Vísir - 16.12.1943, Síða 2
VISIR
VISIF7
DAGBLAÐ
Útcefudl:
BLAÐAÚTGÁFAN VlSlR HJ.
RitBtjórar: Kristján GuSlangsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsnsiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Sfmar: 16 60 (fimm línur).
VerS kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Eignarnám og
eignarréttut,
FRÁ ÞVt er styrjöld sú liófst,
er nú geysar, liefir þrá-
íaldlega verið stagast á því af
vinstri blöðunum, að margvís-
legar breytingar myndu gerðar
verða á þjóðskipuninni frá þvi
sem tíðkaðist fyrir stríð, er frið-
arsamningar yrðu gerðir, þann-
ig að gamli heimurinn liti ekki
dagsins Ijós að nýju. Vafalaust
er þetta rétt, en hitt er annað
mál, að hinn nýi lieimur verður
með allt. öðrum svip, en róttæk-
ustu byttingarmenn hugsa sér
hann. Sagt er að forystumenn
kommunismans í heimalandinu
liafi fengið meira en nóg af
snakki eftirapara þeirra um þá
þjóðfélagsstefnu, og vafalaust
verða trúbræður þeirra hér á
landi engu síður fyrir vonbrigð-
um en hinir, sem tilbiðja þjóð-
málaástandið eins og það gekk
og gerðist fyrir stríð. Umbóta
er þörf, — það er með öllu
vafalaust, — en byltingar verða
jafn fjarri tilverunni hér á landi
og þær hafa ávallt verið.
íslendingar hafa staðið langt
að baki öðrum þjóðuin í því að
virða eignarrétt og einstaklings-
framtak svo sem vera ber. Ekk-
ert hefir verið löggjafanum heil-
agt. Einstakir flokkar hafa sett
metnað sinn í að sniðganga eða
brjóta í bága við skýlaus stjórn-
arskrárákvæði, og eina vörn
einstakhnganna hafa dómstól-
arnir yerið, enda hafa þeir met-
ið, skyldu sinni samkvæmt,
hvort gengið var á lögverndað-
ann rétt einstaklinganna eða
eklci. Stjórnmálaflokkarnir hafa
sumpart vitandi vits, en suin-
part, að því er virðist, vegna ó-
sjálfráðs trúarofstækis, virt að
vettugi einsaklingsframtakið og
einstaklingsréttinn, til þess að
koma þjóðnýtingaráformum
sínum í framkvæmd, enda liefir
jafnvel verið látið í það skína,
að mestu athafnamennirnir
væru þjóðinni hættulegastir.
Þetta er öfug þróun, sprottin
af skammsýni einni, — en engu
öðru. Svo langt hefir þetta geng-
ið að bæjarfélög, sem ætla
mætti, að stæðu á verði fyrir
einstaklingana, hafa ekki treyzt
til annars en undanlátssemi við
uppivöðslulýðinn, og hafa leit-
ast við að ná tangarhaldi á fyr-
irtækjum, sem einstaklingar
höfðu fengið til umráða, og gátu
rekið í almannaþágu engu síð-
ur en hið opinbera. Er langur
vegur á milli þess að lofa ein-
staklingunum að starfa í friði
að j>eim verkefnum, sem þeir
geta risið undir, og hins, að ríki
eða bæjarfélög hlaupi undir
bagga þar sem framtak e|in-
staklinga eða einstaklingssam-
taka brestur. Því aðeins mun
okkur kleift að byggja örugg-
lega upp þjóðfélag þetta, að fullt
jafnræði sé á milli einstakling-
anna og ríkisvaldsins, þannig að
hvorttveggja njóti sín á tilætl-
aðan hátt.
Hæstiréttur kvað upp í gær at-
hyglisverðan dóm varðandi rétt
Reykjavíkurbæjar til að ganga
inn í kaup á frystihúsi, sem
bærinn hafði forkaupsrétt að
samkvæmt nánar tilgreindum
skilyrðum. Bærinn átti rétt til
kaupa samkvæmt mati, en engu
máli skipti fyrir hvaða verð ein-
Islendingar við ameríska
háskóla reynast duglegir
námsmenn.
Ntríðiframleiðsla |Bandarik|anna
aldrei st«rko§t!eg:ri en nú.
Viötal við Arnald Jónsson blaðamann.
Arnaldur Jónsson blaðamaður er nýkominn heim frá
Ameríku. Kynnti hann sér blaðamennsku og las um þau
efni við ríkisháskóla Minnesota í Minneapolis.
Við Minnesotaháskóla er annar fjölmennasti stúdentahópur-
inn frá Islandi sem stundar nám vestan hafs. Lætur Arnaldur
vel af líðan þeirra og gengi.
Vísir hefir náð tali af Arnaldi
og skýrði hann frá dvöl sinni
vestan hafs á þessa leið:
— Við Minnesotaháskólann,
þar sem eg dvaldi lengst af þess
tíma, sem eg var í Ameríku, er
annar fjölmennasti náms-
mannahópurinn frá íslandi. Eru
það 17 stúdentar, sem nema við
staldingarnir liöfðu fest kaup á
eigninni. Þetta er niðurstaða,
sem er í fullu samræmi við á-
kvæði samnings þess, er hér lá
fyrir, en auk þess er hún eðli-
leg og sjálfsögð frá almennu
sjónarmiði séð. Verði frystihús-
ið starfrækt forsvaranlega af
einstaklingunum, er til þess eng-
in ástæða að bæjarfélagið fari
að hlaupa í kapp við þá um
reksturinn. H'itt væri bænum
miklu nær að verja afgangsfé
sínu til sjúkrahússbyggingar
eða til þess annars, sem ekki er
liklegt að einstaldingarnir ráð-
ist í. Hitt er fráleitt að bærinn
etji kappi við einstaklingana
um atvinnufyrirtæki, sem ör-
ugg eru í höndum þeirra, einlc-
um þar sem hæjarfélagið á sjálft
sambærilegt fyrirtæki, er það
leigir einstaklingum til afnota.
Virðist þörfin þá ekki mikil fyr-
ir slík fyrirtæki af bæjarfélag-
sins hálfu. Varað var við þessari
óeðlilegu ágengni bæjarfélagsins
hér i blaðinu, og jafnframt vak-
in athygli á, að réttur bæjarins
væri ekki annar en sá, að hann
gæti keypt eignina samkvæmt
mati, en matsverðið yrði á þess-
um tíma óeðlilega liátt, en gæð-
in hinsvegar vafasöm, er eftir
væri seilst. Nú á bæjarfélagið
völina, og er ósennilegt að það
hverfi að því ráði að kaupa eign-
ina gegn þessum skilyrðum.
Tími er kominn til að menn
geri sér fyllilega Ijóst, hvort
framtak einstaklingsins eigi að
meta að nokkru eða engu. Á hið
opinbera að gína yfir öllum
rekstri eða á það að láta ein-
staklinginn í friði með þann
rekstur, sem honum er ekki um
megn? Það er tilgangslaust að
gera gælur við ósómann. Ann-
aðhvort á hið opinbera að ann-
ast allan rekstur og sjá fyrir öll-
um einstaklingum, eða að það
á að sjá einstaklingana í friði,
brjóti þeir að engu gegn lögum
og velsæmi eða almannaheill
með starfsemi sinni. Hitt er frá-
leitt að hið opinbera ásælist arð-
bæran rekstur einvörðungu af
því að hann kann að vera arð-
bær. Þar eru einstaklingarnir
eins vel að arðinum komnir,
enda líklegra að rekstur þeirra
verði frá þjóðfélagsins sjónar-
miði lieppilegri en þjóðnýting,
með öllu því er henni fylgir.
Undanlátssemi við öfgastefn-
urnar á engan rétt á sér, hvort
sem er í bæjarstjórnum eða lög-
gjafarsamkundu þjóðarinnar.
Að vera eða vera ekki sagði
Shakespeare og þótti vel sagt á
sínum tíma. Menn geta að vísu
séð hinn gullna meðalveg, —
og hann er beztur, — en að
fara úr öfgum í öfgar er á eng-
an hátt líklegt til sáluhjálpar
né veraldargengis.
liáskólann sjálfan, en auk þess
eru þar tveir nemendur við
aðra skóla.
Starfsemi Minnesotaháskóla
hefir breytzt talsvert þessi
styrjaldarárin, þar sem herinn
hefir tekið flesta liáskóla lands-
ins að meira eða minna leyti í
sína þjónustu. Hafa þær ráð-
stafanir að sjálfsögðu gert öll-
um erlendum stúdentum erfið-
ára fyrir. I fyrsta lagi vegna
þess, að náminu hefir verið
þjappað mikið saman og nóms-
hraðinn aukinn að miklum
mun, og ennfrenmr liefir lier-
inn tekið í sína þjónustu all-
marga af kennaraliði háskól-
ans. Þá hefir hin öra skrá-
setning ungra manna i lierinn
orsakað miklar truflanir á
starfsemi skólans. Eru jafn-
vel dæmi til þess, að orðið hefir
að leggja heila bekki niður 1
sumum námsgreinum, af því
að nemendurnir liafa verið skrá-
settir í herinn á nómstímabilinu
og engir aðrir komið í staðinn.
Þetta liefir þó ekki komið að
sök enn, hvað snertir nám ís-
lendinganna enda eru þeir flest-
ir við þannig nám, svo sem verk-
fræði og aðrar slíkar náms-
greinar, sem lengst verða
kenndar.
Eg var að sjálfsögðu afar
mikið með íslenzku stúdentun-
um, og kynntist þeim vel. Er
mér óhætt að segja, að þeim
gengur námið afar vel þrátt fyr-
ir talsvert erfiðar kringumstæð-
ur, og/njóta virðingar og vel-
vildar háskólakennaranna fyrir
góða frammistöðu í hvivetna.
Það er nómsfólkinu að sjálf-
sögðu mikill styrkur, að í borg-
inni Minneapolis, eru allmargar
íslenzkar fjölskyldur. Er það
sannast að segja, að þessar fjöl-
skyldur gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að auka ánægju
og vellíðan islenzka námsfólks-
ins með því að hjóða því heim
á heimili sín og með margskon-
ar annari vinsemd. Eg er ekki í
nokkrum vafa um, að stúdent-
arnir ætla sér allir að koma
heim að náminu loknu og eiga
þá ósk heitasta, að geta orðið
sínu eigin föðurlandi að sem
mestu liði.
— Hvað er svo að segja af
styrjaldarrekstri Bandaríkja-
manna?
— Það sem mér finnst ein-
kenna viðhorf Bandaríkja-
manna um styrjöldina mest, er
að allir virðast einhuga um að
leggja allt í sölurnar til að
vinna sigur sem fyrst og þá
jafnframt að svo verði um búið
að næsta friðartimabil megi
verða langt og farsælt. Fram-
leiðsla liergagna og matvæla
hefir vaxið með þeim risaskref-
um að engan mun hafa órað fyr-
ir að unnt væri að ná slíkum
hraða og afköstum, á fyrstu
mánuðum styrjaldarinnar.
Skrásetning manna i herinn er
þó ef til vill það sem er mest
áberandi í fljótu bragði. Götu
eftir götu í borgunum gefur að
líta hinar bláu stjörnur, er gefa
til kynna að einhver meðlimur
fjölskyldunnar sé kominn i
stríðið, hanga tvær eða fleiri
saman i gluggum hvers einasta
húss. Þessi mikla mannaþörf
hersins orsakar stórlega fækk-
un á karlmönnum í hinum
ýmsu greinum atvinnuveganna.
Eg held þó ekki að um verulega
fólkseklu sé að ræða hjá neinni
af greinum styrjaldarfram-
leiðslunnar, því að kvenfólkið
liefir tekið við af karlmönnun-
um í svo mörgum tilfellum.
Hefir sú ráðstöfun áreiðanlega
reynzt vel og telja sumir jafn-
vel að afköstin í verksmiðjun-
um hafi aukizt að mun síðan
konurnar voru settar þar til
starfa. Roosevelt forseti og
stjórn hans hafa barizt kröft-
uglega gegn verðbólgu og hefir
sú barátta verið árangursrík til
þessa. Nú liafa kolanómuverka-
menn liinsvegar knúið fram
kauphækkun og má telja eðli-
legt, að önnur samtök verka-
manna svo sem Verkalýðssam-
band alríkisins og samtök verk-
smiðjufólks reyni einnig að fá
kaup sitt hækkað. Það myndi
hinsvegar óumflýjanlega hafa
þá afleiðingu, að sá grundvöllur
sem stjórnin í Washington hefir
hyggt sína baráttu gegn dýrtíð-
inni á, myndi raskast og því
myndi sennilega fylgja almenn
hækkun á verði landbúnaðar-
framleiðslunnar. Hvað sem ger-
ist þó í þessum málum, munu
Bandaríkjamenn standa saman
um að láta ekkert það gerast, er
geti lamað styrjaldarreksturinn
eða seinkað úrslitasigri banda-
manna í styrjöldinni.
— Gekk ekki ferðalagið lieim
til íslands vel?
— Jú, vissulega. Styrjaldar-
þjóðirnar tala um að ef til vill
eigi þær meira að þaklea þeim
mönnum, sem sigla kaupskipa-
flota þeirra yfir höfin en nokkr-
um öðrum aðila, sem þátt tekur
í styrjaldarrekstrinum.
Þetta er vafalaust alveg rétt, en
hitt er jafnframt ekkert vafa-
mál, að íslendingar ættu sízt að
vera minna stoltir yfir far-
mönnunum okkar en stríðs-
þjóðirnar eru yfir sínum sjó-
mönnum og herskörum, þvi að
mínum dómi leysa íslenzku
farmennirnir af höndum starf,
sem þeir eiga skilið þakkir
allrar þjóðarinnar fyrir.
Bæjor
fréftír
I.O.O.F. 5
E.S., E.K.
12512168V2
Nætnrlæknir.
Slysavarðstofan, sími 5030.
NæturvörSur.
Reykjavíkur apótek.
Næturakstur.
Hreyfill, sími 1633.
Útvarpið í kvöld.
KI. 20,20 Útvarpshljómsveitin
(Þór. GuÖmundsson stjórnar): a)
Forleikur aÖ óperettunni „Stráka-
pör“ eftir Suppé. b) Lög úr óper-
ettunni „Bláa kápan“ eftir Walter-
Kollo. c) Tvö ljóðræn smálög, eft-
ir Grieg. d) Mars eftir Morena.
20,50 Frá útlöndum (Jón Magnús-
son fil kand.). 21,10 Hljómplötur:
Lög leikin á celló. 21,15 Lestur Is-
lendingasagna (dr. Einar Ól.Sveins-
son háskólabókavörður). 21,40
Hljómplötur: Sigurður Birkis
syngur.
Happdrætti sjúklinga á Vífilsstöðum.
Dregið var í happdrætti sjúkl-
inga að Vífilsstöðum í skrifstofu
Bæjarfógetans í Hafnarfirði þann
15. des. og komu upp þessi númer:
Nr. 9506 Útvarpstæki 7 lampa. 7350
Málverk eftir J. Kjarval. 37 Mál-
verk eftir sama. 9505 Rafmagns-
lampi. 8998 Tjald og hvilupoki.
5668 Skiði með öllum útbúnaði.
33^7 Matarstell. — Vinninganna sé
vitjað til Skemmtinefndar Vífils-
staðahælis.
Jólaepli — jólatré.
Ný sending af jólaeplum er kom-
in til landsins, enn fremur jólatré
og jólatrés-greinar, er koma munu
í verzlanir um næstu helgi.
n
Scrutator:
JlcudjdvL OjSmMMLHýS
Blaðsöluturnar.
Eg sé það í fundargerð bæjar-
ráðs, að tveir ungir menn hafa sótt
um sérleyfi til að hafa blaðsöluturn
á Lækjartorgi. Býst eg við að af
því yrðu mikil þægindi, ef úr yrði,
því að það er ekki viðhlítandi til
frambúðar, að blöð skuli eingöngu
seld á afgreiðslum og af götusöl-
um. En auðvitað verður að tryggja
það, að slíkur turn verði fallegur
útlits, enda er hægur nærri, skyldi
bæjarráði ekki líka byggingin, að
fá arkitekt bæjarins til að teikna
turninn. Lækjartorg virðist sjálf-
sagður staður til að hafa blaðaturn
á, en einnig koma aðrir staðir til
greina, þegar fram í sækir. Mun
þróunin óefað stefna í þá átt, að
slíkir turnar komist upp á sem flest-
um stöðum í bænum. Hingað til
hefir umtal um slíka blaðsölustaði
verið látið sitja við bollaleggingarn-
ar einar. En nú væri óskandi, að
úr jurði alvara.
Rafmagnsskortur.
Rafmagnsveitan hefir nú tilkynnt,
að ekki sé útlit fyrir að nein bót
verði ráðin á rafmagnsskortinum
fyrr en eftir áramót, nema síður
sé, og þykir mörgum horfa óvæn-
lega, einkum atvinnurekendum, sem
að sjálfsögðu hljóta að tapa stór-
fé á rafmagnsleysinu. En harðast
kemur þó rafmagnsskorturinn nið-
ur á húsmæðrum bæjarins, sem eiga
allflestar að elda hádegismatinn á
sama tíma, einmitt þegar sem verst
gegnir með rafmagnið. Mér hefir
dottið það í hug, hvort ekki væri
hægt að ráða nokkra bót á þess-
um vandræðum með þvi að skipta
matmálstímanum þannig, að sumir
borðuðu hádegisverð kl. 12—1, aðr-
ir kl. 1—2. Eg er einn þeirra sára-
fáu, sem borða hádegisverð kl. 1—
2, og hjá mér eru ekki rafmagns-
vandræði af þessum sökum. Þvi
hefir mér dottið í hug, hvort ekki
væri hægt að skipta matartíman-
um eftir einhverjum reglum, því
,að það væri auðvitað engin bót,
þótt allir flyttu matmálstíma sinn
fram.
Bókaverðið.
Það kom ýmsum á óvart, þegar
bókaverðið var allt í einu lækkað
um 20%. Um langan tíma höfðu
menn nöldrað út af bókaverðinu og
furðað sig á því, að bækur skyldu
ekki talin nógu mikil nauðsynjavara
til að réttlæta verðlagseftirlit, þeg-
ar eftirlitið náði jafnframt til kven-
hatta. Þegar loks var ákveðið að
lækka verðið, var ekki tími til ann-
ars en handahófslækkunar, sem
kemur harðast niður á þeim útgef-
endum, sem ódýrast hafa selt. Bóka-
búðir eigá um sárt að binda. Þær
urðu að loka til hádegis í gær til
vöruskoðunar á mesta annatíma
ársins. En gramastir munu þó þeir
vera, sem lokið höfðu að kaupa
bækur til jólagjafa. Veit eg um
menn, sem keypt höfðu fyrir meir
en 1000 kr. (og tapað 200 kr.) —
En að öllu samanlögðu er þessi ráð-
stöfun samt skárri en ekkert, en
eftir áramótin verður þegar i stað
að taka upp gagngert verðlagseftir-
lit, því að slik handahófslækkun er
ekki til frambúðar.
Flugvirki ...
Þrír íslenzkir flugmenn hafa
keypt sér flugvél og ætla að fljúga.
Eg vona, að hér sé ekki um sam-
keppni við Flugfélagið að ræða.
Það er ekki viðeigandi, að flugmenn
fljúgist á.
Virðingarfyllst
Isak ísax,
fluggáfnaljós.
Rennilásar .
18—19 cm.
e. TOFT
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
Stofuskápar
(eik). .
Nokkurar gerðir fyrirl.
HÚSGÖGN & CO.
Smiðjustíg 11.
Matsölubúðin
Aðalstræti 16.
Lausar móltíðir, smurt brauS
og veizlumatur.
Sími: 2556.
2 samliggjandi
herbergi
til leigu í Kleppsholti (kjall-
arahæð). Dálítil fyrirfram-
greiðsla nauðsynleg. Tilboð
merkt: „Langholtsvegur"
sendist blaðinu.
Happdrætti
Styrktarsjóðs Vélstjórafé-
lags íslands. Eftirtalin nr.
komu upp:
1. 1194 11. 2337
2. 145 12. 376
3. 1937 13. 268
4. 1139 14. 807
5. 289 15. 625
6. 1395 16. 289
7. 674 17. 2404
8. 1409 18. 1817
9. 1192 19. 1421
10. 1470 20. 1955
Munanna sé vitjað í skrif-
stofu Vélstjórafélagsins í
Ingólfshvoli.
Vélstjórafélagið.
Atvinna
Laghentur maður getur
komist að í fastavinnu við
iðn og verzlunarfyrirtæki.
Meðmæli ef til eru.
Tilboð um laun leggist á
afgr. blaðsins, merkt: „At-
Oæfan fylgir
trúlofunarhringum frá
Sigurþór
Ávallt fyrirliggjandi af
öllum gerðum.
Þúsund og ein nótt
er að koma út x nýrri og frá-
bærlega vandaðri útgáfu á vegum
útgáfufélagsins Reykholt í hinni al-
kunnu snilldarþýðingu Steingríms
Thorsteinssonar, en þessa útgáfu
prýðir fjöldi gullfallegra teikni-
mynda. Fyrsta bindið er nú kom-
ið út, en alls eiga þau að verða
þrjú, og er ætlað að hin tvö bindin
komi út á næsta ári. — Þetta er
þriðja útgáfa safnsins.