Vísir - 16.12.1943, Page 3
VfSIR
\
Fnndnr stndenta
um málfrelsi.
í fyrrakvöld var haldinn fund-
ur í Kaupþingssalnum með stúd-
entum, eldri og yngri. Frum-
mælandi var Lúðvíg Guðmunds-
son skólastjóri, en hann hafði
verið milligöngumaður stúdenta
©g Árna Pálssonar prófessors
um ræðuflutning á fyrirhugaðri
fullveldissamkomu þeirra í
Tjarnarbíó.
Kvaðst frummælandi hafa
talið það skyldu sína, vegna af-
skipta sinna af máíi þessu, að
skýra stúdentum frá gangi þess
og leiðrétta missagnir og rang-
hermi, sem fram hafi komið
opinberlega, m. a. í greinargerð-
um stjórnár Tjarnarbíós og víð-
ar. Kvað hann það t. d. rangt,
sem fram hafi komið í þing-
skjali nýlega, að Tjarnarbíós-
stjórnin hafi nokkra tilraun gert
til þess að hindra upplestur
Tómasar Guðmundssonar
skálds. Hinsvegar hafi stjórn
kvikmyndahússins sett þau skil-
yrSi um ræðu Árna Pálssonar,
aS hann ekki ræddi stjórnmál.
Ha stúdentar hafi haldið fast
fram þeirri kröfu, að salur kvik-
myndahússins yrði þeim léður,
átt nokkurra skilmála um efni
raöðunnar. Seinna hafi Bíó-
stjórnin fallið frá þessu skil-
yrði heimilað prófessorn-
um óheftan málflutning, en
hafi þá getið þess, að stúdentar
yrði að taka á sig alla ábyrgð á
deslum, sem kynnu að rísa af
þessu máli, og gæti þetta haft
þær afleiðingar fyrir stúdenta,
að þeir ekki fengju aftur afnot
hússins til skemmtihalda sinna.
Þegar prófessor Árni frétti, að
málfrelsi honum til handa, væri
veitt með þeim forsendum, að
stúdentar háskólans bæri ábyrgð
á afleiðingum orða hans, ákvað
hann þegar að draga sig i hlé.
Varð þetta til þess, að stúdenta-
ráðið aflýsti hátíðarsamkom-
unni í Tjarnarbíó.
Páll A. Pálsson stud. jur., sem
er formaður stúdentaráðsins, og
staðið hafði í samningum við
stjórn Tjarnar-bíós fyrir hönd
stúdentanna, lýsti yfir því á
fundinum, að frásögn frum-
mælanda af afskiptum stúdenta
við stjórn kvikmyndahússins
væri i alla staði sannleikanum
samkvæm.
Auk þessa töluðu fimm aðrir
ræðumenn.
I fundarlok var borin upp
svolátandi ályktun, sem sam-
þykkt var með 24 atkv. gegn 1:
„Fundur stúdenta, haldinn í
Kaupþingssalnum, þriðjudaginn
14. desember, lýsir sig samþykk-
an gerðum stúdentaráðsins í
Tjarnarbíómálinu, en átelur
framkomu stjórnar kvikmynda-
hússins vegna tilrauna hennar
til að skerða málfrelsi próf.
Árna Pálssonar.“
Þegar atkvæðagreiðslan fór
fram voru nokkrir gengnir af
fundi og meðlimir stúdentaráðs-
ins, sem var aðili í málinu,
greiddu ekki atkvæði um álykt-
unina.
Friðþjóf s
§aga
Maiuseiis
er komin út
Þetta er jólabókin
Bókavervlun Isafoldar og ntibúið Langaveg 12
Til jólagjafa handa
Hinar ágætu ensku orðabækur — Funk & Wagnals:
The Modern Dictionary. (Með um 50.000 orð og yfir
1000 myndir). Verð kr. 15.00 í bandi.
Desk Standard Dictionary. (Með um 80.000 orð og yfir
1200 myndir). Verð kr. 27.50 í bandi.
College Standard Dictionary. (Með um 140.000 orð
og yfir 2500 myndir), 1343 blaðsíður.
Verð kr. 40.00 í bandi.
Bókaverzlun Nignrðar Kristjánisonar
Bankastræti 3.
Amerísk
karlmannafðt
og
Amerískir
vetrarfrakkar
teknir upp í dag
Toledo vog
Höfum fyrirliggjandi 750 kg. Toledovog á h jólum.
Fullkomnasta gerð.
G. Helgason & Melsted h.í.
Sími: 1644.
____" _________________________
Amerísk
karlmannaföt
nýkomin, einhneppt og tvíhneppt. Verð 450.00.
Jólabaxarmm
Laugawg 53
BEZT AÐ AUGLÝSA I VÍSL
Gunnar M. Magnúss:
Þetta er bókin, sem mest umtal mun vekja, vegna hins
nýstárlega efnis í tveim stærstu sögum bókarinnar: —
„Hvítra manna land“ og „Hvar er konan?“ E. t. v.
munu þó enn meiri aðdáun hljóta þær sögur, er fjalla
um líf og starf sjómannsins, og fólksins i sjávarþorpinu
vestra. Merkur bókamaður hefir sagt: „að sögurnar séu
hver annarri betri og sú síðasta, hin ógleymanlega mynd
af heimsókn konungsins í hið fátæka sjávarþorp, skipa
sér öruggt sæti meðal úrvals íslenzkra smásagna, og þó
viðar væri leitað.“
Kaupið þessa ágætu bók strax i dag.
Klæðagerðin Últíma
Lokað
frá kí. 8—12 á. morgun
vegna jarðarfarar.
ÍMfaécii
Jarðarför konunnar minnar, móður okkar og tengda-
móður,
Guönýjar Ingigeröar Cyjólfsdióttur
fer fram föstudaginn 17. þ. m. og hefst kl. 10.30 f. h. frá
heimili okkar, Njálsgötu 34.
Það var ósk hinnar látnu að þeir sem vildu gefa blóm, er
hún félli frá, létu andvirði þeirra heldur renna til Slysa-
varnafélags íslands.
Tryggvi Pétursson, börn og tengdasonur.
Jarðarför elsku litla sonar okkar og bróður,
Jens Kristins Þorsteinssonar
fer fram frá Dómkirkjunni laugardaginn 18. þ. m. og hefst
með bæn að heimili okkar, Kaplaskjólsvegi 12 kl. 1 e. h.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Guðrún Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson,
systkini og tengdasystir.
_____________________________________________________1