Vísir - 07.08.1942, Page 2

Vísir - 07.08.1942, Page 2
VISIR Hagnýting: mýraanðle^ðar l<*>- landi eitt af meitn verkefnnm framtíðarinoar. Iflýrunum má brcyfa í hitliaga, tún og“ skoglendi. I nýútkomnu Búnaðarriti birtir Steingrímur Stein- þórsson búnaðarmálastjóri „Hugleiðingar uin ræktun- armál“. í grein þessari kemst búnaðarmálastjóri að þeirri niðurstöðu, að mýrar verði aðal ræktunariand Is- Íendinga i framtíðinni, en áætlað er, að þær séu allt að millj. hektara að flatarmáli. Þar sem mýraræktin verð- ur án efa eitt af liinum miklu verkefnum framtíðarinn- ar þykir ástæða til þess að víkja að skoðunum þeim, sem fram koma í fyrrnefndum hugleiðingúm, og þá einnig að því, hvort eigi væri vert, að gera tilraunir til þess að í a úr því skorið, livort ekki mundi auðið að nota mýra- auðlegðina einnig á annan hátt, því að vitanlegt er, að mikið af mýraflæmum landsins verður aldrei tekið til túnræktar. VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla Hverfisgötu 12 (gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: 1 6 6 0 (fimm línuj). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasalá 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Hitaveitan. onhrigðin í sambandi. við hitaveituna hafa verið svo niikil og mörg að undanförnu, að almennt munu menn hafa verið orðnir vondaufir um, að hún kæmist upp meðan á stríð- inu stæði, og jafiivel dregið í efa, að nokkurt efni til hennar mundi flytjast liingað til lands af styrjaldarástæðum. Þær miklu tafir, sem, orðið hafa á framkvæmd hitaveitunnar, munu allar hafa verið óviðráð- anlegar, og er því ekki um að sakast, en livert mannsbam í landinu skilur, að hér er um hið mesta þjóðþrifafyrirtæki að ræða, sem ber að hrinda í fram- kvæmt strax og unnt reynist. Þrátt fyrir hrakspár og böl- sýni, flokkaríg og margskonar meting, er nú svo komið, að verulegur hluti af efni því, sem ætlað er til hitaveitunnar, er þegar komin liér i höfn, þannig að unnt er að liefja vinnu að nýju við framkvæmd verksins. Þótt alhnikið af efninu sé ó- komið ennþá, svo að engu er hægt að spá meðan sakir standa þannig um endanleg lok verks- ins, ber að leggja á það ríkustú áherzlu, að verkinu sé flýtt svo sem frekast er unnt, leiðslur lagðar og annar útbúnaður gerð- ur meðan efni endist, hvort svo sem verkinu verður að fullu lokið eða ekki fyr en eftir stríð. Engan er um að saka, ef allt er gert sem unnt er til þess að bjarga málinu heilu i höfn. Spádómur manna varðandi styrjöldina eru margir og mis- jafnir. Síðast í gær Iýsti útvarp- ið því, að einn stríðsfréttaritar- inn héldi því fram, að stríðinu yrði lokið innan fjöTutíu daga og nátta. Aðrir telja, og þar með sennilega allur þorri íslend- inga, að mestar likur séu til að striðið eigi enn eftir að standa lengi, og að við eigum erfiðasta hjallann framundan. Algerlega sé óvíst um aðflutninga til lands- ins, en þó sé vitað, að þeir munu sízt auðveldari hér eftir en hing- að til, enda geti vel svo farið, að slíkir flutningar teppist með öllu, þannig að nauðsynjar verði ekki fengnar, jafnvel þótt striðsgróði og samansafnað „Bretavinnu“kaup sé í boði. Beri því að leggja á það ríka á- herzlu, að gera allt sem unnt er til þess að draga úr óþarfa að- flutningi — gera landið sjálfu sér nóg svo sem frekast séu föng á. Það væri óverjandi hirðu- leysi, ef framkvæmd hitaveit- unnar þyrfti að tefjast af þeim sökum, að skortur reyndist á innlendu vinnuafli, enda ekki trúlegt, að sú verði raunin á. Að hverju á að vinna, ef ekki almannaheill, og hvaða fram- kvæmdir eru nú á döfinni, sem frekar eru aðkallandi en hita- veitan, þegar framleiðslustörf- in sjálf eru frá talin. Hér vinnur mikill fjöldi manns að allskonar framr kvæmdum, þörfum og óþörfum, í vafalaust myndu telja sér ð happ, að geta stuðlað að með vinnu handa sinna, að aveitan kæmist til fram- kvæmda. Það er engin ástæða til, að óreyndu máli, að bera kvíðboga fyrir því, að skortur verði á inníendu vinnuafli til l'essa verks, þótt nóg séu önn- m- verkefni fyrir hendi. Þeir, sem framkvæmd verks- ins hafa nieð höndum, munu flýta því sem frekast er unnt, og hafa þegar gert ráðstafanir til að tryggja sér verkafólk. Það mun stórlega létta yfir Reyk- víkinguin, J>egar vinnan hefst að nýju, með því að þótt þeir hafi manna mest umburðar- lyndi, hefir þeim þó sannarlega gramist allur sá langi dráttur, sem orðið hefir á verkinu. Þegar Iiitaveitan er tekin til starfa, mnn borgin taka stakkaskift- um, — á því er líka full þörf, — og borgararnir munu fá ýmsa möguleika til að hlynna að sér og sinum umfram það, sem, þeir hafa nú. Þau mál er hinsvegar óþarfi að ræða þar til verkinu er lokið — en þá mun hefjast nýtt tímabil í sögu Reykjavíkur. 90 ára í dag: Guðm. Guðmundsson bókbindari. 90 ára er í dag Guðmundur Guðmundsson bókliindari, Kára- stíg 14 hér í bæ. Hann hefir dval- ið hér í bænum í allmörg ár og ávalt unnið að verzlunarstörf- um. Guðmundur er söngmaður með ágætum og mjög áhuga- samur góðtemplar og hefir starfað mikið í anda bindindis- hreyfingarinnar hér á landi. — Guðmundur á marga vini og kunn.ingja, sem munu hugsa hlýlega til hans á þessum merk- isdegi í lífi hans. Kunningi. „Tjarnarbíó“ tekur til starfa í kvöld. Nú er endanlega lokið við smíði háskólabíósins við Tjarn- argötu og mun það nú taka til starfa í kvöld. Frumsýningin, sem verður í kvöld kl. 8V2, er eingöngu fyrir boðsgesti bíóstjói'iiarinnar og verða engir miðar seldir á þá sýningu. Aftúr á móti hefjast sýningar fyrir almenning á morgun og má vænta þess, að aðsókn að þessu nýja kvik- myndahúsi verði mjög mikil, þvi hvorttveggja er það, að mörgum leikur hugur á því að sjá þetta nýja liús og svo hitt, að aðsóknin að gömlu bíóun- um báðum liefir verið svo mikil, að nær ógerningur Iiefir verið að ná í miða, nema menn hafi lagt það á sig, að liúka timunum saman fyrir framan bíóin, áður en aðgöngumiðasala hófst. Þetta nýja kvikmyndahús hef- ir hlotið nafnið „Tjarnarbíó“ og hefir liáskólaráð tilnefnt þriggja manna nefnd til þess að annast rekstur bíósins. Nefnd þessi er þannig skipuð: Niels Dungal, prófessor, formaður, prófessor Gunnar Thoroddsen og próf. Jón Hjaltalín. Pétur Sigurðsson háskólaritari mun annast fram- kvæindastjórn hússins, að minnsta kosti fyrst um sinn. Um útlit liússins hefir áður verið talað hér í blaðinu og verð- ur það látið nægja. Verð á aðgöngumiðum er sem, hér segir: Almenn .sæti, niðri, kr. 1,50, betri sæti, niðri, kr. 2,25 og öll sæti á svölum kr. 3,00. Næturlæknir. Björgvin Finnsson, Laufásveg 11, sími 2415. — Næturvörður í Lyf ja- búðinni Iðunni. Tvö dæmi um nýbreytni í jarðræktarmálum. 1 Iiinni merku grein sinni nefnir búnaðarmálastjóri tvö dæmi um nýbreytni í ræktunar- málum. „Annað er um fram- sýnan og menntaðan bónda, sem tók allstórt mýrlendi við bæ sinii til fullrar þurrkunar, og notar landið síðan óbylt sem bit- haga fyrir búpening sinn. Hitt var um framkvæmdir ríkisins við.svipað verkefni (framræsla á landi því sem rikið hafði eign- ast úr Kaldaðarnestorfunni í Sandvíkurhreppi, eða „Sibiríu“ öðru nafni). Um hið síðara dæmið verður ekki fjölyrt hér, þótt þar sé margt, er áhuga- menn um ræktun ættu að kynná sér, en liins dæmisins verður getið frekara, þar sem sú*hag- nýting mýra, sem þar er gerð að umtalsefni, gefur bendingu um, að unnt yrði að hagnýta hinar víðlendu mýrar Iandsins á fleiri vegu en áður hefir verið um rætt, þ. e. að þurrka þær og nota sem bitliaga, og ef til vill er þarna einnig bending um hag- nýting mýranna á annan hátt en hefir verið um rætt, svo að kunnugt sé þeim.'er þetta ritar a. m. k., og verður nánara að því vikið síðar í grein þessari. Tilraun Magnúsar heitins á Blikastöðum. Hinn menntaði og framsýni bóndi, sem búnaðarmálastjóri, getur um í hugleiðingum sínum, er Magnús heitinn Þorláksson á Blikastöðum. Kafli sá, þar sem segir frá nýbreytni Magnúsar er svo liljóðandi: „Þótt hér að framan hafi ver- ið á það bent, að yfirleitt séu tún okkar of litið þurrkuð, þá mega þó engir ætla, að ekki hafi marg- ir gert vel í þessum efnum. Svo er fyrir að þakka, að margir bændur hafa þrátt fyrir mikla erfiðleika þurrkað túnstæði sitt til fulls. Það eru brautryðjendur í nútima túnrækt, og ber að þakka þeim. Eg vil nefna hér eitt dæmi, sem sýnir óvenjulegan skilning og þekkingu á því, á hvern hátt 'beri að standa að ræktunar- störfum. Magnús bóndi Þorláksson á Blikastöðum stendur í allra fremstu röð íslenzkra bænda um allt er að jarðrækt lýtur. Eg mun ekki hér skýra almennt frá starfi hans á þessu sviði, þótt það væri maklegt, því að það er bæði mikið og gott. En eg vil aðeins nefna eitt af mörgu, sem liann hefir framkvæmt. Fyrir 10—12 .árum síðan tók Magnús um 30 ha. af mýri til þurrkunar. Land þetta var venjuleg hallandi mýri, þar sem mýrastör og brok voru ríkj- andi jurtir. Magnús ræsti land- ið með lokræsum og hafði 12 metra á milli þeirra. ÞaU munu hafa verið um 120 cm. á dýpt. Síðan liefir Magnús látið land þetta liggja óbrotið og notað það til beitar fyrir kýr sínar. Hann hefir borið á það tilbúinn áburð öðru hyoru. Gróðurfar landsins er nú gerbreytt. Heilgrös eru að ryðja sér til rúms og munu von bráðar útrýma hálfgrösum að mestu. Þarna var hezti bithagi fyrir kýr, sem áður var lítils — eða einskis virði. Nýmælið lijá Magnúsi er það, að láta landið liggja óbylt svona lengi eftir að það var þurrkað að fullu. Nú er þarna afbragðs tún- stæði, sem mun, þegar búið er að rækta það, geta gefið 70—80 hesta af töðu af lia. Á þennan hátt eiga bændur að haga rækt- un sinni framvegis. Magnús er eini bóndinn hérlendis, sem eg veit um að hafi þurrkað land í stórum stíl og notað það síðan sem bitliaga um alllangt árabil, áður en það er fullræktað. Eg vil ráðleggja sem flestum bænd- um að skoða mýrina lians Magn- úsar. Gera samanburð á órækt- armýrinni við hliðina á þurrk- aða landinu, sein nú er að breyt- ast í eitt frjóasta harðvelli, sem til er hér á landi. Slíkir sýnis- reitir þyrftu að vera í flestum byggðarlögum, svo að bændur gætu séð að hverju beri að keppa varðandi mýraræktina.“ Af ræktanlegu landi er mýrarjarðvegurinn víðáttumestur. Búnaðarmálastjóri leiðir at- hygli að því, að af ræktanlegu landi sé mýrarjarðvegurinn lang viðátlumestur eða allt að 1 mill. hpktara að flatarmáli.*) „Þótt allmikið af því landi verði aldrei til ræktunar tekið, þar sem mýrar upp til f,jallg og heiða eru óhæfar til ræktunar vegna þess, að þær liggja ekki á byggilegum stöðum, þá eru geisileg flæmi í bj'ggðum, sem má rækta, og er nauðsynlegt að taka smátt og smátt til fram- ræslu og síðar til ræktunar". — „Yfirleitt er íslenzkur mýra- jarðvegur ákjósanlegur til rækt- unar. Hann er steinefnaríkari en sams konar jarðvegur víðast hvar erlendis. Stafar það af upp- blásturs sandfoki, sem berst af öræfunum út yfir landið og staðnæmist hvað auðveldast í mýrum. Mýrarnar íslenzku eru því frjóefnaauðugar og eðlis- góðar, þótt þær séu að sjálf- sögðu nokkuð misjafnar að gæðum. Það er þetta land, sem framtíð islenzks landbúnaðar hvílir á. Efniviðurinn er eins góður og frekast er hægt að gera kröfu til. Við þurfum að læra að grafa gull úr mýrunum. Með því á eg við það, að við lærum að rækta þær á réttan hátt, svo að hinn ótæmandi frjóefnaforði þeirra breytist í verkmiklar af- urðir, hvort sem er hey, korn- tegundir eða garðávextir.“ *) Skógræktarstjóri telur að hér sé of hátt áætlað. Mýrarnar muni ekki yfir 750.000 ha. í mesta lagi. Véltækni nútímans skap- ar nýja möguleika til þess að rækta mýrarnar. Eins og þegar hefir verið get- ið hér í blaðinu hafa nú verið fengnar hingað til lands stórar skurðgröfur, og reynsla sú, sem þegar hefir fengist af notkun þeirra bendir til, að hin mesta stoð verði að þeim við fram- kvæmd liins mikla verkefnis, að ræsa fram mýrarnar og þurrka þær, til úndirbúnings ræktun. Véltækni nútímans hef- ir skapað nýja möguleika, lil þess að unnt verði að hefjast handa um framkvæmdir á þessu sviði. Verkefni um langa framtíð. Það má fullyrða, að það sé verkefni um langa framtið, að taka til ræktunar það mýi-lendi hér á landi, þar sem skilyrði eru góð til notkunar hinnar stóru og mikilvirku véla, sem hér um ræðir. En skapast hér ekki einn- ig möguleikar til þess að nota þær til þess að grafa þurrkunar- skurði í því augnamiði að koma upp góðum bithögum, eins og Magnús heitinn á Blikastöðum, en á fjölda mörgum jörðum, þar sem víðáttumiklar mýrar eru, er mjög lélegur bitliagi fyr- ir kýr, ekki sízt á mörgum jörð- um, þar sem sauðfjárrækt liefir úm langan aldur verið aðal- tekjulindin, en menn nú hafa breytt um og fjölgað kúm, vegna þess að sauðfjárstofninn liefir rýrnað að mun eða hart nær gengið til þurrðar, vegna þess usla, sem sauðfjárpestirnar hafa gert. Er unnt að rækta skóg í mýrunum? Þeim, er þessar línur ritar, flaug í hug við lestur gi-einar búnaðarmálastjóra, hvort ekki væru hér að skapast möguleikar til nýbreytni í skógræktarmál- unum, hvort ekki væri vert að gera tilraunir til þurrkunar á mýraflæmum, i því augnamiði að rækta þar skóg, því að af nógu er að taka, þar sem mýra- flæmin í landinu eru allt að I milljón hektarar að flatarmáli og skurðgröfur ríkisins fyrir hendi til þess að grafa þurrkun- arskurðina. Það er kunnugt, að ýmsar trjátegundir þrífast vel í mýrlendum jarðvegi, og nokkur þurrkun mun verða til þess að örva mjög vöxt hins nýja gróð- urs, er hann kemst á legg, en hérlendis munu mýrarnar viðast of blautar til skógræktar. Ef ráðist yrði í slíkar tilraunir væri athugandi, hvort ekki væri rétt að búa svo í haginn ó einhvern hátt, að gróðursetningin yrði verkefni æskulýðsins, undir umsjón Skógræktar ríkisins, en það mega menn vita, að er þeir tímar koma, þegar dansinn liættir um þann gullkálf, sem nú er víða mest tignaður, verður að beina starfsorku æskulýðsins að hollum verkefnum — og mætti fyrr vera. En skógræktin er eitt þeirra. Álit skógræktarstjóra, Hákonar Bjarnason: Það er gerlegt að rækta skóg í ís- lenzku mýrunum. Greinarhöfundur hefir spurt Ilákon Bjarnason skógræktar- stjóra um það, hvort hann teldi mýrar hér á landi vel til skóg- ræktar fallnar. — Það er gerlegt að rækta Nýtt nautakjöt, Kjöt & Fiskur, horni Baldui-sgötu og Þórs- götu.------- Síniar 3828 og 4764. — Tómatar, agúrkur og rabarbari. Kjöt & Fiskur, liorni Baldursgötu og Þórs- götu. ------ Simar 3828 og 4764. — Nokkrar stúlkur geta fengið ákvæðisvinnu. Mánaðarkaup kemur einnig til greina. — Uppl. á skrifstofu F. f. I. Skólastræti 3. Sími 5730. — 5 manna Bíll model ’ 39, til sölu, af sér- stökum ástæðum. Uppl.á Bif- reiðastöðinni Geysi kl. 5—8. Nýkomið: SVESKJUR og RÚSlNUR. ZJAW/Y) m SIM1 5775 skóg i islenzku mýrunum, svar- aði hann, tilraunir, sem gerðar hafa verið í þá átt, þótt í smáum stíl séu, sanna það, en vitan- lega eru mýrarnar misjafnlega vel til skógræktar sein annarar ræktunar fallnar. — Ilvaða ræktunaraðferð er • algengust við skógrækt i mýr- um? — Aðferðin er ódýr og ein- föld. Sáð er fræi, áður en ræst er fram, og ekki ræst fram fyr en eftir 2—3 ár. Hákon Bjarnason sagði enn- fremur, að skógræktin hefði) mikla framtíðarþýðingu fytrir búskapinn í landinu, skógrækt- in gæfi af sér góðan arð, en hún tekur sinn tíma og menn verða að sætta sig við að bíða eftir árangrinum. Það er eitt af mestu framtíð- armálunum, að klæða landið skógi og mætti vel byrja á skóg- rækt með þvi móti, sem að fram- an var að vikið, í skóglausu sveitunum. Málið er vel þess vert, að því sé gaumur gefinn. I hinu stutta viðtali við skóg- læktarstjóra lét hann þess getið, að hann mundi að líkindum í haust ræða skógræktarmálin við útvarp og blöð frá ýmsum híiðum, og verður þvi ekki frek- ar að þessu vikið að sinni. % Niðurlagsorð. Skógræktarstjóri segir i stór- merkri grein, Ábúð og örtröð, sem birtist í Ársriti Skógræktar- félags Islands 1942: „Gróður landsins og jarðveg- ur þess eru langþýðingarmestu verðmætin, sem oss hafa hlotn- ast“ — og —: „— getum vér hafist handa um að klæða landið, og nfcg er verkefnið, sem blasir við. Undir

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.