Vísir - 24.06.1943, Qupperneq 2
VISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Ötgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Skattamálin.
M EÐAL annara tillagna, er
samþykktar voru á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins, var
svoliljóðandi tillaga, er borin
var fram varðandi skattamálin:
„Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins telur, að nú þegar sé
búið að gahga svo langt i skatta-
álögum á atvinnurekslur lands-
manna, að öll viðleitni til hækk-
unar á þeim sköttum sé bein og
vísvitandi tilrayn til þess að
leggja einkaframtakið í rústir í
því skyni að koma með þeim
hætti á opinberum rekstri í stað
einkaréksturs. Landsfundurinn
mótmælir þvi eindregið öllum
frekari aðgerðum í jjessa átt og
krefst þess að einkaframtakinu
verði ekki með skattaálögum
gert ókleift að skapa almenn-
ingi lífvænleg atvinnuskilyrði
að ófriðarlolcum.“
Jakob Möller fyrrverandi
f jármálaráðherra flutli snjallt
og ítarlegt erindi um skattamál-
in á landsfundinum. Sýndi liann
með rökum fram á að afkoma
og velmegun landsfólksins fer
eftir þvi hversu framleiðslu at-
vinnuvegunum vegnar. I>egar
þeir yrðu að draga saman seglin
leiddi aftur beint af því að
kreppa tæki að landslýðnum. Til
þess að tryggja velmegun alls
almennings væri aðeins ein leið:
sú að tryggja afkomu fram-
leiðslunnar í laadinu. Við þyrft-
um að stefna að því að tryggja
atvinnureksturinn sem bezt,
meðal annars með því að gefa
honum tækifæri til að safna fé
í sjóðu til þess að mæta áföllum,
sem síðar kynnu að dynja yfir.
Vakti ræðumaður ennfremur
athygli á þéí að fjársöfnun ein-
staklinga væri þjóðfélagsleg
nauðsyn og skilyrði heilbrigðrar
þróunar athafnalífsins og hvers-
konar framkvæmda. Því meiri
sem slík fjársöfnun yrði, því
betri yrðu skiljTði til bættrar
afkomu almennings. Fé sem
lagt er fyrir framkallar athafn-
ir, sem miklu fleiri njóta góðs
af en eígendur þess, og verður
það oft og einatt öðrum að
margfalt meiri féþúfu. Taldi
ræðumaður því nauðsyn bera
til að varlega yrði farið i skatta-
álögur, bæði á atvinnutæki og
einstaklinga, þannig að ekki
væri loku skotið fyrir fjársöfn-
un atvinnufyrirtækja, ekki fyrst
og fremst vegna hagsmuna
þeirra, er fénu safna, heldur
vegna alls almennings, sem ætti
afkomu sína undir þvi að at-
hafnalífið gæti þróast á eðlileg-
an og heilbrigðan hátt. Eins og
Alþingi væri nú skipað virtist
meiri hluti þess fjandsamlegur
einlcaframtakinu og öllum
einkarekstri og vildi hann bein-
línis feigan, en koma í þess stað
á þjóðnýtingu alls atvinnu-
rekstrar i landinu. Það hefði
verið hlutverk Sjálfstæðis-
flokksins að halda uppi vörnum
fyrir hinum heilbrigðu sjónar-
miðum á Alþingi nú í meira en
hálfan annan tug ára, lengst af
í fullkominni andstöðu við
meiri hluta þingsins.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
gert það, sem hann hefir getað
til þess að spyrna gegn skatta-
brjálæðinu, sem engu lagi er
Ferðafélagið efnir til 8
sumarleyfisferða og yfir
20 helgarferða í sumar.
Fvr§tn lau$;ferðiriiar Iief Jast upp ur manaðamótuniim
■perðafélag Islands hefir
* leyfisferðir í sumar og
Mývatns, Dettifoss og Ásbyr
lega 20 helgarferðir verið ák
þeirra, en ein fallið niður.
Sumarleyfisferðirnar verða
þessar:
Að Mývatni, Dettifossi og
Ásbyrgi, 8 daga ferð, er liefst
3ja júlí n. k. í sambandi við
þessa för má geta þess, að ferð-
in verður ekki nema lítið eitt
dýrari en í fyrra, þrátt fyrir
verulega hækkun á öllum bif-
reiðafargjöldum. t fyrra kostaði
þessi ferð 270 krónur, en nú
ekki nema 200 kr. (Matur er
ekki innifalinn í fargjaldinu).
10. júli hefst Breiðafjarðar-
för. Er það ný leið sem Ferða--
félagið hefir ékki farið áður.
Þykir ekki ólíklegt að fólk
muni vilja kynna sér breiðfirska
náttúrufegurð, ekki hvað sízt
nú eftir að Barðstrendingabók-
in er komin á markaðinn, er
gefur hina ágætustu lýsingu á
staðháttum, sögustöðum og
náttúrufyrirbrigðum vestra.
Farið verður um Borgarnes—
Stykkisliólm, síðan sjóveg yfir
þveran Breiðafjörð, og dvalið í
tjöldum í skógnum í Vatnsdal.
Þaðan verða gönguferðir farnar
að Dynjanda i Arnarfirði og
víðar. Heimleiðis verður farið
með mótorbát í Þorskafjörð og
með bifreið frá Kinnarstöðum
til Reykjavíkur. Þetta er viku-
ferð.
Önnur vikuferð hefst 17. júlí
upp á Kjöl og í Kerlingarfjöll.
Sú ferð verður farin á hestum.
Fjórða sumarleyfisferðin er
einnig ákveðin á hestum. Er
það 8—9 daga ferð úr Þjórsár-
dal norður að Arnarfelli mikla
ákveðið að fara 8 sumar-
hefst sú fyrsta 3 ja júlí til
;is. Ennfremur hafa rúm-
eðnar og búið að fara sex
og þaðan um Iverlingarfjöll til
byggða. Ferðin hefst 24. júlí.
1 Öræfin verður farið 21. júlí.
Það er 10 daga ferð, farin uni
Vík og verður dvalið í Öræfun-
um 5 daga, en bjartasta daginn
gengið á Öræfajökul.
Þá verður 3ja júlí farið frá
Akureyri með deild Ferðafélags-
ins á Akureyri, inn í Herðu-
breiðarlindir og Öskju.
Sjöunda ágúst verður 4 daga
ferð farin austur í Skaptafells-
sýslu og um miðjan ágústmán-
uð liefst síðasta sumarleyfis-
ferðin í sumar, og er það önnur
Breiðafjarðarför. Það er 5—6
daga ferð, og að mestu farið öf-
ugt við hina ferðina, sem hefst
10. júlí.
Helgarferðirnar eru flest
gamalþekktar ferðir, en ferð um
Skóga og Fimmvörðuliáls á
Eyjafjallajökul, sem farin verð-
ur 7. og 8. ágúst er þó nýmæli á
áætlun Ferðafélagsins.
Ferðalög eru nú miklu erfið-
ari en áður vegna liinna óvenju
miklu örðugleika á því að afla
nægilegs bifreiðakosts fyrir hóp-
ferðirnar.
Ferðafélagið leggur mikla
áherzlu á að geta sjálft eignast
langferðabifreiðar strax og tök
eru á. Mundi það þá reyna að
koma á föstum ferðum t. d. upp
á Kjöl, þar sem félagið á mörg
prýðileg og vönduð sæluhús.
Yrði það til að gera öll ferðalög
þar efra miklu auðveldari og
auka ferðamannastrauminn í
þetta undraland náttúrufegurð-
arinnar.
Fjölmennt íþróttamót
á Hvanneyri.
N. k. laugardag og sunnudag
efnir U. M. F. I .til fjölmenns
íþróttamóts að Hvanneyri. —
Verður móið sett kl. 10 á laug-
ardag 26. þ. m. af sambands-
stjórn U.M.F.Í.
Eftir setninguna hefst svo
undirbúnings íþróttakeppni
sem stendur allan daginn. Um
kvöldið verður skemmtisam-
koma, þar sem fluttar verða
ræður, kvikmynd sýnd og ýms
önnur skemmtiatriði.
Á sunnudaginn 27. þ. m. kl. 10
f. li. heldur íþróttakeppnin á-
fram, úrslit. Kl. 1 e. h. fer fram
sundkeppni. KI. 23/2 verða flutt-
ar ræður sem sr. Eiríkur J.
Einarsson og Bjami Ásgeirsson
alþm. halda. Guðm. Ingi skáld
flytur kvæði og Þorsteinn Ein-
arsson, íþróttafulltrúi, flytur
ávarp.
Fjórir flokkar sýna fimleika,
en síðan lieldur íþróttamótið á-
fram til kvelds.
Keppendur eru samtals 130
frá 12 liéraðssamböndum.
Lúðrasveit Reykjavíkur leik-
ur þarna á staðnum undir stjórn
Karls Ó. Runólfssonar.
íslandsmótið:
í kvöld keppir K. R. við
Akureyringana, en áður, eða kl.
7.45, fer fram næstsíðasti leikur
3. flokks mótsins og verður
hann á milli Vals og Víkings.
Úrslit 3. flokks mótsins verða
á mánudaginn kemur kl. 7.15
síðd. milli K. R. og Fram. Á eft-
ir þeim leik keppa Fram og Val-
ur i meistaraflokki.
líkt. Á venjulegum tímum hefir
þjóðin orðið að greiða jafnháa
skatta eða jafnvel liærri, en ó-
friðarþjóðimar gera nú, er þær
þurfa að standa undir styrjald-
arrekstrinum. Þrátt fyrir það
virðist, sem ágengni Alþingis
gegn skattborgurunum séu eng-
in takmörk sett. Ávallt eru uppi
raddir um það að skattana þurfi
að þyngja, ekki einvörðungu til
að veita ríkissjóði tekjur til
j>arflegra framkvæmda, heldur
öllu frekar til að koma í veg
fyrir auðsöfnun atvinnufyrir-
tækja í landinu. Af þessari ó-
heillabraut verða flokkarnir að
snúa. Takist að tryggja atvinnu-
lífið og létta af því sköttum, er
engin vafi á þvi að með þróun
þess, á eðlilegan og heilbrigðan
hátt, aukast tekjur rikissjóðsins
og almenn velmegun lands-
manna eykst. Fyrir þvi þarf að
létta af sköttum, en ekki auka
þá, fyrst og fremst i þvi augna-
miði að efla atvinnulifið. Það er
mannlegt af hverri ríkisstjórn
að hugsa fyrst og fremst um
þarfir ríkissjóðsins, en það er
ekki hyggilegt og þvilík sjónar-
mið eiga ekki réft á sér. Ríkið
er til orðið fyrir borgarana, —
stofnað beinlínis í þeirra þágu.
Þeir menn, sem með lands-
stjóm fara mega ekki fara að
dæmi kaijlsins er klófesti Sind-
bað farmann og hirti alla á-
vöxtu af trjánum ánþess að hinn
þrælkaði farmaður fengi neitt í
sinn hlut. Það þarf að létta
byrðunum af þjóðinni, en ekki
þyngja þær, og með því einu
móti eru skilyrði fengin til
lieilbrigðs atvinnu og fjárhags-
l'fs i landinu.
Áttrœdur:
Ólafur Kolbeinsson
í dag er áltræður Ólafur Kol-
beinsson fyrrum sjómaður, til
heimilis á Seljaveg 17 hér í bæ.
lÓlafur hefir um langa hrið
stundað sjómennsku, mest af
Akranesi, en var einnig um
tíma í Garði og Vogum. Hann
er hinn mesti dugnaðar- og at-
orkumaður.
Jass með mat.
Eg borðaði í gærkveldi á Hótel
Borg. Maturinn var góður og ekki
tiltakanlega dýr. Afgreiðslan geng-
ur mjög seint, þvi að þar er fátt
þjóna að tiltölu við gesti. Það liðu
tveir tímar, frá því eg settist og
þar til máltíðinni var lokið. Á þeim
tíma ber margt fyrir augun. Það
er skrítið að sjá smávaxna, fer-
skora og snufurslega Ameríkana
trítla á eftir hávöxnum, grönnum
stúlkum inn á dansgólfið, og það
er ennþá spaugilegra að sjá þá
dansa hina frumstæðu þjóðdansa
sína í takt við tyggigúmmíið. Við
píanóiÖ situr ungur piltur. Hann
stendur upp að loknum hverjum
dansi og skiptir plötu á grammó-
fóninum. Músikin er æðisgenginn
jass.
Þjóðsiðir.
Þessir ungu Ameríkanar erú yfir-
leitt hæverskir í siðum. Amerískir
borðsiðir eru dálítið frábrugðnir
Evrópusiðum. Til dæmis skera Am-
erikanar kjötið fyrst niður, eins og
þegar brytjað er ofan í krakka,
leggj a síðan frá sér hnífinn, taka
gaffalinn í hægri hönd og matast.
Eg sá unga stúlku setjast að borði
hjá tveim nettvöxnum ungum mönn-
um, sem sátu einir. Þeir stóðu upp,
Fulltrúáfundur
sjúkrasamlaganna hér á landi
var settur í Oddfellowhúsinu í gær
k.l ii f. h. Fundinn sitja 14 full-
trúar frá 14 sjúkrasamlögum víðs
vegar á landinu. Er þetta þriöji
fulltrúafundur, sem sjúkrasamlög-
in halda.
Fjalakötturinn
sýnir Leynimel 13 kl. 8 í kvöld.
Aðgöngumiöasala hefst í dag kl. 2.
Aöeins 3 sýningar eftir.
Næturakstur í nótt.
Bifreiðastöö íslands, sími 1540.
um leið og hún settist, og þeir stóðu
upp, þegar hún fór. Svona kurteisi
held eg að ungu mennirnir okkar
eigi fæstir til. En hitt var ekki eins
fallegt, sem á eftir fór, þvi að þeir
mændu báðir á kálfa hennar, þeg-
ar hún hafði snúið við þeim bakinu.
óbrjótanlegt gler.
Kunningi minn hefir bent mér á
það, að það sé sjálfsagt að hafa
hið svokallaða skothelda gler í bila-
rúðum. Ekki af hættu á skothrið,
því að það er tiltölulega sjaldgæft,
að skotið sé á bila, heldur vegna
hins, að þegar bílslys verða, sem
ekki er útilokað, eins og umferðinni
er nú háttað, þá er algengasta slys-
ið það, að fólk meiði sig á gler-
brotum. Þó að glerið sé kallað ó-
brjótanlegt, er alls ekki þar með
sagt, að það brotni ekki, hvað sem
á dynur, en það hefir þann kost,
að í það koma brestir, en það
brotnar ekki í mél.
Höll Norðurlanda.
„Eg skil ekki, hvað við eigum að
gera við að bæta við okkur nor-
rænni höll“, sagði ísak ísax upp
úr eins manns hljóði í morgunkaff-
inu á Hótel Borg. „Við sem sitj-
um hérna í The Palace of The
North“.
r
Scrutator:
C
QaÁdjbi aénemm^s
Loðdýraræktin hér á landi
hefur gengið saman síð-
ustu árin.
Frá aðaifundi L. R. t.
Dagana 19. og 20. j). m. var aðalfundur Loðdýrarækt-
arfélags Islands haldinn hér í Reykjavík og voru mætt-
ir 14 fulltrúar fyrir 7 af 10 starfandi félagsdeildum,
sem íoru samtals með 344 atkvæði.
Samkvæmt skýrslu form. hefir loðdýrastofninn í
landinu — og jiar með skinnaframleiðslan — gengið
saman síðustu árin, ekki vegna rénandi áliuga fyrir
loðdýraræktinni, heldur vegna stórum aukins kostn-
aðar við loðdýrahaJdið og sölutregðu á skinnunum,
síðan stríðið hófst.
Eftir jiví sem næst verður
komist um tölu loðdýra í land-
inu s. 1. 3 haust hefir hún verið
þannig:
Silfurrefir:
1940 6060
1941 7160
1942 4200
Blá- og hvítrefir:
1940 1650
1941 1918
1942 < 1030
Minkar:
1940 10000
1941 21224
1942 15709
Vegna þess, að enn vantar
framtal frá nokkrum loðdýra-
eigendum, víðsvegar á landinu,
um loðdýraeign þeirra s. 1.
haust, má j)ó gera ráð fyrir, að
loðdýraræktin hafi gengið
minna saman s. 1. ár en tölurnar
sýna.
Markaðsverð á þegar seldum
skinnum er nú miklum mun
betra en i fyrra og þar með betri
horfur um sölu þeirra skinna
sem enn eru óseld, en það eru
þvi nær öll blá- og hvitrefaskinn
frá 2 s. 1. árum og um lielming-
ur silfurrefaskinna frá s. 1. ári.
Hinsvegar eru nú seld öll
minkaskinn er Skinnasalan hef-
ir fengið til sölumeðferðar 2 s.
1. ór, alls nálega 12000 skinn.
Þar af eru seld á erlendum
markaði rúmlega 11000 skinn
fyrir samtals um 606 þús. krón-
ur eða ríflega kr. 55.00 að með-
altali hvert skinn. Af tölu minka
í landinu s. 1. haust og miðað við
framannefnt söluverð má ráða
að útflutningsverðmæti minka-
skinna á þessu ári nemi fullri 1
millj. króna — þrátt fyrir sam-
drátt dýrastofns og þar með
skinnaf ramleiðslunnar.
Eitt af málum þeim er fund-
urinn tók til meðferðar var
frumvarp Péturs Ottesen
um bann gegn minkaeldi og
samþykkti fundurinn í því máli
eftirfarandi tillögu:
a) Aðalfundur L. R. í. hald-
inn í Reykjavik 19. og 20. júní
1943 mótmælir því eindregið að
frumvarp til laga um bann gegn
minkaeldi hér á landi, flutt af
br. alþm. P. Ottesen nái fram að
ganga á Alþingi.
Engar sannanir liggja enn
sem komið er fyrir um það, 'að
minkar valdi neinum veruleg-
um skemmdum eða skaða hér á
Jandi, fram yfir það sem gerist í
þeim löndum þar sem þeir lifa
viltir, en þar eru skemmdir af
þeirra völdum taldar sáralitlar.
Tekjur af minkaeldi hafa far-
ið drjúgum vaxandi hér á landi
á sárafáum árum, sem bezt má
sjá af því, að útlit er fyrir að á
þessu ári verði flutt út minka-
skinn fyrir Um eina millj. kr.
Þar sem fastlega má gera ráð
fyrir að þessi atvinnuvegur geti
átt drjúgan vöxt fyrir höndum,
frá því sem nú er, en engar
sannanir liggja fyrir um neitt
verulegt tjón fyrir landsmenn
af hans völdum, er vægast sagt
mjög varliugavert að kastað sé
á glæ svo miklum útflutnings-
verðmætum sem hér um ræðir.
að óathuguðu máli.
b) Fundurinn lelur hinsveg-
ar, að lierða beri'á eftirliti og
öllum umbúnaði þessara loð-
dýra, frá þvi sem verið liefir
þannig, að umbúnaður minka-
húsa og öryggi girðinga verði
svo fullkomið, að dýrin geti
ekki sloppið úr vörzlu, og felur
stjórn L. R. í. að koma þessari
tillögu fundarins á framfæri við
landbúnaðarráðuneytið og við
ráðunaut ríkisins í loðdýra-
rækt.“
Yegna eftirlits með loðdýra-
búum, leiðbeininga til loðdýra-
eiganda, merkinga og sýninga
lagði fundurinn áherzlu á það,
að ríkisstjórnin byggi svo að
ráðunaut sínum í loðdýrarækt,
að hann geti komist yfir að
rækja öll þessi störf sem bezt
má verða, en á það hefir skort
undanfarið vegna þess að ráðu-
nauturinn hefir ekki — þrátt
fyrir þráláta viðleitni sína —
tekist að fá til fullra umráða
nauðsynlegan farkost (bíl) til
ferðalaga sinna milli loðdýra-
eiganda.
Fundurinn lýsti ónægju sinni
yfir betri úrlausn um skinna-
sölu en útlit var fyrir og batn-
andi horfum framundan í þvi
efni og skoraðí á félagsmenn
að styðja Skinnasöluna sem
mest og bezt með því að láta
liana selja skinnaframleiðslu
sína.
Úr stjórninni gengu að þessu
sinni H. J. Hólmjám formaður
og Tryggvi Guðmundsson vara-
formaður, en þeir liafa báðir
gegnt þeim störfum allt frá 1.
starfsári félagsins — og þakk-
aði fundurinn þeim gott og öt-
ult starf þeirra í þágu félagsins.
Báðir skoruðust undan kosn-
ingu og fóru kosningar svo,
að formaður var kosinn Bjöm
Konráðsson ráðsmaður á Vífils-
stöðum með 270 atkv. og með-
stjórnandi Guðmundur Jónsson
í Ljárskógum með 200 atkv.
í varastjórn voru kosnir
Metúsalem Stefánsson fyrrv.
búnaðarmálastjóri og Pétur
Gunnarsson tilraunastjóri.
Stúlknr
1—2 stúlkur vantar strax á
veitingastofu. Uppl. í Ávaxta-
búðinni, Týsgötu 8.
(Ekki svarað í síma).
Stúlka
óskast annari til skemmtun-
ar í sumarbústað í Borgar-
firði. Uppl. í sima 1907. —