Vísir - 15.08.1942, Page 2
VISIR
Samgöngiibætiir á
¥e§tnrlandi.
Þingmenn úr Sjálfstæðisflokknum bera fram tiilögur
til þingsályktunar um aðkallandi samgöngu-
bætur á Vesturlandi.
Tillögurnar f jalla um samgöngur milli hafna á
Breiðafirði, Reykjavíkur og kauptúna í Vestur-Barða-
strandarsýslu, vegagerð inn með Patreksfirði og bimar-
gerðir á Barðaströnd.
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötn 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 16 60 (fimm línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
»Friðarsóknin«
Framsóknarflokkurinn hefir
lagt fram álitsgerð varð-
andi kj ördæmabrey tinguna,
sem ákveðin er í frumvarpi þvi
til stjórnskipunarlaga, sem ligg-
ur nú fyrir Alþingi til endan-
legrar afgreiðslu. Leggur flokk-
urinn eindregið til að frumvarp-
ið verði fellt. Aðrir flokkar hafa
skilað sameiginlegu nefndaráliti
og leggja til að frumvarpið verði
samþykkt óbreytt, en að baki
þeim standa 29 þingmenn, þann-
ig að um algeran meiri hluta er
að ræða á Alþingi. Að því er
snertir vilja þjóðarinnar í þessu
efni, þá liggur hann mjög skýrt
fyrir. 42 þúsundir kjósenda
voru breytingunum fylgjandi,
en liðlega 16 þúsund andvígir.
Kj ördæmamálið er því í raun-
inni úr sögunni, að öðru leyti en
því, að þingmenn eiga eftir að
greiða um það atkvæði,
formsins vegna en ekki efnis-
ins.
Þetta hefði Framsóknarflokk-
inum mátt vera ljóst, og hefði
hann því sem lýðræðisflokkur
átt að lúta staðreyndunum og
haga sér í samræmi við það og
láta af liarðvítugri andstöðu
gegn kjördæmabreytingunni,
sem heita má að sé endanlega
afgreidd. Hefði verið eðlilegt að
flokkurinn liefði tekið upp starf
á Alþingi með öðrum flokkum,
alveg án tillits til þess máls, og
lagt sig allan fram um lausn
vandamálanna, sem eru mörg
og margvísleg. Hefði það vafa-
laust orðið þjóðarheildinni fyrir
beztu, að enginn flokkur skærist
úr leik, þegar nauðsyn krefur
og van>da ber að höndum.
Framsóknarmenn líta öðrum
augum á málið. í álitsgerð
flokksins er birt bréf eitt, er.
flokkurinn hefir sent hinum
þingflokkunum öllum, en merg-
ur þess máls er, að Framsókn
lýsir þar yfir. því, að hún sé
reiðubúin til samstarfs um
vandamálin, en þó þvi aðeins,
að horfið|verði frá endanlegri
afgreiðslu kjördæmamálsins.
Er lögð sérstök áherzla á það,
að deilur um þetta mál muni
standa fram yfir næstu kosning-
ar og hver veit hvað, og á með-
an kæmi ekkert samstarf varð-
andi vandamál þjóðarinnar til
greina. Þýðir þetta í rauninni
það, að flokurinn skorast undan
allri áhyrgð um afgreiðslu þing-
mála, en það er ekkert merkara
fyrirbrigði en svo, að fleiri slik
dæmi finnast i sögu flokksins,
t. d. er Hermann Jónasson lýsti
yfir því, sem forsætisréðherra,
að hann væri ábyrgðarlaus og
friðhelgur vegna allra þeirra
þingmála, sem kænvu til greina
í stjórnartíð hans.
F.instakir þingmenn Fram-
sóknarflokksins hafa að undan-
förnu keppzt við að bera fram
frumvörp til þess að skýra af-
stöðu flokksins í ýmsum vanda-
málum, en allt hefir þetta verið
gert einvörðungu með tilliti til
þess, að kosningar eru væntan-
legar í haust. Nákvæmlega á
sama hátt þykir Framsókn
tilhlýðilegt að þvo hendur sínar
vegna allra þeirra vandamála,
sem framundan eru, og segja:
Ekki er mín ábyrgðin hvernig
komið er. Eg bauð samvinnu,
en hún var ekki þegin. I slikum
áróðri er að sjálfsögðu öllum
sannleika snúið við. Hér er i
rauninni ekkert samvinnuboð
fyrir liendi. Framsókn er það
Jjóst, að aðrir þingflokkar geta
ekki horfið frá afgreiðslu kjör-
dæmamálsins, nema þvi aðeins
að þeir beinlínis sviki alla þá
kjósendur, sem greitt Jiafa þeim
atkvæði og falið þeim umlxið
á Alþingi. Samvinha, sem
byggðist á slíkum grundvelli,
gæti aldrei talist giftusamleg
fyrir þjóðina og myndi engan
vanda leysa, en slcapa nýja.
Þetta skilyrði er því í rauninni
Jiein synjun fyrirffam um alla
samvinnu og annað ekki.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir á-
vallt verið þess livetjandi, að
allir þingflokkar Jiefðu sem
nánasta samvinnu sín í millum
um afgreiðslu allra þeirra mála,
sem alþjóð vörðuðu, og senr
liæru henni nokkurn vanda að
höndum.Hefir flokkurinn þann-
ig þráfaldlega sýnt, að honum
er full alvara í þessu efni, bæði
með því að taka upp stjórnar-
samvinnu, sem öllum var ljóst
að hvorki yrði vandalaus né
vinsæl, vegna liinna margvis-
legu erfiðleika, sem að höndum
hlutu að bera, og einnig hins,
að til þess að forða vandræðum
varð að ganga nær rétti ein-
staklinganna í ýmsum greinum,
en tíðkast á venjulegum friðar-
tímum. Til þess að halda friðin-
um liefir flokkurinn einnig þrá-
faldlega slegið af stefnumálum
sínum og sætt sig við ýmsar ráð-
stafanir, sem gera þurfti, og
jafnvel tekið ábyrgð á þeim af
þeim sökum, að þjóðarnauðsyn
krafði. Flokknum er það mæta-
vel ljóst, að erfitt er að stjórna
í landinu nema því aðeins að hin
bezta samvinna ríki millum
vinnuveitenda og vinnuþega til
sveita og sjávar, en enginn einn
flokkur þarf að ætla sér að liann
geti stjórnað, nema því aðeins,
að stefnt sé í beinan voða. —
Marka má af ýmsum ráðstöfun-
um Framsóknarflokksins, að
hann var þess alhúinn að stofna
til vandræða i landinu, sem ó-
fyrirsjáanlegar afleiðingar hlutu
að liafa, en samvinna Sjálfstæð-
isflokksins og veikalýðsflokk-
anna hefir varnað því i bili.
í fullu samræmi við fyrra
skilning sinn á nauðsyn sam-
vinnu allra flokka, liefir Sjálf-
stæðisfloldcurinn nú svarað
hréfi Framsóknar á þann veg,
að: Kjördæmamálið sé í raun-
inni þegar afgreitt, og að
Flokkurinn sé reiðubúinn til
samvinnu við alla aðra flokka
um lausn vandamálanna og
muni tilnefna menn af sinni
hálfu til þess að hafa slíkar sam-
vinnuumleitanir með höndum.
— Ef Framsóknarflokkurinn
meinar eitthvað með samvinnu-
hjali sínu, ber honum þvi, alveg
án tillits til kjördæmamálsins,
að beita sér fyrir samvinnu allra
flokka um lausn vandamálanna,
og honum myndi vafalaust
reynast auðvelt að koma slikri
samvinnu á. Ef hér er hinsvegar
aðeins um Pilatusarþvott að
ræða, og beinan yfirgang, mætti
Framsóknarflokkinum vera það
ijóst, að staða hans, innan þings
og utan, er ekki eins sterk og
hann ætlar, ef aðrir flokkar
þingsins bera gæfu til fullrar,
þjóðlegrar samvinnu um lausn
vandamálanna. Þetta breytir
hinsvegar að engu leyti því, að
bezt væri að allir flokkar ynnu
saman á þessum vandræðatím-
ums að að skyldan í þvi efni
hvilir jafn þungt á Framsóknar-
flokkinum, sem öðrum, bregðist
hann ekki þjóð sinni á stund
neyðarinnar.
Nætorlæknir.
Dr. Jóhannes Bjömsson, Sól-
vallagötu 2, sími 5989. ■— Nætur-
vörður í Laugavegs apóteki.
Aðra nótt: Úlfar Þórðarson, Sól-
vallagötu 18, sími 4411.
Þeir Gísli Jónsson, Þorsteinn
Þorsteinsson og Gunnar Thor-
oddsen flytja eftirfarandi til-
iögu til þál.: 1
Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninr.i að útvega þegar hent-
ugt skip, til þess að haida uppi
vöru- og farþegaflutningum
milli hafna á Breiðafirði í sam-
bandi við Reykjavík og kaup-
tún í Vestur-Barðastrandasýslu,
þegar á þessu ári. Skipaútgerð ,
ríkisins sé falið að gera ferða- 1
áætlun fyrir skipið eftir tillög-
um frá héraðsstjórninni og að-
alverzlunarfyrirtækjum við-
komandi héraða.
I greinargerð eru leidd ítarleg
rök fyrir því, að vegna hins
breytta viðhorfs í strandferðum
landsmanna hafa hafnir um-
liverfis Breiðafjörð orðið mjög
útundan með samgöngur. Þá er
bent á, að skip af hentugri
stærð virðast nú vera að hætta
fiskflutningum til Englands og
ætti því að verða auðið að fá
lientugt skip til þessara ferða.
Gísli Jónsson flytur tillögu til
þál. þess efnis, að Alþingi heim-
ili ríkisstjórninni að leggja fram
fé á þessu sumri til áframhald-
andi vegagerða inn með Patreks-
firði, allt að 30 þús. kr.
í greinargerð segir, að fyrir
nokkrum árum hafi verið haf-
izt handa um vegarlagningu frá
Geirseyri við Patreksfjörð inn
með Patreksfirði um Rakna-
dalshlíð áleiðis í Botn við Pat-
reksfjörð. „Er svo til ætlazt, að
vegur þessi greinist við Botnsá
og liggi önnur álman yfir Kleif-
arheiði áleiðis til Barðastrandar
og verði í framtíðinni aðalveg-
ur á milli Patreksfjarðar og
í tilkynningu skemmtinefnd-
arinnar segir ennfremur:
„Skemmtunin hefst sunnu-
daginn 16. þ. m. kl. 4 e. h. og
henni lýkur sunnudaginn 23. þ.
m. kl. 11,30 að kvöldi. Sunnu-
dagana báða hefst hún kl. 4, en
virku dagana hefst hún kl. 7 og
alla dagana lýkur henni kl.
11,30.
Skemmtisvæðið verður afgirt
og verða seld aðgöngumerki að
því dag hvern á 2 krónar. Á
skemmtisvæðinu verður eftir-
farandi til afþreyingar:
Upplýstur danspallur með
dansundirleik, sem útvarpað
verður með hátalara og kostar
hver dans 0.25 fyrir parið.
„Kabaret“-tjald, þar sem
galdramaður sýnir listir sínar,
havaiskur kór syngur með und-
irspili á þarlend hljóðfæri, ung-
Suðurlands um Barðaströnd o.
s. frv. — Vegi þessum hefir
miðað sáralítið áfram vegna ó-
nógra fjárframlaga, en með 30
þús. kr. fjárframlagi ætti veg-
urinn að komast að Botnsá í
sumar.“
Gísli Jónsson her fram til-
lögu til þál. þar sem skorað er
á ríkisstjórnina að láta þegar á
komandi hausti setja hrú á
Haukabergsá á Barðaströnd og
hrýr á Arnarbýlu og Móru hið
allra fyrsta.
önnur ný þingmál.
Sigurður Kristjánsson og Sig-
urður Bjarnason flytja tillögu
til þál. um styrki til byggingar
fiskiskipa: Alþingi ályktar að
lieimila ríkisstjórninni að verja
tveim milljónum kr. af tekju-
afgangi rikissjóðs árið 1941 til
þess að styrkja menn til bygg-
ingar og meiriháttar aðgerða
fiskiskipa, eftir reglum, sem
ríkisstjórnin setur. Styrkjunum
verði úthlutað að fengnum til-
Jögum Fiskifél. Islands.
Eiríkur Einarsson flytur til-
lögu til þál. um að ríkisstjórnin
láti framkvæma þegar á þessu
sumri nauðsynlegan undirbún-
ing til stofnunar bændaskóla
þeim., er reisa skal á Suðurlandi.
GísJi Sveinsson flytur tillögu til
þál. um tilhögun flutniúga á
langleiðum. Athuga skal ræki-
Jega hvernig vöru- og nauð-
synjaflutningum á langleiðum á
Jandi verði bezt fyrir komið, og
verði t. d. athugað, hvort eigi
muni hagkvæmast að stærri
Jieildir svo sem hérað eða riki
taki slíka flutninga að sér.
frú Sif Þórs og dansnautur
hennar dansa í gervi „Pjerrots“
og „Harlekins“, frú Hallbjörg
Bjarnadóttir og óperusöngvari
Pétur Jónsson syngja, félagamir
Ágúst Bjamason og Jakob Haf-
stein taka lagið og Alfred And-
résson og JLárus Ingólfsson
skemmta með gamanvísum. \
Þá verður stórt veitingatjald,
þar sem ýms þessa heims gæði
eru fáanleg, tjald með ýmiskon-
ar spilum og leikjum, tjald þar
sem sýndur verður barnaleikur,
sem FriðfinnurGuðjónsson leik-
ari annast um og loks verða
klifurstengur fyrir ungviðið,
þar sem til ýmissa verðlauna
verður að vinna.
Á skemmtisvæðinu verður
ennfremur tombóla og kvadr-
ant-happdrætti, öl- og gos-
drylíkjaveitingar við bar, heitar
»Tivoli« í Hljóm-
skálagarðinum.
„Átta daga opinber skemmtun
með ýmsum gleðskaparbrögðum“
Eins og þegar hefir verið getið hér í blaðinu eru stúdentar að
koma sér upp nýjum Stúdentagarði, þar sem þeir hafa orðið á
bak að sjá hinum gamla stúdentagarði sínum. Margir hafa
hlaupið drengilega undir bagga til þess að stuðla að því, að hinn
nýi stúdentagarður komist upp, en þó skortir mjög að nægilegt
fé sé fyrir hendi til fyrirtækisins. Hefir stúdentnm nú hug-
kvæmst „að halda átta daga opinbera skemmtun í Hljómskála-
garðinum með allskonar gleðskaparbrögðum", eins og skemmti-
nefndin kemst að orði. Fyrirtækið nefnist Tivoli.
Bæjar
fréftír
Messur á morgan.
/ dómkirkjunni kl. 11, síra Bjarni
Jónsson.
HaUgrímsprestakall. Messa í
Austurbæjarskólanum kl. 2, síra
Sigurbjörn Einarsson.
/ Hafnarfjarðarkirkjii kl. 2, sira
Garðar Þorsteinsson.
í minningargreininni
um Skúla Gíslason, lyfjatræðing,
sem liirtist hér í blaðinu í gær, átti
undirskriftin að vera Þ. Ö., en ekki
Þ. G., eins og var.
86 ára afmæli á í dag
frú Greta María Sveinbjörnsdótt-
ir frá Kárastöðum, nú til heimilis
á Skólavörðustíg 15.
Fimmtugur
er i dag Hannes Einarsson, fast-
eignasali, Óðinsgötu 14.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.25 Hljómplötur: Norræn
lög, leikin og sungin. 20.00 Frétt-
ir. 20.30 Leikrit: „Ferhyrningur-
inn“ eftir Ellen Kirk (Haraldur
Bj örnsson, Svava Jónsdóttir, Dóra
Haraldsdóttir og Jón Sigurðsson).
21.10 Útvarpshljómsveitin: Gömul
og vinsæl danslög. 21.30 Hljómplöt-
ur: Vínarvalsar o. fl. 21.50 Fréttir.
Þingfréttir. Danslög til 24.00.
Útvarpið á morgun.
KJ. i2.io—13.00 Hádegisútvarp.
14.00 Messa í Hallgrímskirkju (síra
Sigurbjörn Einarsson). 15.30—
16.30 Miðdegisútvarp (plötur) : a)
Kirsten Flagstad syngur. b) Lög
úr tónfilmum. 19.25 Hljómplötur:
Tónverk eftir Elgar og Sibelius.
20.00 Fréttir. 20.20 Einleikur á
fiðlu (Þórarinn Guðmundsson):
Sónata í e-moll eftir Sjögren. 20.35
Erindi: Ævintýri úr grískri forsögu
(Jón Gíslason dr. phil.). 21.00
Hljómplötur: Lög leikin á ýms
liljóðfæri. 21.20 Upplestur: Kvæði
(Karl Isfeld blaðamaður). 21.35
Danslög. (21.50 Fréttir). 23.00
Dagskrárlok.
Hjúskapur.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band, ungfrú Björg Guðmundsdótt-
ir, Markússonar skipstj., og Brand-
ur Brynjólfsson, stud. jur.
Þ. 11. þ. m. voru gefin saman
í hjónaband af síra Sigurbirni Ein-
arssyni, ungfrú Ingileif Alvilda
Jakobsdóttir og Jón Friðrik Valby
Gunnarsson. Heimili þeirra er í
Höfðaborg 22.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band ungfrú Laufey Á. Ingjalds-
dóttir, Bakkastíg i, og Gunnar A.
Jónsson, Marargötu 6. Heimili
þeirra verður á Ránargötu 35.
Þ. 9. þ. m. voru gefin saman í
hjónaband af síra Sigurbirni Ein-
arssyni, ungfrú Inga Jenny Þor-
steinsdóttir og Óskar Líndal Arn-
finnsson. Heimili þeirra verður
fyrst um sinn á Stað á Seltjarnar-
nesi.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band af síra Sigurbirni Einarssyni
ungfrú Sigríður Hannesdóttir og
Erlendijr Erlendsson. Heimili þeirra
verður á Njálsgötu 110.
Helgidagslæknir.
Kristbjörn Tryggvason, Skóla-
vörðustíg 33, sími 2581.
40 biðn bana
í Delhi.
Fjörutíu manns hafa alls
beðið bana í óeirðunum í Delhi
í vikunni og 58 særzt.
I gær voru aðeins hópgöngur
í Bombay, en að öðru leyti var
allt rólegt í landinu, að því er
fréttaritarar sima. Hefir orðið
minna um óeirðir en stjórnin
hafði óttast og þakkar hún það
þvi, hversu forvigismennirnir
voru skjótt teknir „úr umferð“.
pylsur verða seldar, sælgæti ög
vindlar og loks gasfylltir loft-
belgir.
Aðgangur að skemmtunum
þeim, sem hafðar eru á
skemmtisvæðinu, verður seldur
sér á parti, en allt verður
skemmtisvæðið skreytt og ljós-
um prýtt.
Þó tilgangur vor sé vitanlega
að afla f jár til Stúdentagarðsins,
er það þó jafnframt vpn vor,
að skemmtun þessi verði til
nokkurrar tilbreytni í hinu fá-
skrúðuga skemmtanalífí bæj-
arins.‘‘
til sölu, IV2 tonn, við Hveri-
isgötu 16, kl. 5—8 í dug. — |
Ibúðarhús
(nýtízku) með 3—4 Iier-
bergja íbúðum óslcast til
Jcaups, með lausri ibúð 14.
maí n. k. Útborgun 75 þús.
krónur.
TilJioð með nákvæmum
uppl. sendist Vísi fyrir 20. þ.
m„ merkt: „1943.“ —
OBnikÉpnr
Höfum nú aftur fallegar
dömukápur.
SAUJMASTOFAN
Díana
Ingólfsstræti 3.
Attiugid
Sá, sem hefir ráð á plássi
fyrir veitingar eða þess hátt-
ar getur fengið í félagsskap
með sér útlærða matreiðslu-
konu.
Peningaframlag kemur til
greina. Fullri þagmælsku
heitið.
Tilboð. merkt: „Áreiðan-
leg“ sendist blaðinu fyrir 18.
þ. m. —-
10 liiliiunil kr. lin
óskast, gegn tryggingu. Til-
boð, merkt: „XM“ leggist inn
á afgr. blaðsins fyrir 17. ág-
úst. —
VIL KAUPA
lltíð lllÍK
helzt í bænum. Má vera i
slæmu standi, jafnvel óinn-
réttað. Skipti koma til greina
á húsi við Langholtsveg, sem
er 3 stofur og eldhús. Tilboð,
merkt: „Skipti“ sendist Vísi
fyrir 20. þ. m. —
GÖÐ
5 manna
drossia
til sölu og sýnis á Bergstaða-
stíg 9, kl. 6—9 í kvöld og kl.
1—4 á morgun. —