Vísir - 15.09.1942, Blaðsíða 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsla
32. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 15. september 1942.
187. tbl.
Þjóðverjar sækja á
í átt til Grosny.
Öllum áhlaupum hrundið við Stalingrad
Yfirmaður nýrra
vígstöðva.
Rússar liafa frumkvæðið
á miðvígstöðvunum.
EINKASKEYTI PRÁ UNITED PRESS, New York, í morgun.
Þjóðverjar hafa nú getað losað svo um Rússa í
stöðvum þeirra á syðri bakka Terek-fljóts, að
þeim hefir tekizt að koma auknu skriðdreka-
liði yfir fljótið. Herstjórn Þjóðverja tilkynnti um þetta
í gær og í miðnæturtilkynningu sinni hinni síðustu ját-
uðu Rússar, að Þjóðverjum hefði tekizt þetta — með
þeim afleiðingum, að þeir sjálfir hafi orðið að taka nýj-
ar varnarstöðvar.
Herstjómartilkynning Rússa á miðnætti skýrir hins-
vegar frá því, að Þ jóðverjum hafi ekkert orðið ágengt
í gær við Stalingrad og dró þó ekkert úr ofsanum í árás-
um þeirra. Rússar svöruðu hverju áhlaupi jafnskjótt
með gagnáhlaupi og gerðu það stundum svo fljótt, að
sögn fréttaritara, að bardagar í návígi eru tíðir milli
þeirra stöðva sem áhlaupin eru gerð frá.
Á miðvígstöðvunum, hjá Reshev og Kaluga, munu Rússar
hafa frumkvæðið. Skýra Þjóðverjar frá stórkostlegum áhlaup-
um þeirra, sem sé hrundið með stórskotahríð og loftárásum. —
Hjá Leningrad eru líka harðir bardagar. Þar skýra Rússar frá
þvi, að þeim hafi orðið allmikið ágengt, en Þjóðverjar segjast
kæfa hvert áhlaup í blóði.
367 japönsk skip
löskuð eða sökkt
Blaðamenn skýra svo frá bar-
dögum austan við Stalingrad
undanfarinn sólarhring, að þar
hafi verið um slátrun að ræða,
sem liafi fært hvorugum að-
ila nokkurn árangur. Þjóðverj-
ar hafa gifurlegum fjölda skrið-
dreka og steypiflugvéla á að
skipa og þeir fylla jafnóðum ,í
skörð þeirra, sem fara i súginn.
Rússar mipnast ekki á bar-
daga suðaustur af Novorossisk,
en fjöll og hæðadrög ná alveg
niður að sjó á þeim slóðum; og
er því erfitt að sækja á þar.
Þjóðverjar láta þó ekki Rússa fá
neinn frið til að koma sér upp
rammlegum víggirðingum.
Kletskaya kemur nú aftur við
sögu. Rússar hafa þar nokkurn
hluta vestri bakka Don á valdi
sínu og eru ítalir þar á móti
þeim. Hefir þeim ekki tekizt
að ráða niðurlögum Rússa, en
þeir hafa aftur á móti greitt
ítölum þung högg.
I norðvestri þaðan — um-
hverfis Voronesh — hefir aftur
dregið til stórtiðinda. Þar höfðu
Rússar brýr vestur yfir Voro-
nesh-fljót og var ungverskum
hersveitum falið að ná þeim
stöðvum. Gerðu þeir fimm á-
hlaup á stöðvar Rússa, en varð
ekki ágengt. 'Lágu 2000 Ung-
verjar dauðir í valnum, er þeir
hættu árásunum.
Rússar skýra frá nokkurum
framgangi hjá Leningrad, en
ekki eins miklum og fyrst, er
þeir tilkynntu að þeir hefðu,haf-
ið þessa sókn. Segja þeir að
verkfræðingasveitir hafi lagt
bráðabirgðaveg yfir mýrafláka,
er voru ófærir, og því hafi þeim
tekizt að koma Þjóðverjum á ó-
vart. Þjóðverjar segjast hafa
hrundið öllum áhlaupum Rússa
og hafi þeir fórnað miklum
mannfjölda til einskis.
Flugvélar Þjóðverja halda
uppi stöðugum sprengjuárásuni
á flutningaleiðir Rússa, m. a.
járnbrautir og skipaferðir á
Volgu.
Dirfska þýzkra
kafbátsmanna.
25 mín. í fjandmanna-
höfn,
Fregn frá Barbados í
Brezku Vestur-Indium skýrir
frá dirfsku þýzkra kafbáts-
manna, er sigldu inn í höfn
á eynni, voru þar í 25 mín-
útur og komusí þaðan aftur
án þess að hægt væri að
hindra það.
Meðan kafbáturinn var í
höfninni skaut hann fimm
tundurskeytum að ýmsum
skipum, er lágu þar fyrir
akkerum eða við landfestar.
Opinber tilkynning um árás-
ina skýrði frá því, að mann-
tjón hefði ekkert orðið, en um
tjón á skipum var ekki getið
og er ólíklegt, að þau hafi
sloppið alveg.
Kafbáturinn skaut tundur-
skeytunum með 5 mínútna
millibili, en fór síðan.
Banda r í kj amenn
reikna saman.
Þá rúma níu mánuði, sem
liðnir eru síðan Bandaríkin
j drógust inn í striðið, hafa her-
skip þeirra eða flugvélar sökkt
eða laskað 367 japönsk skip.
Af þeim, haf 175 verið send
á mararbotn, og þar af liefir
flotinn sökkt 148 skipum, en
flugvélar hersins hinum.
Af þeim 175 skipum, sem
flotinn eða flugvélár hans hafa
komið fyrir kattarnef, eru 59
talin herskip af ýmsum stærð-
um og gerðum,, en hin eru hjálp-
arskip, birgðaskip o. þ. li. Af
skipunum, sem herinn eða flug-
vélar hans telja sig liafa sökkt,
voru 14 herskip, en hin aðstoð-
arskip.
Þá eru 30 skip talin hafa ef
til vill sokkið — þar af 18 her-
skip — en löskuð hafa verið
92 herskip, þar af 58 af völdum
flotans eða flugvéla hans.
Flutningaskip, sem hafa orðið
fyrir margvíslegum skemmd-
um, eru samtals 70.
Frá Sviþjód:
16 skipum hleypt af stokk-
unum á 2 mánuðum.
- I
Um 1 /4 skipastóls landsins sökkt.
Það hefir komið sér vel fyrir Svía, að skipasmíðar þeirra eru
á háu stigi, því að þeir hafa misst mörg skip af völdum
ýmissa hernaðaraðgerða. Á tveim mánuðum í sumar — maí
og júní — var 16 skipum hleypt af stokkunum.
Ný tegund
»frelsisskipa«
Á næstunni verður hafin
smíði nýrra „frelsisskipa“ í
Bandaríkjunum, og eiga þau að
vera sérstaklega góð í barátt-
unni gegn kafbátunum.
Skip þessi nefnast „Seamo-
biles“ — sjóbílar — og þau eru
óvenjulega grunnrist, svo að
þeim er næstum alveg óhætt
fyrir tundurskeytum. Þau verða
rekin með sex bifreiðahreyfl-
um og af þvi draga þau nafnið.
Tíu skipasmíðastöðvar vinna
nú að smíði upprunalegu „frels-
isskipanna“. í janúar voru 3
þeirra afhent, og höfðu verið
241 dag í smíðum hvert, en i síé-
asta mánuði voru 56 afhent,
eftir 83 daga vinnu.
Strandhögg hjá
Tobruk.
Brezka herstjórnin í Kairo
segir nú frá strandhöggi, er gert
hefir verið hjá Tobruk.
Tilkynningin er stuttorð og
má lesa milli Mnanna, að
mannfall hafi orðið mikið.
— Segir í henni að Bret-
ar hafi lent þrátt fyrir harðvít-
uga mótspyrnu og strandhöggið
hafi ekki tekizt án tjóns, en liðið
hafi verið flutt brott, eftir að
það hefði unnið tjón á mönnum
og mannvirkjum.
Möndulveldin liafa skýrt frá
strandhöggi þessu. Er skýrt svo
frá, að Bretar liafi verið lið-
margir og notið stuðnings flug-
véla, en árásinni hafi verið
hrundið. I
Lltil mótspyrna
á Mádagaskar.
i
1 Hersveitir Breta og banda-
manna halda áfram göngu sinni
til höfuðborgar Madagaskar,
Antanarivo.
j Sóknin til borgarinnar geng-
ur vel, enda er litil mótspyrna
veitt. Brýr liafa þó sumsstaðar
verið eyðilagðar, en verkfræð-
ingasveitir setja strax upp
bráðabirgðabrýr. Manntjón hef-
ir ekki orðiö teljandi, en nokkr-
ir fangar hafa verið teknir.
De Gaulle er nýfarinn frá
Sýrlandi áleiðis til frönsku ný-
lendnanna í Mið-Afríku, sem
gengið hafa í lið með honiim.
w
Lundúnablöðin hafa minnzt á
A. G. L. McNaughton, yfirhers-
höfðingja Kanadamanna í Bret-
landi, sem líklegan til að verða
gerður yfirmaður nýrra víg-
stöðva i Evópu, ef þær verða
stofnaðár. Nú er orðið áliðið
sumars, og líkur fara óðum
minnkandi fyrir því, að i þetta
verði ráðizt. Verði það ekki gert,
innan tveggja vikna, verður vart
úr því á þessu ári.
Stutt og* laggott.
Þing Bandaríkjanna hefir
fengið til meðferðar frv. um að
halda niðri verðlagi og kaup-
gjaldi, til að hindra verðbólgu.
•
í dag eru tvö ár liðin síðan
orustan um Bretland náði há-
marki. Þ. 15. september 1940
skutu Bretar niður 185 þýzkar
flugvélar, en misstu '25 sjálfir.
Eftir þetta hættu Þjóðverjar
dagárásum.
•
Tilkynning hefir verið gefin
út um það í Pearl Harbor, að
450 japanskir fangar, er voru
teknir í Tulagi og Guadalcanal,
hafi verið fluttir á brott þaðan.
•
Averill Harriman, láns- og
leigulaga fulltrú Roosevelts, er
kominn til London frá Wash-
ington. Gaf hann Roosevelt m.
a skýrslu um Moskvaförina.
V •
250.000 brezkir verkamenn
eru nú starfandi fyrir ameriska
herinn á Bretlandseyjum. Starfa
þeir m. a. í verksmiðjum, sem
Bretar hafa afhent gestunum.
•
Ameriskur flugmaður hefir
verið sæmdur tveim heiðurs-
merkjum fyrir lireystilega fram-
göngu í bardögum. yfir Dieppe.1
Hann fékk brezka heiðursmerk-
ið „Distinguished Flying Cross“
og ameriska merkið „Purple
Heart“.
Kíuverjar nálgr-
ast Kinhwa.
Hérsveitir Kinverja hafa nú
þokazt nær Kinhwa, höfuðborg
Chekiang-fylkis.
Fregnir í gær hermdu, að
þeir hefðu tekið borgina Kufeng.
Sú b(?rg er um 12 kílómetra frá
Kinhwa.
®
Kínverjar halda uppi gagn-
árásum á japönsku hersveit-
irnar, sem sækja inn i Innri-
Mongolíu, til Sian, i þeim til-
gangi að rjúfa flutningaleiðina
frá Rússum.
Til júníloka nam skipatjón
Svia samtals 168 skipum, rúm-.
lega 400 þús. smál. að stærð, en
það h'efir verið bætt upp að
þrem fjórðu lilutum, þvi að
sænsk útgerðarfélög hafa leitazt
við að afla sér nýrra skipa, að
nokkuru leyti frá öðrum lönd-
um. Síðan hafa fleiri skip far-
izt, en haldið er áfram að fylla
í skörðin eins og áður.
í maí og júni s. 1. var sérstak-
lega mörgum kaupskipum
hleypt af stokkunum eða sextán
alls og voru þau 72.500 smál. að
stærð. Flest eru rekin með oliu-
mótorum, en vegna olíuskorts
hafa mörg orðið að liggja að-
gerðalaus í sænskum höfnum.
Flotinn hefir líka byggt mörg
smáskip, tundurspilla, kafbáta
o. frv., jafnframt þvi sem end-
urbætur hafa farið fram á stærri
skipum.
•
Samkvæmt hagskýrslum,
sem birtar hafa verið ekki alls
fyrir löngu, minnkuðu siglingar
Svía til annarra landa um 6.3%
á síðasta ári, samanborið við ár-
ið 1940. Ef gerður er saman-
burður við árið 1939 hafa sigl-
ingar til annarra landa minnkað
um 53%. Siglingar innanlands
hafa og minnkað að mun.
ilm bvað er samifl?
Þær fregnir ganga staflaust
í London, að Japanar og
Rússar eigi í afarmikilyægum
samningum, sem haldið verð-
ur leyndum, þar til útséð er
m það, hvemig þeir fari.
Það hefir ýtt undir þessar
fregnir,. að frá Tokyo hefir
spurzt, að sendiherra Rússa
hafi gengið á fund Japans-
keisara.
Um hvað er samið? Eru
Rússar orðnir þreyttir á ein-
tómum loforðum?
V
Blamey
vongóður
Sir Thomas Blamey, yfirmað-
ur landhers bandamanna í
Ástralíu undir yfirstjóm Mac
Arthurs, er vongóður um að
Japanir nái ekki Port Moresby.
Sir Thomas hefir verið i eft-
irlitsferð á Nýju Guineu. Segir
hann menn gunnreifa þar, þótt
Japönum liafi tekizt að vinna
þetta á.
Báðir aðilar styi’kja nú varn-
ir sínar sunnan Kokoda-skarðs-
ins, en frá yígstöðvunum þar er
nokkurra daga ganga til lág-
lendisins umhverfis Port Mores-
by.
Árás á Wilhelms-
haven,
Brezkar flugvélar fóru til á-
rása á Vestur-Þýzkaland í nótt.
Aðalárásin var á flotalægið
Wilhelmshaven, Verksmiðjur,
skipasmiðastöðvar o. s. frv.
Tvær flugvélar snéru ekki
aftur. Þetta var 68. árásin á
borgina.
Attlee er staddur á Nýfundna-
landi. Hann mun ræða við full-
trúa Bretastjórnar þar, en fara
síðan til Ottawa.
Aneta, hollenzka fréttastofan,
skýrir frá þvi, að brezkar flug-
vélar hafi varpað niður 50.000
sigarettupökkum nóttina eftir
afmælisdag Vilhelmínu,drottn-
ingar, 1. sept. Paklcarnir voru
i rauð-hvit-bláum umbúðum.
Mikill skortur á
hjólbörðum.
Samkvæmt auglýsingu frá
Bifreiðaeinkasölu ríkisins í
blöðulium í dag, verða hjól-
barðar á farartæki alls ekki seld-
ir framvegis nema því aðeins,
að gömlum hjólbörðum sé skil-
að til Bifreiðaeinkasölunnar um
leið og þeir nýju eru afhentir.
Jafnframt verður hlutaðeig-
andi kaupandi að gefa nákvæm-
ar upplýsingar um hvaða öku-
tæki hjólbarðinn er ætlaður á.
Er þetta rökstutt með því, að
gúmmísskortur ríki i þeim lönd-
um, sem við skiptum við, og
að okkur beri að gæta fyllsta
sparnaðar um notkun á gúnnníi
og halda þvi slitna til haga, því
að með því að senda slitið
gúmmí út til Ameriku, vaxi
mökuleikar okkar fyrir því, að
fá endurnýjaðar gúmmíbirgðir.
Samnlugar verkakrenna
og vinnnveitendafél.
Samningar voru undirritaðir
í gær milli Verkakvennafélags-
ins Framsóknar og Vinnuveit-
endafélags Islands. Nær samn-
ingur þessi til allrar vinnu, sem
verkakonur stunda hjá at-
vinnurekendum i Vinnuveit-
endafélagi íslands.
Ýmsar kröfur verkakvenna
um kjarabætur voru teknar til
greina. Kaup i dagvinnu, sem
telst 8 klst., verður kr. 1.40, en
var áður 90 aurar, en i eftir-
vinnu 50 og helgidagavinnu
100% hærra, og er þetta i sam-
ræmi við aðrar hækkanir af
völdum dýrtíðarinnar. Kaup
greiðist fyrir 30 mínútna kaffi-
tíma. — Sumarleyfisdaga fá
verkakonur, en höfðu ekkert áð-
ur <^g kaup greiðist fyrir 6
veikindadaga.
Fjárhagsnefnd öldungadeild-
ar Bandarikjáþingsins er að í-
huga að leggja til að lagður
verði á „sigurskáttur“, er nemi
5% af brúttótekjum manna.
Hann mundi afla ríkinu 3.650
milljónum dollara.