þess að fá
sjálfstæðismenn til að verða ó-
ánægða með sinn eigin flokk,
í þeirri von að það geti dregið
úr aðsókn að kosningunum.
★
Það er óánægja i Sjálfstæðis
flokknum eins og í öUum öðr-
um flokkum, sem nú ganga hér
til kosninga. Ástæða væri til að
óánægja gerði vart við sig í
flokknum í ríkara mæli en i
öðrum flokkum vegna þess, að
hann hefir innan vébanda sinna
margar ólíkar stéttir og mis-
munandi sjónarmið. Hinir
flokkarnir eru allir hreinni
stéttarfiokkar. Þess vegna væri
það engin furða, þótt einhverrar
óánægju yrði vart. En þær
kosningar, sem nú standa fyrir
dyrum, er enginn vettvangur
fyrir slíka óánægju, eða tæki-
færi til leiðréttingar á mismun-
andi sjónarmiðum innbyrðis.
Næstu kosningar snúast um eitt
mál og aðeins eitt, sem á að
geta veitt stefnumálum Sjálf-
stæðisflokksins betri byr en ver-
ið hefir undanfarin ár og veitt
flokknum aðstöðu til meiri á-
hrifa á gang þjóðmálanna en
áður. Þess vegna á nú athygli
hvers einasta sjálfstæðismanns
að vera bundin við það eitt að
vinna, að vinna sigur þessum
kosningum. Þeir, sem nú verða
kosnir á þing gera ekki annað
en að staðfesta kjördæmamálið
með atkvæði sínu. Þegar því er
lokið, verða aftur kosningar og
þá Iiggur fyrir að velja þé menn
sem eiga að bera málefni flokks-
ins fram og halda á loft stefnu
hans næstu fjögur ár. Þá er
tækifæri til að samræma sjón-
armiðin.
★
Sjálfstæðismenn verða því að
varast að gefa flugumönnum
andstæðinganna gaum. Þeir eru
á hverju strái. Samheldni, sam-
heldni og ekkert annað en járn-
föst samheldni verður að vera
orðlak Iivers einasta sjálfstæð-
ismanns við jiessar kosningar.
Þann óvinafagnað má enginn
gera, að láta öndvegismál
flokksins vikja fyrir smávægi-
Iegum sjónarmiðum. Kjör-
dæmamálið verður að ná stað-
festingu á næsta þingi. Eftir
það koma dagar til atlmgunar
á ýmsum öðrum málum.
„Upval“
Nýtt tímarit að hefja
gðogu sína.
„Urval“ heitir nýtt tímarit,
sem er að hef ja göngu sína um
þessar mundir. Er það sniðið
eftir erlendum tímaritum, er
flytja stuttar og gagnorðar
greinar til fróðleiks og skemmti-
lesturs. „Reader’s Digest“, það
ritið, sem „Úrval“ er sniðið eft-
ir, er gefið út í nær 5 millj. ein-
tökum í Ameríku. Sýnir þetta
vinsældir, sem slík rit hafa er-
Iendis, og þarf tæplega að efa,
að „Cfrval“ mun eignast marga
unnendur meðal íslenzkra les-
enda og verða mikiö keypt og
mikið lesið.
Ritstjóri „Úrvals“ er Gísli Ól-
afsson blaðamaður við „Vik-
una“. Er ætlað að fjögur hefti
komi út á ári til að byrja með,
og kostar hvert hefti 5 krónur.
Hefti það sem nú er að hefja
göngu sína, er 128 bl.s og flytur
það 21 grein, flestar stórfróðleg-
ar og athyglisverðar. Frágang-
ur er í hvívetna hinn vandaðasti.
Kominn heim eftir
27 ára fj arveru.
Námskeið fyrir verzl-
unarmenn í háskól-
anum á næsta vefri.
Næsta vetur hefir háskólinn í
hyggju að lialda námsskeið fyr-
ir starfandi verzlunarmenn í
sambandi við kennsluna í við-
skiptafræðum, sem tekin var
upp síðastliðið haust í þessum
greinum:
1. Bókfærslu fyrir byrjendur og
skammt komna.
2. Bókfærslu fy-rir lengra konina
(t. d. þá, sem lokið liafa prófi
í Verzlunarskóla Islands).
3. Þjóðþagfræði.
4. Beksturshagfræði.
5. Verzlunarrétti.
6. Ensku.
7. Þýzku.
8. Frönsku.
Námsskeiðin verða eftir kl.
5V2 á kvöldin.
í bókfærslunámskeiðunum
verður kennt 3 stundir vikulega,
en í hinum öllum tvær stundir.
Námsskeiðin Iiefjast 15. októ-
her og standa til 15. apríl. Hvert
námsskeið um sig er sjálfstætt,
og geta ínenn tekið þátt í svo
mörgum þeirra, sem þeim sýn-
ist, einu þeirra eða þeim öllum.
í lok hvers námsskeiðs verður
síðan haldið próf, og fá þeir,
sem taka þált í þeim og standast
þau, skírteini frá háskólanum
jiess efnis.
Þátttökugjald verður mjög
lágt, aðeins 75—90 kr. fyrir þau
námsskeið, þar sem kennt er 3
stundir á viku, en 50—60 kr.
fyrir hin, þar sem kennt er 2
stundir á viku, svo að- hér er í
rauninni um mjög lítið fjár-
hagsatriði fyrir menii að ræða,
og er það að þakka velvilja nú-
verandi kennslumálaráðheria
til þessa máls, að svo getur orð-
ið. Þátttökugjald greiðist fyrir-
fram.
Þeir, sem vilja taka þátt í
þessum námsskeiðum, verða að
tilkynna það háskólaritara f'yrir
15. ágúst, og géfur hann og
Gylfi Þ. Gíslason dósent allar
nánari upplýsingar.
Ef fleiri gefa sig fram í ein-
stökum námsgreinum en unnt
er að taka, ganga þeir fyrir, er
fyrstir tilkynna þátttöku sína.
JAKOB J. THORVALDSSON.
við fiskveiðar, en áður höfðu
þeir notast við gamla og sein-
virka aðferð, sem kom að mjög
litlu gagni móts við þessa.
Jakob dvelur nú á Drafnar-
stíg 3 hér í bæ, hjá bróður sín-
um Óskari og háaldraðri móð-
ur sinni. G. Ein.
Farartálmi —
Á norðurleiðinni hefir að und-
anfömu verið farartálmi á ein-
um stað, sem reynst hefir örð-
ugur viðfangs fyrir bifreiðar, og
því nær ófær fyrir litla bíla.
Þessi farartálmi er ræsi á
Hrútafjarðarliálsi, 2ja metra
Viðtal við Jakob J. Thorvaldsson
skipstjóra í Boston.
Nýlega kom hingað til landsins íslenzkur skipstjóri
frá Boston, Jakob Jóhann Thorvaldsson að nafni. Hann
fór af landi burt fyrir 27 árum og hefir aldrei komið
hingað heim síðan, fyrr en nú. Vísir náði tali af Jakob
í morgun og fer hér á eftir stutt samtal við hann:
—- IJvenig stóð á þvi, að þér
fóruð lil Boston?
— Frá því eg var smástrákur
liefi eg ávallt stundað sjó-
mennsku og þegar eg fór að
eldast, kom að því, að eg fór
að sigla til annarra landa. Árið
1910 kom eg svo til Englands
og dvaldi þar í 5 ár, en þar sem
eg var ekki enskur ríkisborgari,
varð eg að fara þaðan úr landi
árið 1915.
— Og fóruð þér þaðan til
Ameríku?
— Já. Guðmundur gamli Sig-
urðsson var ráðinn skipstjóri á
skip í Halifax og við urðum sex
Islendingar í hóp, sem fylgdust
með honum vestur um liaf.
Síðan dvaldist eg um nokkra
hrið i Canada, en fór þaðan á-
samt þremur öðrum mönnuin
til Boston.
— Ilafið þér svo dvalið þar
síðan ?
— Já, eg hefi verið þar síðan.
Eg var eini maðurinn af þess-
um f jórum, sem settist að í Bost-
on, en hinir fóru þaðan eftir
skamma dvöl. Eg er því fyrsti
íslenzki sjómaðurinn, sem sezt
að í Boston, að því er eg frek-
ast veit. Litlu seinna fóru svo
að koma fleiri og fleiri Islend-
ingar þangað út og nú veit eg
ekki hversu margir þeir eru
orðnir. íslenzkir skipstjórar í
Boston eru nú 10—12 að tölu.
— Þér eruð kvæntur úti?
— Já, Eg á konu og fimm
börn. Konan mín, Geirþrúður,
er af íslenzkum ættum í móður-
ætt, en sænsk i föðurætt. Móðir
konunnar minnar heitir Stein-
unn og er ættuð frá ísafirði. Hún
er nú liáöldruð og býr i borg-
inni Gloucester í Massachusetts.
Börnin min eru nú öll uppkom-
in og eru það þrjár stúlkur og
tveir piltar. Annar sonur minn
tók við stöðu minni á meðan eg
skrapp hingað til landsins. Eg
er nú liættur sjómennsku en
stunda vinnu í landi.
— Hvernig líkar yður að
vera kominn heim til Islands?
— Mér Iikar það svo vel, að
þvi verður varla með orðum
lýst. Mig hefir lengi langað til
þess að skreppa heim, til föður-
landsins,/ en fátæktin liefir
bannað mér að gera það. Eg gat
ekki yfirgefið konu og börn í
ómegð fyrirvinnulaus, en nú
eru börnin komin til fullorðins
ára og þá notaði eg lika tæki-
færið. En bágt átti eg með að
trúa því, að eg væri á leiðinni
til íslands — eg þurfti bókstaf-
lega að klípa mig við og við
til þess að fullvissa mig um það,
að eg væri vakandi. Og nú er eg
kominn lieim. Alltaf er eg að
hitta fleiri og feliri ættingja og
vini, sem ég hefi ekki séð í þessi
27 ár. Það er gaman að koma
heim eftir svona langa útivist.
— Verðið þér lengi hér?
— Nei, því miður. Eg mun
ekki dvelja hér á landi nema
þrjár vikur til mánuð.
*
Jakob er föngulegur maður,
skemmtilegur og ræðinn. Það
má gjarnan geta þess, að það
var hann, sem innleiddi og
kenndi mönnum i Boston ensk-
íslenzku hotnvörpuaðferðina
Hér að ofan sést hve litlu má muna
að bíllinn fari út af.
djúpt, sem að vísu er verið að
steypa yfir, en hefir dregizt ó-
fyrirgefanlega lengi. Og það sem
verra er, að yfir þetta ræsi hafa
verið lagðir plankar með svo
breiðu millibili að stórhættulegt
er fyrir litla bíla að aka þarna
yfir.
Einn vegfarandi, sem kom á
ritstjórnarskrifstofu Vísis í gær-
morgun, kvaðst af hendingu
hafa frétt af þessu ræsi, er liann
var á norðurleið, annars hefði
hann líklega eltki getað varað
Vísitalan aftur 183
Vísitalan fyrir júnímánuð
er 183. Hefir hún hækkað aft-
ur um þetta eina stig, sem hún
lækkaði í maímánuði. Sam-
kvæmt upplýsingum, sem
Vísir fékk, mun hækkun þessi
stafa af verðhækkun á ýms-
umvörum, svo sem fatnaði,
þvottaefni o. fl., en einkum
þó vegna hækkunar á húsa-
leiguvísitölunni, sem kemur
nu í fyrsta sinni til útreikn-
ings á hinni almennu vísitölu.
En eins og menn muna, hækk-
aði húsaleiguvísitalan frá 14.
maí, til 1. okt. n.k. úr 111 í
114. —
sig á því og ómögulegt að vita
með hvaða afleiðingum. Hann
fór norður um fyrri helgi og
kom aflur um miðja síðustu
viku og þá hafði útbúnaður
þessi engum breytingum tekið.
Hafði í hvorugt skiptið verið
nokkur maður nærstaddur til að
hjálpa, og munu margir bílar
liafa tafizt alvarlega við ræsið,
eða lent i öðrum Vandræðum.
Taldi ferðalangur þessi með öllu
óforsvaranlegt að ganga ekki
betur frá ræsinu en þetta, og
ekki sizt þegar það teki4' jafn
langan tima að steypa yfir það.
Gjafir til Nýja Stúd-
entagarðsins.
Bæjarfélög Hafnarfjarðar og
Siglufjarðar liafa nú gengið á
undan öðrum bæjarfélögum á
landinu með þvi góða for-
dæmi að gefa sitt hvert herberg-
ið til Nýja Stúdentagarðsins. Er
gjafimar hvor í sínu lagi 10.000
kr. virði.
Vonandi verða þessar gjafir
til þess að örfa önuur bæjarfé-
lög til þess að gefa til Stúdenta-
garðsins.
íslandsmótið:
K. R. og Fram
I kvöld kl. 8.30 heldnr ís-
landsmótið áfram með því, að
K.R. og Fram keppa.
Bæði þessi félög standa nú
jafnt að vígi, eða hafa hvort um
sig 4 stig eftir 2 leiki. K.R. hef-
ir unnið Val og Vestmannaev-
ingana, en Fram vann Víking
og Vestmannaeyingana. Það fé-
lagið, sem sigrar í kvöld, mun
því hafa mesta möguleikana til
þess að vinna mótið. Ekki þarf
að draga það í efa, að þessi
leikur verður mjög spennandi.
Noregssöfnunin.
Jón Loftsson 150 kr. Guðrún Er-
lendsdóttir 10 kr. Guðmundur Mar-
teinsson 65 kr. Nordahl Grieg 100
kr. Starfsfólk Rikisprentsm. Guten-
berg 420 kr. Starfsfólk Samb. ísl.
samvinnufélaga 745 kr. Páll Sig-
ur'Össon og frú 50 kr. ÁgóÖi af
upplestri Nordahl Grieg hjá Nor-
ræna félaginu 1450 kr. Hafnar-
fjarðarbær 20.000 kr. Bæjarútger'Ö
Hafnarfjarðar 5000 kr. Áður til-
kynnt kr. 111.648,00. Samtals kr.
139.633,00.
Jón Engilberts listmalari hefir
gefið stórt málverk af Þingvöllum
og verður annaðhvort stofnað til
happdrættis um það eða það verð-
ur boðið upp við eitthvert hátíðlegt
tækifæri, en áður mun það verða
til sýnis fyrir almenning.
Gjöf Hafnarfjarðarbæjar er sú
stærsta, sem Noregssöfnuninni hef-
ir borizt til þessa og Hafnarfjörð-
ur fyrsta bæjarfélagið, sem gefur.
Málverk Jóns Engilberts er fyrsta
listaverkið, sem söfnuninni berst.
Hér hafa þannig verið gefin tvö
falleg fordæmi. — Gl. R.
í
á börn og unglínga.
izvzluttitv
Hverfisgötu 98.
Sími 1851.
Lauknr
Sítrónur
Tómatar
Agúrkur
Þurkuð epli.
fllmluiiwv
Svefnpokar
Vattteppi
Bakpokar
Sportblússur
Ferðastígvél
Sólgleraugu
Crem
Filmur
Grettisgötu 57.
Monarch-
ritvél
í góðu standi til sölu. Upplýs-
ingar í verzluninni HKf,
Brekkustíg 1. Sími 5593.
Kaupum afklippt
iítt hár
HárgreiðsJ ustof an
P E R L A.
Bergstaðastræti,
Bergstaðastræti 1.
Stúlku
til eldhússtarfa vantar tíí að
leysa af í sumarfríum. Hent-
ugt fyrir konu, sem hefir litíð
heimili og vildi vinna sér inn
peninga með aukavinnu. —
WEST END,
Vesturgötu 45.
fæst ennþá í
búðum
• 1 •
|l)eiziumn
jíalli p_owmiy
í kvöld kl 8.30 keppa
ERAM - K.R.
Alltaf meira 09 metra spennandiT
Hvor vinnuz nú? Allir út á völl?