Vísir - 01.10.1943, Blaðsíða 2

Vísir - 01.10.1943, Blaðsíða 2
Hráolía lækkar um 20% | IlenzBii uebi lO^ Leikfélag Reykjavíkur. LéniiaE'ður fog'cíf. JEftir Einar H. Hvaran. T EIKFÉLAGHD hafði frumsýningu á leikriti þessu á mið- vikudagskvöld og hóf þar með vetrarstarfsemi sína. Lelk- ritið er góður og gamall kunningi Reykvíkinga, samið árið 1913, er öldur stigu hátt í þjóðlífi voru. Ber það nokkurn keim þess, rifjar þægilega upp endurminningar liðinna alda og er í heppilegu samræmi við íslenzkt þjóðareðli enn í dag. Verður því ekki annað sagt en að Leikfélagið hafi heilum báti hrundið úr naust er það hefur vetrarstarf sitt, ]iótt það hafi yfir fleiri góðum förum að ráða, er á eftir koma. DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteiv.n Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsir.iðjunni Afgreiðsla Hverfisgöla 12 (gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: 1 660 G'imm línur).^. Verð kr. 4,00 á mánuði. Lausasala 35 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Æðsta stjórn og ntanríkismál. ONUNGURINN er frið- lielgur og móðganir gagn- vart honum eru unt leið brot gegn ríkisvaldinu sjálfu. Við slikum mbðgunum eru lagðar þyngri refsingar en almennt gerist, einmitt með lilliti til þessa. Ef haft væri i hótunum við konunginn um að reka hann frá ríkjum eða stjórnarathafnir hans gerðar að skálkaskjóli í slikum opinberum áróðri gæti það haft hinar alvarlegustu af- leiðingar fyrir þann aðilann, sem að áróðrinum siæði. í hverju mcnningarríki þykir mikils um vert að tryggja að- stöðu hins æðsta valds á þann veg að það verði ekki dregið niður í svað dægurþrassins, enda ætti það í rauninni að vera hverjum flokki og hverjum ein- staklingi metnaðarmál að vilja veg hins æðsta valds sem mest- an og breyta eftir þvi. Hér á landi hefir málum verið skipað svo um hríð að æðsta valdið hefir verið flutt inn í land- ið og fer forseti með það, sem kosinn er til eins árs i senn, og það kjör réttlætt með því að ekki sé ákveðið valdssvið forset- ans og hinnar æðstu stjórnar lil frambúðar. — Þrátt fyrir það er ekki úr vegi að sú raun sé rædd, sem þegar hefir fengist vegna bráðabirgðaskipunar þessara mála. Ekki verður um það deilt að val hins fyrsta forseta hefir tek- ist svo giftusamlega sem á verð- ur frekast kosið, vegna mann- kosta og persónulegrar reynzlu þess manns er sætið skipar. Erfiðleikar liafa steðjað að, meiri en gera má ráð fyrir á friðartímum, og i rauninni mestu erfiðleikar sem þjóðhöfð- ingjar geta yfirleitt átt við að stríða. Þegar fullreynt var að flokkarnir gátu með engu móti leyst vandræðahnútinn varð málinu þó bjargað fyrir atbeina forselans. Þá og raunar áður heyrðust raddir um það að mál- inu yrði gerð skil á opinberum vetvangi og ekki var unnt að skilja ummælin á annan veg en þann að hér væri um beinar hót- anir að ræða. Áður liafði birst í blaði einu opinber árásargrein á forsetann og önnur verið á hál borin. Sýnir þetta hve íslenzk- um stjórnmálamönnum er ó- sýnt um að tryggja hið æðsta vald og vernda það beinlínis gegn ómaklegum og ástæðu- lausum árásum. Hefir þess jafn- vel verið getið í grein i fjöllesnu tímariti að alþingismenn hafi hugsað sér að ráðast gegn for- setanum, ef hann færi ekki að þeirra sundurleita vilja, og nota sér þar þá aðstöðu að forsetinn er kjörinn til eins árs í senn. Slíkt siðleysi er svo fráleitt að eindæmi mun vera i nokkru þióðfélagi. ef til vill þó að Mexico undanskildu og Suður- Ameríkuríkjum þar sem bylt- ingar hafa verið daglegt brauð um langan aldur. Utanríkismálin eru talin mála vandasömust og þar sem mestr- ar varúðar verður að gæta í umræðum inn á við og út á við. Þessi mál höfum við íslend- ingar nýlega tekið í eigin hend- ur vegna styrjaldarinnar, og til að gegna sendiherrastörfum hafa vafalaust valist beztu menn, — og menn sem skipaðir bafa verið fyrir atbeina eða rneð samkomulagi stjórnmálaflokk- anna. Nú skyldu menn gera ráð fyrir að þessir menn fengju að gegna störfum sínum i friði, þar sem svo væri um linútana búið, og yrðu ekki dregnir inn í dæg- urþrasið að ' ástæðulausu. Nokkrum sinnuni Iiefir þó kom- ið fyrir að i blöðum befir verið ráðist að þessum mönnum, með skömmum og óréttmætri gagn- rýni, sökum þess að þeir hafa rætt eða gert grein fyrir islenzk- um málefnum á þann hátt, sem stjórnmálaflokkarnir hafa ekld talið sig geta við unað, þótt þeir bafi sjálfir kúvent í málunum, — gefið opinberar yfirlýsingar eða gert samþykktir uni ákveð- in mál, en liorfið síðan frá þeim vegna hentistefnusjónarniiða. Síðasta dæmi þessarar ósæmi- legu framkoniu, er það að mál- gagn Alþýðuflokksins hefir ráð- istá algerlega óviðeigandi hátt á sendiherra íslands í London fyrir að skýra frá yfirlýsingum og samþykktum Alþingis á fjöl- mennum fundi erlendra áhrifa- manna, og siður en svo sætt gagnrýni af þeirra liálfu, held- ur blotið viðurkenningu á mál- staðnum að svo miklu leyli, sem ástæða gafst til. Utanríkismálin eru almennt talin svo veigamikil og um leið viðkvæm mál, að innanríkismál- in og bardagaaðferðirnar bafa frekar mótast af þeim en þau af innanlandsmálunum. Er svo sagt að stjórnmál og stjórn- málabarátta liafi t. d. gerbreyzt í Noregi eftir að utanríkismálin komust í hendur norsku þjóðar- .innar sjálfrar og liafi það orðið vegna ábrifa sendimanna þjóð- arinnar erlendis. íslenzkir stjórnmálamenn og blaðamenn ættú að bugsa sig uni tvisvar áður en utanríkismálin og þeir, sem með þau fara, eru dregnir inn í dægurþrasið á jafn óvið- eigandi hátt og gert hefir verið og að jafn ástæðulausu. íslenzka þjóðin verður að standa vel á verði um að vel- sæmis sé gætt gagnvart æðsta fulltrúa þjóðarinnar og einnig gagnvart sendimönnum okkar erlendis. Þótt um bráðabirgða- skipan sé að ræða réttlætir það á engan hátt siðlausa fram- komu gagnvart þessum aðilum, enda má nokkuð á þessu marka hversu fari um framtíðina. Flokksforingjar og þingfulltrú- ar verða að gæta þessa allra helzt, en ella sæta fullu ámæli fyrir ef út af ber. Brot þeirra geta orðið fordæmi eða víti til varnaðar, en það er þjóðin, sem ákveður livort hún verðlaunar þá fyrir ósómann eða veitir þeim viðeigandi aðvörun og á- minningu til frambúðar. Yald forsetans þarf að efla og tryggja aðstöðu lians, en utanrikismál- in eiga að njóta sem mestrar friðhelgi í framtíðinni. Sjóliðar stela kjöti. Laust eftir miðnætti í nótt var lögreglunni tilkynnt frá af- gTeiðsIu Laxfoss, að enskir sjó- liðar hefðu stolið tveimur kjöt- skrokkum, er verið var að skipa kjöti upp úr m.s. Laxfossi. Fór íslenzk og erlend lögregla á vettvang og við leit sem gerð var, fannst kjötið í erlendu skipi rétt hjá. Sögðust skipverjar hafa fundið kjötið á bryggjunni. Lögreglan tók kjötið i vörzlu sína og afhenti það réttum hlut- aðeigendum. Prestskosningin í Neskaupstað var ólögmæt. Að- eins 279 greiddu atkvæði af 718 kjósendum, sem á kjörskrá voru. Viðskiptaráð hefir ákveðið talsverða lækkun á útsöluverði á hráolíu og benzíni. Verðlækkunin á hráolíunni nentur 20% og er það þvi aug- Ijóst, að þessi lækkun er mikið hagsmunamál fyrir hátaútveg- inn. Hinsvegar er verðlækkunin á benzíni heldur minni, eða 10%. Eins og lesendur Vísis muna var Iiráolíuverð á Siglufirði lækkað í suraar fyrir atbeina ríkisstjórnarinn'ar. Sáu Síldar- verksmiðjur rikisins um sölu á þeirri olíu. Undanfarið bafa farið fram Er þessi dráttur á komu vél- anna tiltakanlega bagalegur, því að nú fer sá tími í liönd að notkun rafmagns færist mjög í aukana. Þetta verður til þess að spennan lækkar og rafmagns- straumurinn dofnar því meir sem meira er lagt á hann. Til að ráða nokkura bót á þessu, er að nýju liafið eftirlit með notkun rafmagnsofna i bænum á timabilinu frá kl. 11 —12 f. h., en þá er straumurinn hvað minnstur. Eru það vin- samleg tilmæli til bæjarbúa að þeir bafi ekki ofna í notkun á þessum tima. Vinnunni við Sogsstöðina verður lokið eftir rúman mán- uð ef að líkum lætur og hefir það gengið samkvæmt áætlun, en það er Almenna bygginga- félagið, sem tók verkið að sér í ákvæðisvinnu. Hafa verið unn- in þar 300—500 dagsverlc á Á útvarpskvöldi blaÖamanna í vor skýrði Skúli Skúlason nokkuÖ frá vinnubrögðum blaðamanna. Meðal annars gat hann þess, hversu oft þyrfti að vinna verkin „fljótt — í snatri — undir eins“. Fréttin bíður ekki, prentvélin er óþolin- móður viðskiptamaður, og oft verða óþægindi af óverulegum. töfum. Blaðamaðurinn þarf því að hafa ýmislegt annað til brunns að bera en þekkingu og þjálfun i starfinu. Oft ríður mikið á óbrjálaðri dóm- greind, snarræði og taugastyrk. Það er gaman að minnast þessa í dag, þegar vinsælasti félaginn í þlaðamannahópnum fagnar merku starfsafmæli. Þó er hitt eigi síður í frásögur færandi, að starfið hef- ir ýmsar drengskaparskyldur í för með sér. Það er alkunna, að öll vopn má nota til ills, og blöðin eru sterk vopn. Meðal þess, sem kalla má drengskaparskyldur blaðamanna er það, að skýra rétt og satt frá, að styðja góð málefni og nota ekki starfsemi sína til persónulegs ávinn- ings umfram starfslaun. Auk þess sem Skúli er hamhleypu-verkamað- ur, fróður og víðlesinn, er hann einnig drengskaparmaður mesti og vammlaus. Það er þvi engin tilvilj- un, að eitt hið fáa, sem allir blaða- menn eru algerlega sammála um, er að Skúli — og enginn nema hann — skuli vera formaður Blaða- mannafélagsins, helzt upp á lífstíð. umræður um þaS milli ríkis- stjórnarinnar annarsvegar og olíufélaganna binsvegar, að olía yrði lækkuð allsstaðar á landinu eins og á Siglufirði í sumar og hefir Viðskiptaráð nú ákveðið lækkunina. * 1 krónum nemur lækkunin því sem hér segir: Hráolía lælck- ar um 90 kr. hver smálest, ljósa- olía um 85 kr. hver smálest og benzín um 6 aura hver lítri. Vísir hefir frétt það af Suður- nesjuni í morgun, að fregnin um lækkun hráolíunnar hafi vakið mikla ánægju þar. viku eftir því sem þörf hefir krafið. Munu oftast hafa verið um 50—60 manns í vinnu í einu, en stundum fleiri. í ráði er að stælcka rafmagns- kerfi bæjarins til muna, en þar eru sömu vandkvæðin á og með Sogsstöðina, að efni vantar. Einkum eru það strengir sem á að leggja frá Elliðaánum og niður í bæinn. Verður tekið til starfa og unnið að þessum lögn- um strax og efni kemur. I.O.O.F. 1 = 1251018V2=9.L Útvarpið í kvöld. Kl. 20,30 Iþróttaþáttur Í.S.Í. 20.45 Strokkvartett útvarpsins: Kvartett nr. 13 í C-dúr eftir Mo- zart. 21,00 vÚr handra8anum“ (Sveinn Sigurðsson ritstjóri). 21,20 Symfóníu-tónleikar (plötur) : Tón- verk eftir Brahms: a) Píanó-kon- sert nr. 2. b) Sorgarforleikurinn. Drengur góður. ÞaS eru út af fyrir sig lítil með- mæli með manni, að segja að hann sé vel þokkaður. Oft eru menn vin- sælir af þeirri ástæðu einni, að þeir koma sér hjá öllum árekstrum, „beygja af“, eins og Beygur kvað. En Skúli Skúlason er skapmaður og lætur ekki hlut sinn fyrir nein- um, ef því er að skipta. E11 hann er ekki heiptrækinn, og þótt á milli hafi borið, hefir hann jafnan bor- ið gæfu til sátta. Eg sagði í gær frá viðskiptum hans við norska þingmanninn Andersen Ryst. Var Ryst fulltrúi Stórþingsins á Al- þingishátíðinni 1930, en þá stjórn- aði Skúli upplýsingaskrifstofu há- tíðarinnar fyrir erlenda blaðamenn. Fór ekki hjá þvi að fundum þeirra bæri saman, og urðu það í raun og veru fagnaðarfundir. Höfðu þeir báðir gaman af að sjást og rifja upp blaðadeilur sínar frá Nor- egi. í meira en fimmtán ár hefir Skúli ekki tekið þátt í neinum deil- um, því að blað hans, Finsens og Svavars Hjaltesteds, „Fálkínn“, sem þeir hafa gefið út síðan 1. apríl 1928, er ópólitískt blað. Mér er tjáð — að Skúli Skúlason og blaðamennsk- an eigi silfurbrúðkaup í dag. Þessi fjögur ár fyrir 1918 hafa þá verið nokkurs konar tilhugalíf. í skraddaraþönkum, ísak ísax Fálkariddari. Um sýninguna í heild má segja að hún liafi tekist sæmi- lega, og að sumu leyti með prýði. Sviðsetning var góð, við- eigandi hraði í leiknum og sam- leikur í heild með fáum brota- lömum, sem um varð hnotið. Verður því ekki annað sagt en að leikstjórn liafi farið vel úr liendi, en hana hafði Haraldur Björnsson með höndum og lék einnig hlutverk Lénbarðs fógeta. í slíku blutverki á liann beima. Það er hæfilega hrjúft og tilþrifamikið og var i heild vel með farið, en mátti helzt að finna að undirhyggjan væri of augljós í viðskiptunum við Ey- stein Brandsson, og persónan því nokkuð á annan veg, en liöf- undurinn hugsar sér bana. Að öðru leyli var vel með lilut- verkið farið, ekki sízt í viðræð- unum við Guðnýju, en liana leikur Svava Einarsdóttir, — nýliði á Ieiksviðinu. Leilcur liennar var mjög eftirtektar- verður og fór allt saman, góð framsögn, hreimfögur rödd, mýkt á sviði, sæmileg tilþrif í leik og meiri fegurð en leikhús- gestir hafa átt að venjast í slík- um hlutverkum yfirleitt. Svava fór á þann veg með hlutverk sitt, að auðsætt var að hún er leikgáfum, gædd, en hafði ekki einvörðungu lært það, sem henni bar að læra, og má full- yrða að hér sé leiklconuefni, sem félagið ætti að kunna að meta, enda er það sjaldgæft að fé- laginu berist slíkur fengur. Hlutverk hennar er svo erfitt, að ætla mætti að það væri ekki á færi viðvaninga, en með engri sanngirni verður annað sagt, en að leikkonan hafi í engu látið á sig lialla á sviðinu og er slíkt mjög fágætt þegar um byrjend- ur er að ræða. Svava Einars- dóttir mun hafa numið hjá Har- aldi Björnssyni og er það hon- um sómijhversu árangurinn er góður. Eystein Brandsson úr Mörk leikur Ævar Kvaran af viðeig- andi þrótli, en hann er góður leikandi og batnandi stöðugt eftir því sem verkefni vaxa. Ingólfur bóndi á Selfossi er í meðförum Brynjólfs Jóhannes- sonar sem slikur stórbóndi og kjarnakarl á að vera. Valur Gíslason leikur Torfa i Klofa af miklum mjmdarskap, en Helgu konu hans Þóra Borg Einarsson og er Ieikur hennar i fullu samræmi við hans enda ágætur. Mestu list í leik sýnir Lárus Pálsson og fer með hlutverk Freysteins bónda á Kotströnd, og hefir þar skapað eina útgáfu enn af Kotslrandarkvikindinu. Lárus hefir í framsögn og leik yfirburði yfir alla íslenzka leik- endur, sem nú eru starfandi hér á Iandi og þetta litla lilut- verk verður ógleymanlegt sök- um listar hans. Aðrir leikendur eru Klemens Jónsson, sem enn á eftir mikið að læra, Lárus Ingólfsson, Valdemar Helgason, Anna Guð- mundsdóttir, Gunnþórunn Hall- dórsdóttir og Guðmundur Gísla- son, sem öll fóru með lítil og tilþrifalaus hlutverk og gerðu það að vonum sómasamlega. Hljómsveit skipuðu Victor v. Urhantschitsch, Björn Ólafsson og H. Edelstein. Lárus Ingólfs- son hefir málað tjöld og teikn- að búninga, sem eru hinir skrautlegustu. Leiknum var vel tekið af áhorfendum og voru leikendur klapaðir frám hvað eftir annað að leikslokum. Við þessa frumsýningu vildu mistök til í áhorfendasal, sem Leikfélagið átti enga sök á, en sönnuðu það eitt hve hörmuleg skilyrði Leikfélagið á við að húa nú sem stendur. Voru mis- tökin máske fyrirboði þess að flutningur félagsins i ný og betri húsakynni standi fyrir dyrum. Þá verður bægara á að liorfa og um að dæma leiklist á íslandi, sem verður ekki i;étti- lega dæmd fyrr en leikendum gefst fullt færi á að sýna sig án þess að þurfa að berjast við þrönga veggi á alla hlið. K. G. nýtt hús á Seltjarnarnesi, sem er ein liæð, 3 herbergi og eld- bús, kjallari 2 herbergi og eldhús, og bílskúr. — Uppl. gefur GUÐL. ÞORLÁKSSON. Austurstræti 7. — Sími 2002. ' verða settir í Kaupþingssaln- um í dag, 1. okt. kl. 8.30 síðd. Nauðsynlegt að allir innrilaðir þátttakendur mæti. Enn er hægt að innrita í bók- mennlir, garðrækt, barnasál- arfræði og nokkura aðra flokka. ÍBÚÐIR til sölu, tvær 2ja herbergja og 1 3ja herbergja. — Uppl. gefur GUÐL. ÞORLÁKSSON. Austurstræti 7. — Sími 2002. GARÐASTR.2 SÍMI 1899 “ Amerískir Vetrarfrakkar Drengjafðt VezzL Valhöll Lokastíg 8. • Brezka útvarpið. Kl. 17.13 Klassísk tónlist fyrir almenning. 18.00 Fréttir. Ameríska útvarpið. í dag kl. 16.00 Píanókonsert eft- ir Grieg. Á morgun kl. 13,00 Sym- phonie phantastique (Berlioz). Sogsstöðin: Vélasamstæðan nýja tekur ekki til staría íyrr en undir áramót. llagalcgt rafmagnsleysi vegna dráttar á komii vclaima. VVarla þarf að gera ráð fyrir að nýja vélasamstæðan " í Sogsstöðinni taki til starfa fyrr en undir eða um næslu áramót, og því aðeins þó, að vélar þær sem enn vantar, komi bráðlega og að öðru leyti verði heldur ekki tal'ir á framkvæmd verksins. Frá þessu skýrði Stein- grímur Jónsson rafmagnsst jóri Vísi í gær. JZ Scrutator: TlaAÁbL úÉtnejmm^s Skúli Skúlason.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.