Vísir - 12.01.1943, Side 1

Vísir - 12.01.1943, Side 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð) 33. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 12. janúar 1943. Ritstjórar Blaðamenn Auglýsingar Gjaldkeri Afgreiðsta Simt: 1660 5 llnur 8. tbL \merisk flutningaflugvél fermd í Indlandi nauðsynjum til Kína. Flugvélar flytja meira en bílar áður. I‘að vakti mikla eftirtekt, þegar Roosevelt skýrði frá því í boðskap sínum til þingsins í síðustu viku, að nú væri meira magn allskonar hergagna flutt loftleiðis til Kma en eftir Burmabrautinni áður. I>egar hún lokaðist á s. 1. vori, er Japanir tóku Rangoon og hófu sókn sína norður eftir Burma, örvæntu margir um hag Kinverja. En þeir áttu nokkrar birgðir fyrirliggjandi ' og þegar í stað var liafizt handa um að stofna til áætlunarferða vöruflutningaflugvéla frá Ind- landi tii Kína. I april voru þessar flugferðir byrjaðar. Þá voru þó aðeins tvær eða þrjár flugvélar til flutninganna. Voru þær undir stjóm Byroade, majors í flug- her Bandaríkjanna. Þegar kom- ið var fram í júnimánuð, skiptu flugvélarnar tugum og síðan hefir þeim f jölgað jafnt og þétt, svo að nú er um stóran flugvéla- flota að ræða, þótt ekki sé gefn- ar nákvæmar upplýsingar um fjöldann. Flugvélarnar flytja miklu meira en bílarnir, þvi að þær fara margar ferðir á sama tima og hver bifreið fór eina ferð — og með meiri farm í hverri ein- stakri ferð en hver þeirra. Flytja þær mánaðarlega þúsundir smálesta allskonar birgða til Kina. En’ flugið þarna er engmn leikur, þvi að flugvélamar verða að fara yfir hæstu fjöll í heimi —v Himalaya-fjöJlin. Veður em mjög óstöðug á þessum slóðum og veðurfregnir af skompm skammti, þvi að fjöllin em að miklu leyti óbyggð, vegna þess hve þau eru hrikaleg og ógreið- fær, svo ekki er hægt að koma upp veðurathugunastöðvum. — Ofan á það bætist, "áð Jap- anar reyna að gera flugvélunum allar þær skráveifur, sem þeir geta og komast flugmennirair oft i hann krappan, þótt slys hafi sjaldan átt sér stað. Þetta er þó sjaldgæfara upp ó síðkast- ið, síðan bandamenn gerðu svo harðar árásir á nyrzta flugvöll Japana, i Myitkiyna, að þeir Iiöfðu sig á brott þaðan. Byroade, major, yfirmaður flutninganna fer miklu lofsorði um pilta sína, sem standa í þess- um stórræðum. Hann hefir sagl m. a. við blaðamenn: „Það eru þrekvirki sem þessi, sem munu ráða úrslitum í stríð- inu!V Frakkar um 500 km. frá Tripoli. Sókn LeClercs frá Tsad- vatni gengur að óskum. Síðustu tilkynningar um hernaðaraðgerðir i Fazzan-hér- aði eru á þá leð, að þær gangi Frökkum í vil. Eru þeir rúm- lega 500 km, fyri suðaustan Trii>oIi og sækja jafnt og þétt noröur á bóginn. Á 1700 km. ferð frá aðalbæki- stöð sinni við Tsad-vatnið hefir herdeildin m. a. lekið um 200 fanga og margskonar herfang. Hún á nær eingöngu í höggi við ítali. * Danskir naziitar óánægrdir Tvö dönsk nazistablöð hafa látið all-ófriðlega að undan- fömu, segir í fréttum frá Sví- þjóð. Blaðið „Fædrelandet“ kvartar undan því, að danska lögreglan geri sér mannamun. Þegar naz- isti eigi í Iilut, þá reyni lögregl- an jafnan að gæta þess, að hann nái ekki rétti sinum. Krefst I>laðið l>ess, að bót verði ráðin á þessu. Vikublaðið ,JKritisk Ugerevy“ er reitt hinum kaþólska biskupi landsins fyrir þau ummæli hans, að menn geti ekki verið kristnir menn um leið og nazistar. 100.000.000.000 d. til styrjaldar- þarfa. r ronr I.03 S^rma. Flugmenn bandamanna í Ind- landi hafa unnið mikið tjón á samgöngukerfi Japana í Burma. Ráðizt hefir verið á stærstu brúna' á Irrawaddy-fljóti, skammt frá Mandalay í Mið- Bumia. Var mörgum þunguni sprengjum varpað á liana og liæfðu sumar þeirra miðbogann með þeim árangri, að þegar frá var horfið, lá hann i fljótinu. Um brúna fór öll bifreiða- og jámbrautaumferð milli Suður- og Norður-Burma, svo að hér er um mjög tilfinnanlegt tjón að ræða fvrir Japani. • Wellington-flugvéiar halda uppi árásum dag og nótt í Ara- kan-héraði, á Akyab og um- hverfi borgarinnar. ^ Japöiiiku her- ikipi iökkt Amerískar flugvélar hafa sökkt japönsku beitiskipi eða tundurspilli hjá Nýja Bretlandi. Var skipið statt undan Gas- mata, þegar það var hæft þung- um sprengjum, svo að miklar sprengingar urðu í því. Næsta morgun fóru flugvélar á vett- vang til að hyggja að skipinu, en sáu það hvergi. Ekki var hægt að sjá með vissu, hvort um væri að ræða beitiskip eða stóran tundur- spilli. Roosevelt Bandaríkjaforseti sendi þinginu fjárlagafrumvarp sitt í gær og boðskap með því. Fjárlög þessi eru hin hæstu i sögu lieimsins, því að þau nema 109 milljörðuin dollara eða um 700 inilljörðum kr. (meira en 20.000 sinnum hærri en síðustu fjárlög okkar). I hoðskap sinum sagði Roose- velt, að nú væri um að gera að ganga að því af kappi að heyja hið algera stríð, þar sem búið væri að undirbúa iðnaðinn undir það. Síðisstu fréÉtir Bissell, yfirmaður 10. flug- hers U. S. í Indlandi, hpfir skýrt frá því, að amerískar flugvélar hafi farið í 25 leiðangra frá Ind- landi og 20 frá Kína til árása á Japani undanfarinn mánuð. Nýjar flugvélagerðir. Til Bretlands er nú komin ný gerð hinna svonefndu „Fljúg- andi virkja“, allmiklu full- komnari en sú gerð. sem fram- leidd var áður. Virki af þessari gerð geta flogið 3500, km. í lotu, með 360 km. meðalhraða á klst., en hurðarmagnið er I smál. Bvss- I ur flugvélapna eru 13 að tölu, mjög langdrægar vélhyssur. Þá liefir verið tilkynnt, að ný tegund af Spitfire-vélum liafi I vcrið tekin í notkun. Er lnm | með öllu sterkari hreyfii en liin- I ar eldri, og liefir þvi fjórða blaðinu verið bætt á skrúfuna, því ekki var hægt að lengja þau, J>rjú, sem fyrir voru á henni án }>ess að þau næmi við jörð, þegar flugvélin væri að lenda eða fljúga upp. Þessi tegund er sérstaklega ætluð til flugs mjög liátt í löfti. Hún er vopnuð tveim fallhyssum og 4 vélbyssum. Rússar um 150 km, fyrir vest|an Mosdok Dittmar segip, ad Djóðvepjap iiafi of fáa hepmenn. Hörð gagnáhlaup Þjóðverja á miðví jslö ðvunum. EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS, New York, í morgun. íðan Rússarnáðu Mosdok úrhöndum Þjóðverja rétt eftir áramótin hafa hersveitir þeinn $ótt fram um 150 km. Er þessi framsókn raun- verulega öllu meira afrek en vegalengdin gefur til kynna, því að færð er afarerfið, kafsnjór á öllum veg- um, sem eru fáir, og Þjóðverjar sá jarðsprengjum um alJt að baki sér, svo að fara verður mjög varlega. — Aðeins í gær fóru Rússar næiTÍ 30 km. og er það lengsta framsókn þeirra á einum sólarhring. A þessum tíma tóku þeir niu borgir, flestar allmikilvægar, þar sem þær standa við jámbrautina milli Rostov og Baku. Hefir það mikla þýðingu fyrir Rússa að geta náð sem mesttr af brautinni, því að það auðveldar flutninga ]>eirra. Þjóðverjum, scni heima sitja, Jiefir nú verið sagt undan og ofan af um sókn Rússa og undanhald hersveita Þjöðverja og bandamanna þerira. Dittmar liershöfðingi, sem ræðir jafnan i útvarpið um liernaðarmál, hélt fyrirlestur i gærkveldi. Sagði Iiann, að Þjóðverjar liefði of fáa menn á austurvígstöðvunum, og þvi hefði þeir neyðst til að láta undan siga, en nú yröi btetl að vigstöðvarnar fengi allan þann mannafla, sem þær þörfnuð- ust, þólt það gerði miklar kröfur tíl „heiinavigstöðvanna“, — Dittmar ræddi aðallega um bardagana í Don-bugðunni, þar seiii liann sagði að Rússtvr liefði rekið fleyga — óg þá ekkí nein smáræði — inn í víglínur Þjóð- verja. Sagði Dittmar, að það liefði reynzt erfitt að víggirða margar ]>ær stöðvar, sem Þjóð- verjar hefðu tekið og því væri vörnin erfiðleikum hundin. „Jafnvel Friðrik mikli lét svo um mælt“, sagði Dittmar, „að hinir dugmestu hermenn gætu verið sviptir sigrinum, ef liðs- munur væri of mikill.“ Þykir bandamönnum sannað með þessu það, sem þeir hafa haldið fram, að Þjóðverjar sé í miklu mannhraki sakir mannfalls. Sóknin. Meðal lx>rga Jjeirra, sem Rúss- ar tóku i gær, voru Georgievsk, sem þeir höfðu umkringt, Min- eralni Vodi, er kom allmikið við sögu í haust, Kjslavodsk og Budjenovsk. Tvær siðaslnefndu borgirnar eru við enda á járn- brautarlinum, sem greinast fra áðallínunni. Kislavodsk er fyrii' sunnan hana og Budjenovsk fyr- ir norðan. Bilið milli þeirrar sveitar, sem sótt hefir norður úr fjöllunum til Kalmúkasléttunnar og þeirr- ar, er kemur norðan frá Elista, er nú aðeins um 20 kniv Séknin suður frá Elista. Þær sveitir, sem stefna suður lil fjallanna í Kákasus eftir Kalmukasléttuiuim frá Elista, virðast ekki þurfa að hrjóta mikla mótspyrnu á l>ak aftur. Enda var svo komið, að undan- liald var hafið hjá þeim sveit- um Þjóðverja, sem austast voru komnar, um samá leyti og Rúss- ar náðu Elista á sitt vald. Síðustufregnir frá þessai'i sókn eru á þá leið, að rússneSkar sveitir hafi faríð yfir Manieíi- ' ána og tekið borgina Petrovski, sem er sunnan hennar. Manichá ' er lítl, kemur upp fyrii- norðan Pj'atigorsk, i'ennur fyrst norður og beygír síðan í áttina til Ka- spíahafs, en rennur ekki i það, . lieldur i litið saltvatn þar á slétt- unni. Það eru aðallega riddara- sveitir. Kósakkar, sem þarna berjast, en með þeim em líka vélasveitir. Lið þetta hefir verið flutt eftir leynijárnbraut fná Astrakan, segir í einni fregn. Við Don og Stalingrad. Fyrir sunnan Don hafa Rúss- ) ar enn sótt 30 km. meðfram ■ járnbrautinni frá Stalingrad. Hefir þvi vegalengdin til Salsk ininnkað mikið. Hafa þeir tekið mörg þorp á þessum slóðum. Hinsvegar er þess ekki getið, að þeir hafi sótt neitt fram fyr- ir norðan fljótið. Getur verið, að Þjóðverjum hafi tekizt að stemma stigu fyrir sókn þeirra þar, eins og þeir stöðvuðu þá á leiðinni til Millerovo og Kain- enskaya. í Stalingrad liafa Rúss- ar gert nokkur áhlaup með þeim árangri, að þeir liafa hrak- ið Þjóðverja úr sex stöðvum. I Hjá Veliki Luki. Þar standa yfir harðir bardag- ar og samkvæmt seinustu fregn- um liefir Þjóðverjum vaxið fiskur um lirygg. Skýra Rússar sjálfir frá þvi, að siðustu þýzku gagnáhlaupin hafi verið mjög einbeitt, svo að á einum stað hafi þeir getað hrakið lier- sveitir Rússa aftur á ]>ak á nokk- uru svæði. Rússar eru táldir framleiða um 2000 flugvélar á miánuði af tegundum sem nálgast mjög það bezta, sem Þjóðverjar tefla fram. Kolviðarhóll auglýst- ur til leigu í vor, Þessa dagana auglýsrr íþrótta- félag Reykjavíkur skíðaheimili sitt, Kolviðarhól, laust til leigu og ábúðar frá næstu fardpgum. Eklti er }x> svo að skilja, a# l.R.-ingar ætli að sleppa 3Ínuat félagslegu tengslum til HríTinn, þau verða hin sömu eftir -sei* áður. Hinsvegar hefir félagið ai undanförnu leígt frú Yalgerii Þórðardóttur Hólinn til.Shúðar og nytjar hún jörðina og annaut veitingasölu. Nú langar frú Yalgerði lil -ai hætla í vor. Erfiðið, samfara vei tingasölunni, er.. svo '111008, einkum að vetrinum, þegar næt- urgestir komast á annáð hundr- að, og daggestir skipta' irfprgutt hundruðum sumar hejgar, ai það er næsta von að jafnroski* manneskja, sem frú Yalgeríðui er, æskí hvildar eftir langt og vel unnið ævistarf. Er frú Valgerður allrakvenxa vinsælust og rausnarlegusl, ©f því líkast, sem hún ei^í Tiverl hein i gestum sinum, enda þykir öllum vænt um hana, er henmi hafa kynnzt. Mun ínörguin því finnast það ill tiðincti, en .skki góð, áð frú Yalgerður sktdLælím sér að liæitta. Vonandi verður liún samt áfram á Ilólnum, þótt hún hætti að búa, ög mun þai verða vinuin hennar, hæði met- al l.R.-inga og annara, nokbur huggun, Tiihoíi eíga að berast tiLJóms Kaldals, formanns skiðaöeildar 1. R„ fyrir 1. febr. n. k., og em þegar farnar að berasi tirhaK*; nokkurar fyrirspurnir. Hefir Kaldal skýrt Vísi frá þvi, að fyrirhugað sé að haldta skíðanámskeið á Hólnumri yet- ur, ef snjór verður nægur iil }>ess. Ekki er enn afráðið hvm- nær það hefst, né heldiu’ er kennari ráðinn. Tuniss Aðalhækistöð Þjóðverja í Kairwhan í Tunis hefir yerii sprengd í loft upp. Orustuflugvél, sem vanitbú- in sem sprengjuflugvél, var send ein til að vinna þetta verk. Fiaug liún mjög lágt inn yfir borgina og varpaði fiilum sprengjuunum beint ofan ú hús það, sem aðalbækistöðvnmar voru i. Loftárásir voru einnig gerðar á La Goulette og Gabes (tvisv- ar). Um landbardaga er vart að ræða, en Frakkar liafa hrondið áhlaupum Þjóðverja skammt frá Pont de Falis. Giraud hersliöfðingi hefir lát- ið uppi í ræðu, að bandamenn telji Þjóðverja Iiafa flutt 70.006 manns til Tunis, flesla loffleiðis. Loftárás á Ruhr. Brezkar flugvélar fóru fil á- rásar á Ruhr-héraðið í nótt Að- eins ein flugvélanna komst ekki lieim aftur.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.