Vísir - 07.08.1942, Qupperneq 1
Ritstjórar:
Kristján Guölaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
32. ár.
Reykjavík, föstudaginn 7. ágúst 1942.
Ritstjórar
Blaðamenn Sími: ‘
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S íinur
Afgreiðsla
155. tbl.
Þjóðverjar nálgast Maikop.
Tvær meginorrustur háðar í Rússlandi.
Síversnandi horfur í Kaukasus.
Þjóðverjar nálgast nú Maikop-olíulindirnar, en
úr þeim er olían, sem Svartahafsfloti Rússa
fær, en hann hefir nú aðalbækistöð í Nover-
ossisk, til norðvesturs á ströndinni. Mótspyrna Rússa
er mjög öflug á þessum slóðum, en þó hafa þeir orðið
að láta undan síga, þar sem annarstaðar á vígstöðvun-
um í Kákasiu. Á miðvígstöðvunum hafa Þjóðverjar
sótt lengst fram og langt suður fyrir Bielaya Glina, að
þeirra eigin sögn, eða alls frá Rostov á fjórða hundrað
kílómetra. Er þá miðað við framsókn þeirra hraðsveita,
sem lengst hafa komist. Þjóðverjar segjast og hafa rof-
ið tvær aðaljárnbrautirnar í Norður-Kaukasus.
Tvær meginorustur eru nú háðar í Rússlandi, í Norður-Kauk-
asus, og suðvestur af Stalingrad, þar sem Þjóðverjar liafa sótt
fram frá Tsymlyanskaya. — Öllum fregnum her saman um, að
Þjóðverjai- verði að leggja feikn mikið í sölurnar til þess að
halda uppi stöðugp stórsókn.
Skriðdrekaorustan mikla á
Kotelnikovsvæðinu um 150 km.
suðvestur af Stalingrad geisar
áfram. Hersveitir von Bocks
liafa fleiri skriðdreka en Rúss-
ar, sem hafa orðið að láta undan
síga, en Þjóðverjum mistekst
jafnan að sigra eða umkringja
liersveitir Rússa. Ekkert hendir
*
til annars en að undanliald
Rússa sé skipulegt. Fyrir sunn-
an Bilaya Glina og einnig fyrir
sunnan Ivuschevskaya liafa
Rússar hörfað til nýrri stöðva.
Norðveslur af Stalingrad veitir
Rússum hinsvegar öilu betur en
Þjóðverjum. Þeir hafa hindrað
framsókn þeirra, valdið Þjóð-
verjum meira skriðdrekatjóni
en nokkurstaðar annarstaðar og
jafnvel tekið allmarga fanga.
Allmikið er nú um það rætt,
ekki sizt vegna þess að Follett
Bradléy hershöfðingi, fulltrúi
Roosevelts er kominn til
Moskva, hvað handamenn muni
gera til þess að létta undir með
RússUm.
Óstaðfestar fregnir herma,
að Rússar séu þegar byrjaðir
að eyðileggja allar vélar og
tæki í olíustöðvunum í Mai-
kopsvæðinu. Rússar eru stað-
ráðnir í — neyðist þeir til
þess að hörfa undan frá
Maikop —, að ganga svo frá
olíulindunum, að Þjóðverjar
hafi þeirra ekki not um
langan tíma.
Eússar hefja sókn
hjá Rzehv.
Seinustu fregnir frá Rúss-
landi herma, að Rússar hafi
byrjað sókn á Rzhev-vígstöðv-
unum, norðvestur af Moskvu,
vafalaust til þess að létta und-
ir með herjum, sínum í Don-
liéruðunum. Þetta getur þó þvi
að eins heppnast, að þessi nýja
sókn Rússa reynist svo öflug,
að Þjóðverjar neyðist til að
flytja lið frá suðurvigstöðvun-
um norður á bóginn.
í London er gefið í skyn, að
hér kunni að vera um upphaf
allmikillar sóknar að ræða.
Þjóðverjar skýra frá mikl-
um áhlaupum Rússa á Rzhev-
vigstöðvunum.
Enn loftárásir
á Þýzkaland í nótt.
Brezkar sprengjuflugvélar
fóru til árása á Þýzkaland í
nótt. Er það þriðja árásarnóttin
í röð. Hinar tvær árásarnæturn-
ar voru gerðar árásir á Rulir-
hérað.
Síðari fregn hermir, að árás-
in hafi verið í allstóruin stíl.
Höfuðárásin var á Duisburg. ö
flugvélar Breta komu ekki aft-
ur.
Sprengjuinagnið, sem varpað
var á þýzkar borgir í júnímán-
uði var samt. 7.700.000 kg., en í
júlí um 6 millj. kg. Flugskilyrði
voru óhagstæðari í júlí.
Brezku blöðin birla myndir
teknar úr lofti sem sýna gífur-
legt tjón af völdum loftárásar-
innar sem fyrir skemmstu var
gerð á Saarhrucken. Leiða
myndirnar í Ijós, að á svæði,
sem er 6V2 hektar er að kalla
allt i rúst — og voru það aðal-
lega tvær 4000 punda sprengjur
sem tjóninu ollu, en þegar slíkar
sprengjur koma niður í þétt-
byggð hverfi hrynja heilar liúsa-
raðir. Komi þær niður i verk-
smiðjur eða vöruskemmur, þar
sem eldfim efni eru, verður
eyðileggingin vitanlega enn stór-
kostlegri.
í júhmánuði missti hrezki
flugherinn 432 flugvélar i loft-
hardögum yfir Vestur-Evrópu
og löndunum við austanvert
Miðjarðarhaf, en möndulveldin
samtals 568. Var þó brezki flug-
herinn jafnan i sókn. 55 mönd-
ulveldaskipum var sökkt í loft-
árásum.
Japanar taka eyjaklasa.
Japanska herstjórnin tilkynn-
ir, að Japanar hafi hernumið
eyjarnar Kio, Aru og Timor
Laut í Suðvestur-Kýrraliafi,
austast í Bandasjó. Timor Laut-
eyjaklasinn er sýðstur og að-
eins um 300 mílur frá Port
Darwin í Norður-Ástraliu. —
Fregnin hefir verið staðfest í
Ástralíu. Bandamenn töldu mik-
ilvægara að verja Port Moresby
í Guineu, sem Japanár liafa á-
formað að gera að aðal-innrás-
arbækistöð í Ástralíu, lieldur en
að dreifa kröflum sínum með
því að verja eyjáldasa þessa.
Stntt og Isiggott.
MEX. CITY: Ramon Novarro,'
sem kunnur var fyrir leik sinn
í kvikmyndum, liefir lýst yfir,
að hann muni gerast sjálfhoða-
liði í ' Bandaríkjahernum, ef
hann fái að halda mexicönskum
þegnréttindum.
YVASHINGTON: Stúlkur,
sem „mála sig“ eða reykja
vindlinga á götum úti, verða
ekki teknar í kvenna-hjálpar-
sveitir hers og flota.
BOMBAY: kongressnefndin
samþykkti í gær ályktun þess
efnis, að Kongressflokkurinn
krefjist þess, að Bretar fari frá
Indlandi, til þess að Indverjar
geti orðið handamenn liinna
frjálsu - sameinuðu þjóða í bar-
áttunni gegn ofbeldinu. •—
Gandhi hefir liótað að senda
landstjóranum, Linlithgow lá-
varði úrslitakosti, en reyna þó
fyrst að ná samkomulagi.
KAIRO: Stórskotalið Breta
>
hefir haldið uppi skotlmð á
stöðvar Þjóðverja á miðvíg-
stöðvunum.
LONDON: Brezka stjórnin
hefir ákveðið að koma upp
nýju herfylki í Palestina og
verður það hluti brezka hersins.
í lierfylki þessu verða sérstakar
Serba og Gyðingasveitir. —-
Gert er ráð fyrir, að 10.000
sjálfboðaliðar bjóði sig fram.
WASHINGTÓN: Bandaríkin
gáfu Wilhelminu Hollands-
drottningu herskip í gær, og fór
afhendingin fram með miklum.
hátíðleik. Roosevelt forseti af-
henti lierskipið. — Það er lítið
— ætlað til árása á kafbáta.
(Suhmarine cliaser)..
TOKIO. — Bandaríkjamenn efla nú mjög aðstöðu sina í Kina til þess að gera loftárásir á
stöðvar Jaþana í Kína, en átökin um bocgir og flugstöðvar í Chekiang og Kiangsi sýna, að
Japanir óttast að þaðan verði gerðar loftárásir á Tokio og aðrar borgir Japans, og i öðru lagi,
að Kínverjum og Bandaríkjamönnimi er það kappsmál, að ráða yfir flugstöðvunum í }>essum
tveimur fylkjum, en þaðan er hentast að gera loftárásir á Japan. — Myndin er af Tokio, tekin
úr lofti. í miðju er Rygokubaskibrúin og Shinoshashihrúin til liægri, yfir Sumidafljótið. —
Flest hús i Tokio eru byggð af timbri, með skiiveggjum aðallega gerðum úr pappa. Engum
stórborgum mun eins auðið að eyða í loftárásum sem stórhorgum Japan.
Hitaveitumálið rætt á
bæj arstj órnarfundi í gær.
10.000.000.00 kr. skuldabréfalán.
Á bæjarstjórnarfundi í gær var hitaveitumálið tekið til um-
ræðu og í sambandi við það bar borgarstjóri fram tvær tillögur,
sem báðar voru samþykktar með samhljóða atkvæðum við fyrri
umræðu.
önnur tillagan er urn það, að
bærin taki 10 milljón króna lán
í skuldabréfum, en hin um það,
að gerðir verði samningar við
Höjgaard & Schultz.
Tillögurnar eru svohljóðandi:
Bæjarstjórn samþykkir að
taka skuldabréfalán, til þess að
ljúka hitaveituframkvæmdum,
að upphæð allt að kr. 10,000,-
000,00 — tíu milljónir króna —
og felur bæjarráði að sjá um
lántökuna og ákveða lánskjörin,
Kongressflokkurinn leitar stuðn-
ings Roosevelts og Chiang Kai-
sheks. — Dr. Azad snýr sér til
Roosevelts og Chiang Kai-sheks.
Indverski Kongressflokkurinn mun snúa sér til höfuðleiðtoga
Bandaríkjanna og Kína og fara þess á leit, að þeir beiti áhrif-
um sínum til þess, að kröfur flokksins nái fram að ganga. —
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum fréttist í gær, að dr.
Azad, forseti flokksins, muni
snúa sér til Roosevelts forseta
og Cliiangs Kai-sheks mar-
skálks, og fara fram á, að þeir
styðji kröfur þeirda um, að
Bretar hverfi frá Indlandi.
Dr. Azad rnuii hinsvegar
skuldbinda flokk sinn til þess,
að hann beiti sér fyrir því, að
allir Indverjar sameinist um að
véiia vopnaða mótspyrnu gegn
liverri þeirii þjóð, sem gerir
innrás i Indland, og að Indlacd
seinji ekki rrn frið við Japau
upj) á eigin spýtur.
Dr. Azad er sagður hafa feng-
ið samþykki Gandhi til þess að
taka þetta skref.
Hvernig þeir Roosevelt for-
seti og Chiang' Kai-sliek mar-
skálkur snúast við þessu verður
ekkert um sagt, en þeir munu
áreiðanlega forðasl að gera
neitt, sem veikir aðstöðu banda-
manna i Austurlöndum og ann-
arstaðar, en það mundi án efa
haka mikla erfiðleika og alls
ekki vera áhættulaust, að breyta
um stjórn í Indlandi á þeim tim-
um sem nú eru, eða veita Ind-
verjum sjálfstæði fyrr en að
styrjöldinni lokinni.
Bretar hafa varað Kongress-
flokkinn við afleiðingum þess
að hefja mótþróabaráttu. Brét-
ar eru staðráðnir í að halda uppi
lögum og reglu í Indlandi og
munu ekki sinna neinum kröf-
um Kongressflokksins um að
hverfa frá Indlandi meðan stvrj-
öldin stendur, cn þeir nnmu
standa við öll sín loforð um
sjálfstæði Indlands að, styrjöld-
inni Iokinni.
en veitir borgarstjóra Bjarna
Benediktssyni fullt og ótak-
markað umboð til þess að und-
irrita skuldabréf fyrir láninu.
Bæjarstjórn veitir borgar-
stjóra Bjarna Bertediktssyni fullt
og óíakmarkað umboð til þess
með samþykki bæjarráðs og
með áskyldum fyrirvara um á-
byrgð á hitaveituefnivörum,
sem liggja í Kaupmannahöfn,
að sernja við A/S Höjgaard &
Schultz urn óhjákvæmilegar
breytingar á samningi bæjar-
stjórnar við firrnað, dags. 15.
júní 1939, um framkvæmd hita-
veitunnar frá Reykjum, eða gera
nýjan samning um að ljúka
verkinu.
Ennfremur sagði borgarstjóri,
að vonandi myndi mest alll efni
til hitaveitunnar vera komið
hingað innan skamms og þá
væri hægt að lialda áfram ó-
hindruðum framkvæmdum. í
hitaveitumálinu.
Reykiavíkurmótið:
Fram-Víkingur
3:0
Reykjavíkurmót í knatt-
spjThu hófst á íþróttavellinum
kl. 8 í gærkvöldi. Kepptu þá
Víkingur og Fram og lauk leikn-
um með sigri Fram, 3 mörkum
gegn engu.
Leikur, þessi var ekki sérlega
skemmtilegur og var fljótlega
útséð um það, liver úrslitin
mundu verða, því Framarar
báru af í leik sínum.
í fyrri hálfleiknum voru liðin
jafnari, en í þeím seínní, en
samt voru Framarar frekar i
sókn. Þessum hálfleik laufc þó
xneð jafntefli .
í seinni hálfleik sýndu Fram-
arar það fljótlega, að þeir höfðu
nokkurn hug á að sigra, og hófu
þeir nú sleitulausa sókn og
sýndu ágætan samleik á köflum.
í upphafi seinni liálfleiks tókst
Þórhalli i Fram að slcora þeirra
fvrsta mark, en Jón Magnússon
hætti svo tveimur við, þegar
nokkuð var liðið á leikinn.
Á sunnudagskvöld n. k. held-
ur mótið áfram með kappleik á
milli K. R. og Vals. Má vænta
þess, að það verði mjög spenn-
andi leilcur. g.
Þjóðhátíðinni í Vest-
mannaeyjum frestað.
Eins og gert var ráð fyrir,
átti Þjöðhátíðin í Vestmanna-
eyjum að hef jast í dag, en vegna
þess, hvað veður var óhagstætt,
hefur orðið að fresta henni
þangað til seinna.
Visir liafði sem snöggvast tal
af fréttaritara sínuih í Vestm.-
eyjum nú i inorgun, og sagðist
lionuin svo frá, að mjög margt
fólk væri komið til eyjanna, í
þeim tilgangi, að vera viðstatt
hátíðina. En eins og salcir
standa, er ógerningur einn að
efna til hátíðahalda undir ber-
um himni. Þó er ákveðið, að
liátiðin skuli hefjast strax og úr
rætist.
Sjómaður ritar
sókna.rnefnd Hallgrímskirkju.
„Vel ,'gekk Englands-ferðin, og
• hér með er tuttugu og fimm króna
áheit jiar að lútandi. Látið eitthvert
blaðið segja frá þessu og munu þá
fleíri félagar mínir muna eftir
kirkjunni á Skólavörðuhæð, — sem
á að verða oss öllum til sóma, —
þegar þeir leggja af stað í ferða-
lag um hættusvæðið, — og farnast
vel.“ —* * Um leið og þe^sum sjó-
manni eru jiakkir færðar fyrir það,
hvernig hann hugsar til „kirkjunnar
á Skólavörðuhæ'ð“, skal og minnzt
með þakklæti þeirra mörgu far-
manna, sem hafa sent áheit og gjaf-
ir í byggingarsjóð Hallgrímskirkju,
og oft látíð hlýjar kveðjur fylgja.
Fylgi þeim öllúm fararheill. S. E.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.25 Þingfréttir. 20.00 Frétt-
ir. 20.30 Erindi: Úr Þrændalögum
(Skúli Skúlason). 20.55 Hljónjplöt-
ur: Harmoníkulög. 21.05 íþrótta-
jjáttur (Jens Benediktsson, cand.
theol.). 21,20 Strokkvartet útvarps-
ins: Kvartett Op. 54. G-dúr, eftir
Haydn. 21.35 Hljómplötur: Söngr'-
ar úr óperuni. 21.50 Fréttir.