Vísir - 26.10.1943, Blaðsíða 2
VISIR
DAGBLAÐ
Ctgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Hristján Guðlangsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötd 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1660 (fimm linur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Misfellur og gagnrýni
■^IÐ íslendingar erum skanunt
á veg komnir í ýmsum efn-
um, en liinsvegar höfum við
vafalaust allir fullan hug á að
saekja fram og hæta það, sem
aflaga fer. Öllum. jjeim, sem er-
lendis hafa dvalið er fyllilega
ljóst að enn þarf að herða róður-
inn og það verulega, til þess að
við stöndumst nokkurn saman-
burð við aðrar Norðurlanda-
þjóðir í flestum greinum, enda
eru þær lengra á veg komnar
en ýmsar þjóðir aðrar, sem
stærri eru. Ekki á þetta hvað sízt
við uin heilsuvernd og hreinlæt-
isráðstafanir.
Þótt allir séum við á einu
máli um það, að nauðsyn beri
til að bætt verði úr ýmsum á-
göllum virðist við ramrnan reip
að draga er til framkvæmdanna
kemur. Orð eru til alls fyrst og
gagnrýnin er undirstaða athafn-
anna, en vilji svo til að gagn-
rýni, — hógvær en liispurslauS,
— komi frani í blöðum eða á
mannamótum, er miklu meir til
af afsökunum er réttlæta það,
að ekkert sé gert. Allt er ómögu-
legt, liversú auðvirðilegt sem
það er. Umbótaviljinn er annar
i orði en á borði.
Ekld alls fyrir löngu kvarlaði
húsmóðir ein yfir því í blöðun-
um, að ákveðin neyzluvara væri
svo léleg^að furðu gegndi. Því
var svarað um liæl á þann veg,
að hér mundi vera um unga og
óreynda húsmóður að ræða, og
jafnvel gefið í skyn að kvart-
aiiir hennar stöfuðu af van-
kunnáttu, enda sættu gamlár og
reyndar húsmæður sig við vör-
una og liefðu ekki undan að
kvarta. Nokkrum dögum síðar
kom svo yfirlýsing frá þeim
sömu mönnum, er þessi svör
gáfu, um það að hin sama vara
væri í rauninni óboðleg neyt-
endum, en önnur betri vara
sömu tegundar væri ekki fáan-
leg á markaðinum. Lélega varan
er svo vafalaust seld eftir sem
áður.
Þegar kvartað er hógværlega
um dreifingu, gæði og sölu
mjólkur, sem öllum er nauð-
synleg, eru afsakanir jafnan á
reiðum höndum, og jafnframt
ásakanir í þeirra garð, sem
leyfa sér að láta í Ijósi gagnrýni,
enda engin þörf tahn á að bæta
um: Ljúka þó bæði innlendir
og erlendir sérfræðingar upp
einum munni um það, að vör-
una maetti hafa betri og jafn-
framt að hún þyrfti að vera það
svo að vel væri. Allar aðfinnsl-
ur og öll réttmæt gagnrýni er
talið spretta af fjandskap einum
við bændastétt þessa lands, og
nauðsyn talin bera til sérstakrar
blaðaútgáfu til j>ess að bera
fram afsakanir og ásakanir, án
þess að nokk'ur vilji né vi'ðleitni
til umbóta skíni þar í gegnum.
Aldrei verða stór skref stigin
í framfaraátt, verði svo haldið
á málum, af þeim sem stjórnina
hafa með höndum, sem gert hef-
ir verið til þessa af ofangreind-
um aðilum. Neytendur vilja
gjarna greiða fullt verð fyrir
góða vöru, en })eim gremst að
léleg vara skuli höfð á boðstól-
um án þess að nokkuð sé talið
við það að athuga af þeim mönn-
um, sem trúað hefir verið fyrir
Frá Alþingi:
Athugun á nýju fyrirkomu-
lagi um álagning og
greiðslu tekjuskatts
Fypirkomulag, sem notað ep í
Bandaríkjunum og Kanada.
WJ jarni Benediktsson, borgarstjóri, flytur í Efri deild tillögu
^ til þingsályktunar um álagningu og greiðslu tekjuskatts.
Er þetta eftirtektarverð tillaga. Hún er svohljóðandi:
Skautasvell á Tjörninni verður
úðað með heitu vatni í vetur.
Svellið verður raflýst.
SKAUTAFÉLAG REYKJAVÍKUR verður 5 ára
þann 31. þ. m. Félagar eru nokkuð á 2. hundrað
talsins en formaður þess er frú Katrín Viðar.
Efri deild Alþingis skorar á
rík’isstjórnina að afla gagna um
fyrirmæli þau, sem ýmist hafa
verið gefin eða ráðgerð eru í
Bandaríkjum Norður-Ameríku,
Kanada og Englandi, í þá átt, að
skattar af tekjum séu á lagðir og
goldnir þegar á sama ári og
teknanna er aflað. Skal athugað,
hvort fært þykir að lögfesta slikt
fyrirkomulag hér á landi og
leggja árangur þeirrar athugun-
ar fyrir Alþingi svo fljótt sem
unnt er.
í greinargerð segir:
I löndum þeim, sem Island
nú hefir ein skipti við, ríkir
ótti um, að í striðslok, eða um
það bil, muni tekjur manna
svarsálagninug var lokið, var
spor í rétta átt, er hefir gefizt
mjög vel, og er sjálfsagt að veita
sömu heimild á ný, ef enn betri
skipun verður eigi fundim En
hinar erlendu þjóðir hafa ekki
látið sér þetta nægja, heldur,
sem sagt, sett i-eglur um greiðslu
skattanna alveg jafnóðum, og
þeirra er aflað.
Hæstvirt ríkisstjórn á liægast
með að afla um þetla nauðsyn-
legra gagna, og er því hér lagt
til, að deildin skori á liana að
gera svo óg leggja síðan liið
bráðasta árangurinn af athugun-
um sínum fyrir þingið.
(Vísir hefir áður getið þessa
fyrirkomulags í fréttum frá
mjög minnka frá því, sem nú er. ; Vesturheimi, en þar er það ým-
Gera menn ráð fyrir, að ef svo
fer, verði erfitt að lieimta inn
á síðari ári skatta, reiknaða af
tekjum naista árs á undan, er
þær voru miklu liærri en þegar
heinita á inn skattana. I>ess
vegna bafa menn nú þegar tekið
upp þann liátt í Bandaríkjunum
og Kanada að reikna út skalta
af tekjum þegar á sama ári og
teknanna er aflað og innlieimtá
skattana síðan jafnóðum. Ríkis-
stjórin brezka mun og nýlega
liafa borið fram tillögur um, að
sami liáttur verði tekinn upp
þar í landi. Mun fyrirkomulag-
ið þó vera nokkuð sitt með
liverjum bætti í hverju þessara
landa um sig.
Ljóst er, að erfitt er að koma
þessu við, þar sem stighækkandi
skattar eru, og þá ekki sízt þar
sem hækkunin er jafn gífurleg
og hér á landi. En fullyrða má,
að livergi sé þó þörfin brýnni
en hér, þar sem gjaidgeta manna
til skattgreiðslu hvílir hvergi á
ótryggari undirstöðum en hér.
Heimildin, sem í vor var veitt
sveitarfélögum til að byrja inn-
heimtu á útsvörum, reiknuðum
af tekjum siðasta árs, þegar á
fyrri liluta j>essa árs, áður en út-
gæzlu hagsmuna neytenda og
framleiðenda. Full sam-
vinna og fullur skilningur inilli
þessara aðila er nauðsyn, en sé
skilningurinn fyrir hendi stend-
ur ekki á umbótunum. Skiln-
ingsskorturinn lætur allt hjakka
í sama farinu þrátt fyrir rétt-
mæta óánægju og gagnrýni, sem
fram kann að hafa komið.
Bændur hér á landi hafa aldrei
lalið það metnaðarmál að láta
neytendum i té lélega vöru eða
ónóga. Þeir myndu allir sem
einn þess albúnir að bæta úr
brestunum, og er það því mis-
skilningur á hugarfari bænda,
er stjórnendur mjólkur og kjöt-
sölu telja lífsskilyrðL að hundsa
óskir og vilja neytenda með öllu.
Sökum, alrpenns öryggis þarf
að auka híð opinbera eftirlit
með afurðasölu verulega.
Skemmd vara er ekki markaðs-
liæf, eða á að minnsta kosti
ekki að seljast á fullu verði.
Samfara sölu skemmdra neyzlu-
vara getur verið stór almenn
hætta. Vörugæðin eiga að vera
skilyrðislaus og hið opinbera
eftirlit á að beinast að því sér-
staldega hvort svo sé. Landbún-
aðarafurðir eru hér engin und-
antekning frá almennu reglunni
um vöruvöndun. Það verða þeir
menn að skilja, sem tekizt hafa
þann vanda á hendur að stjóma
afurðasölunni.
ist nefnt „Pay-as-you-go“
,,Pay-as-you-earn“).
eða
íslenzkt skip talið af.
Sú furðulega slúðursaga
komst á kreik í bænum í gær að
eitt af skipum Eimskipafélags-
ins hefði verið skolið í kaf. Er
sagan með öllu tilhæfulaus.
Það er illa gert og ómannlegt
að breiða slíkan þvætling út,
einkum þar sem nokkur leynd
er jafnan um siglingar skipa,
og því oft erfitt að átta sig á
skipafréttum.
Vísir getur hinsvegar full-
vissað almenning um, að færi
svo illa, að eittlivað slíkt kæmi
fyrir, þá yrði réttum aðiljum
tilkynnt það tafarlaust og frétt-
in síðan birt opinberlega, þegar
Aðalfundur Skautafélagsins
var haldinn 20. þ. m. og var þar
m. a. kosin stjórn, en i henni
eiga sæti auk formanns, þau
Júliana Isebarn, Haraldur
Ágústsson, Sigurjón Danívals-
son og Björn Þórðarson.
Frú Iíatrín Viðar skýrði tið-
indamanni Vísis svo frá, að á
s.I. vetri mundu um 8000 manns
liafa sótt skautasvell Skautafé-
lagsins, er tölu varð á komið, og
voru það bæði fullorðnir og
börn.
Skautafélagið átti í fyrravetur
við mikla örðugleika að stríða
vegna vatnsleysis. Meðal annars
|%'arð að hætta við skautamót,
sem fyrirliugað var, vegna
vatnsskorls. Strax og úr rætist
um vatn til að sprauta á svellið
mun verða reyut að efna til
skautamóts.
í fyrravetur voru tilraunir
gerðar með að nota vatn úr
Tjörninni til að sprauta yfir
svellið, en það reyndist ónothæft
vegna seltu, því það skófst strax
upp.
I vetur verða sennilega gerðar
tlraunir með að úða svellið með
heitu vatni. Svipaðar tilraunir
hafa verið gerðar í Ameríku og
hafa reynzt vel. Annars er búizt
við að valnsskortur verði ekki
jafn tilfinnanlegur í vetur eins
og var s.l. vetur, vegna heita
vatnsnis, sem nú bætst við
vatnsmagn bæjariiis.
Sk'autafélagið lætur sig
dreyma uin ýmsar framlcvæmd-
ir, sem sumar geta jafnvel orð-
ið að veruleika mjög bráðlega,
eins og ljósaútbúnaður kring
er aðstandendum hefði verið
gert aðvart.
Takið því öllum slíkum
„fréttum“ með fullri gagnrýni
og varizt að breiða þær út. Með
því rekið þið óviljandi erindi
höfundanna.
uili Tjörnina, til að lýsa svellið
upp á kvöldin. Hefir rafmagns-
stjóri gefið góðar vonir um að
þeirra framkvæmda verði ekki
langt að bíða. Aðrar endurbætur
verða og gerðar, eftir þvi sem
tök eru til.
Þá hefir félagið hug á að eign-
ast vélar til að hreinsa svellið,
en hinsvegar gerir það ekki ráð
fyrir að geta ráðizt í þau kaup
fyrr en að ófriðnum loknum
og eðlilegir timar rikja. Nú þeg-
ar hefir. félagið komið upp bún-
ingsskúr á Tjarnarbakkanum.
Bæjarstjórnin hefir reynzt fé-
laginu mjög vel, því að bærinn
hefir að miklu leyti tekið i sínar
hendur mokstur svellsins, }>egar
snjór hefir safnazt á það. Er
það enda sjálfsögð skylda bæj-
arfélagsins, að reynast Skauta-
félaginu nauðsynleg stoð, þar
sem félagið vinnur með þessum
framkvæmdum sínum að auk-
inni liollustu, aukinni útiveru og
að heilbrigðri en ódýrri sk'emmt-
un. Markmið félagsins er að
vinna æskunni sem mest og bezt
gagn með því, að efla þesSa
ágætu og fögru íþrótt, og að
þessum tilgangi geta einstakling-
ar og bæjarfélag hjálpað, með
því að styrkja félagið éftir föng-
um.
Til Kristmanns Guðmundssonar
skálds (í tilefni af brúÖkaupinu) :
Fræga skáld, ég ber þér Braga-full,
—býður þú oss andans rauÖa gull—.
Sit'heill með brúði langa lífsins tíð,
lýái ýkkur kærleiks sólin blíð.
P. Jak.
Leiðrétting.
I frásögn blaðsins nýlega um
fjársöfnun til Norrænu ’hallarinn-
ar stóð að rúmlega 20 manns hefðu
gefið 3000 kr. hver til byggingar
hallarinnar. Þetta er að þvi leyti
ranghermi, að hér er ekki um gjaf-
ir að ræða, heldur framlög félags-
manna eða annarra velunnara.
Scrutator:
TlcucLdjbi cJbnjwnwtyS
0
Leynime! 13.
Eg leit sem snöggvast inn á sýn-
ingu hjá Fjalakettinum í fyrradag.
Eg hef ekki séð „Leynimel 13“ síð-
an á frumsýningunni i fyrravetur.
Þá var leikritið mjög vel æft og
fór vel úr hendi Ieikenda. Það er
oft hætt við því, að leikrit, sem
lengi ganga, aflagist í meðförum og
að leikarar fari að slá slöku við, 1
þegar fram í sækir. Einskis af
þessu varð vart. Ef um nokkra
breytingu var að ræða frá frum- !
sýningunni, þá var hún ekki önnur
en sú, að leikararnir þekktu áhorf-
endur betur, kunnu betur að þegja,
þar sem vænta mátti hláturs. Leik-
ritið er ákaflega skemmtilega byggt,
og öll þau öngþveiti, sem aumingja
leikpersónurnar komast í, eru með
afbrigðum hlægileg. Höfundarnir
hafa byggt leikritiö upp eins og
„farsa“, og gerir slíkt leikritsform
oftastnær ekki kröfur til nákvæmra
persónulýsinga. Samt sem áður hafa
höfundarnir af kímni mikilli dreg-
ið upp kostulegar persónur, sem eru
sjálfum sér samkvæmur og verða
lifandi á leiksviðinu í meðferð
hinna ágætu leikara, sein þarna hafa
valizt saman.
!
„Angel Street“.
Hér í hlaðinu hefir áður verið
skýrt frá hinu ágæta leikriti, sem
leikflokkur ameríska hersins sýnir
um þessar mundir. Leikur frú Inga
Laxness þar eitt aðalhlutverkið, en
hin hlutverkin eru í höndum her-
manna og hjúkrunarkvenna amer-
ískra. Á laugardagskvöld gaf leik-
flokkurinn kvenfélaginu „Hringn-
um“ sýningu til ágóða fyrir barna-
spítalasjóð félagsins. Varð aðsókn-
in ákaflega mikil, og komust færri
en vildu á þessa einstæðu skemmt-
un. Varð af þessu mikill hagnaður
fyrir hið ágæta málefni, og kunna
félagskonur leikflokknum og
stjórn ameríska hersins alúðar-
þakkir fyrir þessa drengilegu
hjálp.
i
Rjómaísinn.
í sambandi við frásögn Vísis um
rannsókn á rjómaís, hefir héraðs-
læknir óskað þess getið, að sýnis-
hom af rjómaís eru' alltaf tekin
í hverjum mánuði, og stundum oft-
ar, hjá öllum framleiðendum
rjómaíss og seljendum.
Héraðslæknir kvaðst jafnóðum
hafa skrifað hverjum einum fram-
leiðanda eða seljanda, er hann fann
eitthvað athugavert við ísinn.
Hahn sagði einnig, að jsnum væri
oft meira og minna ábótavant, en
það væri þó ekki ávallt framleið-
endunum að kenna, heldur væri
það oft sök mjólkurinnar, sem væri
ekki góð.
Héraðslæknir sagði, að þegar
mjólkurmálin kæmist í það horf,
sem lieilbrigðislöggjöfin gerir ráð
fyrir, verði bókstafnum fylgt, hvað
snerti ákvæði pm sölu og gæði
rjómaíss, en þangað til sé það
naumast hægt.
titvarpið í gærkveldi.
Erindi Carls D. Tuliniusar „um
daginn og. veginn" var mjög á-
heyrilegt 0g skörulega flutt. Eg
hefði kosið að heyra meir af fróð-
leik, svo sem um það, hverskonar
„sambandslög" Þjóðverjar hafa
hoðið Dönum upp á og hverjar
undirtektir þau fengu hjá dönsk-
um ráðamönnum. Hinsvegar var
margt skemmtilega athugað í
gagnrýni Carls á hversdagslegu
þjóðlífi voru, allt frá afstöðu til
setuliðs og umferðamenningu að
réttritun og stafsetningu erlendra
staðarheita. Heldur hann því fram,
sem rétt er, að þar sem um er að
ræða nöfn í tungumálum, sem- ekki
nota?t við sama stafróf og íslenzk-
an, beri að stafsetja eftir ftam-
burði, eða því sem næst. Eg held
líka að meðal íslenzkra blaða sé
vaxandi tilhneiging til þessa. Er t.
d. oftast ritað Kremensjúg, en ekki
Kremenchug, Tolstoj en ekki Tol-
stoy og Tsjaikovski en ekki
Tschaikowski. En í gamni langar
mig til að benda Carli á, að reglan
getur verið miklu víðtækari. Til
dæmis er stafurinn c í raun og
veru ekki til í íslenzku stafrófi, og
ætti þvi ^ð rita nafn hans Karl.
Svo að enn lengra sé haldið, þá
myndi eg í hans sporum kalla mig
Axelsson, en slíku verður auðvit-
að hver að ráða sjálfur. Hinsvegar
er mér mein-illa við hiná gömlu
tilhneigingu til að útrýma stafn-
um þ úr íslenzku með því að breyta
honum í th í mannanöfnum. Þessi
stafasamstæða verður í framburði
að t, réttu og sléttu, og út kemur
ónefni eða ill danska. En þótt við
Carl séum báðir mjög hlynntir
danskri tungu, þá óskum við hvor-
ugur þess að neinna alvarlegra á-
hrifa frá henni gæti í íslenzku. En
það er með tunguna eins og fleira
íslenzkt, að hún á bágt með að
samrímast erlendum áhrifum.
Landið mitt liggur í sárum ...
Af 270 áhrifamönnum eru 50
tæknar, lyíjasveinar, hjúkrunar-
konur og tannlæknar. Nafn mitt
hafði af vangá fallið af listanum.
Ærbþdigst,
ísak ísax
sjúkrabílstjóri.
Framleiðir
LOPAPEYSUR,
bláar, gráar og doppóttar,
UNGLINGA- og
BARNAPEYSUR,
mislitar og einlitar,
HERRAVESTI,
útprjónuð, tvi- og þrílit,
KVENJAKKA og
BARNAFATNAÐ
úr útlendu og innlendu
efni, og margt fleira.
Veljið
sterkt á manninn,
fallegt á konuna,
hlýtt á barnið.
Söluumboð:
ERL. BLANDON & CO. h.f.
Hamarshúsinu. — Simi 2877.
Herrabúðin
Skólavörðustig 2. Sími 5231,
Yfirfelldar
skápslamir
og stálmálbönd
nýkomið.
Niels Carlsson & Co.
Laugaveg 39. — Sími 2946.
Tilkynning
frá Regnhlifabáðinni.
Þeir, sem eiga hjá okktir
regnhlifar til viðgerðar, eru
beðnir að vitja þeirra fyrir
3. nóvember n. k. Eftir þann
tima verða þær seldar til
greiðslu á viðgerðarkostnaði.
RegnhlífabúSin,
Hverfisgötu 26.
Gólfteppi
óskast. Stærð ca. 2%+3. Til-
%
boð leggist inn á afgr. blaðs-
ins, merkt: „136“.
Verzlunarstarf
Ung stúlka óskast i vefn-
aðarvöruverzlun. Eiginhand-
arumsókn ásamt mynd og
meðmælum, ef til eru, leggist
inn á afigr. blaðsins fyrir 30.
þ. m., merkt: „36—1000“.
FJELAGSPRENTSniÐJUNNAR
Ö£ST>Ú
I