Vísir - 26.10.1943, Blaðsíða 3
VÍSIR
HVÁÐ BEr|
^gómaII
VESTFJARÐA-
PÓSTURINN.
i>ess hefir verið getið og yfir
því kvartað, bæði í blöðum og
af póstmeistaranum á ísafirði,
að póstur var ekki sendur með
tveim. skipum, er fóru frá Hafn-
arfirði og Réykjavík hinn 17. og
21. f. m. til Vesturlands, og þetta
talin vanræksla í póstafgreiðslu.
1 þessu tilefni sé eg ástæðii til
að skýra frá því, að rannsókn
þessa máls hefir leitt í ljós, að
hvorugt þessara skipa né heldur
afgreiðslin- eða umboðsmenn
þeirra gerðu pósthúsunum að-
vart um brottför skipanna, en
það ber þeim skylda til, samkv.
9. gr. póstlaganna, sem hljóðar
svo:
b-Iiður: ,
„Hvert skip, sem fer frá höfn
á íslandi til útlíinda eða inn-
lendra hafna, er skyldugt að
taka til flutnings bréfa- og
blaðapóst, ef þess er krafizt.“
e-hður:
„Otgerðarmenn, skipstjórar
og afgreiðslumenn skipa þeirra,
er sigla úr islenzkri böfn eða
milli íslenzkra liafna og eigi eru
í áætlunarferðum (reglubundn-
um flutningaferðum), skulu
skýra pósthúsinu á höfnum
þeim, er skip hefir viðkomu á,
frá ferð þess, bvaða dag, og
stund það ætli að lialda burtu,
og skal taka póst til flutnings, ef
þess er óslcað. Hafi lilutaðeig-
andi pósthús krafizt þess, að
póstflutningur verði fluttur með
skipinu, þá má það ekki fara
fyrir þann tíma, sem ákveðinn
liefir verið, nema póstflutning-
urinn sé áður kominn á skip.“
Er hér sérstaklega á þetta bent
til þess að leiðrétta misskilning,
sem.felst í orðum þeim., er dag-
blaðið Vísir í gær hefir eftir um-
boðsmanni annars skipsins, en
þau eru á þessa leið: .... „að
þessu skipi bar ekki. skylda til
að taká póst, þótt það hefi verið
gert í öllum tilfellum nema
þessu eina.“
Eins og skipagöngum er nú
liáttað, er það mjög mikilsvert,
að skipin vanræki ekki þessa
skyldu sína. En segja verður
það skipunum til maklegs lofs,
að yfirleitt munu þau eða af-
greiðslumenn þeirra gera sér far
um að greiða fyrir póstsam-
göngum, þótt einstöku misbrest-
ir sé þar á. Ilinsvegar get eg líka
fullvissað almenning um, að
póstafgreiðendur gera sér einn-
ig mikið far um að fylgjast með
ferðum skipanna og nota sem
fiest tækifæri til póstflutninga,
þótt það takist ekki alltaf, eins
og nú átti sér stað tvivegis.
13. 10. 1943.
Guðmundur Hlíðdal.
MARGT GOTT
ERSAGT.
í aiðasta liefti „Heimilis og
skóla“, sem kennarafélag Eyja-
fjarðar gefur út, eru meðal ann-
ars tvær ágætar greinar, sem
eg vil vekja á athygli manna.
Önnur er eftir Jónas lækni Krist-
jánsson og heitir: „Blessuð sól-
in“. — Fallegt nafn og pýðileg
ritgerð. Þyrfti að koma i fjöl-
lesnu blaði.
Hin greinin er eftir Ingimar
Eydal, kennara og fyrrv. rit-
stjöra. Hún heitir: „Dýrasta
eignin.“ Einnig mjög þörf og
ágæt grein, stíluð til okkar, sem
ölum upp börn. Einnig hún
þyrfti að koma í fjöllesnu blaði.
Þá er eg að enda við að lesa
í síðasta hefti „Jarðar“ hina af-
burða snjöllu og ágætu ritgerð
Guðmundar skálds Friðjónsson-
ar á Sandi: „Ábyrðarkennd og
sómatilfinning.“ Slíkt mál flytja
aðeins góðskáld og spámannlega
vaxnir menn. Og jætta eru einu
mennirnir, sem á öllum öldum
og ævinlega hafa á réttu að réttu
að standa, þessir hugdjörfú boð-
berar sannleikans. Þeir bregða
blysum hins örugga leiðsögu-
manns hátt á loft og átelja með
spámannlegum myndugleik ó-
mennsku og ræfildóm, ódreng-
skap, fláttskap og undirhyggju.
Þeir kunna að gera greinarmun
á manngöfgi og vesaldómi. —
Heill sé þeim. Orð þeirra munu
lýsa kynslóðunum þegar skvald-
ur atvinnurithöfundanna er ei-
líflega gleýmsku orpið.
Lesið sem fyrst ritgerðina:
„Ábyrgðarkennd og sómatil-
finning.“ Hún svíkur engan.
Pétur Sigurðsson.
Píanóleikar
Árna Kristjánssonar.
Fyrstu tópleikar Tónlistarfé-
lagsins á þessu starfsári voru
iialdnir i Gamla Bíó á sunnu-
daginn er var fyrir fullu húsi
áheyrenda. Var myndarlega af
stað farið, því teflt var fram
okkar fremsta píanóleikara, og
mun sjálfsagt mörgum vera líkt
farið og mér, að telja tónleika
hans jafnan einhverja þá beztu,
sem við eigum völ á, og bíða
þeirra með eftirvæntingu.
Að þessu sinni voru leikin lög
eftir Gluck, Mozart, Beethoven
og Chopin og var efnisskráin
bæði veigamikil og vel sett upp.
Tilbrigðakaflinn úr a-dúr són-
ötu Mozarts, sem er eitthvert
vinsælasta píanóverk höfundar-
ins, var sérlega fallega spilaður.
Þar næst var leikin Sónata ap-
passionata eftir Beethoven, sem
er ástriðuþrungið verk, og sú
sónatan, sem höfundurinn taldi
bezta eftir sig. Er langt síðan
þetta innblásna meistaraverk
liefir heyrzt hér á liljómleikum,
ekki síðan Friedmann lék fyrsta
kaflann, eða réttara sagt, nokk-
uð af fyrsta kaflanum, því þess-
um heimsfræga snillingi fatað-
ist listin, eins ög margir muna;
liann týndi þræðinum, er hann
var stutt kominn, fálmaði fyrir
sér og fann hann ekki aftur,
hljóp því yfir nokkrar siður og
tók niðurlagið. Er þetta í raun
og veru ekki tiltökumál og kvað
meðal annars hafa kö'mið fyrir
rússneska píanósnillinginn Ant-
on Rubinstein oftar en einu
sinni, en hann er með mestu
píanósnillingum, sem uppi voru
á 19. öldinni. En Árna fataðist
eldei í þessu verki. Hann sýndi
það, sem kalla má á lélegri ís-
lenzk'u „stórt spil“ og var með-
ferð hans bæði skapmikil og
frumleg. í kjölfar sónötunnar
fylgdu Chopinsprelúdiurnar
tultugu og fjórar. Er þetta sund-
urlaust safn af glitrandi perlum.
Ágætar skýringar eftir Cortot
voru skráðar í efnisskrána. Árni
hefir oft leikið prelúdíurnar áð-
ur. I leik hans birtast sérkenni
liverrar fyrir sig. Að lokum var
leikin Polonaise í as-dúr eftir
Chopin, sem naut sín fyllilega
í meðferð píanóleikai*ans, en
maður heyrir þetta verk annars
of oft þannig leikið, að píanó-
leikarinn á fullt í fangi með að
ráða við það, svo að allur skáld-
skápur verður útundan, þvi erf-
iðleikarnir ætla að sliga spilar-
ann. Oktövuhlaupin i vinstri
hendi sýndu, hversu þjálfuð
vinstrihandarleikni,Árna er orð-
in.
Árni er alltaf að stækka sem
píanóleikari. Hann hefir oft
leik’ið vel áður, en það er vafa-
mál hvort leikur lians hafi
nokkru sinhi áður verið jafn
lieilsteyptur og fágaður og að
jiessu sinni og er það víst, að
hann var einkar vel upplagður.
Viðtökurnar hjá áheyrendum
voru eins og vænta mátti mjög
góðar. B. A.
Knattspyrnnfélagið Fram
heldur aðalfund sinn í kvöld' kl.
8,30 í Kaupþingssalnum.
Loftur Guðmundsson
ljósmyndari mun annast mynda-
tökur fyrir Reykjavíkurbæ af ýms-
um gömlum og merkilegum bygg-
ingum i þænum, og auk þess gera
kvikmynd af sögu hitaveitunnar.
Hjúskapur.
Síðastl. laugardag voru gefin
saman í hjónaband af síra Bjarna
Jónssyni ungfrú Guðbjörg Guð-
laugsdóttir frá Tryggvaskála og
Magnús H. Magnússon, Helgason-
ar skrifstofumanns, á Baugsvegi 3.
Heimili þeirra verður á Auðarstr. 5.
Útvarpið í Dakar hefir skýrt
frá því, að reynt liafi verið að
ráða Laval fjórum sinnum af
dögum undanfarinn liálfan
mánuð. Útvarpið bætti því við,
að Laval hefði látið stórum auka
lífvörð sinn eftir þessi banatil-
ræði.
Tvær bækur á
v vegum M.F.A. |
Bókaútgáfa Menningar- og
fræðslusambands alþýðu hefir
legið niðri um nokkurt skeið,
en nú eru í prentun tvær bæk-
ur á vegum sambandsins, sem
koma munu út innan skamms.
Annað þessa rita er skáldsag-
an Babbitt eftir ameríska Nó-
belsverðlaunahöfundinn Sinclair
Lewis og kemur liún út í tveim
bindum. Hin bókin er um fram-
tíðarskipulag þjóðfélagsmála
eftir William Beveridge. Er
prentun beggja ritánna langt á
veg komin.
Fleiri bækur munu væntan-
legar frá M. F A. áður en langt
líður.
Árás setuliðs-
manna á bílstjóra
Á suhnudagskvöldið varð bif-
reiðarstjóri í Hafnarfirði fyrir
árás af hálfu setuliðsmanna við
Bústaðaveg.
Bifreiðarstjóri þessi, Hall-
grímur G. Björnsson á Norður-
braut 21 í Hafnarfirði skýrði
svo frá, að er hann hefði kom-
ið á Bifreiðastöð Hafnarfjarð-
ar um hálf ellefuleytið á laugar-
dagskveldið, hefðu beðið þar á
stöðinni tveir ameriskir her-
menn sem hann hefði verið beð-
inn að aka í nánar tilgreindar
herbúðir.
Ók bifreiðarstjórinn með her-
mennina eftir Sléttuvegi, en .er
þeir komu á bugðu þar sem
beygir þvert á Bústáðaveg vissi
Hallgrímur ekki fyrri til, en að
hann fær högg mikið á hægra
gagnaugað svo liann svimaði
við. Högg þetta fékk Ilallgrim-
ur af völdum hermannsins, er
sat i aftursæti bifreiðarinnar,
en hinn sat i framsæti hjá bif-
reiðarstj óranum.
Bifreiðarstjórinn reyndi nú
að komast út úr bifreiðinni og
heppnaðist það, en við höfuð-
liöggið missti hann stjórn á bif-
reiðinni svo hún rann út af veg-
inum og út í þýfi. Þegar Hall-
grímur kom út, datt hann og
réðist hermaðurinn sá hinn
sami þegar á hann liggjandi og
barði hann mörg högg. Hall-
grimur hrópaði á hjálp en her-
mennirnir tóku til fótanna og
hlupu á brott. Rétt á eftir bar
þarna að mann, er bjó í húsi
skammt frá, fór hann með Hall-
grím heim til sín og þvoði af
honum blóðið, en hann hafði
fengið nokkurn áverka. Að svo
búnu hringdi maður þessi til
lögreglunnar í Hafnarfirði og
lilkynnti árásina.
Árásarinennimir eru ekki
fundnir ennþá, en líkur benda
til að liægt verði að hafa uppi á
þeim. Upplýsingar þessar eru
frá skrifstofu bæjarfógetans í
Hafnarfirði.
Bœjar
fróltír
Næturakstur.
AðalstöSin, sími 1383.
Næturlæknir.
Slysavarðstofan, sími 5030.
Næturvörður.
LyfjabúÖin Iðunn.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20,30 Erindi: Cicero og sam-
tíð hans, I (Jón Gíslason dr. phil.).
20,55 Tónleikar Tónlistarskólans:
a) Sonatína í g-dúr eftir Dvorak.
b) Slavneskur dans í e-moll eftir
Dvorak. c) Tataralag eftir Dvorak
(Björn Ólafsson og Árni Kristjáns-
son). 21,20 Hljómplötur: Kirkju-
tónlist.
Hjónaefni.
Trúlofun sína hafa opinberað ný-
lega ungfrú Olöf Bjarnadóttir Jóns-
sonar vígslubiskups og Agnar Kl.
Jónsson deildarstjóri í utanríkis-
málaráðuneytinu.
Vtviima
Stúlka óskast til strauingar
og við frágang á fatnaði. —
FATAGERÐIN,
Leifsgötu 13.
Ntnlbnr
vanar kápusaum óskast nú
þegar. Hátt kaup í boði. —
Uppl. í síma 5561.
ozí 1 jÁ'ri.-'mzn
mi-rrnr-r^
Ferð til Stranda
í framhaldi af ferð Lax-
foss til Borgarness og bíl-
ferðinni norður á morgun
(miðvikudag) verður skips-
ferð með póst og farþega frá
Hvammátanga til Stranda-
hafna.
M.s. Rifsnes
Tekið á móti flutningi til
Ingólfsfj arðar, Norðurfj arð-
ar, Djúpaviluir, Drangsness,
'Hólmavíkur, Óspakseyrar,
Borðeyrar, Hvammstanga,
Blönduóss og Skagastrandar
fram eftir degi á morgun eft-
ir því sem rúm levfir.
I " '
Ármann
Áætlunarferð til Breiða-
fjarðar næstk. fimmtudag.
Flutningi veitt móttaka á
rnorgun.
„Esja”
Hraðferð til Akureyrar
seint i þessari viku. Tekið á
mót flutningi til ísaf jarðar og
Patreksfjarðar fyrir hádegi
á fimmtudag og flutningi til
Akureyrar og Siglufjarðar
síðdegis á fimmtudag og ár-
degis á föstudag. Pantaðir
farseðlar óskast sóttir á
fimmtudag.
Vegfarendur!
Gefið gaum að umferðinni, áður
cn þér gangið út á götuna!
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band í Hveragerði ungfrú Svan-
hildur Steinþórsdóttir (Guðmunds-
sonar, kennara) og Kristmann Guð-
mundsson rithöfundur.
Bridgefélag Reykjavíkur.
Spilað verður í kvöld kl. 8 í
húsi V.R.
Jörundur Pálsson
hefir beðið blaðið að geta þess,
að hann hafi ekki verið hér á landi,
þegar loftyarnaskýli þau voru
byggð, er skýrt var frá í blaðinu
í gær. Er það rétt hermt að því
leyti, að hann fór utan og dvaldi
í Englandi nokkurra vikna skeið,
meðan á byggingu skýlanna stóð,
en bygging þeirra var þá hafin, og
lauk henni ekki fyrr en löngu eftir
að hann kom heim aftur.
Hallbjörg Bjarnadóttir
heldur miðnæturtónleika í Gamla
Bíó í kvöld og á fimmtudag, kl.
11,30 í bæð skiptin. Hún syngur
ekki oftar að þessu sinni.
Veizlan á Sólhaugum
var sýnd í gærkveldi við húsfylli
og mikla hrifningu. Næsta sýning
verður á mánudagskvöld kl. 8.30.
Ameriska útvarpiS.
í dag kl. 16,00 Samtal um ís-
land. Á morgun kl. 16,00 Amerixsk
nútima hljómlist.
Amerísk herraföt
í dökkmran Mtuiru
VICTOR
Laugaveg' 33.
Oss vantar trésmidi
nú þegar*
Landssmiöjan.
Tilkynning
frá husaleigraiitefDcl.
Samkvæmt heimild i 5. gr. laga um húsaleigu, nr. 39,
i’rá 7. apríl 1943, mun húsaleigunefndin teka til umráða,
lausar íbúðir og ráðstafa þeim til handa húsnæðislausu
innanhéraðsfólki, hafi eigendur ekki sjátf'ir ráðstafað
þeim til íbúðar fyrir 1. nóv. n. k.
Jafnframt vill húsaleigunefnd beina þv; til þeirrai,
sem kynnu að vita um lausar íbúðir í bæmim, að þeir
skýri nefndinni frá því í viðtalstíma herniar, á mánu-
dögum og miðvikudögum kl. 5—7 eða skriflega.
Reyk.javík, 25. okt. 1943,
■»í>j
Húsaleigunefndin í Reykjavík.
Tilkynning
frá bæjarsímanum í Reyjkjavík
og Hafnarfiröi.
Að gefnu tilefni skal á það bent, að ^tirinoíeedum
er óheimilt að leigja eða selja öðrum simanúmer eða
síma, er þeir hafa á leigu frá bæjarsímanum, Brot gegn
ákvæðum þessum varða m. a. missi símans fyrirvara-
laust (sbr. 6. lið skilmála fyrir talsimanotendur lands-
símans, bls. 19 í simaskránni 1942—1943),
Reykjavík, 25. okt. 1943.
BÆJARSÍMAST3ÓRINN.
!
Amerískir klútar
teknir upp í dag, margir litir og gerðsr..
■ ‘A .
Ufst ,vli kjal) ií ði n b.f.
Hafnarstræti 11. — Sími 4473.
Barnlaus hjön
sem vinna bæði á skrifstofu óska eftir 3ja lierbergja ibúð seisa
allra fyrst. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Uppl. i sima 1727
eða 3724.
i
BEZT AÐ AUGLÝSA I VÍSL