Vísir - 16.12.1943, Qupperneq 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
* Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar I
Biaðamenn Simii
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsla
33» ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 16. desember 1943.
286. tbl.
Þessi mynd er frá einni af árásum flugvéla bandamanna á
Japani hjá Raboul. Sprengjur eru látnar svifa til jarðar í fall-
hlifum, þegar þeim er varpað úr svo lítilli hæð, að sprengingin
mundi skemma árásarflugvélina, ef „skeytið“ félli til jarðar
með eðlilegum liraða.
Loftsóknin á Kyrra-
hafi fer dagvaxandi.
356 smál. sprengja varpað á einn stað.
VJ*LUGVÉLAR BANDAMANNA undir stjórn MacArthurs
* gerðu í gær mestu árás, sem nokkuru sinni hefir verið
gerð utan Evrópu, er þær vörpuðu 356 smálestum sprengja á
bækistöð Japana í Arawe, suðvestan til á Nýja-Bretlandi.
Undanfarnar vikur hefir
loftsókn bandamanna á þessum
slóðum farið dagvaxandi, en
þessi árás fór þó fram úr öllu,
sem þórna hefir átt sér stað í
þessu efni. Voru bækistöðvar
Japana í Arawe gersamlega
lagðar i auðn og þótt þar væri
völlur fyrir orustuvélar, kom
engin þeirra til móts við flugvél-
ar bandamanna. Einnig var ráð-
izt á flugvöllinn hjá Gasmata.
Það er að visu ekki mikið
sprengjumagn, sem þarna hefir
verið varpað til jarðar, þegar
þess er gætt, hversu miklu Bref-
ar demba nú niður á fáeinum
minútum á Þýzkaland, en það
er raunverulega ekki svo litið,
þegar tekið er tillit til þess, að
í mestu árás Þjóðverja á Lond-
on var ekki varpað niður nema
450 smál. af sprengjum.
Árásir víða.
Bandamenn hafa einnig gert
harða árás á bækistöðvar Japana
á Bougainville-eyju og var
varpað þar niður 134 smál., en
norðarlega í Salomonseyjum
var stórt japanskt beitiskip hæf t
tveim 1000 punda sprengjum.
Ámerískar flugvélar hafa
einnig ráðizt á Marshall-eyjar
enn einu sinni og var lagt upp
á hinum nýja flugvelli á Tarawa.
Járnbrautaverkfall
í aðsigi í D. S.
Fimm félög amerískra járn-
brautarstarfsmanna hafa sam-
þykkt að hefja verkfall frá 30.
þ. m. að telja.
Meðlimir járnbrautarfélaga
þessara eru samtals 350,000 og
við atkvæðagreiðslur um verk-
fall samþykktu 98 menn af 100
að vinna skyldi lögð niður. Eru
gerðar kröfur um hærri laun og
ýms fríðindi.
Málið verður tekið til með-
ferðar af málamiðlunarnefnd
ríkisins á mánudag.
Það yrði hið mesta áfall fyrir
stríðsrekstur Bandaríkjanna, ef
verkfall þetta yrði gert og stæði
lengi.
Ítalía:
Orkone brennur.
Indverskar hersveitir eru nú
komnar fast að Ortone, sem
stendur í björtu báli, og þykir
það benda til þess, að Þjóðverjar
ætli senn að yfirgefa borgina.
Frá Ortone liggur aðal-þjóð-
leiðin fyrir sunna Pascara vest-
ur á bóginn til Róm, og er því
mikill ávinningur að töku henn-
ar.
Fimmti herinn heldur enn
kyrru fyrir, vegna ófærðar, og
flughernaðaraðgerðir hafa legið
niðri undanfarinn sólarhring,
vegna ofviðris.
Þýzkir hermenn
áminntir.
í sókninni undanfarna daga á
Ítalíu, hafa bandamenn tíðum
fundið á foringjum Þjóðverja,
sem fallið hafa, skipanir um að
áminna hermenn sína um þag-
mælsku, ef þeir verði teknir til
fanga. Er svo að sjá af skipun-
inni, að hermennirnir gefi oft
mikilvægar upplýsingar um
birgðastöðvar og foringjasetur,
sem fluglið bandamanna geri
síðan árás á.
Hermennirnir eru hvattir til
að gæta eins mikillar þag-
mælsku og hermenn banda-
manna, einkum Breta.
Hungursneyðin í Bengal.
Talið er að eigi færri en
fimmtán þúsund manns hafi
orðið hungurmorða í Bengal-
héraði í haust, og ef til vill miklu
fleiri
Mannfallið var mest frá byrj-
un ágúst og fram í miðjan októ-
ber. Á því tímabili voru 8800
manns fluttir í sjúkrahús og lét-
ust 2500 þeirra, en á götum og
á víðavangi létust eigi færri en
Loftárásir
á Tyrol.
í herstjórnartilkynningu Eis-
enhowers, sem barst til London
um hádegisbilið segir, að fljúg-
andi virki hafi gert miklar á-
rásir á Innsbruck í Tyrol og Bol-
zano, en þessar borgir standa
við helztu flutningaleiðir Þjóð-
verja til Ítalíu. Tjón er talið vera
mjög mikið í báðum borgunum.
N.Guinea:
Astralíumenn
stytta sér leið
Nota riddaralið.
Framsveitir Ástralíumanna
eru nú aðeins um 50 km. frá
Madang á Nýju-Guineu.
Eiga þær þar í höggi við Jap-
ana í Ramu-dalnum, en þessar
vígstöðvar eru um 250 km. fyrir
vestan vígstöðvarnar á Huon-
skaga, svo að ef Ástralíumenn
geta brotizt til sjávar hjá Ma-
dang, horfir mjög illa fyrir Jap-
önum á Huonskaga.
Þess er getið i fregnum frá
bardögunum fyrir suðaustan
Madang, að Ástralíumenn noti
þar 1 fyrsta skipti riddaralið i
þessu stríði, en siðan í fyrri
heimsstyrjöldinni hafa Ástraliu-
menn átt mjög gott riddaralið.
Kínverjar segjast
vera í sókn.
Kínverjar segjast reka flótta
Japana af kappi í grennd við
Changte.
Segjast þeir vera komnir um
60 km. norður fyrir Changte og
öllu lengra norðvestur fyrir
borgina og sé mannfall mikið
í liði Japana. í fregnum Japana
er heldur lítið getið um bardaga
þarna, en þó segjast þeir hafa
hvarvetna yfirhöndina.
Alamein kost-
aði 10 milL dé
1 gær var brezkum þing-
mönnum sagt lítillega frá
því, hvað sitríðið kostar
brezku þjóðina.
Fulltrúi fjármálaráðu-
neytisins skýrði frá því, að
orustan við Alamein hefði
kostað 10 — tíu — milljónir
sterlingspunda, en rekstur 8.
hersins kostaði Breta eina
300 þúsund sterlingspund á
dag.
Ef Þjóðverjar gera árás á
London, svo að byssur borg-
arinnar verða að halda uppi
skothríð eina nótt, er kostn-
aðurinn við það 100,000
sterlingspund og er þá tjón
Stalið, ef eitthvað verður. —
4800 á sama tímabili. Þá var á-
standið svo hroðalegt, að 75
manns dóu daglega í sjúkrahús-
unum einum. En gert er ráð
fyrir því, að dánartalan hafi
minnkað verulega síðan um
miðjan október og þótt dauðs-
föll sé ekki alveg hætt enn, eru
þau þó hverfandi móts við það,
sem áður var.
Kólera og taugaveiki hafa
einnig gosið upp við liungurs-
neyðina og í einni viku létust
157 manns úr þessum sóttum,
auk þeirra, sem dóu úr hungri.
Brúastæði Rússa við Tsjer-
kasi og Kremensjug
sameinuð
Her Þjóðverja í Dnjepr-bugðinni í enn meiri hættu.
Rússar vinna á fyrir
vestan Kiev.
RÚSSAR unnu í gær einn mesta sigur, sem þeir
hafa unnið gegn Þjóðverjum síðan þeir brut-
ust fyrst vestur yfir Dnjepr-fljótið fyrir fá-
einum vikum. Þeim tókst að sameina bæði brúarstæði
sín við Tsjerkasi og Kremensjug í eitt, um það bil miðja
vega milli þessara tveggja borga, svo að það er nú hátt
á annað hundrað kílómetra á breidd.
Þetta virðist vera bein afleiðing af því, að Þjóðverjar voru
neyddir til að hörfa úr Tsjerkasi, en þótt svo væri ekki er það
hið mesta áfall fyrir Þjóðverja, og má mikið vera, ef það or-
sakar ekki, að Mannstein, sem er yfirmaður Þjóðverja á suður-
hluta vigstöðvanna, verður að fyrirskipa stórkostlegt undan-
Brezkir hernaðarfræðingar
liafa fyrir löngu spáð því, að
Þjóðverjar verði að liefja mikið
undanhald úr Dnjepr-bugðunni,
en óvíst sé nema sókn Rússa
verði búin að ná svo miklum
þunga og hraða, þegar skipunin
loks verður gefin, að þýzka her-
stjórnin megni ekki að bjarga
nema nokkurum hluta hersins.
Wesson hershöfðingi, sem er
einn af hernaðarfræðingum
brezka útvarpsins, telur, að eigi
færri en 30 þýzkar herd. hafi
nú bækistöðvar í Dnjepr-bugð-
unni, eða ekki mixma lið en 400
þúsund menn, þegar gert sé ráð
fyrir mannfalli og fækkun i
hverri herdeild af öðrum sök-
um. Þykir Wesson þunglega
horfa um björgun þessa liðs, ef
ekki verður hafizt handa um
brottflutning þess mjög bráð-
lega.
Það, sem hann færir fram til
rökstuðnings þessari skoðun
sinni, er eftirfarandi: Rússar
hafa nú styrkt heri sína í miðri
bugðunni með þvi að sameina
þá, aukið styrkleika þeirra a. m.
k. um helming samanlagt. Hitl-
er hefir áður gefið hersveitum
sínum skipun um að verjast til
þrautar (Stalingrad) og dauða-
dæmt á þann liátt mikinn fjölda
manna, sem hægt liefði verið að
bjarga og nota síðar, er í nauðir
ræki.
Inni í bugðunni sækja Rússar
nú fast til járnbrautarborgar-
innar Smela og eru í lítilli fjai'-
lægð frá borginni, cn milli henn-
ar og framvai'ða þeirra eru mýr-
arflákar, sem geta orðið erfiðir
viðfangs.
Fyrir vestan Kiev.
Stórorusturnar fyrir vestaii
Kiev hafa nú staðið á fimmtu
viku og hefir ýmsum veitt bet-
ur. í gær miðaði Rússum þó
nokkuð áfi'ain í greixnd við
Malin. Þar höfðu þeir verið
neyddir til að hörfa úr borginni
Radomysl i fyrradag. Þjóðverj-
ar tefla fram miklunt sæg skrið-
dreka.
Þjóðverjar skýra frá þvi. að
Rússar gerðu hai'ðnr ái'ásir i
grennd við Nevel. Russar geia
þess ekki.
Sókn á Balkan?
Það hefir vakið mikla at-
hygli, að Eden sagði i ræðu
sinni í neðri málstofunni,að
hörð loftsókn væri megin-
þáttur í sóknaráformum
bandamanna. Samtímis því,
er fregnir berast um, að
Þjóðverjar hafi sent aukinn
flugher til eyjanna Samos,
Khios o. s. frv. og til Búlgar-
iu, berst fyrsta fregnin Um
stórárás bandamanna á
Grikkland, þ. e. 300-flugvéla
árásin á Piræus og 3 helztu
flugvelli Þjóðverja í Grikk-
landi. — Flugmálasérfræð-
ingur Daily Mail segir, að eft-
ir öllum likum að dænta sé
300-fIugvéla árásin uppliaf
mikilla tiðinda við Miðjarð-
arliaf.
Tilhögun um lokun
verzlana um jólin.
Yerzlanir í Reykjavík verða
opnar næstk. laugardagskvöld
til kl. 12 á miðnætti, ennfremur
verða þær opnar til kl. 12 á mið-
nætti á Þorláksmessu, þann 23.
þ. m.
Aðra daga fyrir jól verður
lokað á venjulegum tíma, kl. 6,
nema'á aðfangadag. Þá er búð-
um lokað kl. 4 síðdegis.
Um nýárið verða verzlanir
lokaðar þrjá daga i röð, þ. e. á
nýársdag, 2. í nýári, sem er
sunnudagur og mánudaginn 3.
jan. því þá fer fram vörutalning.
Meðlimir
Sálarrannsóknaíélagsins sæki að-
göngumiða að afmælisfagnaÖinum
fyrir sig og gesti sína í BókaverU
un Sigf. Eymundssonar íyrir hádégi
á morgun.
Bygging nýrrar drátt-
arbrautar á Akureyri.
Fyrra mánudag kallaði bæj-
arstjórn Akureyrar saman fund
til að ræða um undirbúning að
stofnun dráttarbrautar þar í bæ.
Á fundinum mætti fjárhags-
nefnd bæjarins, hafnarnefnd,
nefnd kosin af fjórðungsþingi
| Fiskifélagsins, Steindór Hjalta-
i iin, aðaleigandi gömlu dráttar-
. 1 i'autai’innar og nokkurir út-
j : drðarmfenn.
Tvær nefndir voru kjörnar á
í'undinuni, önnur til að annast
; tiiugun og undirbúning, en hin
til rð atliuga um fjárframlög frá
ú 'ger'ðárniönnuin og skipaeig-
endum á Akureyri og annars-
staðar á Norðurlandi til fyrir-
lækisins.
Verðlagsbrot.
Eftirgreind fyrirtæki hafa
nýlega verið sektuð sem hér
segir fyrir brot á verðlags-
ákvæðum:
Veitingastofan Herðubreið,
Hafnarstræti. Sekt kr. 300.00,
fyrir of hátt verð á veitingum.
Kápubúðin Max, Hverfisgötu
34. Sekt kr. 500.00 fyrir of hátt
verð á saumaskap. Eigandinn
hefir áfrýjað dóminum.
Þá hefir bifreiðastjórinn
Andrés Blomsterberg vérið
dæmdur í 300 kr. sekt. fyrir að
taka liærra gjald fyrir bifreiða-
akstur en heimilt er satnkvæmt
taxta bifreiðastjórafélagsins
„Hreyfill“.
Reykjavík, 15. des. 1943.
Skrifstofa verðlagsstjóra.
Gæsaþjófnaður.
í nótt var brotizt inn í gæsa-
bú sem Sigfús Blöndahl á, og
stendur í Viðimýri við Kapla-
skjólsveg. Var 8 gæsum stolið
þaðan.
í gær upplýsti rannsóknar-
rögreglan innbrotsþjófnaðinn í
skartgripaverkstæði Óskars
Gíslasonar. Var það 14 ára pilt-
ur, sem valdur var að þjófnað-
inum.
Influcnza
á Aknreyri.
Inflúenzufaraldur sá, sem
nú er að fjara út hér i bænum,
hefir borizt víðsvegar um land.
Fer hann ört yfir, en virðist yfir-
leitt vægur.
Á Akureyri hafa verið það
mikil brögð að inflúenzunni, að
loka varð Menntaskólanum um
tíma.
Samjjykkt U.M.S. Kjalar-
nessþngs í sjálfstæðls-
málinu.
Ungmennasamband Kjalar-
nesþings var haldið s.l. snnnu-
dag að Klébergi og voru þar
ýms mál til umræðu.
Þingið lýsti m. a. ánægju
sinni yfir tillögum stjórnar-
skrárnefndar og yfirlýsingu
níeiri liluta Alþingis i sjálfstæð-
ismálinu. Skorar þingið á alla
íslendinga að standa einhuga
um stofnun íslenzks lýðveldis
þann 17. júní 1944.
Meðal annarra ályktana, er
gerðar voru, var tillaga um þjóð-
liátíðardag 17. júni og samþykkt
um áfengismál.
Stjórn sambandsins skipa:
Gísli Andrésson Hálsi, forseti,
Guðmundur Vigfússon Reykja-
vík, ritari, og ólafur Þórðarson
í Varmadal, gjaldlteri.
Sambandið telur nú um 600
meðlimi.
Amerísk herskip starfa nú
með brezka flotanum í nánd
við England.