Vísir - 06.09.1943, Blaðsíða 2
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteii.n Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgöld 12
(gengið inn frá Ingólfsstrœti).
Símar: 1660 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Launalöggjöfin.
j^F þeim mörgu og merku
málum, sem núverandi
þing mun fjalla um, leikur
ekki vafi á, að launalöggjöfin
mun vera meðal hinna þýS-
ingarmestu. Löggjöf sú, er nú
gildir í þessu efni, er komin
til ára sinna, — var auk þess
ekki fullkomin í upphafi frek-
ar en önnur mannanna verk,
en hefir þó versnað til stórra
muna, vegna margskyns við-
auka og sérlaga varðandi
launakjör, er skapa fullkomið
ósamræmi innbyrðis millum
embættis og sýslunarmanna.
Fyrir nokkrum árum kom það
fram í bíaðaummælum, að af-
tapparinn í Áfengisverzluninni
nyti mun betri kjara en pró-
fessorar við háskólann, og þótt
kjör þeirra kunni að hafa ver-
ið bætt siðan, er það mislit bót
á gamalt fat, sem óhjákvæmi-
lega verður að endurnýja með
öllu, þannig að þjóðin geti bor-
ið það kinnroðalaust.
Allir stjórnmálaflokkar hafa
fyrir löngu viðurkennt nauðsyn
þess, að launaföggjöfin yrði
endurskoðuð, en þetta hefir þó
dregist á langinn, aðallega af
þeim sökum, að flokkarnir
hafa gert sér Ijóst, að launa-
kjör flestra starfsmanna ríkis-
ins eru svo léleg, að engu tali
tekur, og ósamræmið þeirra í
millum svo augljóst, að ef fullt
og eðlilegt samræmi ætti að
fást, yrðu launagreiðslur af
opiniierri hálfu að hækka veru-
lega. Þröngur fjárhagur rikis-
ins hefir vafalaust valdið
nokkru um, að ekki hefir verið
ráðist í endurskoðun launalag-
anna, en í rauninni afsakar
það ekkert, þegar þess er gætt,
að á sama tíma hefir margs-
kyns fjárbruðl átt sér stað, sem
víkja hefði átt fyrir þeirri ó-
hjákvæmilegu nauðsyn, að
launa opinberum starfsmönn-
um sómasamlega störf þeirra,
þannið að þeir þyrftu ekki að
vera bónbjargamenn, eða lifa á
svokölluðum bitlingum eða
aukastörfum. í slíku er fólgin
sú hætta, að margskyns spilling
geti þróast í skjóli hinnar úr-
eltu launalöggjafar, og jafn-
framt að opinber störf verði
unnin á annan hátt en vera
skyldi, — reynast jafnvel frek-
ar hjáverk en aðalstörf. Um
embættismannastéttina yfir-
leitt verður þó ekki sagt, að
hún hafi vanrækt störf sín á
nokkurn hátt, en það er ekki
aðgerðum hins opinbera að
þakka, heldur fyrst og fremst
þeim einstaklingum, sem Iagt
hafa ríkari áherzlu á samvizku-
semi í starfi en aktaskrift.
Nefnd sú, er launamálin hef-
ir til athugunar, vinnur kapp-
samlega að endurskoífcin nú-
gildandi launalöggjafar, enda
er gert ráð fyrir, að tillögur
hennar muni liggja það tímmi^
Iega fyrir, að Alþingi geflst
tóm til að afgreiða málið. Er
þess einfeig að vænta, að sam-
vinrta tekist með þingflokkun-
um oílum um þessi mál, með
því að sumpart hafa þeir sýnt
í verki, að þeir væru málinu
hlynntir, en sumpart gefið um
það skýlausar yfirlýsingar, að
þeir myndu fylgja því fram tilá
Fólkaflokkurinn vill slíta
sambandi Danmerkur og
Færeyja.
Vidtal viö tvo kunna Færeyinga um stórn-
málaástandið í Færeyjum.
N ýlega eru komnir hingað til bæjarins tveir kunnir Fær-
eyingar, þeir Knut Wang ritstjóri „Dagbladet“ í Þórshöfn
og Páll Patursson bóndi í Kirkjubæ, sonur Jóhannesar Paturs-
sonar. Báðir þessir menn hafa komið hingað áður; enda stund-
aði Páll nám við Menntaskólann hér fyrir mörgum árum.
Vísir hafði tal af þeim á laugardaginn og innti þá frétta
úr heimalandi þeirra. Þeim sagðist svo frá:
Þegar Danmörk var her-
numin af Þjóðverjum og Fær-
eyjar af Bretum, vildi Fólka-
flokkurinn, sem þá hafði 7
þingsæti, þegar í stað slíta sam-
bandinu við Dani. Lagði flokk-
urinn þá till. fyrir þingið, að
sambandslit færu strax fram,
en Færeyingar tækju stjórnina
í sínar hendur. Þessa lausn
gátu hinir flokkarnir ekki fall-
izt á, en þeir höfðu samtals 17
atkvæðum yfir að ráða. Til-
lagan var felld með 17:7. Varð
nú amtmaðurinn í Færeyjum,
sem er danskur og heitir Aage
Hilbert, hvort tveggj a í senn
stjrón og konungur — sem
sagt nú rikir einræði í Færeyj-
um. Amtmaðurinn getur stöðv-
að öll lög, ef honum svo sýnist,
því að undirskrift lians er
nauðsynleg, til þess að lögin
öðlizt gildi, þar sem hann fer
með vald konungs. Enda hafa
komið fyrir þau mál, að amt-
maðurinn hefur neitað að und-
irskrifa og eins liefir það skeð,
að þessi danski stjórnandi hef-
ir gert lög, sem aldrei hafa
svo mikið sem komið fyrir
þingið.
Fólkaflokkurinn vildi láta
fara fram kosningar strax eftir
að hernámið fór fram, en liin-
ir flokkarnir vildu það ekki.
Amtmaðurinn sagðist hafa fullt
umboð frá dönsku stjórninni
til að vera amtmaður áfram,
en svo sagðist hann í flokk með
frjálsum Dönum og var þá
kominn í andstöðu við dönsku
stjórnina í Höfn, sem hann
hafði umboð frá. Þegar svona
var komið málum, vildi Fólka-
flokkurinn á ný, að kosningar
færu fram, en hinir flokkarnir
snérust aftur á móti og felldu
tillöguna. Annað var það, að
amtmaðurinn hafði raunveru-
lega sagt Þjóðverjum stríð á
hendur, með því að ganga í lið
með frjálsum Dönum. En þar
sem Iiann var æðsti stjórnandi
Færeyinga, — en þeir vildu um
fram allt vera hlutlausir í stríð-
inu, — ýtti það einnig undir
Fólkaflokksmennina að krefj-
ast kosninga.
Mátti jafnvel búast við því,
að eyjarnar og skip þaðan yrðu
fyrir árásum Þjóðverja, þar
sem amtmaðprinn hegðaði sér
svona.
Þann 24. ág. siðastl. fóru
fram kosningar í Færeyjum og
vann Fólkaflokkurinn mjög
mikið á, eða bætti við sig 5
þingsætum. Hefir hann nú 12,
en hinir flokkarnir til samans
hafa 13 þingmenn. Athugandi
er það, að einn þingmaður
Sambandsflokksins er í Dan-
mörku og kemst ekki þaðan.
Er vafamál, hvort varamaður
kemur í staðinn, þvi að þing
verður að samþykkja hann, en
sigurs, og ætti það þá áð geta
haldið í örugga höfn og án sér-
stakra tafa. Því verður að vísu
ekki neitað, að hér er um auk-
in útgjöld sé6 ræða fyrir ríkis-
sjóðinn, en ekki er seinna
vænna að bæ^ úr gömlu rang-
læti, enda stendur hagur ríkis-
sjóðs vel sem stendur, og undir
liann renna styrkar stoðir í bili,
hversu lengi sem þær kunna
að endast.
þar stangast 12 á móti 12. Þing-
ið kemur saman á morgun, og
verður þetta atriði þá væntan-
léga útkljáð.
Um fiskveiðarnar sögðu þeir
félagar, að frá Færeyjum væri
nú einungis seldur ísfiskur, en
fyrir stríð fluttu þeir út salt-
fisk. Er nú mikið meira róið
heima við en áður.
Fiskikútterar voru um 130
fvrir stríð, en af þeim hafa
Færeyingar misst í kringum 40,
og af 10 togurum hafa þeir
misst helminginn, svo að skipa-
stóll Færeyinga hefir mikið
gengið saman. Um 80 manns
hafa farizt með skipum af
hernaðarvöldum.
rexstin
ir
>(
Ný
skáldsaga
Laxness.
eftir
„lslandsklukkan“ heitir ný
skáldsaga eftir Halldór Kiljan
Laxness sem út kom í morgun.
Bókin er söguróman, byggð á
sannsögulegum viðburðum frá
liðnum öldum.
A kápu er málverk eftir Þor-
vald Skúlason.
Hundar gera ínnrás í
hænsnakofa.
10 hænur drepnar.
Sá atburður skeði í nótt, að
þrír íslenzkir hundar, sem setu-
liðsmenn eiga, gerðu innrás í
hænsnakofa i Fossvogi og drápu
þar 10 hænsni.
Ekki er vitað, hvenær innrás
þessi var hafin, en hundarnir
höfðu kofann alveg á valdi
Rúmlega 20 ábúendur við
Patreksfjörð og auk þess ýmsir
íbúar á Patreksfirði, þar á með-
al hreppsnefnd Patrekshrepps,
hafa sent Alþingi erindi þess
efnis, að samþykkja á þessu
þingi friðun Patreksfjarðar
fyrir skotum á fugl og önnur
dýr á firðinum, ef vera mætti,
að unnt væri að auka þar fugla-
og dýralíf og koma þar á æðar-
varpi.
Segir svo i bréfi, sem sent er
með þessu erindi: „Eins og
skjalið ber með sér, er það sam-
eiginlegt áhugamál allra, sem á
skjalinu standa, að fjörðurinn
verði algerlega friðaður fyrir
skotum. Jafnframt er það von
og trú okkar, að fugla- og dýra-
líf muni mjög aukast kringum
fjörðinn, ef friðaður verður, og
jafnvel teljum við mega vænta
þess, að koma megi upp æðar-
varpi á nokkurum stöðum.
Gangi maður á fjörur hér að
vetrarlagi, eftir að menn hafa
verið að fuglaveiðum á Patreks-
firði, þá er það ekki sjaldgæf
sjón að sjá þar vænbrotna, fót-
brotna eða á annan hátt limlesta
fugla, en þó lifandi, en helsærða
af skotum veiðimannanna frá
næstu dögum. Slíkt er hryggð-
arsjón.“
I tilefni af þessu hefir Gisli
Jónsson flutti eftirfarandi frv.
til laga:
1. gr.
Öll fuglaskot, að undanskild-
um skotum vegna útrýmingar
svartbaks, selaskot og hvers-
konar önnur veiðiskot skulu hér
eftir bönnuð á Patreksfirði fyr-
ir innan línu, sem hugsast dreg-
in frá Blakknesi i Tálkná yzt.
2. gr.
Brot gegn lögum þessum
varða 50 kr. sekt, auk þess,sem
byssa sú, sem skotið er með,
skal gerð upptæk. Sé brotið
ítrekað, skal sektin tvöfölduð.
Sektarféð rennur í ríkissjóð að
hálfu, en að hálfu í sveitarsjóð
Rauðasandshrepps.
Mál út af brotum skulu sæta
meðferð opinberra mála.
sínu, þegar komið var þar að,
snemma í morgun.
Hafði bardaginn verið hinn
skæðasti og lauk m.eð miklu
hæsnafalli, sem fyrr getur.
Féllu 10 hænur, en margar
særðust alvarlega. Hundana
sakaði eldti.
Bjarni Guðmundsson:
Málverkasýning Þorvalds
Skúlasonar og Gunnlaugs
Scheving.
Sýning þessi er tvimælalaust einn merkasti listarviðburður
ársins. 1 heild stendur hún almennu listsýningunni i vor fram-
ar, auk þess sem sýningar einstaklinga eru jafnan skemmtilegri
en yfirlitssýningar.
Það sem þegar vekur athygli er hversu vel málverk þessara
tveggja málara fara sama, þótt býsna ólík sé. Sýnir Þorvaldur
22 málverk á austurvegg, en Gunnlaugur 27 á vesturvegg. —
Báðir sýna að auki téikningar og vatnslitamyndir.
ÞORVALDUR SKÚLASON.
Það er skammt frá að segja,
að með þessari sýningu hefst
nýr þáttur i hinum eftirtektar-
verðá listferli Þorvalds.
Þorvaldur hefir verið sein-
þroska, þegar tillit var tekið til
hinna óvenjulega miklu gáfna
hans. Líklega er það einmitt leit
hans að framsetningarháttum,
barátta hans við erfið viðfangs-
efni, sem skapað hefir þann ár-
angur, sem hann hefir nú náð.
Hann hefir aldrei látið freistast
til að sleppa auðveldlega frá
viðfangsefninu, en það hlýtur
að hafa verið allmikil freisting,
þvi að hann á að eðlisfari mjög
hægt með að mála.
Yfir myndum hans hvilir
þess vegna einmitt sá þokki, er
leiðir af þvi að hann heldur aft-
ur af sjálfum sér. Myndir hans
eru gagnunnar, hvert einasta
atriði í fletinum vandlega veg-
ið gagnvart heildinni. En eftir-
tektarverðust er þó litargleði
hans og hin leikandi litameð-
ferð.
Þótt málverk hans sé öll svo
góð, að fá ein geti talizt öðrum
betri, er þó sérstaklega ástæða
til að vekja athygli á tveim
myndum með svipuðu efnis-
innihaldi, stúlka er teymir hest
(nr. 7 og 20), nr. 2, hestamynd,
nr. 8, kona við sauma og nokkr-
um samstillingarmyndum,
einkum tveim af húsbúnaði og
gítar. List Þorvalds á víða ræt-
ur, en virðist þó liafa mótazt
einna mest af franskri nútíma-
list, einkum Picasso. Auk þess
mun hann hafa lært sumt af
súrrealistum, þótt ekki gæti
þess beinlinis. Það er þó fánýtt
að skella slíkum merkiseðlum á
listaverk hans, til þess eru þau
of sjálfstæð og persónuleg, þótt
hitt sé augljóst, að hann hefir
viðað að sér menntun og hug-
myndum úr mörgum áttum.
r
Scrutator:
^jOudcLbl GdÉjnMHMfyS
lJ
Reyni-sýki.
Jón Arnfinnsson garðyrkjumað-
ur benti lesendum Vísis fyrir nokkru
á illkynjaða sýki í reynitrjám, sem
nú gerir töluvert vart við sig. Því
miður virðast garðeigendur ekki al-
mennt hafa gert sér það ljóst, hver
alvara er hér á ferðum, né hitt,
að tiltölulega auðvelt er að lækna
trén, meðan sýkin er á byrjunar-
stigi. Aðferðin er sú, að skafa vand-
lega burtu hina sýktu bletti og mála
yfir. Eg hefi víða séð sýkt tré,
sem ekki virðist hafa verið sinnt.
Það er því ástæða til að skora al-
varlega á alla garðeigendur, sem
reynitré hafa í görðum sinum, að
draga það ekki að aðgæta þau vand-
lega og lækna þau, en kalla til garð-
yrkjumanns hið fyrsta, ef þeir
treystast ekki til að sinna þessu
sjálfir.
Konur og hernám.
Útvarpið skj^ði í gær frá ávarpi
til íslenzkra kvenna,’ sem lesið hafði
verið í Berlínarútvarpið á íslenzku,
en í ávarpi þessu er þeim mjög
þakkað, hversu kuldalega þær taki
amerískum hermönnum. Þessu til
skýringar var lesin upp grein eft-
ir amerískan hermann, sem verið
hafði á íslandi í 15 mánuði og all-
an þann tima ekki fengið svo mikið
sem að taka í hendina á íslenzkir
stúlku — og það þótt hann væri
talinn kvennagull hið mesta í ætt-
landi sínu. Svo var nú það. Skömmu
siðar um kvöldið las Jón Aðils upp
„smásögu úr ástandinu", sem var
á eylitið annari bylgjulengd — í
öllu falli samin af miklu minni
virðingu í garð íslenzkra kvenna
en grein sú, er Berlínarútvarpið
birti. —• Það er svei mér ekki gott
að vita, hvað maður á að halda,
þegar maður tekur báða jafn trú-
anlega, Göbbels og Jón Aðils.
Amerískur málari.
Velmetinn amerískur málari var
hér á ferðalagi um daginn, á veg-
um BandaríkjafJotans. Hann heitir
George Gray, 35 ára að aldri, og
er einn af þekktustu „fresco“-mál-
urum Bandaríkjanna. Hefir hanit
málað miklar veggmyndir í ýmis
helztu hótel Bandaríkjanna, starfað
nokkuð að málningu leiktjalda, en
um skeið hefir hann verið viður-
kenndur listmálari (official artist)
ameríska strandvarnaflotans. Gray
fannst mikið til um náttúrufegurð ’
íslands og hét sjálfum sér því, að
hingað skyldi hann aftur koma að
stríðinu loknu. Hann skoðaði nokk-
ur málverk á sýningu Þorvalds og
Gunnlaugs i Sýningarskálanum, og
fannst mikið til um verk þeirra,
en því miður varð hann að hverfa
á brott áður en sýningin var opnuð.
Slæmt horn.
Hornið á vegamótum Ingólfs-
strætis og Bankastrætis er eitthvert
fjölfarnasta í bænum. Nú er veriÖ
að grafa þar mikla skurði, og tefur
það umferð og torveldar. En síðan
þetta ástand skapaðist, hef eg ekki
séð þar neina umferðalögreglu, og
voru þar þó oft lögregluþjónar,
meðan minna lá við. 1 gær og und-
anfarna daga skapaðist á þessu
horni hver umferðateppan á fætur
annari, sem einn lögregluþjónn á
verði hefði hæglega getað a|stýrt. 1
Spádómur dagsins.
Áður en bandamenn taka tána ’á
ítalíu munu þeir sennilega lenda
í viðureign við Heil Hitler.
Also sprach
ísak ísax
. spámaður.
GUNNLAUGUR SCHEVING.
Gunnlaugur málar yfirleitt í
kaldari litum en Þorvaldur og
heldur sér mildu nær efnisinni-
haldinu. Hann bregður upp
„seríu“ af myndum úr íslenzku
sjávarþorpi (Grindavík), og
fylgir þar stíl svo nákvæmlega,
að hans vegna gætu allar myml-
irnar verið málaðar sama dag-
inn eða sömu vikuna, þótt þær
séu aðvitað ávöxtur margra ára
starfs. Gunnlaugur leggur mjög
ríka áherzlu á fjarsýni, leitast
við að ná fíngerðum áhrifum
með grófgerðri tækni. Yfir
myndum hans er mikil heið-
rikja, bæði í bókstaflegri og af-
’eiddri merkingu.
Auk húsa- og landslags-
Lítið hús
nálægt Reykjavík, 2 lierbergi
og eldhús, miðstöðvarupp-
hitað, til sölu eða leigu strax.
Uppl. í síma 2783 kl. 5—7.
Sanma>
vélar
2 nýjar stignar Singer-
saumavélar eru til sölu. —
Tilboð sendist afgr. Vísis,
merkt: „Singer“.
ÁGÆTT
Leskjað kalk
fæst :í.
OFNASMIÐJUNNÍ. -
Sími 2287.