Vísir - 21.07.1943, Page 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn Slml:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsla
33. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 21. júlí 1943.
163. tbl.
Þeir íéllu í Tunis.
Þessar myndir eru frá síðustu dögum bardaganna í Túnis. —
Neðri myndin er af þýzkum hermanni, sem fallið hefir við
sprengjukastara sinn. Þetta er ný tegund af þessu vopni —
sexhleypt — og var fyrst notuð i N.-Afríku. — Efri myndin
er af ítala, sem fallið hefir við bátinn, sem hann liefir ætlað að
flýja á frá Turiis.
Eúiiar brjótait yfir
Donetz* og: Uini-ár.
Taka mikilvægar borgir hjá Orel.
Rússar tilkynntu það í gær, að hersveitir þeirra hefði brotizt
yfir Bonetzfljót ofarlega og Mius-á. Var þetta fyrir
sunnan Isyum og suðvestan Voroshilovgrad. Þjóðverj-
:ar voru búnir aS segja frá sóknaraðgerðum Rússa þarna, en
þeir könnuðust ékki við það fyrr en í gær.
Rússar segja þó, að þetta sé
ekki upphaf sóknar af þeirra
hálfu, en framsveitaskærur
hafi jafnt og þétt vei’ið að fara
í vöxt, svo áð það hefði mátt
búast við því, að úr þeim yrði
stórorusta.'HersíjöniRússa hefði
því fyrirskipað þessar árásir,
til þess að lxafa betri aðstöðu, ef
til störtíðinda skyldi draga.
Mesjensk og Voro-
shilovo á váldi Rússa.
Hersveitir þær, sem sækja að
'Orel úr þrem áttum tóku í gær
tvær borgir, sem eru mjög mik-
ilvægar. Önnur er Mesjensk,
:sem er um 50 km. norðaustur
af Orel á þjóðveginum til
Moskva. Var hún erfiður þrösk-
aildur á vegi Rússa.
Hin borgin er Vorosliilovo,
rúmlega 30 km. fyrir austan
Orel. Um hana liggur járn-
brautin til Stalingrad. Annars
segjast Rússar liafa sótt fx’am
5—8 km. alls staðar á vígsöðv-
unum í nánd við Orel og eru
sagðir aðeins rúma 10 km. fiá
járnbrautinxxi.
Horfur eru nú orðnar
ískyggilegar fyi’ir þá 250.000
Þjóðverja, sem verja Orel, því
að aðeins um 85 km. eru milli
vinstri og bægri fylkingararma
Rússa.
Beaufighter flugvélar Bi-eta
löskuðu tvö skip undan Hol-
landi í gær og skutu niður 8
flugvélar í bardögum.
llitler og Mu§so-
liiii liittast.
Hitler og Mussolini hafa hitzt
öðru sinni á þessu ári — í fyrra-
dag — og fundust þeir í borg
einni á Norður-Ítalíu.
í tilkynningu, sem var gefin
út um fundinn í gær, er lítið
sagt annað en að fundurinn hafi
átt sér stað og að þeir hafi rætt
hernaðarmál. Byi’juðu viðræð-
urnar snemma morguns og var
lokið eftir hádegi.
Þýzkur fréttamaður, sem rit-
að hefir um fundinn, segir að
það megi sjá af því, hvernig til-
kýnningin er oi’ðuð, að þeir leið-
togarnir liafi i-ætt blált áfram
um vandamál sín, án þess að
reyna að gylla þau fyrir sér.
Hörð árás á Malta.
Loftárás var gerð á Malta í
gær og var hún sú harðasta í
sjö mánuði.
Hei’naðaryfirvöldin á eynni
segja, að árásin hafi vei’ið stutt,
en miklu sprengjumagni kastað
niður á þeim tíma. Loftvarna-
byssur eyjarinnar skutu af
miklu kappi á flugvélarnar, en
þess er ekki getið, að nein þeirra
lxafi verið skotin niður. Það
vekur nokkra athygli í sam-
bandi við árásina, að það er
elcki minnzt á það, að orustu-
flugvélar liafi ráðizt á árásar-
vélarnar.
SIKILEY :
! Lítil sem engin mótspyrna
vestan til á vígstöðvunum.
llöudnlyeldin ætia bersýnilcsra aö verjasí í uorðanstnrhornl eyjarinnar
Auðvelt að rata á eynni
Bláfellshál§ «Sær,
Það voru einna merkastar fregnir í morgun, að
Bandaríkjamenn segjast iiu mæta hverfandi
lítilli mótspyrnu í sókn sinni vestast á víg-
stöðvunum á Sikiley, þar sem þeir stefna í vestur og
norðvestur. Er þetta þeirn mun eftirtektarverðara, að
það voru Bandaríkjámenn, sem áttu í hörðustum har-
dögum frá byrjun innrásarinnar.
Það var greinilegt, þegar bandamenn í’éðust á land, að mönd-
ulherstjórnin hafði skipað; megnhm af liði shm vestan til á
eynni og virtist alls ekki gera ráð fyrir þvi, að innrás mundi
koina austar en Gela, því að þar fyrir austan var raunverulega
ekki um neinai’ varnir að ræða.
vegi verið teknir niður. „Það er
Nú síma blaðamenn liinsveg-
ar frá Norður-Afi’íku éða víg-
stöðvunum sjálfum, að flug-
menn hafi að undanförnu gefið
skýrslu um það, að lierflutn-
I ingar væri mildir frá Vestur-
Sikiley austur á eyna. Telja þeir,
að möndulhei'inn sé að flytja
lið sitt þaðan til þess 1) að forða
því frá að verða innikróað ef
handamenn geta bi’otizt til
norðurstrandarinnar, og 2) til
þess að verja norðausturhorn
eyjarinnar, meðan þess er nokk-
ur kostur.
Lokaáhlaupið
á Catania.
8. herinn er nú að draga að
sér meira lið, vegna lokaárásar-
innar á Catania. Blaðamaður
einn simar, að möndulherinn
hafi komizt að því i Norðui*-
Afríku, hvað slík hlé táknuðu
lijá honum og þvi reyndu Italir
og Þjóðverjar að tefja undir-
búninginn með þvi að gera mörg
gagnáhlaup með skriðdrekum
og iniklu fótgönguliði.
Hermann Göring-bryndeildin
gerði í fyrradag og í gær marg-
ar slíkar truflunarárásir, en
þeim var öllum hrundið. Bretar
hafa komið sér örugglega fyrir
norðan við árósa nokkura, sem
eru skammt fyrir sunnan Ca-
tania.
Blekkingar.
Þótt Kanadamenn eigi við all-
mikla mótspyrnu að stríða, þá
segja þeir, að liún sé ekki eins
mikil og oft megi búast við og
noti ítalir og Þjóðverjar mikið
blekkingar, lil að tefja fyrir
þeim. Meðal annars liafa þeir
útbúið mörg fallbyssustæði og
vélbyssubreiður til blekkingar
en hafa þar hvorki menn né
vopn. Getur þetta tafið mjög
fjn’ir þeim, sem sækir ú.
ÖH vegamerki
enn uppi.
Einn af brezku blaðmönnun-
um segir, að ekki beri enn á
neinu eyðileggingarstarfi mönd-
ulhersins á undanbaldinu. Korn
á ökrum er ekki brennt og hús
yfirleitt óskemmd, nerna þau
liafi orðið fyrir fallbyssuskot-
um eða verið barizt um þau.
Eitt af því, sem þessi blaðamað-
ur rak sérstaklega augun í, var
að hvergi höfðu leiðarvísar við
auðveldara að rata á Sikiley en
á Bretlandi fyrir fáeinum mán-
uðum, áður en vegamerkin voru
sett upp aftur þar,“ segir blaða-
maðurmn að lokum.
Fluglið frá Rússlandi.
Á sumum. af flugvöJlum þeim,
sem bandam.enn liafa náð á vald
sitt, hafa fundizt ýms skjöl, sem
foringjar vallarins höfðu ekki
tíma til að taka með sér, þegar |
þeir fóru þaðan. Sést af þeim,
að allmikið af þýzku flugliði
liefir verið sent til Sikileyjar frá
Rússlandi skömmu fyrir innrás-
ina.
Salomonseyjar:
Japanskur floti
rekinn burt.
Bandamenn nálgast
Salamaua.
Amerískar flugvélar hafa
rekið japanskan flota á flótta
við Salomonseyjar. Var hann
að reyna að flytja birgðir og
menn til Vila á Kolombangara-
eyju.
í fyrradag urðu njósnarflug-
vélar varar við það, að ellefu
japönsk skip nálguðust eftir
Vella-sundi, sem er milli eyj-
anna Lavella og Kolombangara.
Voru þetta 3 beitiskip, 6 tund-
urspillar og 2 flutningaskip.
Sendu flugmennirnir strax
skeyti til stöðvar sinnar og
sprengjiiflugvélar voru tafar-
laust sendar til árásar.
Þær liéldu uppi árásum alla
nóttina og þegar japölisku skip-
in sáu loks sitt óvænna undir
morgun, var búið að sökkva einu
beitiskipi og tveim tundúrspill-
um, ef til vill þriðja tundur-
spillinum, og laska þann fjórða
og annað flutningaskipið.
Smáskærur liafa verið und-
anfarna daga hjá Salamaua á
Nýju-Guineu. Hafa Japanir
jafnan orðið að láta undan siga.
Er lið bandamanna nú aðeins
um 20 km. frá Salamaua.
Fólk streyiriir nú frá Róm. í
gærkveldi var talið að 166 menn
liefði farizt í árásinni og 1659
særzt.
en Káldidalur og leiðin til Hagavatns fær,
Samkvæmt upplýsingum, sem Vísir hefir aflað sér hjá Geir
Zoéga vegamálastjóra, var vegurinn norður á Kjöl með
öllti ófær um síðustu helgi, en vegirnir til Hagavatns og yfir
Kaldadal eru hinsvegar færir orðnir bifreiðum.
Vegurinn upp á Kjöl var orð-
inn fær bifreiðum fyrir nokk-
uru, en um siðustu helgi hljóp
svo niikil bleyta i veginn, að
liann var með öllu ófær. Telur
vegamálastjóri óráðlegt fyrir
bifreiðar að freista þess að fara
yfir Bláfellsháls að svo stöddu.
Hafði vegurinn yfir liálsinn
verið lagaður og voru bifreiðar
byrjaðar að fara yfir hann. En
i rigningunum um helgina
hljóp svo mikið vatn fram, að
kafhlaup kom í veginn svo að
s
Hann er Itali frá U,S.A.
Það er gert ráð fyrir því í
Washington, að fyrrverandi
varafylkisstjóri í New York-
fylki verði gerður landstjóri á
Ítalíu, þegar bandamenn hafa
tekið hana.
Maður sá, sem hér um ræðir,
heitir Poletti og er af itölskum
ættum. Hann gegnir nú her-
þjónustu og er í foringjaráði
Eisenhowers í' Norður-Afríku.
Starfar hann þar við hina nýju
deild, sem hefir það hlutverk að
stjórna hertekrium löndum fyr-
ir herstjórnina. Hefir mikill
fjöldi foringja og óbreyttra
manna fengið sérstaka tilsögn í
þessum störfum og nokkrir
þeirra eru nú byrjaðir að starfa
á Sikiley undr stjórn Sir Harold
Alexanders.
Poletti liefir þegar komið tii
Sikileyjar eftir innrásina. í
fyrstu var gert ráð fyrir því, að
La Guardia, borgarstjóri í New
York, segði af sér embætti til
að fara til Afríku og gerast
landstjóri á Ítalíu, en frá því
hefir verið horfið aftur.
Síðnstu fréttír
Enna var tekin í nótt og blaða-
menn segja eftir herstjórn
bandamanna, að möndulherinn
sé allsstaðar á flótta nema hjá
Catania. Helmingur Sikileyjar
er á valdi bandamanna.
Bandaríkjamenn reka flótta
2 óæfðra ítalskra herdeilda, sem
að sögn fanga eru vélahersveit-
ir, en hafa verið sviftar öllum
farartækjum sínum af Þjóð,-
verjum, sem hafa flutt þau til
norðausturhorns eyjarinnar.
bifreiðar sátu fastar og má gera
ráð fyrir að vegurinn verði ó-
fær fyrst um sinn.
Á Kili er sæmilegur vegur og
hafa bifreiðar farið bæði norð-
ur á Hveravelli og austur í
Kerlingarfjöll. Ekki komast bíl-
ar þó lengra en að Árskarðsá
vegna snjóskafla handan árinn-
ar. Er geysimikill snjór sagður
í Kerlingarfjöllum. Sæluhúsin
á Kili eru öll í ágætasta lagi,
nema livað miðstöðin í Hvera-
vallahúsinu þarf litilsháttar að-
gerðai’ við. Hefir kísill safnazt
í ketilinn og þarf að hreirisa
hann.
Veguririn frá Gullfossi að
Ilagavatni hefir verið lagaður
og er fyrir nokkuru orðinn fær
bifreiðum. Ennfremur er
Kaldadalsvegur orðinn fær.
Nokkur viðgerð hefir verið
framkvæmd á veginum í Húsa-
fellsskógi i vor og þar er liann
allgóðiu’ orðinn, en að öðru
leyti hefir lítil eða engin viðgerð
farið franí á Kaldadalsveginum.
M.s. Fagriklettur
smíðað á Akureyri.
Á laugardagsmorgun hljóp
125 smálesta fiskiskip af stokk-
um á Skipasmíðastöð Nóa Krist-
jánssonar á Akureyri og hlaut
nafnið „Fagriklettur“. Skipið er
hyggt úr eik, mjög vandað, 30
metra langt, 6 metra breitt og
3x/z m. á dýpt, gengur fyrir 280
lia. dieselvél. Eigandi er H.f.
Fiskaklettur i Hafnarfirði.
Loftárás á Japan
Amerískar flugvélar hafa nú
gert fyrstu loftárás sína á Japan
sjálft, síðan ráðizt var á Tokyo
á síðasta ári.
Var ráðizt á eina af éyjunum
i Kuril-eyjakeðjunni, sem
teygir sig mörg hundruð ldló-
metra í norður frá Japan, alla
leið til Kamchatka-skága í
Sibiriu. Ein af nyrztu eyjunum
er Paramushiro, sem nú varð
fyrir árás.
Þar er mikil flotabækistöð,
sem um liefir farið allt það lið,
sem Japan hefir sent til Aleut-
eyja. Brunnu eldar við höfnina,
þegar Liberator-vélarnar snéru
frá, en auk þess var sprengjum
varpað á skip ó siglingu skammt
frá eynni.
Flugleiðin frá Attu er 1300
km., en til Tokyo frá Paramuz-
hiro eru 2400 km.