Vísir - 14.07.1942, Blaðsíða 2

Vísir - 14.07.1942, Blaðsíða 2
V I S 1 R VÍSIR DAGBLAÐ títgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla Hverfisgötu 12 (gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: 1 6 60 (fimm línur). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Sókn og vörn. Timinn ber sig mannalega yfir árangri þeim, sem Framsóknarflokkurinn liefir náð i kosningunum, og kveður bændur hafa svarað fyrir sig á sama liátt og árið 1931, er Framsókn náði ein algerum meiri hluta á þingi. Sjálfstæðis- flokkurinn á hinsvegar að hafa stórtapað fylgi i kjördæmunum, þótt verulegar breytingar hafi ekki orðið á atkvæðamagni hans né tölu þingfulltrúa. Kemst Timinn að þeirri niðurstöðu, að flokkurinn liafi tapað um 1200 atkvæðum, en ef bændaflokks- fylgið sé talið með muni tapið nema 3000 atkvaiðum. Þetta livorttveggja er l>ó ýkt og ýmsu til logið. í kosningum þessum hefir Framsókn engan sigur unnið, þótt hending ein hafi ráðið því, að í tveimur kjördæmum hafi Framsóknarmenn komizt að í stað fulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins, sem áður sátu á þingi fyrir kjördæmi þessi. Hér má í raun- inni segja að frekar inegi ó- heppni kenna, en verulegum straumhvörfum í stjómmálun- um. Það er rétt að Sjólfstæðis- flokkurinn hefir nú 1200 at- kvæðum færra á öllu landinu, en i kosningunum árið 1937, en fækkunin er aðallega í Reykja- vík, þar sem fjöldi kjósenda dvaldi utan bæjar og notaði ekki kosningarétt sinn. Óánægja með uppstillingu liér í bænum, mun og hafa valdið því að margir kjósendur Sjálfstæðis- flokksins sátu að jæssu sinni heima, en munu reynast að öðru leyti jafn tryggir flokksmenn síðar, er á reynir og þörf gerist. Má því fullyrða að stefna flokksins eigi enn hið sama fylgi með þjóðinni og fyrr, einn- ig í sveitum, þótt sumurn fram- bjóðendanna hafi ekki tekizt að ha a öllum atkvæðum floldks- ins til haga. Framsóknarflokk- urinn hefir heldur ekki aukið kjósendatölu sína að neinu ráði, en sumstaðar stórtapað fylgi frá þvi sem áður var, — ekki sízt fyrrverandi forsætisráð- herra flokksins. Hefir flokkur- inn einnig tapað þingsæti. Fyrir kosningarnar gerðu framsóknarmenn sér vonir um að vinna, miklu fleiri kjördæmi en raun varð á. Höfðu þeir á orði, að svo gæti farið að flokk- urinn einn fengi stöðvunarvald á þingi, þannig að kjördæma- málið væri þar með úr sögunni, og hvöttu bændur og búalið mjög til þess, að stuðla nú að sigri flokksins eins og árið 1931. Sami áróður var notaður og þá um frumburðarréttinn og það, að verið væri að svifta sveitim- ar rétti og álirifavaldi, en sá er munurinn nú, að bændur hafa alls ekki tekið þennan áróður al- varlega. Engin þau straum- hvörf hafa komið fram í kosn- ingunum, sem réttlætt geta á- lyktanir um verulega stefnu- breytingu í stjómmálunum, og þólt Framsóknarflokkurinn hafi af slembilukku unnið tvö kjördæmi af sjálfstæðismönn- um, verða engar almennar á- lyktanir af því dregnar. Það var fyo-irfram vitað, að breyting á kjördæmaskipun- inni myndi mælast misjafnlega fyrir úti um sveitir landsins, þótt það skerti á engan hátt á- hrifavald sveitanna. Ýmsir menn i öllum flokkum eru önd- verðir öllum breytingum á stjórnskipunarlögum landsins, vilja halda öllu i fyrra fari, og þeir menn Iiafa vafalaust greitt F ramsóknarf lokknum atkvæði að þessu sinni, ]x)tt þeir geri það e. t. v. ekki síðar. í haust- kosningunum kemur það i ljós hvort um nokkura stefnubreyt- ingu er að ræða lijá þjóðinni eða ekki. Tíminn ræðir og um það, að hið aukna fylgi kommanna spái engu góðu um framtiðina, og vill forðast haustkosningar, meðal annars af þessum sökum. Fylgi kommanna er liinsyegar aðeins 'stundarfylgi, sem mim hrynja af þeim mjög fljótlega og vafalaust fyrir haustið. Reynist hinsvegar fylgi þeirra fara vaxandi er ekkert við því að segja, að j>essi flokkur fái þingfulltrúa i samræmi við kjósendafylgi. Þeir eiga það skilið eins og aðrir flokkar, sem fulltrúa eiga á Alþingi, og þótt menn hafi andstyggð á komm- unum eiga l>eir að njóta réttar síns eins og aðrir þegnar siðaðs þjóðfélags. Það nrá blekkja kjósendurna um stund, en ekki til langframa. í því er falinn höfuðveikleiki kommanna og svo hinu, að Jiegar þeir eiga að fara að verða ábyrgir orða sinna og gerða, dettur undan }>eim grundvöllurinn og úr þeim fer allur vindurinn. Þvi meiri á- byrgð því minna fylgi, verður örlagarún þessa flokks. Það má með nokkurum rétti segja, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið í vöm í þessum kosn- ingum, en vörnin mun breytast í sókn í haustkosningunum. Þá mun það sýna sig, að flokkurinn mun ekki aðeins halda öllu sínu fyrra fylgi, heldur auka það stórlega á kostnað annaiTa flokka, sem um skeið hafa haft nokkurt stundargengi. McVeagh, sendiherra Bandaríkjanna farinn af landi buzt. Mr. Lincoln McVeagh, sendi- hera Bandaríkjanna hér, hefir verið kvaddur héðan til að gegna sendiherrastörfum í Suður-Af- ríku, og er hann nýfarinn af landi burt. McVeagli var maður mjög vinsæll og gerði hann allt sitt til að efla vinsamlega sambúð Bandaríkjahersins og íslending- anna. Munu íslendingar yfirleitt harma brottför hans, enda þótt hans nyti skamma stund við hér heima, því hann var ekki búinn að vera hér nema siðan í september s.l. McVeagh var sendiherra i Grikklandi, áður en hann varð sendiherra hér, en fór þaðan 5. júlí í fyrra, eða um það bil sem Þjóðverjar réðust á Krít. Énn hefir ekki verið skipað- ur neinn sendiherra í stað Mc- Veagh, svo kunnugt sé, en að- stoðarmaður hans, Carlos Warner, gegnir sendiherrastörf- unum í bili sem Chargé d’Aff- aires. | Eldur kom upp í kvikmyndahúsinu í Vestmannaeyjum s.l. laugardags- kvöld. KviknaSi í sýningarklefan- um, sennilega út frá rafmagni og uröu miklar skemmdir á sýning- arvélum, filmum og klefanum sjálfum, en auk þess svitSnuöu lækkir er næstir voru klefanum. Slökkvitæki voru í klefanum og tókst a8 slökkva metS þeim eldinn, áSur en slökkvilitSiíS kom á vett- vang. Lúðrasveitin Svanur leikur á Austurvelli kl. g í kvöld Stjórnandi Jóhann Tryggvason. Fræðslumálaskrifstofa fyrir Reykjavík. Nauðsynlegar umbætur á skólamálum bæjarins Viðtal við Helga Elíasson fulltrúa. t Hér í Reykjavík ber brýna nauðsyn lil að koma upp sérstakri fræðslumálaskrifstofu fyrir skólamálefni bæjarins, os' þá einkum þau er varðar umsjón og eftirlit með barnafræðslunni. Sam- kvæint fræðslulögunum ber skólanefndum að hafa þetta eftirlit með höndum, en j borg eins og Reykjavík er þetta svo margþætt og umfangsmikið starf, en skóla- nefndarmennimk' hinsvegar flestir bundnir við önnur tímafrek störf, að nauðsyn ber til að stofna sérstaka skrifstofu, er hefði skólamál bæjarins á sinni könnu.“ Þannig fórusl Helga Elíassynii fulltrúa orð, er tíðindaniaður Vísis liafði tal af honum í gær- kveldi, og liann bætti við: „Skólanefndirnar þurfa að liafa framkvæmdarstjóra til þess að annast framkvæmd og eft- irlit allra þeirra tillagna og á- kvarðana, sem gerðar eru til hagsbóta fyrir bamafræðsluna. Það er svo viðamikið starf, að það krefst meiri vinnu en skóla- nefndirnar geta af hendi leyst, þótt þær væru allar af vilja gerð- ar.“ „Hvert yrði aðal starfssvið slíkrar skrifstofu, og í hverju yrði eftirlitið aðallega fólgið “ „Það er ekki hvað sízt i því að hafa eftirlit með flutningi barna á milli skólahverfanna, sem út af fyrir sig er mjög svo tímafrekt starf. Það kom fljótlega í ljós eftir að barnaskólum í Reykjavík fjölgaði, að erfitt var að fylgj- ast með því, livort öll böm, sem sækja áttu hvern skóla, gerðu það. Það varð ennþá erfiðara eft- ir það, að kennslutiminn lengd- ist haust og vor. Þessir erfiðleik- ar orsakast að mestu af þvi, hve börnin flytjast oft milli skóla- hverfa á kennslutímanum og l>á einkum 14. maí og 1. október. Sá skóli, sem barn er innritað í, kemst að vísu fjótt að raun um það, ef það flytur úr skólahverf- inu, því að komi barn ekki í skólann án tilkynntra forfalla, sendir skólinn heim til þess. Hinsvegar er skólanum sjaldan tilkynnt, þegar barnið flytur burt úr skólaliverfinu, hvert það flutti, svo að skólinn, sem bam- ið var i, getur ekki tilkynnt hlut- aðeigandi skóla flutninginn. Þ;að getur þvi svo farið — og hefir alloft komið fyrir — að börn hafa ekki notið neinnar kennslu um lengri eða skemmri tíma, ef þau eða aðstandendur þeirra hafa ekki gefið sig fram við skóla þess skólahverfis, sem þau fluttu í. Sigurður heitinn Jóasson, skólastjóri Miðbæjarskólans og þóverandi borgarstjóri, Pétur sál. Halldórsson, munu hafa rætt um það, að komið yrði á laggirnar sérstakri skrifstofu eða deild i skrifstofum bæjarins sem m. a. fylgdist með flutning- um skólabama milli skólahverfa og tilkynnti skólastjóranum jafnóðum og skólabam flytti í hlutaðeigandi skólahverfi. Það hefir komið æ betur í Ijós síðan, hversu nauðsynlegt það er, að rekin verði skrifstofa, sem geti verið miðstöð fyrir skóla- mál bæjarins, — og þá einkum fyrir bamafræðsluna. En það em mörg önnur mál, sem fræðslumálaskrifstofa bæj- arins hefði til meðferðar. Hún ætti og þyrfti að annast fram- kvæmd þeirra tillagria og á- kvarðana sem skólanefndirnar gerðu. Forstöðumaður skrif- stofunnar yrði því að sjálfsögðu að vera skólafróður maður og vel að sér um þau mál, er skól- ana varða. I>á væri og eðlileg- ast, að þessi maður annaðist um þau störf bæjarskrifstofunnar, sem við koma barnafræðslunni og þeim skóla- og fræðslumál- um öðrum, er hærinn hefir af- skipti af. Hér skal ekki farið nánar út í að tilgreina, hversu margþætt starfssvið þessarar skrifstofu ætti að vera. Að sjálfsögðu yrði forstöðumanni hennar sett er- indisbréf og væri eðlilegast að það yrði gert í samráði við skólanefndirnar, skólastjórana, borgarstjóra og fræðslumála- stjóra.“ | „Hvað getið þér að öðru leyti sagt um skólamál Reykjavik- ur ?“ Hernám landsins hefir vist hvergi haft eins' truflandi áhrif á starfsemi harnaskólanna og liér í Reykjavík. Síðan landið var hernumið hefir vor- og haust- kennsla fallið niður. 7—10 ára börn hafa því misst rúmlega þriðjung þess kennslustunda- fjölda, sem þau hefðu annars fengið. Eins og nærri má geta er þegar farið að gæta afleiðing- anna af þessari skerðingu kennslutímans. Vegna þess, live mikil vöntun er orðin á kennsluhúsnæði fyrir harnaskólana, er svo þaulsett í hverja kennslustofu, sem skól- arnir hafa til umráða að vetrin- um, að engin leið er til þess að bæta bömunum upp þá kennslu, sem þau hafa farið á mis við sökum stvttingar skólatímans. Þegar byggð hafa verið skóla- hús þau, sem ráðgert er að reisa fvrir Laugarnesskólahverfi og | Skildinganesskólahverfi, þá má gera ráð fyrir að það bæti einnig úr þrengslum þeim, sem nú eru í hinum skólunum, einkum í Miðbæjarskólanum. Er þvi mik- ils um vert, að þessi nýju skóla- hús komist upp sem allra fyrst. En þýðingarmikið atriði fyrir skólamál bæjarins, sem hægt er að koma í kring þrátt fyrir setu- lið og húsnæðisvandræði, er fræðslumáiaskrifstofa fyrir Reykjavíkurbæ, og eg tel mikla þörf fyrir hana eins og málum er nú háttað, enda hafa allir stærri bæir erlendis og borgir sérstakar skrifsfofur fyrir fræðslumálefni sín.“ Bæjarstjórn Seyðisfjarðar hefir ákveðið að gefa 2000 krón- ur úr bæjarsjóði til Noregssöfnun- arinnar. K. R. vann knattspyrnumót 1. flokks. Hlaut það fögur stig, Valur 3 stig, Víkingur 3 stig og Fram 2 stig. ÞaS einkennilega viö þessi úrslit er það, að K. R. skorar að- eins 1 mark á öllu mótinu, en vinn- ur það þrátt fyrir allt. — SíSasti leikur mótsins var háður í gær- kveldi milli Fram og Vals, og vann Valur með 1 :o. UrSu örlög Fram í þeim leik jafn svipleg og með sama hæfti og í úrslitunum á meistaraflokksmótinu, að Framar- ar ætluðu að spyrna knettinum til markvarðar síns, en markvörður- inn náði ekki til hans og knöttur- inn fór i mark. Tveir Vestur-Islend- ingar heiðraðir. Tveir Islendirigar í Winnipeg | hafa nýlega getið sér frægð fyrir listir og men ningarstarf- semi þar í borg, og verið heiðr- aðir fyrir. Heita þeir Birgir Halldórsson og síra Valdimar J. Eylands. I aprílmánuði s.l. fór fram Birgir Halldórsson. ; keppni i söng og hljóðfæraslætti í Winnipeg. Var þar um árlega samkeppni skóla-, kirkju- og allra söng- og hljómlistarfé- laga í borginni. Heitir mót jietta Manitoba Musical Competition Festival. í einsöngskeppninni skaraði Valdimar J. Eylands. ungur íslendingur, Birgir Hall- dórsson að nafni, fram úr, og hlaut samtals 174 stig eða þrem- ur stigum hærra, en sá sem hlaut næst iiæstu einkunn. Voru þeir báðii- þó dæmdir miklu beztir og raddfegurð beggja rómuð. Birgir er frá Wynyard, en stundar uin þessar mundir nám í Winnipeg. Hinn íslendingurinn, síra Valdimar J. Eylands, var sæmd- ur nafnbótinni: Bachelor of Divinity af guðfræðideild Uni- ted College í Winnipeg, við upp- sögn hennar i St. Stephens Broadway-kirkjunni 16. apríl s.I. Nafnbót þessi er veitt fyrir nám og rannsóknir i kirkju- fræðum, og mun sennilega vera átt við bók þá, er hann hefir nýlega ritað og nefnir: „Saga lúterskrar kirkju í Canada.“ Sira Valdimar J. Eylands er prestur „Fyrstu lútersku kirkj- unnar“ í Winnipeg. Byrjaði hann að skrifa sögu kirkjunnar strax og hann fluttist til Winni- peg. Var það mikið verk, þvi að kirkjusagan nær til margra þjóðarbrota og þurfti þvi að viða allmildu efni víðsvegar að. Bókin er ópréntuð, en hún er mikið rit og lýsir kirkjulífi ]>eirra þjóðflokka, sera. lúterskr- ar trúar eru. Er þar mikinn og skemmtilegan fróðleik að fá, að því að talið er. (Samkv. Heimskringlu). FORD vörubíll model 1937, með nýrri vél og nýyfirfarinn til sýi>is og sölu eftir kl. 6 á liorni Hring- brautar og Njálsgötu. — Tilboð óska§t i nýjan 5 manna fólksbíl. — Uppl. Hverfisgötu 65 A. Bill til ulo Góðiur fjögra manna hill til sölu. Uppl. á Hofsvallagöfcu 21, eftir kl. 6. — 40 hestafla motor í góðu lagi til sölu og sýnis á bifreiðaverkstæðinu Frakka- stíg 1. — 12 iiiaiin&ft Bakelite-glös (stór og iitil með myndum), rakvélar og fleira. Galvaneseraðar fötur, balar og margt fleira. — ¥erzl. Katla Laugaveg 68. 8tarfs> stiílk 11 vantar á matsöluhús. Átta stunda vinnutími. Hátt kaup. Frítt fæði. Uppl. í síma 5346. Vandaðir grarðstólar » Húsgagnaverzlun Reykjavíknr GíUteppi til sölu, stærð 2.75x3.20 og 2.75x4.11, í Tjarnargötu 10 C I. hæð. — Ford 5 manna (eldra model) til 1 sölu og sýnis Frakkastíg 1, frá kl. 8—10 í kvöld. ✓

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.