Vísir - 02.03.1943, Blaðsíða 1

Vísir - 02.03.1943, Blaðsíða 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiöjan (3. hæð) Ritstjórar Bladamenn Simi: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 llnur Afgreiðsla 33. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 2.‘ marz 1943. tbl. Fáir herir eiga við eins mikla örðugleika að stríða og þeir, sem berjast í frumskógum Nýju-Guiheu. Vegir eru engir til, að heitið getur og loftslagið heitt og þreytandi, svo að öll viona verður erfið og menn verða að taka 7á öllu viljaþreki sinu til að geta unnið eins og nauðsyn krefur. Mvndin er af áströlsku m verkfræðingaflokki, sem er að hýggja brú yfir lækj- arfarveg, svo að hægt sé að fara þarna um með vélknúin her- gögn. Japanir játa ósigurinn á Guadalcanal. Sézt hefir til japanskrar skipa - lestar, sem er á leið til norður- strandar Nýju-Guineu. I skipalestinni eru 14 skip af ýmsum stærðum og er gert ráð fyrir þvi, að þau eigi að fara til Salamaua, þvi að bandainenn- nálgast nú óðum þá bækistöð og Japanir hafa ekki getað stöðvað þá, þrátt fyrir nokkrar tilraunir í þá átt. Loftárásir eru nú gefrðar i sí- fellu á skipin og er það von manna í Ástraliu, að eins fari fyrir þeim og skipalestinni, sem seinast fór til Nýju-Guineu, en skipum hennar var sökkt jafnt og þétt í loftárásum. Útvarpið í Tokio hefir nú ját- að það, að Bandarikjamenn hafi hrakið japanska herliðið frá Guadaleanal, en áður hafði það sagt, að það hefði verið flutt þaðan, af þvi að það var búið að vinna hlutverk sitt þar. Út- varpið lét svo um mælt: „Þegar allt kemur til alls, hafa lier- sveitir Bandaríkjamanna ekki gert neitt annað en að taka Guadalcanal-eyj u.“ Hörð árás ú Berlin. 19 flugvélar vantar. HörS loftárás var gerð á Ber- líri í nótt og er um mánuður lið- inn síðan Bretar fóru seinast í heimsókn þangað. Nánari frásagpir liggja eklci enn fyrir frá flugmönnum, en af orðalagi frásagna Þjóðverja um árásina má ráða, að tjón liafi verið verulegt. Árásir voru einnig gerðar í Vestur-Þýzkalandi í nótt og vantar 19 flugvélar úr öllum þessum ferðum. 17 Norðmenn líflátnir Þjóðverjar hafa tekið af lífi 17 Norðmenn fyrir skemmstu og er þeim gefið að sök, að hafa unnið skemmdarverk og marg- víslegt annað. Mennirnir eru á ýmsum aldri, sá elzti tæplega fimmtugur, efn sá yngsti uin tuttugu og fimm ára að aldri. Þeir voru einnig frá ýmsum héruðum landsins. Nýr skriðdrekabani, Nýr skriðdrekabani er nú í framleiðslu i Bandaríkjunum og hafa verkfræðingar General Motors fundið hann upp. Skrið- drekabanar eru ekkert annað en stórar fallbyssur, sem ekið er á skriðbeltum eins og skrið- dreka, og er raunverulega skrið- dreki, sem er búinn sérstaklega jiungri fallbyssu. Hugsjón nazista í hættu. Svo er að sjá af blöðum í Þýzkalandi, sem skipun Hitlers um algera hervæðingu þjóðar- innar hafi ekki verið eins Vel tekið og látið hefir verið í veðri vaka. Blaðið „Scliwarze Korps“ hef- ir sagt, að þessi ráðstöfun stofni liugsjón nazistaflokksins í hættu, því að liann hafi alltaf kennt, að staður konunnar væri innan veggja heimilisins en ekki utan þess eða á vinnustöð- um. „Frankfurter Zeitung“, sem var eitt virtasta blað Þjóðverja áður fyrr lítur á máhð frá öðru sjóilarmiði. Það segir, að iðn- aðurinn hafi tapað á þvi, að konur hafi verið teknar lil starf'a í verksmiðjum í stað karl- mannanna, sem voru þar áður, verksmiðj urnar hafi misst marga beztu menn sína, — en í staðinn fái þær konur, sem sumar hafa aldrei komið inn i verksmiðju. €vrivn0u«lin cSylur rag:mcnn§kuna.. « Norski flóttaprestur- inn segir frá. í síðustu fregnum í blaðinu í gær var sagt frá því að norsk- ur prestur hefði sloppið til Eng- lands úr höndum nazista. Prestur þessi heitir Georg Möller og var sóknarprestur í Skien. Hefir hann veitt hlöðum i London viðtal og sagt l'rá ýmsu, sem á dagana dreif. Hann kvað norsku þjóðina standa be‘t- ur saman gegn Þjóðverjum með hverjuin deginum, sem hún yrði að húá lengur við lcúgunina. — Einu sinni var drengur einn, 14 ára, fluttur til „hrúna húss- ins“ i Sltien í þefim tilgangi að fá hann til þess að gerast njósn- ari fyrir quislinga. Þeim tóksí ekki að fá, liann til að ganga í lið með sér, en þegar liann liafði verið látinn laus aftur, var liann svo illa útleikinn, að líann varð að liggja rúmfastur i átta daga lil að ná sér. Sjálfur var sira Mölle'r tekinn til yfirheyrslu, vegna þess að hann hafði farið fjandsamleg- um orðum um Þjóðverja i kennslustund. Þeir, sem yfir- 'heyrðu liann, reyndu að fá hann með brögðum til að játa, að hann herðist fyrir heimsyfirráð- um 'Gyðinga. Þegar ]iað tókst eldvi var hann hafður í Iialdi i fangabúðum um skeið, eu þar fór meðferðm alve'g eflir • þvi, hvernig lá á fangayörðununi. En, sagði presturinn aðTok- um, grhnmdaræði Þjóðverja og quislinga skelfir engan sannan Norðmann, þvi að ]ieir vita, að framferði þeirra er eingöngu þannig til að leyna þvi, að í eðli sinu eru þeir hugleysingjar og ragpienni. í dag byi-jar Rauða Kross- mánuður í Bandárikjunum og er ætlunin að safna ekki minna en 150 milljónum dollara til starfsemi lians. Verður þeim varið til að skemmta hefrmönn- um Bandaríkjanna úti um, heim. Um milljón manna vinnur nú Iijá Bretum og Bandarikja- mönnupi í Indlandi við að búa til flugvelli handa flugherjun- um þar. MILLI LENIN- OSKVA. Rússap taka 2300 ferkm, lands á 8 dögum. Orustan mn Ðonetz heíir staðið í 21 dag. Undanfama viku hafa Þ jóðverjar oft sagt frá þvi, að Rússar geri tíðar árásir fyrir sunnan Ilraen- vatn, en þeim sé jafnóðum hrundið við mik- ið manntjón í Jiði þeirra. Herstjómin rússneska þagði um þessa bardaga þangað til í gær, er hún gaf út auka- tilkynningu um það, að ný sókn hefði verið hafin þama fyrir átta dögum undir stjóm Timoshenkos og hann þegar unnið mikinn si^ur á Þjóðverjum. Segir herstjómin, að Þjóðverjar hafi misst um ellefu þúsund- ir manna þessa átta da^a, sem sóknin hefir slaðið og voru 8000 .þeirra felldir en hinir teknir til fanga. Landsvæði Jiað, sem Þjóðverjar íiafa verið hraktir af er um 2300 ferkilómetrar að stærð og höfðu þeir liaft það á valdi sinu í 17 mánuði, svo að ]>að vantaði ekki, að þeir hefði getað víggirt það, enda gerðu þeir ]>að vel og vandlega. Var þarna allt fullt af virkjum af ýmsum stærðum og erfitt til sóknar, en Rúss- um tókst að sækja fram á öðrum fylkingararmi, svo að Þjóð- verjum stafaði hætta af þvi, að þeir yrði umkringdir og létu þeir þá undan síga, en Rússar fylgdu þeim fast eftir, til þess að þeim gæfist ekki tími til ]>ess að búa um sig i nýjum stöðvum. Á svæði því, sem Rússar hafa náð á vald sitl Jiarna, eru rúm- lega 300 þorp og litlar borgir, en mest þeirra og mikilvægust er Demiansk. Kenndu Þjóðverj- ar viggirðingaflæmið i kring við þá horg. Hún er að visu litil, en mikilvægi hennar kemur af því, að hún var miðstöðin í þessu varnakerfi. Hún er um 80 km. fyrir suðaustan Staraya Russa. ' ', Meðai herfangs þess, sem Rússar tóku, voru 97 skriðdrek-1 ar, 78 flugvélar og 400 fallbyss- ur og vélhyssur. í fyrra var mikið barizt á þessum slóðurn og var ]>á sami liérinn til varnar þarna, nefni- lega 16. þýzki herinn. Lá þá við um tíma, að hann yrði umkrmgdur og skýrðu Rússar frá því, en síðan hættu að berast fregnir af þessum viðureignum þangað til hið sanna kom á dag- inn í gau\ Sókn á réttum tíma. Þessi sókn hefir koinið á þeiin tíina, sem gera má ráð fyrir að komi sér einna verst fyrir Þjóð- verja. Bardagar eru enn í al- gleymingi á suðurhluta víg- stöðvanna og ]>angað hefir vei-- ið flutt mikið lið frá öðrum hlut- um {xiirra, svo að varn- irnar hafa verið veiktar þar til muna. Má gera ráð fyrir ]>vi, að eitllivað Iið hafi verið tekið frá vígstöðVunum milli Moskva og Leningrád, þvi að þar liefir verið tiðindalítið í meira lagi li! j'essa. Thnoshenko hefir þvi hafið sókn sina einmitt á þeim tinia, þegar ætla má, að Þjóð- verjar hafi minna lið til varnar cn nokkuru sinni. Látlaust barizt um Donetz-hérað. í dag eru þrjár vikur liðnar síðan i'arið var að berjast fyrir sunnan Karamatoi skaja og Krásnoarmeisk jóg enn má ok'ki á milli sjá. Það er sannmæh, \ að ý.asum veiti betur þarna, þvi að horgir eru einn daginn á valdi Rússa, en næsta dag eru lxer í höndum Þjóðverja og þannig sitt á livað. Rússar þokast áfram annarsstaðar. Hersveitir Golikovs hershöfð- ingjo, sem tóku rneðal annars Kai kov, lialda áfram sókn sinni fyrir vestan þá Isirg og einnig fyrir vestan Kursk. Hafa þær tekið þar nokkur þorp, en sókn- in sækist seint, vegna þess hve flutningaörðugleikar eru miklir. Rússar vinna lika á i Vestur- Kákasus, þar sem Þjóðverjar liafa aðeins litla fótfestu á Tam- anskaga. Allt er á floti vegna hlákunnar, sem ]>ar hefir verið að undanförnu og verða her- sveitirnar oft að sækja fram i hnédúpu vatni. Mannekla styrjaidar- þjóðanna. Drengir gæta dýra- gardsins í London. Styrjaklarþjóðirnar eru nú að komast í mesta mannalirak, þar eð verksmiðjumar og her- irnir gleypa alla vopnfæra karl- menn og gætu tekið við fleiri ef ])eir væru íyrir hendi. Til dæmis um það, hvað mik- ill skortur er nú á mönnúm í Englandi, er fregn um það,-að drengir, sem eru rétt aðeins komnir yfir fermingu eru látn- ir gæta dýraima í Dýragarðin- um í London. Það er sextán ára gámall drengur, sem gætir allra ljónamia, en þau em jafnmörg og aldursár drengsins, eða sextán. Drengurinn, sem er Iát- inn gæta úlfanna er einu ári vngri, en' yngstu dýraverðimir eru fjórtán ára. Túnis: Bandamenn sækja enn fram. Minna var um bardaga í Tun- is í gær en aðra daga að nndan- fömu. Hersveitir bandamanna héldu þó áfram að sækja fram meðfram járnbrautinni í áttina til Gafsa og Sbeitla. 1 fregnum blaðamanna í gær- kveldi var sagt, að menn gerðu sér góðar vonir um það, að það mundi lánast að ná Sbeitla aftur úr höndum möndulherjanna. Á Uorður-hluta vigstöðvanna háru árásir möndulsveitanna ht- inn árangur. í Suður-Túnis er ekki um neinar viðureignir að ræða nema milli njósnaflokka. Níðuitu fréttír Sbeitla er aftur í höndum bandamanna, sem eru komnir alllangt framhjá borginni. Liberator-flugvélar gerðu árás á Neapel í björtu í gær. Árásin á Berlín í nótt var harðasta árásin á borginá. Kina: Japanir vinna á. Kínverska herstjómin í Chungking hefir tilkynnt, að Japönum hafi orðið altvel á- gengt víða að undanfömu. Japanir hafa meðal annars unnið á í sókn sinni i Vestnr- Yunnan og auk þess hafa þeir ]«)kazt áfram á þrem öðrum vígstöðvum. Grimmilegir bar- dagar geisa nú á vigstöðvunum í Yunnan. Tiu þúsund manna japanskt lið, sem sækir þar inn i fylkið, hefir meðal annars tek- ið nokkrar smáborgir. Japönum hefir einnig gengið yel í Suður-Kwantung og Mið- Hupeh. , Trygve Lie, utanríkismálaráð- hera norsku stjórnarinnar í London, er kominn til Banda- rikjanna. Hann mun ræða við stjórnarvöldin þar í landi og for- vígismenn Norðmanna. Olíuskipi Þjóðverja sökkt á AtlantshafL Bretar hafa enn sökkt birgða- skipi fyrir Þjóðverjom, sem var að reyna að rjúfa hafnbannið. Var hér um olíuflutningaskip að ræða, sem var að koma frá löndum ]>eim, sem Japanir l^afa lagt undir sig í Aslu. Var það á miðju Atlantshafi, þegar Libera- tor-flugvél varð vör við ferðir þess og tilkynnti um það. Beiti- skipið Sussex, sem er tiu þúsund smálestir að stærð, var statt ekki allfjarri og fór það á Vett- vang og sökkti olíuskipinu. Flugmaður einn í ameriska flotanum hefir verið sæmdur þrem heiðursmerkjum livern daginn af öðrum. Hann hlaut þau fyrir árásarferðir á héndur Japönum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.