Vísir - 29.03.1943, Blaðsíða 3
v r s i h
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLADAÚTGÁFAN VtSIR H.F.
Bitstjórar: Eristján Guðlaagsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunnií
Afgreiðsla Hverfisgötn 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasaia 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Umskiptingar.
Fyrir nokkruin árum var til
flokkur eimi liér í laudi,
er nefndist „Kommúnistaflokk-
ur íslands“. Hann vildi teljast
vinstri flokkur, en liafði þó
byltingu að markmiði, sem ekki
er vitað að vinstri flokkar liafi
yfirleitt. Að öðru leyti hafði
hann að kjörorði: „Öreigar
allra Ianda sameinizt“, en í því
fólst það fyrst og fremst, að
fornar dyggðir, sem eitthvað
eiga skylt við ættjarðarást,
værn úr sögunni og vikju af
hólmi fyrir roða hinnar aust-
urlenzku alþjóðahyggju. En
undir þessu merki gat floklc-
urinn ekki orðið sigurs auðið
og sá liann það sjálfur, þótt
hann yrði að bíða betri tíma
og æðri tilskipana áður en unnt
yrði að framkvæma umskurð
og géfa honum nafn. að nýju.
Með norrænum þjóðum
■ fannst aldrei hljómgrunnur
fyrir byltingaskraf og æsinga-
óp kommúnista. Verkamenn,
— sem fyrst og fremst átti að
ánetjá, — fóru sér að engu óðs-
lega, en reyndu að efla eigin
hag undir merki eða í sam-
starfi við aðra flokka, sem
mátu ættjarðarástina og aðrar
fornar dyggðir á annan veg en
kommúnistar. Er merki var
gefið frá Moskvu Iiættu komm-
úriistár að keppa eftir sálum
verkamanna á þann veg, sem
þeir fyrr höfðu gert, en tóku
nú að bjóða þeim flokkum
innilegt samstarf, sem þeir áð-
ur töldu valda allri ógæfu, en
það. voru liinir sósialistisku
flokkar á Norðuxlöndum, —
en Alþýðuflokktirinn hér.
Alþýðuflokknum var það
ljóst, að kommúnistar voru að
einu og öllu Jesúítar nútímans,
sem skeytlu hvorki um skömm
né lieiður, en beittu öllum auð-
• virðilegustu bellibrögðum til að
afla sér ávinnings, jafnvel þóft
ekki væri um annað en stund-
arhag að ræða. Fyrir því neit-
aði flokkurinn slíkri samvinnu
við kommúnista, en fyrri synd-
ir urðu honum að falli. Verka-
menn undu illa samvinnu Al-
þýðuflokksins við Lappóhreyf-
ingu Fi’amsóknarmanna,
og töldu jafnframt, að þótt ver-
aldlegt gengi forystumannanna
kynni að eflast nokkuð, töpuðu
þeir í andanum og fyrirgerðu
sínum betra manni, samhliða
trausti og áviriningsvonum til
frambúðar. Ollu þessi ólíku
viðhorf allhörðum deilum í
flokknum, er Ieiddu til þess að
hamrömmustu hentistefnu-
mennirnir knúðu á dyr komm-
únista, en hinir sem á engan
hátt aðhylltust þá tilhugsun að
selja sál sína og ganga öfga-
stefnu á hönd, kusu þann kost-
inn að heyja fyrri baráttu, þóít
hún yrði háð við kaldari kjör
I en fyrr. Kommúnistar og henti-
sfefnumennirnir úr Alþýðu-
flokknum stofnuðu þá Samein-
ingarflokk alþýðu sósíal-
istaflokkinn, sem nú í dag er
eitthvert ógeðslegásta fýrir-
brigði er þekkist og þekkzt hef-
ir í íslenzkri stjórnmálasögu.
Socialistaflokkurinn hefir
mjög eflzt að fylgi á síðustu
árum, og b'er þar til að flokk-
ur þ essi’ hefi‘r enga ábyrgð þurft
að bera á stjórn landsins eða
stjórnarathöfnum, en skipað
sér liins vegar í hai'ðvítuga
andstöðu við aðra flokka, cr
ríkisstjórnina lxafa stutt á þess-
um erfiðu tímum. í síðustu
kosningum lýsti flokkurinn yf-
ir því, að hann vildi koma á
vinstri samvinnu, er fyrst og
fremst miðaðist við Jxað að
jafna liressilega á stríðsgróða-
mönnrinum, þannig að Jxeir
sætu ekki yfir rétti og liag
hinna vinnandi flokka í lantl-
inu. Mörg fögur fyrirheit voru
gefin að öðru, leyti, *og svo fóru
leikar, að eftir kosningarnar
varð flokkurinn þriðji stærsti
flokkur þingsins. Hinn 10. nóv-
emher kom Aljxingi saman, og
hefir selið siðan á rökstóliim.
A þessu tímabili hafa komm-
únistar fengið ýms lækifæri lil
að standa við öll stóru orðin,
en stjónxarmyndun hefir reynzt
óframkvæmanleg innan þings,
fvrir þær sakir fyrst og fremst,
að þeir Iiafa ávallt skorast úr
leik og ekki þorað að ganga
til samvinnu við, aðra l'Iokka
um stjórn landsins, — livorki
vinstri flokkana tvo né þá og
Sjálfstæðisflokkinn. Þessi af-
staða kommúnistanna hefir
aftur leilt til þess að Alþýðu-
flokkurinn trevstist ekki lil
samstarfs við aðra flokka
þingsins, enda er aðstaða hans
að mörgu leyti óhæg og erfið.
Slíkt má ekki þolast að
kommúnistum lialdist uppi að
gera Jxað tvennt í senn, að neita
að laka þált í myndun stjórri-
ar, en gera jafnframt hverri
stjórn, sem skipuð kann að
vei’ða, ómögulegt að stjórna,
með því að beita fyrir sig
verkalýðssamtökunum, senx
Jxeir hafa náð of sterkum tök-
um á. Þess er skammt að minn-
ast, að á sinni tíð efndu komm-
únistar, er unnu í hafnarvlnnu
Iiér í hæ, til liins svokallaða
smáskæruhernaðar, sem var
með öllu ólöglegur, svo sem
þeir viðurkenndu síðar sjálfir,
en stöðvuðu með því siglingar,
þannig að til algerra vandræða
horfði. Það var þeini látið
haldast uppi, en svo má vænt-
anlega brýna deigt járn, að það
bíti, og ekki verði ósóminn þol-
aður um 'aldur og ævi. Ætli
koxnmúnistar nú að leika svip-
aðan leik, þar sem ábyrgðar-
leysið eitt er i ahnætti sínu,
verður að stemma á að ósi.
Umskiptingai-nir í Kommún-
istaflokknum þurfa að læra
það, að jxjóðin metur þjóðfé-
lagið meira en byltingaflokk
þeirra, sem þó hefir verið um
skeið riki í ríkinu.
Opinber frétia-
þjónusta og
blaðafulltrúar.
Tillögur Blaöamanna-
félagsins.
Blaðamannafélag fslands hef-
ir sent utanríkismálanefnd Al-
þingis bréf með áskorun um, að
nefndin beiti sér fyrir því, að
ráðinn verði fastur fréttamaður
við utanríkisráðuneytið. Annist
hann miðlun allra opinberra
fregna til innlendra og erlendra
blaða, svo og til íslenzkra sendi-
sveita erlendis.
Ennfremur að skipaðir verði
blaðafulltrúar við íslenzku
sendisveitirnar erlendis.
Erindi Blaðamannafélagsins
fylgir ítarleg greinargerð um
nauðsyn þessara ráðstafana. Er
það kunnara en frá þurfi að
segja, hversu nauðsynlegt það er
fyrir oss íslendinga, að hafa
slíka talsmenn gagnvart erlend-
um blöðum, o^ má í því sam-
bandi benda á, að 3 erlendir
blaðafulltrúar eru starfajidi hér
Frakknesk málaralist
á 19. og 20. öld.
Annar fyrirlestur Hjörvarðs Arnasonar.
JTJÖRVARÐUR ÁRNASON rakti í öðrum fyrir-
** lestri sínum megmstrauma franskrar málaralist-
ar frá tímum Loðvíks 14. til vorra daga.
I upphafi vakti hann máls á því, hvaða atriði það
væru sem sköpuðu þjóðlega list og að hver ju levti
J'rakknesk list væri sérstæð og gædd þjóðareinkennum.
Þessar spurningar, ásamt því
hvaða meginah'iði aðgx*eindu
frakkneska list frá listlim ann-
arra þjóða og gerðu liana fyrst
og fi’emst frakkne'ska, voru síð-
an meginþátturinn í erindi hans,
sem var bæði langt og fróðlegt.
Upptök Iiirinar eiginlegu
frakknesku málaralistar má,
eins og rnargt fleira í menningu
Frakklands, rekja til einvaldans
Loðvíks fjórtándá og þeirrar
hámenningar, sem einveldi hans
skapaði. Af hinni algei’ðu ein-
ræðisstefnu leiddi þá stefnu að
vilja hinda allt reglum og lög-
niálum — jafnvel listina. Á
tínium Loðvíks tekur liið fyrsta
akademí til stax*fa og kennir
ekki einungis sjálft liandhx*agð
listarinnar, lieldur leitast einnig
við að kenna og rekja liin dýpri
i ök heiinar — mynda listfræði-
iegar kennisetningar.
Mcginliugsun akademíkar-
anna er sú, að hámarki listar-
irinar liafi þegar verið náð —-
það sé vonlaust verk að ætla að
skara fram úr meisturum forn-
a’ldarinnar grískum og latnesk-
um. Hlutverk listarinnar ldjóti
því að verða það, að greina foril-
listina og fylgja henni sem nán-
ast í hvívetna.
Fyrstu myndirnar, sem sýnd-
ár voru, voru sigurför Bakkusa
eftir Nicholas Poussin (1594—
1(565) og Sigurför hins lielga
dórns eftir Peter Paul Ruhens
' (1577—1640). Poussin er glæsi-
legasti fulltrúi akademísins.
Hann byggir myndir sínar af
hinni mestu formfestu og legg-
ur meiri áherzlu á teikningu en
liti. Ruhens er að mÖrgu leyti
hin fullkomna andstaða hans.
Leggur hánn aðaláherzluna á
lili og lireyfingu. Þótt Rubens
sé flæmskur að þjóðerni, verður
Iiann að teljast til frakkneskra
málara, sökum þeirra djúpu á-
hrifa, sem hann hefir haft á
framvindu mýndlistar þar í
landi. 'Um lxáða þessa málara,
sem telja má höfunda frakk-
neskrar málaralistar, má segja
hið sama, að þeir liugsa myndir
sínar fyrst og fremst með tilliti
lil forms og byggingar, þótt
hinn fyrri noti til þess aðferð,
sem svipar til aðferðar mynd-
höggvarans, en hinn siðari beiti
algerðri notkun Ijóss og lita. Við
þá eru kenndar tvær megin-
stefnur listarinnar og frakk-
neska listamenn má um langan
tíma greina eftir því, livort þeir
mega teljast Poussenítar eða
Rubensítar.
Á síðara hluta 18. aldar vakn-
ar um alla álfuna nýr áhugi
fyrir fornöldinni. Fornaldar-
saga Winckelmanns og forn-
leifafundirnir í Pompeji færa
mönnum nýjan fróðleik, og
ferðir aukast til Grikklands. Það
er Louis David, sem gerist for-
ystumaður þessarar hreyfingar
á landi, fyrir lönd, sem Islend-
ingar þekkja vel og hafa ekki
tilfinnanlega rangfærðar hug-
myndir um. Hversu mjög ætti
oss þá ekki að vanhaga um slílca
þjónustu, sem svo víða erum af-
fluttir og höfum orðið að sætta
oss við margan hættulegan og
hlægilegan misskilning um ís-
land?
Mál Godtfredsens sildarkaup-
manns ætti í þessu efni að vera
þörf og tímabær hugvekja um
að láta ekki lengur skeika að
sköpuðu í þessum éfnuin.
í myndlist Frakklands, höfund-
ur hins ný-ldassiska stíls og
þeirrar tízku, er af lionuin
leiðir í myndlist, hyggingarlist,
klæðaburði, Ixókmenntum og
hátterni.
Að vissu levti mátti relcja þá
hugarfarsbreytingu, sem slíll
Jxessi olli, til )iinna nýju lýð-
ræðis- og lýðveldishugsjóna.
Lýðveldin fornu stóðu sem lýs-
andi tákn þess glæsilegasta sem
mannsandinn hafði afrekað.
Þau voru Jxví fegursta fyrir-
mynd, sem liægt var að gefa
þegnum liins unga lýðveldis, er
af byltingunni fæddist. En oft
og tíðum var skotið yfir markið.
Það, sem ætlað var að vera Iiá-
leitt og göfgandi, varð stundum
formið tómt -- innantómar
stellingar. Málverkin litu út eins
og myndir úr leikritum. Það
mætti ef til vill skjóta því liér
inn i, að um Jxessar mundir var
leikárinn Talma talinn mestur
leikari heimsins og réði lögum
og lofum |á Theatre Francais.
Að live miklu levti hann liefir
mótað listarskilning Davids eða
David leiklist Talma, verður
seint afgert mál.
Gerard og Ingres Iialda nj'-
klassisku stefnunni áfram, og
gælir þó Iijá Ingres greinilegra
áhrifa frá nýrri stéfnu, sem tek-
ur að ryðja sér til rúms, og nær
að vísu ekki hámarki sínp í mál-
aralist, liéldur í bókmenntum,
en það er rómantíska stefnan.
Rómantíska stefnan sækir efni
sill að vísu einnig i fornöldina,
þó.tt með öðrum hætti sé, cn
auk þess i austræna sögu og
samtímasögu. í frakkneskri
málaralist gerast þeir Gericault
og Delacroix æðstu prestar
liennar. I stefnu þeirra gætir
meira lita en lína, og koma þar
aftur fram gömlu andstæðurnar
milli Ppussin og Rubens.
En veikleiki beggja þessara
„skóla“ verður að teljast sá,
Iiversu fjarri þeir eru raunhæfu
lífi og lífsreynslu listamannsins
sjálfs. Hvöt Goetlie til skáld-
anna: „Greift nur liinein ins
volle Menchenleben" er ekki
sinnt að ráði fyrr en löngu síðar.
Gildi Jxeirra má liinsvegár telja
það, að þeir þvinga listamenn
til að liugsa, rifa þá úr viðjum
vanans og livetja þá til að auðga
listina nýjum og óvæntum við-
fangsefnum. Munur stefnanna
var í meginatriðum lítill, því að
ný-klassíkararnir voru róman-
tískir að því leyti, sem þeir dýrk-
uðu fornöldina með angurvær-
um trega. í tækni fara hvorir-
tveggja leið formsins, þótt hin-
ir fyrri teljist til Poussenita en
hinir síðari til Rúbensíta.
Afturhvarfið til raunsæis-
stefnunnar gerist með Camille
Corot (1796—1875), en um
miðja 19. öldina tekur hann að
mála landslagsmyndii*. Millet
tekur við og málar svipmyndir
úr lífi lágstéttanna. Honoré
Daumier dregur djarflegar
myndir úr hversdagslífinu með
háðsglotti liúmoristans og
stefnan nær bámarki sínu með
liinni innfjálgu raunsæi Edou-
ards Manet, sem gerist liinn ó-
krýndi konungur realistanna.
Það er nú orðið ljóst, að engin
listastefna getur til lengdar
þrifizt ein, enda færist nú allt í
þá áttina, að einstaklingar verða
að velja sér þrengri svið, leita
tjáningar veruleikans í lýsingu
smærri og smærri einstakra
fyrirbæra. Með Claude Monet
fæðist „impresjónisminn“, frjó-
asta listarstefna síðari tíma, og
sjálfur Manet virðingarmestur
málari listauðgustu Jxjóðar
heims þykist ekki of góður til
að læra lexiu impressjónistanna.
Nú hcfsl sögulegasti þáttur
frakkneskrar málaralistar og
jafnframt sá Jxáttur, sem sizt
verður i cxrðum einum lýst.
Impressjónistarnir leitast fyrst
og fremst við að túlka Ijósið og
leik Jxess i litum. Svo djúptæk,
hröð og stórkostleg eru átölc
Jxeirra, að á skömmum tima
fóstrar frakknesk list Jxrjá tröll-
aukna málara, sem bera slíkan
ægislijalm yfir samtið sína, að
skugga Jxeirra ber bæði aftur og
fram í tímann. Paul- Cézanne,
Paul Gauguin og Vincent van
Gogh bera stefmina svo hátt, að
ný listastefna verður að koma
til skjalanna, áður en flugi
þeirra yerði náð. En slíkt er að-
alsmerki frakkneskrar listai*, að
bæði Hollendingurinn van Gogh
og síðar Spánverjinn Pablo
Picasso liljöta að teljast frakkn-
eskir málarar, Jxrátt fyrir þjóð-
erni sitt, sökum Jxess, liversu list
Jxeirra er mótuð frakkneskum
áhrifum og stíl.
Feður riútímalistarinnar telj-
ast Jxeir Henri Matisse (læri-
meistari Jóns Stefánssonar) og
Picasso, höfundur kúhismans.
Stílfegurð Matisse er viðbrugð-
ið, fyrir þá sök, hversu frakk-
nesk hún er að smekk. Picasso
hverfur á unga aldri frá vitandi
túlkun náttúrunnar og 'leitar
listinni endurnýjunar í hinu
alxstrakta formi.
Nú verður það Ijósara, segir
fyrirlesarinn að lokum, hverjir
verið liafá meginstraumar í
frakkneskri málaralist og Iivað
Jxað er, seín gerir Jxað að verk-
um, að listin er Jxjóðleg —-
frakknesk og ekkert annað.
Frakkar liafa lagt áherzlu á list
formsins, sem gert hefir frakk-
neska list frjóa og opna fyrir
nýjum straumum. Tvær megin-
stefnur má greina, annarsvegar
hina alvörugefnu, rökvissu og
siðgæðilegu stefnu Poussenít-
anna. Hinsvegar lífsgleði,
smekkvísi og stílfágun Rúbens-
íta.
Frakknesk málaralist stendm*
enn sem fyrr í fremstu röð.
Enginn veit, Iivað orðið hefði,
ef málarar liefðu notið frakk-
nesks frelsis i stað Jxýzkrar kúg-
unar. En hvernig sem Jxví vind-
ur fram, Jxá er óhætt að full-
vrða, að málaralistin muni enn
um langan tíma skipa veglegan
sess innan liinnar háu menning-
ar Frakklands.
Fyrirlesturinn var ennþá fjöl-
sóttari en sá fyrsti, og fór nú
svix, að allir gátu ekki fengið
sæti. Vekur það almenna aðdá-
un, hversu Ijóst og fagurt mál
Hjörvarður talar og hversu sýnt
lionum er að útskýra torráðið
efni. Nokkur þrengsli urðu við
fatageymsluna, og væri ráðlegt,
að geyma sjálfur föt sín, þeim,
sem komast vilja tímanlega
lieim. Fyrirlesturinn varð mjög
langur — nærri 1% tími —• en
Jxess varð þó ekki vart að neinn
finndi til þreytu, sízt af öllum
fyrirlesarinn sjálfur.
Næsti fyrirlestur verður á
þriðjudagskvöld og fjallar
um ameríska málaralist frá
sama tíma.
B. G.
Hmnar
Sími 1884. Klapparstíg 30.
Nokkur Ijós
líápncfni
komln.
II. Toft
Skólavörðustíg 5 Sími 1035
Páslialtijur
Lí-
Gott úrval
frá 0,05
•>
stykkið
6ARÐASTR.2 SíMI 1899
St j órnmálanámskeið
. ' , • ' ' ' A
Þátttakendur í stjórnmálanámskeiðum Heimdallar
og Óðins mæti næstkomandi mánudag kl. 8% e. h. í húsi
Sjálfstæðisflokksins Thorvaldsensstræti 2.
Fyrsti fyrirlestnr: Ræðnmennska
Flm. GUNNAR TH0R0DDSEN.
Fræðslunefnd Sjálfstæðisflokksins.
Tilkynning.
Athygli vélsmiðja, skipasmíðastöðva, dráttarbrauta og
viðgérðarverkstæða bifreiða skal hérmeð vakin á þvi,
að i Lögbirtingablaðinu, sem út kemur þriðjud. 30. þ.
m. verða birtar tilkynningar varðandi álagningu á efni
og vinnu, sem fyrirtæki i þessum greinum selja.
Reykjavik, 25. marz 1943.
VERÐLAGSSTJÓRINN.
V I S I H
Bilstjóri
með meiraprófi óskar eftir
1—2 lierbergjum i nýju húsi.
Aðeins tvénnt í heimili. —
Ákstur á góðum bíl, kemur
til greina. Tillxoð óskast sent
Vísi, merkt: „Húsnæði -—
100“ fyrir miðvikudagskvöld,
n. k.
Gódnr líniofn
og lítill miðstöðvarketill,
íyorltveggja nolað, til sölu
á Grettisgötu 13, vinnustof-
unni.
filöfnm
mikið úrval af fallegum og
ódýruni
SUMARKJÓLAEFNUM.
Unnnr
(horninu á Grettisgötu og
Barónsstig).
400-500 br.
Vil eg borga fyrir 1 lier-
bergi og eldhús. — Tilboð,
merkt: „Húsnæði strax“,
sendist blaðinu fyrir þriðju-
dagskvöld.
Eldhnsstúlka
óskast á
Heitt & Kalí
ÞYKK
íllAi
margar gerðir
og litir.
NlELS CARLSSON & CO.
Laugaveg 39.
NÝKOMIÐ
Karlmanna-
sokkar
Verð frá 2.85.
Smekklegt úrval.
NlELS CARLSSON & CO.
Laugaveg 39.
■
i sðinaoarins i itevnj
TiiiiBÍisgrnnr! sn '1'iiiniiig‘iir! Tiniiingiir!
ii spíeibi iit iiiú linnti w;
Dregið 15. júiii 1043
' Verö Iivers miða kr. S.DO
Miðarnir fást á eftirtöldum stöðum: Bókaverzlun Síg-
fúsár Eymundssonnr. Austurstræti 18; Bókaverzlun
ísafoldarprentsmiðju h.f., Austurstræíi 8; Stefáni A.
Pálssyni, Varðarhúsinu; Matarverzlun Tomasar Jóns-
sonar Útbú, Bræðraborgarstíg 12; Verzhin Péturs Krist-
jánssonar, Asvallagötu 19; Dagbjarti Sigurðssyní,
Vesturgötu 12; Þorsteinsbúð, Grundarstig 12 og Hring-
braut 61; Guðmundi Guðjónssyni, Skólavörðustíg 21’;;
Sig. Þ. Skjaldberg. Laugaveg49; Verzl. Rangá, Hverfis-
götu 71 og hjá safnaðarfólki.
Mróssasr fsrjár!
Wiinsinsnr: fi]]kki smár!
Stattn klár!
í
llapiHlrætti
nm Ml.
Frjálslyndi söfnuðurinn efn-
ir til happdrættis um spánnýja
,,PIymouth“-bifreið(1942), til á-
góða fyrir kirkjubyggingarsjóð
safnaðarins.
Bifreiðina gaf áhugasamur
safnaðarvinur, kaupsýslumað-
ur, sem ekki vill láta nafns síns
gelið. í happdrættinu verður,
dregið 15. júní, og kosta mið-
arnir 3 krónur hver,
Safnaðarfólk, sem selja vill
miða, snúi sér til Stefáns A.
Pálssonar í Varðarhúsinu eða
til Sólmundar Einarssonar,
\ritastig 10.
Stórir pakkar 4.25.
Post-ten
10 morgunverðar-
skammtar úr 5 mis-
munandi kornhýðisteg-
undum, 6.50 pk.
100 /0 BRAN
tvímalað, blandað sykri
og salti, maltextrakt og
sveskjusafa, 2.00 pk. —
WÍBl/Zldi
Afhending
matvælaseðla.
1 dag, á morgun og miðviku-
daginn kemur fer fram aðhend-
ing matvælaseðla fyrir næsta
uthlutunartímabil í Góðtempl-
arahúsinu.
Afhending seðla fer fram
þessa daga frá ld. 10-—12 f. li.
og kl. 1—5 e. h. Verða þeir að-
einá afhentir gegn stofnum að
núgildandi matvælaseðlum, sem
verða að vera áletraðir nafni,
fæðingardegi og' lieimilisfangi.
40 ára hjúskaparafmæli.
1 dag eru 40 ár síðan Jxau gengu
að eigast Ingibjörg Ágústína Jóns-
dóttir og Gunnar E. Björnsson, rit-
stjóri í Minnesota, nú til heimilis í
Minneapolis, Minnesota.
Útvarpið í dag.
Kl. 20,30 Erindi: Um lxækur og
bókasöfnun, II (Þorst. Þorsteins-
son sýslumaður). 20,55 Hljómplöt-
ur: Leikið á flautu. 21,00 Um dag-
inn og veginn (Skúli Skúlason rit-
stjóri). 21,20 Útvarpshljómsveitin:
Amerísk þjóðlög. — Einsöngur
(Kjartan Sigurjónsson, tenór) : a)
Sig. Þórðarson: Mamma. b) Ásta-
ljóð eftir Bizet. c) Sigv. Kaldalóns:
Eg lít i anda liðna tíð. d) Lag eftir
Massenet.
Svefnherbergis
húsgögn
(máluð)
Ný til sölu
eftir kl, 5
Bergstaðasfræti 22
(búðinni).
I sambandi við breytingar, sem nú um þessar mimdir
er verið að t/era á l'ramkvæmd verðlagseftirlitsins og
miða að því að efla það og styrkja, vili Yiðskiptaráðið
geta þess, að ]>að telur aðstoð af hálfu neytenda nauð-
synlega til þess að tryggt sé, að eftirlitið beri fullan ár-
angur, og óskar því eftir samvinnu við almenning hér
að lútandi.
Néýtendiir eru sérstaklega hvattir tiJ þess að veita
eftirfarandi atriðum athygli:
í. Hvort vörur, sem álcvæði um hámarksálagningu
giJda eldvi um, eru seldar Jiærra verði en 13. febrúar
síðasttíðinn eða hærri greiðsla tekin fyrir einlivers-
lconar verk, en slíkt er óleyfilegt án leyfis Við-
skiptaráðsins.
2. Hvort verð vöru er hærra en auglýst hámarksverð.
3. Hvort sama vörutegund er seld misháu verði í tveim
eða fleiri verzlunum.
Ef menn telja brotið gegp gildandi reglum, er óskað
eftir því, að þeir komi á skrifstofu verðlagsstjóra eða
til trúnaðarmanna hans Utan Reykjavíkur og skýri frá
málavöxtum eða tilkynni bréflega um málið. Ef því
verður við komið, ef æskilegt að íögð séu fram skilriki
(nótur, verðmiðar, vörusýnishorn o. s. frv.). Gengur
skrifstofa verðlagsst jóra síðan tafarlaust úr skugga um
hvort um brot er að ræða.
Landinu liéfir verið skipt í eftirlitssvæði, og trúnað-
armenn skipaðir eins og hér segir:
Reykjavík og aðrir verzlunarstaðir frá Borgarnesi
að Vík í Mýrdal. Eftirlit á jiessu svæði annast skrif-
stofa verðlagsstjóra.
Breiðafjörður. Trúnaðarmaður á því svæði er Ól-
afur Jónsson, aðsetur Stykkishólmur.
Vestfirðir, frá Bjargtöngum til Horns. Trúnaðar-
maður á því svæði er Sveinn Þórðarson, aðsetur
ísafjörður.
Húnaflói og Skagafjörður. Trúnaðarmaður Jón
Jónsson, aðsetur Blönduós.
Akureyrarsvæði, frá Siglufirði til Raufarhafnar.
Trúnaðarmaður hefir áðsetur á Akureyri, og er það
Jörundur Oddsson.
Austfirðir, frá Þórshöfn til Hornafjarðar. Trúnað-
armaður er Axel Kristjónsson, aðsetur Eskifjörður.
Vestmannaeyjar. Trúnaðarmaður er Hermann Guð-
jónsson.
Reykjavík, 25. marz 1943.
Lögtök,
Eftir kröfu útvarpsst jórans í Reykjavík og að undan-
gengnum úrskurði verða lögtök látin fara fram fyrir ó-
greiddum afnotagjöldum af útvarpi fyrir árið 1942 að
8 dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar.
n Lögmaðurinn í Reykjavík 27. marz 1943.
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
settur.
1.
2
3
4
6
Ver ðlagsstj órinn
TILBOÐ
óskast í vörubirgðir firmánna Ferhibút arinnar, Wind-
sor Magasin og Sportvörugerðarinnar fyrir 8. apríl n. k. r
1 skrifstofu lögmanns í Arnarhvoli geta menn fengið '
að sjá skrá yfir vörurnar og skoðað þær eftir samkomiír
lagi.
AskiJinn er réttur til að hafna öllum tilboðum.
Skiptaráðandinn í Reykjavík.
Uppboð
Opinbert upphoð verður haldið á Hverfisgötu 50
föstudaginn 2. apríl næstk. kl. 2 e. hád. og verða þar
seldar allar vélar og áliöld tilheyrandi firmanu Sport-
vörugerðin. Meðal vélanna eru 3 saumavélar með
mótor og borði og ein saumavél með borði
. Auk þess verða seld 1 háreyðingarvéll og bækur.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Lögmaðurinn í Reykjavík.
y
Næturlæknir.
María Hallgrímsdóttir, Grundar-
stíg 17, simi 4384. Næturvör'Sur í
Laugavegs apóteki.
Næturakstur.
BifreiSastöS Reykjavíkur, sími
1720.
Aðalfundur
fulltrúráÖs Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík ver'Öur haldinn í Kaup-
þingssalnum annaÖ kvöld kl. 8)4-
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Fagurt er á fjöílum kl. 8
annaÖ kvöld, og hefst sala aðgöngu-
miÖa kl. 4 í dag.
.Tarðarför sonar okkar
Ólafs Árnasonar prent&ra
fer fram frá dómkirkjunni þriðjudaginn 30. marz og Iiefst
með húskveðju að heimili hans, Bakkastíg 7, kl. 1.30.
Kristín Ólafsdóttir. Árni Ámason.
Jaiðai föi mannsins mins, föður okkar, tengdaföður og afa,
Friðriks Friðrikssonar
fer fram frá frikirkjunni miðvikudaginn 31, þ. m. og liefst
með bæn á heimili lians, Höl við Kaplaskjólsveg, kl. 3 e. h.
Ingileif Magnúsdóttir, Ása Fríðriksdóttir.
Friðleifur Friðriksson, Halldóra Eyjólfsdóttir.
Karlotta Friðriksdóttir, Ögmundur Elinmundar.
Valtýr Friðriksson, Svava Tryggvadóttir,
og barnabörn.
Wi