Vísir - 21.10.1943, Page 3
VISIR
Utgáfa útvarpserinda og
sögu styrjaldarinnar og
Útvappstídindi annast útgáfnna.
TTTtvarpstíðindi eru í þann veginn að hefja útgáfu úrvals er-
inda, þeirra er flutt hafa verið undanfarið í útvarpið. Enn-
fremur útgáfu sögu styrjaldarinnar og hernámsins.
Fyrirhugað er, að nokkur liefti komi út á ári, hvert fjórar
arkir að stærð í Iðunnarbroti. Fyrstu erindin sena gefin verða
út eru nokkur erindi varðandi íslenzka tungu, er Björn Sigfús-
son flutti, ferðasögur Guðmundar Thoroddsen, erindi Sverris
Kristjánssonar, „frá Vín til Versala“ og loks „Indversk trúar-
hrögð" er síra Sigurbjörn Einarsson flutti. Ivaupendur Útvarps-
tíðinda njóta sérstakra kostakjara.
Tíðindamaður Vísis hitti þá
Gunnar M. Magnúss og Jón úr
Vör, ritstjóra Útvarpstíðinda, og
innti þá eftir væntanlegri út-
gáfu.
„Undanfarin ár hafa okk-
ur borizt fjölda margar ósk-
ir um slíka útgáfu, svo við
gátum varla þrjózkast við
lengur. Enda hafa mörg og
merk rök verið fyrir því færð,
að mikla nauðsyn bæri til, að
birt væri á prenti það bezta, sem
flutt er í útvarpinu, svo að full
not yi-ðu að því.
(Útvarpið hefir leyst úr læð-
ingi fjölmarga hugsun, sem ella
liefði legið í þagnargildi, en fyr-
ir tilhlutun þess orðið til gagns
og gleði, og þegar bezt lætur til
alþjóðavakningar. Mætti í þessu
sambandi minna á ýmsa erinda-
flokka, en nærtækust eru það
dæmin um þrjá dagskrárliði,
sem mikla þýðingu liafa hafl
fyrir alþjóð á þessurn örlaga-
riku hættutímum. Það eru þætt-
irnir „Takið undir“, „Spurning-
ar og svör um ísl. mál“ og
„Landið okkar“. En orðið, sem
berst á ljósvakanum til eyrna
okkar í kvöld, er horfið út i ei-
lífan bláinn á sömu andrá, —
það hefir komið og vakið hugs-
un, en þegar til á að taka liöfum
við ekki höndlað nema litinn
liluta þess. Með erindaútgáfunni
ætlum við að brúa í nokkrum
tilfellum bilið milli fyrirlesar-
ans og ahnennings og gefa hlust-
endum k'ost á að fá i hendur
sumt af þvi bezta, sem útvarpið
liefir flutt.
— Hvernig verður þessari út-
gáfu hagað?
— Við ætlum að gefa út nokk-
ur hefti á ári, hvert fjórar IS-
unnararkir að stærð. I fvrsla
heftinu, sém kemur út inuan
skamms, verða nokkur er-
indi Björns Sigfússonar magist-
ers, þá ferðaþættir Guðmundar
próf. Thoroddsens, erindi Sverr-
is Kristjánssonár sagnfræðings
frá Vín líl Versala og Indversk
trúárbrögð eftir síra Sigurbjörn
Etóarsson. Hér er k’omið efni
l jögurra næstu heftanna. Síðan
verða einstök úrvalserindi fjög-
urra til fimm merkra útvarps-
fyrirlesara í sama hefti. Hafa
ýmsir liinna beztu fyrirlesara
heitið okkur stuðningi.
— En styrjaldarsagan og her-
námið?
— Styrjaldarsagan hefst með
erindum Sverris frá Vín til Ver-
salá; hann mun einnig brúa bil-
ið niiili styrjaldanna í stuttu
máli, síðan taka þeir við Jón
Magnússon fréttastjóri og ef
til vill einhverjir fleiri. —
Gunnar M. Magnúss mun annast
skrásetningu hernámssögunnar.
— Verður þetta nokkurskon-
ar tímarit hjá ykkur?
— Nei, elcki beint. Við gefum
útgáfunni að vísu heildarnafnið
„Erinda safnið“ og ætlum að
taka á móti áskrifendum, en á-
skrifendur þurfa þó ekki að
kaupa öll heftin, nema þeir,
sem gerast áskrifendur að styrj-
aldarsögunni, þeir skuldbinda
sig til að kaupa hana alla. Ann-
ars er fyrirkomulagið hugsað í
líkingu við hina svo nefndu
„bökahringa“, sem alkunnir eru
frá Norðurlöndum, en hafa ekki
líðkast fyr hér á landi.
B JE K U B
Trygve Gulbransson: Dagur
í Bjarnardal. Konráð Vil-
hjálmsson íslenzkaði. Bóka-
útgáfan Norðri h/f.
Það þótti bókmenntalegur við-
burður um öll Norðurlönd, þeg-
ar saga þessi birtist i heimalandi
sínu, Noregi. Var henni mjög
vel tekið, enda skarar hún fram
úr á sínu sviði. Sagan er í þrem
bindum, og er nú fyrsta bindi
,út komið í íslenzkri þýðihgu
Konráðs Vilhjálnissonar skálds.
Ffnið er ættarsaga og gerist á
síðai’a hlúta 18. aldar, úm það
leyti, er aðallinn varð að lækka
seglin í ýmsum löndum álfunn-
ar, en þróttmikil og framsækin
óðalsbændastétt fór að liefja
höfuðið og láta til sín taka. Virð-
ist höfundurinn vera kunnugur
aldarhætti og tizku þeirra tíma
og skýra frá orðum og athöfn-
um í réttu og sönnu ljósi, svo að
áhrifin á athugulan lesanda
munu litt geiga frá marki. I
þessu fyrsta bindi sögunnar er
sagt frá þrem ættliðum á stór-
býlinu Bjarnardal, einkennilega
stórbrotnum mönnum, sem liafa
kosti og galla sinnar aldar, en
er í blóð borin framsækni og
eldhugi nýrrar stefnu, sem þó
á enn eftir að vakna til skiln-
ings og athafna. Mun því hver
lesandi bíða framhald§ins með
eftirvæntingu.
Þýðandinn á eindregið lof
skilið fyrir verk sitt. Málið á
sögunni er hreint og kjarnyrt, en
um leið svo lipurt, að langt ber
af flestum skáldsagnaþýðingum
síðari tíma. — Allur frágangur
bókarinar frá prentsmiðjunnar
liendi er snotur og vandaður, —
og þökk sé öllum, sem að því
liafa unnið, að íslenzkir lesend-
ur eiga þess kost, að bæta svo
góðri bók í safn sitt. Hún er þess
verð, að eiga hana og lesa oftar
1 en einu sinni. J. R.
fréttír
iii
i.MM=mmwi2 =9.
Reykjavíkur apótek.
Næturakstur.
Bifreiðast. Hekla, sítni 1515.
Næturlæknir.
Slysavarðstofan, sími 5030.
Ljósatími ökutækja.
Frá og með deginum i dag breyt-
ist ljósatími farartækja þannig, að
kveikja skal kl. 17.40 og slökkva
kl. 7.10.
Mæður!
Gætið barnanna. Látið þau ekki
leika sér á akbrautinni.
Fylgist með fjöldanum
og fjölsækið Varðarveltuna á
sunnudaginn.
Aðalfundur
Bridgefélags' Reykjavíkur var
haldinn í gærkveldi. 1 stjórn voru
kosnir: Hörður Þórðarson, for-
maður, og meðstjórnendur þeir Ein-
ar Þorfinnsson og Magnús Björns-
son.
Veizlan á Sólhaugum
verður leikin í Iðnó annað kvöld
kl. 8,30. Sala aðgöngumiða hefst
kl. 4 í dag.
Náttúrulækningafél. íslands
er nú að hefja vetrarstarfsemi
sína. Fundir þess verða í húsi Guð-
spekifélagsins við Ingólfsstræti 2.
eða 3. fimmtudag í hverjum mán-
uði, sá fyrsti verður í kvöld.
Með því að koma
á hlutaveltu Varðarfélagsins á
sunnudaginn, gefst yður kostur á
að ferðast í lofti, á láði og legi.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20,20 Útvarpshljómsveitin
(Þórarinn Guðmundsson stjórnar) :
a) Forleikur að óperunni „Brúðan
frá Niirnberg" eftir Adam. b) Ilm-
vatnsdansinn, lagaflokkur eftir
Popy. 20,50 Minnisverð tíðindi
(Axel Thorsteinson). 21,10 Hljóm-
plötur: Oktett fyrir blásturshljóð-
færi eftir Stravinsky. 21,30 Spurn-
ingar og svör unr íslenzkt mál
(Björn Sigfússon nragister).
Á hlutaveltu
Varðarfélagsins í Sýningarskál-
anum n.k. sunnudag.
er völ á að fá það flest
fjöldanum, sem hentar bezt.
Iivcn og
karlmanna
hanzkar
fóðraðir og ófóðraðir.
'Ut
\ á
VERZL. t?
börn,
v.nglinga
og
fullorðna.
Grettisgötu 57.
íslenkza
Vt^etW
fœst
hjd bóksölutn
Y*
hreinar og góðar
kaupir hæsta
verði
Félagsprentsmlðjan h.f.
Nýr Ford
motor
6 cyl. til sölu. — Tilboð
sendist Vísi, merkt: „Mótor
— 6“ fyrir laugardag.
V atnsleðurskór
fyrir unglinga og fullorðna
komnir aftur.
Verksmiðjuútsalan GEFJUN — IÐUNN, Aðalstræti.
Krlstján Giðlaigssoo
Hæstaréttarlögmaðnr.
Skrifstofutími 10-12 og 1-6.
Hafnarhúsið. — Sfmi 3406.
FJELAeSPRENTSMIÐJUNNAR
fiesTifc
Nýkomið gott úrval af
Drengja og karlmannafataeínum.
— Ennfremur LOPI,
margir litir.
VERKSMIÐJUÚTSALAN
Gicfjnn — Iðnnn, Aðalstræti.
Hro§§akjöt
til sölu mjög ódýrt.
Uppl. í síma 4013.
Keyrt heim til fólks.
3 stólar og svefnottoman
til sölu.
Simi 2165.
Bankastræti 10.
KJOLAR
teknir upp í dag. — Verð frá 94.50 krónum.
Tízlcnn
Laugaveg 17.
Tilkynning
Viðskiptaráðið hefir ákveðið nýtt liámarksverð á föstu fæði
og einstökum máltíðum, svo sem liér segir:
I. Fullt fæði karla ................ kr. 315.00 á mánuði
Fullt fæði kvenna.................. — 295.00 —
II. Einstakar máltíðir:
Kjötréttur ...................... — 4,00
Kjötmáltíð (tvíréttuð)............. — 5.00
Akvæði tilkynningar þessarar koma til framkvæmda frá og
með 22. október 1943.
Reykjavík, 20. október 1943.
VERBLAGSSTJÓRINN.
• •
SPAÐKJOT
Með næstu ferðum fáum vér úrvals spaðkjöt í heil-
um og hálfum tunnum, m. a. úr þessum héruðum:
Af Barðaströnd, úr Strandasýslu, Norður-Þingeyj-
arsýslu, Borgarfirði eystra og Jökuldal, Breiðdalsvík,
Djúpavogi og Homafirði.
Tekið við pöntunum í síma 1080.
Afgreitt með stuttum fyrirvara.
innuieuoð
Tilkyiiiiiug
Að gefnu tilefni vill ráðuneytið benda á að öll erindi
varðandi úthlutun á skömmtunarvörum til iðnfyrii'-
tækja og veitingastaða ber að senda skömmtunar-
skrifstofu ríkisins, sem annast þau mál undir yfir-
stjórn og samkvæmt ákvörðun Viðskiptaráðs. Er
þýðingarlaust að snúa sér til ráðUheytisins út af
þessum málum.
20. október 1943.
VIÐSKIPTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ.
Haður
utan af landi, vanur öllum skrifstofustörfum, óskar eftir ein-
hverskonar atvinnu.
Tilboð, auðkennt: „Vanur skrifstofumaður“ séndist Visi.
Konan min,
Sigurlaug Guðmundsdóttir
lézt á Landspítalanum aðfaranótt fimmtudags 21. þ. m.
Hafsteinn Hjartarson
« Hringbraut 33.