Vísir


Vísir - 13.12.1943, Qupperneq 2

Vísir - 13.12.1943, Qupperneq 2
VISIR VÍSIR DAGBLAÐ Útfefuii: BLAÐAÚTGÁFAN VlSlR H.F. Ritat]ór»r: Kristján Gufflangsaon, Hersteisn Pálason. Skrifatofa: Félajfsprentsmiðjunni AfgreiSsIa Hverfisgöta 12 (gengið inn frá Ingólfsstræti). Bfmar: 1660 (fimm línur). Ver8 kr. 4,00 á mánuCi. Lausasala 85 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Hættuleg skattasteína Skattar hafa af eðlilegum á- stæðum verið miklu hærri hér í iandi, en i nokkru landi öðru. Ber þar Ail, að við höfum þurft að byggja upp landið og at- vinnuyegina á skennnri tíma en nokkur önnur þjóð, með því að éndurreisnaralda sú, er hófst í Norðurálfu um alda- mótin 1800 náði ekki hingað til lands fyrr en jeftir 1874, er þjóðin fékk nokkurt frjáls- ræði til að ráðstafa eigin mál- um, en hlíta ekki með öllu for- sjá erlendra manna, sem lít- inn eða engan kunnugleik höfðú af íslenzkum málum. Sagt hefir verið réttilega, að við þurfum ekki að bera kinn- roða vegna þeirra framfara, sem orðið hafa á þessu skeiði, enda Iiafa þær kostað þjóðina þungar fórnir og mikil átök. Allt það, sem unnizt hefir, spá- ir góðu um framtíðina, verði allt með felldu, en þeim mun meira isem frjálsræði þjóðar- innar verður, þeim mun ríkari áhyrgðartilfinningar verður að gæta, þannig að þjóðin koll- sigli sig ekki. Því ber ekki að leyna, að skattabyrðarnar hafa verið ó- þarflega háar, einnig vegna mistaka og óstjórnar. Miklu fé hefir verið á glæ kastað í mis- jafnlega þarfar framkvæmdir, og þjóðin liefir ekki farið á mis við barnasjúkdóma og vaxtarverki í sambandi við stjórn eigin mála. Hefir þrá- faldlega ekki verið gætt þeirr- ar varúðar sem skyldi, af hálfu löggjafans, en gengið of nærri atvinnuvegunum í fjárþving- un, þannig að enginn kostur hefir verið á frekari þróun eða endurnýjun, og þess eru jafn- framt dæmi, að heilar atvinnu- greinar hafa verið teknar til einskonar gjaldþrotaskipta með kreppulánaráðstöfunum. Vonandi á slík saga ekki eftir að endurtaka sig, þannig, að löghelgun vanskila eigi aftur eftir að stinga upp höfði. Nóg er komið í því efni og máske um of að gert. Nú tala menn um stríðsgróða atvinnuveg- anna, sem sýnist þó meira en hæpið, þegar útflutningsverzl- unin hamlar ekki upp í móti innflutningnum, en hitt er að vísu rétt, að afkoma atvinnu- veganna var sæmileg fyrstu stríðsárin. Þá áttu atvinnufyrir- tæki þess kost, að greiða upp eldri skuldir og koma rekstri sínum á heilbrigðan grundvöll aftur. Að dómi sumra þing- flokkanna virðist þetta höfuð- synd, sem úr þurfi að bæta á þann veg að atvinnufyrirtæk- in verði svift þeim hagnaði, sem þau hafa haft á undan- förnum árum, og sem gengið hefir að mestu eða öllu til að mæta fyrri áföllum. Er þetta raunalegt vitni um vanþroska, sem á engan hátt samrímist hagsmunum alþjóðar, þótt vel kunni að láta i eyrum þeirra manna, sem engum geta unn- að góðs, en allt vilja rífa nið- ur til grunna. Vinstri flokkarnir hafa bor- ið fram á þessu þingi róttæk skattafrumvörp og sækja það af miklu kappi, að þau nái fram að ganga. Mun með öllu óvíst, hver afdrif málsins verða, enda er þess að vænta, að þingi verði hráðlega slitið, nema því aðeins, að það sitji áfram til þess eins að afgreiða skatta- frumvörp þessi. Verði sú raun- in á, er ver farið en heima setið, og hefur þó vegur þings- ins sannarlega ekki úr liáum söðli að detta. Þetta sífellda brölt í skattamálunum er eitt- hvert hættulegasta fyrirbrigði i fjáx-shags og atvinnulifi. Ör- yggisleysi athafnamannanna og atvinnuveganna hlýtur ó- hjákvæmilega að leiða til þess að menn halda að sér höndum, en ráðast ekki í nýjar fram- kvænxdir. Viðhoi’f löggjafans til þessara manna er það eitt, að þeirra sé að bera áhættuna, en íúkið eigi að taka ágóðann, ef einhver sé, og seilast jafnvel aftur fyrir sig nokkur ár, til þess að hremma þann ágóða, sem ekki varð náð til með þá- gildandi skattalöggjöf. Léð hefir verið máls á síku af flokk- um, sem beinlínis liefðu átt að standa á verði gegn því, og er það undrunarefni, þegar þess er gætt, að í alþjóðalöggjöf þekkjast ekki slik dæmi, nema því aðeins að uin ríkisgjaldþrot hafi verið að ræða, og þurft hafi að ganga á samansparað- ar eignir þjóðarinnar til við- reisnar að nýju. Um ekkert slíkt er að ræða hér hjá okk- ui', enda með öllu óverjandi, að efna til slíkrar eignarnámslög- gjafar. Götuzyskingar. Aðfaranótt sunnudagsins, um kl. 1 urðu miklar ryskingar rétt hjá bifreiðastöð Steindórs, að minnsta kosti tveir menn hlutu töluverða áverka á andliti. Þegar lögreglan kom á vett- vang voru hinir sæi’ðu menn á staðnum og lá annar á götunni. Virtist hafa verið sparkað í and- litið á honum og var hann með allmikinn ávei'ka. .Þeir sem kornið höfðu áflogunum af stað höfðu liypjað sig á brolt, en lög- í-eglunni tókst að handsama þá og voru -þeir þrír talsins. Áttræður v er í dag GuÖmundur Eggertsson, verkamaður, Freyjugötu ioA. Vestnr tim haf og lieim I flngrvél. Lítil drengur fær lækningu. Frú Aðalheiður Sæmundsdóttir, kona dr. Símonar Jóh. Ágústssonar, er nýkomin heim frá Bandaríkjunum, ásamt syni sinum, Hákoni, á fimmta ári. Fórú þau báðar leiðir í flugvélum ameríska liersins, en ferðinni var heitið til Boston til að leita Hákoni litla lækninga. Hafði lionum, fyrir tilstilli heilbx’igðís- stjórnarinnar og islenzka utanríkismálaráðuneytisins, verið komið fyrir i barnaspitalanum i Boston, og framkvæmdi yfir- læknir barnaspitalans, ixróf. dr. W. E. Ladd, þrjá uppskurði á honum, sem allir heppnuðust mjög vel. Vísir hafði tal af frú Aðalheiði og fórust henni orð á þessa leið: ! „Við erum að vonum mjög | þakklát fyrir allt, sem fyrir okk- ur hefir vei’ið gert og éiga þar margir hlut að máli. Það var fyiir atbeina Tlior Thors sendiherra i Washington og sérstakan vclvilja amerísku stjórnarvaldanna, að við vorum flutt loftleiðis Iiáðar leiðir, án þess liefði reynsí ókleift að leita drengnum lækninga vestra. Aðalræðismaðurinn i New Yoi’k, dr. Helgi P. Bi’iem, greiddi götu okkar á allan hátt, og nut- um við frábærrar gestrisni á heimili lians, cn þrð er alkunna, að hann lætur sér séx’staklega arnt um |'á, s n vestur leita scr til heils xbót. r. I barnaspítatiiiam naul di*eng- urinn hinnar nákvæmustu hjúkrunar og umöilnunai’, og á meðan eg dvaldist í Boston, átti eg því láni að fagna að dvelj- ast á heimili gamalla Reykvík- inga,/ frú Jóhönnu Jónsdóttur og Kormáks Ásgeirssonar, sem gerSu allt til þess að létta af mér áhyggjum í veikindum sonar míns. Báðar ferðirnar gengu mjög að óskum, og nutum við að öllu leyti hinnar beztu aðhlynning- Rúðubrot. 1 fjTrinótt var brotin rúða í skemmuglugga Haraldar. Voru áflog í Austurstræti fyr- ir framan Haraldai’búð, laust fyrir kl. 4 i fyrrinótt. Við áflogin brotnaði stór rúða í skemmu- glugga Hai-aldar. Er lögreglan kom á vettvang voru áflogaseggii’nir lxorfnir, en hún mun þó að öllum líkindum liafa haft uppi á þeim, sem sök- ina átti á rúðubrotinu. B cetap fréttír Næturlæknir. Slysavarðstofan, sími 5030. Næturakstur. BifreiðastöÖ Steindórs, sírni 1580. Háskólafyrirlestur. Símon Jóh. Ágústsson flytur fyrirlestur á morgun kl. 6.15 í I. kennslustofu Háskólans. Efni: Helztu andstæÖur í sálarlífi manna : Reiði og vanmetakennd. Öllum heimill aðgangur. Þeir, sem kynnu að eiga lög Skógrækt- arfélags íslands, eins og þau voru samþykkt 27. júní 1930 á Þingvöll- um, eru vinsamlegast beðnir að tala við Hákon Bjarnason skógræktar- stjóra. Kvikmynd, er sýnir lifnaðarháttu og starfs- háttu Vestur-íslendinga, verður sýnd á fundi St. Framtíðin í kvöld i G.t.-húsinu. J. Thorson þingmað- ur skýrir myndina, en söngflokkur V.-Islendinga syngur. Sýningin er ókeypis. Nýir félagsmenn eru vel- komnir. Útvarpið í kvöld. Kl. 20.30 Þýtt og endursagt (Finnur Jónsson alþingismaður). 20.50 Hljómplötur: Gieseking leik- úr .á píanó. 21.00 Um daginn og veginn (Sigurður Bjarnason al- þingismaður frá Vigur). 21.20 Út- varpshljómsveitin: Þjóðlög frá ýmsum löndum. — Tvisöngur (frú Guðrún Ágústsdóttir og ungfrú Kristin Einarsson) : a) Sunnudags- morgunn (Mendelssohn). b) Eng- illirni (Rubinstein). c) Sumaryndi (Heise). d) Bátsöngur (Offen- bach). Hjónaefni. v , Nýlega opinberúðu trúlofun sína ungfrú Nanna Kaaber, Laufásvegi 19, og Bjarni Árnason, Kirkju- stræti 4. Vinnuvísindi. ■pyrir nokkru barst mér bréf frá * einum lesanda blaðsins, sem hljóðar svo: * „Þótt greinar í „Bænum okkar“ hafi einkum fjallað um bygging- ar í bænum og fegrun hans, langar mig samt til að ræða þar um ann- að efni varðandi bæinn okkar, og ef nauðsynlegar endurbætur yrðu gerðar á því sviöi, gæti það orðið til fegrunarauka, ef ágóði, sem af því hlýzt, yrði lagður í fegrunar- sjóð.“ * „Eg hefi svolítið fylgzt með vinnubrögðum hjá bænum og fyr- irtækjum hans, hér við götuna, sem eg bý við. Fyrir hálfu öðru ári var götulögn hafin. Byrjað var með greftri fyrir vatni og skolpi, og er það eins og vera ber. Nokkr- um mánuöum siðar, eftir að skurð- urinn var löngu tilluktur, komu menn frá símanum og grófu fyrir jarðstreng. Tveim til þrem mánuðum- síðar grefur svo Raf- veita Reykjavíkur upp skurð sím- ans, og leggur þar rafstreng. Tveim, þrem mánuðum eftir að skurðinum var að nýju lokaö koma aftur menn frá Rafveitunni, grafa skurðinn upp að nýju og leggja nú annan streng fyrir götuljósin. Enn er eftir að leggja í götuna fyrir hitaveitunni, og að því loknu er búið fimrn sinnum að grafa í göt- una með stuttu millibili, fyrir sjálf- sögðustu leiSslum.“ ❖ „Eg er þeirrar skoðunar, að einu sinni eða tvisvar hefði getað nægt, ef samvinna væri milli hinna ýrnsu deilda bæjarframkvæmdanna, óg segir sig sjálft að mikið má spara með því að sameina þá vinnu, er hér ekki að getd komiö fyrir á því um ræðir. Valda þessi vinnubrögS fólkinu, sem við götuna býr, óþarfa óþægindum, aS ekki sé talað um þá skapraun, sem slík vinnubrögð valda þeim, sem við eiga að búa og neyðast til að vera áhorfend- ur að. „Skipulagsleysi" sem þetta á ekik að geta komið fyrir á því herrans ári verklegra frarn- kvæmda, 1943.“ Svo mörg eru þau orð og í tíma töluð. ❖ Skothúsvegur . frá Fríkirkjunni, yfir Tjarnar- brúna til vesturs, hlýtur að teljast mjög hentug umferðaræð milli bæjarhlutanna, sem líkleg sé til þess að létta á akstri gegnurn mið- bæinn úr suðurbænum. Hefir gata þessi Iengi verið í mesta uppróti vegna hitaveitunnar, en þess á milli algjörlega óakfær og gjörsamlega vanhirt, enda þótt veghefill sé á löngum fresti látinn jafna mestu hryggina til málamynda. Efast eg um að HoltavörSuheiði hafi á frumstigi vergakerfisins verið öllu lakari en þessi gata er að jafnaSi, enda leggja flest- ir bílstjórar og jafnvel gangandi fólk á sig krók niður í miðbæinn, fremur en að stytta sér leiö yfir Tjarnarbrú í vesturbæinn Eins og eg hefi áSur getið um í sambandi við urnrót gatna vegna hitaveitunnar, þá eru bæjarbúar yf- irleitt þolinmóðir, meðan vitað er hver nauðsyn er fyrir hendi, en þeirri þolinmæði má sannarlega of- bjóða, þegar ekkert er aðhafst um lagfæringar eftir að skurðum hefir verið lokað, og göturnar eiga að heita opnar til umferðar, en forar- vilpur og afgangs-moldarbyngir látnir standa óhreyfðir, og ak- brautin eins og versta órutt aphl- hraun Þetta á ekki meS nokkru móti að líðast, og ætti bærinn frekar aS afgirða slíkar götur með öllu, en opna til umferðar, meöan ekki er einu sinni borið ofan í verstu far- artálmana. Afgangs-molda'rbingir víða á götum bæjarins eru að verSa alvar- leg plága, sem ekki mundi líðast neinsstaðar í öðrum bæjurn. Væri fróðlegt að vita hvort verktakar hitaveitunnar eða bærinn sjálfur á að sjá um brottflutning þeirra, en þaS er krafa, að þeir verði fluttir burtu tafarlaust. I rigningum rennur moldin úr þeim á götur og gangstéttir, auk þess, sem þessif merkilegu minnis- varðar eru víða leiSinlegur farar- tálmi. Svona deyfS og hirSuleysi er alveg óþolandi. Get enn bætt við nokkrum permanentum fyrir jól. Ilárgreiðlastofa Núiönnn Jónsdóttur Grjótagötu 5.-Sími 492Í7. Dr eng j afrakkar" nýkomnir. Kaxfmannaryldrakkar T mikið úrval. Klæðaverzlun Kndrésar llndréssoflðr b.f. Karlmannaföt sem pöntuð voru í vor, en eru ennþá ó- sótt, verða seld öðrum, sé þeirra ekki vitj- að eftir þrjá daga. Klæðaverzlun findrésflr ffndréssoflsr h.l. Hjartanlega þaklca eg öllum þeim, sem sgndu mér virðingu og vinsemd á fertugsafmæli mínu, með heim- sóknum, ræðum, gjöfum, blómum og skeytum. Þ o r g e i r J ó n s s o n frá Varmadal. NÝ BÓK: Álfaslóðir EFTIR SVANHILDI ÞORSTEINSDÓTTUR. Um lxina ungu skáldkonu og fyi'stu bókina hennar segii’ einn kunnur ísl. rithöfundur og bókmenntafræðingur: Þessi bók hefir að færa safn skáldsagna og ævintýra eftir konu, sem byrjaði ung að rita, sem ástundað hefir fyrst og fremsl fegurð og ágæti i list sinni, en minna liirt um að koma viðfangsefni sínu á framfæri. — Hér rná sjá vöxt og þroska hinnar ungu skáldkonu, allt frá æskuverkum hennar til sög- unnar „Litlu sporin“ og ævinlýrsins „Riddarinn í skóginum“. Svanliildur Þorsteinsdóttir kann ef til vill að gjalda þess á nokk- urn iiátt, live vandi er að eigá frægan föður. Ósjálfrátt mun lesandanum verða liugsað til „Málleysingja“ Þorsteins Erlings- sonar, eins hins fegursta verks að stílsnilld, sem íslenzkar bók- menntir eiga í óbuodnu máli. En liversu sem fer um þann sam- anburð, mun það ekki dvljast, að þessari litlu bók bregður til góðs ætternis að hófsemi í frásögn, glettni og innileik í skibiingi, heiðrikju í stíl, mjúkleik og látleysi í formi. Flestar ástarsögur eru sagðar af karlmönnum; þær bera vitni þeirra tilfinningum og þeirra skilningi á vilja og þrá konunnar. Hér gelur að lesa söguna „í morgunsól,“ hug konunnar sjáll'r- ar, fögnuð vaknandi og vitandi ástar, sem á aðeins eftir að sleppa sér, morgun nýs lífs í sólarroða. Hér getur að lesa um sorgir og vonir hins umkomulausa, um ljúfar, leyndar ástir i hugardjúpi liins dula afdalabónda, sem fer einförum um fjöll á vetrarnótt, og svo sögu þeirra, „sem gefa alla ævi sína fyrir eina nótt í paradís“. — Hér stendur fyrir augum lesandans hin fátæka móðir, munaðarlaus og alein, og liorfir á spor litla drengsins i sandinum; en liún liefir fært harni sínu þá dýrustu fórn, sem hún gat: gefið það ríku fólki. Þér getið leitað í hók- menntum margra þjóða, farið land úr landi, en þér finnið ekki tekið mýkri og fegurri höndum á þessuin sárustu taugum mann- legrar tilveru. FALLEG BÓK OG SKEMMTILEG. — KOSTAR KR. 35.00.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.