Vísir - 05.06.1943, Qupperneq 1
Ritstjórar
Blaðamenn Slml:
Auglýsingar 1660
Gjaidkeri 5 llnur
Afgreiðsla
Reykjavík, laugardaginn 5. júní 1943.
125. tbl.
Árás á fLugvöllinn á Munda
Mimda-flugvölluriiin hefir oft verið nefndur í fregnum, því
að hann er sá flugvöllur, sein Japanir hafa næst Guadalcaual
og þess vegna gera Bandarikjamenn tiðum árásir á lianu.
Myndin er tekin í árás og sést reykur inikill skammt frá flug-
brautinni.
400 lögreglumenn drepnir
eða særðir í Búlgaríu
að undanförnu.
Castillo Argentínuforseti
flýði yfir til Uruguay.
• •
081 niótipyrna manna liani var á enda
iíðari hlnta dagfi í gær.
Bráðabirgðastjórn verður ákveðin á morgun
Bylting sú, sem hcfst snemma í gærmorgun í
Argcntínu er nú á enda kljáð og iilkynntu for- .
ingjar uppreistarmanna í.úívarpi í morgun,
að þeir hefði borið glæsilegan sigin- úr býtunv uin geiy
vallt tandið. Jafnframt barst fregn um það, að Ramon
S. Castillo, forseti, hefði flúið land á herskipi einu og
komið til smáborgar i IJruguay, íiandan við La Plata-
ósana.
Byltingin liófst i gænnorgun eins og fyrr segir á þvi, að sveit-
ir 10.000 hermanna, sem liöfðu aðsetur i hermannaskálum rétt
fyrir ulan höfuðborgina, Bueuos Aires, fóru úr skálum sínuin
og stefndu til borgarinnar, til þess að vetta Castitlo.og stjórn
hans úr valdastóli.
Mörg hundruð manna flutt frá hervægilegum
svæðum.
Fréttaritari United Press í Istambul símar, að þangað ber-
ist nærri daglega fregnir um óeirðir og róstur í Búlgaríu.
Er talið, að á annað hundrað lögreglumenn hafi verið drepnir
þama undanfama mánuði og fjöldi verið særðir meira eða
minna.
Churchill heimá
■ i
aftur.
Kom við i Gíbraltar, Alsír og Túnis
á leiðinni heim.
Klukkan sex eftir íslenzkum tíma í morgun var
það tilkynnt í bústað íorsætisráðherra Breta,
Downing Street 10, að hann væri kominn heim
úr vesturförinni, hefði einmitt verið að koma inn úr
dyrunum.
I tilkynningunni uin þetta var sagt, að hann hefði
komið loftleiðis og hefði þeir Anthon.y Edten, otanríkis-
ráðherra, og Sir Alan Brooke, formaður herforingja-
ráðsins, verið með lionum í flugvélinni.,
Mr. Churchill fór tit Gibraltar frá Washington, segir enn-
l'remiir i tilkynningunni, því að hann fýsti a'ð heimsækja Eisen-
hower hershöfðingja og hérbúðir hans, og ft'ir þess vegna
frá Cihraltar til Alsír-borgar og ennfremvir til Tunis, þar sem
iiann ferðaðist um vígvellina og lél segja sér frá bardögunum.
í gærmorgun bauð Sir Andrew Cunninghapi, flotaforingi
handamanna á Miðjarðarhafi vestanverðu, forsætisnáðherran-
nm til hádegisverðar. Hafði Mr. Eden slegizt í hópinn eftir að
komið var til Norður-Afríku, en meðat gestanna voru auk þess
þeir Ciraud og De Caulle og túnir fimm méðlfmir þjóðfrolsLs-
ráðsins franska.
Fáeinuin klukkustundum eftir að Jæir hershöfðingjarnir
liÖfðu snætt nveð Ghurchill fluttu þeir Mðir útvarpsávarp til
allra Frakka. Sagði Giraud, að sá dagur nálgaðist nú óðúm, er
fallhyssudrunurnar boðuðu frelsi hinurn kúgliðu, al'It fná Dnn-
kirk suður til Miðjarðarhafs.
á Iilandi.
Ciieu. ESonesteel á förum.
Yfirherstjórn Bandaríkjanna ákvað fyrir nokkru að feta
fram fara hershöfðngjaskipti á fslandi qg er hinp nýi
hershöfðingi Bandaríkjamanna kominn hingað til lands, en
Bonesteel hershöfðingi hefir fengið skipun nn> að hverfa
af landi burt.
Fregnir fná Sofía herma, aö
fjöldi þeirra lögreglumanila,
sem hafa verið drepnir og særð-
ir síðustu mánuði, nqmi meira
en 400 mönnum.
Hefir víða slegið blátt áfram
í bardaga milli lögreglunnar og
íbúa þorpa og smáborga, þegar
lögreglan hefir komið þangað
til að framkvæma „hreingem-
ingar“. Hefir innanríkisráðu-
deytið í Sofia gert vit marga
leiðangra víðsvegrfc- um landið
til að handtaka menn, sem eru
andvigir stjórn Borisar konungs
vegna fylgis liennar við Þjóð-
verja.
Jafnframt er lögð áherzla á
það, að flytja alla grunsamlega
íhúa á hrott frá þeim svæðum,
sem eru miltilvæg fyrir land-
vamimar. Meðal þeiri'a ei*u
hafnarhorgirnar við Svartahaf,
Varne og Burgas og hafnir við
Eyjahaf, þ. e. í þeim hluta
Þrakíu, sem Búlgarar fengu af
Grikkjum.
Innrásarótta gætir nokkuð í
Búlgaríu og er búizt við því að
ráðizt verði á landið úr tveim
áttum, suðri og austri.
Harðnr atgang;-
nr I Kúlianhéraði
Þjóðverjar skýra frá því, að
líússar geri nú harðar tilraunir
til þess að kljúfa þýzku stöðv-
arnar í Kubanhéraði.
Harðast er barizt á svæði, sem
nefnist Moldavanskaja, en Búss-
ar gera lika miklar árásir á
Temryuk- svæðihu. Segja Þjóð-
verjar, að Rússar virðist hafa
undirbúið sókn sína á síðar-
nefnda svæðinu mjög nákvæm-
lega, en þeir eru öruggir um að
þeir geti stöðvað þá, þrátt fyrir
það að rauðu hersveitirnar nota
mikið af skriðdrekum, sem eru
látnir sækja fram í gerfiþoku.
Einnig er skýrt frá ]ivi, af
Þjóðverja hálfu, að Rússar geri
árásir nótt og dag á Smolensk-
vígstöðvunum.
Kínverjar kljúfa lið
Japana í tvennt.
Ströng ritskoðun liefir verið
í Argentinu um langt skeið og
því var fréttariturum mjög erf-
itt að koma nákvæmum frétt-
um úr landi, en ])ó síaðist úl
um daginn, livað byltinguimi
liði. Voru þessar fregnir lielzt
lrá Montevideo i Uruguay, þvi
að þangað gátu blaðamenn kom-
ið þeim eftir einhverjum króka-
leiðum.
Útvarpsstöð tekin.
. Um klukkustund eftir að
fyrstu fregnir bárust af bylt-
ingunni, fréttist það, að liersveit-
ir byltingarmanna væri komnar
inn i úthvei'fi Buenos Aires og
liefði náð þar útvarpsstöð á vald
sitl. Tóku þeir hana tafarlaust
i notkun og hétU á landsbúa að
veita sér fulltingi til að hrekja
stjórn Castillos úr landi.
Litlu síðar barst fregn um
l>að, að byltingarmenn væru
búnir að ná aðallögreglustöð-
inni i Buenos Aires á sitt vald.
Castillo gefur skipanir.
Þegar Castillo t)arst fregn iim
uppreistina fór lianu um horð
í tundurduflaslæði einií, sern
hann lýsli vfir að væri aðsetur
stjórnar sinnáV, en gaf um leið
Marques, hersliöfðingja, skipun
um að hæla uppreistina niður.
Flutti liann ávarp til þjóðarinn-
ar og livatti liana til að hlýða
ölluin fyrirskipunum, sein, Mar-
ques kyn.ni að gefa.
Það var aðeins harizt veru-
lega á einum stað, hjá skóla
vélfræðinga tlotans. eri menn
Marques lögðu fljott nðiur vopn
og hann er sagður hafa sagt af
sér vegna þess að ínenn fáisl
ekki til að lilýða skipunum hans.
Foringjar uppreistarinnar.
eru tveir, Ramirez hershöfð-
ingi, fyrrverandi landvarna-
ráðherra, og Suero varaflota-
foringi. Þeir undirbjuggu bylt-
inguna og fólu Rawson hers-
höfðingja yfirstjórn hersveita
]ieirra, sem voru á þeirra bandi.
Þeir Ramirez og Suero gerðu
þá kröfu til Castillos i fyrradag,
að hann tæki upp bætta stjórn-
liáttu, léti fara fram kosningar,
læki upp vinsamlega stefnu
gagnvart bandamönnum og
skipaði sér i fylkingu með öðr-
um þjóðum Ameríku, sem hafa
allar annaðhvort sagt möndlin-
um stríð á hendur eða slitið
stjórnmálasambandi við liann.
Castillo neitaði
og ]>á var teningunum kast-
að. Byltingarmenn vissu, að þeir
mundu mæta nieslri mótspyrnu
í Buenos Aires og því var uni að
gera að hyitingin yrði f'rain-
kvæmd með miklum liraða,
enda var það gert.
Sú fregn barst frá Monlevideo
í niorgun, að tundurduflasiæðir
Caslillos héfði komið til tiafn-
arhorgarinnar Colonia, sem er
andspænis Buenos Aires við La
Plala. Varliaim um borð nokkr-
ar klukkustundir, en síðan gaf
stjórn landsins honuni leyfi til
að setjast að þar.
Kit§§ar grera stór-
ár᧠a Orel.
Rússar gerðu mjög harða árás
á OreJ í fyrri nótt, svo að þeir
hafa sjaldan gert eins harða á-
rás í stríðinu.
Segjast Jieir liafa nótað öOO
flugvélar í árásinni og hafi luin
borið inikinn árangur og hafi
2 flúgvélar farizt.
Orel er mjög mikilvæg fyrir
flutninga Þjóðverja eins og
Km*sk fyrir flutninga Rússa.
Litil tíðindi eru fi*á öðrum
hlutum vígstöðvanna.
Koladeilan í U.S.:
Verkfallið
hættir.
Námamenn í kolahéru'ðum
Bandarík fanna . munu . hverfa
aftur til vinnu á mánudags-
morgun.
Þeir' héldu fundi víða um
landið í gær og ræddu um þá
, skipun forsetans, að þeir yrði
að vera komnir til vinnu affur,
ef þeir vildu forðast að vera
kallaðir í herinn. Lét Lewis það
boð út ganga, að liann hvetti
þá til að snúá aftur til vinnu
og fundirnir í gær samþykktu
að gera. það.
Hjúskapur.
I dag geftir vígstu'iisktip Bjarni
Jónsson satnart í hjónaband Gunn-
hildi Árnadóttur óg jóhanfies L.
Jóhannesson prentara. Heiniili
þeirra verður á SkólavörSustíg»38.
Leikfélag Reykjavíkur
biður blaðið að minna félagsmenn
á aðalíundinn kl. 4 í, dag.
í morgun barst Vísi svohljóð-
andi tilkynning frá herstjórn-
inni hér:
„William S. Key, major-
general, sem var áður yfirmað-
ur lögreglusveita ameriska
liersins i Evrópu (Bretlandi), er
kominn til Islands, þar sem
hann mun taka við yfirstjóm
amerisku hersveitanna við
brottför Bonesteeds hershöfð-
ingja. Bonesteel hershöfðingi
liefir vérið yfirmaður hersins á
tslandi siðan 1(>. sept. 1941.
Ekki hefir verið tilkynnt um
hið nýja starf Bonesteels hers-
liöfðingja.
Messur á morgun.
Dómkirkjan. KI. 11, síra Bjarni
Jónsson.
HaÍlgrímsprestttkall. í Áustur-
bæjarskólanum kl. 11, síra Jakob
Jónsson (Sjómannadagsins verður
minnst. Athugið, að rnessað er á
öðrum tíma en venjulega).
' Fríkirkjan í Reykjavík. Kl. 5 e.
h., sira Árni Sigurðsson. (Sjó-
mannadagur).
Bessastaðakirkja. KI. 2 e. h.
(ferming), síra Garðar Þorsteins-
son. '
Key hersliöfðingi kom til ,ís-
lands beint frá Evrt>pu. Að
ui* en hairn var. sendur þangað
101 skyldustarfa, stjórnaði: hann
45. deikl fylkishers Ok taboina-
fyikis.“ .
Margarhreinlætis-
vikur á nctestunni.
LÖgreglusfjóri skýrði blaða-
mcnnum frá því í morgai*, að
hann hefði I .hyggju að stofna
til hreinlætisvikna.
Eins og bæjarbúar muna var
haldin hreinlælisvika hér í hæn-
um fyrir nokkru. Tókst hún að
mörgu leyti vel, en það varð
íjóst ,af þeirij, reynslq, sem af
henni fékkst, að það er ekki nóg
að hafa eina . hreinlætisviku
heldur er nauðsynlegt að hafa
þær fleiri, til þess að ekki sæki
i sama farið jafnharðan. .
Þéssari tillögu mun vel lekið,
enda nauðsynleg .og. er þess að
vænta, að bæjúrbúar hafi góða
samvinnu við fögregluna um
framkvæmd vikunnar.
Enn barizt á Attu.
Þótt skipulögð mótspyrna sé
hætt á Attu, eru bardagar samt
ekkiá enda.
Hermálaráðuneytið i Was-
hington tilkynnti í gær, að lið
þess á Attu ætti enn í höggi við
nokkrar einangraðar stöðvar
Japana, en vörn þeirra gæti ekki
orðið langvinn. Tæplega 1800 lík
áf Jápönum hafa verið talin í
valnum.
Árásir hafa verið gerðar á
Kiska.
Kínverjar segjast hafa klofið
lið Japana á suðurbakka Jangt-
ze-fljóts í tvennt.
Þessi sigurtilkynning barst
frá herstjórninni í Chungking
í gær. Segir liún að hersveitir
hennar hafi hrotizt norður til
Jangtze-fljóts fyrir austan horg-
ina Ichang. Hún er á syðri bakk-
anum og er aðalbækistöð jap-
anska hersins, er átti að brjót-
ast til Chungking. Er þá búið að
einangra liðið i Ichalig.
Kínverjar hafa sótt fram a.
m. k. 65 lun. síðan á laúgardag.
Amerískar flugvélar hafa veitt
þ'eim öflugan stuðning.