Vísir - 05.11.1942, Side 3

Vísir - 05.11.1942, Side 3
V ISIR Skotinii niðnr! Stokkið ii i* Npitfire- vél í 18.000 feta hæð. Grein sú, er hér fer á eftir er kafli úr bók eftir Charles nokkurn Graves, en í henni segir hann frá ævintýrum margra brezkra, kanadískra og amerískra flugmanna. Plugmaðurinn Kit er amerískur. ^iku eftir að Kit kom aftur úr heimferðarleyfinu, var „685“ (flu’gsveit lians) aftur á flugi yfir St. Omer i Norður- Frakklandi. Hún var í 21.600 feta hæð„ Veður var gott og mjög víðsýnt. Kit var seinast- ur í hópnum, þegar Iiann varð allt í einu var við fjórar Mess- erschmitt-flugvélar, sem komu fljúgandi úr sólarátt, svo að ó- gerningur var að taka eftir þeim. Það fyrsta, sem hann varð var við, var að einn þýzku flug- mannana skaut á hann og hann gat séð rákirnar eftir sumar kúlnanna, þar sem þær þutu fyrir ofan hann. Hann „þeytti öllu út í hom“, en það þýðir á flug- mannamáli, að hann sveigði i eins krappan hring og liann gat. Þá lieyrði hann allt i einu óg- urlegan skruðning og hávaða, og allskonar smábútar fóru að fljúga til og frá um klefann í flugvélinni hans, maflaborðlið mölbrotnaði, og jafnframt sá hann, hvernig ósýnilegar kúl- ur fóru að rífa vængina, sitt hvöru megin við skrokkinn. Ikveikjukúla reif af honum gleraugun og lenti siðan í ben- zíngeyminum fyrir framan hann, en hann sprakk þegar i loft upp með miklum hvelli. JJávaðinn var • eins mikill og þegar hraðlest brunar í gegn- um jarðgöng, þegar logarnir frá benzíngeymnium fóru að læsa sig inn í klefann, æstir af vindinum. Á sama augnabliki lenti enn ein kúlan í hæðarstýrinu lijá honum og svifti því af. Hann fann það af því, að stýrisstöng- in varð allt í einu laus og liðug, og Hugvélin steyptist um leið beint niður á við. Hraðinn jókst jafnt og þétt og var bráðlega komin upp yfir 400 milur (640 km. á klst). Kit gerði allt, sem hann gat til þess að ná flugvélinni á rétt- an kjöl aftur, en hún hristi sig bara og skók. Hún hagaði sér líkt og bíll, þegar ekið er með bæði framhjólin vindlaus með hundrað kilómetra liraða á klst. Hann koölst að þeirri nið- urstöðu, að skynsamlegast mundi að stökkva útbyrðis, en það var bara enginn hægðar- leikur að opna klefann á svona gífurlegum hraða. Venjulega er ekki hægt að ljúka upp hett- unni yfir honum, þegar flogið er með meiri hraða en 200 m. (320 km.). Með því að spyrna með báðum fótum í mælaborð- ið, gat hann þó loks opnað, en þá gleymdi hann að losa sig úr sætinu, svo að kann var jafn- fastur og áður. Hann hafði varpað sér útbyrðis einu sinni áður, svo að hann gerði sér fljótlega ljóst í hverju mistök- in voru fólgin og losaði sig strax. Þegar hann reis upp úr sæti sínu, hélt hann hgndleggnum fyrir augum og andliti til að skýla því fyrir logunum frá benzíninu, og vindinum sem ætlaði allt sundur að tæta. Andartak fannst honum fall- hlífin lauflétt, en.ekki farg eins ög venjulega, svo að hann var hræddur um, að liann hefði ef til vill gleymt henni í sætinu. En svo var ekki. Hún hékk við sitjandann á honum eins og vera bar, en hann ákvað að opna hana ekki strax, því að hann var enn i um 18.000 feta t hæð og vissi, að Messerschmitt- ! flugvélamar voru enn á næstu | grösum. Þýzku flugmennirnir | áttu það til að skjóta á menn, ' er þeir svifu til jarðar i fall- hlífum. fnað var eins og einhver risá- hendi befði skyndilega þrifið hann til sín, þegar hann féll út úr flugvélinni. Hjálmur- inn varði andlit hans alveg, svo að hann fann ekki til þess, að hann féll hratt, heldur fannst honum eins og gangandi maður mundi geta haldið i við sig. Þetta var þó líkast þvi að synda í kafi. Fyrst féll hann með höf- uðið á undan. Þá rétti hami frá sér vinstri handlegginn, en við það fór hann að hringsnúast, svo að hann rétti líka frá sér hægri handlegginn og við það náði hann jafnvægi. Eftir það sem honum fund- ust vera niu klukkustundir, en voru að líkindum aðeins niu sekúndur, vann forvitnin sigur og liann opnaði falllilífina. Það var alveg eins og honum væri kippt upp fyrst eftir að hún opnaðist. Hann fór nú að heyra slcothriðina fyrir ofan sig og skröltið í hreyflum flugvélanna, i fyrsta skipti eftir að liann losnaði við síiia eigin flugvél. Sex Messerschmitt-vélar steyptu sér niður til atlögu við þær flugvélar „685“, sem enn voru eftir. Þegar Kit var staddur i 10.000 feta hæð, varð liann skelkaðri en hann hafði nokkuru sinni verið alla ævi sína. Messer- schmitt-vél, að líkindum sú sama, sem hafði skotið hann niður, fór að hnita liringa litan um hann. Kit varð hugsað til allra sagnanna, sem hann hafði lesið i æsku, um veiðimenn, er urðu fyrir árás nashyrninga, ljóna og fíla. Þeir höfðu aldrei verið nærri eins illa staddir og hann nú. Flugvélin tók stefnuna beint á hann, en hann hékk bara í fallhlífinni og gat sér enga björg veitt. Það eina, sem hann gat gert, var að róla sér fram, og aftur í böndum fallhlífarinn- ar, svo að það yrði erfiðara að miða á hann. Tvisvar sá hann rákimar eftir kúlurnar, sem voru fylltar fosfóri eða magne- sium, er brann, þegar þeim var hleypt af, svo að hægt væri að sjá, livort þær hæfðu. Þær virt- ust alveg vera að þvi komnar að hæfa hann og hann var nærri dauður af skelfingu. Enn einu sinni snéri flugvélin sýrað hon- um til að senda þriðju kúlna- gusuna, en i þetta skipti gerð- ist ekkert. Hún hefir verið orðin skotfæralaus eða flugmaðurinn ekki getað fengið af sér að halda þessum leik áfram. Flug- vélin fór í stóran hring og hvarf síðan á brott. Kit tók nú eftir þvi, er hann leit niður, að hann var aðeins um 2000 fet yfir jörð og var beinfl yfir einum flugvelli fjandmannanna. Til þess að falllilífin skyldi renna til hliðar, greip hann af öllu afli í strengina öðrum megin, en samt var hann aðeins nokkur hundruð metra frá vell- inum og gaddavirsgirðingunni utan um liann, er hann snart jörðina. Hann valt um koll, en áður en hann var búinn að losa af sér fallhlífina, var hóp- ur sveitafólks kominn utan um hann. Kona ein i hópnum, stór og þrýstin, faðmaði liann ó- feimin að sér og kyssti hann á báðar kinnar, meðan hún babl- J aði eitthvað, sem Kit skildi ekkert i. En hann var ekki i skapi til að vera í „keleríi“, sleit sig laus- an og tók á rás. Fullur bill af þýzkurn hermönnum, sem höfðu séð liann svifa til jarðar, kom akandi i hendingskasti i áttina til engisins, þar sem hann hafði komið niður. Kit var að springa af mæði þegar liann faldi sig í kjarri, sem var um 400 metra á brott frá lendingarstað hans. Til allr- ar hamingju liöfðu bændurnir getað komið i veg fyrir, að Þjóðverjarnir gæti séð livert hann hljóp og meðan þeir leit- uðu lians i liálfrar mílu fjar- lægð, gat hann náð andanum. Þá vildi svo óheppilega til,. að franskur fjárhundur fór að linusa í áttina, sem Kit hafði hlaupið, en til allrar hamingju voru Þjóðverjarnir svo upp- teknir annarsstaðar, að þeir tóku ekkert eftir þessum grun- semdum seppa. Hann tók á sprett í áttina til fylgsnis Kit, en þegar þangað kom vildi hann bara leika sér við hann. En Kit var ekki í neinu skapi til að Leika sér. Þannig var þó ekki á- statt fyrir honum, að hann gæti leyft sér að vera með drembi- læti, þó að einungis liundur ætti í hlut, svo að hann tók i linakka- drembið á honum og fór að klóra hoiium á maganum. Eftir litla stund var liundurinn lagst- ur á bakið og ef liann hefði get- að malað eins og köttur, þá hefði hann vafalaust gert það. Þannig leið liálf klukku- stund. Kit gægðist út á meðal runnanna við og við og sá, að Þjóðverjarnir voru að reyna að hræða bændurna til að segja þeim, hvar liann væri. Þeir mótmæltu og voru liáværir eins og Frakka er siður. Loks fór allur hópurinn á brott og Kit varpaði öndinni léttara. Hann Saltkjötið er komið Þeir, sem eiga pantanir hjá oss, eru beðnir að tala við oss næstu daga til að ákveða hvem daginn þeim henti að fá tunnurnar sendar heim. Samband Islenzkra Samvinnufélaga Sími 1080. gerði ráð fyrir því, að frönsku- kunnátta sin mundi nægja til að fleyta honum norður að ein- liverri Ermarsundsliöfninni. Niðurlag. ino i Kirxj uooKirKjuonar. Nýlega fóru fram kosningar i kirkjuráð íslenzku þjóðkirkj- unnar til næstu fimm ára. Fór talning atkvæða fram í gær í biskupsskrifstofunni. í kirkju- ráðinu eiga sæti fimm menn. Tvo þeirra kjósa prestar þjóð- kirkjunnar og kennarar guð- fræðideildar háskólans, en tvo kjósa prestar og safnaðarfull- trúar á héraðsfundum. Biskup landsins er sjálfkjörinn forseti ráðsins. Prestar kusu þá Ásmund Guðmundsson prófessor með 49 atkvæðum og síra Þorstein Briem prófast á Akranesi með 4 atkvæðum. Á héráðsfundum hlutu kosningu Gísli Sveinsson sýslumaður nieð 132 atkvæðum og Mattliías Þórðarson forn- minjavörður nieð 71 atkvæði. Valsbíllinn. MaÖur sá, sem dró bílinn 1089 á Valsveltunni á sunnudaginn heitir Karl Le4í Jóhannesson, en ekki Jó- hansson, eins og stóÖ í blaðinu í gær. Hann er til heimilis í Tálkna- firÖi í Barðastrandarsýslu, og er aðeins staddur þessa dagana í bæn- um. KvaÖst hann hafa veriÖ aÖ reyna bílinn í gær og ekið á hon- um um bæinn. Bjóst hann við að fara með bílinn vestur. Börn óskast til að bera blaðið til kaupenda um Laugarne§veg: og- Kleppsholt Dagfbladið VÍSIH sími 1660 i penloia M1 ? Kaupið Venus-gólfgljáa í olíuþéttum 1 pergament-pökkum. # Ekkert betra. fikkert ódýrara. Stiilkii vantette á Hótel Borg Upplýslngar í skrlfstofunni. j}/jélid ekki ác§áM(£i ad feiáéató&i/ TRYG6Í1B ÖRllCíGl lífsaíkomu fjöldskyldu yðar meö því að kaupa liftryggingu. Dragið ekki lengur jafn sjálfsagðan hlut. ag Islands f Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnmm, að hjart- kær maðurinn minn og faðir, Jónas Kristján Jónasson, Grettisgötu 77, andaðist aðfaranótt 4. nóvember 1942; Ingibjörg Jónsdóttir. Ingimar Kristjám Jónasson. Hjartkær maðurinn minn, _____ Kjartan Guðmundsson verður jarðsunginn föstudaginn 6. þ. m. fró frikirkjunnl. Athöfnin hefst með húskveðju frá beimili sonar míns, Laugaveg 87, kl. 1 e. h. Fyrir mina hönd, barna, tengdabama og barnabama. Pálína Iíjömsdóttiiv • Innilegar þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu við and- lát og jarðarför Karítasar Torfadóttur Sigríður Pétursdóttir. Sigþrúður Pétursdóttir. Gissur Pálsson. Sigurður Pétursson. Berta Ámadóttir. Innilegar þakkir til allra er vottuðu pkkuT samúð sina) við andlát og jarðarför _____________Ingibjargar Möller. Lúðvík Möller. Jakoh Möllcr. )

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.