Vísir - 10.07.1943, Síða 1
Rltstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
- - »>,
33. ár.
4
Reykjavík, laugardaginn 10. júlí 1943.
Ritstjórar
Blaöamenn Siml:
Auglýsingar .1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsla
154. tbl.
*
\
Ameriskar, brezkar og kanadískar her-
sveitir réðust í nótt á land á Sikiley.
Þær eru undir yfirstjórn Eisen-
howers.
Kl. 3 í mopgun eftir NorðuF-Afpíku-tima hóíu
liersveitir bandamanna þar hernaðaraðgerðir þæp, sem
allur heimurinn hefip beðið eftir undaniarna mánuði,
innrás. — I nótt voru blaðamenn skyndilega kallaðir á
fund Eisenhowers í hinum nýju aðalbækistöðvum hans
sem hann mun hafast við í meðan á innrásaraðgerðum
stenduF, og þeim tilkynnt að amerískar, brezkar og
kanadiskar hersveitir, undir stjórn hans heiðu gengið
á land á Sikiley.
Tilkynning Eisenhowers um þetta var stuttorS og
hljóðar á þessa leið:
„Hersveitir bandamanna hófu innrásaraðgerðir á
Sikiley snemma í morgun, eftir að á undan voru gengn-
ar miklar loftárásir á stöðvar möndulhersins á eynni.
Herskip bandamanna vörðu innrásarflotann og meðan
herinn gekk á land hélt hann uppi látlausri skothríð á
strandvirki fjandmannanna.“
skammti á eynni ,en árásir
bandamanna hafa eyðilagt
vatnsveitur og leiðslur. Segir i
fregn, sem Lundúnablaðið
Daily Mail birtir, að ströng
vatnsskömmtun bafi verið tek-
in upp víðsvegar á eynni.
NíóiinHi fréttir
Italir hafa viðrkennt innrás-
ina og segja, gð fallhlífahersveit-
um hafi verið beitt.
Herstjórnartilkynning Eisen-
howers gaf engar upplýsingar
um þá staði, sem innrásin var
gerð hjá né heldur, hversu mjög
bandamönnum hefði orðið á-
gengt. Hinsvegar var sagt frá
því ,að gerðar hefði verið lát-
lausar árásir á flugvelli í gær
og fyrrinótt og meðal annars
ráðizt á aðalbækistöðvar mönd-
, ulhersins í Taormina á Sikiley.
j Bretar gerðu í nótt harða
1 irás á Gelsenkirkchen. Tíu
! flugvélar þeirra voru skotnar
niður.
|
Til að byrja með eru litlar
fregnir af þessum hernaðarað-
gerðum, þangað til séð er
liversu öflugir ítalir og I>jóð-
verjar eru, en samkvæmt fyrstu
fregnum, sem blaðamenn hafa
getað sent frá hinum-nýju bæki-
stöðvum Eisenhowers þá gekk
•allt eins og til var ætlazt.
Eins og að ofan getur, hófst
landgangan í myrkri um klukk-
an þrjú eftir Norður-Afríku-
tíma, en mun vera kf. tvö hér.
Veður var hið bezta og var
gengiS á land á vesturodda eyj-
arinnar, i námunda við Trapani,
•en þangað er svo stutt frá Norð-
ur-Afriku, að skip geta skropp-
ið þar yfir á örfáurn klukku-
stundum.
Einu fregnir, sem borizt liafa
af bardögum eru á þá Ieið, að
flugher möndulveldanna veiti
bina harðvítugustu mótspyrnu
og standi yfir grimmilegustu
loftbardagar yfir vesturhluta
■eyjarinnar, en flugherir banda-
manna geri miskunnarlausar
árásir á alla flugvelli hennar.
Flugmenn þeir, sem verið hafa
i leiðöngrum yfir eynni skýra
frá þvi, áð möndulherinn vinni
nú að því að sprengja upp hafn-
armannvirki hingað og þangað
á henni, til þess að koma í veg
fyrir. það, að bandamenn geti
liagnýtt sér hafnimar.
Frakkar aðvaraðir.
Um líkt leyti og innrásin
hófst byrjaði útvarpið í Alsír
að útvarpa til Frakklands. Var
lesin upp tilkynning. til allra
Frakka frá Eisenhower hers-
liöfðingja. Sagði hann, að með
innrásinni á Sikiley væri stigið
fyrsta skrefið til að frelsa
meginland Evrópu undan
möndulveldunum. Áður en því
yrði lokið, mundi verða barizl
af mikilli heift ^og mörgiim
mannslífum fórnað, en Frakk-
ar ætti að vera hinir rólegustu,
þangáð til þeim yrði gefið-
merki um að rísa upp gegn
kúgurum sínum og berjast við
hlið hinna gömlu bandamanna
sinna.
Loftárásirnar.
Það þótti nokkurnveginn sýnt
fyrir einni viku, að bandamenn
mundu fara að leggja i innrás,
því að þá tók flugher Coning-
hams að gera loftárásir á flug-
vellina á Sikiley. Hlutverk þess
flughers hefir jafnan verið að
ryðja landhernum brautina, en
flugher Doolittles hefir jafnan
verið sendur til mai’ka, sem
hafa verið lengra á brott og
árangurinn af árásum lians
hefir heldur ekki komið eins
fljótt i ljós.
Þá var það líka sönnun þess,
að eitthvað mikið mundi á
seyði, þegar loftárásimar voru ,
hertar um allan' helming um
miðja viku. Þá voru gerðar i
árásir nætur og daga á suma
flugvellina, svo að einn vai-ð til
dæmis fyrir 19 árásum á einum
sólarhring.
Þýízka útvarpið birti í gær
fregnir um aukinn herskipa-
styrkleika bandamanna á Mið-
jarðarhafi.
Voru fregnirnar um þetla
á þá leið, að tvö orustuskip af
flokkinum, sem kenndur er við
King George V. liafi sést halda
austur Njörvasund inn á Mið-
jarðarhaf. Aðrar fregnir herma,
að allmörg amerísk herskip hafi
komið til Miðjarðarhafsins, þar
á meðal nokkur heitiskip og
flugstöðvarskip.
Vegna hinna mildu loftárása
handamanna á Sikiley og mann-
virki þar er orðinn mikill skort-
ur á neyzluvatni á eynni. Vatn
er víða mjög af skornum
Næturlæknir.
SlysavarÖstofan, sími 5030.
Helgidagslæknir.
Bjarni Jónsson, Reynimel 58,
sími 2472.
Næturvörður næstu viku.
Ingólfs apótek.
Hjúskapur.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band af sr. Helga Sveinssyni að
Arnarbæli, ungfrú Ingibjörg
Sveinsdóttir og Þorgrímur Magn-
ússon, á Bifreiðarstöð Reykjavík-
ur. Heimili þeirra verður á Kjart-
ansgötu 5.
Rússland:
Þjóðverjum enn
haldið í skeíjum.
En næsti solarhringpnr iiitiii ráóa
nrslitum.
Æðisgeníínir bardagar geisa nú við Byelgorod, þar
sem Þ jóðverjar reyna að víkka fleyg þann,
sem þeir iiafa rekið í vamarlínu Rússa, en
Rússar ber jast eins og l jón að því að loka línunni að
baki Þ jóðver jum og umkringjá þá.
Það er ekki talinn neinn efi á því lengur, að hér er um að
ræða upphaf að öflugri þýzkri sókn, en svo virðist einnig sem
Rússar hafa haft öflugan viðbúnað. Þjóðverjar gera víða
leiftursnöggar árásir annarsstaðar á vígstöðvunum i því skyni
að kanna viðhúnað Rússa þar og reyna að finna staði, sem illa
eru varðir.
Enn halda Rússar Þjóðverj-
um í skefjum, og eru fregnir að
öðru leyti af skornum
skammti. Er talið að á þcssum
sólarhring muni endanlega
verða úr því skorið, hvort
Þjóðverjum tekst að hrjótaSt í
gegi>, eða hvort Rússum tekst
að eyðileggja sóknaráform
þeirra.
Þjóðverjar lialda því fram,
að sókninni sé beint gegn liði
og birgðastöðvum Rússa, sem
átt hefði að nota til sóknar
gegn þýzka hernum. Einnig
fullyrða þeir, að það varalið,
sem nú streymir til vígstöðv-
anna, hefði átt að nota annars-
staðar til árása, en á þessum
slóðum fái flugher Þjóðverja
ast á varaliðsflutninga að baki
víglínu Rússa.
Utvarpsfyrirlesari i London
benti á það i morgun, að þetta
sé í fyrsta skipti, sem það hafi
tekizt i nútíma-hernaði, að
stemma stigu við einheiltri á-
rás vélahers. Benti hann á, ílö
ávalll áður hefði vélaher tekizt
að hrjótast i gegn, að minnsla
kosti á takmörkuðu svæði, en
hér væri engu slíku til að
dreifa. Það, sem Þjóðverjar
hefðu á unnið, hefði kostað þá
dæmalausar fórnir, en þéir
hefði hvergi brotizt í gegn um
víglínur Rússa.
SIKILEY
Frá Bon-liöfða í Túnis eru innan við 160 kílómétrar til flug-
vallarins við Marsala á vesturströnd Sikileyja’’ og um 240 km.
til Palermo, herskipahafnarinnar á norðanverðri eynni. Það er
vitað, að Þjóðverjar liafa notað Sikiley fyrir aðal-birgðastöð
sína í öllum viðureignunum um Tripolis og Túnis, og þaðan hef-
ir loftárásum þeirra gegn Malta verið bgjnt. Að eynni Pantellariu
tekinni, virðist það augljóst, að Sikiley hlýtur að vera girnilegt
mark.
Innrás á Sikiley hlýtur að
vera fyrsta skrefið að allsherj- j
ar innrás í Ítalíu, því að þótt
hægt ’sé fyrir bandamenn að
halda Sikiley einni og láta aðra
hluta Italíu í friði, þá liggur
leiðin til Italíu í flestum tilfell-
um um Sikiley. Það eru liðlega
300 km. friá Palermo til Neapel,
og flugleiðin þaðan til Róm er
aðeins um 180 kílómetrar.
Hafnirnar i Sýrakúsu, Kataniu
og Messínu eru veigamiklar
fyrir árásir á Kalahríuskagann,
„tána“ á Italíu, en Messsínusund,
sem skilur eyna frá skaganum,
er ekki nema 3 km. á breidd.
Sikiley er eitthvert náttúru-
áuðugasta hérað Ítalíu. Þar eru
framleiddir tveir þriðju lilutar
af öllu víni landsins, þar á með-
al liið nafnlogaða Marsala-vín,
einn sjöundi alls hveitis, næst-
um allur hrennisteinn og mikill
partur þess litla járngrýtis, sem
Italía á aðgang að.
Þáð kannast allir við eyjuna
af kortinu. Hún likist fótbolta
fyrir framan „tána‘‘ á Italíu-
skaga. Eyjan er stærsta, frjó-
samasta og fjölhýlasta eyja
Miðjarðarhafs, enda liefir hún
löngum verið þrætuepli og í
margra liöndum í liinni róstu-
sömu sögu Miðjarðarhafsins.
Þúsund árum fyrir Krists hurð
var hún fönisk nýlenda, síðar
grísk hjálenda. Karþagómenn,
sem höfðu höfuðborg sína
skammt frá þeim stað, þar sem
Túnisborg er nú, lögðu hana
undir sig, en létu hana af hönd-
um við Rómverja árið 210 f. Kr.
að afloknu fyrsta Púnverjastríð-
inu. Eftir hnignun Rómaveldis,
lögðu Frankar og Gotar eyna
undir sig, en síðar Serkir. Á
elleftu öld réðust Norxnannar
inn á eyna, síðar varð hún aftur
hluti hins heilaga Róftiarikis.
Spánn og Austurríki áttu hana
um skeið, en frá 1713 réðu Sa-
vojagreifar eynni, en seldu hana
fyrir Sardiníu 1720. Um 1860
hóf Garibaldi frelsisbaráttu ít-
ala á Sikiley suður, en Viktor
Emanúel fyrsti var, eins og
kunnugt er, Sikileyjarkonung-
ur, áður en Ítalía var sameinuð
í eitt ríki.
Silciley cr um 25 þúsund fer-
kílómetrar að stærð, eða sein
svarar fjói’ðungur Islands. Hún
er hálend mjög, hæst að norð-
an við Týrenahaf, en hallar
suður að Sikileyjarsundi. Mest-
ur hluti eyjarinnar er háslétta,
urn 1000 nxeti’ar að hæð yfir
sjávarfleti, en að norðvestan
rís eldfjallið Etna hátt yfir há-
lendið í 32740 metra hæð. Á
eynni er fátl góðra hafna. Bezt
er flotahöfnin Palermo að
norðanverðu og hafnirnar að
austan, meðfram Messínasundi.
Árnar renna aðallega til suð-
urs. Þær eru grunnar, misjafn-
ar að vexti og ekki skipgengar,
vaxa í leysin^um, en þorna á
hitatímanum. Loftslagið ei’
mjög hlýtt, en rigningaleysi
veldur stundum tjóni, vor og
haust.
Fjórar milljónir ibúa lifa
mestmegnis á akuryrkju, en
Sikiley er eitthvert þéttbýlasta
hérað Italíu. Moldin er frjósöm,
einkum í lilíðum Etnu, Ræktgð
er hveiti, hygg og rúgur, mais,
olívur, ávextir, möndlur, bauii-
ir, fíkjur, ferskjur og vinviðui'.
Oft er erfitt um áveitu vatns
og víða eru notaðar frumstæðar
ræktunaraðferðir, svo sem
plógar úr trjágreinum. Kornið
er stundum þreskt með þvi að
troða það fótum. Bæjarliús eru
sjaldséð, því að stórbændur búa
ekki á jörðum sínum, en verka-
fólk lifir i þorpum eða borgum.
Aðal-námagröfturinn er brenni-
steinsvinnsla, um 2 millj. smá-
lesta á ári. Brennisteinn er graf-
inn hjá Caltanisetta á miðri
eynni og hjá Agrigento á suður-
ströndinni. Járnsteinn er graf-
inn á nokkurum stöðum. Á Li-
pari-eyjum að norðan er gi’af-
inn pimpsteimi, og asfalt er
unnið nálægt Sýrakúsu.
Palermo er stærsta borgin
(420 þús. íb.), fögur borg og
vel í sveit sett. Á norðvestur-
ströndinni eru Trapani og Mar-
sala (vínrækt). 1 Trapani er
unnið salt úr sjó. Næst Palermo
að stæl’ð er Catanía (250.000).
Sýrakúsa' að sunnan er forn
gríslc borg. Þar átti snillingur-
inn Arkimedes heima og varði
borgina fyrir umsátri Róm-
verja. Þar eru merkar rústir
grískra og rómverskra leik-
Frh á 3. sðu..