Vísir - 30.06.1943, Qupperneq 2
VISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Ctgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 6 6 0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Hreinlætisvikan í
Framsóknazflokknum
ankennilegt er það, að
Tíminn vil ekki viður-
kenna, að Jónasi Jónssyni sé
meinað rúm i blaðinu, þótt liann
hafi lýst yfir því sjálfur, að
framvegis muni liann beina
skrifum sínum i aðra átt, eða
til blaðsins Dags á Akureyri.
Formaður Framsóknar hefir
ekki látið lenda við orðin tóm,
en hefir þegar birt fyrstu fram-
leiðsluna í Degi. Þrátt fyrir
þetta vill Tíminn ekki viður-
kenna að ástandið sé eins og það
er í flokknum, og kallast l>að
á venjulegu mætlu máli að
berja liöfðinu við steininn. En
hvað um það. Þetta er einka-
mál, sem ekki varðar aðra.
Vísir hefir lítið lagt til deilu-
málanna innan Framsóknar-
flokksins, einfaldlega af þeim
sökum, að blaðið hefir ávallt
verið þeirrar skoðunar, að
Framsókn væri ómerkilegur
flokkur og öll hennar mál væru
ómerkileg. Starf flokksins hefir
einkehnt þjessi ful’ðulegi við-
rinisháttur, að vera og vera
ekki, en halla undir flatt sitt
á hvað og brosa til liægri og
vinstri, og nú upp á síðlcastið
út í bæði munnvik og lenda
þannig einhversstaðar út í al-
deyðunni eða „bláa gatinu“, eins
og sagt hefir verið. Þegar ofan
á allar aðrar hrcllingar bætist
það, að formaður flokksins flýr
af hinu sökkvandi skipi, segir
sig sjálft að ekki er verulegu
púðri á flokkinn eyðandi, með
því að liann gengur með innan-
anmein, sem verður honum að
aldurtila, — jafnvel þótt lijálp-
andi læknishendur reyni að
koma í veg fyrir það. Formað-
ur Framsóknarflqfkksins er í
rauninni flokkurinn sjálfur.
Hann hefir til þessa átt á að
skipa gervimönnum., sem hann
hefir sjálfur gert stóra, en
verða hverfandi litlir og auð-
virðilegir, er hans nýtur ekki
lengur við. Þetta eru sannindi,
sem ekki þarf að segja, en virð-
ist þó réttlætanlegt, af þeim or-
sökum einum, að smápeðin í
Framsóknarflokknum ganga
með þá hundadrauma, að þau
geti orðið að konungi eða
drottningu. Af góðhjartaðri um-
hyggjusemi vill Vísir vara þessa
rnenn við að dreyma sig stóra,
sökum þess, að þeir verða aldrei
annað en það, sem þeir eru —
agnarlitlir. Fyrsta skilyrði til
þess, að þeir verði til einhvers
nýtilégir, er að þeir viti eigin
vantkanta, en gangi ekki i þess-
ari meinleysislegu, sauðmóruðu
Framsóknar-værð út i opinn
dauðann.
Timinn fullyrðir að Vísir hafi
haldið þvi fram, að Jónas Jóns-
son fengi ekki að birta greinar
sínar i Degi. Þetta er með öllu
rangt. Hér í blaðinu hefir ein-
mitt verið frá því skýrt, að í
rauninni væri Framsóknar-
flokkurinn fluttur til Akureyr-
ar, með þvi að formaður flokks-
ins hefði helgað sér þar vett-
vang. Hér í höfuðstaðnum ríkti
almennur fögnuður yfir þessu,
og þótti það meiri landhreinsun
en þótt allt göturykið hefði verið
afmáð, en það er talið versti
Rúm milljón i ríkissjóð
vegna hlutabréfasölu.
íkissjóður fær um þessar mundir nokkuð á aðra milljón
króna í skatt frá ýmsum aðilum, er hagnast hafa á hluta-
hréfasölu, en til þessa ekki greitt skatt nema af nafnverði bréf-
ana.
Þessar tekjur ríkissjóðs
byggjast á liæstaréttardómi í
máli tollstjórans í Reykjavík f.
h. ríkissjóðs gegn Gunnari Guð-
jónssyni skipamiðlara. ELn svo
sem kunnugt var, var um það
deilt hvort Gunnar skyldi
greiða skatt af nafnverði seldra
hlutabréfa er nam 16 þús. kr.
eða hvort liann skyldi greiða
skatt af söluverði þeirra að
upphæð 400 þús. kr. Féll hæsta-
réttardómurinn ó þá leið, að
það væri söluverðið en ekki
nafnverðið, sem skvldi skatt-
leggja.
Nú stóð áþekkt á fyrir ýmsum
öðrum aðilum er selt höfðu
hlutabréf sín, og var beðið eftir
úrskurði hæstaréttar í máli
Gunnars Guðjónssonar þar til
frekari skattgreiðsla færi fram.
Er það nú upplýst að alls mun
ríkissjóður hagnast um 1060
þús. krónur á umræddum úr-
skurði liæstaréttar, að því er
Eimskipafélagið Isafold varðar,
en auk þess stendur líkt á með
ýms fyrirtæki önnur.
r ■ i
nstar
foriHDia siDum.
Þjóðviljinn 27. júni ber sig
illa út af tillögu þeirri, sem
samþykkt var á Landsfundi
Sjálfstæðismanna, i sambandi
við erindi, sem eg flutti þar um
nauðsyn kristindómsfræðslunn-
ar. H. P. gengur fram á vígvöll-
inn með liinu margþekkta
kommúnistaorðbragði, eins og
hans er von og vísa. Það virðist
eiga hér vel við, að taka hið
góða og gamla spakmæli, að
„sannleiltanum verður hver
sárreiðastur“. Hann veit sem er
að fylgi Sjálfstæðisflokksins
héfir ekki sízt byggzt upp á því,
að flokkurinn hefir á hverjum
tíma haft á að skipa trúuðum
og góðum mönnum, sem meira
hafa lagt upp úr því, að reyn-
ast þjóð sinni nytsamir menn
og aukið fylgi flokksins, með
því að vinna að velferðarmál-
um íslands og íslenzku þjóðar-
innar, en forðast að lenda í
liópi þeirra, sem vilja gera þjóð
sína að ánauðugum þrælum
annarra stórvelda. Sjálfstæðis-
flokkurinn mun á hverjum
tíma telja það lán sitt að kunna
að meta kristindóm og kirkju »Scrutator
og mun því ávallt neita að taka
boði H. P. um að spenna fjand-
ann fyrir kerru sína. H. P. má
vera viss um það, að hann fær
að halda foringja sínum og
bróður fyrir rússnesku kerr-
unni. Við neitum að taka á móti
honum, við mótmælum öll.
Guðrún Guðlaugsdóttir.
Síldveiðaznar.
S. 1. laugardag var útrunninn
frestur sá, sem ákveðinn hafði
verið til þess að tilkynna skip,
sem ætluðu að leggja inn síld
hjá Síldarverksmiðjum ríkis-
ins á þessu sumri.
Bárust aðeins umsóknir frá
22 skipum, með kjörum þeim,
sem auglýst höfðu verið, en 45
skip myndu hafa sótt, ef verk-
smiðjurnar greiddu fast verð,
kr. 18.00 fyrir miálið.
Engar umsóknir bárust frá
15—20 skipum, sem fastlega
var búizt við, að skipta myndu
við verksmiðjurnar.
Verksmiðjustjórn Síldar-
verksmiðju rikisins hefir nú
farið J>ess á leit við formenn
þingflokkanna, að þeir komi
því til leiðar við rikisstjórnina,
að ákvörðuninni um síldarverð-
ið verði breytt þannig, að verk-
smiðjunum verði heimilað að
kaupa síldina fyrir fast i verð,
18 krónur á málið, af þeim, sem
óskuðu þess.
Nú hafa þrír stjórnmálaflokk-
arnir (allir nema Framsókn)
skrifað atvinnumálaráðherra,
Vilhjálmi Þór, og krafizt þess,
að farið verði eftir tillögum
meirihluta verksmiðjustjórnar-
innar og greitt kr. 18.00 fyrir
málið.
Ðæstu útsvörin í Reykjevík.
ÞESSIR GJALDENDUR HAFA YFIR 20 ÞÚSUND
KRÓNA ÚTSVAR:
Nœturakstur.
Bifröst, sími 1508.
Nœturvörður.
Reykj avíkur apótek.
Næturlæknir.
Slysavarðstofan, sími 5030.
Misritazt
hafði í blaðinu í gær fæðingar-
hafn frú Use Blöndal. Nafnið er
Luchterhand, en ekki Lutter.
Leiðrétting1.
I forystugreininni í gær misprent-
aðist setning í 2. dálki 5.—6 1. a. o.
„meðan hún var hér“, les: „meðan
hún var og hét“.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20,30 Útvarpssagan. Loka-
lestur. 21,00 Hljómplötur: íslenzk-
ir kórar. 21,10 Erindi: Hvað á að
gera, ef slys ber að höndum? (Jón
O. Jónsson fulltrúi). 21,30 Hljóm-
plötur: Ýms þjóðlög.
Aðalsafnaðarfundur
Hallgrímssóknar verður haldinn
annað kvöld kl. 8í húsi K.F.U.M.
Til meðferðar verða sömu mál og
annara safnaða og auk þess kirkju-
byggingarmálið og happdrættið.
Kveldúlfur h.f. 120000
Alliance 90000
S. í. S. 75000
Shell á íslandi 75000
Olíuverzl. ísl. li.f. 70000
Gamla Bíó 65000
Haraldarbúð h.f. 65000
Egill Vilhjálmsson 60000
Slippfélagið li.f. 60000
Steindór Einarsson 60000
Egill Skallagr. 58000
Fr. Bertelsen & Co. h.f. 55000
Ó. Johnson & Kaaber 55000
Max Pemberton h.f. . 55000
Edda h.f. 53000
Geysir h.f. 50000
Hamar li.f. 50000
Hið ísl. steinolíufél. 50000
Héðinn h.f. 50000
Karlsefni li.f. 50000
Nýja Bíó 50000
Timburv. Völundur 50000
O. Ellingsen 48000
E. Kristjánsson & Co. 46000
Garðar Gíslason 46000
Jóhannes Jósefsson 46000
Askur h.f. 45000
Hallgr. Ben. & Co. ' 45000
Harpa li.f. 45000
Helgafell h.f. 45000
tsafoldarprentsm. 45000
Ragnar Blöndal h.f. 45000
Stálsmiðjan 45000
Kol & Salt h.f. 44000
Hrönn li.f. 43000
Ásbjörn Ólafsson 42000
Lárus G. Lúðvígsson 42000
Edinborg 40000
Gunnar V. Þórðarsón 40000
J. ÞorJ. & Norðmann 40000
Litir & Lökk 40000
Jóhann Ólafsson & Co. 38000
Ólafur Magnússon 38000
Smjörlíkisgerðin h.f. 36000
Alm. byggingafél. 35000
Daníel Þorsteinsson & Co. 35000
Höjgaard & Schultz 35000
KRON 35000
Marleinn Einarsson 35000
Nathan & Olsen 35000
Niðursuðuverksm. S.I.F. 35000
Sigursveinn Egilsson 35000
Skjólfatagerðin 35000
Sláturfél. Suðurlands 35000
I. Brynjólfsson & Kvaran 33000
O. H. Iielgason, Þing. 34 32000
Schopka, Julius 32000
Heildv. Ásg. Sigurðssonar 31000
Bernhard Petersen 30000
Félagsprentsm. 30000
Fossberg, Gunnl. 30000
H. Kjartansson, Ásv.g. 77 30000
H. Ólafsson & Bernhöft 30000
Lúðvík Einarsson 30000
Pipuverksmi. 30000
G. Helgason & Melsted 28000
Hvannberg, Jónas 28000
Freyja, sæl. og efnag. 28000
Alþýðubrauðgerðin 27000
Ólafur Gíslason & Co. 27000
Thorarensen, Stefán 27000
Thorst. Þ. Scheving 27000
Nói, brjóstsykursgerð 26000
Akur h.f. 25000
Fylkir h.f. 25000
Gunnar Bjarnason 25000
Leðurgerðin h.f. 25000
Páll Stefánsson 25000
Petersen, Guðrún 25000
Smári h.f. útg.fél. 25000
Sig. Thoroddsen 25000
Vinnufatagerð Isl. 25000
Efnagerð Reykjavíkur 24000
Kexverksmiðjan Esja 24000
Biering, Hinrik 23000
Helgi Magnússon & Co. 23000
Kristján Siggeirsson 23000
O. H. Helgason & Co. 23000
Prentsm. Edda 23000
Verksm. Fram h.f. 23000
Sig. B. Sigurðss., Sólv. 10 22500
Ebenezer G. Ólafsson 22000
Egill Benediktsson 22000
Jón Björnsson, kaupm. 22000
Týli h.f. 22000
Kexverksmiðjan Frón 21500
Árni Árnason, Háv.g. 7 21000
Feldur h.f. 21000
Sanítas 21000
Alþýðhús Rv. h.f. 20000
Ingólfshvoll 20000
Sjóklæðagerð Isl. 20000
Armann vann Rvíkur-
boðhlaupið.
I Reykjavíkurboðhlaupinu,
sem fram fór í gærkvöldi, sigr-
aði Glímufélagið Ármann. Er
þetta í þriðja skipti í röð, sem
Ármann vinnur þetta hlaup, en
fimmta skipti, sem keppni fer
fram í því.
Úrslit urðu þessi: Ármann
18.35.0 mín. K. R. 18.39.6 mín.
og' I. R. 19.06.6 mín.
I Ármanns-sveitinni voru þessir
menn: Ilaraldur Þórðarson,
Evert Magnússon, Bragi Guð-
mundsson, Stefán Jónsson, Sör-
en Langvad, Hörður Kristófers-
son, Sigurður Nordalil, Jóhann
Eyjólfssón, Oddur Helgason,
Kristinn Helgason, Halldór Sig-
urðsson, Baldur Möller, Árni
Kjartansson, Hörður Hafliðason
'Og Sigurgeir Ársælsson.
Keppni J>essi var í senn
spennandi og skemmtileg.
Hjónaefni.
Nýlega opinberuðu trúlofun sina
ungfrú Fjóla Guðmundsdóttir og
Kjartan Hannesson frá Stóra-Hálsi
í Grafningi.
Félag garðyrkjumanna
er nýstofnað, og er starfssvæði
þess allt landið. Stofnendur eru 30.
Formaður er Hatikur Kristófersson.
n
MgAcIvl aÉmmnwgs
Sumardvalanefnd:
550 börnum kom-
ið i sveit.
Sumardvalarnefnd er nú bú-
in að ráðstafa um 550 bömum í
sveit, á barnaheimili eða bæi.
Starfrækir nefndin 8 barna-
heimili, þar sem eru samtals
457 börn. Eru flest þeirra, eða
115, að Reykholti í Borgarfirði.
Þar hafa nokkur börn fengið
mislinga, en þau eru öll að
frískast. Skarlatssótt kom upp í
Reykholti, en ekkert barnanna
tók veikina.
heilsuspillir í Reykjavik eins og
sakir standa.
Dómkirkjan í Köln.
í hvert skipti, sem eg hefi frétt
að Bretar hafi varpað sprengjum
yfir Köln, hef eg óttast að einhver
þeifra hefði fallið á dómkirkjuna.
Þessi ótti minn er ekki ástæðulaus,
þvi að dómkirkjan liggur svo að
segja fast að aðaljárnbrautarstöð-
inni. En járnbrautarstöðin er þýð-
ingarmikill samgönguhnútur og þvi
girnilegt skotmark. Það tók meir
en sex hundruð ár að fullgera þessa
miklu kirkju, því að smíði hennar
var hafin árið 1248. Kórinn var
fullgerður 1322 og srníði aðalkirkj-
unar miðaði hægt áfram til loka
miðalda, en þá stöðvaðist hún með
öllu um margar aldir. 1823 var loks
byrjað að fullgera hana, og öll var
hún fullgerð 1880. Meginkirkjan
er í fimm gólfum (eða skipum),
en þrigólfa þverskip myndar kross-
mark í grunnflötinn. Kirkjan er
135 metrar á lengd og 61 m. á
breidd og gengur næst Péturskirkj-
unni í Róm, dómkirkjuni í Mílanó,
Pálskirkju í London og Sofíumust-
eri Miklagarðs að stærð. Tveir
meginturnar kirkjunnar á vesturhlið
eru 157 metra háir hvor — hæstu
kirkjuturnar heims.
Loftárásir á kirkju og menningu.
Eg hlustaði í gær á þýzka útvarp-
ið, aðallega til að fá nákvæmar
fregnir af skaðanum, sem orðið hef-
ir á kirkjunni. Eftir lýsingu Þjóð-
verja er hann allmikill, en þó eigi
meiri en svo, að vel má við gera.
Hitt furðaði mig, með hvílíkri
helgislepju og hræsni nazistar töl-
uðu um þennan „helgidóm, kristins
siðar“ og „menningararf margra
kynslóða“. Þeim virðist auðvelt að
gleyma loftárásinni á Coventry og
dómkirkjuna þar, eyðileggingu Rot-
terdamborgar og Lárenskirkjunnar
þar( menningararfur frá 15. öld),
eyðileggingu Belgrad-borgar, loft-
árásunum á London (þegar tvær
sprengjur hæfðu Pálskirkjuna). Þá
er heldur ekki furða, þótt þeir hafi
gleymt meðferð sinni á forvígis-
mönnum kristins siðar, Innitzer
kardínála í Vín og prestum hans,
séra Niemöller, Berggrav biskupi
og svo framvegis — og svo fram-
vegis — eða sinni eigin menningu
og kristna bræðraþeli í framkom-
unni við kynbræður mannsins sonar.
Kölnarborg.
Borgin Köln er á ensku og
frönsku nefnd Cologne og er að
öðru leyti frægust fyrir framleiðslu
sína á Kölnarvatni (Eau de Co-
logne). Einhver frægasta tegund
Kölnarvatns nefnist 4711, og er
nefnt svo vegna þess, að elzta verk-
smiðjan er til húsa í Glockengasse
(Klukkugötu) númer 4, 7 og 11.
Þegar túristum er sýndum bærinn,
er kirkjan sýnd fyrst, síðan Glock-
engasse og loks gamall brunnur, en
úr honum segja ferðamannaleiðtog-
arnir að Kölnarvatnið spretti. Blað,
sem áður var talið eitt merkasta
blað Evrópu, „Kölnische Zeitung“,
kemur enn út í borginni, en flyt-
ur nú sama graut í sama nóa. Borg-
in byggðist annars skömmu eftir
Krists burð. Þar var rómverskt vígi,
en landið umhverfis það var nefnt
Colonia Agrippina, og af „kóloni-
unni“ dró borgin nafn sitt. Síðast
þegar eg sá dómkirkjuna í Köln,
voru langir hakakrossfánar hengd-
ir á stöng meðfram allri meginkirkj-
uni til allra hliða. Þá skildi eg hvað
það var að saurga kirkju.
•
Merki dagsins.
„Svo maður tali nú um loftvarna-
merki,“ sagði Bernódus Jósafaz
seinlega, „þá finnst mér okkur vanta
orð yfir merki, sem gefin eru þeg-
ar hættan er liðin hjá. Mætti ekki
kalla þau frímerki?“ — „Slúður,“
sagði Isax drembilega, „frímerki
eru ekki gefin, þau eru seld.“
Higr
vantar ibúð strax.
Jón Þorsteinsson
skósmiður, Lækjargötu 6.
Stúlku
vantar á Klepp-spítalan. —
Uppl. lijá yfirhjúkrunar-
konunni. Sími 2319 eða 2317.
Amerískir
kjólakragar nýkoitmir.
Glæsilegt úrval.
H. Toft
Skólavörðustíg 5 Sixni 1035
ÍBÚÐ
Óska eftir 1—2 herbergj-
um og eldhúsi frá 1. júlí til
1. október. — Fyrirfram-
greiðsla. Tilboð, auðkennt:
„Bilaviðgerðir“ sendist Vísi
fyrir laugardagskvöld.
Vörubíl!
2 tonna Chevrolet 1933 til
sölu. Ný gúmmí. Til sýnis á
Laugarnesveg 43, sírfti 2Ö60,
eftir kl. 5.
getur fullorðinn maður feng-
ið nú l>egar við bílasmuni-
ingu.
H.f. EGILL VILHJÁLMSSON
ranoi
2—3 vikur. Helga Níelsdóttir
og Pálína Guðlaugsdóttir
gegna störfum fyrir mig á
meðan.
Vilborg Jónsdóttir,
ljósmóðir.
ii jakkar
(sumarjakkar)
og
LJÓSAR BUXUR
aðeins kr. 278 settið.
Einnig eru fyrirliggjandi.
samkvæmisföt og dökk,
vönduð spariföt.
KLÆÐAGERÐIN
Elltíma
Skólavörðustíg 19.
Sími 3321.
vörumiðAR—
VORUUMBÚÐIR
TEIKNARI:STEFAN JONSSON