Vísir - 02.10.1942, Blaðsíða 3

Vísir - 02.10.1942, Blaðsíða 3
V I S I R öngrþveiti og' dýrtið. Eftir Vigfiks Guömundsson. Óreiða öll í dýrtíðar og fjár- málum þjóðar vorrar er nú komin út í það öngþveiti og endemi, sem ekki fær staðist. En þótt segja megi að ekki stoði að sakast um orðinn hlut, þá er jafnvíst að vítin eru til j>ess að varast þau. Og að ekkert sár verður grætt, nema hætt sé að rífa það upp, eða meinsemd upprætt, ef orsökin er dulin og menn vilja ekki þekkja hana. Stæðilegt Miús verður aldrei byggt, meðan verkamenn og smiðir eru að brjóta byggingar- efnið og spilla hvorir fyrir öðr- um, og verkstjórar og meistarar rífast um það hvað gera skuli og hindra allar framkvæmdir. Með slíkri aðferð sem þessari, er nú þjóð vor sjálf að hyggja sér hagsældar Iiústað: stjórn- málasjálfstæði og- fjármála frelsi. Orsök og undirrót alls j>essa öngþveitis virðist mér ekki vandfundin. Niðurrifs- aldan er runnin liingað fyrir fá- um áratugum frá Rússlandi. Kommúnistar (sem skreyta sig nú fölsku nafni) hafa æst upp þegna þjóðfélagsins, æðri og lægri til niðurrifs. Og frá byrj- un hafa forkólfar og teymingar jafnaðarmanna og framsókn- armanna blandað blóði við Kommúnista, hlaðið undir þá völdum, embættum og metorð- um. Og nú að síðustu hafa forystumenn heggja þessara flokka keppst við Kommúnista — og sumir farið fram úr þeim — í niðurrifi, svikum og undan- brögðum. Loks þegar reynt var að hamla gegn dýrtíðinni, svik Framsókn sín fyrir loforð. Fyrir það kölluðu Jafnaðar- menn lögin „Þrælalög“, og réru að því öllum árum að dýr- tíðin gæti aukizt sem allra mest. Sérhverju lögbroti var fagnað, og talinn glæsilegur sigur að geta yfirbugað ríltisvaldið. Vald- ið, sem á að vernda alla þegna þjóðfélagsins fyrir undirróðri, svikum og yfirgangi ein- stakra stétta og flokka. En þá er hverju þjóðfélagi glötun vís, þegar stéttum eða flokkum tekst að bera rikisvaldið .ofur- liði, starfa gegn vilja þess og hagsæld allrar - þjóðarinnar. Alveg sama hvort það eru stétta- félög, samvinnufélög, mjólkur- félög eða önnur pólitísk félög. Sama hversu fögrum nöfnum þau skreyta sig, þegar þau hefja stríð gegn öðrum þegnum þjóð- félagsins og sjálfu ríkisvaldinu. Blindar margan blekkt lund. Gullkálfurinn er kominn (en hann er nú reyndar úr pappir), og fólkið dansar kringum hann og trúir á hann. Blekkingin er svo mögnuð og blindar fólkið svo, að það heldur sig þeim mun ríkara, sem það fær í hendur fleiri pappírsseðla, en gætir þess ekki, að því fleiri sem seðlarnir verða, þeim mun fátækari verð- ur allur f jöldinn litlu siðar. Auð- Iegðin ímyndaða — háu launin og háa verðið — er með sifelldri hækkun að hrapa ofan í hyldýpi fátæktar og framleiðsluskorts, atvinnuleysis og örbirgðar. Með kapphlaupinu milli launa og vöruverðs er nú þegar komið nærri því, að eyðileggja alveg gengi krónunnar. Verði slíkri heimsku ennþá haldið áfram, fer krónan eins og ríkismarkið þýzka í fyrra stríðinu, milljónir króna í seðlum verða ekki frí- merkis virði. Þá tapa allir (verkamenn og bændur eins og aðrir) peningaeign þeirri, sem þeir eiga í bönkum eða á öðrum stöðum, og félög, bæir og ríkið tapa milljónagróða sínum. Hvað verður þá til bjargar öllum fjölda fólksins? Hvað verður þá um marglofaða lýðveldið og fyrirheitnu framkvæmdirnar? Gamla fólkið. Mikið er rætt og róið undir þörfum og kröfum'. launþega og framleiðenda, en gamla fólkinu gleyma sömu nienn. Það hefir líka látið mjög lítið á sér bæra, og ekki aukið við kröfurnar. Á landi voru (sérstaklega i Reykjavík) er þó athyglisverður þópur af öldruðu fólki, konum og körlum, sem liafa alizt upp við þann hugsunarhátt, að sér- hverjum sé skylt að bjarga sér sjálfur, meðan þess er nokkur kostur. Og að það verði að neita sér um öll þægindi og munað, jafnvel liða skort á fæði, fötum og góðu húsnæði, áður en það fer að leita á náðir annara. — Sama hvort er sveitin (bæjar- sjóður), cllilaun og örorkubæt- ur eða rikissjóður. Allt er það, að kalla má, frá öðrum tekið og þegið. Að vísu skortir nú sumt af þessu gamla fólki þenn- an gamla og göfuga hugsunar- hátt. En margt mun samt enn- þá basla við að bjarga sér. Og það er fólkið sem á fáa náskylda til aðstoðar, sem hefir unnið baki brotnu frá æskuárum ■ g slitið út kröftum sínum meðan heilsan leyfði. Sumt af þvi á þak yfir höfuðið, oftast gamalt timburhús, sem fúnar og grotn- ar niður, af því að nú er við- haldið ómögulegt. Sumir geta eða neyðast lil að leigja frá sér hæð eða herbergi. En þakkað er þessu fólki og öllum slíkum húseigendum (sem ekki eiga ný steinhús) og hjálpað með því, að svifta það umráðarétti yfir eign sinni og frjálsri leigu. Níðst er á þessum húseigendum og þeim einum af þegnum þjóðfé- lagsins, að þvi leyti sem þeir mega sárlítið liækka húsnæðis- leiguna. Þó hafa þeir sýnt lög- hlýðni og þegnskap. — En hvað væri sagt og gert, ef þeir hefðu rekið leigjendur út og lokað húsum sinum? Yæri það ekki svipað aðförum annara stétta- flokka? Margt af þessu gamla fólki hefir öll starfshæfu æviár sin sparað allan óþarfa og munað, en dregið saman aura og lagt þá í sparisjóð, til þess að eiga sjálft sinn elli- og öx-orkusjóð. Sparifé þess — eins og annara — hefir verið ncdað af öðrum ti! framkvæmda og gróða af Jandi og sjó. Nú cru þakkirnar þær, að þetta fé er hrifsað, öðr- um til ábata og eyðslu jafnt lil óhófs og einhvers gagns rétt í svipinn. Hvers virði er krónan nú? Almennt talið mun kaupmátt- ur krónunnar nú orðið ekki vera yfir 20 aurar, móts við gengi hennar fyrsta áratug þessarar aldar. En hér verður það eitt sýnt, hvað landráðaskrúfa stéttafélaganna á báðar hliðar liefir nú nýskeð tekizt að eyði- leggja gildi krónunnar móti helztu matvörum landhúnaðar- ins, miðað við árið 1913, næsta árið fyrir fyrra stríðið. Á þvi ári (1913) flutti eg nýmjólk frá Engey og seldi í hús til neyt- enda á 18 aura pottinn. Nú fær maður í mjólkurbúðum flösku- mjólk (nýtt og gamalt samhell- ings-gutl, sem er kallað ný- mjólk, og oft verður súr og fúl á sumrin eftir 1—2 dægur, en varla sést fita setjast ofan á hana) fyrir 1,57 kr., þ. e. 8.7 sinnum hærra verð. Smjör fékst þá fyrir 1.60 kr. kg., nú 18.70 kr. og er það 11,68 sinnum liækkað. Kjöt af dilkum, 1. fl., var þá í heildsölu hjá Sf. SI. 58 a. kg., nú 6,40, eða 11 sinnum hærra.*) Slálur úr dilkum með *) Árið 1908 var sama kjöt- verð 42 a. lcg., 1910 46 a., 1912 mör keypti eg 1913 síðla í ágúst á 80 aura lfvert. Nú er það (10. sept.) með % kg mör 14 kr., og liækkun sú 17,5 föld. Hænu- , egg seldi eg sama ár 6—-8 a. Nú vilja eigendur hænsnabúa selja eggið á 1 kr. Hækkun (miðað við 7 aura meðaltal fyr) 14,3. Sá maður, sem keypti kjöt til vetrarforða fyrir 100 kr. 1913, þarf nú að bæta þar við 1000 krónum, ef liann vildi eða gæti lceypt jafn mikið kjöt. En fyrir 100 kr. slátrið 1913, þarf hann nú að greiða alls 1750 kr., eða þó öllu lieldur 2250 kr., því að varla verður talinn feitur og góður blóðmör og lifrarpylsa með minni mör en 1 kg. (V2 lal- ið áður) í hvert lambsslátur, fyr- ir utan garnmör. Meðaltal af verðhækkún þess- ara 5 vörutegunda og lífsnauð- synja flestra landsbúa er 12,8. Kaupmáttur eða gengi krónunn- ar móti þessum landbúnaðar- vörum er þvi jafnmörgum (12,8) sinnum minna virði nú en 1913. Og þar með er krónan á þessu sviði á 29 árum lækk- uð niður i 7,81 eyrir. Þarna gild- ir 1 kr. nú aðeins 7% eyris. Æsingaverk ofstopamanna, blindni og fjárgræðgi almenn- ings, kosningadekur forkólfa flokka og stétta og aumingja- skapur Alþingis, eiga nú fá spor óstigin að algeru hruni íslenzku krónunnar. Er þjóð vor með þessurn að- förum að undirbyggja lýðveld- ! ið og auglýsa hversu vel liún er fær um að stjórna sjálfri sér? Erum við íslendingar svo mikið vitrari en Roosevelt forseti, að lelja hættu litla mörg hundruð % hækkun á kaupgjaldi og landbúnaðarvörum, þegar hann telur 78% árslauna hækkun og 35% hækkun á landbúnaðaraf- 50 a., en liæst varð það þá eftir stríðið 1919 3 kr. Margt er nú tvöfalt og þrefelt liærra en þá var dýrast. Hafi menn ekki gleymt villunni þá, með afleið- ingum kreppu, atvinnuleysis og erfiðleika milli styrjalda, hvern- ig halda menn þá að nú rætist úr margfalt meiri villu? urðum mjög hættulega í við- lenda riki sínu? Já, svo hættu- lega, að hann hiki ekki við að beita forsetavaldi sínu til að stöðva verðbólguna, ef þingið þar í landi framkvæmdi ekki þá sjálfsögðu skyldu sína. 12. 9. V. G. Aths. Síðan þetta var skrif- að, hefir slátur með 1 kg. af mör, verið lækkað úr 18 kr. i 14 kr. Breytir það þvi einungis, að fyrir sömu (7% eyris) krónu, getur fólkið fengið kg. i stað punds af mör í blóðið. 12/9 Sjötug: Guðrún Torfadúttir prófastsekkja Sjötíu ára er i dag frú Guð- rún Torfadóttir, prófastsekkja frá Hólmum í Reyðarfirði. Hún er fædd á Flateyri við Önundar- fjörð dóttir merkishjónanna Torfa Halldórssonar skipherra og Maríu Össursdóttir. Árið 1903 giftist hún síra Jó- hanni Luther Sveinbjarnarsyni prófasli á Hólmum en missti hann árið 1912. Flutti lmn þá til Flateyrar og gerðist þar stöðvarstjóri á sím- stöðinni og gegnir hún því starfi enn. AUir vinir og kunningjar senda liinni ágætu konu bezlu kveðjur nú á sjötugsafmæli hennar. Tilkyiining: írá Nýja Þvottahúsinu Þvottur sem búinn er að vera lengur en 3 mánuði, án þess að hans hafi verið vitjað, verður seldur fyrir kostnaði næstkomandi laugardag á Grettisgötu 46, þar sem Nýja þvottahúsið hefir starfað. Það sem sið- ar liefir komið og ékki hefir verið sótt, er fólk beðið um að sækja sama dag. — Drengur óskast til sendiferða. — Bíll notaður. jVVatardeild Slátnrfélags Snðnrlands Hafnarstræti 5. -Sími 1211. Höfum nýlega fengið Kventöiknr í stóru og fallegu úrvali IVýjasta Amcríkntízka FELDIIR h.f. Austurstræti 10 — Sími 5Z20 Sölumaður Duglegur sölumaður óskast strax. Tilboð, merkt: „Góð laun“ sendist Vísi. —-— Nokkrar duglegar stúlkur geta fengiö atvinnu nú þegar, eöa 15. október. Fyrirspurnum ekki svarað i síma. Bicxverkiiniðjan Frón Nokkurbörn vantar okkur enn, til að bera Maðið til kaup- enda í vetur, aðallega um vestur- og miðbæinn. Hækkað kaup Tálið strax við afgreiðsluna Dagblaðið Vísir BEZT AÐ AUGLÝSA I VÍSI. Skriftotoíía húsnæðisráðunauts bæjarins verður eftirleiðis í Frakkneska spítalanum við Lindíargötu, á efri hæð. Skrifstofan verður opin a!3a virka daga nema laugardaga kl. 4!/2 til 6 siðdegis. I Húsnæðisráðunauturinn verðmnr til viðtalk mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. j ! BORGARSTJÚRI. K IS O \ er liafinn á Skolavörðustígr 1% Trippa- og folaldakjöt í heilum skrokkum: kr. 4,00 pr. kg. í frampörtum: kr. 3,80 pr. kg. í lærum: kr. 4,30 pr. kg. Dilkakjöt í heilum skrokkum: kr. 4.20 pr. kg. í frampörtum: kr. 4,00 pr. kg. í lærum: kr. 4,50 pr. kg. Saltfiskur 50 kg. á kr. 107,00, 25 kg. á kr. 55,00, í lausrt vigt: kr. 2,30 pr. kg. Saksíld heiltunna kr. 102,00, hálftunna kr. 53,00, fínsöltuð og hausskorin í hálftunnu kr. 62,00. Krydd«íld heiltunna kr. 135,00, hálftunna kr. 68,00. — Eins og undanfarið verður saltað fyrir þá sem þess óska, á staðnum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.