Vísir - 04.01.1943, Síða 2
f
VÍSIR
DAGBLAt)
Ctgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pólsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði
Laiisásala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
25 aurar.
Hcr í blaðinu birtist í dag
tiikynning frá ríkisstjórn-
inni var-ðandi viðleitni hennar
í að hafa Jieniil á og drag úr
verðbólgiyinií.s.em stöðugt hef-
•ir fárið .vafaiidi J'ér í landi á
undanfömuin árum. Má full-
yrða að almennt séu menn sam-
mála um, að aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar séu allar til bóta,
og að hún liafi tekið röggsam-
lega og viturlega á máluiium..
Er þannig ekki vafi á þvi að
verðiækkunin á kjötinu mun
mælasjb vel fyrir allia orsaka
vegna. | ^yrsta Íagi er seiinilegt
að, kjöhiéy'zlá aúkjz.t, mjög „ í
landinu, miðað við það, seni
áður var, þannig að komizt
verði ííjá að flýtja veruíegar
kjötbirgðir úi’ landí.
Ef svo fer að útflutningur
kjöts reynist að mestu óþarfur,
sparast ríkissjóði stórfé, með
því að samkvæmt ákvörðunum
Alþingis bar að greiða fé úr
ríkissjóði til.þess að verðbæta
það kjöt, sem út yrði flutt, og
seldist.fyrir. lágt verð á erlend-
um inarkaði. Nú er að vísu gert
ráð fyrir því að rikissjóður
gmði til bænda uppbót, en sam-
kvæmt , upplýsingum, sem
fyrir liggja er sennilegt að
kjötbirgðir í .landinu séu nú um
lOOfr torín, ,en verðuppbótin,
sem greiða þarf til framleiðend-
anna mpn nema einni krónu
á tvíppntjið, ,og verða það rikis-
sjóði ékki tilfinnanleg útgjöld,
eins og sakir standa, enda liefir
afkoman verið góð að undan-
fömu. Ef að kjölið yrði hins-
vegar flutt út er talið að ríkis-
sjóður yrði að greiða miklu
Iiærri uppbót á kjötið, og var
þannig rætt um það i þinginu,
að þær greiðslur gætu numið
allt að 25 milljónum króná.
Þótt gera mætti ráð fyrir að slík
uppbótargreiðsla myndi reyn-
ast mun lægri, er þó sennilegt
að ríkissjóður hagnist verulega,
ef að neyzla innanlaius. eykst
stórum frái-hyí sem verið hefir. ]
Kjöt éf éiiifilg eínhvér liöiíásta
og kjarnbezta fæða," sem völ er
á, og neytendur munu því taka
lækkuií þéss&ri ftígiiisaiiilega, og
gera sítÉ til áð hún komi að
fullu gágni.
í þessú’ sámbandi er vert að
gefa því gáúm' hvílikan þegn-
skap Félag kjötverzlana sýnir,
er það‘sáiiijiykkír að íækka á-
lagningú sínd frá því, sem líðk-
azt héfié Vil þessá. Némur su
lækkun tuttugu og fimm aur-
um á livér't tvíþund súpukjöts,
en méirú á dýrara kjöti, og
sparast ueýtendum nokkurt fé
við það, Hingað til, liefir það
verið svo, að allir eru sammála
um að innanlandsástandið sé
jiannig að nauðsyn beri til að
dregið verði úr, verðbólgu og
dýrtíð, en sá hefir verið galli
á gjöf Njarðar, að hafi átt að
gera einhverjar ráðstafanir til
úrbóta hefir verið rekið upp
i'anunavein af þeim, sem ráð-
stafanirnar hafa bitnað á, og
allir hafa skorazt undan að
taka á sig nokkurar byrðar.
Verði hinsvegar um verulegan
atturhata að ræða, er sýnilegt
að allir verða nokkuð á sig að
leggja, og eiga einnig að gera
það með glöðu geði, ef eitt er
látið yfir alla ganga. Félag
kjötverzlana hefir liér gefið
fordæmi, sem virðingarvert er
og meta ber, enda er þess að
vænta að aðrar stéttir hagi sér
eflir því og skorist fyrir sitt
leyti ekki undán að sýna sama
þegnskap og óeigingirni. Eigi
að ráða I>ót á meinsemdinni
getur enginn lil |>ess ætlazt, að
hann einn sleppi við auknar
byrðar, en bróðurpartur lians
verði lagður á herðar náungans.
Ríkisstjórnin hefir þegar
sýnt, að henni var full alvara, er
hún lýsli yfir þvi, að hún liti
svo á að höfuðverkefni sitt væri
það, að vinna gegn aukinni dýr-
tíð í landinu, og allar þær ráð-
stafanir, sem hún hefir gert
verðlagi til lækkunar mun hafa
áhrif til lækkunar á vísitölunni,
og vera því skref í rétta átt til
þess að efla atvinnuvegi og
framleiðslu landsmanna, en
Vissulega var í algert öngþveiti
komið í því efni, ef ekki var
horfið með öllu af verðhækk-
unárbrautinní. Almenningur
verður að Iiafa það ríkt í liuga,
að ’þótt hann leggi lítillega að
sér[ í bili er bann jmga fórn að
færa, heldur fyrst og fremst að
viniia að eigin hag. Hann er
að bjarga éignum sínum og vel-
ferð þjóðarinnar, — forða frá
algeru atvinnu- ög fjárhags-
hruni. Á hér við sem oftar hið
fornkveðna, að sameinaðir
stöndum við, en sundraðir föll-
um við, enda á þjóðin það nú
við sjálfa sig hvort hún kýs
heldur, afturbatann eða hrunið.
Gamlár sk völd:
Bílslys - 20 íkveikjur
Manníjölda dreift
með vatrti,
Gamlárskvöld leið að þessu
sinni svo, að ekki dró til neinna
stærri tíðinda. Helztu atburðir
kvöldsins voru þeir, að maður
varð fyrir bifreið og slasaðist, að
unglingar kveiktu á allmörgum
stöðum í, án þess þó að verulegt
tjón hlytizt af, og að múgur
fóiks, einkum unglinga, safnað-
ist saman fyrir utan lögreglu-
stöðina, unz honum var dreift
af lögreglu með vatnsslöngur að
vopnum.
Bifreiðarslysið átt sér stað á
horni Austurstrætis og Lækjar-
götu rétt eftir miðnætti. Ók er-
lend herbifi-eið á mann nokkurn,
Þorstein Eiríksson að nafni, til
heimilis á Hverfisgötu 90, og
ínun hann hafa ig?ikl|tnað. Var
hann strax fluttur á sjúkrahús.
íkveikjuæði greip 'inarga
unglinga á gamlárskvöld, og
kveiktu þeir í á um eða yfir 20
stöðum í bænum. Slökkviliðið
var þráfaldlega kallað út, en í
flestum tilfellum mun götulög-
reglan þó hafa ráðið niðurlögum
þessara elda áður en þeir' yllu
tjóni og jafnframt handsamað
flesta brennuvargana. Voru þeir
fluttir á lögreglustöðina og
geymdir þar fram yfir miðnætti,
en þá sleppt út,
Fyrir framan lögreglustöðina
safnaðist hópur fólks, aðallega
strákar, og hófu grjótkast, er
einkum var læint á gluggarúður
lögregl us töðvari nnar. Ei t tli vað
brotnaði af rúðum og norskur
liermaður særðist á höfði af
steinkasti, en lögreglan svaraði
nieð því að dæla vatni og dreifa
mannfjöldanum, án j>ess að til
stærri tíðinda drægi.
Ölvun á almannafæi var ekki
til neinna muna og var pláss
fyrir fleiri í fangaklefunum en
þangað voru fluttir — en það
þykir rólegt gamlárskvöld.
VlSIR
Ráðstafanir ríkisstjórnar-
innar til þess að
draga úr dýrtíðinni
Mikil verðlækkun á smjöx*i9 eggjum, fpystu
kjöti, saltkjöti og kolum.
Allar vörur háðar verðlagseftirliti.
RÍKISSTJÓRNIN boðaði blaðamenn á fund sinn
laugardaginn 2. janúar s.l., og skýrði þeim frá
ráðstöfunum, sem gerðar hefðu verið í því
augnamiði að lækka verðlag og dýrtíð í landinu. Hafa
egg verið lækkuð úr 25 lcr. kg. í 16 kr. kg., smjör úr
kr. 21.50 niður í 13 kr. kg., kindakjöt (súpukjöt) úr kr.
7.75 kg. í kr. 6.50, saltkjötstunnan úr kr. 820.00 í kr.
690.00 og kolatonnið úr kr. 200.00 í kr. 184.00. Jafn-
framt hefir hámarksverð eða hámarksálagning verið
ákveðin á ýmsum vörum, en ætlun stjórnarinnár er að
verðlagseftirlit sé með öllum vörum, sem seldar verða
í landinu.
K jöt verður verðbætt með framlagi úr rikiss.jóði,
sem nemur 1 kr. á kg., en samkvæmt ákvörðun Alþing-
is ber að verðbæta allt kjöt, sem selt kann að verða á er-
lendum markaði. Myndi sú greiðsla nema miklu hærri
upphæð en þeirri, sem greidd verður, ef k.jötið selst
á innlendum markaði. — Nú munu vera fyrir-
Jigg.jandi um 4000 tonn af k.jöti í landinu. Þá hefir rík-
isst.jórnin ákveðið, og þegar hlutast til um að sm.jör
verður flutt inn frá Ameríku, og sætir það forgangi um
flutning til landsins, en ágóða af sölu þess verður varið
til að verðbæta sm.jör íslenzkra framleiðanda.
Greinargerð
ríkisstjórnarinnar.
Ríkísstjónin hefir talið rétt-
mætt, að almenningur ætti j>ess
kost, að fylgjast með aðgerðum
stjórnarinnar. Stefnuskrá henn-
ar er þegar kunn af ræðu for-
»sætisráðherra, er hann liélt,
l>egar stjórnin tók við fyrir
hálfum niánuði.
Meginverkefni stjómarinnar
er að reyna að stöðva verðbólg-
una og vinna síðan bug á dýr-
tíðinni, svro að alvinnuvegir
landsmanna komizt á slikan
grundvöll, að bægt sé að fram-
leiða vörur til útflutnings fyrir
jiað verð, sem er fastmælum
bundið við erlendar þjóðir með
samningum milli rikja.
Alþjóð er kunnugt, hversu vel
og rösklega Alþingi brást við
er það samþykkti lög á einum
degi, er bönnuðu hækkun á
vöniverði til febrúarloka.
Með þessi lög að baklijarli
liófst rikisstjórnin lianda þeg-
ar i stað um rannsókn á þvi,
hvort liægt væri að fækka dýr-
tiðína,
í því skyni er áformað að
verðlagseftirlitið verði látið
taka til allra vara. Skýrslum er
safnað og verður safnað um
hvað eina í verzlunum, veitinga-
stoðum o. s. frv., en málið er
svo viðtækt, að til þessa liefir
ekki verið unnið úr nema Jithi
einu, og líður því nokkur tími
unz fullur árangur keiíiur í ljós
í breyttri vísitölu. Ætlunin er, að'
setja alla vöru undir verðlags-
eftirlit, ýmist með hámarks-
verði eða hámarksálagningu,
hvort sem um er að ræða vísi-
töluvörur eða ekki, þvi að fleira
er vitanlega keypt en þær.
Árangurinn í lækkunarátt,
sem þegar er kunnur, er [>essi:
Egg hafa lækkað úr ca. 25 kr.
kg. í 16 kr. kg.
Smjör hefir lækkað úr ca.
kr. 21.50 kg. í kr. 16.00 kg.
Kindakjöt (súpukjöt) liefir
lækkað úr ca. kr. 7.75 kg. í kr.
6.50 kg.
Kol hafa lækkað úr ca. kr.
200.00 tonnið í kr. 184.00 tonnið.
Saltkjöt úr 820 kr. tunnan í
kr. 690 tunnan.
Þá hefir verið ákveðin liá-
marksálagning á tilbúnum fatn-
aði karla, kvenna, barna og
unglinga, svo sem auglýst hefir
verið, en til þessa liafa ákvæði
um hámarksálagningu ekki
verið í gildi um þessa vöru. Á
næstunni verða sett slík ákvæði
um æ fleiri vörur og verður
einkum liraðað aðgerðum varð-
andi þær vörur, er skipta miklu
máli fyrir almenning.
Þá er rétt að taka þetta fram
um lækkun verðs á einstökum
tegundum:
Iíjötverðið er lækkað með
framlagi úr ríkissjóði, er nem-
ur kr. 1.00 pr. kg. kindakjöts
hverrar tegundar sem er. Auh
þess hefir Félag kjötverzlana
riðið á vaðið og gefið eftir liluta
af söluþóknun sinni, og nemiir
sú lækkun á tekjum þeirra t. d.
25 aurum á hverju kg. súpu-
kjöts og enn meiru á dýrara
kjöti, t. d. hangikjöti. Smjör
verður flutt inn frá Ameríku,
en ágóða af öllu þessu verður
varið til þess að verðbæta ís-
lenzka smjörið. Vinnst þá ]>etta,
að meira smjör verður á lioð-
stólum og verðið lækkar, en
innlendir framleiðendur tapa
þó engu.
Almenningur kann að óttast,
að eggin hverfi af markaðnum
er verðið lækkar. En rikisstjórn-
in telur sig hafa fulla ástæðu til
að ætla að svo verði ekki, en
sjálf mun liún grípa til frekari
ráðstafana ef þörf krefur.
Það má vel vera, að almenn-
ingur vantreysti því, að verð-
lagseftirlitið komi að fullum
notum, en rík álierzla verður
lögð á að svo megi verða, og
raunar getur fólk sjálft gengið
úr skugga um, að fylgt sé á-
kvörðun uni hámarksverð, ef
það geymir allar auglýsingar
og aðgætir, að rétt verð sé tekið
fyrir vörurnar.
Ávarp forsætisráðherra.
Björn Þórðarson forsætisráðherra flutti ávarp til þjóðarinn-
ar á gamlárskveld, er hér fer á eftir. Ennfremur flutti Einai’
Arnórsson dómsmálaráðherra ræðu, er væntanlega birtist hér í
blaðinu á borgun.
Góðir áheyrendur!
í fornsögum vorum segir frá
því, að sumir menn liafi verið
spakir að viti eða forvitri. Þeir
voru ekki margir, en þó nokkr-
ir. Ös§ jiútímamönnum er
gjarnt að skiljg ])g{{a svo, að
þessir nienn hafi verið gæddir
rikari athyglisgáfu en aðrir
menn almennt, og kunnað hetur
að sjá fyrir afleiðingar af viss-
um atburðum og atvikum. En
véra má, að hér komi enn annað
til greina, það, að þeir liafi ver-
ið gæddir óvenjulegri hugsæis-
gáfu, skynjun fram i tímami
eftir leiðum, sem, ]>eim einum
voru færar.
Hinn fyrsta dag þessa mán-
aðar, ]>egar eg talaði hér fyrir
framan hljóðnemann, var mér
það með öllu liulið, að 15 dög-
um síðar ætti eg að takast þann
vanda á hendur að gerast for-
maður rikisstjórnar þessa lands
og ávarpa yður i þessari stöðu
síðasta dag mánaðarins, síðasta
dag ársins.
Eg er ekki forvitri. Sú gáfa,
ef orðið þýðir spásagnargáfa,
mun vera gefin aðeins fáum út-
völdum og vera þess eðlis, að
hún getur vart þrifizt við þau
skilyrði, sem flestir af oss lifa
við og nú ríkja. Vér verðum
hvert og eitt að notast við þá
gáfu, sem oss er gefin, og leitast
við að nota hana til þess að
semja oss að þeim tíma, sem
vér lifum á. Reynsla vor og
þekking nær skammt, en ef vilj-
inn er nægur, og vér tökum i
þjónustu vora þau hjálpargögn,
sem tiltækileg eru, þá kann oss
að auðnast að sþilja ekki aðeins
pðstöðuna á hðandi stund, held-
ur og fá skyggnzt eftir likum
fyrir því, hvað að höndum getur
borið í nánustu framtið.
Frá upphafi véga höfum vér
aldrei þurft, á einum og sama
tíma, að snúast við jafnmörg-
um, miklum og óvæntum við-
horfum og skapazt hafa síðusfu
ár.
Einangrun lands vors er úr
sögunni. Flugtæknin orkar því,
að nú er aðeins dagleið héðan
til Vesturheims og fara má á
eyHarstund fil mikilvægustu
staða í Evrópu. í einni sviþan
var land vort gert að einu höf-
uðvigi í styrjaldarátökunum, og
í landinu dvelur nú sú mergð
annarra þjóða manna, að vér
fáum þar engri tölu á komið.
Inn í landið hefir borizt meira
fjármagn en oss hefir nokkurn
tíma dreymt um.
Þegar nú sú ólga og truflun í
þjóðlífinu, sem þessar stað-
reyndir liafa haft í för með sér,
blönduðust á þvi ári, sem nú er
að enda, saman við gömul, land-
læg og viðkvæm innanlandsmál,
þá verður það skiljanlegt, að
fulltrúa þjóðarinnar gat greint
á um það, hvernig taka bæri á
þeim viðfangsefnum, er fyrir
liggja. Afleiðing þessa ágrein-
ings varð sú, að núverandi rík-
isstjórn var skipuð. Stjórnin
var skipuð með öðrum liætti en
hin almenna þingræðisvenja
gerir ráð fyrir. Hér var án hylt-
ingar og að lögum myndað for-
dæmi, sem i sjálfu sér getur orð-
ið lærdómsríkt og affarasælt
fyrir friðsamlegt og stjórn-
skipulegt líf þjóðarinnar. For-
dæmið er fengið, og ]iað verður
annaðhvort lil varnaðar eða
eftirbreytni í framtíðinni, þegar
lík atvik kunna að verða fyrir
hendi. Þjóðfélag vort er fá-
mennasta menningarríkið, sem
vér ]>ekkjum. Það er því ekki
fyrir það að synja, að oss liæfi í
stjórnarfarslegu tilliti að fara
j stundum vorar eigin leiðir í
j staðinn fyrir að fylgja afdrátt-
í arlaust fyrirmyndum frá öðr-
um.
j Þessi stjórn hefir tekizt á
i heridur skyldur, þungar skyld-
j ur. Hún liefir lofað því að reyna
j að vinna hug á dýrtíðinni og að
! þrýstá niður verðbólgunni.
, Enníremur að vinna að því, að
; atvinnuvegunum verði komið á
svo heilbrigðan grundvöll, að
framleiðsla vara til sölu erlend-
: is geti haldið áfram samkvæmt
því, sem samningar við við-
skiptaþjóðir vorar gera ráð fyr-
ir, og stjórnin vill finna ráð til,
að skipakostur landsmanna
komi þeim að sem beztum not-
um.
Enga meinsemd er unnt að
lækna án þess að þekkja orsakir
hennar greinilega. Stjórnin mun
því gera sér allt far um að
kvnna sér þessar orsakir eftir
föngum og leggja síðan fram
tillögur sínar til úríwta.
Þessar tillögur mun stjórnin
reyna að miða við alménniilgs-
hag og án þess að fara í mann-
greinarálit. Þeir, sem hafa
fengið mikið undanfarin ár,
mega vera við því búnir, að
hagnaður þeirra rýrni, og að
]>eir verði að bera nokkrar
byrðar. En þeir eiga heimtingu
á, að ]>ær h}rrðar, sem á þá
kunna að verða lagðar, verði
notaðar til viði’éttingar lieil-
hrigðara fjárliagslifi.
Stjórnin lítur svo á, að hún
hafi, að svo stöddu, engan rétt
til að krefjast af almenningi,
engri stétt, neinna fórna, enda
þurfi þess eklvi. Þvi að það er
ekki fórn heldur aðeins fram-
sýni að verja nokkru af afla sín-
um til ]>ess að styi’kja gnmd-
völlinn Uridir framtíðarhag.
* Þegar stjórniri htífir afráðið
hverjar Ieiðir Ilún telur tlltæki-
legar og stefna í áttina tíl úr-
lausnar þeim málum, sem eg
nefndi, leggur hún tillögur sín-
ar fyrir fulltrúa þjóðarinnar,
Alþingi. Samstarf stjórnarinn-
ar við Alþingi hófsl fyrir jólin
á ánægjusamlegan hátt fyrir
stjórnina. Hversu lengi þingið
vill halda samstarfinu áfram og
una því, það leiðir tíminn í ljós.
Þótt örlögin Iiafi húið oss
betri kjör í yfirstandandi styrj-
öld en ef til vill nokkurri ann-
ari þjóð, þá höfum vér þó af
Iiennar völdum orðið á bak að
sjá mörgum vöskuni dreng,
sem hætti lífi sínu og missti það
á meðan vér, sem í landi erum,
höfum ekkert lagt i sölurnar.
Skyldan við minning þeirra og
vandamenn þá, sem ]>eir liafa
eftir sig látið, á að vera oss
brýning um, að vér öll rækjum
hlutverk vort með trúmennsku.
Vér verðum að sýna það í
verki, að vér metum þjóðarliag
meira en stundarhag einstakl-
ingsins, og marka honum því
hæfilegan bás. Ef fólkið, serri
Hafið þér reynt DERBY-veðreiðaskoppuna
VÍSIR
Iand þetta byggir, skiptir sér í
mannhópa, með ósamrýmanleg
sérsjónarmið, sem hindra það,
að samstarf megi takast um
mál, sem allir sjá, að alþjóðar-
heill er undir komin, þá missum
vér samúð vina vorra, sem svo
mikið veltur á að halda. Það
kastar rýrð á kynstofn vorn,
sem vér verðum að trúa á, að
eigi enn eftir að inna lilutverk
af liendi, og geti skipað rúm sitt
með sæmd, hvar sem hann sezt
á hekk með öðrum þjóðum. Vér
verðum að beita vitsmunúm
vorum og siðferðisþreki á þann
veg, að enginn freistist til ]>ess
að gera sér dælt við þjóðmenn-
ingu vora. Fámennið leggur á
oss þyngri skyldur í þessu efni
en nokkra aðra þjóð.
Stjórnin getur ekki lofað
yður því að leysa af liendi nein
afrek, en liún heitir því að vinna
eftir beztu getu.
Samstarfsmenn mínir, sem
fara með atvinnumál, fjárhags-
og viðskiptamál og félagsmál,
liafa í hyggju, hver á sínu sviði,
að skýra yður frá eftir áramót-
in, hverriig ]>essi mál horfa við,
eins og sakir standa.
Að lokum leyfi eg mér að láta
]iá von í ljós, að í ]>eim Surtar-
loga, sem nú æðir yfir heiminn,
megi baráttan fyrir þjóðfrelsi
og mahriréttindúm verða sigur-
sæl og óska eg öllum landslýð
árs og friðar á komandi ári.
Frá íslendingum
i Danmörku,
Frá sendiráði íslands í Kaup-
mannahöfn hafa utanríkisráðu-
neytinu borizt eftirfarandi upp-
lýsingar í bréfi, dags. 29. okt.
1942:
íslendingafélagið tók til starfa
á ný laugardaginn 12. septem-
ber. Jón Leifs tónskáld, sem þá
var staddur í borginni, flutti ei’-
indi um íslenzk þjóðlög, Har-
aldur Sigurðsson og kona lians
Dóra skemmtu með söng og
hljóðfæraslætti bg ennfi'eAiiur
sungu stúdentar nokkur lög.
Stúdentafélagið liélt fyTstu
kvöldvökuna þriðjudaginn 6.
október. Las Jón prófessor
Helgason þætti úr æviminning-
um íslenzkra alþýðumanna. —
Húsfyllir er í livert sinn á kvöld-
vökunum tvisvar á rnánuði, og
auk flutnings fræðandi efna eru
sungnir íslenzkir söngvar.
Sigurjóni ólafssyni mynd-
höggvara hefir verið falið að
skreyta ráðhústorgið í Vejle með
tveimur miklum höggmyndum,
er Sigurjón heggur sjálfur i
granít. Tákna myndirnai* land-
húnað, handiðn, verzlun og iðn-
að. Tekur verkið tvö ár. Kona
Sigurjóns, sem er dönsk og
myndhöggvari eins og maður-
inn, seldi nýlega höggmynd
Carlsbergssjóði.
Jón Stefánsson málari hef.ir
ípildið sýningu hér í horginni
undanfarna daga, selt sæmilegá
og hlotið góða dóma.
Svavar Guðnason málari sýnir
myndir á haustsýningu hér í
borginni. Á listiðnaðai’sýningu
danskri, sem nú er lialdin í
Stokkhólmi, sýnir Júliana Svnis-
dóttir listvefnað.
Bók Gunnars Gunnarssonar:
„Heiðaharmui’“, etr á dönsíku
heitir „Brandur paa Bjarg“, er
komin út i öðru upplagi og hlýt-
ur lof ritskoðenda.
Komin er út skáldsaga eftir
Jón Bjömsson frá Holti á Síðu
og heitir á dönsku „Jordetns
Magt“.
f HafnarfirtH
var pólskur sjómaður nýlega tek-
inn fastur fyrir að selja setuliðs-
mönnum áfengi. Mál hans er til
meðferðar hjá bæjarfógetanum í
HafnarfirÖi.
Stórbruni í
Hainarfirði
Árla á gamlársdagsmorgun
kviknaði í húsinu númer
12 við Standgötu í Hafnarfirði,
og brunnu þar innviðir allir og
innanstokksmunir, en fólk
komst með naumindum út,
flest á nærklæðunum einum.
Húsið nr. 12 við Strandgötu,
er tveggja liæða liátt, ásamt há-
um kjallara. Það er byggt úr
timbri og allgamallt orðið. Eig-
andi þess er Jón Einarsson
kaupmaður.
Þrjár fjölskyldur og einn ein-
hleypur maður hjuggu i húsinu,
eða um 20 manns alls. I kjallara
hússins var verzlun.
djöf
til nýja stúdentagarðsins.
Sigurður Árnason frá Höfn-
um í Húnaþingi (f. 1880)
liefir gefið andvirði eins her-
hergis (10.000 kr.) til byggingar
nýja stúdentagarðsins. Skulu
afkomendur lijónanna Sigurð-
ar Árnasonar (afa gefanda) og
konu hans, Sigurlaugar Jóns-
dóttur, er liófu búskap á Höfn-
um 1840 og dóu þar, eiga for-
gangsrétt að dvöl í þessu gjafa-
herbergi, er nefnt verður Hafn-
ir í Húnaþingi, en að þeim frá-
gengiium stúdentar af Skeggs-
staðaætt í Svartárdal i Austur-
Húnavatnssýslu, en að þeim
frágengnum súdentar af Norð-
urlandi.
Þessi rausnarlega gjöf ber
vott um þann hlýja hug, er gef-
andinn her til stúdenta, og
munu ]>eir kunna að meta hana,
eins og aðrar gjafir, er Garðin-
um herast, að verðleikum.
Silfurbrúðkaup
eiga á morgun hjónin frú Gróa
Pétursdóttir og Nikulás Jónsson,
skipstjóri, Öldugötu 24.
Hjúskapur.
Síðastl. laugardag voru gefin
saman í hjónaband frk. Helen Jen-
sen og Niels W. Jacobsen.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Hjördís Pétursdóttir
(P. Þ. J. Gunnarssonar stórkaupm.)
og stud. oec. Bergur Sigurbjörns-
son, og einnig ungfrú Laura Claes-
sen (Eggerts Claessens hrmflm.)
og stud. oec. IJjörtur Pétursson
(Þ. J. Gunnarssonar).
Ennfremur ungfrú Hrefna
Guðnadóttir og Aðalsteinn Ingi-
mundarson.
Ennfremur : Frk. Bjarney Alex-
andersdóttir, Ránargötu 13, og Sig-
valdi Hjálmarsson, Þingholtsstræti
21.
Ennfremur: Guðlaug Þorfinns-
dóttir, Hallveigarstig 9, og Guttorm-
ur Erlendsson, cand. jur.
Fertugur
er í dag Guðmundur Þórðarson,
skipstjóri, Vesturgötu 48.
Norsk gjöf til íslenzkra stúdenta.
Á gamlaársdag afhenti hr. Har.
Faaberg,. skipamiðlari i Reykjavík,
tíu þúsund króna gjöf til Stúdenta-
garðsins frá tíu Norðmönnum hér
í hæ, þeir eru: Paul Smith, verk-
fræðingur, Bernhard Petersen
kaupm., L. H. Miiller kaupm., E.
Rokstad kaupm., frú María Elling-
sen, Erling Ellingsen verkfr., Joh.
Rönning rafmagnsfræðingur, A. J.
Bertelsen kaupm., og Harald Faa-
berg skij>amiðlari. Fyrir fé þetta
verður eitt herbergi á Nýja Garði
nefnt „Norska herbergið“, og er
ætlun gefenda síðar að skreyta það
norskum húsmunum.
«
Prentvilla
var í blaðinu 30. des., i augl. frá
Hljóðfærahúsinu. 1 augl. stóð: Jóla-
lög, 2. og 3. hefti, en átti að vera:
Ljóð og lög, 2. og 3. hefti.
SlökkviliðiS
var kvatt út bæði á nýársdag og
2. jan. Fyrra skiptið var um gabb
Tilkynníng til felaga Sögufélags
Samþykkt var á stjórnarfundi Sögufélágs 24. okt.
1942 svohljóðandi tillaga til viðauka 6. í>t. félagslag-
anna:
„St jórn félagsins er heimilt að ákveða heimtu á árs-
tillögum félaga með viðbót, er samsvari verðlagsvisi-
tölu í janúar ár hvert“.
Samkvæmt því verði ái’stillag 1942 15 krónur.
Stjórn Sögufélagsins.
Ullarsokkar Silkisokkar
Bómullarsokkap
Skinnhanzkar, fóöraðir
Dyngrja, Laugav. 25.
Lijóð ogr lögr
2. og 3. hefti
Hljóðfæralmsið
koiia
óskast til hreingerninga. —
Uppl. í Aðalstræt 16.
Blágrrár
kettliogor
merktur Ingólfsstræti 12 B,
tapaðist í gær. Vinsamlegast
skilist þangað.
að ræða, en i fyrradag kviknaði i
miðstöðvarklefa vestur á Framnes-
vegi. Tjón varð ekkert.
Glímunámskeið
var haldið í lok nóvembermáii-
aðar og byrjun desember á Akur-
eyri. Kennari var Kjartan Berg-
mann Guðjónsson. Stóð námskeið-
ið yfir í þrjár vikur, og að því
loknu fór opinber glímusýning fram.
Er það fyrsta glímusýning á Akur-
eyri frá þvi 1922. Það var íþrótta-
ráð Akureyrar, sem stóð fyrir nám-
skeiðinu.
Herbergi
ú góðum stað i bænum ósk-
ast handa einhleypum
manni. — Uppl. síma 1737.
VANTAR
frammistöQustðlkDr
Hátt kaup.
Matstofian
Gollfioss
Hafnarstræti 17.
Stúlka
óskast 11 ú þegar til afgi’eiðslu
í veitingastofu. — Uppl. í
síma 4309.
Verzlunarmannanámskeiðið
i Háskólanum: Kennsla. Gylfa
Þ. Gislasonar byrjar á morgun.
Félag matvörukaupmanna
hafði fyrir nokkuru til umræðu
hvort hætta skyldi lánsviðskiptum
frá áramótum, og var að lokum
samþykkt að leita úrskurðar félags-
manna um, hvort hætta skyldi láns-
viðskiptum, ef 75 of 100 félags-
mönnum samþykkti það. Ýmissra
ástæðna vegna jiótti þó ekki .tiltæki-
legt, að taka fullnaðarákvörðun í
þessu máli nú þegar, og var frest-
að þar til 1. n.m. að taka lokaá-
kvörðun í málinu. Er þvi fyrra
lánsviðskiptafyrirkomulag óbreytt
þangað til,
Jón E. Bergsveinsson,
erindi Slysavarnafélags Islands
er nýkominn að norðan. Sat hann
þar fund með slysavarnadeildinni á
Akureyri (karladeildinni), og var
rætt um framtíðarstarfsemi hennar.
Jón kom að norðan, frá Sauðár-
króki, 2. janúar. Nokkur snjór var
í Blönduhlíðinni, en skaflar hvergi
að ráði, og tók ferðin til Borgar-
ness að eins eina klst. um fram það,
sem venja er á sumrin.
Næturakstur.
annast B.S.R. sírni 1720.
Næturlæknir.
Halldór Stefánsson, Ránargötu
12, sími 2234. Næturvörður i
Laugavegs apóteki.
Útvarpið í dag.
Kl. 18.30 Islenzkukennsla, 2. fl.
19.00 Þýzkukennsla, 1. fl. 20.30 Er-
indi: Þættir úr sögu Skagfirðinga:
Jón Ögmundsson, I (Brynleifur
T obíasson menntaskólakennari).
20.55 Hljómplötur: Leikið á orgel.
21.00 Um daginn og veginn (Árni
Jónsson frá Múla). 21.20 Útvarps-
hljómsveitin: íslenzk alþýðulög eft-
ir Sigfús Einarsson. — Einsöngur
(Pétur Á. Jónsson): a) de Curtis:
Sigling. b) Alnæs: Síðasta ferð-
in. c) Leoncavallo: Mattinata. d)
Schumann: Hermennimir tveir. e)
Puccini: Söngur úr óperunniTosca.
ca.
Tilkynning.
Hér með tilkynnist, að vér höfum flutt vélsmiðjuna
í hin nýju húsakynni vor við Seljaveg (gengið frá
Yesturgötu)
Skrifstofurnar verða fyrst um sinn á sama stað og
áður.
O Skrifstofan 1365 (2 línur)
^ I lll/f I jverkstjórar 1368,
ISllAlUl " Efnisvarzla 1369.
Geðilegt nýtt ár. — Þökkum viðskiptin á liðnu ári.
Vélsmiöjan Héðinn h.f.
Hllsherjaratkvieðaoriiiðsla
Kosning í st jórn og trúnaðan'áð Verkamanna-
félagsins Dagsbrún fer *fram dagana 16. og
17. jan. þ. á.
Sömu daga fer fram allsher jaratkvæðagreiðsla
um breytingar á lögum félagsins.
Frestur til að skila framboðslistum er til 12.
þ. m. og skal þeim skilað til kjörstjóniar í
skrifstofu félagsins.
Tillögur uppstillinganefndar og trúnaðar-
ráðs, um stjórn og trúnaðarráð. liggja frammi ^
í skrifstofu félagsins.
Lagabreytingarnar og kjörskrá liggja einnig
frammi i skrifstofu félagsins félagsmönnum
tii athugunar.
Reykjavík, 4. janúar 1943.
KJÖRSTJÓRN DAGSBRÚNAR.
Jón Halldórsson
húsgagnasmíðameistari
andaðist í morgun.
Vacidamenn.
Jarðarför dóttur og fósturdótur okkar,
Indíönu Svölu Ólafsdóttur,
fer fram frá dómkirkjunni, þriðjudaginn 5. jan. og hefst
með húskveðju að Hringbraut 64, kl. 1 e. h.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Vilborg Þorsteinsdóttir. Ólafur Þórarinsson.
Ásta og A. Herskind.
Jarðarför
Elinar Jónsdóttur
fer fram frá dómkirkjunni miðvikudaginn 6. janúar og
liefst með bæn frá heimili hennar, Smiðjustig 7, kl. 1 e. li.
Jarðað verður i Fossvogskirkjugarði.
Fyrir hönd vandamanna.
Jóm Magnússon.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda santúð við fráfall og
jarðarför mannsins mins, föður okkar og tengdaföður,
Gudjóns Ólafssonar kaupmanns.
Ingibjörg Sigurðardóttir. Ástdís Guðjónsdóttir.
Sigurður Guðjónsson. Camilla Sæmundsdóttir.
Hugheilar þakkir öllum þeim, sem sýndu okkur saniúð
og vinarhug við fráfall og jarðarför mannsins mins, föður
okkar og sonar,
Sveins G. Sveinssonar bakara.
Kristín Guðmundsdóttir og böirn.
Guðrún Eiríksdóttir. Sveinn G. Gíslason.