Vísir - 13.07.1943, Blaðsíða 2
VÍSIP
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Réttur gjalddagi.
EKKI ríður ógæfa Alþýðu-
flokksins við einteyming.
Til þess að reyna að liafa ein-
hver stefnumál, — reyna að
vera á móti einhverjum öðrum,
— hefir flokkurinn, að því er
virðist, slysazt til að taka þá af-
stöðu til sjálfstæðisbaráttunn-
ar, sem fjarlægust er íslenzku
þjóðareðli og hagsmunum. Vit-
anlega er þetta öl á könnu
kommúnista, enda spara þeir
ekki stóru höggin, og af reynzl-
unni draga þeir þær ályktanir
að Alþýðuflokkurinn sé kom-
inn á mála hjá Stór-Dönunum.
Þeir sletta skyrinu, sem eiga.
Þrátt fyrir það er ekki ólíklegt
að kommúnistum takist enn að
vinna nokkurt fylgi frá hinum
sjúka Alþýðuflokki, vegna þessa
viðkvæma máls, auk annars
klaufaskapar af flokksins liálfu.
Formaður Alþýðuflokksins
mun einnig vera formaður í
hinu svokallaða Norræna félagi,
sem ekki er nema gott eitt um
að segja, — svo lengi, sem ekki
er gengið gegn íslenzkum hags-
munum. Formaðurinn virðist
hafa fengið það á lieilann, að
liann verði að sjá svo um, að
þrátt fyrir allar stórbyltingar
innan lands sem utan, megi
ekki rjúfa „tengslin“ við frænd-
þjóðirnar á Norðurlöndum,
enda lieldur hann jjessu fram i
hlaði smu. Sama dag og við
slíkan tón kveður hér heima,
heldur flokksbróðir lians, Hed-
toft Hansen að nafni, fyi’irlestur
úti í Lundúnum, þar sem liann
kemst að þeirri niðurstöðu, að
eins og sakir standi sé ekki um
neina norræna samvinnu að
ræða, — að Norðurlönd geti
ekki að stríðinu loknu myndað
með sér raunliæft bandalag,
sem að nokkru verulegu gagni
komi, en af því leiðir aftur að
ekkert verði fullyrt um norræna
samvinnu að ófriðarlokum.
Sömu skoðun hefir verið haldið
fram hér i blaðinu, og af henni
dregin sú ályktun, að íslend-
ingar hefðu ekki efni á né að-
stöðu til að miða við annan hag
en sinn eigin í sjálfstæðismál-
inu, og yrðu allar ráðstafanir að
miðast við það. Óskert sjálf-
stæði þjóðarinnar er veigamesta
skrefið í þá átt að tryggja fram-
tíð hennar efnaliagslega og
menningarlega, og engin þjóð
hefir dregið i efa, svo vitað sé,
að rétturinn væri í þessu efni
okkar megin. Þótt islenzka þjóð-
in krefjist sjálfstæðis, vill hún
jafnframt viðhald gagnkvæmri
vináttu við Norðurlönd og
tengja við þau menningarbönd
að nýju, þegar að stríðinu loknu.
Skorist Norðurlöndin imdan að
verða slíkrar vináttu frá okkar
hálfu aðnjótandi, — og segja
má að hún skipti þau e. t. v. ekki
miklu, — verðum við að vera
þess minnugir að vináttan til
annara verður að víkja fyrir
eigin sjálfstæðisþrá, ef þetta
tvennt getur á engan veg farið
saman, sem virðist harla ólik-
legt
Að styrjöldinni lokinni verður
sezt að samningaborði. Þá er
tvennt til. Annarsvegar að að-
staða okkar verði eins og
skuldunauts, sem þarf að sækja
alian rétt sinn í hendur kröfu-
VISIR
Hátíðahöld verzlunar-
manna 2. ágúst.
Dansleikur að Hótel Borg og ræður og
hljóðfærasláttur i útvarpinu.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur mun eins og að undan-
förnu efna til hátíðahalda í tilefni af frídegi verzlunar-
manna 2. ág. nk .
Seyöisfjördur:
Hermaður ræðst
á konu.
Vegna skorts á farartækjum
til lands og sjávar hefir ekki
reynzt tiltækilegt að stofna til
langra hópferða þennan dag,
og eins og viðhorfið er nú, hefir
lieldur ekki þótt æskilegt að
efna til hátíðahalda neinstaðar
í nágrenni bæjarins.
Því hefir verið ákveðið að fyr-
irkomulag dagsins, verði með
áþekku sniði og þrjú undanfar-
in ár, að því undanskildu þó,
að nú efnir félagið til dansleiks
að Hótel Borg, mánudagskvöld-
ið 2. ág. kl. 10, fyrir félagsmenn
og gesti þeirra.
Auk þess mun ríkisútvarpið
helga verzlunarmönnum dag-
skrá sína og hafa einstakir lið-
ir hennar j>egar verið ákveðnir.
Hefst hún með ávarpi for-
manns félagsins, Hjartar Hans-
sonar, en Vilhj. Þ. Gíslason
flytur erindi um 2. ágúst og
Árni Jónsson frá Múla talar
fyrir minni verzlunarstéttarinn-
ar. tJtvarpshljómsveitin mun
liinsvegar annast hljómleika-
atriðin, bæði á undan og eftir
ræðunum og eins á milli jæirra.
Telja má víst að fjöldi verzl-
unarmanna hverfi úr bænum
um 2. ágústhelgina, svo sem
]>eirra hefir löngum verið venja.
En jafnframt má húast við að
þeir vilji fullkomna ánægju
sína með því að sækja dans-
leikinn að Hótel Borg á mánu-
dagskvöldið. Seinna verður aug
lýst í blöðunum hvar og hve-
nær aðgöngumiðar verða seldir.
Hafnarfjöröur:
Snndlangiimi
ad verda lokið.
Sundlaug Hafnarfjarðar er
nú svo langt komin, að hún
verður vígð um mánaðamótin.
Laugin er 12x25 m. að stærð.
Verður hún opin til að hyrja
með, en siðar er ákveðið, að
byggt verði yfir hana. Vatnið í
henni Verður hitað mgð kola-
kyndingu.
Vandað er mjög til laugar-
innar og gengur framkvæmd
verksins vel.
Gullbrúðkaup
eiga í dag merkishjónin Ólína
SigurSardóttir ljósmóðir og Jón
Bjarnason, Skagaströnd.
Rannsóknarstofa háskólans
beinir þeim tihnælum til fólks,
sem er nýstaÖið upp úr mislingum
og vill gefa blóÖ, a'ð það gefi sig
fram í síma 3233.
hafa, hinsvegar að við mætum
Dönum ekki til að sækja rétt
okkar í jxúrra hendur, heldur
sem jafningjar, þannig að verið
væri að svipta okkur rétti, ef á
einhvern hátt yrði reynt að
hagga við fengnu sjálfstæði
jijóðarinnar. Á þessu tvennu er
töluverður eðlismunur, og liann
svo auðsær, að engum heilvita
manni, sem nokkuru sinni hef-
ir við samninga fengizt, dettur
Skipverjar á Súðinxti
þakka brezkum tog-
aramönnum fyrir
hjálp.
8. júlí færði Pétur Bjarnason,
fyrsti stýrimaður á Súðinni,
hrezku sendisveitinni þakkar-
ávarp til ónefndra brezkra tog-
araskipshafna fyrir aðstoð eftir
loftárás þýzkra flugvéla á Súð-
ina.
Brezki sendiherrann jjakkaði
ávarpið og kvaðst vera viss um,
að skipstjórn og áhafnir hinna
hrezku togara myndi fagna
jjessum jjakkarvotti enda væri
sér óhætt að segja, að lijálpin
hefði verið glöðu geði veitt.
Vottaði hann fyrir jæirra hönd
dýpstu hluttekningu ættingjum
j>eirra, sem fórust í árásinni.
Meðal jæirra skipa, sem j>átt
tóku i björgunarstarfinu var
togarinn „War Grey“, sem fyr-
ir nokkru var tekinn af „Ægi“
sunnan við Vestmannaeyjar,
eftir að skipstjórinn, Agerskow,
liafði neitað að hlýðnast varð-
skipinu „Sæbjörgu“. „War
Grey“ dró Súðina í ljósum log-
um til Húsavíkur og setti sjálf-
an sig í hættu til að slökkva
eldinn, j>egar í höfn var komið.
Veitir henni mikla
áverka.
Sá atburður gerðist í fyrra-
kveld á Seyðisfirði, að setuliðs-
maður réðst á konu og veitti
henni allmikla áverka.
Kona þessi var á leið lieim til
sín til Vestdalseyrar fráFjarðar-
öldu klukkan 8.15, þegar her-
maðurinn réðst á liana. Hafði
hann spýtu að vopni og barði
konuna með henni, en greip
auk þess grjót og barði hana
með því líka. Loks varpaði
hann konunni tvisvar í götuna.
Hlaut hún mikla áverka, svo að
það varð að flytja hana í sjúkra-
hús til að gera að sárunum.
Maðurinn liefir verið liand-
samaður. Hefir j>etta ódæði
vakið hinn mesta óhug á Seyð-
isfirði. Fréttaritari.
Aöalfundur
L.B.K.
Fjórði aðalfundur landssam-
bands blandaðra kóra og
kvennakóra var haldinn í
Reykjavík dagana 28.—29. júní
1943.
Upptökubeiðni harst sam-
bandinu frá söngfélaginu
„Havpa“ í Reykjavík, og var liún
samþykkt með samhljóða at-
kvæðum. Á fundinum mættu
fulltrúar frá öllum sambands-
kórunum, og eru nú í Samband-
inu sjö kórar með um 220 með-
limum.
Formaður Sambandsins Jón
Alexandersson gaf skýrslu um
störf j>ess á liðnu starfsári:
Stjórn sambandsins x-eyndi eftir
föngum að útvega sambands-
kórunum söngkennara, en eins
og nú standa sakir, er mjög
mikil vöntun á liæfu fólki, sem
hefir getu og vilja til að inna
slíkt starf vel af hendi.
Þessir sambandskórar sóttu
um og fengu styrk til söng-
kennslu á árinu:
Kantötukór Akureyrar, söng-
kennai’i frk. Guðrún Þorsteins-
dótlir, Sunnukórinn, ísafirði,
söngkennari frú Jólianna John-
sen, Söngflokkurinn „Húnar“,
Rvík, söngkennari hr. Áskell
Jónsson.
Samkvæmt ákvörðun siðasta
aðalfundar var gefið út I. hefti
af söngvasafni L. B. K. og sá
Bjöi-gvin Guðmundsson tón-
skáld á Akureyri um útgáfu
þessa heftis, ásamt Jónasi Tóm-
assyni. 1 j>essu hefti eru 12 lög,
öll eftir íslenzka höfunda, og er
ætlun sambandsins að hæta úr
vöntun á aðgengilegum léttum
lögum fyrir blandaða kóra,
létta nótnaskrift af lcórunum,
og kynna ísl. tónlist, — auk
j>ess er nauðsynlegt að kórarnir
liafi gx’eiðan aðgang að lögum
með sömu útsetningu, sé um
sameiginleg söngmót að ræða.
Ætlazt er til að út korni eitt til
tvö hefti á ári. Þau eru fjölrituð,
og fá sanibandskórai’nr j>au
með kostnaðarverði. Síðar er
ætlun sambandsins að úrval af
lögum úr heftunum komi út í
vandaðri útgáfu.
Áætlað var að vei-ja allt að
3.500 kr. til söngkennslu á næsta
ári.
Stjórn sambandsins var öll
endurkosin og skipg hana: For-
maður Jón Alexandersson for-
stöðumaður; ritari Guðm.
Benjamínsson klæðskeram.;
gjaldkeri Bent Bjarnason bók-
ari.
Frð Vestur-íslenðinoom.
Mountain, N. D. — Síra Har-
aldur Sigmar i Mountain North
Dakota, var kjörinn forseti ís-
lenzk-Lútherska Kirkjuþings-
ins í Ameríku, er það var að
ljúka störfum 21. júni, en j>að
var lialdið í sókn hans. Hann er
eftirmaður síra Kristins K. Ól-
afssonar, sem liefði gegnt Jæssu
starfi um 20 ár. Síra Kristinn
K. lÓlafsson var þangað til fyrir
skömmu prestur ísIenzk-Lút-
herska safnaðarins í Seattle,
Wasli., en dvelur nú í Gliicago,
j>ar sem liann hefir með hönd-
um lieimatrúboð meðal safn-
aða, sem ekki liafa prest að
staðaldri.
Síra Haraldur Sigmar, hinn
nýi forseti Kirkjuþingsins, er
fæddur í Argyle landnámi ná-
lægt Glenboro í Manitoba,
hundrað míl. vestur af Winni-
peg. Báðir foreldrar hans voru
ættaðir úr Suður-Þingeyjarsýslu
og liafði fjölskylda Haraldar
Sigmars lengi verið ein liin
merkasta í Argyle landnáminu.
Kona hans Margrét er dóttir síra
Steingríms heitins Þorláksson-
ar, eins hinna fyrstu íslenzku
Scrutator:
JlaAjcLbt GJhnwwunjys
annað í hug, en að íslendingum
beri að skapa sér þá beztu að-
stöðu, sem fáanleg er við samn-
ingaborðið á sínum tíma.
Einstaka menn segja sem svo,
að ekki skipti mál'i, hvort við
öðlumst sjálfstæðið 17. júní
1944 eða 17. júní 1945. Falli
skuld í gjalddaga árið 1944, er
það ekki sama og að hún geri
það árið 1945, en þá skuld eig-
um við íslendingar okkur sjálf-
um að gjalda, að ehdurheimta
sjálfstæðið strax og færi gefst á.
Hver getur fullyrt að núverandi
styrjöld verði lokið fyrr en um
1950, jxítt allir voni að sjálf-
sögðu að henni verði lokið
miklu fyrr? Örlögin liafa hagað
j>ví svo, að við íslendingar erum
}>ess albúnir, — og höfum raun-
ar Jægar tekið öll okkar mál í
eigin hendur, — og hvers vegna
skyldum við þá tvínóna eða
hopa' í sjálfstæðismálinu?
Greiðslur allar fari fram á
gjalddaga, enda leiða ástæðu-
lausir frestir yfirleitt til fullra
vanskila. Það ætti formaður
Alþýðuflokksins að vita manna
bezt.
Stórfréttir.
Landganga bandamanna á Sikil-
ey er í tölu merkustu frétta af
stríðinu. Hér hefir öðru hverju,
síðan á útvarpskvöldi blaðamanna,
verið vikið eylítið að vinnubrögð-
um blaðamana, og því ekki úr vegi
að segja í stuttu máli frá, hvernig
]>essi frétt barst hingað og í hvaða
röð. Á laugardaginn stóð svo á, að
gengið hafði verið frá 2., 3. og
4. síðu blaðsins kvöldinu áður, því
að sakir þess hve vinna hættir
snemma í prentinu á laugardögum
á sumrin, vinnst ekki tími til þess
að morgninum að ganga frá nema
forsíðunni — nýjustu fréttum.
Klukkan sjö hefst vinnudagurinn
með því að ritstjóri erlendu frétt-
anna hlustar á útvarp á þýzku frá
London. Þennan morgun var um
að ræða stórfrétt, og þurfti því að
hafa hraðan á. Fréttaskeytin eru
sótt á símastöðina. Það fyrsta hef-
ir komið klukkan 5.03 og er „flash“
(leiftur), það er að segja örfá orð
til að undirbúa aðalfréttina. Eg
birti skeytin hér í réttri röð og
set þau til gamans á það, sem
einna næst kemst ensku frétta-
skeytamáli. „Leifturskeytið" hljóð-
ar svo: „Bandamenn landsetja á
Sikiley". Næsta skeyti er sent sjö
mínútum síðar frá London og kem-
ur tveim mínútum síðar hingað:
„Viðbót herstjórnartilkynning Eis-
enhowers gæsalappir undanfari
landsetningar loftárásir stop flota-
styrkur verndaði árásarliðið og
uppihélt skothríð strandvirki með-
an á rásinni stóð endir texta.“ Hið
þriðja kemur svo tuttugu og þrem
mínútum síðar: „Leiftur — Eisen-
hower útvarpaði Frakka lýsti Sikil-
eyjarinnrás gæsalappir fyrsta stig
endurlausnar Evrópú'. Eftir 51
mínútu kemur svo nánari skýring
á þessu: „Útvarp Eisenhowers
orðrétt gæsalappir enskamerískar
hersveitir hófu í dag hernaðarað-
gerðir Sikiley stop þetta er fyrsta
stig endurlausnar meginlands Ev-
rópu stop fleiri munu á eftir
koma“. Nokkru síðar framhaldið:
„Framhald útvarps Eisenhowers:
Eg skora á frönsku þjóðina vera
rólega og láta eigi blekkjast af upp-
spuna sem óvinirnir kunna að breiða
út stop útvarp bandamanna mun
fræða ykkur um allar- hemaðar-
fréttir stop eg treysti á rólyndi yð-
ar og aga rasið ekki um_ ráð fram
því að óvinirnir hafa auga með ykk-
ur stop hlustið á útvarpið og trúið
ekki lausafregnum heldur berið þær
gaumgæfilega saman við þær réttu.“
Lokakaflinn úr ávarpi Eisenhowers
kom síðan í sérstöku skeyti óg loks
tvö skeyti um landgönguna: „Út-
varpið Algier segir bandamenn hafa
lent klettaströnd vesturodda Sikil-
eyjar 260 mílur frá Róm“ og „við-
bót Algier radió landsetning í góðu
veðri gegn harðri mótstöðu þýzkra
og ítalskra loftsveita varnarlið
ippsprengdi hafnarmannvirki.“
Klukkan átta hefst vinna í prent-
smiðjunni og setjararnir hamast við
að koma fréttunum sem allra fyrst
á prent. Litill tími vinnst til að
sinna öðrum fréttum. Aðeins stutt-
lega getið um Rússland og ekki um
Nýju-Guineu. Allt víkur fyrir að-
alfréttinni. Til allrar hamingju var
Vísir undir þessi tíðindi búinn. Tvær
greinar hafa beðið settar, önnur
fræðigrein um Sikiley, hin eftir
Morley Richards um varnir ítalíu.
Klukkan níu er blaðið komið í
pressuna, klukkustund fyrr en á
laugardaginn var, og klukkan tæp-
lega hálf-ellefu fara fyrstu eintök-
in út á götuna. Klukkan ellefu er
hlustað aftur á ,útvarp, og síðustu
fréttum bætt inn, þar sem áður var
sagt frá loftárás á færeyskt skip, og
þegar vinnu lýkur um eftirmiðdag-
inn, hefir stærsta upplag Vísis ver-
ið fullprentað.
Það er nú það.
Mussolini segist vera með her-
sveitum sínum á Sikiley í anda.
Hinsvegar tjánst doktor Göbbels
vera með þýzka hernum þar í sann-
leika.
presta vestra, en liann lézt í
febrúar síðastliðnum.
Síra Haraldur Sigmar varð
fyrst prestur í Vatnabyggð og
einnig nálægt Wynyard, Saskat-
chewan, en fyrir 15 árum síðau
tók hann að l>jqna 6 söfnuðum
í Pembia lirepp, N. D. Sonur
lians, Haraldur, var á sömu
preslastefnunni, sem lieiðraði
föður hans með forsetakósn-
ingu, kjörinn prestur við söfn-
uðinn í Seattle. Annar sonur
hans, Eric, sem er söngvari góð-
ur mun einnig leggja stund á
guðfræðinám.
Annar athyglisverður atburð-
ur, sem skeði á liinum árlega
fundi Kirkjuþingsins, sem nú
var lialdið í 59. sinn, var að ný
grundvallarlög voru samþykkt
fyrir kirkjuna, en ]>au voru
samin af nefnd, sem Hjálmar
Bergman, hinn kunni lögfræð-
ingur í Winnipeg, var formaður
fyrir.
Kvikmynd af heim-
sókn Stimsons,
Meðan Henry Stimson her-
málaráðherra Bandaríkjanna
var hér á laugardag og sunnu-
dag voru teknar kvikmyndir
af öHum ferðum hans.
Myndir j>essar, sem voru tekn-
ar af liernum, voru tafarlaust
sendar til Bandaríkjanna og
munu vera komnar til Washing-
ton. Sýndu j>ær meðal annars
hersýninguna, sem hér fór
fram og heimsóknir Stimsons til
herstöðva. Verða þær geymdar
í myndasáfni liersins.
Myndir þær, sem birtust hér
í blaðinu í gær, voru teknar af
U. S. Army Signal Corps. Láð-
ist að geta þess í blaðinu.
Ameríska útvarpið
Valdlmar Bjðrnsson nm
Vestnr-Islendinga.
Hjörvarður Árnason liefir í
dag samtal í ameríska útvarpinu
við Valdimar Björnsson sjó-
Iiðsforingja um Vestur-íslend-
inga. Samtal J>etta er liið átt-
unda í röðinni um íslenzk efni,
og hafa j>essir áður talað:
Vilhjálmur Þór utanríldsráð-
lierra, flutti hernum boðskap;
prófessor Sigurður Nordal, um
landnám Islands; Ásgeir Ás-
geirsson um sjálfstæðisbaráttu
íslendinga; Bjarni Benedikts-
son, um stöðu íslands í heimin-
um; Jón Árnason, um landbún-
að; Ólafur Thors, um sjávarút-
veg og Guðmundur Finnboga-
son, íslenzkt þjóðerni.
Á meðal þeirra, sem átt verð-
ur tal við á næstupni í þættin-
um „Samtal um Island“, eru
Jónas Jónsson, Sigurgeir Sig-
urðsson biskup, Emil Thorodd-
sen, Halldór Kiljan Laxness,
Jón Þorleifsson og Lárus Páls-
son. Verður J>ar rætt um mepmt-
un, trúarbrögð, bókmenntir og
listir og um landafræði og jarð-
fræði íslands. 1
Tilgangurimi með j>essuni
samtölum er í fyrsta lagi, að
sýna almenna mynd af Islandi
og í öðru lagi að bregða upp
myndum af sérstökum atriðum
í lifi Islands. Þessi j>áttur hefir
/vakið mikinn áhuga á meðal
hermannanna og hefir eignazt
allstóran hóp hlustenda. Þáttur-
inn stendur venjulega í 15 mín-
útur og hefst kl. 4:25 á þriðju-
dögum.
Veggfóður
Peasillinn
Laugavegi 4. — Sími 2131.