Vísir - 24.06.1943, Qupperneq 3
V ISIK
Frú Clnðrnn Gnðlanssdóttir foæjarfHlltrúi:
Höfum við kennt börnum þessa lands að
byggja siðferði sitt á þeim grundvelli,
sem guðstrúin kennir?
Ræöa flutt á Landsfundi Sjálfstæðis*
manna á Þingvöllum.
II nýafstöðnum Landsfundi Sjálfstæðisflokksins,
sem haldinn var á Þingvöllum dagana 18. og 19.
júní s. 1. liélt frú Guðrún Guðlaugsdóttir bæjarfulltrúi
mjög eftirtektarvert erindi um trúmál og ])á sér i lagi
um kennslu í kristnum fræðum við skólana hér á landi.
Út af þessari ræðu frú Guðrúnar flutti próf. Gunnar
Thoroddsen alþm. eftirfarandi tillögu, sem var sam-
þykkt í einu hljóði:
„Landsfundur Sjálfstæðismanna lýsir yfir eindregn-
um stuðningi sínum við kirkju og kristindóm og telur
það höfuðnauðsyn, að kristileg áhrif aukizt og eflist
með þjóðinni.“
Hér fer á eftir í heild ræða frú Guðrúnar:
Góðir íslendingar konur og
menn!
Við erum hér komin saman á
hinumi fornhelga stað íslenzku
þjóðarinnar til þess að ræða
flest þau vandamál, sem lands-
menn varða.
Það er því vonandi vilji okkar
allra, sem hér erum að Sjálf-
stæðisflokkurinn, sem slíkur, sé
þess umkominn að geta á hverj-
um tima staðið sem framvörður
þjóðar vorrar, og þar af leið-
andi er þess að vænta, að við
gerum okkur það ljóst, að und-
t
irstöður flokkssamtakanna séu
á hverjum tíma hyggðar upp á
hinum sterka grundvelli, og á
eg þar við samheldni, réttlæti og
trausti gagnvart hvor öðrum.
„Því réttlætið upphefur fólk-
ið, en syndin er þjóðanna
skömm“.
Þegar við nú ræðum mennta-
mál ásamt öðrum þjóðmálum,
þá eru það kristindómsmálin,
sem verða mér liugljúfust, því
að þau tel eg verða á hverjum
tíma undirstöðuatriði alh’a ann-
arra mála, ef vel á að fara.
Það gefur að skilja, að ef við
í framtíðinni ætlum að ala upþ
góða og göfuga kynslóð, þá ber
fyrst og fremst að lteppa að þvi,
að börnum þessa lands sé kennt
á heilbrigðum grundvelli krist-
ínfræði, því að barna-bömin eru
kórónur öldunganna, segir í
heilagri ritningu.
Við höfum reynslu fyrir því,
að ekkert hefir bjargað þjóð
vorri betur út úr hinum hörmu-
legu þrengingum fyrri alda,
þegar drepsóttir, hungur, eldgos
og ísalög herjuðu þetta land,
en einmitt hin sanna trú á
guð og kærleika Krists sem
sálmaskáldið okkar Hallgrímur
Pétursson orti svo fagurt um.
Hin kristna trú hefir á hverj-
um tíma varpað ljósi inn í hina
myrkvu tilveru margra lands-
manna vorra. 1 henni höfum við
eignast þann gimstein, sem
þjóðin má aldrei glata.
Trúmálin eiga að vera öllum
lijartans mál og því vona eg, að
Sjálfstæðisflokkurinn geri þau
að sínu stefnumáli, og setji
metnað sinn í það að láta aldrei
falla í gleymsku að sjá um, að á
hverjum tima sé í skólum þessa
lands vandað betur til þeirrar
kennslu en gert hefir verið á
undanfömum árum.
Það segir sig sjálft, að hver
og einn getur ekki verið fær um
að kenna kristinfræði. Þarna
þarf að breyta um frá því sem
er og fá þessa kennslu í hendur
áhugasömum og trúuðum
mönnum.
Ef þjóð oklcar á að vegna vel,
þá er ekki sízt undir því komið,
að kristinfræði sé kennd sem
undirstöðuatriði allra annarra
fræðigreina, en ekki kastað að
því höndum eins og reynslan
ber vitni um, því að ekki verður
það hrakið, að mörg dæmi eru
til, þar sem börn koma til ferm-
inga kunni ekki boðorðin og
jafnvel ekki faðirvorið.
Siðan hernámið fór fram hér
á landi, þá hefir mikið verið
rætt og ritað um æsku þessa
lands og framferði liennar og
má þar kenna margra grasa.
Sé nú sekt liinna ungu svo
þung sem fólk vill vera láta,
hverjum er þá um að kenna?
Getum við ekki hin eldri tekið
nokkuð til okkar af hinni þungu
sök, sem á æskuna er borið?
Höfum við kennt börnum
þessa lands að byggja siðferði
sitt á þeim grundvelli, sem
guðstrúin kennir?
Við skulum vera hreinskilin
við sjálfa okkur og kannast við,
að við höfum ekki verið nógu
vel á verði fyrir æskunnar hönd.
En það er annar flokkur í þessu
landi, sem hefir haft meiri af-
skipti af hinni uppvaxandi kyn-
slóð en Sjálfstæðisflolckurinn.
Meðan við höfum haldið að
okkur höndum og leitt hjá okk-
ur kristindómsfræðsluna, þá
hafa aðrir séð sér slag á borði
og afvegaleitt æskuna. Við höf-
um þegjandi horft á vélráða-
mennina vekja illdeilur og róg-
berana valda vinaskilnaði. Sá
flokkur sem þetta hefir gert
kallar sig Sósíalistaflokk áður
kommúnista.
Nú 1. maí síðastliðinn gaf að
líta heilan hóp barna ganga um
götur Reykjavíkurbæjar undir
rauðum fánum berandi gömul
kröfuspjöld. Ekki var þar ís-
lenzki fáninn með. Börn þessi,
sem hér um ræðir voru á að
gizka á aldrinum 4—10 ára.
Enginn fullorðinn var í för með
þessum börnum. Þau sungu
Internationalen og aðra álíka
söngva og voru furðanlega sam-
æfð.
Mér verður á að spyrja:
hvemig fer fyrir okkar þjóð,
þegar slíkur æskulýður vex upp,
hvernig fáum við afstýrt slíku
uppeldi ?
Við megum vera þess full-
viss, að sú sundrung, sem nú er
með þjóð vorri á stjórnmála-
sviðinu er ekki sízt af því sprott-
in, að kærleiksgrundvöllinn í
samstarfinu vantar. Kennið því
hinni uppvaxandi æsku að
ganga þann veg, sem liggur til
velfarnaðar og blessunar í
framtíðinni.
Mig langar til að skjóta hér
inn í þó að það beinlínis komi
ekki þessu máli við: Þegar
Bandalag kvenna hélt landsfund
sinn 1. maí síðastl. fór eg til
þess að hlusta á mál þau, sem
þar voru rædd. Það var sann-
arlega ánægjulegt að vera þar,
og heyra þann samhug sem þar
ríkti. Allar vildu þær gera allt
hið bezta þjóð vorri til heilla.
Eg þarf ekki að taka það fram,
að aðalmálin, sem þar voru
rædd snerust um að undirbúa
liina verðandi móðir sem bezt
undir öll þau störf, sem stöðu
hennar eru nauðynleg.
Ein var sú kona, sem vakti
hjá mér sérstaka lirifningu,
það var skólastýran á Hallorms-
stað frú Sigrún Blöndal. Auk
þeirra námsgreina sem ávallt
eru kenndar í liúsmæðraskólum
landsins liafði hún af eigin livöt |
tekið upp hjá sér, að láta kenna
kristin fræði og Islandssögu.
Þetta fannst mér vera þess
virði, að eg tel skyldu mína að !
gera það kunnugt liér á þessum
f jölmenna fundi, í von um það,
að þeir fulltrúar, sem orð mína
heyra, setji sér það takmark að
vinna að því á liverjum tíma að
þessar námsgreiriar verði tekn-
ar Lipp í öllum liúsmæðraskól-
um landsins, þvi það veltur ekki
svo lítið á því, að liin verðandi
móðir fái lært svo vel þessar
fræðigreinar, að hún sem slik
geti orðið fær um að sá hinu
fyrsta frækorni kristindómsins
og föðurlandsástarinnar í lijarta
hins litla barns.
Eg vil nú ljúka máli mínu
með þeirri einlægu ósk, að for-
ráðamenn Sjálfstæðisflokksins
sjái sér fært að talca orð mín til
greina og skipi nefnd nú á þess-
um landsfundi til þess að und-
irbúa tillögu hvemig við bezt
getum hagað kristindóms-
kennslu æskulýðsins í barna-
skólum og öðrum skólum lands-
ins í framtiðinni. Kennum hin-
um ungu að skilja og virða
gildi þessara setninga:
Ó, þá náð að eiga Jesú
einkavin í hverri þraut.
Gott herbergi
í nýju húsi, er til leigu. Sá,
sem gæti lánað kr. 10.000.00
gengur fyrir.
Tilboð, merkt: „123“ send-
ist afgr. Vísis í dag.
Nokkrir fallegir
Pelsar
til sölu með tækifærisverði.
Vesturgötu 35 kl. 7—9 i
kvöld.
K. R. R.
1. S. t
Útvarpið í kvöld.
19,25 Hljómplötur: Danslög.
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
20.30 Útvarpshljómsveitin (Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar): a)
Lagaflokkur eftir Mendelssohn. b).
Marz eftir Wittittz. 20.50 Minnis-
verS tíSindi (Jón Magnússon fil.
cand.). 21.10 Tónleikar (plötur).
21.15 Upplestur: Smásaga (Sig-
urður Skúlason magister). 21.25
Tónleikar (plötur). 21.30 Ávarp
1 frá Ferðafélagi Islands, sumiar-
ferSir (Kr. Ó. Skagfjörð). 21.40
Hljómplötur, íslenzk lög.
Ameríska útvarpið í kvöld.
Kl. 22.00 Fréttir. 22.30 Stúlka
úr RauSa krossi U.S.A. leikur á
píanó. — Þess skal sérstaklega
getið hér, að stúlka sú, er leikur
á píanó í ameríska útvarpinu, er
heimsfrægur pianóleikari. Hún
vinnur í RauSa krossi U.S.A. og
verSur nafns hennar því ekki getiS.
Sundhöllin.
Sú ákvörSun hefir veriS tekin
af forráöamönnum Sundhallarinn-
ar, að loka henni í hálfan mánuö
í sumar, vegna þess aS nauSsyn
ber til aS mála laugarsalinn. VerS-
ur lokað þ. 18. júlí n. k., og fer
allt starfsólk Sundhallarinnar í
sumarleyfi á meSap.
Hjúskapur.
Á morgun verða gefin saman í
hjónaband ungfrú Guðrún Ara-
dóttir, skrifstofumær á Skattstof-
unni og Ólafur Björnsson dósent
við Háskólann. Föðurbróðir brúð-
arinnar, síra Þorsteinn Jóhannes-
son, prófastur í Vatnsfirði, fram-
kvæmir vigsluna, sem fer fram i
Háskólakapellunni.
Hjónaefni.
Á hvítasunnudag opinberuSu trú-
lofun sína GySa Hansdóttir, Bald-
ursgötu 27 og Ólafur Eyjólfsson,
Veghúsastig 1 A.
Íslandsmdtið
Áttundi leikur
í kvöld kl. 8.30 keppa
Aknreyriögar og E.B.
Nú fara alllr út á vðll í göða veðrinu, til þsss að
borfa á spennandi leik.
Mótanefndin.
2 stúlknr
vantar strax á
Elli- og hjúkrunarheimilið
Grund.
Uppl. gefur ráðskonan.
tshrasrivél
lítil með mótor — óskast til
leigu eða kaups.
Uppl. á AFGR. ÁLAFOSS.
Ibnð
3 til 4 herbergi og eldhús
óskast nú þegar eða 1. októ-
ber.
Má vera kjallari eða hæð
í gömlu húsi.
Nokkur hjálp við innrétt-
ingu, breyting á húsi eða
standsetningu á lóð, getur
komið til greina.
Fyrirframgreiðsla eftir
samkomulagi.
Uppl. í síma 4226.
Sendisveinn
óskast allan daginn eða frá
2—6.
GUFUPRESSAN
STJARNAN,
Kirkjustræti 10.
Ntiillcu
vantar við létta vinnu.
GUFUPRESSAN
STJARNAN,
Kirkjustræti 10.
Kápubúðin
Laugaveg 35. — KÁPUR
verð frá kr. 200.00. Kjólar
frá kr. 75.00. Taubútasala í
nokkra daga.
Sig. Guðmundsson,
sími 4275.
lítið kvenúr í kápu eða dragt-
arvasa sínum eftir kl. 4 í gær
í sundlaugunum vegna mis-
gripa er beðin að gera aðvart
í Miðstræti 6 eða i síma 4774.
Karl Moritz.
Kristján Goðlaegsson
Hæstaréttarlögmaður.
Skrifstofutimi 10-12 og 1-6.
Hafnarhúsið. — Sími 3400.
Hjartanleffd þakka éff öllum þeim mörgn, cr sijndu
mér mnarhug á sjötugsafmæli mínu, 17. júni.
Ragnheiður T"orfadóttir.
Frá Mæðrastyrksnefnd.
Konur, sem ætla að sækja um dvöl i sumarheimili
Mæðrastyrksnefndar fyrir mæður og börn að Reyk-
holti i Biskupstungum, eru beðnar að ö.oúa sér sem
fyrst til skrifstofu nefndarinnar, Þinghoitsstræti 18,
kl. 3—5 alla virka daga nema laugarttoga.
J
Laxfo§§
fer til Borgarness á laugardag kl. 13,30, en ekki kl. 14 eins og
misprentast hefir i áætluninni.
Telpu
nýkoitinlr
Verð frá kr. 20,00
Niels €arl§isoKi Co.
Laugaveg 39
Beztu k|ötkaapln
Fyrst um sinn seljum vér vænt og ágæO.ega verkað
stórhöggið, saltað dilkakjöt fyrir kr. 5.00 — fimm
krónur — kílóið, enda sé tekið minnst % skrokkur (þ.
e. 6—3 kg.) og kaupandi sæki kjötið hingað á staðinn.
Frystihúsið Hexðubreið
Fríkirkjuveg 7.
Tilkyimfng
til innflytjenda
Úthlutað verður innan skamms gjaldeyris- og inn-
flutningsleyfum fyrir vefnaðai’vörum og skófatnaði
frá Ameriku. — Umsóknir sendist fyrir 1. júlí n. k.
Gólfteppi verða undanskilin á leyfum fyrir vefnað-
arvörum, og leyfi fyrir skófatnaði verða eldri Játin gilda
fyrir neinum skófatnaði úr gúmmi.
24. júní 1943.
VIÐSKIPTARÁÐIÐ.
Hjartanlegustu þakkir færum við öllum þeina, sem sýnt
hafa okkur samúð og vináttu við fráfall og jarðarför
mannsins míns og föður okkar,
Siguröar Sigurdssonar skipsfjóra
Ágústa JónsdóttM og börn.