Vísir


Vísir - 18.12.1942, Qupperneq 1

Vísir - 18.12.1942, Qupperneq 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð) Ritstjórar Blaðamenn Siml: Augtýsingar 1660 Gjaldkeri 5 llnur Afgreiðsla 32. ár. Reykjavík, föstudaginn 18. desember 1942. 267. tbl. Ógurleg eyðilegging á hinum ílýjandi hersveit- um Rommels. Það er óalgengt, ad orustu- flugvélap veiti þeim vernd, Tugir flutningaflugvéla hraða flutningum til 8. hersins. EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS, New York, í morgun. EYÐILEGGINGIN á hersveitum Romméls, sem undan halda vestur af E1 Agheila, er miklu meiri og geigvænlegri en eyðileggingin, sem unnin var á þeim, er t>ær flýðu frá E1 Alamein, segir í fregnum blaðamanna meðáttunda hernum. Þetta staf- ar af því, að nú er liðsmunur miklu meiri á jörðu niðri og einnig því, að það er bókstaflega nýnæmi fyrir flug- menn bandamanna, að verða varir við orustuflugvélar, er hafi það hlutverk að veita hinum flýjandi hersveit-. um vernd gegn loftárásum. Hersveitir þær, sem umkringdar eru hjá Wadi Matrakin, verða að gjalda sérstaklega mikið afliroð, því að þær verða nú fyrir miskunnarlausum árásum bæði að vestan og austan, jafnframt því, sem flugsveitir koma með nokkurra mínútna millibili til árása á þær. Þær gera harðvítugar tilraunir til að brjótast áfram vestur á bóginn, en þær Iiafa ekki enn borið tilætlaðan árangur. Næstu tveir dagar munu skera úr um örlög þessara hersveita. Blaðamaður einn, sem liafði tækifæri til að fylgjast með því, þegar verið var að undirbúa leiðangur hersveitanna, er tókst að rjúfa fvlkingar Rommels, segir, að Iíklega hafi aldrei tek- ist eins vel að leyna undirbún- ingi sóknar, því að skriðdrek- um og bílum í hundraðatali hafi verið leynt svo, að njósnaflug- meiin möndulveldanna urðu ekki varir við þá. Herdeildin, sem þetta afrek vann, er ein af hinum liarðger- ustu, sem Bretar eiga og stjórn- andinn einn af frægustu liers- höfðingjum þeirra. Undanhald l>eirra hersveita, sem sluppu vestur á bóginn, þegar Bretar komust til strand- ar hjá Wadi Matrakin, er nú orðið mjög óskipulegt. & svo lítilli reglu lialdið uppi á strand- veginum, þar sem hersveitir jiessar hraða sér i vesturátt, að umferðin teppist hvað eftir annað og myndast þá hin ákjós- anlegustu skotmörk fyrir flug- Bandamenn við úthverfi Salamaua. Hersveitir bandamanna á Nýju Guineu eru komnar að út- hverfum Salamaua, segir í síð- ustu fregnum frá herstöðvum MacArthurs í Australíu. Það er nú orðið Ijóst af fregn- um frá þessum vígstöðvum, að bandamenn eru þar hvarvetna í sókn og ætla sér augsýnilega að uppræta' bækistöðvar Japana á Nýju Guineu hverja af ann- ari, til að skapa sér örugga að- stöðu til sóknar gegn bæki- stöðvum þeirra á nágrannaeyj- unum. Hjá Buna er haldið uppi stór- skotahriS á stöðvar Japana, og er gert ráð fyrir því, að liægt verði að taka þær með áhlaupi mjög bráðlega. vélar bandamanna. i Flutningaflugvélar þeirra hafa meira að gera þessa da’g- ana en nokkuru sinni. Leiðin frá Alexandriu er orðin svo löng, að flutningar mundu taka allt of langan tíma, ef eingöngu þyrfti að treysta á bifreiðar eða skip, auk jjess sem stærsta höfnin í Cyrenaica — Benghazi —■ er litt nothæf, vegna sifelldra loftárása á báða bóga undan- farið. Flytja þessar flugvélar ekki minna en 250 smál. af benzíni, skotfærum, og vistum dag livern og eftir þvi sem flugvellirnir næst vígstöðvunum eru endur- bættir — þeir voru upprunalega aðeins fyrir orustuflugvélar — eftir því aukast þessir flutning- ar. í fregn frá einum blaða- manni segir, að 70 slíkar flutn- ingaflugvélar hafi lent á einum degi á jjeim flugvelli, sem þeim var aðallega ætlaður. V. Frá Tunis. Þar er einkum um aðgerðir njósnaflokka að ræða á landi, en til bardaga hefir ekki komið siSustu dagana. Hinsvegar hafa verið gerðar allskæðar loftárásir á hafnar- borgir möndulVeldánna, aðal- lega La Goulette og Tunisborg. Milli Jjessara borga er alllangur skipaskurður. Var sprengj um varpað á hann, svo að stein- veggir hans sprungu á kafla og lokaði þá sandurinn að baki þeiin skurðinum. ! s Hagur almennings í Marokkó og Alsír fer nú hraðbatnandi, segir í fregnum þaðan. Fólk fær nú til dæmis fjórum sinnum meiri kjöt- skammt en áður, því aö þá voru níu tíundu hlutar af matvælum og vínum, sem framleidd voru i landinu, flutt úr landi. I Fedala fundusl 350 sinó- lestir af kjöti, sem átti að flytja til Þýzkalands, en til borgarbúa hafði aðeins verið úthlutað 4 smál. síðasla mánuðjnn þar á undau. Kanadaher í Bretlandi í 3 ár. í gær voru liðin rétt þrjú ár síðan kanadiskur her sté á land á Bretlandi í þessu stríði. Var dagsins minnzt með allmikilli hersýningu. McNaughton liershöfðingi, yf- irmaSur allra hersveita Kanada í Bretlandi, bauð hermálaráð- herra Breta, James Grigg, að kynna sér hversu vel herinn væri útbúinn að öllu leyti, og var haldin liersýning í því skyni, sem hersveitir úr öllum deildum tóku þátt i. McNaughton skýrði frá því, að það liefði munað aðeins hálf- um mánuði, að her Kanada- manna i Bretlandi tæki þátt í bardögum í Frakklandi árið 1940. BúiS var að ákveða brott- farardaginn og allt búið til brott- farar. En þá breyttist viðhorfið mjög skyndilega, J>egar það kom á daginn, að bandamenn stóðust Þjóðverjum ekki snún- ing, og það mundi aðeins vera að stofna kanadisftu liersveitun- um í augljósan voða, ef það yrði að ráði að senda þær yfir Erm- arsund. McNaughton minntist og á árásina á Dieppe. Sagði hann, að í henni hefði fengizt dýrmæt reynsla, sem mundi koma öll- um í góðar þarfir, þegar innrás yrði gerð á meginlandið. li. Þjóðverjar hafa fjölgað or- ustuflugvélum sínum í Frakk- landi, bæði þeim, sem berjast í björtu og myrkri. Flugmenn bandamanna, sem hafa farið til árása á herteknu löndin að undanförnu, þykjast hafa orðið varir viS þetta. Þeir skýra líka frá því, að um líkt leyti og þeir hafi orðið þessa var- ir, hafi þeir einnig veitt því eftirtekt, áð Þjóðverjar væri hættir að nota þá flugvelli sina, sem næstir væri ströndinni. Hafa þeir hlaðið garða yfir rennibrautirnar, svo að ekki sé hægt að nota þá. Úrslit Bridge- keppninnar. í nótt, um eitt-Ieytið, lauk Ijridge-keppni þeirri, sem að undanförnu hefir staðið yfir á vegum Bridgefélags Reykjavík- ur. Bar sveit Brynjólfs Stefáns- sonar sigur úr býtum, en með honum í sveitinni eru Guð- munduir Guðmundsson, Pétur Magnússon og Hörður Þórðar- son. Næst var sveit Lúðvíks Bjarnasonar og nr. 3 sveit Sig- urhjartar Péturssonar. Alls tóku 12 sveitir þótt i kepnninni. í febrúarmánuði næstk. mun að forfallalausu fara fram ný keppni innan Bridgefélagsins, og líkur eru til að þá muni verða keppt bæði í meistara- flokki og I. flokki. Rússar mútmæla sigri Þjéflverja hjá Toropetz. Gefa út endurskoðaðar tölur um sigurlnn hjá Kalatsh. RÚSSAR hafa nú gefið út tilkynningu, þar sem þeir mót- mæla því harðlega, að þær fregnir séu sannar hjá Þjóð- verjum, að þeir hafi króað inni mannmargt rússneskt lið hjá Toropetz á miðvígstöðvunum og sé búnir, eða, um það bil að verða búnir, að gereyða því. Segja Rússar um þessar til- kynningar Þjóðverja, að sann- leiksgildi þeirra sjáist bezt af þvi, að þeir liafi verið hraktir hvorki meira né minna en 70 km. vestur fyrir Toropetz, l>ar sem þessi sigur þeirra á að liafa veriS unninn. , Jafnframt gáfu Rússar út endurskoðaðar tölur um sigur þann hjá Surovekino — vestur af Kalatsh í Donburgðunni — sem greint var frá í tilkynningu þeirra í fyrrinótt. Segjasl þeir ekki hafa tekið 305 fallbyssur, heldur 580 og auk þess 15 skrið- dreka, 26 hrynvarða bíla og smáa skriðjdreka, 940 bifhjól, 140 fólksbifreiðar, 150 riffla til varnar gegn skriðdrekum, 65 sprengjuvörpur, 2500 fallbyssu- kúlur, 3500 riffla og aragrúa af öðru herfangi. Vestur af Reshev kveðast Rússar hafa tekið Inörg virki og hindrað Þjóðverja í að koma liðsauka vistum og birgðum til innikróaðra hersveita hjá Veliki Luki. Rúml. 20 þús kr. til V etr arh j álpar innar. Skátar hafa í gærkveldi og fyrrakvöld safnað alls yfir 20 þús. krónum til Vetrarhjálpar- innar, og er það rúmlega helm- ingi hærri upphæð en í fyrra. Heildarsöfnunin í ár nemur kr. 20.868.74. Þar af söfnuðust í austurbænum í gærkveldi kr. 14.598.85. í gærkveldi og fyrrakveld náðist ekki til allra, en þeir, sem enn vildu koma gjöfiun eru beðnir að hringja í síma 4966 og verða þær þá sóttar sam- stundis. Stefán Á. Gíslason frkvstj; Vetrarhjálparinnar biður Visi að færa gefendunum alúðar þakkir fyrir framúrskarandi undirtektir. 1 yrra nam söfnunin í austur- bænum um 7 þús. kr., en heild- arsöfnunin i öllum bænum kr. 9.918.54. Skrifstofa Vetrarhjálparinnar í Bankastræti 7 tekur á rnóti gjöfum daglega. Sími er 4966. Ikiiknun íi Eskifirði. í gær barst Vísi svohljóðandi skeyti frá fréttaritara sínum á Eskifirði: 1 gærkveldi um kl. 9 var slökkvilið Eskifjarðar kvatt að húsi Jens P. Jensen hér i þorn- inu. Hafði kviknað í út frá mið- stoðvareldavél. Tókst fljótlega að komast fyrir eldinn og kæfa hann. Skemmdir urðu litlar. — Ingólfur. Maður bíður bana í bílslysi I gær, klukkan rúmlega fjög- ur, vildi það slys til á Suður- landsbraut, gegnt Hálogalandi, að maður varð fyrir bifreið og beið bana. Maður þessi heitir Sveinn Guðmundur Sveinsson, til heimilis Karlagötu 1, 35 ára að aldri og lætur eftir sig ekkju og þrjú börn. Sveinn var bifreiðarstjóri (hafði áður stundað bakara- iðn) og mun hafa skroppið út úr bílnum sinum, er hann varð fvrir slysinu. Slysið bar að með þeim liætti, að beifreiðarstjórinn, er ók á Svéin, kvaðst hafa ekið með 35 km. hraða, en verið blindaður af of sterkum ljósum frá bif- reið, er koin á móti honum. Þegar hann varð Sveins var, gat hann ekki stöðvað bifreið- ina nógu fljótt. Lenti Sveinn undir henni og er lalið að höfuð- kúpa hans muni hafa brotnað. Ný útgáfa af „Árbókum Reykjavíkur" . . Önnur útg. „Árbóka Reykja- víkur“ kemur í bókaverzlanir í fyrramálið. i Höfundurinn, dr. theol. Jón biskup Helgason, hafði þegar viðað að sér mjög miklu efni iil viðbótar og uppfyllingar fyrstu útgáfunni, en vannst ekki aldur til að ganga frá þéirri, sem nú kemur fyrir almenn- ingssjónir. Eftir lát Jóns biskups var dr. Jón Jóhannesson fenginn til að undirbúa prentun útgáfunnar og hefir liann aukið liana mjög. Snorri Hjartarson kos- lnn forstitönmaður . Bæjarbókasafnslns. Á bæjarstjómarfundi í gær fór fram Jcosning foratöðu- manns bæjarbókasafnsins, og var Snorri Hjartarson, rithöf- undur, kjörinn með 12 atkv. en Jóhann Sveinsson frá Flögu hlaut 3 atkv. Snorri Hjartarson hefir um nokkurra ára skeið starfað við Bæjarbókasafnið. Hann er ung- ur maður og hefir getið sér orðstír sem rithöfundur. Fyrir nokkurum árum ritaði hann á norska tungu skáldsögu, er hann nefndi „Höjt flyver rav- nen“. Þótti hún eftirtekarverð byrjendabók. Snorri er sonur Hjartar Snorrasonar alþm. frá Amarbolti i Mýrasýslu og fyrr- um skólastjóra ó Hvanneyri. $íðnstu fréttir Brezkar flugVélar fóru til á- rása á Vestur-Þýzkaland í nótt. Átján flugvélar komu ekki aft- ur úr þessum leiðangri. Brezka flotamálaráðuneytið hefir tilkynnt, að kafbáturinn ,.Unbeaten“ bafi verið svo lengi i leiðangri, að telja verði hann af. — Vísir. Vegna anna í prentsmiðjunni var ekki hægt að gefa út aukablað í tlag, en það verður gert á morgun. Jarðarför Ólafs K. Þorvarðssonar, forstjóra Sundhallarinnar, fór fram að við- stöddu fjölmenni, í gier. íþrótta- menn gengu fylktti liði óg undir fánum á undan líkfylgdinni, og stóðu heiðursvörð við kirkjuna. Forseti Í.S.Í. og formenn íþrótta- félaga bæjarins báru kistuna i kirkju, en vinir og starfsbræður hins látna úr knattspymufélaginu Fram háru hana úr kirkjunni. Ultima Thule eftir Vilhjálm Stefánsson er koni- in út í íslenzkri þýðingu1 Ársæls Árnasonar, á bókaforlagi hans. Eins og nafnið bendir til fjallar bókin um íslenzk efni, meðal annars af- drif landnemanna í Grænlandi og aðrar „torráðnar gátur úr Norður- vegi“. Ársæll Árnason hefúr áður þýtt og gefið út ýrnsar bækur Vil- hjálms Stefánssonar, og er það fengur, að þessi skuli bætast í þann hóp. Bókin er prýdd myndum og kortum og Jrágangur allur góður og snyrtilegur. Leikföng í fjölbreyttu úrvali, tekin upp í dag. Sæmundur Þópðarson. Mjóstpœti 3. — 2586

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.