Vísir - 21.07.1943, Blaðsíða 3
VISIR
Verzlun og samgöngur 1942
Úr skýrslu Landsbankans.
REIKNINGUR LANDSBANKANS fyrir 1942, sem út kom í
gær, og fylgir honum að venju ítarleg skýrsla um afkomu
þjóðarinnar á því ári. Hér birtist kaflinn um verzlun og sam-
göngur á árinu.
Eins og getið var um í árs-
skýrslu 1941, óx verzlunarvelta
mjög mikið á því ári. Tala lieild-
og umboðssöluverzlána í
Reykjavík var 152 í árslok 1941,
samkvæmt verzlunarskýrslum,
en 92 árið áður, og tala smásölu-
verzlana 672, á móti 538 árið
1940. Samsvarandi tölur fyrir
fastar verzlanir utan Reykjavík-
ur voru 539 og 522. Tölurnar
bera með sér, að þróunin liefir,
hvað þessu viðvíkur, verið allt
önnur í Reykjavík en annars- I
staðar á landinu. Árið sem leið
fór verzlunarvelta enn mjög í
vöxt og voru orsakir liinar
sömu og áður, mikil vörueftir-
spurn almennings og kaup af
hálfu setuliðsmanna. Útþenslan
var eins og áður langmest í
Reykjavík. Þar voru á árinu gef-
in út 105 (76) smásöluleyfi, 54
(51) stórsöluleyfi og 1 (6) um-
boðssöluleyfi. Þessi aukna verzl-
unarvelta er að langmestu leyti
í innflutningsvörum, eins og út-
futningsskýrslurnar bera greini-
lega vott um. Innflutningur alls- (
konar neyzluvara jókst þannig
yfirleitt mjög mikið á siðasta
ári. Vefnaðar- og fatnaðarvöru-
innflutningurinn nam 47,9 millj. j
kr. á móti 26,6 millj. kr. árið
áður. Innflutningur skófatnaðar j
jókst úr 2,9 millj. kr. í 5,4 millj.
kr. Árið sem leið voru fluttar
inn frá Ameríku ýmsar matvör-
ur, sem ekki hefir verið leyfður
innflutningur á undanfarin ár,
svo sem margskonar niðursuðu-
vörur. — Verzlun var meiri en
áður i flestum öðrum neyzlu-
vörum, sem liægt var að auka
framboð á til móts við vaxandi
eftirspurn. Á sumurn innlend-
um vörum var framboð ekki
nægilegt til þess að fullnægja
eftirspurninni. I Reykjavik var
með köflum erfitt að fá fisk.
Nokkur hörgull var á smjöri,
osti og eggjum, og fór þvi til-
tölulega mikið af þessum við-
skiptum fram utan við sölubúð-
irnar. — Mjólkursamsalan i
Reykjavik seldi á árinu 7 456
(6 830) þús. lítra af mjólk —
þar af 282 (208) þú's. lítra til
mjólkurbúsins i Hafnarfirði —
338 (281) þús. lítra af rjóma,
335 (328) þús. kg. af skyri og 56
(102) þús. kg. af smjöri. Mjólk-
ursamsalan hefir ein með hönd-
um sölu á rjóma og skyri i
Reykjavík, en smjörsala hennar
er ekki nema hluti af heildar-
sölunni. — Verzlun með inn-
lendar iðnaðarvörur var álíka
og árið áður. Innflutningur á
komvörum og sykri var áfram
i höndum Innflytjendasam-
bandsins og Sambands ísl. sam-
vinnufélaga, eins og verið liefir
frá haustinu 1939. Þessir aðilar
liöfðu líka á liendi megnið af
þeim innflutningi af nýjum
þurrkuðum ávöxtum, sem
leyfð'M- var á árinu.
Sigbngar.
Á iðasta ári liéldu 3 (5) að-
ilar, 2 (4) innlendir og bi-ezka
lierstiórnin, uppi siglingum
milli Islands og útlanda, með
skipum, sem fluttu vörur til
þarfa landsins. Voru ferðir hing-
að 93 (108), þ. e. 45 (53) frá
Bretlandi, 47 (54) frá Ameríku
og T (1) frá Portugal. Allar
ferðirnar frá Bretlandi voru
með skipum á vegum herstjórn-
arinnar, en Eimskipafélag Is-
lands annaðist afgreiðslu þeirra
hér. Fluttu þau jöfnum hönd-
urn vörur fyrir Islendinga og
setid'^ð. Að auki voru eins og
veniulega oliuskip, og skip, sem
flut ’ >á Bretlandi farma af
þun ’ öru, salti, kolum og
sementi. ÖIl sex skip Eimskipa-
félagsins voru i Ameríkusigling-
um allt árið, og voru hingað-
komur þeirra samtals 24. 20
ferðir voru frá Ameríku með
erlendum sMpum, sem Eim-
skipafélagið liafði á leigu, ýmist
fyrir einstakar ferðir eða til á-
kveðins tíma. Loks fór eim-
skipið Katla 3 ferðir lil Amer-
íku. Eimskipafélagið liafði það
skip á leigu, eftir að það kom
úr Portugalsferð snemma á ár-
inu. — Vöruflutningar frá Bret-
landi gengu mjög greiðlega, þar
sem nægur skipakostur var fyr-
ir hendi. Aftur á móti voru
rniklir erfiðleikar á flutningum
frá Ameriku. Bæði vai’ það, að
flutningsþörfin óx mjög, og að
skipakosturinn nýttist enn verr
en áður. Hin 6 skip Eimskipa-
félagsins fóru aðeins 4 ferðir á
árinu hvert. Auk þess, sem sigl-
ingar tólcu langan tíma, urðu
tafir vegna plássleysis í Reykja-
víkurhöfn. Heita má, að stöðugt
lægju miklar vörur vestra og
biðu eftir flutningi. Sama og
ekkert var flutt fyrir setuliðið
með skipum þeim, er Eimskipa-
félagið liafði í Ameríkusigling-
um. Flutt voru til landsins með
þeim 90 550 (64 635) tonn af
vörum. Flutningsgjöld í Eng-
landssiglingum voru óbreytt á
árinu, 200% yfir fvrirstríðstöxt-
um. Ifinn 11. ágúst voru farm-
gjöld í Ameríkusiglingum
hækkuð um 50%, og 31. októ-
ber voru þau hækkuð á ný, um
25%. Með því var hækkunin
á gegnumgangandi fyrirstríðs-
taxta orðin 265,6%. Hækkunin
náði til skömmtunarvara og
smjörlíkisolíu, en árið 1941 voru
þessar vörur undanþegnar þeirri
farmgjaldahækkun, er þá var
gerð.
setuliðið greiddi i bensínskatt
til viðhalds vega. I júlí 1942 voru
í landinu 1 694 (1 165) vöru-
bifreiðar og 1 504 (1 311) fólks-
bifreiðar, þar af 146 (133) far-
þegabifreiðar með rúm fyrir
fleiri en 6 farþega. Á tímabil-
inu frá 1. júlí til ársloka bættust
við 391 fólksbifreiðar og 254
vörubifreiðar.
Sími og póstur.
Tala simskeyta, sem send
voru til útlanda á árinu, var
81 000 (86 500), en auk þess
voru send álika mörg símskeyti
fyrir setuliðsmenn, samkvæmt
sérstökum samningi. Tala
sendra innanlandsskeyta var
333 700 (297 500).
Árið 1941 var tala bréfapóst-
sendinga innanlands 3 355 000
(1940: 2 955 000), en bókfærðra
sendinga (að undanskildum
skrásettum sendingum) 258 900
(1940: 205 600). Árið 1941 voru
send til útlanda 266 700 (1940:
176 400) bréfasendingar og 1800
(1940: 1 350) bókfærðar send-
ingar.
Sýningaxflokkur Armanns
kominn úr norðurförinni.
Sýningarflokkur Ármanns kom heim í fyrrakvöld eftir hálfs
mánaðar ferðalag um Norðurland. Voru haldnar níu sýn-
ingar fyrstu sjö dagana, en síðari vikan var sumarfrí þátttak-
endanna.
Strandferðir.
Skipaútgerð ríkisins hafði,
auk strandferðaskipanna
tveggja og Þórs, í strandferðum
31 (31) gufu- og mótorskip, sem
ýmist voru tekin á leigu eða á
vegum Skipaútgerðarinnar að
einhverju leyti. yiðkomuhafnir
voru 1 963 (um 2 000) og flutt
vörumagn með öllum slcipunum
nam 54 000 (um 45 000) tonn-
um. Tala farþega var 20 705
(um 20 000). Talsverðir örðug-
leikar voru á að fullnægja
flutningaþörfinni. Þurfti að um-
hlaða mikið af þeim vörum,
sem komu frá útlöndum og áttu
að fara út á land. —> Skip Eim-
skipafélagsins fóru 20 (19)
stiiandferðir og koniu á 111
(118) hafnir utan Reykjavíkur.
— Ifinn 23. september hækkaði
Skipaútgerðin flutningsgjald á
landbúnaðarafurðum um 100%
og á öðrum vörum um 77,7%.
Miðað við fyxírstríðstaxta var
með því hækkun á hinum fyrri
orðin 200%, en hinum síðari
300%.
Flug.
Flugvélar Flugfélagsins flugu
tæplega 114 000 (175 000) kni„
og fluttu rúmlega 1 100 (1 100)
farþega. I apríl eyðilagðist önn-
ur flugvélin, en félagið eignaðist
um líkt leyti tveggja hreyfla
landflugvél, sem ber 8 farþega.
Var hún í ferðum milli Reykja-
víkur og Akureyrar og Reykja-
víkur og Hornafjarðar.
Bifreiðar.
Á árinu var varið til vegamála
úr ríkissjóði 6,8 (4,24) millj. kr.
auk 4,20 (2,23) milljT kr.. sem
Vísir hitti fararstjórann, Sig-
urð G. Norðdahl, að máli í gær
og spurði hann um ferðina. Lét
hann mjög vel yfir henni og
kvað alla þátttakendur vera
mjög ánægða með liana og hinar
alúðlegu móttökur, sem hvar-
vetna voru veittar.
Sýningar fóru fram á
Hvammstanga, Blönduósi,
Varmahlíð, Akureyri, Dalvík,
Siglufirði, Ólafsfirði, Húsavík
og Laugum. Á þessum stöðum
tóku forvígismenn íþróttafélaga
og aðrir góðir menn á rnóti
flokknum og er það ekki of
djúpt tekið í árinni, að þeir hafi
borið Ármenninga á höndum
sér.
Flokkurinn lagði oft mikið á
sig á leiðinni við ferðalögin og
sýningarnar, svo sem á Ólafs-
firði, þar sem sýningin fór fram
eftir miðnætti. En viðtökurnar,
sem hann fékk allsstaðar, gerðu
meira en að vega upp alla ferða-
þreytu.
Á leiðinni hittu Ármenningar
ýmsa aðra íþróttaflokka, svo
sem ÍR-inga. Varð fundur þeirra
í Ljósavatnsskarði, en þó ekki
með sama hætti og annar fund-
ur, sem þar varð fyi-ir um það
bil hálfri tíundu öld.
Flokkurinn fékk yfirleitt
þurrt veður, en sólar naut ekki
að ráði nema tvo daga.
Stúdentastyrkir.
M enntamálaráð úthlutaði á
* fundi sínum s. 1. fimmtud.
námsstyrkjum til fimm nýbak-
aðra stúdenta. Styrkirnir eru að
upphæð kr. 3.600.00 hver og
veittir til f jögurra ára.
Þessir stúdentar hlutu styrk:
Jóliannes Nordal, til náms í
hagfræði í Englandi. Sigurður
Halldórsson, til náms i raf-
magnsverkfræði í Amcríku. Sig-
urður Magnússon, til náms i
vélaverkfræði í Amerilcu.
Sveinn Pálsson, til náms i
tungumálum í Englandi. Frið-
rik Þorvaldsson, til náms í
tungumálum.
Námsstyrkjunum við amer-
ísku háskólana hefir enn ekki
verið úthlutað. Verður það gert
á næsta fundi ráðsins, á morg-
un.
Andrew MacNaughton, yfir-
maður kanadiska hersins á
Bretlandi, er um þessar mundir
á ferðalagi um vigstöðvarnar á
Sikiley.
; ‘ ★
j I gær lögðu 450 börn fra
Dortmund af stað til Búlgaríu,
þar sem þeim er ætlað að vera
að minnsta kosti til áramóta.
Bæjap
fréttír
Nœturakstur.
BifreiðastöS Rvíkur, sími 1720. j
Næturlæknir.
Slysastofan, sími 5030.
Næturvörður.
Laugavegs Apótek.
Eldur
kom í morgun upp í byggingum
Sláturfélags SuSurlands. Kom eld-
j urinn upp í reykofninum, þar sem
; félagið reykir kjöt og kjötafurðir.
1 Kornst eldurinn upp i loftið fyrir
; ofan ofninn, en það tókst fljótlega
að slökkva hann og skemmdir urðu
litlar.
„Dagsbrún“,
ársrit Verkamannafél. Dagsbrún
1943, er komið út og flytur árs-
skýrslu formanns til aðalfudnar 18.
jan. s.l. Félagatala var skv. skýrsl-
unni í árslok 1942 3192, en árið
áður 3070. í ritinu birtast auk þess
hin nýju lög félagsins og reikning-
ar félagsins fyrir 1942. Námu tekj-
ur félagsins alls 75 þús. kr. á ár-
inu, og er það 9 þús. kr. umfram
gjöld. Eignir félagsins nema tæp-
um 200 þús. kr., og er meir en
helmingur þeirra í Vinnudeilusjóði,
eða tæp 107 þús. kr.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20,30 Útvarpssagan: „Liljur
vallarins". Saga frá Tahiti, III
Karl Isfekl blaðamaður). 21,00
Flljómplötur: íslenzkir söngvarar.
21,10 Erindi: Gönguferðir og tjald-
búðalíf (Jón O. Jónsson fulltrúi).
21,30 Hljómplötur: Lagaflokkur-
inn „Gæsamamma" eftir Ravel.
Mótorhjól
til sölu í góðu standi. Uppl.
frá 5—8 á Bjargarstíg 17.
Sultuglös 1/2 kg. kr. 1.45
— 1/1 kg. kr. 1.65
Niðursuðuglös 1/8 gallon
kr. 1.80
— 1/4 gallon kr. 2.40
1/2 gallon kr. 2.90
Flöslculakk og vax.
Betamon.
Vínsýra.
Sultusykur.
Ávaxtalitur.
Cellophanpappír.
Smjörpappír.
Korktappar m. stærðir.
Benzósúrt natron.
Rabarbari.
Laxa*
stengfnr
til sölu. Uppl. lijá Ól. Þórðar-
syni, Mjólkurstöðinni, eftir
kl. 3. —
Chevrolet
pumpur
til sölu. Tilboð óskast sent
til blaðsins, merkt: „Nýjar
pumpur“ fyrir föstudags-
kvöld. —
Vil selja sófa og tvo djúpa
stóla, allt nýtt og vandað. —
Til sýnis á Reynimel 44, niðri,
kl. 18—21 í dag og á morgun.
Flugnasprautur
nýkomnar.
Baronibnð
Hverfisgötu 98.
Sími: 1851.
Skotapilsin
á telpur írá 2ja - 7 ára
komin aftur. Verð frá kr. 15.10
mikið úrval.
Bankastræti 2
TILKYNNING
Byggingarsteinn og aðrar vikurvörur úr Eyrarbakka-
vikri, verður hér eftir einungis til sölu hjá okkur.
Jafnframt er mönnum á það bent, að hverskonar
vikurflutningar frá Eyrarbakka, vestur yfir Hellis-
heiði, eru óheimilir án okkar leyfis.
Pí puverk smiðj an h f.
I
Tilboð
óskast í skipsflakið (framhluta) e.s. „Jotm Randolf",
ásamt öllu skipinu tilheyrandi í því ástamdi, sem það
nú er í í Hvalfirði.
Skipið var byggt í Bandaríkjunum í árslok 1941 og
var 6800 smálestir. Því fylgir nú margskonar verð-
mætur skipsbúnaður, svo sem vindur, keðjur, akkeri
o. m. fl.
Tilboð óskast send undirrituðum, sem gefur allar
frekari upplýsingar fyrir 27. þ. mán.
Áskilinn réttur til að taka livaða tilboði sem er og
hafna öllum.
Gunnap Þopsteinsson,
hæstaréttarmálaflutningsmaður.
Sími: 1535.
Móðir okkar og tengdamóðir,
Þorbjöpg Eggertsdóttir,
andaðist á Landakotsspítala í gærmorgun.
Einar Guðnason.
Gísli Guðnason. Jóna Kristmundsdóttir.
Lára Lúðvíksdóttir. Ágúst Sigurðsson.
Drengurinn minn,
Hjálmar Ámundason
sem andaðist þ. 13. þ. m. verður jarðaður að Hrepphólum
föstudaginn 23. júlí kl. 2 e. m. Kveðjuathöfnin fer fram að
heimili hans, Barónsstig 27, fimmtudaginn 22. júlí kl.
10 árdegis.
Fyrir mína bönd og systkina lians.
Halla L. Loftsdóttir.