Vísir - 18.03.1943, Blaðsíða 3

Vísir - 18.03.1943, Blaðsíða 3
v I s i K DAGBLAÐ ÚtgefaiuH: BLAÖAÚTGÁFAN vísir h.f. Ritstjórkr: Kristján Guðlangsson. Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla Hverfisgötn 12 (geugið inn frá Ingólfsstræti). Simar: 16fi0 (fimm línur). Verð kr. 4,00 á mánuði, Lausasaia 35 aurar. Nauðsynjá stofnun barnáspítala immm ----- Fjársöínun )>Hringsins« Viötal viö frii Kristínu V. Jacobson. Félagsprentsmiðjan h.f. Hvað gerir þingið — og hvað stjóinin? E.visaíit liefir það í bænum , sí^usjtu, dagaua, að þolin- mæði riítisstjprnarinnar væri nú mjög á þrotum, vegna þess langa,. dráttar, sem orðið liefii af liálfu Alþingis á afgreiðslu dýrtíðarfrumvarpsins. Fíokk- arair hafa enn ekki, — nema að tVveruJegu leyti, — látið uppi afstöðu sína til málsins. Frunv- var.pið hefir j>ó legið i þrjár vikur .fyrir þinginu, fjárhags- nefnd liefir um það fjaLIað, og f jögra inanna nefnd, skipuð ein- um fuJHrúa frá liverjum flokki, mun nú hafa fengið málið í sinar hendur. Nú bíður þjóðin milli vonar og ótta þess, sem verða vill, og tíðasta spurning manna á miííi, er mál þessi Jjer á góma, er livað Alþingi muni n ú gera. Einstaka menn og sum hlöð ásaka ríkisstjórnina fyrir að hún skyldi ekki í upphafi, — áðuv eu hún lagði frumvarp sitt fyrjr .Alþingi, — leita um það sandcomulag.s við alla floklta þingsins. Slíkar ásak- anir. hafa ekki yið nokkur rök að styðjast, Er ríkisstjómin sett ist að völdum, gerði hún það i því augnamiði fyrst og fremst að leysa dýrtíðarmálin, sem flokkarnir íiöfðu þá þegar gefist upp a að leysa. Ríkisstjórmn leggur því tiMögur sínar fyrir þingið til þess að það taki af- stöðu til málámia, livort sem því líkar hetur eða ver, en ríkis- stjórnin Iiefir jafnframt Ieitasí við að miðla málum milli flolcka og stétla, þannig að allir gætu vel við unað. Úr þessu hlýtur Alþingi að leggja sitt lóð á metaskálamar, — en á hvaða sveifina hallast það? ÖUuni Iilýtur að vera Ijóst, að þingið hefir um þrjá kosti að velja: I) Að samþykkja frumvarp ríkisstjóraarinnar, á þann liátt, sem hún getur unað við, eigi húju að ráða málum J til lykía og sitja áfram við völd. 2) Að mynda sjálft stjóm er vinni á ákveðnum raálefna- grundvelli, er miðar að því að vinna bug á dýrtiðinni, og loks í þriðja lagi: Að fella frum- varp ríkisstjórnarinnar, eða breyta því gegn vilja hennar, næð þeim afleiðingum, sem það kánn að hafa, án þess að þingið sé þéss um komið að myndá stjóm, eða að gera nokkrar jákvæðar ráðstafanir. Ef að Alþingi getur ekki sætl síg við frumvarp ríkisstjómar- innar, eins og það liggur fyrir í öllurn aðalatriðunL en kýs að fella frumvarpið og ríkisstjórn- in lætur fyrir þær sakir af völdum, getur ekki komið til mála vegna almenns öryggis að mynduð verði veik meiri hluta stjórn. Fyrir því yrði eklci nema um eina lausil að ræða og hún er sú að mynduð yrði fjögra flokka stjórn, þ. e. a. s. að kommúnistar yrðu teknir með í stjómina. Sá flokkur vill í lengstu lög skjóta sér undau allri ábyrgð á stjórnarfram- kvæmdum, með því að hann veit að við það yrði -fylgi hans meðal þjdÖarinnar að erfeu, T)p a |>Hr axSíeins að hann hefði í teidi sér að rjúfa sam- Nauðsynin á sérstökum spítala fyrir börn hefir lengi legið í augum uppi, ekki hvað sízt nú, þegar hörgull á spítalaplássi er orðinn svo tilfinnanlegur, að tií vand- ræða horfir. Kvenfélagið „Hringurinn“ hefir fyrir nokkuru haf- ið fjársöfnun lil slíks spílala og ákveðið að Icggja til þessarar söfnunar nokkuð af eignum félagsins og tekj- um i nánustu framtíð. Frú Kristín Vídaiín Jacobson, sem frá öndverðu hefir verið formaður „Hringsins“, gaf „Vísi“ þessar upplýsingar í samtali fyrir skemmstu. „Hringurinn var stofnaður til að vera líknarfélag, aðallegn fyrir herklasjúklinga og þá, sem komizt hafa yfir herklasjúk- dóm, en eiga óliægl um vinnu fyrst í stað á eftir,“ segir frúin. „í heinu áframhaldi af likn- arstarfsemi félagsins gagnvart einstaklingum, var hafizt handa um hyggingu Hressingarliælis- ins i Kópavogi. í sambandi við hrcssingarhælið sem félagið rak i mörg ár, eftir að það var lcomið upp, rak félagið einnig hú i Kópavogi. Þegar félagið af- henti ríkinu hressingarhælið, var þess ekki óskað að búið fylgdi með í gjöfinni, og varð það því úr, að félagið hélt áfram rekstri ijúsins. En með hinni miklu hækkun, sem orðið hefir á verði landbúnaðarafurða, hef- vinnuna J>egar hentast þætti, og jafnframt að efnt vrði þá til nýrra kosninga. Kommúnistar gætu þá ef til viU bjargað fylgi sínu með augnabliksæsingum vegna eínhvers dægurmáls, — ella væm þeir dauðadæmdur flokkur. En þá er atliuga afstöðu rík- isstjómarinnar, ef svo skyldi fara að frumvar{>ið yrði fellt eða því breytt gegn vilja lienn- ar. Að sjálfsögðu getur stjóru- in ekki sætt sig við að sitja við völd áfram, ef henni er fengin dýrtíðarlöggjöf í hendur, sem hún telur óframkvæmanlega,. eða í meginatriðum óhyggilega. Hún á þess þá völ að segja af sér,, en þá verður Alþingi að mynda nýja stjórn, eða að við- nrkenna vamnátt sinn og leggja enn árar í hát, og er þá lausnin jafnfjarri og hún var í upphafi. Hinsvegar á ríldsstjórnin á öðru völ, en að segja af sér. Hún getur vafalaust rofið þing og efnt til nýrra kosninga,' ef ve'ra mætti að með því móti mætti gera Alþingi starfhæft. Aðstaðan í slíkum, kosningum hlyti að verða með óvenjuleg- um liætti, en þó þeim, að flokk- arnir yrðu að ganga fyrir dóm- stól þjóðarinnar, eins og gerist og gengur í kosningum. Það yrði þó óskemmtileg eldraun fyrir alla flokka, — eldraun sem þeir væntanlega forðast í lengstu lög. Framundan hlýtur að bíða algert öngþveiti nema því að- eins að samvinna haldist milli núverandi ríkisstjórnar og Al- þingis, og að almenningur sýni jafnframt fullan skilning á því, livað gera þarf. Auknum er- lendum áhrifum á innanlands- málin æskfe enginn eftir, en skapist hér óviðráðanlegt öng- þveiti, híða þau vafalaust við dymar. Þjóðin verður að $tanda á eigin fótum og finna láusina sjálf. Það mun «ffarasælast í nútíð og framtíð. ir búið síðan gefið miklar - og að suinu leyti alveg óvæntar — tekjur. Þegar að þvi ráði var horfið, að félagið beitti sér fyrir hygg- ingu sérstaks harnaspítala, var ]>egar ákveðið, að tekjur húsins skyldu verða Iagðar í byggingar- sjóðinn.“ Hversu mikið hefir nú safnazt í sjóðinn? „Sjóðurinn nemur nú 50 þúsund krónum, en söfnunin gengur all-greiðlega. í vor er ætlunin að efna til almennrav skemmtunar undir beru lofti nolíkurskonar „Hringferðar Hringsins“, 'eins og við félags- konur liéldum ofl í gamla daga. Þá mun og verða efnt.til hluta- veltu eða happdrættis, og ekki loku fyrir ]>að skotið, að við getum efnt til almenns fjér- söfnunardags i þessum til- gangi.“ - Hefir félagið getað fengið lóð undir sítalann? „Við höfum snúið okkur til horgarstjóra og faríð þess á leit, að hærinn legði spítaianum til ókeypis lóð. Það taldi horgar- stjóri sjálfsagt og tók erindi okkar yfirleitt ákaflega vinsam- iega. Ekkert er þó ákveðið enn í þessu efni.“ — Að hvaða leyti er hentugra að hafa sérstakan harnaspitala en t. d. að reka bamadeild við stærri spítala? „Því er auðsvarað. Börn þurfa allt annarskonar hjúkr- unar en fullorðnir. Á almenn- um spítölum eru l>örn til traf- ala, því að þau trufla oft full- orðna sjúklinga og sætta sig miklu síður við rúmlegu. — Annað er það, að læknar, sem l>örn stunda, þurfa helzt að vera sérfræðingar, auk þess sem hjúkrunarfólk ]>arf að hafa sér- æfingu í hjúkrun barna. Allt l>elta her að sama brunni: Það þarf sérstakan spílala fyrir börn — spítala með sérstöku starfs- fólki og sérstökum Iækni eða læknum, og einfaldast er að sá spítali eigi sitt eigið hús.“ Vestfjaxðarbátarntr Maður drukknar af v.b. »Svandísi((. Einkaskeyti til Vísis. ísafirði i gær. Flestir hátar héðan og úr ná- grenni réru i góðu veðri í fyrra- kvöld. í gærmorgun gerði storm stórsjó og byl. í gærkvöldi og í nótt náðu allir bátar höfn. Mótorbáturinn „Svandís“ liéðan fékk sjó á sig og brotn- aði nokkuð ofandekks. Mann tók út af „Sva§*dísi“ og drukkn- aði hann. Hann hét Hrólfur Guðmundsson, Pálmasonar, vitavarðar í ReJfevík. Hrólfur var þrítugur, kyieiikir og átti 2 höm. Þau hjóln voru nýflutt lí|ig«ð frá He^teyri, Slmslit vlða om land. Mestar simbilanir í Landeyjum. Borðstoíustúlka óskast nú þegar. All verulegar síntabilanir hafa orðið víðsvegar um land í of- viðrinu eftir helgina, en stærsta og áhrifamesta bilunin er í Landeyjum; símalínur liggja niðri á löngu svæði og 50 staurar eru brotair; þá er og nokkuð stór bilun á Hvammstangalín- unni, m. a. 16 staurar brotnir. Og í Kræklingahlíð, 6 km. fyrir norðan Akureyri eru 19 staurar brotnir. í dag er alslstaðar unn- ið að viðgerðum á símanum. Vegna þess að línur eru falln- ar niður á löngu svæði i Land- eyjunum, er samhandslaust við Vestmannaeyjar. Það eru einn- ig líkur til að Landeyjabilunin liafi áhrif á símasambandið til i Auslfjarða, sem einnig er hiiað. 1 Þó er það ekki víst, því að lín- an liggur einnig niður i Mýr- dalnum, svo vera má að bilunin sé einungis þar. Bilunin í Land- eyjum er mjög mikil, m. a. 50 símastaurar brotnir, en menn hafa verið setidir austur og er- unnið að viðgerðum þar í dag sem annarsstaðar. Mikil bilun varð einnig á Hvammstangalínunni. Féllu niður 16 staurar skammt frá þorpinu. Þar með er Hvámms- tangi, svo og Vatnsnes allt, sám- handslaust sem stendur. Þar er von á hráðabirgðaaðgerð á næslunni. Bilun er á símalínunni í Krækl- ingahlíð, 6 km. fyrir 1 norðan Akureyri, 19 staurar brotnir. Þar er von til að samband kom- izt á í dag. Ýmsar aðrar hilanir haí'a orð- ið á símanum viðs vegar um land, þó þessar séu stærstar. Frú Guðrún Þorbjörg Kristjánsdóttir. Minningarorð. Hinn 8. þ. m. andaðist að heimili sínu hér í bæ, Þórsgötu 21A, frú Guðrún Þorbjörg Kristjánsdóttir. Hún var fædd 6. febr. 1884 að Hvammi í Dýra- firði. Giftist ínin eftirlifandi manni sínum, Kristjáni Sigurði Kristj ánssyni bankastarfsmanni og skáldi, 10. október 1903. I þokunni Ef bóndi væri spurður að því hvort hann vildi lækka nokkuð verð á af- urðum sínum til þess að salan gæti haldizt og hann haldið áfram framleiðsl- unni, mundi hann óhik- að svara játandi. Ef at- vinnurekandi væri spurð- ur hvort hann vildi greiða þunga skatta um nokkurt skeið til þess að forðast öngþveiti í atvinnurekstri sínum, mundi hann strax svara játandi. Ef laun- þegi væri spurður hvort hann vildi um stundar- sakir fórna nokkru af launum sínum til þess að atvinna hans stöðvaðist ekki, mundi hann svara ákveðið játandi. Þannig mundu svörin verða ef einstaklingamir í þjóðfélaginu væri spurðir um viðhorf þeirra til þeirra miklu vandamála sem lands- menn verða nú að Ieysa. En þegar flokkasjón- armið og flokka hags- munir eiga að taka af- stöðu til vandamálanna í umboði einstaklinganna, þá ruglast dómgreindin. Þá kemst enginn út úr þokunni sem legið hefir yfir stjórnmálum þjóð- arinnar. Félagið „Berklavörn“ í Reykjavík hélt aðalfund sinn miðvikudaginn 4. þ. m. Þrír menn gengu úr stjórninni 0g taka sæti i stjórn Sambands ísl. berklasjúk- linga, þeir Maríus Helgason, fyrv. form., Ólafur Björnsson og Árni Einarssson. En þessir voru kosnir í stjórn: Daníel Sumarliðason, form., Gestur Þorgrímsson, Björg Björnsdóttir, Gunnar Ármanns- son 'og Vilhjálmur Jónsson. í varastjórn voru kosin Þorsteinn Finnbjarnarson . og Arnfríður JónatansdótHir. . Hingað til Reykjavíkur fluttust ]>au hjón árið 1927. Varð þeim 9 barna auðið, en 3 þeirra em dáin. Þetta er í stuttu máli æfi- saga frú Guðrúnar Þorbjargar Kristjánsdóttur, — það er að segja hin ytri æfisaga, ef svo mætti segja. -—Þótt sú saga sé fljótsögð, var hún samt sem áð- ur viðburðarík og merkileg, og verða henni að sjálfsögðu ekki nein fullnægjandi skil gerð i þessum fátæklegu eftirmælum mínum. Til þess hrestur mig næga þekkingu á lífsferli frú Guðrúnar og þeirra hjóna. En eg hefi haft þá ánægju að kynn- ast manni hennar vel og henni að nokkru, síðan þau fluttu hing- að til Reykjavíkur, og er mikill ljómi í vitund minni yfir þeim kunningsskap. Frú Guðrún átti sinn þátt í því að skapa þann ljóma. Hún var góð kona og hjartahlý, — kona i beztu merk- ingu þess orðs. Mér virtist liún vera létt í lund og gamansöm, og var návist hennar góð og hressandi, enda varð henni vel til vina. — Það varð hlutskipti heiinar í lífinu að vera margra barna móðir og standa fyrir stóru heimili og vera jafnframl förunautur manns, sem er mjög andlega sinnaður og alltaf hefir verið brattgengur og brekku- sækinn í andlegum efnum, en ekki einn af þeim, sem lötra í hægðum sínum á jafnsléttunni eða leggja sig þar jafnvel til svefns. Einkennilegt hlutslcipti og að sumu leyti mjög tvíþætt! En frú Guðrún var því vaxin, því að enda þótt hún væri að sumu leyti barn hins gamla tíma í trúmálum, var liún al- veg laus við þröngsýni þá, sem er einn af skuggum þess tíma, —og var það sérslaldega hennar góða hjarta, sem þar var að verki. Frú Guðrún átti við van- lieilsu inikla að stríða hin síð- ustu ár, og var sjálf farin að þrá lausn úr fjötrum líkamans. Hún hafði lokið miklu og góðu dagsverki. Henni var því gott að ganga í gegnum hlið hins liinsta svefns inn í annan hetri og bjartari h«in*. MATSALAN. Amtmannsstíg 4. Sími 3238. Fræðafélagið Nokkur eintölc af Jarðabók VII (Vestfirðir og Strandir), og Safni XII (bréf Brynjólfs biskups); aðeins handa á- skrifendum. — Athygli hóka- manna skal vakin á þvi, að ýmsar af bókum Fræðafé- lagsins Iiafa selzt upp nú á síðustu tímum og aðrar eru algerlega á þrotum. Þannig saxast nú óðúm á hina ágætu útgáfu Jóns Helgasonar af Ijóðum Bjarna Tliorarensens. Snæbj 1 rn Jónsson Maður, sem hefir stundað trésmíða- vinnu um þriggja ára skeið, óskar eftir atvinnu við smíð- ar nú þegar. Tilboð sendist Vísi fyrir kl. 1 iá morgún, merkt: „Smiður“. Kven-sloppar allar stærðir. SVÚNTUR. VERZLUN Matth. Björnsdóttur. I Laugavegi 34. Húseigendur! Óskað er eftir tveimur her- bergjum og eldhúsi með nú- tima þægindum nú þegar eða 14. maí. Fyrirframgreiðsla getur verið svo mikil sem vill, ef uin seinur. — Tilboð, merkt: „Kaupmaður“, send- ist Vísi fyrir mánaðamót. — Fallegt svart Spejl-ílauel og SILKIVOILE nýkomið. H. Toft Skólavörðustíg 5 Sími 1035 Líkami hennar var borinn til moldar mánudaginn 15. þ. m. Síra Kristinn Daníelsson flutti góða ræðu í Dómkirkjunni við það fcekifæri. Minning þesearar góðu koift mun lengi lifa í þakklátu** hjörtum. Grétar Fsjte, V I S 1 K # W eikb^^ða liöllin. Stærsta velferðarmál þjóð- arinnar. Ekki heilbrigðis- málin. Ekki fjármál eða ai- vinnulíf. Ekki bindindis- og áfengismálið. Ekki einu sinni sjálft uppeldi þjóðar- innar. Heldur sjálf bygging þjóðfélagsins — stjórn- skipulagið. Ofarlega á öðrum tug þess- arar aldar reisti Manitoba-fylki þlnghús i| Winnipeg. Það er mikil og vegleg höll, eins og tílt er um þinghús og ýmsar við- J1 af narhyggi ngar Ameríku- manna. En tæpast var verkinu Jokið er út af því risu mála- ferli. Undirritaður átti þá heima í Winnipeg. Varð þétta ! mjög umtalað mál. Sprunga eða ' sprungur komu í ljós í þessari veglegu höll og var meistari sá, er keypt liafði fyrirfram alla gerð hússins, sakaður um svik. Var talið að hann hefði svikið sementsstyrkleika hússins og grætt á þvi stórfé, eina miUjóii dollara eða meira, þvi að hér var ekki um að ræða neitt smáræð- is fyrirtæki. Veikbyggt þjóðfélag. Veikbyggð höll, veikbyggt þinghús, er hryggðarefni, en veikbyggt þjóðfélag þó enn iá- takanlegra hryggðarefni. Sorg- legt er að sjá tignar hallir hrynja, en átakanlegra að sjá þjóðfélög liðast sundur og hrynja sökum smíðisgalla. Á okkar þjóðskipulagi eru slíkir smíðisgallar, og lcoma l>eir nú ört í Ijós. Það er heigulmennska eða óeinlægni að þora ekki að gera sér þetta ljóst og ræða það. Eg var að hugleiða, livert væri mesta vandmál þjóðariim- ar og tímabærasla umræðuei'n- ið. Mér datt margt í hug, en sá brátt að sjálfstæði þjóðarinnar, sem auðvitað byggist fyrst og fremst á því, livort stjórnskipu- lag hennar er starfhæft og stjórnhæft, er mesta velferðar- málið og tímabærasta umræðu- efnið, eins og nú standa sakir. Og eg tek til máls um þetta i því trausti, að menn taki trúan- lega hlutleysisyfirlýsingu mína viðvíkjandi floklíapólitik. Eg tek til máls um þetta ein- ungis af þegnskap og þjóðholl- ustu, sannfærður um af lieyrn og raun, að þetta er hið mesta áhyggjuefni fjölda gáðra og góðra manna um allt land. Og margir vænir menn i borg og hyggð eiga þá ósk lieitasta, að heppileg lausn yrði fundin á þessu mikla vandamáli þjóðar- innar. Illa stofnað ríki. Frakkar komu á hjá sér eftir byltinguna miklu stjómskipu- lagi, sem verður að kallast illa stofnað riki. Það hefir líka reynzt svo. Síðan á dögum Na- poleons liefir engin veruleg festa verið í stjórnarfari þeirr- ar þjóðar. Þar hefir stöðugt vantað eitthvað. Einingaraflið ekki nógu sterkt, flokksvaldið því yfirsterkara, sementið svik- ið, heilimagnið of lítið eða ekk- ert. Þetta kom þjóðinni i koll á örlagastundu. Hvílílc sorgai’- saga! Getum við íslendingar ekki umflúið liana? Okkar þjóðskipulag ber í sér sömu veilurnar. Fram að því síðasta hefir ekki verið neinn þriðji aðili í stjórnskipulagi oklcar. Það er stutt síðan við urðum fyrir því láni að eignast ríkisstjóra, en hann getur þó ekki talizt nægilega sterkt ein- ingarafl, eða fullnægjandi þriðji aðili stjórnskipulagsins, vegna þess, hve liohum er enn gefið Iítið vald, nema l>egar neyðin skapar það vald, eins og nýlega hefir komið í ljós. Einingaraflið. Þjóðin verður að búa til ein- ingaraflið —■ heilimagoið — þriðja aðilann, eða hvað við eig- um nú að kalla þetta. Lif hennar liggur við. Nú dugar ekkert andvaraleysi. Stjórnarfarið og stjórnskipulagið er sjúkt, mætti 4íkja þeim sjúkleik við krabba- méin. Þar sem ein frumán eða frumuflokkur gerist hamslaus og vill ofala sig á kostnað hinna frumanna, sýkir þar með allan líkamann og drekur til dauða. Þelta er aðferð þeirra flokka- samkeppni, sem ekkert aðhald hefir frá þriðja aðila. Þetta er orðið öllum hugsandi mönnum ljóst. Einingaraflið verður þjóð- in að búa til í stjórnskipulaginu alveg eins og hún hefir búið til hæstarétt í réttarfarinu til þess að gera mögulegt að lialda uppi lögum og reglu í þjóðfélaginu. Já, hún verður að búa til ein- ingaraflið, og húa það til ó- svikið. Sementið má ekki vera svikið í þjóðarbyggingunni. Þjóðin verður að gefa ríkis- stjóra sínum töluvert vald, en auk þess verður þjóðin að fá sinn fulltrúa í þinginu —- þjóð- kjörna efrideild, og þá er kom- inn sá þriðji aðili, sem útilokar í.-eitt skipti fyrir öll, að nokkur flokkur geti nokkru sinni náð æðsta valdi í þjóðmélum, Eng- inn flokkur má sjá l>ennan möguleika framundan, ekki einii fremur en annar, og ])á er sárasti broddurinn brotinn af hinni skefjalausu valdasókn flokkanna. Réttur flokkanna. Flokkar og stéttir eiga rétt á sér, alveg eins og böm og hjú eiga rétt á sér á lieimili. En heimilisófriður og stjórnleysi á engan rétt á sér. Sömuleiðis ekki lieldur eilíft og aðhalds- laust flokkastríð. Skoðanamun- ur á rétt á sér, en fjandskapur og illvígar deilur á ekki rétt á sér. Flokkar og stéttarfélög eru málsvarar, sækjendur og verj- endur sinna áhugamála, en ein- um flokki eða einni stétt ber ekki allt vald í þjóðfélaginu, fremur en hinum. Ef einn flokkur sér möguleika til slíkr- ar valdatöku, já, þá sjá allir flokkar jafnt þann möguleika, og þá er ekki um annað að ræða en miskunnarlaust strið, og all- ir vita, hvernig fer fyrr eða síð- ar fyrir því ríki, sem er sjálfu sér sundurþykkt. Sáttarorð. Er ekki kominn tími til þess að gætnir og hugsandi menn, menn, sem ekki eru á neinu „fylliríi“, hvorki pólitísku eða öðru, gangi saman lil funda og rahbi vingjarnlega, bróðurlega og sanngjarnlega um lausn þessa mesta vandamáls okkar? Sé hægt að lækna krankleika þjóðskipulagsins sjálfs, þá er fyrst fenginn grundvöllur undir hvers konar siðhót í þjóðfélag- inu. Þá fyrst er hægt að fram- kvæma endurbætur í uppeldis- málum, heilbrigðismálum, at- vinnumálum, kirkjumálum, bindindismáli og öllum hinum mismunandi greinum þjóðar- menningar oltkar. Bréf prestsins. Einn af slijallari klerkum landsins, áhugamaður mikill og góður drengur, sem mér er ó- kunnugt um, hvar í fylking stendur i flokksmálum, l>ótt góður kunningi minn sé, — skrifar mér á þessa leið: „Stærsta málið, sem alþjóð i skiptir mestu, er sköpun stjórn- j arfars, sem er stjórnhæft. Það I var örlagaaugnahlik, er þing reyndist óhæft til myndunar stjórnar. Hvernig verður okkar veika lýðræði styrkt? Væri ekki skemmtilegt að samhentir menn, sem engra flokkslegra sérhágsmuna eiga að gæta, ræddi það í bróðerni, hvernig við mættum styrkja og treysta stoðir okkar unga þjóðrikis. IJvað segir þú um það, að prestar, kennarar o. s. frv. allra flokka ræddust við úm l>etta mikla vandamál?“ Hér er einn emhættismaður landsins, sem hefir orð á því, sem eg veit fyrir víst, að er of- arlega í liuga margra hugsandi og vænna manna um land allt. Þetta er þeim áhyggjuefni og umhugsunarefni, og umhugsun l>eirra er af góðum rótum runn- in, af ást lil þjóðar og menning- ar hennar. Margir hafa haft orð á þessu við mig, þótt ekki liafi eg það skjalfest eins og í l>essu tilfelli. Mér dettur ekki í hug, að fylla flokk þeirra manna, sem Iirópa hátt um niðurlæginu alþingis og ókosti þingmanna okkar. Eg vM reyna að treysta því að þeir séu upp og ofan vænii’ menn og ekki valdir af lakari enda þjóðarinn- ar. Auðvitað menn með kosti og galla, og að einhverju leyti heft- ir af of sterku flokksvaldi/ En veikleiki þjóðfélagsins liggur fyrst og fremst í smíðisgöllum þess. Sementið er svikið, eining- araflið vanmáttugt. Úr þessu þarf að bæla, og með rólegri at- liugun ættu allir að geta orðið sammála um það, En samfara þeirri skipulagsbót þarf auðvit- að að vera hagnýtt og liyggilegt þjóðaruppeldi. Pétur Sigurðsson. I.O.O.F. 5 = 1243188“/!= Næturlæknir Kjartan Guömundsson, Sólvalla- götu 3. Sími 5351. Næturv.: Lyfja- búSin ISunn. Næturakstur Bifröst. Sími 1508. Útvarpið í kvöld. 20.20 Útvarpshljómsveitin (Þór- arinn Guðmundsson stjórnar) : a) Porleikur að óperunni „Töfra- flautan eftir Mozart. b) Úr Vínarskógi, vals eftir Joh. Strauss c) Serenade eftir Max Bruch. — 20.50 Minnisverð tíSindi (jón Magnússon íil. cand.). — 21.10 Hljóniplötur: Göngulög. — 21.15 Iþróttaerindi í. S. I.: Líkamleg áreynsla (Halldór Hansen dr, med.). — 21.35 Spurningar og sVÖr Um íslenzkt mál (Björn Sigfús- son magister). Handknattleiksmótið. í kvöld kl. 30 keppa 2. fl. Valur—Í.R., Haukar—Ármann og Víkingur—K.R. Dójnari Þrájinn Sigurðsson. Árshátíð Starfsmaimafélags Reykjavík- urbæjar verður áS Hótel Borg annaS kvöld og hefst meö borS- haldi kl. 7JÝ Hjónaband. SíSastliSinn laugardag voru gefin saman i hjónaband af síra Jóni Thorarensen þau SigríSur Jónsdóttir saumakona og GuSm. E. BreiSfjörS trésmiSur, bæSi til heimilis á Shellvegi 2. Heimilisblaðið, febrúarblaS, flytur m. a. grein um uppruna málaralistar (meö myndum) tog skemmtilegar smá- greinar og framhaldssögur. Bridgekeppnin heldur áfram í kvöld kl. 7-3° í K.R.-húsinu. Þessar sveitir keppa: Axel BöSvarsson: G. ViS- ar, LúSvík. Bjarnason: Stef. Þ. GuSmundsson, Lánis Fjeldsted: Árni M. Jónsson, IiörSur ÞórSar- son: Óskar Norömann. ASgangur er ókeypis fyrir friaga Bridge- íélagsins, gegn félagsskírteini. Arás og rán. í gærkveldi var framin árás á utanbæjarmann nokkurn, ' sem var gestkomandi í bænum, og hann rændur tösku með fjórum vínflöskum. Maður þessi var staddur fyrir utan vörubilastöðina Þrótt síðla i gærkveldi. Hélt hann á tösku í hendinni, en i töskunni voru 1 flöskur fullar af áfengi. Bar þar að tvo menn og báðu þeir utanbæjarmanninn að selja sér vín, en því neitaði hann. Annar aðkomumanna réðst þá á mann- inn og sló hann tvö högg og féll hann á götuna við síðara högg- ið. Þreif annar árásarmann- anna töskuna úr hendi manns- ins og hljóp allt hvað fætur loguðu upp Arnarhólslún, en hinn tók á sprett austur Kalk- ofnsveg. Tveir menn sem nærstaddir voru, og sáu aðfarir þessar,- tóku ásamt manninum sem fyrir árásinni varð, á rás á eftir aðaltilræðismanninum og eltu hann iun á Lindargötu, en þar misstu þéir af honum. Litlu síðar fór lögreglan á slúfana að leita mannanna og fann þá von hráðar á gatna- mótum Ingólfsstrætis og Hverf- isgötu. Voru þeir fluttir á lög- reglustoðina þar sem þeir ját- uðu á sig brotið. Voru þeir þá húnir að skipta áfenginu á milli sín og fannst það að mestu leyti. Þeir sögðust liafa fleygt töslcunni í „port“ á bak við hús eitt og þar fannst hún þegar að var leitað. Þess má geta, að aðalárásar-. maðurinn er sá sami sem i fýrra varð fyrir hnífstungu erlends sjómanns hjá Eimskipafélags- húsinu og bæjarblöðin gátu um á sínum tíma. Húsbruni í Hornafirði. í fyrradag kviknaSi í húsi ósk- ars Guönasonar í Höfn í Horna- firöi. Mun hafa kviknaS út frá reykháf. Torfþak hússins brann, en innanstokksmunir skemmdust af eldi og vatni. Gjafir til HúsmæSraskólaíélags Hafn- arfjaröar: Frá Beinteini Bjarna- syni kr. 1000, b.v. Garöar kr. 2000, b.v. Surprise kr. 2000, b.v. Venus kr. 2000, b.v. Jupiter kr. 2000, b.v. Hagstein kr. 2000, Júlíus Nyborg kr. 500, Ingálfur Flygenring kir. 500, b.v. Maí kr. 2000, b.v. Júní kr. 2000, b.v. Óli garSa kr. 2000, b.v. Haukanes kr. 2000, VélsmiSja Hafnarfjaröar kr. 500. —- Beztu þakkir. — Stjórnin. Hallgrímskirkja í Reykjavík. Gjafir Ög áheit afhent á skrif- stofu „Hinnar almennu fjársöfn- unarnefndar“ kirkjunnar, Banka- stræti 11. — Frá gamalli konu (gamalt áheit) 20 kr. Magnús Benjamínsson & G>. 300 kr. Markús 20 kr. B. B. (gamalt áheit 10 kr. S. 250 kr. N. N. (áheit) 15 kr. Ekkja utan af landi (áheit) 50 kr. S. Þ. J. 500 kr. Jóna (áheit) 15 kr. G. H. & K. G. (minningar- gjöf um látna dóttur) 1000 kr. G. B. (áheit) 5 kr. G. B (áheit) 5 kr. S. B. (áheit) 5 kr. Verzlunin Von 50 kr. Kona í HafnarfirSi (áheit) 30 kr. Á. J. (áheit) 10 kr. Ónefndur (áheit) 20 kr. Vigdís A. Jánsdóttir 10 kr. Kristrún Þor- steinsdóttir 70 kr. L. H. (áheit) 25' kr. R. S. Vátnsleysustúönd (áheit) 25 kr. Gamal.1 maiöur (áheit) 10 kr. Lóa (áheit) 50 kr. Kona (áheit) 25 kr. Ónefndur (áheit) 5 kr. L. (áheit) 25 kr. J. B. (áheit) 100 kr. S. & G. (áheit) 15 kr. H. J. (áheit) 50 kr. V. Þ. 10 kr. S. B. (áheit) 25 kr. Kr. G. (áheit) 25 kr. J. Kr. (áheit) 50 kr. N. N. (áheit) 25 kr. Kona (áheit) 15 kr. Kristján Gestson, verzlunarstj. 500 kr. Áfhent Morg- unblaöinu frá H. O. (áheit) 15 kr. Afhent af síra Bjarna Jóns- syni, víxlubiskup frá tveim mægö- um 30 kr. og frá G. P. 20 kr. Afhent af starfsfólkinu viö Niöur- suöuverksmiSju S. í. F. 45 kr. Afhent af síra Friörik Hallgrims- syni, dómprófast frá B. J. 02 kr. og fjórum vinkonum i HrútafirSi 50 kr. — Kærar þakkir. ,F. h. „Hinnar alm. fjársöfnunarnefnd- ar“. Hjörtur Hansson, Banka- stræti 11. Mjólkin: Hálíur lítri á heimili. Austanbílarnir komust ekkí nema að vegamótum gamla og nýja Þingvallavegar, urðu að snúa þar við og gistu bílstjór- ar á Þingvöllum í nótt. í dag verður freistað að kom- ast til bæjarins, og ef ekkert versnar er hugsanlegt að bii- arnir komi eftir miðjan dag. Verður þá ef lil vill hægt að kom,a nokkru af mjólk i búð- irnar fvrir lokunartíma. Vísi hafa borizt margar kvart- anir út af þeirri mjólkur- skömmtun, sem upp var tekin í mjólkurleysinu í gær, einkum ' frá barnafjölskyldum. G. B. skrifar m. a.: „Nú fer nýtt skömmtunartímabil að lie’f jast. Annasstaðar er mjólk skömmtuð, þegar ástæða er til. Hvers vegna ekki að prenta sérstaka mjólkunniða. t. d. í stað kaffimiða ung- barna, og númera þá, 1, 2, 3 o. s. frv., til að nota i hvert skipti sem mjólkurþurrð el’? Eg kaupi venjulega 4 lítra (lianda 4 bömum), en í dag fékk eg ekki nema liter. Á sama tíma sá eg, að barn- lausri fjölskyldu var úthlut- að sama magni, þótt hún kaupi að jafnaði ekki nema 1 Iíter.“ Barnakarl skrifar: „Mér þykir það harla ein- kennilégt fyrirkomulag á skömmlun, sem væutanleg® er gerð ti I iiagshóta fyrir al- menning, að einhleypt fólk skuli vera gert jafnt stórum harnafjölskyldum. Á lieim- ili minu eru 11 manns, þar af 4 hörn ínnan 3 ái-a aldurs. Mér, 'finnkf að hver sann- gj.arn rwí.fur hljó.ti að sjá„ að slíkli heimili muni illa lega, þótt það sé hinsvegar fullnægjandli fyrir einhleypas eða barnkius hjóu, sem getai þá, þegar svo stendur ár sparað sér mest alla mjólk- urnotkui* aema e. t. v. i kaffi. Mér, finnst það hljótí að verða .krafa allrar sann- girni og réttlætis, að hér verði á é ixdivern hátt breytl til.“ Fleiri k,viV-tenir liafa borizt, hæði simleiðis og skriflega, en þær gaiiga aÚm.i sömu átt. Visif heiníj þessum athuga- semdum tii réltra hlutaðeigenda og skorar á þá að freista að finna ýlðunaiáli lausn. „Eining", 4. tbl. þessii ýrg-angs er komiS tít. Flyttif þafl ■ grein um söínuri „Hririgsiús" tíJ barnaspitala, grein um landnám Templara aS Jaöri o, fl. RitiS er géfiö út af samvinnu- ncfnd Stórstúkörinar, í. S. U. M. F. í. og Sambandi bindindis- félaga í skólum. Ritstjóri er Pétur SigurSsson. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ AUGLÝSA 1 VlSI! ÁFshátíð Starfsmannafélags Reykjavikwrbæjar að Hótel Borg annað kvöld. Aðgöngumiða sé vitjað i dag i skrifstofur bæjarstofnana. Skemmtinefndin. Félag: íilenzkra stórkanpmanna Aðalfundur félagsins verður haldinn í Félagsheimili Yerzlunarmannafélags Reykjavíkur fösludaginn 19. • 1, Þ’- ■: •• ■ marz klukkan 3 1/2 e. h. Dagskrá samkvæmt félagslögunum. Áríðandi að félagsmenn mæti stundvislega. STJÓRNIN. A fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur 4. þ. mán., var samþykkt eftir tillögu heilbrigðisnefndar: Að banna öllum mjólkursölubúðum að nota trektir við mælingu mjólkur og rjóma, og krefjast, að mjólk. og rjómi sé einungis afhent í ílát, sem ekki þurfá að snerta mjólkurmálin. Að fyrirskipa, að afgreiðsíustúlkur í mjólkur- og brauða-búðum noti kappa, sem skýli hárinu til fulln- ustu meðan á afgreiðslu stendur. Akvæði bessi ganga í gildi 1. apríl n. k. Þetta tilkynnist öllum þeim, sem áeka mjólkur- og brauðsölubúðir hér í bænum. LÖGREGLUSTJÓRINN I REYKJAVÍK. Sonur okkar, Ólafur Árnason. prentari, andaðist í gærmorgun. Kristín Ólafsdóttir. Árni Árnason. Bakkastíg 7. m

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.